Innlent - miðvikudagur - 26.3 2008 - 12:48

Höfuðkúpan er af sjúklingi á Kleppi - var gefin lækni til “rannsókna og lærdóms”

kleppurHöfuðkúpan sem fannst á víðavangi við Meðalfellsvatn í Kjós um páskana er af sjúklingi á Kleppi, sem lést á þriðja áratugnum. Föður Sverris Ólafssonar myndlistarmanns áskotnaðist beinagrindin af manninum á þriðja áratug síðustu aldar.

DV greinir frá þessu í dag. Sjúklingurinn gekk undir nafninu Björn Grillir, og var umkomulaus sjúklingur á Kleppi, segir Sverrir Ólafsson í samtali við blaðið. Faðir hans, Ólafur Páll Jónsson, eignaðist beinagrindina af Birni Grilli þegar hann var við læknisnám “til rannsókna og lærdóms” og segir Sverrir að á þeim tíma hafi verið algengt að líkamar sjúklinga á Kleppi hafi verið “nýttir til læknisvísinda.”

DV segir að síðan hafi beinagrindin verið geymd í kassa heima hjá Ólafi Páli en að hann hafi notað höfuðskelina undir bréfaklemmur. Sverrir segist hafa sofið með kassann með beinagrindinni undir rúmi í mörg ár en hann hafi einnig notað hana um tíma sem sælgætisskál.Síðan endaði skelin í kassa sem geymdur var hjá tengdamóður sonar Sverris í hjólhýsi við Meðalfellsvatn í Kjós. Þar var höfuðskelin - sem læknar höfðu sagað af líki Björns Grillis við krufningu - notuð sem öskubakki. Þegar óveður splundraði hjólhýsinu um áramót fauk höfuðskelin á braut og var týnd þar til maður á fjórhjóli ók fram á hana á víðavangi um páskana.

Í DV kemur fram að lögreglan segi að eðlileg svör séu fengin á tilvist höfuðskeljarinnar og að málið sé ekki rannsakað sem sakamál.

12 ummæli

Rita ummæli

El Grillo
26.03 2008 kl.13:25

Þetta er að verða æ forvitnilegra mál. Hauskúpan er sem sagt af Birni Grilli sem andaðist fyrir meira en 80 árum.

Ég legg til að læknirinn sem kvað upp úr með að höfuðkúpubein Björns Grillis væri af konu eða stúlkubarni og 10 til 30 ára gamalt, verði nú dreginn fram í dagsljósið og látinn standa fyrir máli sínu. Það er nefnilega talsverður munur á hans greiningu og hinum meinta sannleika í málinu.

Ég dreg ekki í efa að skýringar læknisins á þessu mikla misræmi verða forvitnilegar.

EG

Friðrik Þór
26.03 2008 kl.15:11

Fyrir utan vafasemi þess að vanvirða líkamsleifar þá finnst mér vanvirðing fólgin í því að segja ekki hver “Björn Grillir” er, heldur nefna bara uppnefni hans og “titil” sem “umkomulaus sjúklingur á Kleppi”. Er mögulegt að auðsýna hinum látna manni þá kurteisi að nefna hans rétta nafn og stöðu?

Palli
26.03 2008 kl.15:14

Þvílík skömm. Af því maðurinn var sjúklingur á Kleppi og umkomulaus þótti sjálfsagt að greftra hann ekki heldur leika sér með leifar hans í 80 ár. Og nú kemur hinn furðuleigi Sverrir Ólafsson fram á sjónarsviðið og heimtar beinin aftur til að leika sér með. Þvílíkt virðingarleysi fyrir látnum, öskubakki, bréfklemmugeymsla, sælgætisskál. Hvað vill Sverrir láta geyma í sér eftir dauðann ?, nóg er plássið.
Skammastu þín Sverrir fyrir þína hönd og föður þíns og skrattastu til að koma beinunum í vígða jörð.

Balzac
26.03 2008 kl.16:17

,,Síðan endaði skelin í kassa sem geymdur var hjá tengdamóður sonar Sverris í hjólhýsi við Meðalfellsvatn í Kjós. Þar var höfuðskelin - sem læknar höfðu sagað af líki Björns Grillis við krufningu - notuð sem öskubakki.”

Íslenska útgáfan af “Trailer Trash.”

Hlaut auðvitað að vera verri en sú upprunalega.

ee
26.03 2008 kl.16:45

Nú ef þetta var heil beinagrind, hvernig fengu þeir hana fram? Suðu þeir manninn till að losa kjöt frá beini eða?

Afkomendur Ólafs Páls Jónssonar og Sverris Ólafssonar hljóta að vera mjög stolt af gerðum forfeðra sinna.

Með því að nota orð sem umkomulaus og án þess að geta eftirnafns er verið að réttlæta gerðina. Hvað var þetta ekki manneskja? Eða ber að skilja að umkomulausir séu eitthvað annað en manneskjur? Lát heyra!

Veðrið var þó til þess að fá lausn á ljótu máli minst sagt. Mikið er gott að veður er til. Kanski eina von mannkynnsins að fá uppreisn mála eins og í þessu tilviki.

Jónína
26.03 2008 kl.20:15

Getur einhver upplýst hver Björn Grillir var? Hver var saga hans?

Sigga
26.03 2008 kl.20:31

Þetta þarf að rannsaka. Alveg er ég viss um að þetta sé ekki einsdæmi. En þessi kúpa er aðeins 10 til 30 ára gömul, þetta er forkastalegt . Faðir minn dó fyrir 15 árum, get ég átt von á að hauskúpa hans t.d. sé einshvers staðar á hillu hjá einhverjum lækninum eða ættingja hans ?

Hvernig er þetta með fólkið sem segir sig úr þjóðkirkjunni og gefur háskólanum svo líkið eftir dauðann ?

Enda ég semsagt eins og einhver sagði að ofan, sem öskubakki ?

María
27.03 2008 kl.00:23

Held að það sé nú ekki sjálfgefið að þeir sem segi sig úr þjóðkirkjunni séu að samþykkja að gefa lík sín.

María
27.03 2008 kl.00:25

Þessi maður samþykkti að gefa lík sitt, til rannsókna að vísu en ekki til að verða skrautmunur.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
27.03 2008 kl.03:06

Ég er með athugasemd um þennan beinafund á bloggi mínu ef einhver hefur áhuga:
http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/485542/
þar skrifa ég ég athugasemd:

“Lísa Margrét og þið hin, okkur er nú sagt að þetta sé kollurinn af umkomulausum manni af Kleppi. Birni Grilli.

Ég hef lært dálitla beinafræði, og þegar ég sá kalottuna í Sjónvarpinu, þá sýndist mér þetta vera úr ungum einstaklingi. Saumar (sútúrur) á kúpunni sem venjulegast lokast á fullorðinsárum voru opnir á þessari kúpu. Svokallaðir “Sharpey’s fibres” voru sjáanlegir á sjónvarpsupptökunni. Ég myndi ætla að þarna væri einstaklingur á milli 10 og 20 ára.

Hvað segja læknar og líkamsmannfræðingar?

Ég held að það þurfi nú að rannsaka þetta bein nánar. “

Óðinn
27.03 2008 kl.09:18

Sverrir Ólafsson og þetta pakk sem hann er kominn af og umgengst á sér engar málsbætur, þvílíkir aumingjar og allt í kringum þetta mál er bara stórundarlegt og sýnir allt þetta fólk í sérstaklega merkilegu ljósi og Ísland fær enn eitt skítaprikið fyrir að hafa alið alla þá sem tengjast því. Sýnir bara hve ömurleg meðferð hefur verið á umkomulausu fólki hér í gegnum tíðina og það er kominn tími á að svona lagað verði fordæmt fremur en umborið. Fólki almennt líkar ekki svona framkoma og vanvirðing við hina látnu, ég tel það jafnvel verra þegar um er að ræða líkamsleifar einstaklinga sem var ekki auðsýnd virðing í lifanda lífi, afhverju í ósköpunum fær þetta fólk ekki tilheyrilega meðferð eftir dauða sinn? Þetta er mjög grátlegt.

Athyglisvert er líka að sjá hversu erfitt virðist að fá á hreint hver þetta er, sambærilegt því sem Vilhjálmur segir hér á undan. Jafnvel þó bein þetta reynist ekki af Birni Grilli þá er samt búið að komast uppum Sverri Ólafsson og hans lið og hvernig þau vanvirða hina látnu sér til dundurs og er það ágætt.

Gaflari
28.03 2008 kl.01:05

Það munar ekki um yfirlýsingarnar, það mætti halda að Óðinn hafi eitthvað persónulegan harm að hefna gegn umræddum Sverri. Lætur sig ekki muna um að kalla bæði forferður hans, afkomendur og annað skyldfólk pakk og aumingja. Það væri áhugavert í sjálfu sér að vita hver Óðinn í raun er og fá söguna á bak viðheift hans. Kannski þar sé sjálfur Björn Grillir komin tvíefldur við lyklaborðið í uppreisn gegn manninum sem notaði skelina hans sem sælgætisskál.
Er annars ekki bara rétt að hinkra með að tapa sér yfir þessu máli og sjá og heyra hvað rannsókn á þessu beini leiðir í ljós. Það má svo sem geta sér til um það strax að frásögn Sverris sé byggð á einhverri gamalli flökkusögu frá föður hans, sem hefur eflaust aldrei haft beinagrind undir rúmi Sverris, né þekkti uppruna skelinnar. Kannski hefur þessi saga orðið til í kolli Sverris, án þess að hann muni það sjálfur og nú skemmtir hans sér manna best yfir athyglinni sem hann fær og lætur alls kyns vitleysu flakka í DV. Eflaust eru einhverjir sem ekki sjá það en auðvitað er þetta húmor í hans augum. Það eru bara ekki allir með sama húmor og hann, og sumir jafnvel algjörlega húmorslausir, hvort sem það er gagnvart dauðum eða lifandi hlutum. Grunar að Óðinn sé einn þeirra.
Þar fyrir utan má svo sem líka spyrja sig hvað þessi læti öll út af einu beini eiga að þýða? Er þetta bein eitthvað svo merkilegt? Væri minna mál ef hann hefði haft hárlokk úr látnum manni í sínum fórum, eða tánögl? Í mínum skóla var reyndar til heil breinagrind (ekki eftirlíking), og var henni stundum leyft að vera með á skemmtunum á vegum nemenda. Engum fannst það sérstakt tiltökumál, enda var talið að hún væri úr útlendingi. Ekki fylgdi sögunni hvort hann hafi verið umkomulaus eða heill á geði. Það skipti ekki máli, enda hafa jarðneska leifar útlendinga ekki sama sjarma og íslenskar.
Og pældu nú í því karlinn minn......

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar