Nýi Glitnir reynir að tryggja að kaupendur Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, séu ekki “leppar” fyrir þriðja aðila. Það er gert með því að spyrja tilboðsgjafa sérstaklega hvort þeir komi fram í þágu annarra. Sterkur orðrómur hefur verið á kreiki um að ástralskur fjárfestir, Steve Cosser, sem vill eignast Morgunblaðið - og raunar fleiri fjölmiðla hér á landi - gangi erinda innlendra manna. Því harðneitar hann þó sjálfur.
Fjallað er um málið á fréttaskýringarvefnum AMX í dag. Þar kemur fram að fjárfestar þurfa að leggja fram skuldbindandi tilboð í Árvakur ekki síðar en 17. febrúar næstkomandi. AMX segir að í leiðbeiningum um gagnaskil fjárfestanna sé spurt: “Er lögaðili raunverulegur aðili viðskiptanna, þ.e. kemur ekki fram í þágu þriðja aðila? Ef svo er verður að gefa upplýsingar um hver sá þriðji aðili er.”
“Sagt á mannamáli er gengið eftir því hvort verið sé að “leppa” kaupin”, segir AMX.
Fram hefur komið að fjórir aðilar sýna Árvakri áhuga: Ástralinn Steve Cosser, Óskar Magnússon fyrir hönd hóps fjárfesta, Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson og Almenningshlutafélag um rekstur Morgunblaðsins sem Vilhjálmur Bjarnason fer fyrir.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
11 ummæli
Rita ummæli12.02 2009 kl.11:06
Slóð
Hversu lengi á almenningur að borga fyrir reksturinn á morgunblaðinu.
Finnst ótrúlegt hvað allir stjórnmálaflokkarnir samþykkja þetta fyrirkomulag sem er búið að standa núna í töluverðan tíma yfir.
Hef heyrt að það kosti 5 milljónir á dag að halda blaðinu út er ekki í lagi með íslenska ráðamenn. Finn til með fólkinu sem vinnur þarna en það væri hægt að gera miklu meira fyrir þennan pening en að halda uppi starfsfólkinu hjá mbl. Sérstaklega þegar það á að afskrifa nánast allan hluta af skuldum árvakurs.
Hver er tilgangurinn að halda þessu úti, bara pólitískt að hafa þetta lifandi.
Er alveg hættur að skilja þetta allt saman.
12.02 2009 kl.11:09
Slóð
Í því sem framundan er skiptir eignarhald á fjölmiðlum mjög miklu máli.
Það gerði það líka í aðdraganda hrunsins, - þ.e. sömu aðilar og fóru offari í skuldsetningu þjóðarinnar - áttu fjömiðlana og sáu til þess að ekkert óþægilegt kom fram í þeim um myrkraverkin þeirra.
Það á einfaldlega að láta tilboðsgjafa vera eiðsvarna um að ekki sé 3. aðili að baki þeim, að viðlagðri riftun og refsingu ef þeir ljúga til um þetta.
12.02 2009 kl.11:26
Slóð
Það er afar mikilvægt að amk einn prentmiðill sér óháður og sé ekki málpípa þeirra afla sem komið hafa þessarri þjóð á kaldan klaka. Fréttablaðið, Vísir.is og dv.is eru og hafa verið miskunnarlaust misnotuð í þágu eigenda sinna. Morgunblaðið er og hefur verið áróðurtæki Sjálfstæðisflokksins - styrkja snepilinn ? NEI !!
12.02 2009 kl.11:35
Slóð
Ef einhver er svo vitlaus að vilja kaupa Morgunblaðið þá er það velkomið en viðkomandi verður að taka allar skuldir og gera hreint í bankanum .Það á ekki að gefa neitt .Ef ekki er hækt að selja blaðið þá á ríkið að yfirtaka það eins og önnur gjaldþrota fyrirtæki og selja síðan síðar ef hægt er
12.02 2009 kl.12:01
Slóð
Af hverju leggur fólk svona mikið uppúr því að engar skuldir verði skildar eftir hjá MBL en fæstir ráku upp hljóð þegar nær öll önnur blaða og tímaritaútgáfa auk sjánvarpstöðvar var hirt nær skuldlaus útur stórskuldugu batteryi og það af sama aðilla og safnaði skuldunnum???
það er nú bara varuleikinn í dag að lánadrottnar verða að gefa eithvað eftir til að selja fyrirtæki sem flest eru of skuldsett það fer t.d. enginn að kaupa Heklu mað öllum skuldum hún verður líklega seld á verði sem enungis nægjir fyrir hluta skuldanna.
Eina skyliðrið er að borgað sé sangjarnt gjald fyrir.
12.02 2009 kl.12:19
Slóð
Furðulegt að maður þurfi að dreifa hér fréttum fyrir eyjuna sem ættu að hafa forgang.
http://eyjan.is/blog/2009/02/12/naer-700-ungmenni-a-vanskilaskra-ungir-karlmenn-i-meirihluta/
12.02 2009 kl.12:21
Slóð
Kaupandinn þarf að vera réttsýnn og rogginn, það segir Mogginn.
12.02 2009 kl.12:43
Slóð
Er eitthvað að bankamönnum? Er þetta fráfarandi stjórnarformaður Glitnirs sem stendur fyrir þessari vitleysu að handvelja kaupendur sem eru þóknanlegir???? Mikið er ánægulegt að hann sé að hverfa á brott VV.
Seljum bara draslið hverjum sem getur og vill borga uppsett verð. Það er það eina rétta...
12.02 2009 kl.12:46
Slóð
er einhver svo vitlaus ad halda ad Morgunbladid se ohad dagblad
12.02 2009 kl.12:56
Slóð
Til Hamingju kæru Íslendingar, en og aftur erum við gerð að athlægi ... nú í boði Geirs Haarde ...taldi ekki hversu oft ég fékk kjánahroll ...nú lítur heimurinn á okkur sem algjöra vesalinga og fávita ...sem við erum auðvitað
http://news.bbc.co.uk/2/hi/programmes/hardtalk/7885583.stm
12.02 2009 kl.19:41
Slóð
Karlfauskur
Er Geir þá ekki að gera sama skandal og forseti vor Ólafur Ragnar sem gerði okkur að fíflum í Þýskalandi.
Annars þarf mogginn að lifa því við þurfum jú að hafa samkeppni sem er ekki í boði Baugsmanna !