Innlent, Forsíða - miðvikudagur - 1.8 2007 - 10:03

Segja að Fazmó-gengið hafi ráðist á Eið Smára

Í athugasemdum við frétt Eyjunnar frá því í gær um árásina á Eið Smára Guðjohnsen í miðborg Reykjavíkur um helgina tjá sig nokkrir aðilar sem segjast hafa orðið vitni að því sem gerðist. Þar á meðal eru tveir sem nefna nafn árásarmannsins og fullyrða að hann sé í genginu Fazmó, sem margsinnis hefur komið við sögu ýmissa ofbeldismála í miðborginni og annars staðar. Aðrir, sem segjast hafa verið á staðnum, andmæla því Fazmó hafi átt í hlut.
Sjá hér.

6 ummæli

Rita ummæli

Bjarki
01.08 2007 kl.10:55

Hvurslags vinnubrögð eru þetta? Ég hélt að þetta ætti að vera respectable fjölmiðill sem myndi ekki slá upp fréttir af einhverjum nafnlausum ummælum. Allt er greinilega gert til þess að vera fyrstur með “skúbbið” - ef það reynist svo ekki fótur fyrir þessu þá er málið látið niður falla.

Árni
01.08 2007 kl.11:36

Mann stingur í augun að sjá jafn óþroskaða íslensku og hér ber fyrir í athugasemd fyrir ofan mig. Ekki einungis er því sleppt að beygja orðið fréttir, heldur eru einnig tilefnislaus ensku sletta. Ég hef ekkert á móti slettum þegar þær eru notaðar til þess að auðga tungumálið, en hvað er að orðum líkt og virðulegt? Þó er “skúbbið” skiljanlegt til þess að skerpa eggið á blaði athugasemdarinnar og gleður mig þar að það skuli vera skrifað með íslenskri stafsetningu.

Kristján
01.08 2007 kl.12:29

…andmæla því *að* Fazmó hafi átt í hlut.

Röggi
01.08 2007 kl.12:36

Og þú Bjarki skammar eyjuna fyrir að gleyma að ritskoða athugasemdirnar. Hvernig viltu standa að þeirri ritskoðun? Og svo heldur þú því fram að þetta sé engin frétt heldur nafnlausar sögur.

Skil ekki bofs.

Ingi
01.08 2007 kl.16:38

Setja upp frétt úr athugasemdum er fínt þannig séð , en ekk vandað.

Væri kannski betra að reyna að nálgast þá sem sáu að Fazmó átti í hlut með því að senda e-mail og fá þessi vitni í viðtal. Þó að þau mundu tjá sig “nafnlaust” þá er það allavega skömminni skárri en að láta bara athugasemdirnar tala.

Eyjan » Blog Archive » Réðist á Eið Smára fyrir mánuði - nú á dómara í knattspyrnuleik
29.08 2007 kl.20:01

[...] miðborg Reykjavíkur að næturlagi helgina áður. Eiður kærði árásina ekki til lögreglu. Sá sem réðist á hann var að verki lét enn að sér kveða í gær, þá var hann að leika sem markvörður í utandeildinni í [...]

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar