Innlent - sunnudagur - 19.10 2008 - 14:57

Jón Baldvin: Stjórnarslit ef stjórnarflokkarnir semja ekki um inngöngu í ESB

jon-baldvin1.jpgJón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra segir það vera grafalvarlegt mál í stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar ef Davíð Oddsson seðlabankastjóri standi í vegi fyrir samkomulagi um aðstoð frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, sem sé eini kosturinn sem Ísland hafi nú til að bjarga efnahagslífinu.

Jón Baldvin segir líka að ef ríkisstjórnin eigi að lifa þurfi forystumenn stjórnarflokkanna að handsala samkomulag um að við byrjum að vinna að inngöngu í Evrópusambandið. “Ef það gengur ekki, er ekkert annað að gera í lýðræðisríki en að leggja málið í dóm kjósenda.”

Slíkra úrslitakosta varðandi stjórnarsamstarfið af hálfu Samfylkingar hefur ekki gætt hingað til í ummælum forystumanna flokksins í ríkisstjórn, en flestir ráðherrar flokksins hafa hins vegar að undanförnu sagt að bankastjórn Seðlabankans þyrfti að víkja.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður flokksins sagði á fundi flokksins um miðjan dag í dag, að það væri það grundvallaratriði að jafnaðarmenn væru í ríkisstjórn á Íslandi ”í þeirri orrahríð  sem er núna.”

Jón Baldvin sagði í þættinum Silfri Egils í Sjónvarpinu í dag að hann hefði traustar heimildir fyrir því innan úr Sjálfstæðisflokknum að Davíð stæði harður gegn samkomulagi við IMF. “Ef þetta er rétt, þá er það nú ekki bara að hann axli ekki ábyrgð af skipbroti sjálfstæðrar peningamálastefnu og hruni ríkisfjármálastefnu sem hann var líka ábyrgur fyrir heldur er hann að þvælast fyrir á strandstaðnum líka. Þetta gengur ekki. Þetta er ekki hægt.”

Jón Baldvin líkti í viðtalinu stöðunni núna við strandstað: Þjóðarbúið sé greiðsluþrota, fjármálakerfið hrunið, gengið sem var í frjálsu falli er ekki lengur til, krónan er farin og ekki nothæf og utanríkisverslun er strand. Traust Íslands og mannorð í útlöndum er farið og eignabruni mjög hraður. Hann segir okkur á byrjuanrreit þessarra erfiðleika. Fyrirtæki muni hrynja, atvinnuleysi aukast, eignamissir fjölda fólks vofi yfir svo og skertur lífeyrir eldra fólks.

Hann sagði þyrfti ekki eini sinni að ræða það að halda í krónuna. “Það er búið mál. Hættum að tala um þessa vitleysu.”

“Á strandstaðnum er núna verið að ræða björgunarleiðangur. Og þar er númer eitt:  Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn versus Rússalánsvon. Ef það er rétt að seðlabankastjórinn sé nú genginn í lið með Rússum og vilji Rússalán, en sé andvígur samningi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þá er það auðvitað grafalvarlegt mál í þessu stjórnarsamstarfi,” sagði Jón.

“Ef í öðru lagi seðlabankastjórinn harðneitar að bera ábyrgð á gjörðum sínum og víkja ásamt með öðrum í Seðlabankastjórninni þannig að hægt sé að endurreisa traust... þá getur stjórnin ekki ráðið við verkefni sitt.”

Jón Baldvin segir einfaldlega ekki hægt annað en að skipt verði um seðlabankastjóra til að byggja upp traust, ekki sé hægt að koma fram fyrir erlenda skuldunauta og stofnanir með þennan sama seðlabankastjóra, alveg sama hvaða nafn maðurinn ber og hver hann er. “Staðreyndin er bara sú að við verðum að skipta þar um áhöfn af því að veið verðum að reyna að byggja aftur upp traust. Það hljótum við að gera með nújum mönnum.”

Jón segir að ef þetta gangi ekki eftir, “að pólitíkusarnir séu ekki til nokkurs nýtir, geta ekki tekið ákvarðanir um hluti eins og Alþjóða gjaldeyrissjóðinn eða um að nokkur maður beri ábyrgð á óförum okkar, geti ekkik tekið ákvörðun um að marka stefnuna fram í tímann í átt til Evrópusambandins, hvað er þá ríkisstjórn? Hvað er hún að gera?”

47 ummæli

Rita ummæli

ÞA
19.10 2008 kl.15:03

Sammála öllu sem hann sagði. Nú má hann ekki skorast undan ef til hans verður leitað!

Múmi
19.10 2008 kl.15:10

Jón Baldvin er óþolandi besserwisser sem nýtir sér erfiðleikana í hagkerfinu núna til að koma sjálfum sér á framfæri!

Ég held öll þjóðin sé löngu búin að fá nóg af honum, hann er búinn að leika sér í sendiráðum erlendis síðustu áratugi og er núna að reyna að búa til eitthvað come-back. Það er auðvelt að koma í fjölmiðla og segja það sem fólk vill heyra.

Bið hann vinsamlegast að þegja.

Þórður
19.10 2008 kl.15:13

Sammála Jóni Balvin.

Tökum “Tappann” úr.

Berglind
19.10 2008 kl.15:18

Jón Baldvin hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir að segja það sem aðrir vilja heyra - þvert á móti.
Hann hefur (því miður) rétt fyrir sér og nú verður að bregðast hratt og örugglega við.

Heiðar
19.10 2008 kl.15:19

Húmi er á villigötum. Það ber að fagna því að fá mann eins og JBH til að greina ástandið. Hann talar mál sem þjóðin skilur og býr yfir reynslu sem fáir geta yfirboðið. Reynsla sem er afar dýrmæt á tímum sem þessum.

Ég vona að ég eigi að heyra oftar í honum á næstu dögum.

Tótinn
19.10 2008 kl.15:26

Jón Baldvin er auðlind sem ber að virkja.

Jóhannes T Sigursveinsson
19.10 2008 kl.15:31

Jón sagði bara það sem satt er íslenska þjóðin er í miklum vanda og við búum í klikusamfélagi en þessar klíkur eru m. a. stjórnmálaflokkarnir.
Það mun líða mjög langur tími áður en fólk getur treyst valdhöfum á Íslandi.
Þess vegna þurfum við aðstoð erlendis frá.til að koma efnahagslífi þjóðarinnar í sæmilegt horf og til aðstoða okkur við að gera upp við fortíðina.

Benedikt
19.10 2008 kl.15:43

Við sem þjóð eigum að kynna okkur kosti og galla ESB, hvort sem það er á vegum ríkisstjórnarinnar eða okkar eigin vegum.
Ætlum við að treysta algjörlega á dómgreind þessara manna á hæstu hæðum til að velja fyrir okkur þegar við vitum lítið sem ekkert um hvað málið snýst.
Kynnum okkur sjálf þetta vel áður en við kjósum sjálf í þjóðarathvæðagreiðslu.
Þetta snýst um framtíð okkar og velmegun. Við þurfum að vera vel upplýst áður en við veljum hvað við viljum.
Við getum ekki bara treyst á ríkisstjórnina til að velja fyrir okkur.
Ef við leitum okkur ekki upplýsinga almennilega heldur treystum aðeins á orð hinna og þessa þá búum við ekki við lýðræði heldur þá erum við bara að kjósa einræðisherra til að taka ákvarðarnir fyrir okkur.
Við þurfum að setja kröfur á þá samkvæmt vel upplýstum þegnum þar sem þetta er framtíð okkar

Björn
19.10 2008 kl.15:48

Sammála Jóni Baldvin, Davíð verður að víkja.

Baldvin
19.10 2008 kl.16:09

Þetta er hátrrétt hjá honum nafna mínum.
Ég hef líka heimildir fyrir því að Davíð hafi staðið í veg fyrir meira og minna öllu.
Gleymum því líka ekki að hann er sökudólgur númer eitt. Ísland hóf þessa feigðarför með DO við stýrið, síðan þá hefur hann stýrt alla leið, alla leið í strand. Nú þvælist hann fyrir á strandstaðnum og reynir að redda eigin rassi.

Gleymum því ekki að ég og þú skrifuðum ekki upp á sjálfsskuldarábyrgð á þessu feigðarflani. Nú á samt að láta mig og þig borga af skuldinni þann tíma sem við eigum eftir af lífinu. Svo taka börnin okkar við.

Það á að finna sökudógana, það eru sökudólgarnir sjálfir sem segja að það eigi ekki að leita að þeim... það á að finna þá og láta þá borga.

Kristinn J'on
19.10 2008 kl.16:20

Það væri mikill fengur í Jóni Baldvini, því miður er þfjóskan í Davíði að gera út um okkur Öll.
Þvílíkt rugl afhverju er manninunum ekki vikið.
það skrýtna við þetta allt saman að hann kemmst sennilega upp með það eins of alltaf.

Atvinnulífið hrynur til grunna á næstu 2 mánuðum ef ekkert er að gert.
Tíminn skiptir öllu máli í þessu og því þýðir ekki að hvur höndin sé upp á mót hvor annari.

Burt með Davíð og það strax

nafnlaus
19.10 2008 kl.16:22

Er Davíð Oddsson mikilvægari en þjóðinn öll? Ég bara spyr

Valdimar
19.10 2008 kl.16:46

Múmmi þú ert akkúrat týpa sem ekki er þörf fyrir núna
Rassasleikja aftúrsleikja.

.

SS
19.10 2008 kl.16:48

JBH er ágætlega greindur maður, en hann er ekki alvitur frekar en aðrir. Sumt sem hann segir er rétt en annað ekki. Hann væri hinsvegar fínn í vinnuhóp færustu og reyndustu manna landsins til að greina vandann og búa til langtímaplan fyrir þjóðina útúr þessum ógöngum. Það verður ekki einstaklingur sem kemur með lausnina útúr vandanum, heldur verður það einungis gert með hópvinnu færustu manna á hverju sviði. Til að pólitískir hagsmunir þvælist ekki síðan fyrir varðandi úrlausnina á strandstaðnum , mun reyna af fullum þunga á heiðarleika stjórnmálamannanna sem hafa það hlutverk að samhæfa og setja í aksjón tillögur hópanna. Hver sá pólitíkus sem fórnar bestu lausnunum á altari flokks-eða eiginhagsmuna skyldi athuga það að það

SS
19.10 2008 kl.16:49

.................það gæti túlkast sem landráð.

hp
19.10 2008 kl.16:52

Jón Baldvin var framúrskarandi í silfrinu í dag. Allt rétt sem hann sagði. Mér fannst dósentinn frá HR líka góður. En djöfull er Kristján Þór Júlíusson mikill maðkur, var að tala um að við ættum að læra að vera róleg og þolinmóð .. er þetta ekki maðurinn sem er búin að vera að garga á þingi núna undanfarið (ásamt öðrum) VIRKJUM VIRKJUM VIRKJUM allt til HELVÍTIS TIL AÐ BJARGA ÞJÓÐINNI NÚNA STRAX!!!!! ... Sjálftökuflokkurinn er ömurlegt skítahyski!!!!

guji
19.10 2008 kl.16:52

Djö auminigji er þessi maður man ekki fókið eftir því þegar við vorum að borga fylleríið hjá honum bryndísi allt skrifað á ríkissjóð....svo var þetta pakk hirt af tollinum með smiglvarnig,,,,,svona fólk á að halda KJAFTI

joi
19.10 2008 kl.16:52

Þetta er sama vísan og Jón Baldvin hefur verið að kveða síðan í kosningum 1991, þá sagði hann að það væri spurning um líf eða dauða fyrir Íslendinga að komast í ESB. Vegna sundurlyndis í Alþýðuflokknum sáluga, þá gat Davíð Oddsson ekki treyst þvi að vera áfram í samstarfi við kratana. Jón Baldvin var eins og barómet, maður veit aldrei hvar hann er. össur Skarphéðinsson hefur erfti þennan leiðinda kvilla frá Jóni. Síðan var allt upp í loft milli Jóns Baldvins og Johönnu. Þess vegna fórr Davíð með Framsókn.

Síðan eru liðin sautján ár, og Íslandi hefur vegnað mjög vel, án þess að vera í ESB. Þetta var ekki sama lífsspursmálið og Jón Baldvin hélt. Kratarnir eru með þetta ESB á heilanum. Það virðist ekkert annað komast að hjá þeim. Viö höfum fleirum og alvarlegri hnöppum að hneppa en að fara í ESB upp á fleiri milljarða meðgjöf þessa dagana. Umræðan á að vera um þetta, en þetta er verkefni sem verður ekki afgreitt á vikum eða mánuðum.

Líklega væru stjórnarslit besti kosturinn eins og staðan er í dag. Það er hins vegar erfitt að fara í kosningar í þessu ástandi. Samfylking getur ekki farið í stjórn með Vinstri Grænum og Framsókn. Sjálfstæðisflokkur getur ekki farið í stjórn með Vinstri Grænum. Það eru engar líkur á að hægt sé að mynda nýja stjórn nema með kosningum.

Í dag er höfuðmálið að koma fótunum undir atvinnuvegina aftur. Viðskptum við útlönd, semja um lán við erlenda aðila á eins góðum kjörum og kostur er, endrreisa bankakerfið og reyna að taka til í opinbera kerfinu, skera niður kostnað eins og hægt er. Þetta er mikið verkefni og gæti tekið tíma. Ágúst Ólafur, Jón Baldvin og þessir stofu-kratar geta bara verið á einhverjum súpufundum hjá Rotary klúbbum úti í bæ og rætt ESB, þeir gera minnstan skaða þannig. Þeir geta þá í leiðinni fengið útrás fyrir hinu maníska hatri á Davíð Oddssyni, tekið a súpuskeiðinni þangað til hnúarnir hvítna.

Hinir, sem einhverja vikt hafa í politíkinni þurfa að einbeita sér að þessum málum sem nefnd eru hérna að ofan.

Sigurður Hólm Gunnarsson
19.10 2008 kl.17:01

Sammála Jóni Baldvini eins og svo oft áður. Sannarlega auðlind sem þarf og á að virkja!

Einar Pétur
19.10 2008 kl.17:15

Jón Baldvin er maðurinn og hefur verið það alla tíð. Við værum ekki hér ef hann hefði komið okkur inn í ESB fyrir árið 2000 eins og hann stefndi að. Ég skil ekki menn eins og þennan joi, sem geta sagt “Íslandi hefur vegnað mjög vel, án þess að vera í ESB”!!!! Hafa menn ekkert lært af því sem er að gerast? Það er ekki hægt að halda og sleppa á sama tíma. Ef menn vilja hafa EES þá verður ESB að fylgja og upptaka Evru. Á kannski að gera aðra “tilraun” með fljótandi gengi íkr? Var þessi tilraun ekki nógu góð? Vilja menn kannski fylgja Bjarna Harðar aftur til ársins 1950 með endurreisn SÍS og öllu tilheyrandi!

Ég óttast um Samfylkinguna ef hún fer ekki að bretta upp ermarnar strax í dag, hún er að láta Flokkinn draga úr sér allan mátt. Aðstoðarkona Utanríkisráðherra var ekki sannfærandi í Silfrinu í dag, hún er að breytast í einhvern verndara kerfisins, eins og hver annar Sjálfstæðismaður. Þetta gengur ekki, Samfylkingin má ekki falla í þessa gryfju. Hún verður að standa upp gegn þessari meðvirkni með DO og þessum doða í Haarde.

Sveinbjörn
19.10 2008 kl.17:16

Sæl
Jón Baldvin hefur ekki haft upplýsingar né þekkingu í mörg ár. Eðalkratarnir hafa, því miður, ekki verið tengdir síðan SF varð til. Sorrý, ekkert innhald, bara Speculation ala Jón Baldvin.

Kv.
Sveinbjörn
PS: Vill einhver tala um Varmá og sumarbústaði??

spekingur
19.10 2008 kl.17:27

Jón Baldvin er mjög skarpur og kemur hlutunum skýrt frá sér, ég er hjartanlega sammála öllu sem hann sagði í dag. Það er erfitt fyrir menn í sjálfstökuflokknum að horfast í augu við raunveruleikann og sannleikann, hann er bara svo hrikalegur og sár.

Nostradamus
19.10 2008 kl.17:51

Það var kominn tími til að einhver kom með kjarna málsins á manna máli og ekki bara eina enn greininguna af vandanum heldur leiðarvísir hvernig á að komast út úr þessum vanda.
Jón fær mitt atkvæði, Jón er maður með reynslu .Að vera að telja upp eitthvað dómgreindarleysi hjá honum á hans langa ferli er fáránlegt.
Hvað heldur þú að Davíð sé búinn að vera að gera við peningana okkar í sinni stjórntíð.(Ég held að Jón myndi stjórna landinu betur í glasi heldur en Davíð alsgáður)
Það er nátturulega til skammar að Davíð skuli ekki axla ábyrgð á öllu því sem hann hefur verið einn af hönnuðum af í gegnum tíðina.
Davíð að mínu mati fellur undir að vera kallaður dugmikill frumkvöðull. Það sem einkennir frumkvöðla er að þeir koma hlutum af stað með krafti en þegar kemur að dags daglegum rekstri þá kemur stóri gallinn fram sem er: Frumkvöðlar eiga erfitt með að framkvæma þessa dags daglegu hluti þeir vilja helst alltaf vera í stórum framkvæmdum og tími Davíðs er búinn hann á að víkja.

Andri
19.10 2008 kl.17:52

Sammála Jón Baldvin í einu og öllu.

Jói Ragnars
19.10 2008 kl.17:58

Við skulum ekki gleyma því, að það var Jón Baldvin Hanníbalsson sem kom fótunum undir Davíð Oddsson á sínum tíma og opnaði þar með fyrir flóðgáttum frjálshyggjunnar sem nú er koma þjóðinni í koll svo um munar.

Það er einnig vert að minna á, að Jón þessi Hanníbalsson gengdi ráðherradómi hér á árum áður. Sem ráðherra stóð hann langt undir væntingum og þótti á köflum lélegur sem slíkur.
Að fólk skuli, árið 2008, gleypa við glamrinu í þessum kjaftaskúmi er hreint og klárt sérkennilegt, ef ekki beinlínis sorglegt.

hp
19.10 2008 kl.18:35

“Við skulum ekki gleyma því, að það var Jón Baldvin Hanníbalsson sem kom fótunum undir Davíð Oddsson á sínum tíma og opnaði þar með fyrir flóðgáttum frjálshyggjunnar sem nú er koma þjóðinni í koll svo um munar.”

Hahaha nú þykir mér sjálfstæðimenn vera orðnir örvæntingafulilr svo um munar ... þvílíkt bull!!!

Þótti lélegur sem ráðherra ... vá ... og Árni Matth..eitthvað .. er auðvitað alvöru ráðherra sem hefur staðið undir væntingum ... eða Haarde ... er ekki allt í lagi í heilabúinu á þessu sjálftökuhyski

EN : Ingibjörg Sólrún er líka búin að mæra útrásarpésana. Björgvin sagði að allir bankastarfsmenn landsbankans innanlands myndu halda vinnunni ... en laug upp í opið geðið á þjóðinni .... er ekki bara flokkapólitík á íslandi eitthvað sem þarf að senda í endurvinnslu.

Ég vona að Íslendingar beri gæfu til þess að losa sig við þetta drulluhyski.

Þroftur
19.10 2008 kl.18:42

Sammála Jón Baldvin í einu og öllu.

Aðeins tímaspursmál hvenær Ríkisstjórnin springur.

Sjálfstæðismenn vilja einangrun og örgjaldmiðil. Sjálfstæðismenn vilja hvítþvott en ekki hvítbók. Stærsta vandamál Sjálfstæðisflokks er Davíð Oddsson. Hann stjórnar ennþá flokknum. DO vill frekar keyra íslendinga til skammtatíma og vöruskipta en sjá íslendinga verða hluta af eina alþjóðasamstarfinu sem “meikar sens” fyrir Ísland. DO er tilbúinn að keyra þjóðina í þrot frekar en að viðurkenna mistök.

Ágúst
19.10 2008 kl.19:18

Stjórnmálayfirstétt Íslands og fjármálayfirstétt Íslands hafa aukið skuldir
Íslands í 12 falda þjóðframleiðslu Íslendinga og glatað öllu fjárhagslegu
trausti þess. Allt var þetta gert í skjóli Ess samningsins og samkvæmt
regluverki ESB, sem nornin J.B.H. styður svo eindregið. Ef Ess samningurinn hefði aldrei verið samþykktur eins og meiri hluti þjóðarinnar
vildi hefðum við ekki fengi’ð neitt góðæri (góðærið var fengið að láni) og
losnað að mestu við þessa KREPPU. Stofnum alþýðudómstóla og drögum
nornir eins og Ingibjörgu S. Gísladóttur, Davíð Oddsson, J.B.H. Steingrím
Sigfússon (eftirlaunafrumvarpið) og Halldór Ásgrímsson fyrir alþýðudóm-
stólanna og alla þessa spilltu yfirstétt fjármála og stjórnmála. Hinir seku
mættu velja um tvenn að vera skotnir eða koma sér úr landi og koma aldrei
aftur til. Íslands. Þeir fengju íslenskar örokubætur. Þessir hafa aldrei sýnt miskunn.

Nonni
19.10 2008 kl.19:45

Út með Ingibjöru og inn með Jón Baldvin .

Birgir Guðjónsson
19.10 2008 kl.20:32

LOL

Þetta segir maður sem er búin að mjólka úr úr kerfinu í tugi ára !

Maður þarf bara að nefna fertugs afmæli konunar til að hætta að hlusta á hann.

Nei Jón Baldvin á ekki að kasta steinum, hann býr í sinni glerhöll !!

Steypir
19.10 2008 kl.20:40

Sjálfstæðisflokkurinn er heillum horfinn. Menn virðast taka ranga afstöðu í öllum málum.

Sem fyrrverandi sjálfstæðismaður skammast ég mín fyirr þrönga valdaklíku Geirs og Davíðs. Eitt vil ég segja þeim mönnum. Megið þið stikna á spjöldum sögunnar sem aumustu menn sem landið hefur alið.

BS
19.10 2008 kl.20:43

Þetta eru allt sömu klíkukálfarnir, rekum þá alla úr landi.

óþ
19.10 2008 kl.20:43

jón baldvin er ómarktækur

JR
19.10 2008 kl.20:49

Jón Baldvin sagði bara það sem flestir eru að hugsa eftir afglöp sjálfstæðismanna , hvort það er Davíð eða stjórn þeirra á peningamálum, þjóðarinnar !

Þeir sem ekki eru sammála Jóni Baldvin eru öfgafullir sjálfstæðismenn , sem ekki kunna að skammast sín fyrir að koma þjóðinni í þæt aðstæður sem við erum í núna !

Jón
19.10 2008 kl.21:41

ó nú er illa komið. Ég er sammála Jóni nafna mínum. Fokið í flest skjól en segi eins og margir aðrir í sjálfstæðisflokknum, Davíð verður að fara!!!

Guttormur Sigurðsson
19.10 2008 kl.21:42

Það er átakanlegt að sjá menn kastast grenjandi úr fangi aðal frjálshyggjuflokksins beint í fangið á einhverjum pólitískum loddara, sem alla tíð hefur stutt frjálshyggjuna í verki og færði okkur ESS samninginn, sem við erum nú að tapa hundruði milljarða á. Geta þeir sem alla tíð hafa stutt hugmyndafræði kapitalismans ekki áttað sig á að það er hvorki Davíð né Geir Harde sem eru beinlínis skapendur kreppunnar. Það er alheimskreppa í efnahagskerfi markaðshyggjunnar. Davíð og Geir fylgdu því miður þessari ranglátu stefnu eins og allir stjórnmálaflokkar á Íslandi. Og gáum að falsinu í þeim sem er nýsloppinn út af sendiráðshælinu, að á meðan peningamennirnir voru í óða önn að fjárfesta erlendis út á krít þjóðarinnar, sagði hann aldrei múkk. Það er léttur leikur nú að koma eins og hvítur engill og boða reiðu og örvæntingarfullu fólki himnaríki í formi ESB og benda á ímynd kölska í Seðlabankanum. Slíkur málflutningur þarf ekki flókinn rök og telst til stjórnmálalistarinnar að spila á tilfinningar fólks. Veit þessi fyrrverandi samverkamaður Davíðs nokkuð um lánaskilyrði IMF? Auðvitað ekki, því þau hafa ekki komið fram, en samt vill hann að stjórnin ákveði að taka lán hjá sjóðnum. Er það kannsi svona sem útrásarmennirnir hafa farið að að taka lán? Ekki nema von að illa færi. Látum ekki svona hvíta sendiráðsengla messa yfir okkur. Við þurfum heiðarlegt fólk til að vinna okkur út úr vandanum og það er nóg af því á Íslandi.

Jakob
19.10 2008 kl.22:26

Loksins kom einhver með vitræna greiningu á ástandinu og hvað þurfi að gera. Það er fáránlegt að menn komi svo hingað eftir allt sem undan er gengið og dreifi umræðunni með að ráðast á persónu Jón Baldvins, þetta eru virkilega sorglegir einstaklingar sem, eins Jón Baldvins orðar svo vel, eru að þvælast fyrir á strandstað. Málið er einfalt IMF+EU+Evra=framtíð.

Háski
19.10 2008 kl.23:10

Í sannleika sagt sakna ég Jóns Baldvins verulega úr stjórnmálum dagsins í dag. Verulega. Hef ekki heyrt neitt sem hann sagði í þætti Eglis í dag harkið með rökum. Bara lesið hér að ofan ótrúlegt samansafn af ómerkilegu skítkasti og heimsku. Hvaða fólk er þetta sem ekki vill rökræna umræðu? Þvílík lágkúra. Sammála öllu því sem Jón Baldvin sagði í þættinum í dag.

SS
19.10 2008 kl.23:19

Jón Baldvin er ekki sérfræðingur í neinu sérstöku nema því að vera “töffari”. Ég man ekki betur en hann hafi í viðtali sjálfur óbeint lýst því yfir að mesti löstur sem hann geti hugsað sér i fari nokkurs manns sé það að vera bindindismaður !!!!! Viðeyjarstjórnarvinur hans myndi örugglega segja “Bermúdaskál” við því. Burt með bytturnar af alþingi og úr stjórnkerfinu, og engar nýjar inn. Við þurfum edrú menn til að takast á við alvarleg mál.

GK
19.10 2008 kl.23:22

Jón Baldvin er sá núlifandi einstaklingur sem fært hefur Íslensku þjóðinni mest verðmæti, nefnilega EES samninginn.
Jón er mikill reynslubolti sem við eigum hiklaust að hlusta á.
Persóna Jóns og hans fjölskyldu kemur þessari umræðu EKKERT við !
Það er bara lúalegt þegar fólk lætur slíkt frá sér fara.

Vra einhver kannski að tala um Bermúdaskál ? Ekki ég !!!

Freyr
19.10 2008 kl.23:30

Sammála Jóni Baldvin.
Davíð er Bjartur í Sumarhúsum holdi klæddur. Skilur eftir sig sviðna jörð fyrir úreltar sjálfstæðishugmyndir. Hugmyndin um hina sjálfstæðu þjóð er illusjón.

EinarE
20.10 2008 kl.01:01

Gæti ekki verið meira ósammála SS manninum. Bindindismönnum er ekki treystandi. Hitler og post rehab DO og Bush yngri ... þarf að segja meira?

Kristján
20.10 2008 kl.09:20

Jón Baldvin er frábær og allt sem hann sagði er rétt. Ég er ekki blindur fylgismaður þess sem hann talar fyrir heldur raunsær.

Ágúst
20.10 2008 kl.09:46

Mikið held ég að yfirstéttin sé ánægð með flesta ofangreinda álitsgjafa. Þarna þekkir hún blessaða alþýðuna sína; rífst um hvor sé meiri glæpa-
maður DO eða JHB þegar búið er að stela framtíðinni af henni. Þetta er
eins og í gamla daga þegar krakkar rifust hvort væri betri Ford eða Chervolet.
Gáfu og menntamenn tókst að fá sæmilega skynsama menn til að rífast
um hvor væri meiri óþokki DO eða Jón Ásgeir Baugur til þess að slá
ryki í augu þjóðarinnar meðan húsbændurnir þeirra rændu hana aleigunni.
Gaman væri að draga þessa menn fyrir alþýðudómstóla og flæma þá úr
landi. Nú ætlar íslenska stjórnmálayfirstéttin að fara í útrás. Fyrst í ætlaði
hún í öryggisráðið en það voru bara 87 spilltar þjófaríkisstjórnir í S.Þ. svo
það náði ekki lengra. Nú ætla þeir í E.S.B. Íslendingar verða vera við borðið
þar ákvarðanir eru teknar ekki sauðheimsk alþýðan heldur skítapakk á
borð við DO JBH og Ingibjörgu S. Gísladóttur ,sem lét vini sína og stuðnings-
menn stela öllu verðmætum frá þjóð sinni og gott betur. Heldur einhver að
mikil virðing yrði borin fyrir þessum óþverrum þegar þau settust sauðdrukkin
og dópuð við ESB borðið.

Haraldur H.
20.10 2008 kl.14:33

Jón Baldvin er bara að segja það sem fólk vill heyra eftir að búið er að æsa það upp af fótgönguliðum Samfylkingarinnar sem þrá Evru og ESB eins og eiturlyfjasjúklingur sem þráir E-töflur og Amfetamín og vonast eftir eilífri sælu.

Jón Balvin, sem lærði til forsætisráðherra, er enn mjög svektur út í Davíð fyrir að vilja taka Framsókn fram yfir gamla Alþýðuflokkin hans Jóns Baldvins eftir kosningarnar.

Jón Baldvin vill að vinur hans, Þorvaldur Gylfason, sem lærði sérstaklega til Seðlabankastjóra, taki við af Davíð sem Seðlabankastjóri. Þorvaldur hefur hinsvegar ekki hæfileikana til þess.

Það er hinsvegar lítið mark á Jóni Baldvini. Þetta er einn mesti froðusnakkur heims, kemur engu í verk, en er með þetta allt í munninum á sér.

Að lokum segji ég; ESB + EVRA = Varnaleg kaupmáttar- og lífsgæðaskerðing fyrir íslendinga.

Mitt eigið net » Blog Archive » Hvaða gjaldmiðil eiga Íslendingar að nota í framtíðinni?
20.01 2009 kl.09:44

[...] og ofureinföldunum á fullveldi og sjálfstæði, og hin að miklu leyti með gorgeir („það er búið mál, hættum að tala um þessa vitleysu“) og misduldum ávirðingum um að Íslendingar séu of miklir örlagabjánar til að stýra sér [...]

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar