Fólk - miðvikudagur - 24.10 2007 - 19:07

Simply Red hætta eftir tvö ár

simply-red.jpgSimply Red ætla að hætta að spila saman árið 2009, eftir að hafa spilað saman fjórðung úr öld. Þetta er haft eftir söngvaranum Mick Hucknall.

Huchall, sem er 47 ára gamall, segir að plata hljómsveitarinnar Stay, sem kom út í mars, verði jafnframt síðasta plata hljómsveitarinnar.
“Ég hef ákveðið að 25 ár séu nóg,” segir söngvarinn “og að tónleikaferðin sem hljómsveitin er á næstu tvö árin verði svanasöngurinn.”

Söngvarinn segist ætla að einbeita sér að sóló-ferlinum, og hefur einmitt nýlokið við eigin plötu, sem hann tileinkar blúsaranum Bobby Bland. Stay var þriðja plata hljómsveitarinnar undir nafninu simplyred.com og komst í fjórða sæti vinsældalista í Bretlandi.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar