Innlent - þriðjudagur - 11.11 2008 - 09:05

IMF og norrænar ríkisstjórnir: Enn vantar upplýsingar frá Íslandi svo hægt sé að afgreiða lán

2002-07-09t034407z_01_nootr_rtridsp_2_ouktp-britain-welsh-euro.jpgNorrænar ríkisstjórnir geta ekki stutt alþjóðlegan lánveitingapakka til Íslendinga nema þeir leggi ítarlegri upplýsingar á borðið. The Wall Street Journal hefur þetta eftir finnska forsætisráðuneytinu, að sögn mbl.is.

Aðstoðarráðuneytisstjóri í finnska fjármálaráðuneytinu, Ilkka, Kajaste, segir að enn vanti nákvæmar áætlanir um hvernig reisa eigi efnahagslífið á Íslandi við, en þær upplýsingar séu nauðsynlegar til að norrænu þjóðirnar skrifi undir. Kajaste mun hafa hitt íslenska embættismenn í síðustu viku, að sögn WSJ.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bíður líka eftir frekari upplýsingum áður en stjórn sjóðsins getur fjallað um lánveitinguna, samkvæmt heimildarmönnum innan sjóðisns, segir í Wall Street Journal.

Fulltrúi sænska seðlabankans segir enn ekki ákveðið hvort bankinn taki þátt í björgunarpakkanum eftir að IMF hafi samþykkt 2,1 milljarða dollara lánveitinguna.

28 ummæli

Rita ummæli

Oddur Ólafsson
11.11 2008 kl.09:10

Þetta er eftir bókinni hjá þessum blessuðum skussahóp sem kallar sig ríkisstjórn Íslands.

Hættu Geir, hættu!

Kristinn
11.11 2008 kl.09:10

Hvenær ætlar einhver að svara spurningunni um hver seldi í Landsbankanum korteri fyrir hrun?

Björn
11.11 2008 kl.09:12

Það sem verið er að biðja um er einfaldlega að við gefum út að við ætlum að sækja um inngöngu í ESB og taka upp evruna. Vonandi verður það gert sem fyrst. Önnur ríki trúa ekki að hægt sé að endurreisa efnahaginn með matadorpeningum.

Þórður
11.11 2008 kl.09:15

Jæja Geir kannski þarf að fara að huga að plani B sem Þorgerður Katrín talaði um hjá Bubba á Rás 2 í gærkveldi.

Það er ekki sterkasta hlið Íslenskra stjórnvalda að leggja fram áætlanir og standa svo við þær.

Hvað þá að seigja frá þeim ef einhverjar eru.

Hvað er búið að vera gerast hjá stjórnvöldum síðast liðnar 6 vikur.

Ég tek undir með konunni sem sagði frá reynslu sinni af Finsku leiðinni:

Ég treysti ekki stjórnvöldum til þess að koma okkur út úr þessari kreppu.

Björk
11.11 2008 kl.09:16

Kemur þetta ekki allt fram í þjóðagsspánni sem beðið var eftir af IMF um daginn?

Star
11.11 2008 kl.09:18

Þarna sýnir Davóður sitt skítlega eðli,Illuminati/Bilderberg Style!
Meira chaos,og svo enn meira chaos,eðli Kommúnist til að ná völdum til
einræðis.

Dark Helmet
11.11 2008 kl.09:21

Alveg hárrétt, ekki hægt að ætlast til þess að fá einhver plön frá anarkistum.

Arni Bjorn
11.11 2008 kl.09:30

þjóðhagsspánnI’??? en hverjar eri aðgerðirnar?

Stefán
11.11 2008 kl.09:30

Ég skora á þjóðina í Guð almáttugs bænum að mæta núna á laugardaginn - ekki bara 5 þúsund eða 10 þúsund - heldur 150.000 - HUNDRAÐ OG FIMMTÍU ÞÚSUND - til að sýna stjórnvöldum í eitt skipti fyrir öll að viljum þau frá í heilu lagi.
Það verður ekki vandamál að skipa bráðbigða -vinnustjórn með fólki með hreint mannorð og sakavottorð úr atvinnulífinu og háskólunum. Sú stjórn mun skapa okkur það nauðsynlega traust útávið sem dugir til að við fáum þá aðstoð sem við þurfum.
Verum algerlega óhrædd við þessa framkvæmd því núverandi stjórnvöld eru versti kosturinn í stöðunni því þau hafa valdið og eru enn að valda svo miklu tjóni að þau eru að leggja landið í auðn.
ÞETTA ER ÁSKORUN TIL YKKAR ALLRA

Þór Jóhannesson
11.11 2008 kl.09:32

Getum við ekki farið að sameinast um eitt:?

EKKI MEIR GEIR!

Magnus Jonsson
11.11 2008 kl.09:35

Þetta tekur botnin úr tunnuni. Hvað kostar nú að borga öllum þessum snillingum laun ?

Meðvitundarlaus elítan er upptekin við að hrauna yfir sjálfan sig í bloggheimum, og í hnífakasti í einhverjum flokkauppgjörum þeir sem finnast á annað borð. Veruleikinn hjá þessu liði er á sama stigi og hjá Versalahirðinni hérna um árið. Þeir misstu nú flestir höfuðin þar.

Hvernig er réttanlegt að borga fólki laun fyrir afglöp eins og stjórnvöld eru uppvís af. Einungis höfuðmissir íslenskra stjórnvalda mun ávinna þjóðinni eitthvert traust svo að einhverjir “þori” að lána.

Farið hefur fé betra

Þórður
11.11 2008 kl.09:37

EKKI MEIR GEIR!!!!!!!!!!

Þórður
11.11 2008 kl.09:39

AUSTURVÖLL Í DAG

þóra
11.11 2008 kl.09:39

Mér finnst líka komin tími til að IMF tali skýrt, hvað er sjóðurinn að biðja um. Kannski geta íslensk stjórnvöld svarað því eða vita þau það ekki... eða vilja þau ekki segja okkur það

Geiri
11.11 2008 kl.09:43

Hvað er í gangi?

Er ríkisstjórnin að reyna að humma þetta af sér og ætlar bara að haga uppbyggingu eða áætlunum eftir seglum og neitar að skuldbinda sig við eitthvað sem þeir þyrftu þá að standa við?

Er Geir virkilega með svona mikla ákvörðunar phóbíu?

Er ekkert búið að gerast síðan í September eða?

Engin furða að flestir á aldrinum 20-35 ára ætli að athuga með það að flytja af landi brott, svona vinnubrögð er ekki hægt að lifa við til lengdar.

Jóhann
11.11 2008 kl.09:58

Ekki meir Geir. Þorgerður pístlarvottur, taktu lufsurnar þínar og gakk...burt.
Þetta hyski er ekkert nema froðusnakkar og algjörlega vanhæft!

Þórður
11.11 2008 kl.09:59

Boðað er til mótmæla á Austurvelli í dag kl 12

Geir
11.11 2008 kl.10:39

Lesið söguna um Nýfundnaland, landið sem missti sjálfstæði sitt og var tekið upp í skuld efir kreppuna miklu 1932. Það sem gerði útslagið var spilling og ráðaleysi stjórnvalda þar. Mig minnir að um 15,000 manns hafi stormað stjórnarráðsbyggingun í St John og hrakið landstjórann á brott. Það var mikið skrifað um þetta á Íslandi á sínum tíma og vert að rifja upp. Væri holl lesning fyrir Geir H og Co.

asi
11.11 2008 kl.10:45

Efnahagsstefna skussanna rúmast í tveimur orðum: Þetta reddast.

Undur og ævintýr « Ásgrímur Kristján Sverrisson
11.11 2008 kl.11:35

[...] heyrði frá blaðamönnum að Pólverjar ætluðu að lána okkur pening óumbeðnir. Þá hefur Wall Street Journal eftir finnska forsætisráðuneytinu að Íslendingar hafi enn ekki lagt fram skýr plön um endurreisn og því geti [...]

Star
11.11 2008 kl.11:45

Skipta um Ríkisstjórn,stjórana og stjórn Seðlabanka, STRAX.

Skipta um Ríkislögreglustjóra STRAX.

Fangelsa þá í einangrun og yfirheyra.

Taka FME stjorana til yfirheyrslu og finna alla milljarða þjófana

Lýðræðiskveðjur.

Hugsihugs
11.11 2008 kl.11:48

Ef við horfum á þetta hlutlaust, þá er eðlilegt að IMF og Norðurlöndin og fleiri setji skilyrði fyrir lánunum. Ef ég fer í bankann og bið um lán og er með eitthvað útistandandi þá verð ég líka beðin um að ganga frá því áður/ á meðan hitt lánið er veitt. Bankinn vill vita hvernig hann fær peningana sína aftur. Ég fæ ekki lán bara fyrir að vera sætur og skemmtilegur.
Það má svo deila um hvort farið sé út fyrir valdaramma þarna.
Það sem sker í augun þarna er að AFTUR eru stjórnarmenn hér búnir að segja eitthvað sem enginn annar staðar kannast við.Annað hvort eru okkar stjórnarmenn að ljúga eða allir hinir, sem nota bene eru í sitthvorum löndunum, eru allir að fara með rangt mál. hmmm hvað haldið þið.

ÞA
11.11 2008 kl.12:12

Þetta getuleysi er orðið hreinlega óhuggulegt. Ætla þessir menn að sigla okkur endanlega í strand með aðgerðarleysi sínu!!!????
Er ekki einhver sem getur tekið hér af skarið og gengist í það sem þarf að gera?

Helena
11.11 2008 kl.12:30

Kristinn spyr: “Hvenær ætlar einhver að svara spurningunni um hver seldi í Landsbankanum korteri fyrir hrun?”

Svar: Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu seldi mánuði fyrir hrunið nokkrum dögum eftir að hann hafði fengið vísbendingar hjá Darling og aðstoðarmönnum hans, hugsanlega úr breska fjármálaeftirlitinu, um að Landsbankinn stæði tæpt.

.

Jens
11.11 2008 kl.13:37

Hvað eru margir af þeim sem eru óáægðir með störf ALÞINGISMANNA og RÍKISSTJÓRNAR ennþá flokksbundnir það eina sem það fólk sem starfar á Alþingi skilur er ef fólk segir sig úr flokkunum því það veit að eftir að fólk er farið út þá er mjög erfit að ná því inn aftur.

Öflugustu mótmæli sem fólk getur sýnt er að segja sig úr flokkunum ÖLLUM þá fer um stjórnmálafólkið því þegar almúginn er ekki lengur í flokkunum þá er enginn flokkur.

Vitinn
11.11 2008 kl.14:47

*** IMF lánin eigum við að afþakka með öllu. ***

Það er hagkvæmast fyrir þjóðina að fara leið hagfræðinganna og taka
upp einhliða sterkari gjaldmiðil þar sem það er búið að eyðileggja krónuna.
Krónuna er ekki hægt að endurvekja úr þessu hún er einfaldlega dauð.
Áhættan við að reyna að halda krónunni upp með vara gjaldeyri er alltof mikil það gæti þurft að grípa til þess gjaldeyris án þess að krónan réttist við og þá væri þeim gjaldeyri á glæ kastað.

Ef við getum ekki tekið upp einhliða Evru þar sem EBE samþykkir það ekki og eyðileggur ES samninginn þa´skulum við taka upp US dollar.

Kaninn hefur ekki haft neit á móti því að lönd taki upp $ þannig að þar er lag.

KE
11.11 2008 kl.17:47

Skv. þessum link er ekki svo gott að vera undir hælnum á IMF:

http://www.rense.com/general84/secr.htm

Guttormur Sigurðsson
11.11 2008 kl.19:51

Menn tala hér nokkuð yfirborðslega um grundvallaratriði gjaldmiðilsmála, kalla íslensku krónuna matadorpeninga og fleira í þeim dúr. Þessum mönnum virðist í léttu rúmi liggja hvernig haldið var á stjórn efnahagsmála að öðru leyti.
Staða gjaldeyris einhvers land eða landa er fyrst og fremst endurspeglun á viðskiptalegri stöðu, bæði hvað varðar viðskipti með gjaldeyri og inn- og útflutning á vörum. Fram til 1994 hafði krónan verið notuð án sérstakra vandræða út af gjaldeyrisviðskiptum. Þá voru slík viðskipti takmörkunum háð og undir eftirliti. En eftir 1994 voru gjaldeyrisviðskipti gefin frjáls og krónan látin fljóta, eins og kallað er. Það þýddi að hægt var án hindrana að flytja erlendan gjaldeyri inn ótakmarkað í formi lána t.d. Þetta nýttu bankar sér óspart. Á sama hátt var hægt að kaupa erlendan gjaldeyri ótakmarkað fyrir krónur. Á þessum árum flestum óks vöruskiptahallinn við útlönd mikið. Slíkt hefði að öllu venjulegu átt að hafa gengisfellingu í för með sér, en vegna sölu svokallaðra jöklaskuldabréfa ríkisins, mikillar erlendrar lántöku bankanna, og ríkisins í tenslum við virkjunarframkvæmdir m.a. , varð útkoman sú að gengið hækkaði mikið. Þegar útrásarbankarnir voru komnir langt yfir strikið í erlendum lántökum, m.a. vegna innrásar sinnar inn á húsnæðismarkaðinn, ákváðu erlendir lánveitendur þeirra að bremsa niður lán til þeirra með hækkunum á svokölluðu tryggingarálagi, sem þýddi að öll endurfjármögnun til bankanna var á hærri vöxtum. Bankarnir voru komnir út í það kviksyndi, hvað sem leið stöðu eigin fjárs, að hafa lánað út í formi langtímalána hundruði milljarða sem þeir höfðu aflað sér með skammtímalánum, í þeirri von að þeir gætu alltaf endurfjármagnað sig með nýjum skammtímalánum á svipuðum vöxtum, og þeir byrjuðu að sökkva vegna hækkunar á vöxtum á endurnýjuðum skammtímalánum. Staða þeirra var eins og eiturlyfjasjúklings, sem alltaf varð að fá skammtinn sinn, hvað sem hann kostaði, til að “halda sér uppi” og þegar skrúfað var algerlega fyrir “skammtin”, þ.e. ný lán, þá hvarf viðspyrnan í peningasukksdýkinu og þeir byrjuðu að sökkva undrahratt, með tiltölulega góða eiginfjárstöðu, sem dugði ekki til að halda þeim á floti.
Og nú má spyrja, hvaða gjaldmiðill hefði þolað hlutfallslega svipaða meðferð og aumingja krónan fékk, án þess að gengi hans hefði fallið?
Jú, ef við hefðum haft evruna, segja EBE sinnar eflaust og þeir finna eflaust rök fyrir því að íslensku bankarnir hefðu þá ekki hrunið. En er það nú víst að erlend stjórnvöld hefðu hlíft þessum bönkum, frekar en sumum öðrum sem nýlega hafa séð sína sæng útbreidda. Eða hefðu seðlabankar viðkomandi landa bakkað þá upp? Um það vitum við nákvæmlega ekkert. Eitt er víst að viðskiptahallinn hefði ekki verið minni og erlendar skuldir ekki minni í evrum talið. Og hvernig átti að bjarga því? með auknum útflutningi og minni innflutningi, það blasir við. Þá kemur að viðkvæmasta hlutanum, verðbólgunni. Værum við nú betur í stakk búinn að höndla hana með evru sem gjaldmiðil, frekar en með okkar eigin gjaldmiðil?
Ég skal viðurkenna að ef fólk telur viðskiptahætti okkar fyrir kreppuna, með gjaldeyri og vörur heppilegir þá er brautin mörkuð til afsals á sjálfsákvörðunarvaldi okkar, upptöku evru og inngöngu í EBE.
Þannig getur upptaka evru verið afdrifarík og viðhaldið áframhaldandi frjálshyggjukerfi hjá okkur eins og það er í EBE löndunum. Viljum við það, eða viljum við grundvallarbreytingar, byggðar á nýju gildismati, það er spurningin? Það er vel hægt að hafa krónuna áfram ef menn stöðva þann peningaleik sem hefur átt sér stað og taka upp skynsamlega stjórnun á gjaldeyrisviðskiptum og vöruviðskiptum. Í því felst að við verðum að skilgreina Ísland sem eina ákveðna efnahagseiningu, þar sem innanlandsmarkaðurinn fær vissa vernd og tækifæri skapast til miklu fjölbreyttari vöruframleiðslu en verið hefur nokkurntíman á Íslandi. Með því að byggja á frjálshyggjunni og skilgreina sig sem hluta af stærri efnahagslegri einingu, þar sem slík ómannúðleg hugmyndafræði ríkir, þýðir að erlend stórfyrirtæki spilla innanlandsmarkaðnum, gera hann einhæfan og neyða okkur til að veita auðhringum ódýran aðgang að auðlindum okkar, en það er akkurat það sem stórfyrirtækin vilja.
Nýtt Ísland verður aðeins raunin ef við leggjum áherslu á nýja hugmyndafræði, þessvegna megum við ekki grafa okkur inn í skrifræðisbáknið í Brussel og kæfa allr okkar hugsjónir. Því geta Íslendingar ekki lagt drög að þjóðfélagi án kapitalisma? Væri það ekki frábært framlag til heimsmenningarinnar, ljós í myrkrinu?

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar