Innlent - miðvikudagur - 31.12 2008 - 15:03

Kryddsíldin flautuð af vegna skemmda á útsendingarbúnaði

kryddsildin2.jpgÞættinum Kryddsíld á Stöð 2 er lokið svo ekki rættust orð stjórnmálamanna fyrr í dag þegar þeir sögðu Kryddsíldina leggjast vel í sig.

Skipt yfir í auglýsingahlé og síðan kom upp skjámynd þar sem stóð að
Kryddsíldinni væri lokið vegna skemmda á útsendingarbúnaði.

Mótmælendur brenndu útsendingarsnúrur og hafa unnið skemmdir á eigum Hótels Borgar. Lögreglan beitti piparúða á mótmælendur úr fordyri hótelsins.

Myndin er frá eldri Kryddsíldarþætti þegar allt var með ró og spekt í þjóðfélaginu.

95 ummæli

Rita ummæli

Didda
31.12 2008 kl.15:17

Váli ég er sammála þér. Ég var ekki búin að hugsa þetta svona langt.

Var Landsbankinn með Tryggva Jónsson í fararbroddi ekki búin að afskrifa þetta og afhenda Jóni Ásgeiri og Ara Edwald þetta á silfurfati aftur?

Það er auðvitað þjófnaður af hálfu Landsbankans ef svo er.

Didda
31.12 2008 kl.15:18

Váli ég er sammála þér. Ég var ekki búin að hugsa þetta svona langt.

Var Landsbankinn með Tryggva Jónsson í fararbroddi ekki búin að afskrifa þetta og afhenda Jóni Ásgeiri og Ara Edwald þetta á silfurfati aftur?

Það er auðvitað þjófnaður af hálfu þeirra ef svo er.

asi
31.12 2008 kl.15:20

Gott á pakkið.

Hlustið á skilaboðin og axlið ábyrgð.

Þjóðin er búin að missa móðinn.

revolucionario
31.12 2008 kl.15:23

Muahahahahhahah. Fari þetta stjórnmálapakk allt í fúlan pytt.
Meira af þessu mótmælendur!!!

Gunnr
31.12 2008 kl.15:24

Þvílikur endir á Annus Horribilis 2008 og ennþá eru nokkrir klukkutímar eftir.
Grímuklæddur skríll með innan við 200 mótmælendur innan við hálft prómill af íslensku þjóðinni og alla vega ekki málsvarar mínir eða minna.
Greinilega mikið af fólki sem getur eða þorir að koma fram með skoðanir sínar. Persónuleg málaferli þar sem fólk þarf að gera upp og borga þær skemdir sem það hefur valdið væri réttur eftirleikur.

Gunni
31.12 2008 kl.15:26

Hvaða skíta pakk var að mótmæla þarna. Skemma eignir Hótel Borg og stöðvar2. Og ráðast á tæknimenn st2. Þetta eru mótmæli sem ég styð ekki. Enda þegar maður skoðar myndirnar frá mótmælunum sér maður að fæstir mótmælendurnir eru orðnir kynþroska og restin flokkast seint sem betri helmingur þjóðarinnar.

Kristín Anna
31.12 2008 kl.15:26

Við hverju býst fólk eiginlega?
Þetta er að stórum hluta unga fólkið sem á að erfa landið OG skuldirnar.
Landið sem verður að stórum hluta búið að selja útlendingum í formi orku til álvera.
Landið sem verður væntanlega búið að selja allan vatnsrétt fái sjálfstæðismenn að ráða, til fárra útvaldra.
Landið sem fólkið þarna inni stóð að að rústa og eyðileggja.
Skuldir sem munu skerða lífskjör þeirra og möguleika til menntunar VERULEGA.
Ég er bara ekkert hissa og finn bara til pínu stolts yfir þessu fólki - það er þá kannski von að það sé einhver töggur í næstu kynslólð.

Eitthvað annað en í þeirri kynslóð sem nú er við völd og í helstu stöðum þjóðfélagsins

jtm
31.12 2008 kl.15:27

Því miður held ég að þetta sé bara byrjunin, og þó svo að ég styðji ekki ofbeldi get ég ekki annað en sagt að ríkisstjórn beri FULLA ábyrgð á þessi ástandi.

Þangað til einhver ber ábyrgð mun þetta bara versna....

Gunnr
31.12 2008 kl.15:27

Þetta styrkir þá skoðun að íslendingar eru að missa tökin og séu í raun glataðir. Verða héðan af lítil einöngruð eyja og verðum látin sigla okkar sjó.
Hver þarf á okkur að halda?

Prófessor Mambó
31.12 2008 kl.15:28

Því miður er þetta það sem koma skal. Stjórnmálamenn munu þurfa að sinna störfum sínum undir verndarvæng víkingasveitar lögreglunnar og að því kemur að stjórnmálamaður verður fyrir ofbeldi.

Ekki er það fagurt Daníel! Þetta er afleiðing þess að stjórnmálamennirnir daufheyrast endalaust við köfu almennings um pólitíska ábyrgð.

Án þess að Prófessorinn vilji mæla ofbeldi bót eða hvetja til þess þá er þetta ástand fyrst og fremst stjórnmálamönnunum að kenna.

Hvernig stendur á því að almenningur stendur eftir sárafátækur, ærulaus og framtíðin í molum en enginn af kvölurum alþýðunnar hefur verið látinn sæta ábyrgð?

Halda menn að þeir komist upp með að afneita ástandinu út í eitt án þess að það sjóði upp úr?

Kristín Anna
31.12 2008 kl.15:28

Ofangreint skrifaði ÞA annarsstaðar hér á eyjunni og er ég hjartanlega sammála honum.
Gott að vita að það er töggur í einhverjum hérna.

Séra Jón
31.12 2008 kl.15:29

Kannast nú ekki við að þjóðin hafi mætt þarna.

En mistök stjórnmálamanna eru engu að síður þau að þrátt fyrir allt að þjóðargjaldþroti hefur ekki ein einasta manneskja axlað ábyrgð og sagt af sér. Sem bendir til þess að þrátt fyrir gjaldeyrishöft þá verði áfram leyfilegt að flytja inn banana svo að lýðveldið nái að dafna.

Dori G
31.12 2008 kl.15:29

Burt med hyskid þad er ekki til sidspiltara folk en Ingibjorg, Valgerdur og Arni Matt burt med þetta dot hofum ekkert vid þad ad gera.

Haukur Kristinsson
31.12 2008 kl.15:33

Gunnr....ma vel vera ad thu sert kynthroska, en eg efast um frekari throska.

Karl
31.12 2008 kl.15:34

Voru mótmælendurnir bara að eyðileggja eignir sem Landsbankinn var búinn að gefa Stöð 2 með afksriftum?
Hreinn og klár þjófnaður.
Skípapakk
Hins vegar er það orðið óhugulegt ef fólk vill láta sjá andlit sín. Í okkar samfélagi á sú venja ekki að ríkja.

GHS
31.12 2008 kl.15:37

Hvað á fólk að gera?

Við reyndum að mótmæla á friðsaman hátt. Mótmælendur eru víst ekki fólkið. Ekki var hlustað, allt sama liðið situr ennþá eftir hrunið. Ef þið viljið ekki svona mótmæli, farið þá að hlusta. Við viljum kjósa aularnir ykkar. Það er fáránlegt að þið stýrið hvernig á að rannsaka allt klúðrið, þar sem þið eruð arkitektar klúðursins.

Brynjar
31.12 2008 kl.15:40

Maður mótmælir ekki friðsamlega!!
Þá er bara hlegið að manni!
Byltingu NÚNA!!

Hank
31.12 2008 kl.15:46

Vonandi fara atvinnu stjórnmála menn að átta sig á að fólkinu er alvara og að þeir (atvinnu stjórnmálamenn) eru ekki neinir auðfúsugestir inní stofur landsmanna, ég vil hrósa hinu unga fólki sem staðið hefur í fylkingarbrjósti mótmælenda fyrir þeirra þraut segju.

Gleðilegt ár landsmenn, með ósk um að næsta ár færi okkur stjórnmála menn, sem hafa áttað sig að að þeir, sem manna Stjórnarráð Íslands geta og eiga ekki að líta að að þeir séu í sandkassaleik.

Valur
31.12 2008 kl.15:48

Jón Ásgeir hefði nú fengið eitthvað harðara í sig en snjóbolta núna.

Joker
31.12 2008 kl.15:52

Það er vonandi að stjórnvöld vakni nú af dvala og veiti þjóðinni tækifæri til að kjósa. Ef ekki þá er bara spurning um tíma hvenær allt springur í loft upp.

Það má líka sleppa Kryddsíldinni í ár. Hef engan áhuga á að hlusta á þetta pakk spinna enn einn lygavefinn.

Stjórnmálamenn eiga ekki að hneykslast á eignaspöllum og líta sér nær. Þeir hafa kostað þjóðina hundruð milljarða með vanhæfni og spillingu.

Vitinn
31.12 2008 kl.15:56

‘Eg veit ekki hvaða fólk var við Hótel Borg eflaust eitthvað blandaður hópur.
Finnst þetta samt mest skrílslæti.

SS
31.12 2008 kl.15:57

Þessi hópur sker sig í ætt við einræðisherra heimsins. Það tíðkast í þeim hóp að stýra því hvaða fjölmiðlun nær eyrum almennings með ofbeldi og það er enginn munur á þessari aðgerð og því þegar einræðisstjórnir framkvæma þetta. Við skulum vona að þetta fólk komist aldrei nálægt landsstjórninni því sama hversu slæm stjórn er núna þá er hún þó fjarri hugsanahátt þessa fólks.

Andri
31.12 2008 kl.16:04

SS og þið hin eruð öll ófær um að tjá ykkur um þetta mál nema að hafa verið á svæðinu og séð hvernig allt fór fram. Allt tal um skríl á ekki rétt á sér. Svikarar! Aular og þrælar auðvaldsins þið eruð.

Rousseau
31.12 2008 kl.16:06

Frábært, frábært, frábært. Fínt að skemma eigur stöðvar 2, sem Jón Ásgeir á aftur. Stöð 2 er holdgervingur spillingarinnar og þessi þáttur, Kryddsíld með alla spillingarforingjana samankomna, innsti hringur holdgervingarinnar. Meira svona, um að gera að sprengja nokkrar vænar tertur inn í stjórnarráðið og Alþingi. Svo munið þið hvar 250 skúffufyrirtæki Jóns Ásgeirs eru til húsa, það er Túngata 6. Starfsfólki Stöðvar 2 er vissulega vorkunn, en það fólk vinnur á röngum stað og má því þola þetta.

Viva la revolucíon

b
31.12 2008 kl.16:07

Mótmæli eiga ekki að vera pen og passleg. Þau eru í eðli sínu agressív. Annars þyrfti varla á þeim að halda og hægt væri að leysa málið á jafnræðisgrundvelli. Auðvitað stigmagnast agressjónin svo þegar ekkert er hlustað.

Vandamálið er að við erum bara svo ógeðslega kurteis við valdhafana. Að vera róttækur er skammaryrði á Íslandi merkilegt nok. Sem dæmi um þetta þá var ég í gær kallaður róttækur vegna þess að ég er hættur að versla í Bónus og öðrum fyrirtækjum Baugs.

Fyrr má nú vera rótæknin. Það ber að fagna öllum mótmælum sem eru óþægileg fyrir stjórnmálamenn og braskaragengið. Við þurfum að hætta að vera kursteis og þetta gengi þarf að skipta um vinnu. Annað þýðir bara meira af því sama.

Takk fyrir að mæta og mótmæla þið sem að þeim stóðuð.

