Innlent - fimmtudagur - 5.6 2008 - 16:37

Hæstiréttur staðfestir Baugsdóm - þurfa Jón Ásgeir og Tryggvi að víkja úr forsvari félaga?

haestirettur2.jpgHæstiréttur staðfesti rétt í þessu niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í lokakafla Baugsmálsins og dæmdi Jón Ásgeir Jóhannesson í 3ja mánaða skilorðsbundið fangelsi, Tryggja Jónsson í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og Jón Gerald Sullenberger í 3ja mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Mestur hluti málskostnaðar þeirra allra verður greiddur úr ríkissjóði. Enginn þremenninganna var viðstaddur dómsuppkvaðningu. Sjá dóminn í heild hér en dómsorðið hér að neðan.

Þetta var síðasti þáttur Baugsmálsins, sem hófst með húsleit lögreglu í höfuðstöðvum Baugs í ágúst 2002. Eftir langvinna lögreglurannsókn hafa ákæruliðir gengið milli dómstiga en nú var felldur efnisdómur um þá 18 ákæruliði sem eftir stóðu.

Samkvæmt ákvæðum hlutafélagalaganna virðist sem hvorki Tryggvi né Jón Ásgeir mega gegna starfi stjórnarformanns eða forstjóra hlutafélaga en í 66. grein hlutafélagalaganna segir: “Stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar skulu vera lögráða, fjár síns ráðandi og mega ekki á síðustu þremur árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld.”

Dómsorð dóms Hæstaréttar er svohljóðandi:

Ákærði Jón Ásgeir Jóhannesson sæti fangelsi í þrjá mánuði. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms ef ákærði heldur almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði Tryggvi Jónsson sæti fangelsi í tólf mánuði. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms ef ákærði heldur almennt skilorð samkvæmt framangreindum lagaákvæðum.

Ákærði Jón Gerald Sullenberger sæti fangelsi í þrjá mánuði. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms ef ákærði heldur almennt skilorð samkvæmt framangreindum lagaákvæðum.

Ákærði Jón Ásgeir greiði af málsvarnarlaunum skipaðs verjanda síns í héraði og fyrir Hæstarétti, Gests Jónssonar hæstaréttarlögmanns, 1.530.000 krónur vegna rekstrar málsins í héraði og 750.000 krónur vegna rekstrar málsins fyrir Hæstarétti. Málsvarnarlaun verjandans að öðru leyti, samtals 20.920.000 krónur á báðum dómstigum, greiðast úr ríkissjóði.

Ákærði Tryggvi greiði af málsvarnarlaunum skipaðs verjanda síns í héraði og fyrir Hæstarétti, Jakobs R. Möller hæstaréttarlögmanns, 2.515.000 krónur vegna rekstrar málsins í héraði og 1.875.000 krónur vegna rekstrar málsins fyrir Hæstarétti. Málsvarnarlaun verjandans að öðru leyti, samtals 15.410.000 krónur á báðum dómstigum, greiðast úr ríkissjóði.

Ákærði Jón Gerald greiði af málsvarnarlaunum skipaðs verjanda síns í héraði og fyrr Hæstarétti, Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns, 2.025.000 krónur vegna rekstrar málsins í héraði og 400.000 krónur vegna rekstrar málsins fyrir Hæstarétti. Málsvarnarlaun verjandans að öðru leyti, samtals 7.275.000 krónur á báðum dómstigum, greiðast úr ríkissjóði.

Ákærði Jón Ásgeir greiði í ríkissjóð vegna annars sakarkostnaðar í héraði samtals 7.568.519 krónur, þar af 5.000.000 krónur óskipt með ákærða Tryggva.

Að öðru leyti greiðist sakarkostnaður í héraði og áfrýjunarkostnaður málsins úr ríkissjóði.”

8 ummæli

Rita ummæli

vh
05.06 2008 kl.18:07

Tómt rugl, frá upphafi til enda. Dabba krull og kolkrabbanum tókst að bregða fæti fyrir nýjum hugmyndum. Vel gert. Það græddi enginn á þessu, og hellingur tapaðist. Klassísk framsóknarmennska (sjálfstæðisflokkurinn er nýji framsóknarflokkurinn).

birgir
05.06 2008 kl.20:12

Maður skilur þetta ekki.En eitthvað var að

Hlynur Þór Magnússon
05.06 2008 kl.20:32

Væntanlega tæki umrætt ákvæði ekki gildi gagnvart hinum sakfelldu nema að rofnu skilorði skv. dómi, þannig að fullnusta fangelsisrefsingarinnar tæki gildi að einhverju eða öllu leyti.

Árni Björn
05.06 2008 kl.20:41

Nú verður Jónina Ben. að fara safna handa Jóni Gerard til þess að hann geti borgað málkosnað.

Nafnlaus
05.06 2008 kl.21:01

Það má greinilega afgreiða sjálfan sig í almenningshlutafélagi á Íslandi, það eru bara “viðskipti” að mati dómstóla.

ee
06.06 2008 kl.00:11

Hæstiréttur hafði nóg að gera í dag samkvæmt RÚV. Fleiri mál og meðal annars í sambandi við Glitni. Er þetta svona hagræðing að taka fleiri mál svona rétt fyrir sumarfríið .............

En þetta er meiri háttar - hvað er þetta mál búið að vera lengi á dagskrá (forrita) forráðamanna, hva...............meir en áratug og árangurinn, þ.e.a.s. dómurinn ekki lengri. Það er eitthvað sem er gruggugt hér.

Nú hver veit, með tal um hverpollinn sem vantar nafn.............hvernig væri að sá pollur fengi að heita Gruggi..............svona til áminningar um íslenskt dómsvaldakerfi?

emill
06.06 2008 kl.16:43

jesús minn, þetta eru glæpamenn og það er búið að sanna það. Þetta tók svona langan tíma vegna þess að þetta er stærsta fyrirtæki á Íslandi og þeir földu þetta vel. Nýjasta lögbrot baugsmanna er að þeir sendu verðkönnunarmann í nýju Krónu búðina, í gervi rafvirkja, sem er kolólöglegt!

emill
06.06 2008 kl.16:43

áður en búið opnaði...

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar