Jafnréttisbaráttan heldur áfram og sænska ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að karlarnir á gangbrautarljósunum verði ekki síður kerlingar í framtíðinni.
Ákvörðunin var tekin eftir að nokkur sveitarfélög höfðu svikist um að hafa bæði kerlingar og karla á gangbrautarljósunum þrátt fyrir tilmæli stjórnarinnar þar um.
Hin 1. október verður sænska Umferðarstofan að hafa hannað ný tákn á gangbrautarljósin og í lok árs munu sænskir vegfarendur sjá ný tákn, Fru Garman og Herr Garrman, sem leiðbeina þeim í umferðinni.
Það er því trúlegt að hið “sívinsæla” sænska dægurlag, “Gubbe, gubbe röd, varför blir du aldrig grön” verði lítið spilað í framtíðinni, ef það verður ekki beinlínis bannað.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
2 ummæli
Rita ummæli30.04 2008 kl.09:49
Slóð
Svíar eru ekkert annað en galnir í þessari vitleysu allri.
Gersamlega komnir út á tún og úr öllum tengslum við hvað raunverulega er að í ætluðum ,,jafnréttismálum”.
30.04 2008 kl.13:32
Slóð
Ég er ekki svo viss um að þessi mynd eigi með þessari frétt þar sem þetta eru græni og rauði kall Austur Berlinar. Ekki nema svíjar hafi fengið þá lánaða, það veit ég ekki.
http://www.dw-world.de/dw/article/0,2144,2058311,00.html