Bjarki
31.12 2008 kl.16:08

Við tuðum og tautum eins og venjulega.
Þegar krakkarnir mótmæla og skemmiahluti þá eru einhverjir okkar sem tuða enn meira og tala um ofbeldisseggi og lögbrjóta. Og það skiptir máli hvaða lög við brjótum. Ef við brjótum af okkur eins og Geir og Árni þá megum við sitja áfram en ef maður slítur snúru eða tekur tæknimann hálstaki þá er það handtaka og fangelsi.
Það er ekki sama hvaða lög eru brotin á Íslandi. Munurinn á séra Jóni og Jóni verður augljósari og augljósari og augljósari.
Við Íslendingar erum feitir, slappir og latir og látum vaða yfir okkur. Ég er engin undantekning þar á.
Ef við viljum breyta Íslandi þá er það lítið mál. Stjórnmálamennirnir sem við viljum hafa áhrif á eru í jólaboðum og afmælum með okkur og leika lausum hala í kringum okkur en við veljum að láta þá vera.
Viljum við breyta einhverju eða viljum við óbreytt ástand?
Það er í góðu lagi að tuða svona okkar á milli en ber oft lítinn árangur, eða hvað?
Gleðilegt nýtt ár.
Kærar þakkir, Egill, fyrir öflugan miðil.
Og farsælt komandi ár.

Bjarney
31.12 2008 kl.16:09

Kristín Anna kl. 15:28 þetta er nákvæmlega það sem við þurfum að varast og augu fólks þurfa að opnast.
Þið sem eruð á eyjunni lesið þetta.

asi
31.12 2008 kl.16:10

SS -- Þessi samanburður nær engri átt.

Þú ert undirgefin valdinu.

Hollusta þín við valdið er tepruleg og snýst í andhverfu sína -- hver hunsar raddir þjóðarinnar um gengsæji og ábyrgð.

agnar
31.12 2008 kl.16:10

bara mjög skiljanlegt að fólk sé orðið fyrir löngu reit á þessu aðgerðaleysi sjórnvalda skil ekki fólk sem er alltaf að væla skrílslæti bla bla bara mjög skiljanlegt Hallo sjáið þið ekki aðgerðaleysið hvað er buið að ske eftir hrunið á bönkunum nákvamlega ekkert þið eruð bara blá í gegn og viljið búa í samfélagi sem er kúað stjórnað á skítseiðum búið að hækka skatta nefskatur lika og fl ég seigi nei takk verst skuli vera þeir náðu ekki til sollu

áfram mótmælendur ég stið ykkur í rauða dauðan haldið áfram og gleðinlegt nýtt ár mótmælendur vonandi komið þið ennþá sterkari inn á nýju ári

hp
31.12 2008 kl.16:12

Ekkert nema jákvætt að fólk þarna sé ungt að aldri. Þá vonandi fá þau í sig almennilegt mótmælauppeldi og verða betra fólk en ég og aumingjarnir hérna sem vilja allt láta yfir sig ganga og vera “”málefnaleg”"”, hvað í helvítinu er nú það í landi þar sem mafíósar ráða ríkjum. Mér er skítsama hvort þau viti hverju þau eru að mótmæla.

Ísland er Zimbabve norður Atlanshafs. Hér ræður ríkjum spillingarklíka og samtrygging stjórnmálaflokka. Eins og Njörður P. Njarðvík sagði svo réttilega í grein í Fréttablaðinu “Ísland er ekki lýðveldi, Ísland er flokksveldi”. Aldrei hef ég heyrt sannari orð á ævi minni.

Fögur eyja, ömurlegt þjóðfélag!

Lesandi
31.12 2008 kl.16:21

Andri, já þetta er flott mál. Stöðva útsendingar frjálsra fjölmiðla, og reyna svo að ritskoða eða koma hreinlega í veg fyrir lýðræðislega umræðu um atburði dagsins í dag á netinu, er það eithvað minni fasismi en lögregla og stjórnvöld eru ásökuð um að sýna ... ?

Ég vil benda á það að ef það að hafa verið á staðnum, eða tekið þátt í atburði á að vera frumforsenda þess að vera hæfur að fjalla um hann eða mynda sér skoðun á honum, þá þarf alvarlega að endurskoða rétt mótmælenda til að fjalla um það sem útrásarvíkingarnir og stórnvöld gerðu/gera. Ekki voru þessir mótmælendur til staðar í reykfylltu bakherbergjunum þar sem ákvarðanir voru teknar, eða vita nákvæmlega hvernig allt fór fram.

Reynum að hafa þetta siðmenntað, taka tæknimenn hálstaki, slá og grýta fólk, come on.. er þetta fólk ekki samborgarar okkar og alveg jafnmikil fórnarlömb og við hin?

Bjarni Hallsson
31.12 2008 kl.16:22

Mjög gott að það skildi nást að þagga niður hrokaræður Ingibjargar, hún er alltaf að sína betur og betur sinn rétta lit fasisma í framkomu gagnvart þjóðinni.
Ey þykir mér gott að starfsfólk og lögregla hafi slasast, en ég vorkenni ekki dauðum hlutum baugsmiðla.
En hávaði og læti sína betur reiði þjóðarinnar heldur en þöglir laugardagar.

asi
31.12 2008 kl.16:24

hp -- hittir naglan á höfuðið: Það er gott að unga fólkið mótmæli og það er að virka. Raddir fólksins rata í fjölmiðla og það það skerpir umræðuna.

Tómlæti og sinnuleysi almennings hefur treyst valdhafana í sessi.

-- En ekki meir!

Þjóðin
31.12 2008 kl.17:30

SÖNNUN

Löggan byrjað að meisa af tilefnislausu; Mótmælendur sátu friðsamlega og sungu;
SJÁ myndband:

http://halo.blog.is/blog/halo

JR
31.12 2008 kl.17:37

,,Ég hef litla samúð með Stöð 2. Hún hafði kryddsíld í boði Rio Tinto. Bauð þangað sjálftökuliði og eftirlaunafræðingum stjórnmálanna. Allir hafa þeir hundrað sinnum sagt það, sem þeir hafa að segja. Enn ein uppstilling þessa fánýta liðs þjónar engum lýðræðislegum tilgangi. Nokkrir borgarar tóku sig saman um að stöðva útsendinguna. Það tókst. Umræða í samfélaginu gerist ekki í neinni kryddsíld. Hún er á torgunum og í blogginu. Eftir áramótin á staða sjálftökuliðsins eftir að þyngjast enn frekar. Fólk er gáttað á forstokkun pólitíkusanna. Kryddsíldin varð yndislega endaslepp í dag. Í boði Rio Tinto.”

Þetta segir Jónas Kristjánsson !

Var lögreglan með piparúðan líka í boði Rio Tinto ?

Eigum við von á meira lögreglu í boði Rio Tinto ?

bóla
31.12 2008 kl.19:19

Hvað á löggan eiginlega að gera. Reynið að setja ykkur í hennar spor. Hún er ekki vön svona mótælum og er hrædd um að allt fari úr böndunum. Ég er samt í mótmælendahópnum enda annað ekki hægt.
Það þarf róttækar breytingar á þessu skeri og henda núverandi stjórnarherrum . Ég óska hér með eftir góðri lausn. Því miður þá hefur lausninni ekki skotið niður ennþá enn ég læt ykkur vita.
Baráttukveðjur .

Rómverji
31.12 2008 kl.21:07

Bull í boði Rio Tinto. Gott að vera laus við það.

HL
01.01 2009 kl.03:12

Þjóðin - 17:30

Löggan meisaði ekki á tilgangslausu og mótmælendur voru ekki friðsamleg. Starfsfólkið á stöð 2 var búnir að reyna að halda þessu pakki úti í 10 mín áður en löggan kom og henti þeim út. Og hvað græða mótmælendur á því að skemma og taka þáttinn úr loftinu.................

Leifur þorleifs
01.01 2009 kl.05:46

Hvar hefur Sigmundur Ernir verið?
Hlýtur að hafa vitað um mótmælin, nógu voru þau auglýst.
Að bendla Agli Silfurs við þetta á einhvern hátt lýsir einungis óheiðarleika þessa annars ágæta manns.

Ég vill að Breski Sendiherrann verði vísað úr landi, fyrir þá einu sök að Bresk stjórnvöld stálu af þjóðinni þann rétt að til lýsa yfir hryðjuverkalögum á hendur Íslenskum stjórnvöldum, þau sömu stjórnvöld sem í dag kalla mótmælendur hreinlega skítapakk og þeir tilheyri ekki þjóðinni.

Í gær tók ég þátt í um töluðum mótmælum og mótmælti friðsamlega, mér ofbauð framferði lögreglu og brást reiður við er ég heyrði fréttir á rás eitt að lögreglu hafi stafað ógn af mótmælendum.

Lögreglumenn sem ég sá til, gengu óhindrað í gegnum mannþvöguna alla vega voru þeir ekki hindraðir við skildustörf, þá meina ég útivið.

Ég ber meiri virðingu fyrir Geir Haarde heldur en Ingibjörgu Sólrúnu, sem segir að mótmælendur séu ekki þverskurður af þjóðinni, því þjóðin náði ekki að fylla Háskólabíó.
Geir Haarde segist skilja reiði almennings, annað en ,, jafnaðarkonan ” Ingibjörg Sólrún.

Ég skil að takmörkuðu leiti andstöðu sumra sem eru á móti þeim mótmælum sem hafa orðið hér.
Fólki sem er í þeirri aðstöðu að það hefur ekki ennþá orðið var við þá kreppu sem mun geisa yfir og því lánsömu fólk sem mun ekki finna fyrir henni.

Ég skil óöryggi þeirra.

En ég held því miður að þið verðið að taka þátt í þeirri kröfu að hreinsað verði til í þjóðfélaginu, nema þá helst að þið séuð þáttakendur í þeirri spillingu sem hefur viðgengst, bæði fyrr og nú.
því ef við ætlum virkilega að standast þessa ágjöf, þá verðum við virkilega að standa saman.

Einn fyrir alla, allir fyrir einn!

Það vinnst ekki friður fyrr en þjóðin sameinast um raunverulegan, sameiginlegan, hag þessa lands.

Að gefnu tilefni vill ég hvetja alla þjóðina til að slá skjaldborg um Egil Helgason, ef illa fer, án hans væri Eyjan, lífið og tilveran í dag, ósköp aum.

Óska landsmönnum til sjávar og sveita baráttukveðjur á nýju ári og þakka það liðna!

PP
01.01 2009 kl.12:32

Þvílíka hyskiið sem þessi mótmælendur eru.

Birgir Hauksson
01.01 2009 kl.13:52

Í mínum augum og allra sem ég þekki fer því víðsfjarri að um friðsamleg mótmæli séu um að ræða. Það er ótrúlegt að hlusta á lygarnar í örfáum mótmælendum þar sem þeir segjast hafa verið í frið og spekt, syngjandi friðarsöngva og jafnvel fara með bænir og svo
hafi bara Löggan skyndilega ruðst fram með ofbeldi, gasi og piparúða. Lögregla er í fullum rétti að beita þeim úrræðum sem hún hefur heimildir til. Það sjá allir á þeim fjölda vídeó mynda frá Mbl.is, Visir.is. og fleirum að friðsamleg mótmæli er ekki lengur tilgangur þessa fólks. Stjórnleysi, ofbeldi, skrílslæti, likamsmeyðingar, skemmdarverk,
já skemmdarverk á á viðleitni okkar hinna sem þekkjum þau mörk sem einkenna friðsöm mótmæli. Þau mörk eru án ofbeldis. Ég óska eftir því að einhver ykkar upplýsi okkur hin um hvaða ávinningi þig væntið fyrir þessar aðgerðir ? Hverju hafið þið náð fram ?
Svo leyfi ég mér að fullyrða að 99,9 þjóðarinnar hefur ekki velþóknun á svona stjórnleysi
og telur það skemma fyrir og eiðileggja réttlát og nauðsynleg “Friðsöm mótmæli” sem ég ætla að taka þátt í, strax á þessu ári.
Gleðilegt ár.

Bjarney
01.01 2009 kl.15:38

Er Álfheiður Ingadóttir ekki bara að fara offari í að skipuleggja svona mótmæli eða hvað????
Þettta er allavega það sem maður heyrir og frá fleirum en einum og tveimur. Ef þetta er rétt þarf hún aðeins að fara að hugsa sinn gang.

Solla
01.01 2009 kl.15:53

Birgir Hauks, varstu á staðnum eða á hverju byggirðu málflutning þinn.

Marmkiðið er að kippa 365 miðlum alfarið úr sambandi. Þessi píkulegi Ari Edwalds getur farið að leita sér að vinnu.

Álfheiður var ekki á þessum mótmælum en ég sá Egil (horfa á) og Magnús Þór. Geir gunga muna aldrei einu sinni reynt að hafa mætt. það var lygi að hann hafi ekki komist inn!

Jon Mag
01.01 2009 kl.16:08

Sumum líkar greinilega að vera teknir ósmurt í rassgatið af spilltum og gjörsamlega vanhæfum stjórnvöldum og móðgast fyrir hönd spillingaraflana og þjóðarnauðgarans þegar fólk rís loks upp og mótmælir.
Ykkur að segja þá á allt eftir að loga hér í mótmælum og mjög líklega munn harkalegri mótmæli en áður hafa sést hér á landi og þeim mun ekki lina fyrr en pakkið sem rústað hefur íslenskum efnahag og svikið þjóðina í skuldaánauð axlar sína ábyrgð.
Og troðið því svo inn í ykkar þykka haus að þetta hefur ekkert með hægri eða vinstri að gera heldur það að íslendingar sitja uppi með handónýta stjórnmálamenn í öllum flokkum sem virðast vera mismikið beinir þátttakendur í fjárglæfraspilinu sem kom landinu á heljarþröm.
Og þetta fólk vilja allir nema þið losna við og sparka burt frá valdáhrifum því allir vitibornir sjá og skilja að þetta fólk er gjörsamlega óhæft til þess að ná þjóðarsátt um eitt eða neitt enda trausti rúið bæði innanlands sem erlendis.

Gugga
01.01 2009 kl.19:58

Hvers konar lið er þetta sem mælir þessu bót.
Þarna var þaulskipulagðir atvinnumótmælendur að verki.

Hættið að blanda svo almenningi í þessi ofbeldisverk ykkar.

Það ætti að stinga ykkur öllum í steininn.

Linda
01.01 2009 kl.19:59

Þarna sjáið þið hvernig þessi skríll er, kemur í veg fyrir lýðræðislega umræðu í þjóðfélaginu með ofbeldisverkum sínum.

joð
01.01 2009 kl.20:02

Mótmælin fyrir utan Hótel Borg voru hið besta mál að undanskyldu líkamlegu ofbeldinu sem nokkrir skemmdir aðilar úr hópi lögreglu og mótmælenda bera ábyrgð á.

Innrásin var óráð og skemmir aðeins fyrir að mínu mati.

Form þáttarins var fáránlegt eins og mál standa í dag. Tónlistfluttningur listmanna. skrautkokteilar og matur í stíl undir einhverju skemmtihjali misvitra stjórnmálamanna í glæsihúsakynnum minnir full mikið á þau hátíðarhöld sem þeir sóttu í boði þjóðarinnar í einkaþotum og snekkjum aðila eins og eiganda Stöðvar 2, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.

Skemmdir á tækjabúnaði Baugsveitu Jóns Ásgeirs harma ég ekki.

Hildigunnur
01.01 2009 kl.20:21

Skora á ykkur að skoða myndbandið á Visir.is þar sést best að þetta eru krakkar með enga ábyrgðartilfinnignu. Í Flottum og dýrum fötum að leika sér og hafa kannski mesta lagi áhyggjur af næsta símreikningi.

Þetta eru atvinnumótmælendur og smalað er í mótmælin með SMS

Logi
01.01 2009 kl.20:24

Á ekki til orð yfir fólk sem finnst í lagi að kasta grjóti inn í mannþvöguna.

Hvers konar siðferði er þetta. Og að kjálkabrjóta mann.

Skammist ykkar krakkalýður. Það ætti að birta nöfn ykkar allra í fjölmiðlum og láta ykkur borga alvöru sektir sem um munar.

Höskuldur Davíðsson
01.01 2009 kl.20:25

Ég styð öll mótmæli, í hvaða umhverfi eða aðstæðum þaug eru.
Þið unga fólk.
Haldið áfram, mótmælið í alvöru.
Af fullri hörku, ég stend með ykkur, gamall maður.
Rífið niður helvíktis drulluna

Harpa
01.01 2009 kl.20:26

Hvað ætli hún kosti fína úlpan sem Katrín Oddsdóttir var í?

Fannar
01.01 2009 kl.20:28

Höskuldur

Það er ekki í lagi að beita svona ofbeldi. Að kjálkabrjóta mann og kasta steinum. Er ekki í lagi með þig maður. Ertu virkilega að hvetja til svona mótmæla. Ég ætla rétt að vona að löggan sé að fylgjast með þínum skrifum.
Það er alvarlegt að hvetja til svona mótmæla.

Siggi
01.01 2009 kl.20:30

Ástandið er orðið slæmt þegar venjulegt fólk styður ofbeldisaðgerðir. Í gegnum söguna hafa verið mörg slæm dæmi um slíka atburði. Byltingarlið sem eirði engu sem fyrir varð og skeytti ekkert um líf og heilsu fólks.
Er þetta það sem við viljum? Hver og einn verður að spyrja sig að því. Ef svarið er já, þá mun ekki vera hægt að ganga um göturnar.

Kristjana
01.01 2009 kl.20:32

Harpa

Úlpan hennar Katrínar Odds. er rosalega dýr og ekki á færi okkar venjulegs verkafólks að kaupa slíkar flíkur. Svo þykist þetta fólk vera að vinna fyrir okkur.
Mér verður flökurt.

Gaur
01.01 2009 kl.20:33

Tafarlausa byltingu núna!

Höskuldur Davíðsson
01.01 2009 kl.20:39

Fannar.
Ég er stoltur af því fólki sem kemur fram og mótmælir
fyrir hönd okkar aumingjanna sem erum að draga kjarkinn úr
þessu góða fólki hér á Eyjunni.
Skammastu þín.

MikkiMús
01.01 2009 kl.20:43

Þetta var bara skríll sem réðst inní Hótel Borg.
Lögreglan stóð og horfði á meðan fólkið var að skemma og klifra yfir grindverk inná lóð Hótelsins.
Svona má ekki koma fyrir aftur það þarf að taka slæðuna f þessum unglingum og láta þá í það minnsta sjást á myndum.
Ef það dugar ekki - sem ég vona nú - þá þarf að beit hörku við skrílinn.
Annað eru bara ný mistök af valdstjórninni.

Forstinn kallar þenna skríl reyndar nýja Ísland ef ég skil hann rétt.
Hann er alltaf öfugu megin við það skynsamlega sýnist mér.
Best að siga skrílnum á Bessastaði þá sér hann hvernig þetta er.

SallaRólegur
01.01 2009 kl.20:50

‘Eg er nú sallarólegur þó að skríllinn geri aðsúg að stöð2 og þessum Baugsmiðlum. Góð uppástunga að siga skrílnum á Bessastaði.
Annars grunar mann að þetta lið sé nú í fleiru en að mótmæla þessir sem eru með grímurnar.

Gaur
01.01 2009 kl.20:53

Hvað áttu eiginlega við SallaRólegur? Á hverju byggir þú þann grun? Grímurnar eða? Eitthvað svona Bjarnabófa syndróm? Þið eruð öll geðveik. Drattist út og gerið eitthvað - eða þegið

Torfi
01.01 2009 kl.20:56

Sallarólegur

Það er rétt mann grunar að þessir grímuklæddu mótmælendur séu þekkt andlit í þjóðfélaginu. Það hafa heyrst ýmis nöfn sem tengjast ákveðnum stjórnmálaöflum.

Höskuldur Davíðsson
01.01 2009 kl.20:56

Mikki mús.
Hver sem þú ert helvítis aumingi.
Láttu ungmenni íslands gera það sem gera þarf.

Lára
01.01 2009 kl.20:58

Hver skyldi þetta hafa verið með fínlegu hendurnar og giftingarhringinn sem sást vera að spenna upp glugga á Hótel Borg? Mann grunar ákv. manneskju.

Haraldur
01.01 2009 kl.21:01

Ekki vil ég búa í þjóðfélagi sem þetta lið stjórnaði. Ofbeldi er aldrei réttlætanlegt og það er heldur ekki réttlætanlegt að koma í veg fyrir lýðræðislega umræðu eins og þessi skríll gerði í gær.

Frosti
01.01 2009 kl.21:02

Vona að löggan sé að fylgjast með skrifum á síðunni. Hún getur gómað nokkra mótmælendur og þá sem eru að hvetja til ofbeldisverka.

Solla
01.01 2009 kl.21:11

Brrrr... hvað maður er hræddur núna Frosti. Fær Löggan IP tölurnar hjá Agli?

Hjálmar
01.01 2009 kl.21:19

Löggan þarf stuðning almennings svo hún geti tekið á þessu vopnaða mótmælagengi sem kastar grjóti og slasar fólk.

Leifur
01.01 2009 kl.21:31

Það þarf að finna út hverjir það eru sem efna til þessara ofbeldisfullu mótmæla. Það er greinilegt að þarna er á ferðinni atvinnumótmælendur og löggan þarf að taka á.

Leifur þorleifs
01.01 2009 kl.21:38

Ný sameinuð stefna stjórnvalda og spillingar aflanna að hagræða sannleikanum?

Þið sem skrifið fyrir hönd spillingar aflanna, ykkur á eftir að svelgjast á.

GHS
01.01 2009 kl.21:38

Það er alltaf verið að tala um atvinnumótmælendur, hverjir ætli eigi að vera að borga þeim?

Hönnuðurinn
01.01 2009 kl.21:41

Orðið “ofbeldi” er orðið svona álíka misnotað og að kalla einhvern nasista í rökræðum. Þetta er hlægilegt.

Haraldur
01.01 2009 kl.21:45

Hvað er þetta annað en atvinnumótmælendur? Þetta fólk virðist lítið hafa að gera annað en standa í þessum óeirðum. Þetta er sama liðið og á Kárahnjúkum.

Bjarni Þ.
01.01 2009 kl.21:45

Já hvað skildi úlpan kosta... Eru þið ekki að grínast, er það í alvörunni það sem þið eruð með áhyggjur af?

Ekki skuldsetning þjóðarinnar, ekki vanhæfir stjórnmálamenn sem fara ekki að lögum, ekki siðspilltir bankamen.

Nei við skulum frekar ræða um úlpuna hennar Katrínar.

Sveiattan.

Haraldur
01.01 2009 kl.21:46

Þetta var ekkert annað en ofbeldi sem þarna fór fram í gær.

Hvaða heilvita maður getur sagt annað þegar kastað var grjóti og maður kjálkabrotinn.

Hvers konar siðferði er hjá þér Hönnuður?

Fjóla
01.01 2009 kl.21:48

Bjarni Þ.

Fólk hefur t.d. áhyggjur af spillingunni í Vinstri Grænum.

Svandís Svavarsdóttir lét Orkuveituna greiða fyrrverandi eiginmanni sínum 800 þús. fyrir smá lögfræðiviðvik.

Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi gerði samninga við borgina upp á
130 milljónir fyrir dúklagningar.

Fólk hefur áhyggjur af svona spillingu.

Leifur þorleifs
01.01 2009 kl.22:09

Segðu okkur nú Fjóla hvernig þú vilt koma þessu hryðjuverka hyski úr valdastöðum?

Fjóla
01.01 2009 kl.22:28

Leifur ég held að þú ættir að skammast þín.

Ég get ekki tekið undir svona ofbeldi og ekki nokkur heilvita maður.

Frosti
01.01 2009 kl.22:30

Það sem er dapurlegt við þetta allt saman er að þessir atvinnumótmælendur eru að fela sig á bak við almenning.

Almenningur frábiður sér að tengjast þessu á nokkurn hátt.

Hættið þessum blekkingarleik ykkar.

Vona að Fjölmiðlar birti nöfn ykkar.

Rúna
01.01 2009 kl.22:31

Er þetta ekki ungliðahreyfingin úr Vinstri Grænum sem hefur verið að smala í mótmælin?

Þeir hafa átt ansi marga ræðumenn í þeim.

GHS
01.01 2009 kl.22:42

Frosti 22:30

Hvað heldur þú að gerist ef nöfnin yrðu birt?

Mun Björn (okkar) Bjarnason siga nýfjármögnuðu Víkingarsveitinni á þá?

Hver ætti að vera að borga þeim sem þú kallar atvinnumótmælendur?

Fjóla
01.01 2009 kl.22:42

Leifur.

Segðu okkur nú hvernig þú vilt taka á spillingunni í Vinstri Grænum.

Hvað finnst þér um Svandísi og 800 þúsundin sem hún lét Orkuveituna greiða fyrrverandi manni sínum?

Hvað finnst þér um Þorleif borgarfulltrúa Vinstri Grænna sem gerði samninga við borgina upp á annað hundrað milljónir fyrir dúklagningar?

Hvað finnst þér um allar utanlandsferðirnar hennar Svandísar og dagpeningana sem hún fékk?

Hvað finnst þér um að Svandís hefur látið leysa sig oftast af í borgarstjórn með tilheyrandi kostnaði fyrir borgina?

GHS
01.01 2009 kl.23:05

Fyrst Fjóla talar um spillingu!

Hvernig er það? Á nokkuð að þegja þessi mál í hel á nýju ári?

1: Geir Haarde braut lög: Þungar ákúrur umboðsmanns Alþingis vegna embættisskipana ráðherra:
http://eyjan.is/blog/2008/12/30/geir-haarde-braut-log-thungar-akurur-umbodsmanns-althingis-vegna-embaettisskipana-geirs-og-arna/

2: Tveir lögfræðimenntaðir þing- menn telja Árna eiga að segja af sér vegna skipunar Þorsteins:
http://eyjan.is/blog/2008/12/31/tveir-logrfaedimenntadir-thingmenn-telja-ad-arna-beri-ad-segja-af-ser-vegna-skipunar-thorsetins-sem-heradsdomara/

Bjarni Þ.
01.01 2009 kl.23:23

Fjóla ég held að fólk hafi meiri áhyggjur af spillingu innan Sjálfstæðisflokksins og tengsl hanns við viðskiptalífið á Íslandi heldur en borgarfulltrúum VG.

Hinsvegar er ég fylgjandi því að þegar búið er að fara yfir spillingarmál ríkisstjórnarinnar að þá sé lag að snúa sér að borgar- og bæjarstjórnum landsins.

Solla
01.01 2009 kl.23:56

Ritstjórar, er hægt að koma einhverju skipulagi á þennan ágæta vef ykkar, þannig að sama fólkið geti ekki verið að skrifa undir mörgum nöfnum með þessa “VG smölun” sína, það fer alltof mikið pláss í þetta og eyðileggur annars ágætar umræður.

Fjóla
02.01 2009 kl.00:01

Bjarni Þ.

Af hverju viltu ekki tala um spillinguna í Vinstri Grænum?

Ertu sem sagt að taka undir það að það hafi verið í lagi að
Svandís Svavarsdóttir lét Orkuveituna borga fyrrverandi manni sínum
800 þús fyrir smá viðvik?

Ertu sammála því að Þorleifur borgarfulltrúi Vinstri Grænna geti gert
samninga upp á annað hundruð milljónir fyrir dúklagningar hjá Borginni?

Þetta er ógeðsleg spilling hjá Vinstri Grænum og
Svandís og Þorleifur ættu að sjá sóma sinn í að segja af sér.

Heiðdís
02.01 2009 kl.00:06

Við eigum að taka á allri spillingu, ekki spurning.

Tökum því líka á spillingunni í Vinstri Grænum.

Mér finnst þetta ekki eðlilegt hvorki hjá Svandísi né Þorleifi borgarfulltrúm
Vinstri Grænna.

Ef eitthvað er spilling þá er þetta spilling hjá VG.

GHS
02.01 2009 kl.00:33

Sammála þér Heiðdís öll spilling, líka ef hún er hjá VG.

Rúnar
02.01 2009 kl.00:51

Athyglisvert. Var að lesa á bloggi Sóleyjar Tómasdóttur varaborgarfulltrúa Vinstri Grænna að hún hvetur fólk til að taka þátt í mótmælum og krefjast kosninga.

Þarna opinberar hún sig all svakalega. Það eru sem sagt Vinstri Grænir sem hafa mestan hag af mótmælunum.

Gallinn er bara sá að þetta hefur farið dult gagnvart fólki. Þeir hafa smalað í mótmælin undir fölsku flaggi og sagt að almenningur sé að mótmæla.

Þetta er sem sagt kosningafundir Vinstri Grænna.

Djöfull er þetta lið slælegt og ómerkilegt.

Lovísa
02.01 2009 kl.00:55

Rúnar.

Af hverju heldur þú að Steingrímur Sigfússon hafi ekki fordæmt þessi mótmæli?

Það er augljóst, hann vill bara fá völdin alveg sama hvað það kostar.

Ég hef ógeð á þessum blekkingarleik Vinstri Grænna.

Nú hafa þeir sýnt sitt rétta andlit. Valdagræðgin er að fara með þá. Þeim er drullusama um okkur venjulegt fólk

SallaRólegur
02.01 2009 kl.03:00

Hér er verið að tala um kryddsíldina og hvernig það endaði.

Upp hafa komið spurningar hversvegna stj+ornvöld séu svona valdlaus og aðgerðarlítil.

Fram hafa komið nokkrar ástæður.

Eg tel höfuðástæðuna vera hræðslu stjórnvalda við að framkvæma.

‘Astæðan er margþætt:

1 Almennoingsálitið í landinu var með útrásarvíkingunum og þeirra liði.
2 Fjölmiðlavaldið var með útrásarvíkingunum.
3 Stjórnvöld voru mjög skift í afstöðu til útrásarvíkinganna.
4Samfylking taldi nánast guðlast að snerta við þeim.
5 Forsetinn beitti valdi sínu í þágu Baugs sem gerði stjórnvöld máttlaus.

Leifur þorleifs
02.01 2009 kl.05:06

Ég bar upp einfalda spurningu Fjóla mín og þú ruglar eitthvað út í loftið.

En ég las á milli línanna og fékk mitt svar,

Takk fyrir Fjóla mín ;)

baddi
02.01 2009 kl.08:43

ég vísa allri ábyrgð á því að mótmælin séu komin í þann farveg sem raun ber vitni beint til ríkisstjórnarinnar,hún er ekkert að gera,enginn dreginn til ábyrgðar,hvorki stjórnmálamenn né bankaglæpahyskið og allir í sínum stöðum ennþá,engin rannsókn á neinu fyrr en pakkið er búið að eyða öllum gögnum og heyrðuð þið ræðuna hjá Geir á gamlárskvöld,megnið af því bein og klár lýgi,hann sagði t.d. að ríkisstjórnin hefði ekkert getað gert til að hindra hrun bankanna,en það er helber lygi þar sem búið var að vara ríkisstjórnina við í meira en 1 ár,en þau hlustuðu ekki og í fréttaannálum í gær voru þau skötuhjá Geir og Ingibjörg alveg fram í september að telja okkur trú um að allt væri í stakasta lagi,viljum við hafa svona vitleysinga í forsvari fyrir okkur.
gott hjá þeim,sem máluðu myndir af Geir og Björgvini Thor með fæðingar-og dánarári,gott hjá þeim.

það er mjög leitt,að saklausir skulu hafa slasast við Hótel Borg,en svona mótmæli eru þau sem koma skulu á þessu ári og ég styð mótmælendur heilshugar og RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS ber alla ábyrgð á þeim með sinnuleysi og aðgerðarleysi sínu,enda gjörspillt.

Áfram hörð mótmæli,þó svo þau kosti meiðsli,það er óhjákvæmilegt,ráðumst inn í allar eftirlitsstofnanir og banka landsins og hendum pakkinu út og ekki síst ríkisstjórnarpakkið,sem hefur mest af öllum brugðist

Gunnar
02.01 2009 kl.09:02

Maður veit ekkert hvar maður hefur þessa síðu... lélegur og um sumt hreinlega rangur fréttaflutningur af mótmælunum á hótel borg, og ótrúlegustu hlutir strokaðir út í kommentakerfinu hérna..!

skoðun
02.01 2009 kl.10:09

Var ekki á staðnum, en af myndböndum kemur greinilega í ljós hverjir , af þessum tveimur hópum, lögregla vs mótmælendur, það voru sem beittu ofbeldi. Lögreglan er búin að gleyma hlutverki sínu, hún á að þjóna almenningi ekki beita hann ofbeldi!!!! Fékk tár í augun og um mig hríslaðist hrollur við að sjá mitt fólk beitt ofbeldi. Minnum lögregluna á hlutverk sitt!!!
Þeir sem kalla mótmælendur skríl eru stuðningsmenn spillingar og græðgi!!! Gleypa hugsunarlaust í sig orð stjórnmálaleiðtoga og fjárglæpamanna sem hrækt hafa þessu hugtaki yfir arðrændan almenning. Og því miður virðist það vera svo að þessi heilaþvottur hafi náð til þeirra ofbeldisfullu lögreglumanna sem þarna voru á staðnum.

baddi
02.01 2009 kl.10:26

´skoðun.
þetta er rétt hjá þér,það er nefnilega til fullt af ofbeldisfullum lögreglumönnum,þeir eru ekki allir eins og sómamaðurinn Geir Jón Þórisson og við höldum áfram okkar striki að mótmæla,ef ekki með góðu,þá með illu,þetta spillingarhyski í stjórnsýslunni verður að stöðva áður en það gengur að þjóðinni dauðri,eða eru Geir og co.ásamt glæpamönnunum kannski að plotta með að selja landið,ég mundi alveg trúa þeim til þess,þeir eru svo siðblindir og spilltir,að þeim er trúandi til alls,þar sem þeir eru nú þegar búnir að kollsteypa þjóðinni og ekki er hún betri þessi djöfuls verkalýðshreyfing,það heyrist ekki múkk í henni,ena báðum megin við borðiðog meira hinum megin í lífeyrissj’oðasukkinu með atvinnurekendum
farið til fjandans menn eins og Gylfi Arnbjörnsson og Gunnar Páll Pálsson,losum okkur við aaalt gamla draslið,í verkalýðshreyfingunni,bönkunum,ríkisstjórn,Seðlabanka,fme og víðar.

fáum alveg nýtt fólk í allar stöður,sendum útrásarvíkingana til helvítis ogÁrna Matt. í fangelsi,djöfuls glæpahundinn

stefanía
05.01 2009 kl.22:49

fáránlegt ! :O

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar