Innlent, Forsíða - miðvikudagur - 29.8 2007 - 19:53

Réðist á Eið Smára fyrir mánuði - nú á dómara í knattspyrnuleik

Maðurinn sem réðist á Eið Smára Guðjohnsen í miðborg Reykjavíkur fyrir um það bil mánuði réðist á dómara í knattspyrnuleik í utandeildinni í gær. Dómarinn er með þrjú brotin rifbein eftir árásina en veit ekki enn hvort hann kærir til lögreglu.

Eins og við sögðum frá á Eyjunni 31. júlí sl. var ráðist á Eið Smára Guðjohnsen, fyrirliða íslenska landsliðsins í knattspyrnu, þegar hann var á ferð um miðborg Reykjavíkur að næturlagi helgina áður. Eiður kærði árásina ekki til lögreglu. Sá sem réðist á hann framdi aðra líkamsárás í gær. Þá var hann að leika sem markvörður í utandeildinni í knattspyrnu með liði Gym80 á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Hann fékk rautt spjald undir lok leiksins eftir að hafa elt dómarann út á miðjan völl og hellt sér yfir hann með svívirðingum.

Eftir leikinn réðist maðurinn á Val Steingrímsson, dómara, og sló húfu af höfði hans. Þegar Valur, sem er á sextugsaldri, reyndi að forða sér undan manninum elti árásarmaðurinn hann og sparkaði undan honum fótunum aftanfrá. Valur féll í jörðina og braut þrjú rifbein. Hann sagði í viðtali í fréttum Stöðvar 2 að hann væri að íhuga að kæra árásina til lögreglu og mundi ræða málið við lögreglumann á morgun. Valur sagðist aldrei hafa lent í neinu þessu líku á löngum dómaraferli.

9 ummæli

Rita ummæli

gussi
29.08 2007 kl.20:53

hvernig væri að nafngreina svona menn?

hmmm
29.08 2007 kl.21:39

Þessi maður er þekktur ofbeldismaður og hefur framið fjöldann allan af líkamsárásum í Reykjavík síðustu ár. Það er íslensku réttarkerfi og þjóðfélaginu í heild til háborinnar skammar að svona menn séu ekki settir inn.

Jón
29.08 2007 kl.21:40

Þess ber að nefna að sami einstaklingur kýldi einnig Sveppa á sínum tíma þegar sýningar á Kalli á þakinu stóðu sem hæðst. Eftirfarandi DV blað greindi frá þeim atburði.

http://www.visir.is/ExternalData/pdf/dvpdf/DV060110.pdf

Svo virðist sem Sveppi hafi verið með “of mikla stjörnustæla” og ætli það hafi ekki verið sama upp á teninginn með Eið þegar hann var kýldur. Þessi maður kann að skapa sér vini og vonum að frægir einstaklingar haldi sig frá honum þar sem hann mun eflaust lemja þá ef þeir koma ekki rétt fram við hann.

Svona menn eru svartir blettir á samfélaginu og hvað er hægt að gera við svona einstaklinga sem læra ekki? Senda þá til Surtsey? Ég bara spyr.....

Ari
30.08 2007 kl.00:30

Hvað hefur Surtsey gert þér? Ég bara spyr...

Mr T
30.08 2007 kl.01:15

Það er enginn greiði gerður að kæra ekki þennan óvita.. hann er greinilega stórhættulegur sjálfum sér og öðrum. Hann á greinilega eitthvað erfitt í heilabúinu og heldur að hann tali með hnefunum..

Villi
30.08 2007 kl.12:01

Var þetta matti ?

Johnny
30.08 2007 kl.15:53

Davíð Smári heitir þessi ágæti Herra maður.

Svenni
30.08 2007 kl.20:33

hahahha góður Ari

Nonni
31.08 2007 kl.00:15

Dabbi Dabbi Dabbi!!!! hvar á þetta að enda með þig drengur!! gerir þú þér ekki grein fyrir því að þú ert að verða einhver mest hataði maður landsins! er ekki vont að vera svona hataður af svona mörgum!!?

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar