Hljóðupptaka er komin fram af handtöku bandarísks öldungardeildarþingmanns fyrir ósiðsamlegt athæfi á salerni flugvallarins í Minnepolis-St. Paul í sumar. Þingmaðurinn, Larry Craig, hefur þegar sagt af sér nefndarstörfum fyrir Repúblíkana í þinginu og sætir miklum þrýstingi samflokksmanna sinna að segja af sér. Talsmaður hans neitaði í dag að hann ætlaði að hætta á þingi.
Á upptökunni heyrast orðaskipti þingmannsins og lögreglumannsins sem handtók hann fyrir að reyna við sig kynferðislega, með því að renna fæti sínum undir skilrúmið, þar sem þeir sátu hlið við hlið á salerninu, og ýta við fæti lögreglumannsins.
“Þú sagðir að fæturnir á okkur hefðu rekist saman. Ég held þeir hafi gert það,” heyrist Craig segja. “Það næsta sem ég veit er að það birtist spjald undir skilrúminu sem á stendur: Lögreglan.”
Craig segist ekki vera samkynhneigður. “Ég sækist ekki eftir athöfnum á salernum.” Lögreglumaðurinn segist hafa tekið þó nokuð marga fyrir svipaða hegðun og þingmaðurinn ylli sér vonbrigðum. “Hérna siturðu og lýgur að lögreglumanni... Fólk kýs þig. Ótrúlegt.”
Þín skoðun
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.