Innlent - þriðjudagur - 3.3 2009 - 17:57

Byr skorar á Atla Gíslason að draga orð sín um brotastarfsemi til baka

atli-byr.jpgByr sparisjóður hefur skorað á Atla Gíslason alþingismann að draga til baka ummæli sem hann lét falla um sjóðinn í Silfri Egils í síðustu viku.

Í tilkynningu frá Byr segir að Atli hafi borið sparisjóðinn alvarlegum sökum í umræddum sjónvarpsþætti sem enginn fótur sé fyrir, samkvæmt frétt Vísis.is.

Atli nefndi í þættinum fjögur dæmi um “brotastarfsemi” sem hann sagðist ekki skilja hvers vegna ekki væri verið að rannsaka, þar á meðal úttekt hjá Byr sparisjóði á 13,5 milljörðum  króna í ágúst 2008 “þar sem stjórnendur vissu og máttu vita að fyrirtækið hefði ekki efni á þessu.”

Í bréfi Ragnars Z. Guðjónssonar sparisjóðsstjóra Byrs til Atla segir: “Sá félagsskapur lögbrjóta og þjóðníðinga, sem sparisjóðurinn tilheyrir svo augljóslega að þínu mati, hlýtur að teljast af vafasamara taginu. Þá eru fullyrðingar þínar um Byr sparisjóð því miður alrangar í nánast öllum atriðum.”

Hann segir að upphæðin sem Atli hafi nefnt hafi verið arðgreiðslur fyrir rekstrarárið 2007, mesta hagnaðarár í rekstrarsögu Byrs, sem hafi verið samþykktar einróma á aðalfundi sparisjóðsins. Ragnar segir auk þess ríkissjóð ekki hafa lagt fjármagn til Byrs eins og Atli hélt fram.

Atli segir í samtali við Vísi að von sé á yfirlýsingu frá honum í vikunni.

Umræddar arðgreiðslur eru síður en svo óumdeildar eins og t.d.  má lesa um hér á vefsíðu Egils Helgasonar.

40 ummæli

Rita ummæli

GG
03.03 2009 kl.18:01

Atli veit ábyggilega hvað hann er að segja. Myndi gjarna vilja sjá hann í embætti dómsmálaráðherra.

Mæja
03.03 2009 kl.18:03

Hann á ekkert að taka til baka

Ásta B
03.03 2009 kl.18:14

Áfram Atli. Einn af fáum þingmönnum sem er treystandi. Ég hef enga trú á því að Atli hafi verið að gaspra eitthvað sem hann vissi ekkert um.

Gunnar Kristinn Þórðarson
03.03 2009 kl.18:15

Ný grein í The Telegraph lýsir því vel hversu efnahagslegur og pólitískur stöðugleiki er tæpur á milli þjóða. Ég hugsa að þessi pistlahöfundur sé samsinna flestum bandarískum ráðamönnum. Staðreyndin er sú, að Kína getur rústað amerískum efnahag ef áhugi er fyrir hendi. Á móti kemur að Bandaríkjamenn geta einnig rústað Kína. Spurningin er hver mun eiga fyrsta leikinn. Nú þegar gríðarlegt magn af ungum, atvinnulausum karlmönnum hafa fært sig um set í sveitirnar í Kína, er mikil hætta á uppþotum og jafnvel byltingu. Það er ljóst að Kínverjar munu gera allt til að stöðva það; m.a. að selja bandarísk ríkisskuldabréf og eyða dollurum í fjárfestingar eins og olíuleit og gull.
Eins og þið sjáið á þessari grein er hún vægast sagt herská, og raunsæ, að ég tel, á viðhorf Bandaríkjamanna til kreppunar og nágranna sinna.

Perhaps they feared that China and the world will pull the plug on the US bond market. If so, it is time for Washington to get a grip. America remains the hegemonic global power. The Obama team should let it be known – and perhaps Hillary Clinton did just that on her trip to Asia – that any country playing games with the US bond market in this crisis will be treated as an enemy and pay a crushing price.

Pacific allies already know that they cannot take the US security blanket for granted. As for China – and others pursuing a mercantilist strategy of export-led growth – they must know that the US can shut off its market and wreak havoc to their economy.

To Europe, they might make it clearer that unless the European Central Bank is brought to heel by the Continent’s leaders (whatever Maastricht says) and forced to play its full part in emergency efforts to save the global economy, the NATO military alliance will wither and the region will be left to fend for itself against a revanchist Russia.

http://www.telegraph.co.uk/finance/comment/ambroseevans_pritchard/4884975/We-need-shock-and-awe-policies-to-halt-depression.html

Með þessu fylgir ótti flestra fræðimanna á hverskyns ófriði í heiminum af völdum kreppunar. Sífellt fleiri greinar og pistlar fjalla um þetta og eru verulegar blikur á lofti, eins og ég hef áður sett fram í greinum mínum: “It is entirely possible, however, that, as the economic crisis worsens, some of these incidents will metastasize into far more intense and long-lasting events: armed rebellions, military takeovers, civil conflicts, even economically fueled wars between states.”
http://www.globalresearch.ca/index.php?context=va&aid=12501

Í sögulegu samhengi er það mjög rökrétt útkoma þessarar kreppu að það komi til alsherjar stríðs á milli þjóða og heimsálfa, líkt og eftir Kreppurnar tvær á seinustu öld. Þá hugsa sumir að það myndi aldrei koma til slíks vegna siðmenningar og menntunarstigs; en þannig hugsuðu Evrópubúar einnig rétt fyrir fyrri og seinni heimstyrjöld!
Ég þakka Leif Oskars fyrir linkanna sem hann hefur sent mér!

Gunnar Axel
03.03 2009 kl.18:17

Atli á ekkert að taka til baka, nema það sem hann sagði um framlag ríkisjóðs, sem hann sagði frá og er ekki alveg hárnákvæmt, þar sem umræddar reglur fjármálaráðherra sem hann lagði fram í desember og fjalla um heimild til að styrkja eiginfjárgrunn sparisjóða um allt að 20 milljarða, hefur ekki komið til framkvæmda ennþá.

Annað sem Atli sagði er alveg hárrétt og ef hann er ekki til í að standa undir þeim orðum þá skal ég glaður gera það fyrir hann. Á síðunni www.gunnaraxel.blog.is er að finna ítarlega umfjöllun um þetta mál og skora ég á alla, líka Ragnar og Atla, að lesa það sem þar er skrifað.

Ragnari er þó kannski svolítil vorkunn að þurfa að standa í þvi að verja þann ósóma sem hefur verið látinn viðgangast í tengslum við BYR, en umrædd 13,5 milljarða króna arðgreiðsla og fyrirhuguð arðgreiðsla sem koma átti til útborgunar nú í vor, er ekkert annað en þjófnaður og það á að tala um hana sem slíka, ekkisem einhvern eðlilegan gjörning sem gerður var á viðskiptalegum og eðlilegum forsendum. það veit RagnarsZ. Guðjónsson manna best og því kýs hann að elta ólar við einhver mismæli í orðum Atla Gíslasonar.

BG
03.03 2009 kl.18:19

13,5 milljarðar í arð fyrir árið 2007, hver trúir því að hagnaður af rekstri banka á Íslandi geti greitt svona upphæðir? Hverjir endurskoðuðu reikninga BYRS? Hvað margir milljarðar voru bókaðir sem viðskiptavild?

Liggur þá ekki beint við að birta efnahagsreikninginn?

vilhjálmur
03.03 2009 kl.18:20

Atli ekki ansa þeim.

Örn
03.03 2009 kl.18:26

Til hamingju Atli. Næst er það lastarbæli Samfylkingarinnar Landsbankinn, ef að Samfylkingin hleypur þér þar inn. Þetta á að vera banki í eigu þjóðarinnar en þjóðinni kemur það ekkert við hvað þar er í gangi. Það er trú mín ef spillingin þar inni verði gerð opinber þá falli Samfylkingin og formaður hennar sem er með nánast ekkert fylgi á bakvið sig með bankanum.
Áfram Atli.

j.a.
03.03 2009 kl.18:27

Til er máltæki sem hljóðar á þessa leið: “Töluð orð verða aldrei aftur tekin.”
Hafa stjórnarmenn Byr aldrei heyrt þetta?

Valur
03.03 2009 kl.19:09

Getur einhver sagt mér hvað gengið er á Byr núna?
Keypti viðbót í des. 2007, og fékk 40% af því sem arð sl. vor - reikna alveg með að hitt sé gufað upp?
JÁJ virðist hafa komist í varasjóð Byrs og gæti hafa hreinsað verulega úr honum.
Hvað með varasjóði tryggingafélagana? Ekki ólíklegt að þeir séu tómir. FME var ónýtt, Jónas Fr. spilaði í “hinu liðinu”.
JÁJ komst með brögðum yfir TM
Exista átti VIS
og Wererbörnin komust yfir Sjóvá.
Fróðlegt að vita hvort þeim tekst/tókst að tæma þessa sjóði.

sigthor
03.03 2009 kl.19:50

Atli virðist vera heill og blöskra alveg jafn mikið og almenningi yfir fávita háttnum í þessum mönnum sem telja sig svo yfir okkur hin hafin.

Þór 2
03.03 2009 kl.20:17

Má ekki Atli segja sannleikan.
Okkur vantar fleiri Atla inn á þing

tryggvi
03.03 2009 kl.20:24

Er Atli Gísla ekki sá sami og var rekinn úr Hítará í sumar:)? Það er einungis leyfð fluguveiði en því gat Atli Maðkur ekki farið eftir ........því fór þannig að hann og hans vinir voru allir reknir úr ánni. Þessi maður má aldrei verða ráðherra.

Guðmundur Gunnarsson
03.03 2009 kl.20:27

Auðvitað á að kúga kjarkmikla réttlætisleitandi og óþægilega aðila eins og Atla og Vilhjálm Bjarnason til hlýðni.

“You Ain´t Seen Nothing Yet” söng útrásartenórinn og Bessastaðabóndinn um árið.

Guðmundur Andri Skúlason
03.03 2009 kl.20:33

Tryggvi!
Takk fyrir að sýna fram á málefnaleg rök SPH/BYRS manna.
Þetta eru auðvitað heiðarlegir þjófar úr því að Atli beitti maðk fyrir lax !!!
kjáni...

Þór 2
03.03 2009 kl.20:46

Tryggvi, af hverju geta menn ekki orðið ráðherrar ef þeir kunna ekki að veiða á flugu?

TH
03.03 2009 kl.20:48

Ég skora á Byr að draga 13,5 milljarða “arðgreiðsluna” tilbaka. Það væri góð byrjun hjá sparisjóðnum til að endurvinna trúðverðugleika og standa þann mótvind sem blasir við fyrirtækjum í dag. Hvernig mun uppgjörið fyrir síðasta ár annars líta út hjá Byr?
Eða var þetta bara enn ein skuldsett yfirtakan með það að markmiði að útvega hirði fyrir fé?
Atli - láttu ekki þessa pésa kúga þig til þöggunar!

Guðmundur Gunnarsson
03.03 2009 kl.21:02

Talandi um maðk. Undirritaður fór í eina elstu fluguveiðiá landsins fyrir nokkrum árum, í næsta holl á eftir Landsbankamönnum á besta tíma.

Það veiddist lítið og einhvern veginn passaði afli hollsins engan vegin við það sem áður hafði verið og hvað þá að áinn hafði toppað hjá bankamönnunum.

Önnur eins veiði hafði ekki verið í manna minnum.

Veiðivörðurinn sem ég þekki til, trúði mér fyrir að leigutakinn hafði bannað honum að aðhafsat nokkuð varðandi ólögleg veiðifæri.

Hann var jú með mikil viðskipti og skuldir hjá bankanum.

Spúnn og maðkur var nánast það eina sem var víst bleytt í, og vörðurinn sagði að þeir höfðu verið svo grófir að taka ekki maðkinn einu sinni af önglinum og hvað þá fela maðkaprikin þegar haldið var í hús. (o:

tryggvi
03.03 2009 kl.21:03

Guðmundur Andri Þór 2

Ég tók enga málefnalega afstöðu til Byr málsins. Sumir hér fyrir ofan voru að kalla að hann ætti að verða ráðherra og það dómsmálaráðherra. Nei takk hann og hans vinir brutu lög og voru reknir með skömm í sumar þar sem bara má veiða á flugu. Svona mann vil ég ekki sem dómsmálaráðherra því þetta er siðblinda. Nú ef atli kann ekki að veiða á flugu á hann fara í Reynisvatn þar má veiða á maðk og 100gramma spóna.

Jónas
03.03 2009 kl.21:19

Áfram Atli, ekki draga orð til baka af þessu. Þessir pjakkar eiga að skammast sín. Eiga að hafa vit á því að halda sig undir radarnum, frekar en að auka umtalið um félagið. Þjóðin hefur skömm á ykkur öllum!!!!

Birgir Hauksson
03.03 2009 kl.21:20

Það er flugufótur fyrir maðki í mjöli Byrs.

Sjálfstæðismaður
03.03 2009 kl.21:25

Ósmekkleg og rætin aðför Atla að fjármagnseigendum lýsir vel arfgengri öfund gagnvart fólki sem er duglegt og kann að safna fé á heiðarlegan hátt. Þetta er meinsemd sem virðist hrjá flesta kommúnista. Atli ætti að sjá sóma sinn í að draga orð sín til baka.

Egill Helgason
03.03 2009 kl.21:40

Já, Jón Ásgeir og félagar sem voru á bak við þetta eru einstaklega heiðarlegir menn.

Ég mæli með því að skrílnum verði hleypt í laxveiðiárnar næsta sumar með maðk og spún.

Jónas
03.03 2009 kl.21:46

“Ósmekkleg og rætin aðför Atla að fjármagnseigendum lýsir vel arfgengri öfund gagnvart fólki sem er duglegt og kann að safna fé á heiðalegan hátt. Þetta er meinsemd sem virðist hrjá flesta kommúnista. Atli ætti að sjá sóma sinn í að draga orð sín til baka.”

Þú ert annaðhvort að koma úr fjallaklifri á suðurpólnum og hefur ekki verið á landinu síðan 2007 eða þetta er fín kaldhæðni. Heiðaleiki og BYR eru 2 orð sem fara ekki vel saman í sömu setningunni. það þarf að vera ó þarna eða einhver neitun.

Borgarinn
03.03 2009 kl.22:15

Í Byr var framið raunverulegt al íslenskt og siðlaust bankarán og það hvort stjórn sjóðsins, endurskoðendur eða aðrir samþykktu þetta á sínum tíma eða ekki dregur ekki úr því.

Engum skotvopnum beitt við þetta, bara hvítflibbum.

Hvernig skildi skattheimtan hafa orðið af þessum arði. Hafa 10% af þessum miljörðum skilað sér í ríkiskassann ? Svarið er einfalt, nei.

Sjáum svo til með ríkisstyrki þá og þegar gera þarf upp skuldir Byrs vegna afleiðusamninga og viðskipta við Seðlabankann....

Pétur
03.03 2009 kl.22:47

Atli er einn af hörðum nöglum á þingi. Hann á heiður skilið fyrir baráttu sína.
Svei þeim sem veitast að honum og megi þeir hvergi þrífast.

bjarni
03.03 2009 kl.22:52

**************************

Ha - hann var góður þessi. Þjófarnir farnir að kvarta þegar einhver bendir á þá?

Þeir geta þá farið í mál við hálfa þjóðina - hún hefur nefnilega NÁKVÆMLEGA

SAMA ÁLIT Á STJÓRNENDUM BYRS OG ATLI !!!!

Það er alveg vitað að þeir fengu þetta “lán” til að geta gefið sjálfum sér
stórfé á kosnað þjóðarinnar - og auðvitað littlu hluthafana.

Þjóðin hefur skömm á svona aðgerðum og þessir gúbbar ættu að skammast
sín.

ÁFRAM ATLI !!!!!!!!!!

Aníta
03.03 2009 kl.23:34

Enn og aftur er umræðan á afar lágu plani hérna.
Ótrúlegt að menn eins og Atli fái yfir höfuð útivistarleyfi!!

bjarni
03.03 2009 kl.23:39

Já finnst þér það ANITA?

Þú ert kannski þjófur líka og finnur til samkenndar með BYRS mönnum?

Sigurður.
04.03 2009 kl.00:30

Atla Gíslason alþingismann á ekkert að taka til baka.

BB
04.03 2009 kl.00:37

Atli Gíslason stattu á þínu Þú ert frábær í alla staði.Gangi þér vel:)

Stórlax
04.03 2009 kl.00:37

Týpísk hótun, akkúrat aðferðir til að þagga niður sannleikan sem sýnir skítinn sem þjófótt útrásarpakk skilur eftir sig út um allt.
Nei, nú verður ekkert af drullumakkinu þaggað niður lengur !
Af hverju er ekki búið að kæra þessa þjófa ? hvað er verið að leyfa þeim að vera með frekjuderring ennþá, þetta eru frekjuhundar sem þarf að snúa upp á hendurnar á þar til þeir fara að væla, það þarf að fara að byrja á því.
Við vitum að síðasta ríkisstjórn var ekki að gera neitt í þessum málum, hvað tefur þá sem nú situr ? (ekki byrja á Davíðslagavæli sjálfstæðismenn, plís)

kristín anna
04.03 2009 kl.00:50

Ég segi það líka:

Hvers vegna í ósköpunum er búið að handtaka þetta Byrs pakk! ??

SR
04.03 2009 kl.00:55

Það þarf menn eins og Atla sem dómsmálaráðherra!

kristín anna
04.03 2009 kl.01:05

*****

HEYR HEYR - FÁUM ATLA SEM DÓMSMÁLARÁÐHERRA EFTIR

KOSNINGAR!!

Sig Sig
04.03 2009 kl.01:41

“FÁUM ATLA SEM DÓMSMÁLARÁÐHERRA EFTIR

KOSNINGAR!!”

Hahaha
Maðurinn er vanhæfur lögbrjótur, græðgin var svo mikil í Hítará að hann gat ekki farið eftir leikreglum og lét taka taka sig með maðk í flugu holli. Og hann var svo “hreinskiilinn” að hann vildi ekki viðurkenna það við fjölmiðla, hann var rekin úr ánni með skít og skömm.

Nei takk ekki svona óheiðalegan mann sem ráðherra.

kristín anna
04.03 2009 kl.02:05

HAHAHAHAHAH

EF ÞAÐ er nú eini glæpurinn þá hef ég ekki áhyggjur.

Heiður
04.03 2009 kl.02:28

Sig Sig
4. mars, 2009 - 01:41 !
Mikið rosalega skortir þig rök ...” vanhæfur lögbrjótur...”
Hvað meinar þú eiginlega ?

Tek undir með Agli “Ég mæli með því að skrílnum verði hleypt í laxveiðiárnar næsta sumar með maðk og spún.” kannski bara til að bjarga sumu fólki , til draga björg í bú.

Ég er búin að lesa allt um BYR upp til agna á bloggi www.gunnaraxel.is
og blóðbragðið bara eykst og eykst. SKANDALL !!!

Atli vakti máls líka á þessu siðleysi hér :

http://www.dv.is/frettir/2007/11/20/handvelja-kaupendur-segir-thingmadur-vg/

Fékk þetta ekki allt allt of litlar undirtektir á gróðæristímanum ?
Maður spyr sig .....!

Jón Ágúst
04.03 2009 kl.08:01

Og verðlaunin fyrir barnalegasta málflutning fær .........

Það segjir allt um siðferðismat sjalla að það sé litið á sem erfðasynd að nota maðk í einhverri Laxá.

Já það má gagnrýna sem glæp og stimpla mannin sem vanhæfan fyrir að nota ekki flugu, djíses þetta er eins og úr gömlum breskum herramannsklúbb þar sem fólk fékk ákúrur fyrir að mæta í ósamstæðum sokkum, en arðrán og annað slíkt þótti sjálfssagt.

Atli á bara að segja þeim að éta skít, held að hann kippi sér ekkert upp við það þótt liðið með álpappírshattana góli kommar kommar, þetta Byr dæmi er svo ógeðfellt og siðlaust að það sér hver heilvita maður.*

*Það útilokar að sjálfssögðu alla þá sem kjósa sjálfstæðisflokkinn og hafa alist upp í Valhöll, þar eru dauðasyndirnar aðrar, svosem vitlaus spássía á seðlabankafrumvarpinu, eða að nota maðk í stað flugu.

Guðmundur Gunnarsson
04.03 2009 kl.11:26

Það er erfitt að sjá hvernig maðkadorg varði við landslög og stjórnarskránna.

Ef svo er, þá hefur hann væntalega lent lögreglurannsókn og hann síðan kærðu, og fengið dóm á sig í héraði.

Aldrei að vita nema að Óli Ragg útrásartrompet geti þá veitt skoðanabróður sínum uppreisn æru?

Er ekki einhver hraðasekt eða annað umferðarlagabrot sem nýttist betur í að hanka kallinn á?

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar