Innlent - fimmtudagur - 19.2 2009 - 08:05

Löng kosninganótt ef frumvarp um persónukjör nær fram að ganga

img_5982.jpgEf frumvarp um persónukjör nær fram að ganga gæti litið út fyrir langa kosninganótt.
Þórunn Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður yfikjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður, segist í samtali við Morgunblaðið óttast að talning muni dragast von úr viti.

“Þegar ég heyrði um frumvarpið hugsaði ég með mér, guði sé lof að ég er hætt í þessu,” segir Þórunn í Morgunblaðinu.

Þórunn hefur unnið í kjörstjórn í nokkrum prófkjörum Sjálfstæðisflokksins, þar sem frambjóðendum hefur verið raðað eins og meiningin er að gera í alþingiskosningunum.

Þurft hafi að handtelja hvern einasta kjörseðil sem hafi verið mjög  tímafrekt og óhemju mikil vinna.

Það er þó talið ólíklegt að frumvarpið nái fram að ganga, það hafi komið fram of seint.

Steingrímur J. Sigfússon segir þó ásetning standa um að koma þessu máli áfram þó ekki náist samstaða meðal flokkanna nú.

18 ummæli

Rita ummæli

BS
19.02 2009 kl.08:07

Hversvegna er notast við pappír og blýanta á tölvuöld?

Elín
19.02 2009 kl.08:08

Við getum líka sleppt því að kjósa. Þá missir Þórunn engan svefn.

Egill Antonsson
19.02 2009 kl.08:20

Ég kýs virkara lýðræði þó það myndi þýða lengri kosninganótt! (og þó það myndi þýða margar langar kosninganætur)
Hvers konar frétt er það að birta tuð úr manneskju sem mun ekki einu sinni koma til við að vinna þessa vinnu í næstu kosningum.

Síðan er endað fréttina á því að slá því fram sem fullyrðingu að það sé “talið ólíklegt að frumvarpið nái fram að ganga”, þegar eini maðurinn sem hefur sagt það er Geir Haarde og ég tek ekkert mark á því sem sá maður segir.

Sigurður.
19.02 2009 kl.08:24

Ég vil frumvarp um persónukjör, „og ég skal heita því að í næstu kosningum fer mitt allkvæði“ til þess flokks sem berst fyrir því að persónukjör verði tekið upp.

ÓÞ
19.02 2009 kl.08:31

Það eru ýmsar sæmilega iðnvæddar þjóðir sem brúka svona persónukjör svo að íslendingar ættu nú að geta leitað sér ráða varðandi framkvæmdina. Mér finnst þetta líka aum rök að af því eitthvað sé tímafrekt þá sé það gild ástæða til að gefast upp á þessum lýðræðisumbótum.

Sexylady
19.02 2009 kl.08:34

Bara keyra málið í gegn! Til hvers er þetta Alþingi eiginlega? Þetta lið er að eyða allt of miklum tíma í að tala um mál sem skipta litlu eða engu máli. Kann þetta fólk ekki að forgangsraða málaflokkunum? Þetta mál skiptir miklu máli og á að settla á “nó tæm”!!

Jón Finnbogason
19.02 2009 kl.08:39

Hvað með það þó það taki sólarhring að telja?

Haukur í horni
19.02 2009 kl.09:01

Hvernig ætla menn að útfæra svona mál með engum fyrirvara.
s.s. utankjördndaraktvæðagreiðsla sem þarf að hefjast eftir ca 2 vikur? Eiga þau atkvæði sem þannig eru greidd ekki að telja?
Hvað með kynjakvóta xs t.d. í suðurkjördæmi? Á þá yfirkjörstjórn að lesa “sín” úrslit og svo kemur annað frá flokknum þ.e. ef tveir karlar eða tvær konur lenda í fyrstu tveimur sætunum?
Hvað segja fomenn kjörstjórna um landið allt, hefur einhver spurt þá um álit á þessu í framkvæmd?

Baldur
19.02 2009 kl.09:27

Hvaða aulagangur er þetta eiginlega? Er ekki langt síðan við fórum á tölvuöld? Ef fólki er treystandi til að gera upp skattinn á netinu, og nú er meirihluti framteljenda sem gerir það, afhverju er ekki hægt að búa til einfalt kerfi þar sem fólk velur einn lista og raðar mönnum innan hans?

Þetta er bara rugl og fyrirsláttur ákveðinna manna, einkum Sjálfstæðismanna, sem þola engar breytingar. Ég bendi á að þeir hafa líka algjörlega lýst frati í þjóðaratkvæðagreiðslur. Fólkið í landinu sé svo vitlaust að því sé ekki treystandi (og það er eins með Stjórnlagaþingið).

Við búum svo vel á Íslandi að flestir eiga frí á kjördag og hafa yfrið nógan tíma til að ganga frá atkvæði sínu öfugt við t.d Bandaríkin þarsem kosningar eru haldnar á virkum degi. Til að létta yfirferð væri létt verk að stytta bara kosningatímann. Í staðinn fyrir að hafa kjörstaði opna til kl 22 mætti loka þeim kl. 19. Þá hefðu kjörstjórnir 3 aukatíma til að fara yfir niðurstöður.

Best er þó að hafa þetta tölvuvætt svo niðurstöður liggi sem fyrst fyrir.

Bragi
19.02 2009 kl.09:36

Hálfatkvæði okkar á höfuðborgarsvæðinu er stærra mál en persónukjörið.

Á meðan við í Suðvestur- og Reykjavíkurkjördæmunum fáum 34 þingmenn í stað 40 ef jafnt væri skipt, þá fær landsbyggðin 29 í stað 23.

Eiga úrslitin að vera 40 - 23 og endurspelga jafnrétti, eða 34 - 29 eins og alþingismenn hagræddu lýðræðinu við síðustu misnotkun á kosningalögunum?

Bragi
19.02 2009 kl.09:41

Athugið að ef allir fengju að hafa ca. 2350 atkvæði á bak við hvern þingmann, þá væru 60 þingmenn fyrir höfuðborgarsvæðiskjördæmin.

Svalan
19.02 2009 kl.10:16

Hvernig væri að setja reglur í leiðinni um að fólk þyrfti að vera að lágmarki 35 ára og hafa smá reynslu til að taka að sér störf á alþingi og hvað þá í ríkisstjórn.

Held það sé deginum ljósara að stuttbuxnadeildin sé ekki framtíðin alveg strax. Betra að þeir séu komnir í síðbuxur!

Rómverji
19.02 2009 kl.10:21

Viðbúið að þessi gæðingur Sjáflstæðisflokksins fyndi þessu allt til foráttu.

Löng kosninganótt er ekkert mál. Heldur til bóta.

FLOKKURINN sem keyrði Ísland í þrot, þolir ekki aukin áhríf kjósenda.

lóa
19.02 2009 kl.11:01

Og hvað? Eigum við að hætta við lýðræði af því að fólk nennir ekki vinna þessa einu nótt? Og af hverju er mbl að troða þessari ekki-frétt í blaðið?

Björn
19.02 2009 kl.12:49

Þó það taki viku að telja þá er það ekki mikil “borgun” fyrir LÝÐRÆÐI.
Þeir sem ekki treista sér til að vinna við þetta segja bara afsér. Meirihluti fólks á Íslandi þarf að vinna í mörgum vinnum, mirknana á milli og svo á maður að hafa meðaumkun með fólki sem ekki getur staðið vaktina eina nótt!!!

lóa
19.02 2009 kl.14:09

Björn: segðu, fáum þá bara annað fólk kjörstjórn, td. hjúkkur, löggur, flugmenn, slökkviliðsmenn, starfsmenn Hagkaupa í Skeifunni og 10-11...

BS
19.02 2009 kl.15:09

Það er líka bara hægt að byrja talninguna á sunnudagsmorgni ef það er svona mikið mál að telja yfir nóttina. Það liggur ekki svona mikið á að fá úrslitin á hreint. Í alvörunni.

Skorrdal
19.02 2009 kl.17:36

Kannski þetta fólk vildi hafa þetta eins og Júróvisíon? Simakosningu á hálftíma? Ætli þessu pakki þóknaðist það?

Lýðræðið tekur tíma og kostar vinnu. Þeir sem nenna ekki að taka þátt í því, verða bara að sætta sig við vilja hinna, sem nenna að leggja á sig lengri bið eftir úrslitunum en símakosningum Júróvisíon.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar