Gítarsnillingurinn Eric Clapton heldur tónleika með hljómsveit í Egilshöll föstudagskvöldið 8. ágúst í sumar.
Clapton hefur nokkrum sinnum komið til Íslands að veiða lax en aldrei tekið gítarinn með sér. Nú verður breyting á því. Tónleikarahaldararnir Kári Sturluson og Grímur Atlason hafa náð samningum um að halda tónleika fyrir um 10.000 gesti í Egilshöll. Þeir munu kynna fyrirkomulag á forsölu í næstu viku.
Tónleikarnir á Íslandi verða liður í Evróputónleikaferð í kjölfar útgáfu tvöföldu safnskífunnar Complete Clapton sem kom út í haust og spannar allan feril Claptons. Á tónleikunum verða tekin lög eins og Sunshine Of Your Love, White Room, Layla, I Shot the Sheriff, Knockin ´On Heaven´s Door, Cocaine, Wonderfull Tonight, It´s In The Way That You Use It og Tears In Heaven.
Eric Clapton er stofnun í tónlistarheiminum eftir rúmlega 40 ára feril. Hann er 18- faldur Grammy verðlaunahafi, þrívegis heiðraður af Rock and Roll Hall of Fame fyrir sólóferil sinn og aðild að hljómsveitunum Cream og Yardbirds. Hann hefur verið aðlaður af Bretadrottningu. Auk safnplötunnar Complete Clapton kom ævisaga kappans út sl. haust, “Clapton, The Autobiography” heitir hún. Auk þess að sinna tónlistinni er helsta verkefni Claptons um þessar mundir rekstur meðferðarstofnunarinnar Crossroads á Antigua í Karíbahafi sem hann kom á fót fyrir vímuefnafíkla en Clapton glímdi sjálfur lengi við eiturlyfjafíkn.
----
Heimasíða Eric Claptons.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
3 ummæli
Rita ummæli11.02 2008 kl.07:42
Slóð
húrrrrrrrrrrrrrrrrrrraaaaaaaaaaaaaaaaaa!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
11.02 2008 kl.14:36
Slóð
Sá karlinn í boston 2001. þar var Billy heitinn Preston annar tveggja hljómborðsleikara. Hörkuband sem hann er alltaf með. andy fairweather-low..greg philinganes..steve gadd á trommur að mig minnir.
þetta verður hörkushow..mæli með honum þó hann gefi nú ekki góða mynd af sér í nýútkominni ævisögu. en sitt fag hann kann.
11.02 2008 kl.19:47
Slóð
Clapton hefur ekki sent frá sér góða plötu síðan “461 Ocean Boulevard”, 1973(?)
Soldið langt síðan. Hann var skástur sem gítaleikari þegar hann spilaði með John Mayall’s Bluesbreakers, söng bezt á Unplugged plötunni. Mýtan um Clapton sem bezta gítarleikara heims er brosleg í bezta falli, maðurinn byrjaði á því að stæla Albert King ( óskyldur BB og Freddie), síðan kóperaði hann JJ Cale frá a til ö. Og er enn að kópera JJ, fékk Grammy í nótt fyrir samstarf sitt við hann.
Kann sitt fag segir hér að ofan. Fagið hans Claptons er að viðhalda mytunni um sjálfan sig og það hefur honum tekizt afskaplega vel.