Innlent - miðvikudagur - 4.2 2009 - 12:03

Jón Ásgeir: Pungspark. Davíð setti sem skilyrði fyrir starfslokum að Baugur færi fyrst í þrot

jonasgeir3.jpgJón Ásgeir Jóhannesson,  starfandi stjórnarformaður Baugs, segir á Vísi.is að aðgerðir Landsbankans séu “spark í punginn”.

Í viðtali við RÚV í sagðist Jón Ásgeir hafa upplýsingar um að Davíð Oddsson hafi sett það sem skilyrði fyrir starfslokum í Seðlabankanum að Baugur færi fyrst í þrot.

“Þetta er pungspark frá Landsbankanum” segir Jón Ásgeir í viðtalinu við Vísi. “Það hefur það í för með sér að Bretar munu eignast nokkur af bestu fyrirtækjum í eigu Íslendinga á spottprís. Á meðan við ætlum að borga Icesave upp í topp þá gefum við á sama tíma Bretum fyrirtækin okkar. Ég er viss um að Philip Green dansar stríðsdans í stofunni heima hjá sér núna því hann á eftir að eignast stóran hluta af fyrirtækjum okkar nær ókeypis,” segir Jón Ásgeir.

Hann segist ekki vita ástæðu Landsbankans fyrir þessum aðgerðum en vísar á skilanefnd Sjálfstæðisflokksins og segir það varla tilviljun að þetta komi á sama tíma og Davíð Oddssyni sé sagt upp í Seðlabankanum.

Forstjórar fyrirtækja Baugs í Bretlandi hafi haft samband við sig og verið furðu lostnir.Jón Ásgeir segir um framtíð Baugs að nú verði leitað allra leiða til að bjarga því sem bjargað verður. Þessar aðgerðir muni ekki hafa áhrif á rekstur Haga eða 365 þar sem þau séu ekki í eigu Baugs.

Í viðtali við RÚV segir Jón Ásgeir að ákvörðun Landsbankans um að slíta viðræðum um endurskipulagningu og björgun fyrirtækisins komi sér á óvart.

Þá kveðst hann hafa upplýsingar um að Davíð Oddsson hafi sett það sem skilyrði fyrir starfslokum í Seðlabankanum að Baugur færi fyrst í þrot.

Baugur hafi lagt fram áætlun um að greiða allar skuldir og aðgerð Landsbankans sé fjandsamleg. 50 þúsund störf í Bretlandi hafi verið sett í uppnám.

111 ummæli

Rita ummæli

Dagbjartur
04.02 2009 kl.12:04

Vonum við ekki að þetta fari allt vel. Það þarf að koma þessum eignum í verð og greiða upp Icesave

RagnaB
04.02 2009 kl.12:04

Hanaslagurinn hafinn.

geir
04.02 2009 kl.12:06

hér er komið ágætis efni í nýja íslendingasögu. hvað hægt er að bjóða þjóðinni er alveg ótrúlegt. því fyrr sem bæði davíð og jón ásgeir yfirgefa sviðið því betra. þessir tveir eru ´toast´ eins og sagt er á ensku.

kristín anna
04.02 2009 kl.12:10

Nei nei Jón minn - ég skal taka þetta “ókeypis” - eða ertu ekki að meina að þetta fáist næstum ókeypis. Það fylgja þá væntanlega engar milljarða skuldir með sem þarf að borga er það?

Bankinn minn fær líka sumarbústaiðnn minn ókeypis. Hann ætlar að vísu að taka skitnar 75 millur með sem hvíla á honum en samt fær hann hann ókeypis - ekki satt?

Pétur
04.02 2009 kl.12:14

Ljótt að segja það en mér er slétt sama um þessi 50 þúsund störf í Bretlandi. Mér er hins vegar ekki sama um Icesave og eignir Landsbankans í Bretlandi sem ganga eiga upp í Icesave skuldina 700 milljarða!!!!!!! Er ekki Landsbankinn með þessu að setja Baug á hausinn og þá fara þessar eignir fyrir lítið?

ÓskarJ
04.02 2009 kl.12:14

Maðurinn er bilaður. Alltaf skal það vera öðrum að kenna en honum sjálfum. Hvernig ætli raunveruleg staða Baugs sé í dag. Nokkur hundruð milljarðar í mínus? Hann hefur örugglega verið að reyna að fá niðurfelldar skuldir upp á hundruði milljarða og verið neitað um það.

örn
04.02 2009 kl.12:15

hvernig ma þetta að vera.....er hægt að kenna Davíð um allar ófarir Jóns Ásgeirs?. Nú er meira að segja verið að reka Davíð svo ekki skyldi maður ætla að hann hafi sama valdaaðgang...því það er nú svo að menn vilja fjarlægjast þá sem eru að falla af toppnum.... Er þetta heldur mikil einföldun og afneitun af hálfu Jóns. Hann er eins og óþægur krakki..ef hann fær ekki það sem hann vill (meiri lán frá LÍ ) þá stappar hann niður fæti og kennir öðrum um...og voða gott að benda allt af á Davíð því þar er nú sá sem öllum er í nöp við og benda á.

Jakob Þór Haraldsson
04.02 2009 kl.12:17

Rétt að Jón Ásgeir og hann TUSKUBÚÐIR hafa svo sannarlega sparkað harkalega í klofið á íslensku & þýsku þjóðinni sem lánað hefur óvart í þessar draumaborgir (svikamyllur) Jóns í gegnum bankastarfsmenn sem gætu ekki rekið “fish & chips söluturna” og segja má að þessi LÁN séu í raun að mestu töpuð. Auðvitað kemur svo þessi Philip Green og kaupir þetta á slik (til þess var leikurinn gerður frá upphafi) og fyrst þá er hægt að láta þessa búðir skila hagnaði. Svona svipað og þegar einhvern kaupir hótel sem er að fara í 5 sinn á hausinn, auðvitað kemur að því að kaupverð er svo lágt að hægt sé að reka fyrirtækið með hagnað.

Ég vorkenni hinsvegar ROSALEGA eiginkonu Jóns Ásgeirs ef eignir hennar eru að hvera í hafið bara af því að eiginmaður hennar er “spilafíkil”. Einnig er sorglegt að sjá að eignir þeirra í t.d. ICELAND verslunarkeðjunni er að tapast. Svona er það þegar fólk vil eignast heiminn með skuldsetum yfirtökum, slíkar spilaborgir ganga einfaldlega ekki upp þegar á reynir.

Jón Ásgeir er eflaust HEIMSMEISTARI í því “að blekkja, ljúga & svíkja út lán” bæði hérlendis og þó sérstaklega erlendis. Enda er bara alltaf að koma meira og meira í ljós hversu ÓHÆFIR stjórnendur bankanna hafa verið, bæði hérlendis & erlendis. Svo lendir SKELURINN (tapið) í raun á þjóðunum þegar ólíka ríkisstjórnir þurfa að setja MILLJARÐA inn í bankakerfið til að reyna að halda þeim uppi.

Ég helda að ótrúlega margir einstaklingar sem stóðu í þessari HRINGRÁS eigi eftir að fara í sögubækurnar sem ótrúlegir SKÍTHÆLAR, skömm þeirra er mikil og eðli þeirra skítlegt, já skítapakk - því miður.

Svalan
04.02 2009 kl.12:18

Er ekki komið að því að frysta eignir Baugs í Bretlandi?

hilmar ö
04.02 2009 kl.12:20

eg legg til að jón ásgeir verði settur i gæsluvarðhald

Konni
04.02 2009 kl.12:20

Ég skora á Jón Ásgeir að skýra út hvernig aðkoma Davíðs Oddssonar er að þessu máli. Ef hann gerir það ekki á trúverðugan hátt, ætti hann að skammast sín og líta í eigin barm.

Vondur
04.02 2009 kl.12:23

Ef Jón Ásgeir væri tekinn dópaður á bílnum þá væri það líka Dabba að kenna þar sem hann hefði hringt í Halla Jó. Alls ekki vegna þess að Jón Ásgeir var dópaður að keyra; RUGLUDALLUR

Jón Ágúst
04.02 2009 kl.12:26

Nei Jón Ásgeir þetta er ekki pungspark, en ég skal alveg leyfa þér að finna tilfinning það er.

Og þú ert ennþá meiri hálfviti en ég hélt ef þú heldur að þessi bestu fyrirtæki sem Íslendingar eiga , eigi eftir að standa lengi.

Woolworth og Virgin Megastore eru að fara á hausinn og ef það hefur farið eitthvað framhjá þér þarna í turninum hvíta þá er öll verslun að dragast saman.

Sjáðu sóma þinn í að leyfa þessu að deyja , og helst Gaum og Haga líka, og farðu nú að fá þér almennilega vinnu einhvers staðar.

Heiða
04.02 2009 kl.12:28

Jón Ásgeir má eiga það að hann er orðin geðveikur af þessu kók....þambi sínu

SJ
04.02 2009 kl.12:28

Þá kveðst hann hafa upplýsingar um að Davíð Oddsson hafi sett það sem skilyrði fyrir starfslokum í Seðlabankanum að Baugur færi fyrst í þrot.
Er Jón Ásgeir endanlega orðinn geðveikur?

Soffía
04.02 2009 kl.12:30

Hvað er að þessum manni? Hann getur engum um kennt nema sjálfum sér hvað þetta varðar. Að auki er hann búinn að koma duglega að því að knésetja íslensku bankana og rýra íslenskt viðskiptalíf. Góði Jón Ásgeir - líttu í eigin barm og hættu þessu grenji framan í okkur. Þetta virkar kannski á einhverja gaura á hitabeltiseyjum þar sem þú ert með félögin þín en ekki á okkur hér í frostinu!

Púki
04.02 2009 kl.12:30

Þú skilur eftir þig sviðna jörð hér og átt þinn þátt í því atvinnuleysi sem er á Islandi.Hver trúir því að þú hafir áhyggjur af 5o þúsund launþegum erlendis?

Grímur
04.02 2009 kl.12:33

Er ekki allt sem miður fer og farið hefur miður Davíð að kenna
Því trúa ansi margir íslendingar - meðal annars núverandi forsætisráðherra.

Guðmundur M.
04.02 2009 kl.12:33

Vill einhver góðhjartaður biðja Jón Ásgeir vinsamlegast að halda sig frá fjölmiðlum eða bara þjóðinni komplett? Hver kærir sig eiginlega um skoðanir og ráðleggingar frá þessum manni? Jón Ásgeir hefur siglt nær öllu sem hann hefur nokkurn tíman komið nálagt í strand og tjónið er gríðarlegt. Maðurinn skuldar um 1000 miljarða (já eitt þúsund miljarða) og er ekki borgunarmaður fyrir neinu.

En auðvitað er þetta allt einhverjum öðrum að kenna,hann sjálfur ber enga ábyrgð á ástandinu í sínum fyrirtækjum. Hversu lengi á að reyna okkur með þessar sorglegu samsæriskenningar? Heldur Jón Ásgeir virkilega að þjóðin kaupi þetta bull í honum endalaust?

Persónulega vona ég að íslensk þjóð þurfi aldrei aftur að kynnast slíkum auðdónum sem hér hafa vaðið uppi og logið upp snilld sína í eigin fjölmiðlum. Nú er löngu orðið mikið meira en nóg.

Ekki meir Jón,gerðu það!

BS
04.02 2009 kl.12:33

Epískt.

Púki
04.02 2009 kl.12:35

Þú þarft að fá alvöru pungspark á hverjum degi.. ég er þó ekki viss um að það nái til heilans.

Diljá
04.02 2009 kl.12:36

Gúbbífiskarnir dauðir í búrinu þegar ég vaknaði í morgun. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum úr innsta hring Frímúrarareglunnar stendur Davíð á bak við það!

Þetta er samsæri og kemur því ekkert við að ég hef hvorki skipt um vatn á þeim né gefið þeim að éta í langan tíma.

Innlegg
04.02 2009 kl.12:37

“Á meðan við ætlum að borga Icesave upp í topp þá gefum við á sama tíma Bretum fyrirtækin okkar”

hahahahahaaaa ætlaði hann að vera með í að borga icesave?:)
Hann borgar að því er mér skilst ekki einu sinni skatta hérna.

Manni er farið að líða eins og almúganum í Argentínu sem brenndi niður hús auðmanna og sagði “fyrst við fáum ekki peningana okkar þá fá þeir þá ekki heldur”.

Því mér er næstum orðið slétt sama þó Bretar, eða bara allir aðrir en kvíslingarnir, eignist allt þetta drasl fyrir ekki neitt. Sárt fyrir þjóðina en má ekki líta á það þannig að þá sé fyrst “einhvers konar” réttlæti fullnægt.

Í byrjun var það í huga margra kristalstært að lögum yrði komið hið snarasta yfir þjóðarræningjana, þýfinu komið heim og þeir sóttir til saka.
En svo leið og beið...einföldustu hlutir gerðir að flóknum...farið hring eftir hring...

Skoðið viðtalið við Andrés geðlækni á silfrinu á sunnudag www.ruv.is: borgum ekki icesave heldur látum Bretana sjálfa sækja peningana sína.
.
Sakna gagnrýni á Björgúlfsfeðga! Eingöngu fókuserað á spillinguna hjá JÁJ og co.

KVERÚLANTINN
04.02 2009 kl.12:39

Hvað ef þetta er nú rétt hjá JAJ, vill einhver svara því?.

Hvað ef það er rétt að eignir Íslendinga eru að gufa upp vegna persónulegra hefnda DO sem er ekki lengur sjálfrátt í hefndarþorsta sínum gagnvart JAJ........á þá þjóðin að gjalda fyrir þá hefnd.?
Er ekki Davíð búiinn að gera nóg af sér nú þegar?

Við hljótum að heimta að Jóhanna og Steingrímur finni útúr þessu STRAX nú þegar þau eru komin með völdin í hendurnar og geta beitt þeim til könnunar á málinu.

SH
04.02 2009 kl.12:39

Ef þú fékkst “pungspark” frá Landsbankanum, fékk þá ekki þjóð þín “rothögg” frá þér og þínum?

Einar Guðjónsson
04.02 2009 kl.12:40

Taka ekki bankarnir þetta bara yfir og selja síðan ef gott verð fæst ?? Held að
Jón Ásgeir sé haldinn miklum ranghugmyndum að halda þessu fram um Davíð og Baugsgjaldþrotið.Er það ekki bara Baugur sjálfur sem
fer á hausinn alveg óháð því hvað Davíð er að gera í það og það sinn.
Svo má ALDREI GLEYMAST að Davíð er einn aðalhöfundur þess að Baugur varð til og eigendur þess urðu á tímabili vel efnaðir.Er það ekki bara Skútuvogurinn næst hjá Jóni ?? og svo aftur eignabóla þegar rofar til með lánsfjármöguleika ??
kv

Púki
04.02 2009 kl.12:41

Sammála ...Bjöggana upp á borð.

SMD
04.02 2009 kl.12:41

Ef þetta litla Gerpi sem kallar sig Jón Ásgeir þykist vera með pung þá segi ég nú bara

Show some BALLS, mættu í viðtöl ef þú þorir

akkur
04.02 2009 kl.12:42

Jón Ásgeir þarf að leita sér hjálpar.

Ekki hjá bönkunum heldur geðlækni...

SJ
04.02 2009 kl.12:42

Kverkúlantinn ég trúi því að Davíð beri hag íslendinga meir í brjósti en JAJ nokkurntíman. Þetta comment frá JAJ er eins fjarstæðukennt og það gæti orðið. Tek það fram að ég hef engar sérstakar mætur á DO og hefði viljað að hann væri löngu farinn úr Seðlabankanum.

Kristinn
04.02 2009 kl.12:44

Hvað þarf þjoðin að gjalda fyrir að þessum tveimur mönnum líkar svona illa við hvorn annan,
ég er farinn að halda að þessir 2 gaurar séu hrifnir af hvor öðrum og annar þeirra hafi haldið fram hja hinum.
Mar er gjörsamlega búinn að fá nóg af því að borga fyrir þetta love hate relationship. Fáið ykkur herbergi saman og klárið þetta í eitt skipti fyrir öll.

Jói
04.02 2009 kl.12:45

Þetta er gamli söngurinn - allt Sjálfstæðisflokknum að kenna. Það var Sjálfstæðisflokknum að kenna að FL-group tapaði 60 milljörðum. Það Sjálfstæðisflokknum að kenna að Glitnir fór í þrot. En Jón Ásgeir og fjölskylda eru bara fórnarlömb. - ekki satt ?

GSS
04.02 2009 kl.12:46

Alltaf sama tuggan. Það er slöttólfurinn Davíð sem bruggar launráðin. Væri nú ekki nær fyrir Jón Ásgeir að líta aðeins í eigin barm. Það skyldi þó ekki vera, að rekstur Baugs í Bretlandi sé í lamasessi vegna óhóflegrar skuldsetningar og gleypugangs. Íslenskur banki getur ekki og á ekki við núverandi aðstæður að ausa lánsfé í vafasama spilaborg í Bretlandi. Jón Ásgeir verður einfaldlega að bíta í það súra epli, að hann er kominn á endastöð. Bretlandsævintýrið er á enda, útrásarævintýrið gekk ekki upp. Það er komið á daginn að snilld hans í rekstri er orðum aukin. Og stór væri Jón Ásgeir í sniðum ef hann hefði eftirfarandi í heiðri: Það er lítilmannlegt að kenna öðrum um ófarir sínar.

XXX
04.02 2009 kl.12:47

You have been watching another episode of Guiding Light

Íslendingur
04.02 2009 kl.12:47

Jón Ásgeir er greinilega illa siðblindur og veikur maður sem á alls ekki að vera fjárráða hvað þá sjálfráða enda hefur þegar unnið vinum sínum, sem nú eru allir gjaldþrota eða æru sviptir, varanlegt tjón.

Það sem verra er að Jón Asgeir hefur einnig stórskaðað Íslenska þjóð sem hann hefur nú flúið að heigulsmanna hætti.

SETJIÐ HANN Í JÁRN, YFIRHEYRIÐ,DÆMIÐ OG FANGELSIÐ.

Nýi Dexter
04.02 2009 kl.12:48

Vera með punghlíf.


04.02 2009 kl.12:48

Davíð hefur engin völd til að setja svona skilyrði, ekki lengur.

baddi
04.02 2009 kl.12:50

Einhver á að taka sig til og setja auglýsingar í blöðin um að fólk versli ekki við Baugsfyrirtækin. Fólk á að fara eftir þeim. Það er rétta svarið eftir að þessir níðingar notfærðu sér auð sinn og aðstöðu til að hafa áhrif á Alþingiskosningarnar síðast m. a. þegar karlinn Jóhannes setti heilsíðuauglýsingar í blöðin daginn fyrir kjördag. Baugsfeðgar eiga ekkert annað skilið en tjöruna, fiðrið og ævilanga útlegð frá Íslandi. Þessir menn hafa eitrað þjóðfélagið og eyðilagt það.

SJ
04.02 2009 kl.12:50

XXX HA HA HA. Ég hugsaði það sama.

ag
04.02 2009 kl.12:51

já í upphafi skyldi endirinn skoða,

og hver skyldi hafa “smíðað” þetta frjálsa efnahagskerfi án eftirlits sem og hrynur nú meira og meira með degi hverjum ? og enn er langt niður á botninn eins og einhver hagfræðingurinn orðaði það í vikunni.

spyrjum að leikslokum á ca. miðri þessari öld !!!

robert
04.02 2009 kl.12:51

Öll skrif um Baldur Guðnason eða Jón Ásgeir hægðir þeirra eða önnur vandamál eiga betur við í sjúkradagbók geðdeildar en hér á eyjuni!

Íslendingur
04.02 2009 kl.12:55

EKKI VERSLA Í BÓNUS,HAGKAUP OG 10-11

Sveinbjörn
04.02 2009 kl.12:56

Ég er viss um að maðurinn vonast til að vakna einn morguninn, Bobby í sturtunni og síðustu 3 ár voru bara draumur, vondur draumur....

Innlegg
04.02 2009 kl.12:57

Davíð+JáJ
=”ekki benda á mig” m.a
=similar attration?

Sævar Helgason
04.02 2009 kl.13:06

Það er aðeins einn maður sem á alla sökina á hvernig er komið fyrir Baugi- þessi náungi er eigandi Baugs og heitir Jón Ásgeir Jóhannesson, Svo einfalt er málið. Útskipti á bankstjórum Seðlabanka Íslands er með öllu óskylt mál.
En þvi miður verður þjóðin að borga þetta ævintýri Jóns Ásgeirs mjög- mjög - dýru verði . Það getur tekið drjúgan toll af þjóðartekjunum næsta áratuginn.
Lítill kall, Jón Ásgeir, að kenna síðan öðrum um spilavítissukkið sem nú er á enda.

Jullarinn
04.02 2009 kl.13:06

Rikid ætti ad gera risa stora styttu af tessum snilling Joni Asgeiri og litla af David rett hja henni

Báran
04.02 2009 kl.13:11

Ég sem hélt að allir hötuðu Davíð...hann á ekki breik í Jón Ásgeir í þeim efnum. Farð´ úr bænum.

Jón Pálmar
04.02 2009 kl.13:14

Nei hva er kannski einhver fjöldapóstur í gangi hjá SUS-urum (kommentum á þessa frétt verndum foringjann)
HEIL DAVÍÐ HEIL DAVÍÐ!!!

joð
04.02 2009 kl.13:17

Svo er það spurningin hvort að brottför Tryggva úr Landsbankanum og afsögn fyrrum Viðskipta-og bankamálaráðherra Björgvins G hafi spilað eitthvað inn í þessa ákvörðun skilanefndarinnar. Nýr Viðskiptaráðherra ber ábyrgð á nefndinni og afar ólíklegt að Jón Ásgeir hafi jafna góðan aðgang að honum og hinum tveim flóttamönnunum.

En auðvitað er þetta Dabba fant að kenna.

snorri
04.02 2009 kl.13:17

Ekki dettur mér í hug að verja JÁJ, en það verður forvitnilegt að sjá viðbrögð fólks þegar bankarnir stoppa önnur fyrirtæki sem þeir halda gangandi þrátt fyrir að vera fáránlega gjaldþroga: Morgunblaðið, Hekla, B&L, Dreifing, ofl, ofl, ofl.

Heiða
04.02 2009 kl.13:20

Já já, og er eitthvað við það að athuga að Baugur fari í þrot,
Er ekki verið að láta fjölskyldur hér á landi greiða fyrir Jón Ásgeir og aðra kumpána hans.
Jón Ásgeir Baugur á að fara í þrot.
þið hafið aldrei verið borgunarmenn fyrir þessum peningum og það dæmi gegnur ekki upp að almenningur eigi að borga brúsann en gefa ykkur fyrirtækin ykkar aftur skuldlaus.

Bæ bæ Jón Ásgeir.

akkur
04.02 2009 kl.13:23

Raunin er sú að íslenska þjóðin hefur stutt við bakið á JÁJ í tuskuverslanauppbyggingunni í Bretlandi í gegnum hagstæð lánakjör Landsbankans sem voru jú með ríkisábyrgð (Icesave!!).

Þökk sé JÁJ, landsbankastjórnendum og eftirlitsaðilum.

JÁJ ræður þar að auki 55-60% af matvörumarkaði landsins, sem hlýtur að þýða að 55-60% landsmanna verslar matvöru hjá JÁJ.
Stór hluti þessa fólks telur sig vera að spara en á sama tíma er atvinna þess í hættu og fólkið þarf að borga hærri skatta til að greiða Icesave - Þökk sé JÁJ.

Er það kannski rétt sem sumir segja:

Fólk er fífl!

s.f.
04.02 2009 kl.13:23

mikið rosalega vælir þessi aumingi mikið.. þetta er frekar einfalt dæmi, annað hvort var Baugur fjármagnaður á ný eða allir hinir sem voru hjá Landsbankanum... Jón ásgeir, vinsamlegast haltu kjafti.

BS
04.02 2009 kl.13:37

Jón Pálmar: Hvernig er það að sjá heiminn í svarthvítu? Ég held að flestir Íslendingar séu löngu komnir á þá skoðun að það er enginn góður gæji í þessari sápuóperudeilu Davíðs og Jóns Ásgeirs. Þeir tilheyra báðir fortíðinni og þurfa að hverfa af sviðinu ef það á að byggjast upp heilbrigt samfélag hérna.

Örn
04.02 2009 kl.13:39

“Davíð Oddsson hafi sett það sem skilyrði fyrir starfslokum í Seðlabankanum að Baugur færi fyrst í þrot”
Því miður góðir landsmenn þarna fáum við en einn reikninginn frá okkar spillta Alþingi. Til hamingju Jóhanna nú skil ég af hverju þú vildir ekki upplýsa það sem ykkur Davíð fór á milli þegar þú hringdir í hann í vikunni. Stjórnun landsins er ekki einkamál þitt og Davíðs.

Þórður Runólfsson
04.02 2009 kl.13:39

Jón Ásgeir og Dabbi ætla í Listaháskólann í haust. Þeir seigja það betra en að vera atvinnulausir enda séu þeir gættir listrænum hæfileikum hver á sínu sviði.

Karlfauskur
04.02 2009 kl.13:40

Það breytist ekkert á Íslandi, það er sorglegt

hilmar ö
04.02 2009 kl.13:45

ég ætla bara að vona að fólk sjái i gegnum þessa vitleysu í honum jón ásgeiri

joi
04.02 2009 kl.13:46

Var þá Icesave Davíð að kenna? Voru það ekki frekar bankastjórarnir í Glitni, KB og Landsbankanum sem vissu ekki hvað þeir voru að gera? Lánuðu tvist og bast með engum tryggingum, töpuðu þessu öllu.

SS
04.02 2009 kl.13:48

Gefum Baugi Gaum. Nei, gefum Gaumi gaum. Á Baugur nokkuð hér á landi? Á Gaumur ekki allt draslið núna?

Jói
04.02 2009 kl.13:56

Legg til að við landsmenn allir hætti alfarið að versla við 365 og Haga. Knésetjum þessa andskota......nógan skaða hafa þeir gert okkur........nú er lag.

Jaxlinn
04.02 2009 kl.13:59

Vona að sem flestir “sparki í punginn” á honum.

Hann ber mikla ábyrgð á því hvernig komið er í fjármálakerfi landsins og hefur blóðmjólkað fjármálastofnanir hér í gegnum fyrirtæki sín og leppa.

Hann virðist ekki stunda neina sjálfsgagnrýni heldur telur hann að þetta sé allt Davíð að kenna.

Þessi drengur er veruleikafirrtur. Vonandi fer hann alfarið úr landi og kemur aldrei aftur. RIP

Réttlæti
04.02 2009 kl.14:01

Það er skondið að lesa þetta, því þegar “vel” gengur finnst honum æðislegt að baða sig í dýrðarljómanum yfir því hvað hann er ofboðslega klár, en fljótur að líta út um gluggann og leita að sökudólgum þegar ílla árar!

Hann lýsir því yfir að Sjálfstæðisflokkurinn og Davíð séu ekki að gera honum sérgreiða!

Hverju var hann eiginlega vanur og frá hvaða stjórnmálamönnum þykist hann vera að fá svona upplýsingar?? Þetta gerist furðu fljótt eftir að Björgvin G. Sigurðsson og Tryggvi Jóns fara í burtu.

Það er kannski áhugaverð pæling, í ljósi þess að Davíð neitaði að taka við mútum Jóns Ásgeirs á sínum tíma, hverjum öðrum var boðið sambærilegt? Og tóku slíku gylliboði

Árni
04.02 2009 kl.14:08

Hann er 10.000x sinnum sekari á þessari kreppu heldur en Davið, Davíð gerði fáein mistök, Jón Ásgeir er einn af toppunum í þessari glæpastarfsemi. Hans leið Á að liggja beint í fangelsi.

Helgi
04.02 2009 kl.14:18

Ég spyr hverjar eru staðreyndir málsins. Baugur fer í greiðslustöðvun að beiðni Gamla Landsbankans vegna skýrslu frá Price Water & Coopers. Ekkert hefur komið fram að um vanskil sé að ræða hjá Baugi á greiðslu afborgana af lánum. Baugur hefur farið fram á lengingu lána og er ástæða þess líklega dræmari sala í UK. Ekkert óeðlilegt við það.

Öll verslunarfyrirtæki í heiminum eiga við sama vanda að stríða svo að Baugur er ekki einn á báti.

Ég gef lítið fyrir þennan Davíðs link, en tel miklu frekar að ástæðan sé að kröfuhafar gamla Landsbankans er farið að lengja í greiðslur og vilja því komast yfir eignir Baugs sem greiðslu. Það væri líklega góður díll fyrir þá að gjaldfella lánin vegna væntalegra vanefnda ( þekkti vinnubrögð hér á landi ) og geta þannig hagnast á sölu þessara fyrirtækja í framtíðinni, td eins og verslunarkeðjan Iceland. Jón Ásgeir sagðu nú í haust að sá sem á skuldirnar á Baug um það snýst málið!!!

Pétur
04.02 2009 kl.14:29

Helgi. Kröfuhafar gamla Landsbankans geta ekki gert neinar kröfur um að fá greiðslur. Mundu að gamli Landsbankinn er í margra ára greiðslustöðvun. Skilanefndin er væntanlega að hugsa um að safna eignum upp í Icesave skuldina. En niðurstaðan af þessari aðgerð sýnist mér vera sú að þeir krækja sér í einn útlim en það verður til þess að sjúklingurinn deyr.

GG
04.02 2009 kl.14:31

Eg hef mestar áhyggjur af Icesave. Núna er passað að beina athyglinni að Jóni Ásgeiri svo við kjánarnir getum rifið hann niður... En hvar eru Björgólfarnir sem bera ábyrð á Icesave? Af hverju er ekkert verið að tala um þá? Ef við værum ekki með Icesave á bakinu hvernig liti dæmið þá út? Og hvar eru peningarnir?

Held við ættum að beina sjónum okkar í þá áttina til tilbreytingar.Svo eru sumir að hvetja til þess að fólk hætti að versla í Bónus. Fólk virðist ekki átta sig á því að það eru ekki allir sem eiga bíl. Bónus er eina búðin í hverfinu mínu. Þar býr margt gamalt fólk sem er bíllaust. Svona hvatning er einfaldlega kjánaleg.

joð
04.02 2009 kl.14:32

Guðmundur M hefur á réttu að standa. Ekkert frekar en geðþótta ráðningar stjórmálamanna eiga að líðast þá ganga ekki heldur að þeir geti rekið þá sem þeir telja ekki bjóðandi.

Hér er líka um fleiri en Davíð að ræða.

Það sem kemur manni á óvart á öllum þessum plotttíma Samfylkingarinnar höfðu þau ekki gert neinar áætanir um hvernig að málum yrði staðið. Skrifað bréf um einhverjar samningarviðræður og bankastjórarnir eiga að svara fyrir fimmtudag. Davíð hringir í Jóhönnu og sagði ekki neitt. Hún lekur bréfinu í fjölmiðla til að sýna og sanna að hún sé að vinna í málinu.

Hún og Samfylkingin sagði það yrði þeirra fyrsta verk að reka Davíð og hina bankastjórana.

Af hverju gerir hún það ekki? Af hverju heimtar fólk hina 2 ekki strax í burtu líka? Hvað með svo her hagfræðinga, viðskiptafræðinga, lögmanna os.frv. sem hafa lagt þung lóð á vogarskálar meints rugls?

Strax er Jóhanna og co. komin með málið í steypu og það á að vera vandamál eirra sem á að reka hvernig það á að fara fram.

Af hverju ættu þeir að leggja sig fram í þessum pólitíska farsa til að Samfylkingarliðið líti betur út?

Ég er nokk viss um að Davíð og aðrir Seðlabankamenn eru á allt annari skoðun en Samfylkingin og Jón Ásgeir hverjir bera ábyrgðina á hörmungunum.

Vonandi tekur brottför þrímenninganna ekki of langan tíma. Það verður afar fróðlegt að heyra þeirra hlið mála.

Mæja
04.02 2009 kl.14:33

Bjöggarnir eins og þið kallið þá halda sig til hlés enn Jón Ásgeir er alltaf vælandi hvað græðum við á því að halda uppi fyrirtækjum í Bretlandi??? leyfum honum að blæða . Og aumingja Davíð hvílíkur máttur sem hann hefur
eigum við bara ekki að halda í hann áfram hann er eins og grýla á Jón Ásgeir

Guðrún
04.02 2009 kl.14:39

Ég hef nokkuð áræðanlega upplýsingar um það að Jón Ásgeir og Davíð hafi gaman af því að taka hvorn annan.

Þeir ættu að fá sjónvarpsþátt í anda Tekinn (með audda).

Þeir eru fullir af hugmyndum og þeim vantar báðum vinnu.

þór 2
04.02 2009 kl.14:50

baddi 1250 hitti naglann á höfuðið þegar hann segir ” baugsliðar hafa eitrað þjóðfélagið” en þetta er kanski það versta sem þeir hafa gert með lygum sínum og dylgjum. Skítt með peningana

joð
04.02 2009 kl.14:58

Hvers vegna var “snillingurinn” ekki með Baug og þessar erlendu verslunarkeðjur í bankaviðskiptum þar?

Hvað vissu íslenskir “bankasnillingarnir” um bresk viðskipti og verslun umfram kollega þeirra þar?

Vissi Jón Ásgeir ekki að hann ætti við Davíð að eiga hérlendis?

Var rekstur þessara fyrirtækja þess eðlis að þarlendar bankastofnanir sáu hvert stefndi og vildu ekki koma nálægt vitleysunni?

Mikið óskaplega er ég þreyttur á að þessir útrásarsveppir nota orðið “fyrirtæki í eigu Íslendinga” eins og í þessu tilfelli þegar það þarf á einhverri samúð að halda.

Man ekki eftir að fyrirtækin hafi verið í eigu “Íslendinga” þegar gengi þeirra átti að vera gott.

Donna
04.02 2009 kl.15:03

Ég get ekki annað en glott út í annað. Að horfa á þessa drengi, er eins og að horfa að krakka sem vantar sjúklega athygli, þannig haga þessir drengir sér, eru í það fyrsta athyglissjúkir. Í það næsta eru þeir öryggislausir og næsta, sjúklega veruleikafyrrtir! Bara að líta á þeirra viðskipti við Lýbíu!!! Alla Malla! Bara Sick!

Svo vælir Jón Ásgeir, Íslendingar að missa tökin á öllum þessum fyrirtækjum í Bretlandi! Halló, hvaða íslendinga erum við að tala um, Jón og Jón og Jón Ásgeir og Jón og Jón og Jóhannes (kannske) og Jón. Ég þekki engan íslending sem er kenndur við BG í Bretlandi!

Ef einhver er betur upplýstur en ég þá endilega smella á mig smell!

Eiður
04.02 2009 kl.15:11

Þetta er ótrúlegt hvað menn geta látið út úr sér eins og Jón Ásgeir gerir, eru engin takmörk fyrir því hvað menn geta sagt með því að segja “hef það eftir áreiðanlegum heimildum”, má segja allt ef maður tekur það fram,, ef svo er þá væri hægt að segja svo margt um þá feðga jón og jóa sem kæmi þeim og þeirra nánustu vikrilega illa, ég vona þó að enginn sé svo illa innrættur.... samanber JÁ

Gummi
04.02 2009 kl.15:14

haltu kjafti JÁ, vældu annars staðar en á Íslandi, það eru allir komnir með nóg af þér!

Halli ríki
04.02 2009 kl.15:24

Ég veit fyrir víst að DO hafi einnig sett sem skilyrði að hvalveiðar yrðu aftur bannaðar, sett á bjórbann, ekkert sjónvarp á fimmtudögum, engar hestaferðir á Tjörninni og að herinn komi aftur og að Bush verði aftur forseti í USA og að Ísland leysi deilu araba og Ísraelsmanna og að Dalai Lama verði gerður að heiðursborgar á Selfossi og að Steini Páls fái ALDREI að skrifa aftur í Moggann. Það voru einhver fleiri skilyrði sem ég heyrði ekki.
Mig grunar að DO ætli að opna nýja keðju ódýrra matvöruversnana hér á landi og í UK. Óli og Dorritt eru öryugglega með í plottinu.
Er einhver hættur að taka lyfin sín?

Guðmundur M.
04.02 2009 kl.15:48

Gleymum því ekki kæru vinir að Jón Ásgeir fékk útflutningsverðlaun frá forseta íslands,þar var Baugi þakkað fyrir eitthvað sem ekkert var. Reyndar fékk KB banki sömu verðlaun stuttu áður þar sem þeim var þakkað fyrir hina snilldar útfærðu útrás,kjark og þor.

Hvernig væri nú ef forseti þjóðarinnar,hurðaopnari fjárglæframanna og klappstýra auðdóna, tæki sig til og segði af sér?

Og meðan ég man,sér ekkert fyrir endann á allsherjarverkfalli mótmælenda? Hversu lengi eiga þeir að sitja aðgerðalausir?

veritas
04.02 2009 kl.15:55

Húrra fyrir Gylfa Magnússyni og skilanefnd Landsbankans. Gylfi sagði að eignarhaldsfélögin ættu að fara í gjaldþrot. Kannski er von í þessari nýju ríkisstjórn eftir allt saman þó ég hafi litla trú á henni.

Þessi aðgerð er ekkert annað en eignafrysting.
Landsbankinn getur síðan ráðstafað þessum eignum að vild og selt upp í kröfurnar. Formaður skilanefndar segir að greiðslustöðvunin geti varað árum saman áður en eignir verða seldar. Ég treysti skilanefndinni betur til að hafa forræði yfir þessum eignum en JÁJ sem var ekkert að hugsa um neitt annað en að halda geðveikinni gangandi.

Maðurinn er gjörsamlega veruleikafirrtur. Og nú er þjóðin loksins búin að sjá í gegnum hann.

Jón Pálmar
04.02 2009 kl.16:09

BS. Minn heimur er langt frá því að vera svarthvítur. ég hef svosem ekki myndað mér skoðun á þessari greiðslustöðvun eða orskakir hennar ég bara tók eftir því að hér voru komnar 50 komment til varnaðar Davíð Oddsyni á innan við kl tíma. sem mér þykir heldur skrítin hlutföll um mann sem skrifað er um í erlendum blöðum sem hataðasta mann íslands..

OlafurPjé
04.02 2009 kl.16:11

Hættum að versla í Bónus, 365 og við verslunarveldi Jóns Ásgeirs, maðurinn er dóni og þetta viðtal í hádeginu var algjört grín, lærði þessi maður enga mannasiði í æsku?

Nú er fólk búið að koma nýjum Samfylkingarliði að í ríkisstjórn er þá ekki kominn tími til að leyfa Jóni ‘Asgeiri að finna fyrir því líka, hann finnur það best ef það minnkar í kassanum.

Halli ríki
04.02 2009 kl.16:13

nú man ég síðasta skilyriðið:

ÓRG verði gerður að 1. þingmanni Suðurlandskjördæmis fyrir X-D

HMV
04.02 2009 kl.16:13

En hvað verður þá um Ingibjörgu og börnin?

Richard Ulfarsson
04.02 2009 kl.16:17

Samfylkingin og aðrir Davíðshatarar eru auðvitað sannfærð um að þetta sé rétt hjá Jóni Ásgeiri og allt Davíð að kenna, einsog venjulega. En mér finnst þeir ættu að hugsa málin til enda.

Ef ríkisstjórnin hefur sett Baug í þrot til þess að uppfylla skilyrði Davíðs fyrir starfslokum, þá sitja dýrlingurinn Jóhanna og Steingrímur J. heldur betur í vondum málum.

Nói
04.02 2009 kl.16:22

já það er ekki gott að díla við landsbankann þegar besti vinur aðal, TJ, er nýfarinn úr bankanum, en auðvitað hafið TJ ekkert að gera með Baugsviðskiptin.....”right”. Líka gaman hvernig þessar “fréttir” birtast alltaf fyrst á Vísi.is. Var ekki forstjórinn þeirra í viðtali í vikunni og var að dásama allan rekstur þeirra í Bretlandi jólaverslunin góð og svona. Svo segir JÁJ að hvalveiðar eyðileggi ímynd landssins......!, landssins sem JÁJ og fleirir víkingar með kreditkort eru fyrir löngu búnir að slátra. Menn verða að sætta sig við spegilmynd sína á morgnana.....

Jónína Ben
04.02 2009 kl.16:35

Frysting á eignum byrjuð. En það var búið að laga til og allt sett inn í Haga (Gaum)
Gylfi Magnússon lætur ekki þvæla sér út og suðu.
Áfram með frystingar til hamingju ný ríkisstjórn þið byrjið vel.

Ég hef sagt í 9 ár að lygin sé besti vinur þessara manna.

Vonandi er fólk farið að trúa mér. Ég heyra það að margir sá nú myndina skýrar.

Þeir eru ekki í viðskiptum heldur hernaði og hafa alla tíð verið stórhættulegir okkar litla landi. Í skjóli forsetans og Samfylkingar Ingibjargar og Össurar hafa þeir keyrt hér heila þjóð í kaf. Og enn þusar fólk um Davíð Oddsson en Jón Ásgeir ætti að þekkja pungspörk manna best. Hann kann að nota þau og ætti því að skilja að það hlaut að koma að honum að fá til baka. Hann trúir því að hann sé gjaldþrota vegna þess að Davíð Oddssyni var illa við hann. Davíð Oddssyni var illa við hann því hann sá í gegnum bullið og vissi að það var hættulegt. Kaupþing og Baugur hafa alltaf unnið þétt saman og allt annað er blekking.

Valsól
04.02 2009 kl.16:38

Hvað ef þetta er nú satt hjá Jóni Ásgeir, hver er þá geðveikur?

Beggi
04.02 2009 kl.16:40

Afhverju sá Davíð ekki í gegnum alla hina glæpónana? afhverju var þessi röntgensjón hans takmörkuð við einn mann? Hverskonar súpermanshæfileikar eru það eiginlega? - koma ekki beinlínis að miklu haldi, eða hvað?

joð
04.02 2009 kl.16:41

Með þessari nýjustu samsæriskenningu sinni um Davíð vonda, hefur Jón Ásgeir sennilega skotið sig heldur betur í fótinn.

Almenninur sér loksins fáránleikann í öllum þeim samsæriskenningum hans sem hann hefur látið rigna yfir þjóðina í gegnum tíðina um Davíð og hans meintu áhrif í að vera ábyrgur fyrir öllu sem illa fer hjá honum og hans.

Hann er einfaldlega með þessu að gjaldfella alla hinar samsæriskenningarnar.

Fólk á að svara þessu bulli með að snú viðskiptum sínum á alla aðra staði en honum tengdum. Þeir eru örugglega að fara yfirum og betra að vita að þeningum fara í uppbyggingu fyrirtækja sem stórveldið hefur troðið á í gegnum tíðina.

Það er komið mikið meira en nóg af skaðanum sem þessi bjálfi hefur valdið þjóðinni.

Valur
04.02 2009 kl.16:44

Vona að Hagar/Baugur fari á hausinn sem fyrst líka.

Beggi
04.02 2009 kl.16:48

Verum ekki svona einföld, Davíð hefur verið með puttana í því að djöflast í Baugi lengi vel. Að halda annað fram er kjánaskapur. Hvort þetta sé rétt hjá Jóni Ásgeiri núna er aftur á móti frekar ósennilegt. En hver veit.

Bara svo það komi fram þá hef ég aldrei treyst dólgafélögum á borð við:

* Baug
* Sjálfstæðisflokkinn
* Framsóknarflokkinn

Og mun ekki gera. Þannig að ég er ekki neinn Baugsflaggari eða arnarsleikja eða kleinuæta. Jú, ég borða nú kleinur, en ég er ekki neinn madömmumilfari.

Fann annars þetta um Lárus Finnbogason, ef þetta er hinn sami og formaður skilanefndarinnar í Landsbankanum:

http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3334548

SJ
04.02 2009 kl.16:53

Jón Palmar, afhverju ætli það sé? DV ST2 VISIR.IS og Fréttablaðið hafa kerfisbundið haldið úti hatursáróðri gegn DO í fleiri fleiri ár. Auðvitað skilar eitthvað af því sér til útlandsins.

Halldór Blö
04.02 2009 kl.17:09

Það er von mín að skilanefnd Landsbankans fari ekki að selja eignir Baugs á hrakvirði. Það er á allra vitorði að eignaverð er í algjöru lámarki núna, við einfaldlega höfum ekki efni á að selja á þeim verðum er bjóðast í dag. Ef rétt er að Iceland verslunarkeðjan skyli í hagna á ári, eins og nemur útflutingi okkar á sjávarafurðum, þá ætti okkur ekki að verða skotaskuld að greiða upp lán Baugs og Icesafe á nokkrum árum. Við Lárus segi ég bara þetta mundu eftir þegar atvinnutrsj og hlutabréfasj. var komið á koppinn, er öll útgerð og fiskvinnsla var kominn á vonarvöl, það tók ekki langan tíma að komast fram úr þeim erfiðleikum, er allir héldu að væru óyfirstíganlegir.

R
04.02 2009 kl.17:56

Smá hugmynd..Hvernig væri þá að halda bara í Iceland keðjuna reka Bretana og ráða atvinnulausa Íslendinga í staðinn...

Bárður
04.02 2009 kl.18:05

Hvar ertu Ingibjörg Sólrún?
Davíð er að ráðast á fjölskylduna/feðgana.
Nú dugir ekkert minna en enn eina Borgarnesræðuna.

Það hefur hingað til dugað til að æsa lýðinn á móti Davíð og með Baugi.

Er Ingibjörg Sólrún kannski að missa tökin?

Íslendingur
04.02 2009 kl.18:10

Loksins virðist réttarríkið Ísland vera að rísa.

Jón Ásgeir er ekki enn búinn að borga krónu í New York íbúðinni hún er öll á yfirdrætti í skúffu hjá Elínu og co í Landsbanka.

Nýr viðskiptaráðherra byrjar vel eins og við var að búast !

Íslendingur
04.02 2009 kl.18:12

Bárður ! Það mætti halda að þú byggir á Tortola en ekki Íslandi !

Óskar
04.02 2009 kl.18:16

Jón Ásgeir er yfir sig hissa.
Ekkert goodwill eftir hjá íslenskri þjóð fyrir óskabarnið sitt.

Hvers vegna eiga íslenskar fjármálastofnanir að afskrifa skuldir þínar ?
Er ekki nóg að Íslendingar þurfi að þrífa eftir þig skítinn ?

Þínir viðskiptahættir og siðgæði hafa sett smánarblett á íslenska þjóð.

Nýi Dexter
04.02 2009 kl.18:29

Hægri sinnaðir útrásarsvíkingar eiga eftir að fá á baukinn þegar þið komið auga á þá!

johann
04.02 2009 kl.18:47

(T)Jon asgeir er buinn ad okra a islensku thjodinni, flytja peninganna ut til ad kaupa druslubudir og snekkjur i utlondum. Hvernig er haegt ad verda milljardamaeringur a thvi ad selja 300.000 manns lagverdvoru ? svar: einokun og okur. Baugur kaupir inn voruri utlondum gegnum eigin heildsolu sem er stadsett erlendis. Thar er lagt a voruna og hun sidan fluttinn til islands a 4 sinnum haerra verdi enn tidkast ameginlandi evropu. Hefdu ekki matarpeningar islensku heimilanna verid betur settiri innlendr atvinnustarfsemi ?
SVELTUM SVINID !!!!!!!! haettum ad versla vid bonus.

lipurtá
04.02 2009 kl.19:05

Hvað er það sem er kallað ofsóknaræði?

Nýi Dexter
04.02 2009 kl.19:17

Æði viss um ofsóknir.

Guðmundur
04.02 2009 kl.19:22

Baugur er ekkert annað en vondu molarnir úr Makkintoshinu, sem var keypt skuldsett. Góðu molarnir eru komnir yfir í Haga.

Íslendingur
04.02 2009 kl.19:53

Klárum að knésetja Baugsfjölskylduna og úr landi með því að sniðganga Bónus,Hagkaup,10-11 og Debenhams.

Óli
04.02 2009 kl.19:58

Jón Ásgeir.... er gjörsamlega sturlaður og veruleikafirrtur ....
Fullt af folki sem hefur endanlega sagt skilið við Bónus
út af hegðun og eineltis þessa viðskiptagúru sem ásamt
fleirum er búin að ræna öllu og setja hér allt á hausinn...
Skyldann vera með mynd af DO á náttborðinu ??

Óskar
04.02 2009 kl.20:47

Jón Ásgeir , þú komst í þá sjaldgjæfu aðstöðu að geta haft áhrif á framgang heillar þjóðar til gæfu eða miska með eigið siðgæði að leiðarljósi.

Þú tókst þá ákvörðun að svíkja þjóðina þér og þínum til fjárhagslegra hagsbóta.

Að þú skulir hafa kjark til að kenna Davíð um þitt fallvalta viðskiptavit er að bíta skömmina úr nálinni.

Birgir Hauksson
04.02 2009 kl.20:54

Það er gömul staðreynd að kok... þamb leiðir til sjúklegrar tortryggni og ofsóknaræðis.

Huginn
04.02 2009 kl.21:26

Og svona maður stjörnar mestallri fjölmiðlaumræðu á Íslandi. Talandi um vænisýki. Þessi maður er einn af þeim sem setti íslensku þjóðina á hausinn og hann skammast sín ekki einu sinni fyrir það!

Ótrúlegt hvað öllu þessu útrásarpakki leyfist að kenna stöðugt öðrum um. Og líklega á þeirri forsendu sem þeir eru að réttlæta fyrir sjálfum sér að stela milljörðum frá íslensku þjóðinni og setja hana á hausinn.

p.s. hættum að kalla þetta lið útrásarvíkinga - víkingur hefur þrátt fyrir Gerplu nokkurn ljóma yfir sér í Íslenskri þjóðarvitund og þessir landráðamenn eiga slíkt ekki skilið.

Skarphéðinn
04.02 2009 kl.22:07

og svo kemur Davíð í vor með í kosningar og bjargar öllu , hann er ekki búin að segja sitt síðaðsta , hann geymir það besta til síðast .
hver hlustaði á hann þegar hann varaði okkur við að taka lánin ? engin !!
allir héldu þessu ógeðslega sukki áfram , og bankamennirnir sögðu bilaðan ?? og hvað segið þið svo hér ?? er Jón Ásgeir orðinn geðveikur ??

Davið hefur haft margt til síns máls , og vera má að hann hafi gert mistök
en að Kenna honum um allt saman er algjör fyrra .

en hver er sinn gæfu smiður , er það ekki .
kv SKHA

lúkas
04.02 2009 kl.23:17

Núna á að senda sersveitarmenn og láta taka þá fasta yfirheira eyðssvarna
í beinni í sjónvarpinu það á að taka allt sem þessir menn og frysta og rannsaka þessir menn eru búnir að vera að undirbúa sig í boði x-d í þessa mánuði !!!! svo það á líka að taka á öllum þessum ræningum

EXISTA !!!! á ekki að taka á þeim !!! og ELTON JOHNN GREIFINN
það á að taka alla sem eru flæktir fasta strax

ekki spurning !!! Sigurður í KAUPÞING ÞARF að RANNSAKA STRAX

HVAR FENGU ÞESSIR HERRAR ALLIR ÞESSA $$$$$ Í BYRJUN ???

FINNUR INGOLFS HÆTTI Í SEDLABANKA OG GERÐIST MILJÓNA MÆRINGAR !!! HALLÓ !!!!! SVO S HÓPURINN HANNS HALLDÓRS
EIGA ÞEIR EKKI AÐ FÁ RANNSÓKN ????

EG ER ALVEG BÚIN AÐ FÁ NÓG AF ÞESSARI MAFIU

gullmoli
04.02 2009 kl.23:19

Er ekki allt í lagi með ykkur sem setjið inn athugasemdir

ath
04.02 2009 kl.23:44

Þetta er í raun alger snilld.. einhver gerir símaat í JÁJ, segist vera Styrmir eða koppur inni á gólfi, bullar um dabba að hann láti ekki taka sig niður fyrr en baugur fari. Sagan er góð, brandarinn betri...

EN að láta hafa þetta eftir sér daginn sem þú vaknar með kúkinn í buxunum eftir 13 ára fyllerý, priceless.

Frumvarpið var klárt, þ.m.t. uppsögnin, Hvernig átti Davíð að geta komið í veg fyrir að vera rekinn, þ.e. hvernig átti hann EKKI að stíga niður, Óháð Laug?

Ummæli ársins, þrímælalaust!

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar