Benny Shanon, ísraelskur vísindamaður við Hebrew-háskólann í Jerúsalem, hefur komist að því að Móse hafi verið útúrdópaður þegar hann tók við skilaboðum Guðs um boðorðin tíu á Sinai-fjalli.
Hann skrifar um þetta grein í the Time and Mind journal of philosophy og heldur því fram að Móse hafi verið “hátt uppi” af örvandi lyfjum.
“Sagan af Móse á fjallinu er annaðhvort saga af yfirnáttúrulegu atviki, sem ég trúi ekki á, eða að hann var á örvandi lyfjum. Hann var örugglega líka dópaður þegar hann sá logandi runnann,” segir Shannon sem viðurkennir að hafa sjálfur fiktað við dóp.
Biblían talar um að fólk “sjái hljóð” sem er dæmigert fyrir menn á örvandi lyfjum,” segir hann og bendir á seremóníur í Amazon þar sem fólk fær örvandi lyf til að “sjá tónlist”.
“Ég upplifði þetta sjálfur í Amazon þegar ég tók lyf gert ur plöntunni ayahuasca, sem er afar áhrifamikið, og ég varð fyrir allskyns andlegum upplifunum.”
Hann segir að áhrif ayahuasca séu sambærileg við lyf sem eru gerð úr acacia-trjám sem eru margoft nefnd í Biblíunni.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
5 ummæli
Rita ummæli04.03 2008 kl.16:20
Slóð
Þetta samrýmist mínum skoðunum og vel það.
04.03 2008 kl.16:42
Slóð
Móse, Jesú og fleiri kraftaverkamenn voru bara gamlir hippar og kunnu að skemmta sér. Skál fyrir Móse og góðum tímum.
04.03 2008 kl.18:13
Slóð
Er þetta ekki það sem kallað er shamanismi?
04.03 2008 kl.22:34
Slóð
Biblían verður bara fyndnari...
05.03 2008 kl.03:21
Slóð
Það hlaut að vera! Þetta skýrir allt bullið í þessari “blessuðu” bók.