Innlent - sunnudagur - 22.2 2009 - 17:08

Atli Gíslason: Auðmenn skili hundruðum milljarða til baka úr “skattaskálkaskjólum” erlendis

atli-gislason.jpgAtli Gíslason, lögmaður og þingmaður Vinstri grænna vill að reynt verði að grafast fyrir um fé þeirra auðmannanna sem hafi valdið hruni fjármálakerfisins og sem geymt sé í “skattaskálkaskjólum” erlendis eins og hann kallar það. Hann telur að þetta fé geti samtals numið 500 til 1000 milljörðum króna og auðmennirnir eigi að “sjá sóma sinn í því” að skila þessu fé til Íslands. Ef ekki þá geri þeir sjálfa sig útlæga og verði ekki vært hér á landi fyrir reiði almennings.

“Þessir 40-50 menn sem stóðu að þessu eiga að vera á válista hjá bönkunum. Bankarnir eiga ekki að eiga viðskipti við þá,” sagði Atli í þættinum Silfri Egils í dag.

Atli vill að láta frysta eigur þessara einstaklinga vegna hugsanlegrar skaðabótaskyldu því augljós brotastarfsemi blasi við í nokkrum málum. Atli segist enn binda vonir við rannsókn hins sérstaka saksóknara en er “að verða býsna óþolinmóður.”

Hann nefndi í þættinum fjögur dæmi um “brotastarfsemi” sem hann sagðist ekki skilja hvers vegna ekki væri verið að rannsaka. Í fyrsta lagi væri það 107 miljarða yfirdráttur Roberts Tchenguiz hjá Kaupþingi gegnum Exista, sem hafi falið í sér mismunun gagnvart öðrum hluthöfum. Í öðru lagi nefndi Atli 13,5 milljarða úttekt stofnfjáreiganda í Byr sparisjóði í ágúst, sem stjórnendur hafi mátt vita að félagið hefði ekki efni á. Í þriðja lagi nefndi Atli baráttumál Réttlæti.is vegna taps sem hlaust af uppgjöri peningamarkaðssjóðs Landsbankans. Atli sagði 70 milljarða hafa verið greidda út af reikningum peningamarkaðssjóðs Landsbankans síðustu fjóra dagana fyrir hrunið þannig að skerðing þeirra sem áttu fé þar nam rúmlega 30% í stað um 10%. Hann segir að þarna hafi átt sér stað upplýsingaleki og mönnum mismunað. Fjórða og versta dæmið sagði Atli svo vera fjármagnsflutningarnir frá Bretlandi, sem hafi verið meginástæða þess að Bretar beittu hryðjuverkalögunum. Hafi þetta verið þannig kunni sú aðgerð, segir Atli, að varða við landráð.

“Ég vona að hinn sérstaki ríkissaksóknari fari að taka enn til yfirheyrslu og skoða þetta. Þessi fjögur dæmi blasa við,” sagði Atli. “Þetta á auðvitað að vera lögreglumál” segir Atli “og það á að ná þessum peningum til baka með eignaupptöku.”

Sjá upptöku af Silfri Egils á vef RÚV.

61 ummæli

Rita ummæli

Guðrún
22.02 2009 kl.17:23

Vonandi getur ríkisstjórnin gert eitthvað í þessu en það er hætt við að framsókn passi sitt fólk og komi í veg fyrir það.

Dísa
22.02 2009 kl.17:26

Láta reyna á þetta og þá bara að leyfa Framsókn að neita stuðningi, þannig sjá menn hversu svakalega nýr Framsóknarflokkurinn er eða þannig....

Dísa
22.02 2009 kl.17:29

Facebook grúbba: Milljarðana heim frá Lux og Cayman eyjum!

Sláið henni inn í leitina á Facebook og skráið ykkur.

kristín anna
22.02 2009 kl.17:30

Ríkisstjórnin gert eitthvað?

Ástæða þess að hvorki þessi ríkisstjórn né sú fyrri spyr Breta af hverju þeir settu á okkur hryðjuverkalög er að þeir vita ástæðuna.
Ástæan var gífurlegt fjármagnsflæði úr Landsbankanum síðustu daga fyrir hrun. Flæði til einhverra útnáraeyja, þ.e. í vasa eigenda.

Ef Bretar segja okkur af hverju NEYÐIST ríkisstjórnin til að grípa til aðgerða, því þá er á allra vitorði að þessir menn frömdu landráð.
Þetta vildi fyrrverandi ríkisstjórn SEM OG NÚVERANDI - forðast í lengstu lög.

Þetta eru jú vinir þeirra og það fólk sem kom þeim í þeirra þægilegu stöður og maður handtekur ekki vini sína á þessu landi.
Best er að spurja ekki og láta sem ekkert sé.
Þið getið bókað það að BRETAR VERÐA ALDREI SPURÐIR - ALDREI!

Jóna
22.02 2009 kl.17:31

Vel mælt hjá Atla.

joi
22.02 2009 kl.17:32

Lítið mál fyrir Atla Gísla að framkvæma þetta eða hvað? Maðurinn er lögfræðginur og þekkir hvernig þetta gengur fyrir sig. Hann er réttu megin borðsins núna. Ef hann ætlar sér að ná þessu til baka, þá ætti hann að drífa í þessu.

kristín anna
22.02 2009 kl.17:40

ATLI - KOMDU MEÐ FRUMVARP !!!!!

AB
22.02 2009 kl.17:41

kristín anna
Ég er hræddur um að þú hafir rétt fyrir þér.

AB
22.02 2009 kl.17:44

Sennilega vilja flestir Íslendingar að auðmenn séu látnir í friði.
Þeir eru guðir - það er ekki borin fyrir þeim virðing: þeir eru DÝRKAÐIR.

Guðjón Ragnarsson
22.02 2009 kl.17:46

Það er alltaf sama lygaþvælan í þessum karli sem telur sig heilagn

Guðrún
22.02 2009 kl.17:48

“well maybe I should have ” verða það endalok Íslands.

Ásta B
22.02 2009 kl.17:50

AB
Nei flestir vilja ekki að þeir séu látnir í friði. Hins vegar vilja auðmennirnir að þeir séu látnir í friði og það eru þeir sem stjórna og hafa stjórnað umræðunni.

Tek undir með þér Kristín Anna. Það var ástæða fyrir þessum hryðjuverkalögum það er nokkuð ljóst. Og aumingja Geir vissi að það ´”þýddi” lítið að hringja til London í okt. nema til að fá sannleikann beint í smettið.

Atli Gíslason er sá þingmaður sem ég treysti næstum 100% og það einn af fáum. Hins vegar er ég ekki viss um að margir þingmenn samþykki að hróflað verði við þessum “auðmönnum” enda hafa það verið þeir sem hafa borgað í flokkssjóðina :(

Ásta B
22.02 2009 kl.17:51

Guðjón Ragnarsson
Getur þú upplýst okkur hvað Atli sagði sem er lygaþvæla?

Dísa
22.02 2009 kl.17:52

AB, þetta er ekki rétt í dag, kannski var það þannig. Í dag eru þeir fyrirlitntnir og hataðir, aðallega af fólki sem tapaði peningum sökum blekkingar á verðbréfamarkaði og/eða þeim sem töpuðu peningum í sjóðum sem áttu að vera alveg öruggir á meðan að víkingarnir komu sínu fé í öruggt skjól. Og eru þessir meintu fjármagnsflutningar ekki líka ástæðan fyrir hruni krónunnar? Þeir hljóta að hafa þurft að kaupa gjaldeyri fyrir milljarðana sem fluttir voru úr landi?

Púki
22.02 2009 kl.17:52

Guðjón Ragnarsson,,,,hefur þú ekki heyrt fréttir síðan í september?

GG
22.02 2009 kl.17:53

Það er kominn tími til að þessi sérstaki ríkissaksóknari fari að láta heyra í sér. Varla var hann ráðinn til að naga blýanta.

Guðmundur
22.02 2009 kl.18:08

Ég vill fá skýra málefnaskrá hvað þetta varðar frá vinstri grænum varðandi þetta málefni - ekki bara hugleiðingar.

ÞA
22.02 2009 kl.18:09

.
Tek undir það - Atli - ef þú meinar eitthvað það sem þú segir;

KOMDU MEÐ FRUMVARP UM ÞESSI MÁL !!!!!!!

JB
22.02 2009 kl.18:13

Auðmenn hafa nú haft fimm mánuði til að hagræða og eru ábyggilega mjög fegnir hversu máttleysislega hefur verið tekið á málum hér á Íslandi.

Þessir menn ryksuguðu banka og sjóði bjuggu til peninga úr engu og fóru svo margir hverjir með peninga í skattaskjól.

Hrun bankanna bitnar ekki bara á þeim sem fjárfestu í hlutabréfum heldur öllum íslendingum. Kreppan er rétt að byrja þó allir hafi ekki áttað sig á því.

AB
22.02 2009 kl.18:15

Vonandi eru auðmenn almennt fyrirlitnir
- en hvað á maður að halda þegar litið er til skoðanakannana á fylgi: xB, xD og xS?

Ásta B
22.02 2009 kl.18:16

Samkvæmt því sem lögfræðingar hafa sagt þá eru lögin til staðar. Bara að nota það sem til er, en er viljinn fyrir hendi?

Púki
22.02 2009 kl.18:20

Hvers vegna var Framsókn svona á móti frystingu eigna auðmanna?
Hverjir náðu að losa sitt út úr peningamarkaðssjóðum LÍ ?Gerðist það hugsanlega eftir hrun?Það tók um mánuð að gera þessa sjóði upp.
Samkvæmt upplýsingum sem ég fékk að morgni 7.okt þá var ekki óeðlilega mikið tekið út úr þessum sjóðum þessa síðustu daga.
Getur verið að Brown hafi haft fulla ástæðu til að fara með okkur eins og hverja aðra glæpmenn ?
Ætli nokkur hafi hringt í Brown enn ??

stúfur
22.02 2009 kl.18:29

Hvers vegna var Framsókn svona á móti frystingu eigna auðmanna?????

Vegna þess að þetta eru þeirra menn og þeir geta ekki og þora ekki að hrófla við eigin sukki og svínaríi!!!!!!!!

góðar stundir

Bálreiður
22.02 2009 kl.18:30

Steingrímur J. verður að gefa það út að Atli Gíslason verði dómsmálaráðherra í næstu stjórn ef vinstri grænir verða aðilar að þeirri stjórn. Atli er maður sem þorir að hrófla við þessum ræningjum.

Hilmir Auðunsson
22.02 2009 kl.18:47

Styðsti dómurinn sem féll í ENRON var 6. mánuðir lengsti 24 ár ,þeir með hlut áttu að máli fengu engan frið ,voru hundeltir þangað til þeir náðust eða á endanum gáfust upp og gáfu sig fram og viðurkendu sína sök. Ef þessir menn sem fóru svona með okkur verða ekki teknir fyrir þá held ég að það verði landflótti.Ef hér yrðu náttúru hamfarir sem myndu setja allt á annan endan þá myndu flestir held ég vera til í að standa saman í uppbygginguni. Þegar Einhverjir nokkrir eru valdir að öðru eins hruni og þjóðin á að borga án þess að nokkur sé dregin til ábyrgðar. Veit ekki um neinn sem hefur áhuga á því.
Það sem ég myndi vilja sjá fjölmiðla gera er að halda þessu vakandi ekki láta fólk gleyma hvað þeir gerðu og hverjir það voru sem gerðu það. Birta reglulega fréttaviðtöl fyrir og eftir hrun sýna yfirlýsingagleðina , lýgina og viðbjóðinn sem þeir höfðu uppi meðan þeir voru að moka peningunum út úr bönkunum og skrá eigur sýnar á sína nánustu, svo á að sýna viðtöl við gamla fólkið sem treysti þessum stofnunum og trúði síðan er það skert af sínum eiginn peningum úti það óendanlega þetta er fólkið sem er búið að skila sýnu til samfélagsins og á í minum huga ekki uppreisnar æru.

ES
22.02 2009 kl.18:54

Mikið rosalega er gott að fá þetta á hreint.

Atli er í stjórn en þó gerist ekkert.

Engu skiptir hvað þeir vilja sem eru í stjórn. Þeir ráða engu.

Til hvers að kjósa?

kristín anna
22.02 2009 kl.19:01

******

Stattu við stóru orðin OG KOMDU MEÐ FRUMVARP !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Johann
22.02 2009 kl.19:26

Ef þið fyrilitið auðmenn hvers vegna er þa svona mikið að gera i bónus?

Váli
22.02 2009 kl.19:29

Við getum ekki treyst á íslenska stjórnkerfið. Enginn hefur verið færður í yfirheyrslur þannig að þeir munu sleppa. Atli getur gleymt þessu tuði. Það sem við verðum að reiða okkur á núna eru erlendu kröfuhafarnir. Þeir elta vonandi þessa glæpamenn uppi.

Pétur
22.02 2009 kl.19:50

Atli talar fyrir mikinn meirihluta þjóðarinnar.
Hann talar að minnsta kosti fyrir þann hluta sem vill siðvæðingu Íslands.

Hafi hann þökk fyrir kjarkinn.

Heiðursmaður Atli!

ES
22.02 2009 kl.19:59

Heiðursmaðurinn Atli er í kosningaham Pétur. Hann ætlar ekki að gera rassgat. En það nægir þér greinilega.

Gunnar Kristinn Þórðarson
22.02 2009 kl.20:01

Geta almennir borgarar ekki kært þá menn sem grunaðir eru að hafa staðið að fjármagnsfluttningunum frá UK fyrir landráð. Þurfum við að bíða þangað til saksóknari er búinn að ræsa tölvurnar í nýja húsnæðinu? Borgari getur kært til lögreglu verknaði sem varða hegningarlög. Lagaákvæðin um landráð eru sömuleiðis í hegningarlögum! Af hverju tekur einhver, sem veit um hvaða menn er um að ræða, sig til og kærir þá til lögrelgu fyrir landráð? Er eftir einhverju að bíða?
Ég hvet Atla og Vilhjálm, og aðra sem hafa vitneskju eða rökstuddan grun um þetta, að kæra þetta til lögreglu, svo að opinber rannsókn hefjist, og svo að hægt verði að frysta eigur þeirra og taka af þeim vegabréfið

TH
22.02 2009 kl.20:02

Atli - það er ekki nóg að tala - þú ert í stjórn.

Er ekki einhver þarna sem getur reimað á sig takkaskóna og þrumað í afturendann á rannsóknaraðilum?

Eru þeir enn á skrifstofunni að leita að innstungum fyrir nýju tölvurnar og að prófa nýju sjálfuppáhellandi kaffivélarnar?

Matti
22.02 2009 kl.20:11

Geta ekki Íslendingar tekið sig saman og kært þá grunuðu fyrir landráð. Fáum staðfest frá Brown hvers vegna hryðjuverkalögin voru sett á íslensk stjórvöld og síðan Landsbankann. Ef svarið er fjármagnsflutningar, kærum við a.m.k fyrrum stjórnendur og eigendur Landsbankans fyrir landráð.
Er ekki einn hinna grunuðu að kenna við Háskólann?

hugur
22.02 2009 kl.20:12

Gott hjá Atla,það væri ágætt að skoða Byr betur og velta hverjum stein fyrir sig.

Gunnar
22.02 2009 kl.20:20

.....

Sendið Agli fjöldapóst og hvetjið hann til að leggja fram frumvarp um málið:

atlig@althingi.is

....OG KOMA SVO GOTT FÓLK !!!!!!!!!

HDM
22.02 2009 kl.20:22

ATLI EFTIR HVERJU ANDSKOTANUM ERTU AÐ BÍÐA???

Varðandi þessu fjögur mál, að sérstakur saksóknari geri eitthvað?

Come on þetta er djók og það sjá það allir , þetta er ástæðan að fólk á aldrinum 25 -40 ára með háslólamenntunn eða iðnmenntunn á þessu landi mun fækka um þriðjung fyrir árslok 2010.

Íslendingur
22.02 2009 kl.20:27

Og hvað í andskotanum á þetta nýja embætti saksóknara að gera? Ég meina, þarf ekki að fara að byrja þá vinnu að ákæra það fólk sem olli þessari kreppu hérna á Íslandi? Ég meina, það er bara allt svo svifa seint hérna á Íslandi.

Danton (María Jónsd.)
22.02 2009 kl.20:30

Það er of mikið talað - ekkert gert.

Það átti að mótmæla auðmönnum frá upphafi og krefjast þess að þeir skiluðu gullinu sem þeir stálu.

Leggja fram frumvarp undir eins og ganga í málin strax!

Ég ætla ekki að borga yfirdrátt öldurhúsaeigandans í boði Kaupþings.

Elfa Jóns
22.02 2009 kl.20:44

Var ekki Atli að benda á að það eru til staðar nægar heimilidir í lögum til að frysta þessar eigur. Atli þarf því ekki að leggja fram neitt frumvarp, það er framkvæmdavaldið sem þarf að taka til hendinni og beita þeim lögum sem til eru ... sérstakur ríkissaksóknari, saksóknaraembættin og lögregluembættin.

Þjóðnýðingar finnst mér gott orð hjá Atla ... talsvert réttari lýsaning en útrásarvíkingar.

Fimmta valdið
22.02 2009 kl.21:13

Hafi Atli þessi rökstuddan grun um afbrot, ætti hann að láta af þessu tómlæti, bretta upp ermar, draga bullur á fætur sér, fara á fund rannsóknarlögreglu og kæra með venjulegum hætti þau tilvik sem hann veit um og heimfærir til stórkostlegra lögbrota.

Er það ekki það sem sómasamlegur borgari gerir ef hann kemst á snoðir um alvarlegt afbrot? Myndi einmitt það ekki verða upphaf sakamálarannsóknar?

Af hverju gerir maðurinn þetta ekki?

ES
22.02 2009 kl.21:24

Vegna þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vill það ekki. Vinstri grænir eru í boði Framsóknarflokksins.

Danton (María Jónsd.)
22.02 2009 kl.21:34

Ef Framsókn vill þetta ekki, þá þarf að virkja Raddir fólksins og linna ekki látum fyrr en ríkissaksóknari handtekur þessa menn tafarlaust og rannsakar athæfi þeirra. Það liggur fyrir rökstuddur grunur fyrir því að þessir menn séu sekir um peningaþvætti - það á rannsaka þá núna.

Ætlið þið að borga skuldir þessara landráðamanna?

Við erum nú þegar að borga himinháa vexti vegna hrunsins og það er ekkert að gerast. Við þurfum að leggjast á eitt til að þessir menn fari á VÁ-lista.

Eg fór einu sinni yfir á Visakorti og lenti á VÁ-lista vegna þess að greiðsluþjónustan hafði ekki borgað reikninginn í EINN mánuð. Skuldin var um 95.000,- krónur. Það dugði til! En fyrir landráðamenn með milljarða skuldir á bakinu - nei, það er ekki andað á þá.

Stjórnmálamenn munu ekkert gera nema við brettum upp ermar og mótmælum þessu.

Matti
22.02 2009 kl.21:46

Ef að hlutirnir “blasa við” eins og Atli segir, hví er ekkert gert? Mun Sigmundur og Framsókn (Kaupþing) stoppa málið?

anna benkovic
22.02 2009 kl.21:54

úr www.visir.is...

“Ég á nöfnin á þessum fjörtíu, fimmtíu mönnum sem við erum að tala um,” segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna spurður út í ummæli sín í Silfri Egils fyrr í dag þar sem hann talaði um að bankarnir á landinu þyrftu að setja auðmenn á válista.

Í viðtali við Vísi segist hann vera að tala um þá auðmenn sem kaupa gjaldþrota þrotabúin sín fyrir peninga sem enginn veit hvaðan koma. Í því samhengi bendir Atli á 356, sem urðu að Rauðsól og síðar Ný Sýn. Þá reiddi Jón Ásgeir Jóhannesson fram tvo milljarði sem fæstir vita hvaðan koma.

„Flestir á Litla Hrauni eru bara kórstrákar miðað við þessa menn,” segir Atli en bendir á að samanburðurinn náði þó ekki til þeirra sem sitja inni fyrir ofbeldis- eða fíkniefnaglæpi. Sjálfum segist hann ofbjóða að ekki sé búið að draga auðmennina til ábyrgðar.

Sjálfur vill Atli útiloka auðmennina frá fyrirtækjarekstri, í það minnsta þegar þeir týna feitustu bitana úr brunarústunum, „og haga sér eins og hræætur,” bætir Atli svo við.

Hann segir að ákvörðunin þurfi að taka af hálfu bankanna sjálfra. Spurður hvort válistinn væri ekki frekar ósanngjörn, næstum þvingandi, spyr Atli á mót, hvort við viljum yfir höfuð sætta okkur við þá viðskiptahætti sem þessir menn hafa stundað undanfarin ár, sem að lokum leiddi til hruns.

„Það á ekki að eiga viðskipti við þá menn sem komu okkur í þrotið,” segir Atli svo að lokum.

sigthor
22.02 2009 kl.21:57

Hér er einn auðmaðurinn sem ætti ekki að sitja á þingi, en virðist þó eiga framan vísan hjá sjálfstæðisflokki og 24% af heimskasta hluta þjóðarinnar, lesið þriðju færslu, furða mig mikið á því að fjölmiðlar skuli ekki fjalla meira um þetta mál.

http://www.jonas.is/

Jan
22.02 2009 kl.23:26

Við getum byrjað á að prenta út A4 blöð sjálf.

Með textanum WANTED... EFTIRLÝSTUR, Þjóðnýðingurinn ( td. Óli Ólafs eða Jón Ásgeir, annars um marga að velja ), skýr og góð mynd, fyrir stórfelldann þjófnað, ef viðkomandi sést á ferli hringið strax í lögregluna.

Kannski hrekkur löggjafarvaldið í gírinn... við allar innhringingarnar eða þjóðnýðingarnir sjái sér ekki fært að vera á götum Íslands fyrr en þeir skili þýfinu.

Ég mun sjálfur byrja prenta út barna minnar vegna, og hengja upp í hverfi þeirra sem ég veit hvar búa.

Svona í lokin til hamingju með daginn konur.

geiri sæm
22.02 2009 kl.23:55

Það tók FBI akkúrat 6 klst að handjárna alla svikarana í ENRON málinu og koma þeim í klefa. Nú eru liðnir 5 mánuðir síðan íslenska ENRON málið fór að komast upp.

Dísa
22.02 2009 kl.23:57

Það er sennilegt að mörg þessara mála þola varla dagsljósið en samt verður að draga þau fram í dagsljósið.

Gamla ríkisstjórnin ætlaði á sínum tíma “að velta við öllum steinum” í “brotsjónum” “mokandi skaflinn” o.s.frv. o.s.frv. Það varð nú aðallega að froðusnakki.

Nýja ríkisstjórnin er búin að bretta upp ermarnar og nú er bara að sýna í verki að staðið sé við stóru orðin.

Almenningur á rétt á því að vita hvaða sóðaskapur var í gangi.

Sumir vilja stinga höfðinu í sandinn vilja ekki vita af neinu illu og sjá þar af leiðandi ekkert illt. Þú getur valið hvort þú horfir á hryllingsmynd eða ekki. Núna erum við stödd í miðjum hryllingnum.

Nú þurfa staðreyndir að tala sínu máli.

Benedikt Sig Kristjánsson
23.02 2009 kl.00:50

EF VIÐ EIGUM AÐ LIFA AF Í ÞESSU LANDI VERÐUM VIÐ AÐ FARA AÐ RÁÐUM ATLA GÍSLASSONAR.HANN VEIT HVAÐ HANN TALAR UM.

Gulla
23.02 2009 kl.01:16

Þessi maður veit hvað hann segir.Látum hann bara stjórna þessu.Árni Gíslason er BESTUR

Guðbjörg
23.02 2009 kl.01:17

Atli talar líka um fjármagnsfluttninga út úr Bretlandi sem hann taldi vera orsök hryðjuverkalagana ? Nú sögðu ekki samfylkingarfólkið að Kastljósþáttur með Davið Oddsyni hefði orsakað þessi viðbrögð Brown og Darling ?

Þurfa þá ekki ráðamenn þjóðarinnar að biðja Seðlabankastjóra afsökunnar!!

Íslenska þjóðin
23.02 2009 kl.01:17

Embætti sérstaks saksóknara á NÚ ÞEGAR AÐ FARA AF STAÐ!!! HELST Á MORGUN.

ANNAÐ. ÉG VIL AÐ RANNSÓKNARNEFNDI UM BANKAHRUNIÐ Á ÍSLANDI SE EINGÖNGU SKIPUÐ ERLENDUM SÉRFRÆÐINGUM, ENGUM FRÁ ÍSLANDI. ÞAÐ GERIR STARF NEFNDARINNAR ÓTRÚVERÐUGT. ÞAÐ ER NÚ BARA ÞANNIG.

VIÐ ÍSLENDINGAR ÞURFUM ALLTAF AÐ BRENNA OKKUR AFTUR OG AFTUR! VIÐ GERUM ALLTAF SÖMU MISTÖKIN AFTUR OG AFTUR OG Á MEÐAN BLÆÐIR ÞJÓÐINNI.

OG EITT Í LOKIN. ALJÓÐA GJALDEYRISSJÓÐURINN VILL EKKERT HELVÍTIS KJAFTÆÐI. ÞEIR ERU MEÐ RANNSÓKNARNEFND HÉR Á LANDI EINNIG ÞANNIG AÐ ÞAÐ ER VERIÐ AÐ FYGLJAST MEÐ OKKUR! ÞANNIG AÐ EF ÍSLENDINGAR STANDA SIG EKKI AÐ ÞÁ HÆTTIR AGS AÐ SENDA TIL OKKAR PENINGA. ÞAÐ ER EKKERT FLÓKNARA EN ÞAÐ.!!!!

Íslenska þjóðin
23.02 2009 kl.01:20

ÉG STIÐ ATLA GÍSLASON TIL GÓÐRA VERKA...

ÉG STIÐ HAGFRÆÐINGANA OG PRÓFESSORANA JÓN DANÍELSSON HJÁ LONDON SCHOOL OF ECON... OG JÓN STEINSSON PRÓFESSOR TIL GÓÐRA VERKA.

OG EITT Í LOKIN... ÉG VIL SJÁ BLAÐAMANNAFUND HJÁ JÓHÖNNU SIGURÐARDÓTTUR Á MORGUN, MÁNUDAG. EKKI FYRR NÉ SÍÐAR.

Vilhjalm
23.02 2009 kl.05:57

It wouldn’t be difficult to get the investigation and prosecution started. All you have to do is arrest one insider and threaten to keep him in jail forever unless he squeals on the others. That’s what happened with Enron - they forced the #2 man to talk.
Put one of the bankers in a cell at Litla Hraun with a couple of male rapists (you can rent some from the Americans), he’ll talk real quick.
Or how about something simple? Just revoke their passports.

JóiX
23.02 2009 kl.09:03

kaerid thessa menn til lögreglunar, thá verda their ad ranska thessa menn..

Magnús Björgvinsson
23.02 2009 kl.09:44

Ég er nú svo fávís. En er ekki talað um að þeir hafi geymt þessa peninga á aflandssvæðum. Skattaparadísum. Hvernig frystum við eigur þeirra þar? Við höfum enga lögsögu þar!

Þeir eiga kannski einhverjar eigur hér en eru þær ekki í veðum fyrir skuldum?

USA þurfti að hóta Sviss að loka útibúum og rekstri banka sem þeir áttu í Bandaríkjunum til að fá upplýsingar um 50 einstaklinga og það tók langan tíma.

Hinsvegar getum við stoppað þessa menn í að eignast hér nokkuð aftur nema að þeir greiði skuldir sínar við okkur!

Valur
23.02 2009 kl.11:03

Vona að Atli verði dómsmálaráðherra í næstu ríkisstjórn - hefði átt að verða það strax núna. Réttsýnn topp-maður

Jakob Þór Haraldsson
23.02 2009 kl.11:57

“Catch me if yOu can” - “I am not going to pay yOu a dime..!” - Now I am sailing around “One-O-One” and yOu are NOT invited!

halldór
23.02 2009 kl.12:02

Jón Ásgeir á víst eitt stk. 700 fermetra íbúð í Svissnesku ölpunum líka. Hann var þar nýlega ásamt 20 öðrum sem hann hafði víst boðið.

Birgir Guðjónsson
23.02 2009 kl.14:42

Maður getur ekki annað en bara brosað !

Allir sammála um að “auðmennirnir” séu sekir um landráð, rán og mikið meira

En samt hald menn áfram að fóðra svínin í bónus !

pfff.....

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar