Eignarhaldsfélag í eigu Finns Sveinbjörnssonar, þáverandi bankastjóra Icebank og núverandi bankastjóra Kaupþings, fékk 850 milljóna króna kúlulán frá nokkrum bönkum árið 2007. Milljónirnar voru notaðar til að kaupa hlutabréf í Icebank árið 2007.
Þegar Finni var sagt upp sem bankastjóra í árslok 2007 seldi hann félagið Tæplega 16 milljóna króna skuld vegna vaxtakostnaðar var skilin eftir inni í félaginu.
Finnur hefur staðfest þetta í samtali við DV.
Finnur segist hafa fengið kúlulánið frá SPRON, BYR, Sparisjóðnum í Keflavík og Sparisjóð Mýrarsýslu. SPRON og BYR hafi verið stærstu lánveitendurnir, en sparisjóðirnir tveir hafi selt rúmlega 45% hlut sinn í bankanum þegar hann fékk lánið.
Hluti þess eignarhluta var seldur til Finns og annarra lykilsstjórnenda í Icebank.
Finnur segir aðspurður hvort hann þægi slíkt tilboð ef það stæði honum til boða í dag að hafa megi margar skoðanir á slíkum viðskiptum.
Trúlega myndi hann hugsa sig vandlega um ef honum byðist að kaupa hlutabréf í fjármálafyrirtæki núna þar sem mikil óvissa ríki á fjármálamörkuðum
Um lánið segir Finnur: “Við getum alveg verið hreinskilnir við hvor annan. Auðvitað hefur margt breyst í þjóðfélaginu; stemnningin, viðhorf og gildismat í samfélaginu er öðruvísi en áður. Ég held að við getum bara horft í eigin barm og viðurkennt hreinskilningslega að við hugsum öðruvísi og metum hlutina öðruvísi heldur en var.”
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
87 ummæli
Rita ummæli18.03 2009 kl.07:51
Slóð
.
Og sjá. Hann er einn þeirra.
18.03 2009 kl.07:59
Slóð
Ekki beint tengt þessu en...
Hvers vegna er Birna enn í Glitni (helsta afrek síðustu mán. að breyta nafni bankans aftur í Íslandsbanki. Algjörlega nauðsynlegt ... ;( )?
Hvers vegna hefur Þorgerður Katrín ekki upplýst um sín mál?
Síðan hvers vegna er ekki hægt að breyta lögum um þessa svokölluðu bankaleynd strax?
18.03 2009 kl.08:03
Slóð
Heldur einhver að þessi og aðrir svipaðir skammist sín ?
18.03 2009 kl.08:04
Slóð
Það er ágætt að þetta er komið fram. Þá geta Kaupþinggegnið ekki notað þetta á Finn til að gera hluti sem að þeir vildu að hann geri eða geri ekki.
18.03 2009 kl.08:11
Slóð
Mikið vildi ég fá lán með veði í hlutabréfunum. Lán sem ég bæri aldrei neina ábyrgð á og gæti látið falla ef góðærið gengi ekki eftir. Eins og að kaupa lottóvinning sem ekki er hægt að tapa á.
Svo ef almenningsálitið snérist gegn mér þá myndi ég samt fá góða vinnu og halda áfram að leika mér.
18.03 2009 kl.08:14
Slóð
Hann er hetja að koma fram og lýsa hvernig Spron o.fl. mismuna viðskiptavinum sínum eins og venjulega með lánum án fullnægjandi veða og á hagstæðari kjörum en viðskiptavinum stendur til boð. Væntanlega hafa lánveitendur tapað öllu þegar upp er staðið því er ekki Icebank á hausnum?
18.03 2009 kl.08:19
Slóð
Nýr Finnur, í nýjum banka, með nýja kennitölu,og nýja hugsun, bara eins og Birna-bankastjóri.
18.03 2009 kl.08:23
Slóð
Ömurlegt.
18.03 2009 kl.08:37
Slóð
Er þetta svokallað nýja Ísland? Sami grautarhugsunarhátturinn. Flott föt en, sama röddin.
18.03 2009 kl.08:39
Slóð
Það er svona með þetta skítlega eðli, það leynist víða.
18.03 2009 kl.08:47
Slóð
Það hefur verið algerlega óskiljanlegt frá upphafi hvernig það gerðist að Finnur varð bankastjóri nýja Kaupþings. Hann var látinn hætta í Sparisjóðabankanum vegna þess að hann var óhæfur stjórnandi, þetta hef ég séð í dagblöðum.
Hann er ef til vill nýr innað beini og orðinn hæfur????
18.03 2009 kl.08:58
Slóð
Hvernig stendur á því að þessi maður er ennþá í Kaupþingi...Þetta er maðurinn sem tókst að setja banka næstum því á hausinn í góðærinu, hvernig á honum að takast að reka banka í kreppu. Nei ég bara spyr :)
18.03 2009 kl.09:01
Slóð
Dettur ykkur í hug að einhver sem var eitthvað á s.l árum hafi ekki fengið brjálaðar fyrirgreiðslur í bönkunum á okkar kostnað? Hættum að láta þetta koma okkur á óvart, common.
18.03 2009 kl.09:15
Slóð
Er virkilega ekki til heiðarlegur íslendingur sem ekki hefur tekið þátt í þessu sukki og er hæfur til að vera bankastjóri?
Verðum við virkilega að flytja inn fleiri bankastjóra frá Noregi
Þetta eru ömurlegar fréttir
18.03 2009 kl.09:16
Slóð
Guð hjálpi Íslandi!
18.03 2009 kl.09:16
Slóð
Steingrímur og Jóhanna;
er Finnur í boði ykkar hjá Kaupþingi eftir það sem hann hefur gert?
Ætlist þið til að hægt sé að hafa traust á ykkur meðan svona menn vinna í skjóli ykkar?
Hvernig eigum við að trúa á eitthvað “Nýja Ísland “kjaftæði ef þetta er alltaf sami grauturinn í nýjum skálum?
Viljið þið svara því.
18.03 2009 kl.09:49
Slóð
Hann hlýtur að segja af sér þegar í stað. Það er alveg nóg að hafa Leif “heppna”. Nú erum við komin með Birnu “heppnu” og Finn “heppna”.
18.03 2009 kl.09:53
Slóð
Bara svona til athugunar:
Var ekki stór hluti af falli Sparisjóðs Mýrasýslu heimildarlaus lán sparisjóðsins til stjórnenda Icebank og Fjármálaeftirlitið heimtaði að yrðu afskrifuð?? Hver á Sparisjóð Mýrasýslu núna, er það ekki Kaupþing?
18.03 2009 kl.10:17
Slóð
Ég er sammála, þetta furðurlegt,
Bara þetta fræga bílamál vekur spurningar, hefði ekki átt að bjóða þetta út þar sem þeir voru í ríkiseigu og verðmætið stjarnfræðilegt.
Svo koma upp kúlulán, en það virðirst ekki hafa verið stjórnmálamaður eða maður í bankakerfinu sem ekki var með kúlulán, svo var alltaf verið að djöflast í almenningi fyrir að vera með yfirdrátt, að minnsta kosti greiddu þeir vexti af sýnum yfirdrætti og það enga smá vexti.
Ef menn hafa verið að sýsla með tæplega milljarð í kúlulán, þá eru þeir eitthvað meira en lítið innviklaðir inn í bull bankageirans...
Því miður, allir þessir bankastjórar verða að fjúka....
Það er fullt af hæfu fóklki sem er tilbúið að þyggja 1850þ kr á mánuði og hafa hagsmuni almennings að leiðarljósi við endureisn bankakerfisins.
18.03 2009 kl.10:18
Slóð
Okkar krafa er að Finnur segi af sér sem bankastjóri okkar eigin banka.
Við eigum bankann og stjórnvöld eiga að framkvæmda okkar vilja ef hann fer eftir landslögum.
Stjórnvöld hafa lofað að starfa fyrir okkur og fyrir opnum tjöldum.
Stjórnvöld eru að hafna okkur með því að halda fjárglæframanni í stöðu ríkisbankastjóra.
Stjórnvöld eru að hafna okkur þegar þau láta viðgangast að dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur láti starfsmann sinn skipa einn skiptastjóra frá lögmannsstofu sem hefur unnið fyrir sjálft þrotabúið Baug í stærsta gjaldþrotamál ´Íslandssögunnar.
Skiptastjórinn gæti þurft að taka ákvarðanir um lögreglurannsókn á eigin verkum stofunnar sem hann á að hluta. Ef hann myndi hlífa stofunni sinni er hann að skaða okkar hag, ganga þvert á hagsmuni búsins.
Í Kastljósi í gær kom eins og köld gusa yfir okkur þegar við hlustuðum á enn eina útrásarvíkingarræðuna frá syni fv. forseta Alþingis Logosmanninum Gunnari Sturlusyni.
Í græðgi sinni, fávísi og þrjósku endurtók hann sama tuðiið aftur og aftur og “áður en fréttamaðurinn spurði hann tvisvar hafnaði hann Baugi þvisvar”.
Við krefjumst þess að stórnvöld láti ekki þessa röngu og siðspilltu skipan yfir okkur ganga. Við eigum hagsmuna að gæta.
Baugur skuldaði milljarða sem falla á þjóðina. Aukum ekki á þann óhróður sem þegar er orðinn og það aðhlátursefni sem þegar er hlegið að.
Við stórsköðum trúverðugleika okkar sem þjóð ef stjórnvöld ætla að láta þessi ólög yfur okkur ganga!
18.03 2009 kl.10:24
Slóð
Sá á fé sem Finnur.....Sveinbjörnsson.
18.03 2009 kl.10:33
Slóð
ég endurtek það sem ég hef sagt trilljón sinnum, skilum inn auðu, og sýnum vanvirðingu okkar á þessu fólki, það virðist ekkert skilja nema fólk fari að berja potta og pönnur.....
Svo heyrist ekki í gauknum honum Steingrími þessa dagana....
18.03 2009 kl.10:37
Slóð
“Við getum alveg verið hreinskilnir við hvor annan. Auðvitað hefur margt breyst í þjóðfélaginu; stemnningin, viðhorf og gildismat í samfélaginu er öðruvísi en áður. Ég held að við getum bara horft í eigin barm og viðurkennt hreinskilningslega að við hugsum öðruvísi og metum hlutina öðruvísi heldur en var.”
Hverjir eru “Við” - er þetta Finnur, Björgúlfar, Jón Ásgeir, Sigurður Einarsson etc.
og hjá hverjum hefur stemmningin breyst ? - og ef svo hverjir breyttu stemmningunni ?
Það er ekki bjóðandi nokkrum manni að maður sem er í forsvari fyrir stórri fjármálastofnun sem á að vera ein burðarsúlan undir nýju hagkerfi skuli reyna að sópa svona undir teppið. Rautt kort !
18.03 2009 kl.10:39
Slóð
Þetta hlýtur að gera Finn hæfari til að fella niður skuldir hjá venjulegum finnum. Hann hlýtur að skilja kvölina að hafa farið of geist og keypt sér flatskjái. Það er hins vegar ekki víst að hann skilji venjulega jóna sem brasast með afborganir af kommúðuskúffunum sem þessir litlu aumingjar búa í.
18.03 2009 kl.10:52
Slóð
það er kannski komin tími til að fólk viti hverra manna þessi maður er en hann er mágur Ingibjargar og össurar.
Sem sagt engin spilling þar!!!!!!!
18.03 2009 kl.10:54
Slóð
Ég er sammála Sigthori. Við heimtum heiðarlegt, hæft fólk í stöður.
Stjórnvöld verða að sinna réttlátum kröfum okkar. Ef þau vilja okkur með potta og pönnur og það má alltaf bæta “soundið” þá eru þau um leið að grafa sér gröf því skv. frétt frá Fox (sem reyndar er ein ómerkilegasta stöð USA að áliti flestra Bandaríkjamanna einskonar útrásarvíkingastöð) þá eru fréttamenn þar að vara við Íslandi sem ferðamannalandi vegna óspekta.
Lögspekingar segja: Það eru eingöngu kröfurhafar sem geta krafist ógildingu á skiptastjóra Baugs.
Við segjum: Stjórnvöld eru kröfuhafar!!! Hver á nýju bankana annar en ríkið?
Og er ekki ríkið að fara að greiða stórfé inn i sparisjóðina og sérstaklega BYR og verða með því kröfuhafar?
Við raddir götunnar látum ekki taka okkar hlut með frekjukasti Logosmanna og þaulsetu vanhæfra bankastjóra!
Við krefjumst okkar réttar með góðu eða illu!
Það er stjórnvalda að velja kost!
18.03 2009 kl.11:11
Slóð
Út með blessaðan manninn og að auki er hann mágur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Þessi spilling gengur ekki í dag og ef Finnur blessaður ætlar að eiga sér viðreisnar von þarf hann að segja af sér strax !!!
Af hverju er Birna ennþá hjá Glitni ???
Ísland hrundi og spillingartímarnir eru liðnir punktur.
Hm... hvar eru mótmælendur núna ???
18.03 2009 kl.11:11
Slóð
Það vissi ég ekki, er hann mágur... ja hérna....
Það er svo margt skrýtið í þessu þjóðfélagi, en gaman fyrir hann, þannig að að hver átti bílasöluna þar sem hann seldi bílanna?
Sonur hans, frændi konunnar hans? hvernig stendur á því? er eitthvað búið að skoða það, og út af hverju hafa fjölmiðlar ekki fjallað um þetta...
Hmm, ertu viss um þetta Helga?
18.03 2009 kl.11:17
Slóð
Já þetta er sorglegt hversu spilltir stjórnmálamenn eru og fátt virðist hafa breyst eftir hrun.
Hvernig bregðast Össur,Ingibjörg ,Jóhanna og Steingrímur við verður fróðlegt að sjá.
Þau hafa látlaust gagnrýnt aðra réttilega fyrir spillingu en nú reynir á heiðarleika þeirra fyrst Finnur hefur verið afhjúpaður.
18.03 2009 kl.11:25
Slóð
Hvað er að ykkur? Maðurinn seldi félagið og það sem í því var árið 2007. Kaupendur félagsins tóku yfir skuldir þess og eignir og hvað er þá málið? ”
Íslendingur - ...fyrst Finnur hefur verið afhjúpaður...”?? Afhjúpaður sem hvað? Maður sem seldi félag fyrir tveimur árum síðan og ber ekki ábyrgð á því lengur?
18.03 2009 kl.11:27
Slóð
Ef þetta er rétt, þá er svo sorglegt til þess að vita að Samfó og VG hafi ekki sagt neitt, því það er hreint ómögulegt annað en að þau hafi vitað af þessu.
Spilling er innan allra fjórflokkanna..... SKILIÐ AUÐU
18.03 2009 kl.11:31
Slóð
nei OK
Afhjúpaður sem mágur Össurar og ISG
18.03 2009 kl.11:34
Slóð
Finnur Sveinbjörnsson hefur sem sagt tekið eftir því að stemmningin í þjóðfélaginu er breytt. Það er ánægulegt.
Spurningin er hins vegar þessi:
Af hverju er Finnur bankastjóri í nýjum ríkisbanka?
Getur forsætisráðherra og/eða bankamálaráðherra svarað því? Ríkisstjórn Jöhönnu Sigurðardóttur.
18.03 2009 kl.11:39
Slóð
Nú er nauðsynlegt að hressa upp á minni fjórflokksins, taka fram potta og sleifar og heimsækja bankann sinn.
18.03 2009 kl.11:40
Slóð
Hugtakið að afhjúpa eitthvað er nú notað um það að ljóstra upp um misferli eða eitthvað álíka, ekki þegar talað er um ætterni manns, hvað þá þegar ætternið var öllum kunnugt fyrir löngu síðan. Ég sé ekki glæpinn hér.....
18.03 2009 kl.11:47
Slóð
Ég óska eftir afskiftum minna lána, kanski gekk ég of hratt um gleðinnar dyr eins og Finnur. Nú eru breyttir tímar og vill sitja við sama borð og Finnur og Birna.
18.03 2009 kl.11:51
Slóð
Slapp við 850 milljóna kúlulán.
Þegar Finni var sagt upp sem bankastjóra í árslok 2007 seldi hann félagið - hvernig er hægt að “selja” slíkt félag - hver keypti?
18.03 2009 kl.12:05
Slóð
Hum hvaða glæp hefur hann framið??
það er ekki glæpur að takka kúlulán .
það er glæpur að veita þau, þau eru og voru bara fyrir vini og kuniga, ekki mig eða almúan.
18.03 2009 kl.12:21
Slóð
“ÁTTAHUNDRUÐ OG FIMMTÍU MILLJÓNIR - EIGNARHALDSFÉLAG ”
Þetta eru stikkorðin. EINN MAÐUR FÆR 850 milljónir AÐ LÁNI - tryggingar eru í bréfunum OG ENGIN ER ÁBYRGUR EF ILLA FER!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Vinur Guðmundar Haukssonar væntanlega - eða í “réttu” klíkunni.
Þá skal ég segja ykkur annað dæmi frá SPRON.
Viðskiptavinur til 30 ára gengur inní SPRON og biður um að fá 3 milljón króna lán fyrir hlutabréfakupum. Bankinn krefur um tryggingar að sjálfsögðu.
Viðskiptavinurinn á sjálfur hlutabréf fyrir 1,5 milljón og svo eru tekin veð í nýju bréfunum. Lánið er körfulán.
Gengið á gjaldmiðlunum í láninu rýkur upp á örfáum mánuðum - SPRON VILL MEIRI VEÐ eigi þeir ekki að ganga að viðskiptavininum. UPPÁ VANTAR UM 650 ÞÚSUND.
Þeir krefja viðskiptavininn um VEÐ Í HÚSINU HANS!
Sem betur fer skilaði viðskiptavinurinn bréfunum, seldi sín og greiddi upp lánið.
ÞANNIG VINNUR SPRON M.A., LÁNAR VINUM OG VANDAMÖNNUM 850 !!!!!!!!!!! MILLJÓNIR VEÐLAUST --------------------
Litli trausti gúbbinn, með 30 ára flekklausa viðskiptasögu, er krafinn veðsetningar á húsi sínu FYRIR 650 ÞÚSUND KRÓNA VIÐBÓTARVEÐI!!!!!!
ÞANIG VINNUR SKÍTABANKINN SPRON MEÐ GUÐMUND HAUKSSON Í FARARBRODDI.
Banki sem vill við komum honum til bjargar þvi samninga eins og hann gerði við Finn SKIPTA ÞÚSUNDUM Í SPRON.
Þeir samningar verða EKKI GREIDDIR ÞVÍ ÞAÐ ERU ENGAR TRYGGINGAR Á BAK VIÐ ÞÁ.
VIÐ SKATTGREIÐENDUR SEGJUM NEI VIÐ SPRON - ÞEIR FÁ EKKI KRÓNU ENDA RÁÐSTÖFUÐU ÞEIR FÉ SÍNU TIL FÁRRA ÚTVALDRA - ÞEIRRA SJÁLFRA ÞAR Á MEÐAL.
18.03 2009 kl.12:27
Slóð
Hva... fengu ekki allir svona ókeypis lán eins og Finnur og Birna!
Eruð þið að segja að þau hafi fengið sérmeðferð af því að þau unnu í þessum fyrirtækjum? Nei, þið eruð að djóka!
Og fengu þau bankastjórastöður í verðlaun? Nei, það dytti engum í hug!
18.03 2009 kl.12:44
Slóð
Ég er sammála Sigga.
Við heimtum að fá eftirfarandi vitneskju frá “hreinskilna” Finni bankastjóra okkar eigin banka:
Hver keypti af þér félagið Finnur? Og með hvaða kjörum?
Vammlaus ríkisbankastjóri og ekki síst vegna mágsemdar sinnar við tvo ráðherra fyrri ríkisstjórnar sem réðu Finn sem bankastjóra skulda okkur skýringar.
Og hvað hafði Finnur sér til ágætis til að fá ráðningu í þessa mikilvægu stöðu umfran aðra umsækjendur?
Þeir eiga að svara því sem hlut eiga að máli.
18.03 2009 kl.12:47
Slóð
Hvar á þessi Finnur heima ?
18.03 2009 kl.12:48
Slóð
Oggggg eitt: Hver eyddi skuldfærslu Birnu í Gamla Giltni við hlutafjárkaup hennar. Ekki óbreyttur starfsmaður. Aðeins yfirmenn hafa aðgang að færa bakfærslur og hún sjálf var ein þeirra!
18.03 2009 kl.12:52
Slóð
@Óþekkur
Hjartanlega sammála þér - og ítreka það enn og aftur:
SKATTGREIÐENDUR MUNU EKKI TAKA ÞVÍ ÞEIGJANDI OG HLJÓÐALAUST
AÐ SPENRON OG
BYR FÁI KRÓNU - ÞVÍ VERÐUR SKO HARÐLEGA MÓTMÆT Á VIÐEIGANDI
STÖÐUM !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
18.03 2009 kl.12:57
Slóð
Hér eru smá spakmæli frá Finni frá 2008:
http://www.vidskiptabladid.is/frett/1/45440/
18.03 2009 kl.13:04
Slóð
Að maðurinn skuli voga sér að segja neðangreind orð bendir til að hann sé annaðhvort mjög illa gefirnn eða algerlega siðblindur.
Burt með þennan mann strax.
Hvíta Birna á líka að fara með honum.
Óþolandi að þetta spillta fólk valsi enn um rústir banakanna.
“Við getum alveg verið hreinskilnir við hvor annan. Auðvitað hefur margt breyst í þjóðfélaginu; stemnningin, viðhorf og gildismat í samfélaginu er öðruvísi en áður. Ég held að við getum bara horft í eigin barm og viðurkennt hreinskilningslega að við hugsum öðruvísi og metum hlutina öðruvísi heldur en var.”
18.03 2009 kl.13:14
Slóð
Sama vitleysan, Lán án veða,
Burt með Finn og burt með Birnu Bankaleysu.
18.03 2009 kl.13:16
Slóð
Helga, sigthor og fleiri.
Finnur Sveinbjörnsson er EKKI bróðir Hjörleifs og Árnýjar og þar af leiðandi ekki mágur Ingibjargar Sólrúnar og Össurar.
Einhver misskilningur hér á ferðinni.
18.03 2009 kl.13:23
Slóð
Samkvæmt ÍSLENDINGABÓK er Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings EKKI mágur Ingibjargar Sólrúnar og Össurar.
Þetta fétt ég auk þess staðfest núna beint frá framkvæmdastjóra Samfylkingarinnnar.
Innskot Helgu hér að ofan er því ekki sannleikanum samkvæmt!
18.03 2009 kl.13:24
Slóð
Það er alveg frábært að búsáhaldabyltinginn sé hætt að mótmæla það var bara til að koma Davíð frá eða hvað lýtur allt út fyrir það það er miklu meira að gerast í þessu þjóðfélagi og ég held að þeir sem mótmæltu sem mest ættu að taka fram potta og pönnur og byrja á nýjan leik og mótmæla á réttum stöðum því nú er Davíð farinn frá margir eftir kannski er rétt að þessi mótmæli hafi verið á vegum VG.og nú eru þeir komnir að þá þarf ekki að mótmæla lengur og Jón Balvin er þagnaður
18.03 2009 kl.13:26
Slóð
SUSS viðbjóðsleg er hún græðgin í fólki !!!!!!Burt með þessa spilltu einstaklinga og það strax!!!
18.03 2009 kl.13:28
Slóð
Finni til halds og traust sem hægri hönd er aðallögfræðingur Nýja Kaupþings.
Hann mun taka drjrjúgan þátt og af mikilli sérfræðikunnáttu í að meta stöðu mála tengdum gjörningum auðróna og þeirra hyskis í Gamla Kaupþingi.
Það sem gerir hann sérfróðari öðrum er sú undarlega staðreynd að hann var líka aðallögfræðingur Gamla Kaupþings og einn þeirra sem voru í aðalhlutverkum og arkitekt svínaríisins.
Hann var ritari bankastjórnarinnar og sat alla fundi, sem og sá sem bar ábyrgð á öllum lagalegum brögðum og brellum þessara vafasömu aðila og gjörningum þeirra.
Gott að vita einhverjir getað stólað á jafn reynslumikinn og traustan starfsmanni á launum frá almenningi við að bjarga því sem bjargað verður.
Verst að það eru Sigurður Einars og auðrónarnir sem eiga haukinn í horninu sem þeir getað treyst á að tekur þátt í björgunaraðgerðunum að stakri samviskusemi.
18.03 2009 kl.13:38
Slóð
já fínnt að hafa menn áfram sem kunna þetta og halda utan um okkur smælingjanna sem eiga að borga fyrir sukkið
18.03 2009 kl.13:40
Slóð
Miklar kjaftasögur hér á eyjuni,fólk hrópandi úlfur,úlfur mágur ÍSG og Össurar,þvílíkur brandari.Svo kemur það í ljós að það er enginn fótur fyrir þessum tengslum,hugsa meira og skrifa minna er mitt ráð.
18.03 2009 kl.13:43
Slóð
Helgi. Hvað með öll tilfellin sem hefur sannast að sögugrnar voru sannar og réttar, og hafað þar með forðað okkur frá meiri skaða en ella?
18.03 2009 kl.13:52
Slóð
Guðmundur Gunnarsson
Hvað hefur komið hér fram á eyjuni sem hefur verið rétt?
18.03 2009 kl.13:55
Slóð
Guðmundur Gunnarsson
Þá á ég við commentin
18.03 2009 kl.14:12
Slóð
Mér verður óglatt!!
Og þetta er nýi bankastjórinn!!
18.03 2009 kl.14:14
Slóð
Þetta slær nú allt út, bankastjóri Kaupþings mágur Ingibjargar og Össurar, auk þess að vera einn af ræningjunum, hann hefur þá góða aðstöðu til að fela slóð fjölskyldunnar.
18.03 2009 kl.14:42
Slóð
helgi. Öll tilfellin sem hafað endað með að einhver hefur sagt af sér eða látin fara sem og þau embætti sem hafað verið ráðið í eftir hörð skrif á Eyjunni og víðar.
Komið:
Tryggvi Jónsson rekinn frá Landsbankanum.
Allir bankastjórar ríkisbankana reknir.
Allir bankastjórar Seðlabankans reknir.
Stjórnin feld.
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins rekinn.
Björgvin G neyddur til afsagnar sem Viðskipta og bankamálaráðherra.
Lúðvík segir af sér sem þingmaður.
Björn Bjarna segir af sér sem þingmaður.
Geir H Haarde segir af sér sem formaður og þingmaður.
Árni Matthiesen segir af sér þingmennsku.
Björn Hrafnsson segir af sér sem borgarfulltrúi.
Ráðning Evu Joly.
Fjölgun í rannsóknargengi sérstaks saksóknara.
Fjölgun rannsóknaraðila í Fjármálaeftirlitinu.
...
Að gerast:
Logos sparkað og nýr skiptastjóri ráðinn.
Ópólitískur Viðskipta - og bankamálaráðherra.
Ópólitískur Dómsmálaráðherra.
Bankaleyndin afnumin.
Forsetann burt.
Þetta er það sem ég man eftir í svipin, og endilega bæta við fleiru.
18.03 2009 kl.15:47
Slóð
Helvítis drullusokkurinn,í fangelsi með hann og það strax.Hvað ætla fjármála og viðskiptaráðherrar að gera, ætla þeir að láta kyrrt liggja eða reka þeir manninn.Ég bara spyr , vegna þess að ég var að hugsa um að fara í minn banka og slá lán og borga það alls ekki.
18.03 2009 kl.16:15
Slóð
ÞIÐ ÖLL SEM HALDIÐ ÞVÍ FRAM AÐ FINNUR SVEINBJÖRNSSON SÉ MÁGUR INGIBJARGAR SÓLRÚNAR. Verið svo væn að útskýra hvað þið eigið við. Samkvæmt Íslendingabók er hann ekki bróðir Hjörleifs og Árnýjar, þannig að þá er einungis sá möguleiki eftir að hann sé giftur systur (eða bróður) Ingibjargar Sólrúnar. ER ÞAÐ SVO? Spyr sú sem ekki veit, - ég veit ekki einu sinni hvað Ingibjörg Sólrún kann að eiga af systkinum.
18.03 2009 kl.16:31
Slóð
Oj barasta - og Finnur einn af auðsóðunum?
Mér er barasta öllum lokið.
Svei attan og fari í fúlan pytt allt þetta hyski sem sölsar undir sig erfiði hins almenna launamanns.
18.03 2009 kl.17:22
Slóð
Guðmundur Gunnarsson
Ég vitnaði í comment hér á eyjuni sem fólk er að skrifa,taktu eftir Guðmundur comment ekki skrif ritstjóra eyjunar.
18.03 2009 kl.17:24
Slóð
Aðalmálið hér hlýtur að vera hvað Finnur ætlar að gera við 16mkr tapið. Ætlar hann að hlaupa frá því og gera félagið gjaldþrota? Þetta er eignarhaldsfélag um þessi einu kaup og ekki í rekstri, þannig að gjaldþrot þess er það sama og gjaldþrot hans sem einstaklings. Hann getur ekki haldið áfram sem bankastjóri ef hann ætlar að setja sitt félag í gjaldþrot.
18.03 2009 kl.17:57
Slóð
NÝ FRÉTT - NÝ FRÉTT
Ása Gróa Hrollaugsdóttir póstburðarkona slapp undan 14 milljóna fasteignláni. Lánið var tekið til að standa straum af greiðslum til eiginmanns Ásu Gróu á hlut hans í einbýlishúsi þeirra hjóna. Þegar húsið brann svo skömmu fyrir jól seldi hún slökkviliðinsu aftur sinn hlut fyrir 300 krónur og var skuld hennar þá felld niður af bankanum enda ekkert eftir af húsinu eða eignarhluta hennar í því. Eftir standa þó skuldir fyrir hreinsikosnaði á lóðinni en þær munu sitja eftir í brunarústunum.
Ásu Gróu er mjög létt enda slapp hún fyrir horn. Hún telur ekkert óeðlilegt við þessa fyrirgreiðslu bankans þar hann er í opinberri eigu líkt og slökkviliðið.
18.03 2009 kl.17:58
Slóð
Allar þessar fréttir hljóma álíka ruglaðar og bullið í mér hér að ofan :)
18.03 2009 kl.18:02
Slóð
helgi. Taktu eftir. Þau mál sem ég bendi á hafa mörg hver ekki verið tekin upp af ritstjórum fyrr en þau hafa verið borin upp fyrst af þeim sem commenta hér, og við þau sem ritstjórar hafa sett á stað hafa komið nýir vinklar.
Td. við þennan þráð bendi ég á að einn nánasti aðstoðamaður bankastjóra Kaupþings er aðallögfræðingur bankans.
Sá og hinn sami var það einnig einn nánasti aðstoðarmaður bankastjórana í gamla bankanum og beinn þáttakandi í öllu svínaríinu og þykist vera að verja hagsmuni almennings á meðan hann felur slóð auðróna og þeirra vini.
Traustvekjandi, - ekki satt?
Hann var ritari bankastjórnarinnar og sat alla fundi og beinn ráðgjafi og leiðbeinandi lagalega séð hvernig best væri að staðið í svínaríinu.
Er búist við að aðili sem slíkur vinni að heilindum að upplýsa þátt sinn í öllu því sem óhreint er?
Varla er hann svo vitlaus.
Svona gerist það á kommentakerfinu og það sannar ágætlega ágæti sitt og styrk einmitt með upplýsingum eins og þessum, og ekki nema von að fólk er búið að fá meira en nóg af hvernig er staðið að málum í þessum sjónhverfingarugli stjórnvalda til að villa um fyrir almenningi að þeir eru að alvöru að vinna að leita réttar þjóðarinnar og hafa hendur á þeim seku og ná þýfinu.
18.03 2009 kl.18:04
Slóð
ISG á að ég held einn bróðir og hann heitir Gísli
18.03 2009 kl.18:05
Slóð
Leiðrétting hann heitir Óskar.
18.03 2009 kl.18:22
Slóð
Skoðun og mat Finns: Það má hafa margar skoðanir og tíðarandinn hefur breyst.
18.03 2009 kl.18:26
Slóð
Guðmundur Gunnarsson
Við búum á íslandi það sem allir þekkja alla,og allir eru skildir (samkvæmt íslendingabók)er ekki eðlilegt í eins stórum vinnustað eins og kaupþing að einhverjir eru vinir eða skildir.
18.03 2009 kl.18:33
Slóð
Guðmundur Gunnarsson
Það sem ég er að gagnrýna er,að fólk á að vera vandaðra í orðavali og ekki að vera að koma með fleipur sem enginn fótur er fyrir.
18.03 2009 kl.19:26
Slóð
Ennþá vinna sjóðsstjórar og greiningardeildir á sömu starfsstöðum innan bankanna. Oftast með sömu kaffistofur og dæmi um að þeir hafi verið í sömu opnu rýmunum.
Það þykir ekki ennþá neitt athugavert við að mönnum sem ekki eiga að fá fréttir hvor af öðrum nema opinberlega sé beinlínis stillt upp til þess að fá að vingast hver við aðra.
18.03 2009 kl.21:57
Slóð
Stemmnningin í þjóðfélaginu og viðhorf eru þessháttar að þú og þínir líkir hverfi á braut , það mun enginn sakna ykkar
18.03 2009 kl.22:22
Slóð
Hvenær fær þjóðin að vita sannleikann - eftir kosningar?
Hvað með afskriftir fyrir:
Siv Friðleifsdóttur
Lúðvík Bergvinsson
Árna Matt vegna m.a Heklu sem er í eigu mágs hans?
Keflavíkurflugvöll og bróður hans, Árna hann Þorgils Óttar?
Hvað með Össur?
Björgvin G. Sigurðsson og myntkörfulánin sem hann á að hafa tekið?
Hvað með Þorgerði Katrínu?
Bankaleynd er hlægilegt fyrirbrigði hér á landi og hvað þaðrf eiginlega að koma til svo að afléttun á henni sé talin nauðsynleg?
Í hvað fóru 187 miljarðar frá IMF ?
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra talaði um 98 miljarða sem Tchenguis skuldaði Kaupþingi en Gylfi var snarlega leiðréttur af húsmóður einni úti í sal á sl. Borgarafundi sem sagði Tenguis skulda 248 miljarða en ekki 98. Gylfi yppti þá bara öxlum og glotti, sagði bara o.k 248 - what ever?
Er þetta fólkið sem á að stjórna landinu áfram, ég bara spyr.?
Þá er eins gott að fara og pakka niður.
Það verður ekki búandi hér í þessu vitleysingslandi í framtíðinni.
18.03 2009 kl.22:39
Slóð
Voðalega getur fólk verið skrítið. Haldið þið virkilega að það séu mótmæli í landinu núna? Af hverju ættu að vera mótmæli? Mótmælendur með Hörð Torfa á sviði hafa fengið villtustu drauma sína uppfyllta, Samspillingin og Villta vinstrið er komið á leiksvið og þá eru allir happí, fjölmiðlar líka, þeirra fólk kið á kötlunum, sjáið bara drottninguna á mbl.is - hver leikfléttan á fætur annarri og Eva Björg fær meira að segja að vera með. Gaman og allir hamingjusamir á Íslandi á ný. Af hverju ættu menn að mótmæla? Fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, þegar allt hrundi, er nú orðinn ráðherra með ekkert atkvæði á bak við sig. Þetta verður ekki betra.
18.03 2009 kl.23:43
Slóð
Það er ekkert ólöglegt við að banki fari á hausinn - ekki frekar en að fataverslun fari á hausinn. Bankar hafa farið á hausinn svo skiptir þúsundum í gegnum árin og aldirnar - út um allar trissur. Banki er ekki eign eins eða neins annarra en hluthafanna. Fólk ber að gæta sinna fjármuna og láta ekki hvaða banka eða verðbréfasjóð fá þá.
Þannig var það í den - en núna þegar ríkið á að passa allt og alla, þá heldur fólk að allt sé öruggt. Það sé í lögum eða í reglugerð einhvers staðar. Maturinn skal vera hollur, kleinurnar rétt steiktar, læknirinn vandaður, bankinn traustur, launin góð og engin flensa.
Þannig er því miður ekki lífið. Fyrir örfáum áratugum geymdi fólk peningana undir dýnunni heima hjá sér, treysti ekki bönkunum því þeir gátu farið á hausinn. Sem þeir og gerðu og gera.
Svo fær flensu - þrátt fyrir að til væri Flensueftirlit Ríkisins með stjórn, starfsmönnum, reglum og virðulegum forstjóra.
18.03 2009 kl.23:48
Slóð
Svo virðist sem ríkisstjórnin sé að gugna á því að breyta lögum um bankaleyndina.
Sérstaki rannsóknardómarinn af Skaganum situr þá áfram og bíður eftir því sem ekki kemur, þ.e. málin frá FME.
Ekki hefur hann kjark til að hefja rannsókn að eigin frumkvæði.
19.03 2009 kl.01:04
Slóð
Guðmundur Gunnarsson bendir á eftirfarandi:
Finni til halds og traust sem hægri hönd er aðallögfræðingur Nýja Kaupþings. Semsagt sami gaurinn og var hjá “gamla” Kaupþingi.
Hann heitir Helgi Sigurðsson og ber alla ábyrgð á afskriftum lána stjórnenda bankans vegna hlutabréfakaupa í honum, þ.m.t. sínum eigin lánum! Og hefur sjálfur gengist við því blygðunarlaust!
Hvernig má það vera að sá siðspillti lagaflækjumaður gegni áfram sínu starfi hjá nýja ríkisbankanum OKKAR?
Er ekki lágmark að skipt sé út fólki þegar siðleysið blasir við - og ekki hefur enn verið rannsakað hvort sú aðgerð stenst fyrir dómstólum (t.d. gagnvart öðrum hluthöfum).
Þvílíkur ósómi og hneyksli.
19.03 2009 kl.01:05
Slóð
Er umræddur Finnur mágur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur ? Er hann bróðir ektamaka fyrrum utanríkisráðherra og formanns Samfylkingarinnar ?
19.03 2009 kl.01:06
Slóð
Og er hann mágur Össurar þá líka ?
19.03 2009 kl.09:07
Slóð
Hvenær ætlar fólk að vakna?
Þetta lið sem bera stórkostlega ábyrgð, nær langt inn í hóp starfsamanna nýju bankanna og gætir hagsmuna sinna og auðrónanna.
Hagmunir þeirra fara einfaldlega afskplega vel saman.
Lærðum við ekkert á lygavaðlinum í brottrekna parinuTryggva Jónssyni og Elínu bankastýru Lansbankans nýja?
19.03 2009 kl.09:29
Slóð
Kjósandi
Ef þú hefðir lesið þráð ummælanna hefðir þú séð að það er rangt að Finnur sé bróðir Hjörleifs og Árnýjar Sveinbjörnsbarna og þar með er hann ekki heldur mágur Össurar og Ingibjargar Sólrúnar.
Svona fullyrðingar eru bara í stíl við árásir nýju sápuvélarinnar hjá Framsókn
19.03 2009 kl.14:04
Slóð
Ekki veit ég hvort ISG á bróðir sem heitir Gísli eða Óskar en víst er að hún á bróðir sem heitir Björgvin og er einn af betri gítarleikurum hér. Var meðal annars í Náttúru forðum með Pétri Kristjáns heitnum.
En ISG á mann sem heitir Hjörleifur og er Sveinbjörnsson og það er merkileg tilviljun að Finnur bankastjóri er líka Sveinbjörnsson. Það var Finnur sem afrekaði það, að næstum því setja Icebank á hausinn í bullandi góðæri og uppsveiflu. Hinsvegar er hann ekki bróðir Hjörleifs manns ISG þrátt fyrir óskhyggju ýmissa þar að lútandi.
19.03 2009 kl.17:20
Slóð
Eigendur bankans ákváðu að lána manninum sem þeir voru að ráða í vinnu til að kaupa í bankanum. Það eru þeir sem sætta sig við veðið í bréfunum.
Tilgangurinn er að auka hvata hans til að auka virði bréfanna sem stjórnandi bankans og gera þ.a.l. veðið betra og hlut þeirra verðmeiri.
Þetta klikkar svo hann er rekinn og þarf eðlilega að losa sig við bréfin/lánið.
HVAR ER GLÆPURINN?
02.11 2009 kl.09:33
Slóð
Tid aettud öll ad fara ad berja potta og pönnur nidur á Austurvelli.
Krefjast tess ad spillingunni verdi útrymt!!