
Portúgalska lögreglan telur nú að líki Madeleine McCann hafi verið hent í sjóinn af lystisnekkju í eigu Englendinga í Portúgal.
Portúgalska lögreglan er líka sannfærð um að foreldrar Madeleine séu ábyrgir fyrir hvarfi hennar og móðirin hafi óvart gefið henni of stóran skammt af svefnlyfi. Þetta kemur fram í fjölda fjölmiðla í Portúgal, segir á vefsíðu bt.
Lögregla og ákærendur í málinu hafa þó engar sannanir fyrir því að Madeleine hafi verið myrt þar sem ekkert lík hefur fundist.
“Þrátt fyrir að blóð og önnur sönnunargögn sem fundust í bíl og íbúð hjónanna sanni að DNA-sýnin eigi við Madeleine, sannar það ekkert,” segir lögreglumaður í samtali við
Evenig Standard.
Nú er öll áhersla lögð á að finna lík stúlkunnar - vonir um að finna hana á lífi eru brostnar - og í augnablikinu er leitað í sjónum við strendur Praia da Luz, þar sem fjölskyldan bjó.
Lögreglan hefur rannsakað snekkju í eigu Englendinga, en grunur hefur vaknað um að
líki Madeleine hafi verið hent úr snekkjunni. Samkvæmt portúgalska dagblaðiu Diario de
Noticias er tilgáta lögreglunnar sú að líkinu hafi verið pakkað inn í plastpoka og hann
fylltur með þungum steinum áður en honum var hent í sjóinn.
Enska dagblaðið The Sun getur sér til að Gerry og Kate McCann hafi notið aðstoðar vina sinna til að losa sig við lík Madeline, en BT segir erfitt að henda reiður á hvað sé satt og hvað ósatt í þessu máli. Blaðið segist þó munu fylgja málinu fast eftir.
Þín skoðun
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.