Innlent - fimmtudagur - 22.11 2007 - 09:23

Þrjár tegundur af köngulóm hafa numið land

77471629.jpgÞrjár tegundir af köngulóm hafa numið land á Íslandi undanfarin ár, allt “alvöru köngulær, mun stærri en við eigum að venjast,” en meinlausar, segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur í samtali við Fréttablaðið í dag.

Tegundirnar halda sig fyrst og fremst inni í lagerum og slíku húsnæði en hafa ekkki fundist í híbýlum manna, enn sem komið er. Erling segir köngulær þola að svelta vikum saman og þótt þær finni sér ekkert æti allan desember þoli þær það alveg.

Tvær af tegundunum eru náskyldar íslenskri húsakönguló en tvöfalt stærri “lappalangar og frekar skelfingu valdandi fyrir marga þó að þetta séu saklaus dýr. Þessar tegundir eru búkminni en lappameiri og hraðskreiðari en köngulær sem eru úti,” segir hann. Þriðja tegundin, leggjakönguló, er með lítinn búk en afar langa og granna fætur. Hún er algeng í vöruskemmum og vöruhúsum erlendis. “Það fer lítið fyrir þessum köngulóm því þær eru svo grannar en ég hef grun um að þessi könguló sé ekki bara að guða á dyrnar heldur sé hún komin inn fyrir,” segir Erling.

Ein ummæli

Rita ummæli

Too many legs, not enough shoes. « The daily life of a lady
22.11 2007 kl.14:01

[...] Þrjár tegundir af köngulóm hafa numið land [...]

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar