Mikill eldur geisar nú á hinni sögulegu bryggju Grand Pier í Weston-super-Mare í Somerset.
Engan hefur sakað en slökkviliðslmenn berjast við eldinn sem kviknaði klukkan sjö í morgn að breskum tíma.
Svartan reyk leggur frá eldinum sem sést alla leið til Cardiff.
Nigel Dando, fréttamaður á BBC, segir bryggjuna hafa hrunið og að engu verði bjargað.
Bryggjan var nýlega keypt fyrir milljónir punda og gerð upp. Hún er hluti af ímynd sumarleyfisstaðarins Weston-super-Mare.
Brenner-fjölskyldan var eigandi bryggjunnar í þrjár kynslóðir, en bryggjan hefur aðeins þrisvar skipt um eigendur síðan hún var opnuð árið 1904.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
2 ummæli
Rita ummæli28.07 2008 kl.09:27
Slóð
Ekki Kevin hjá BBC Nottingham sem skrifaði fréttina.
28.07 2008 kl.09:35
Slóð
“BBC Radio Bristol reporter Nigel Dando, who is at the scene...”