Femínistafélag Íslands fordæmir auglýsingu sem Samtök iðnaðarins birtu í dagblöðunum í morgun undir fyrirsögninni „Velur þú fagmann eða fúskara?“ Verið sé að nýta neyð kvenna í auglýsingunni.
Femínistafélagið segir í tilkynningu sem það sendi fjölmiðlum að í auglýsingunni standi sveittur karl með sprautu yfir nöktum og glenntum fótleggjum sem greinilega tilheyri konu. Myndin ásamt yfirskriftinni sé skýr tilvísun í ólöglegar fóstureyðingar.
Femínistafélagið segir að ólöglegar fóstureyðingar hafi sem betur fer ekki verið nauðsynlegar á Íslandi í langan tíma. Á þeim tímum og stöðum þar sem þær séu framkvæmdar séu þær neyðarúrræði kvenna sem hafi í för með sér líkamlegar og andlegar þjáningar.
Femínistafélag Íslands formdæmir harðlega að Samtök iðnaðarinns skuli nýta sér neyð kvenna í auglýsingum.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
71 ummæli
Rita ummæli29.04 2009 kl.11:20
Slóð
Bíddu - hvernig tengja þeir þetta við fóstureyðingar? Mér datt einfaldlega í hug kvensjúkdómalæknir þegar ég sá þetta. Femínistafélagið enn og aftur á villigötum?
29.04 2009 kl.11:24
Slóð
Kexruglaðir feministar og aðrir öfgahópar eru af hinu slæma, en eflaust má agnúast út í þessa fremsetningu á skilaboðum samtaka iðnaðarins. Þessu hefði verið hægt að koma á framfæri á annan hátt.
En hvenær ætlar öfgahópurinn sem kennir sig við feminista að fara að berjast fyrir þeim sjálfsögðu mannréttindum barna að fá að umgangast báða foreldra sína?
29.04 2009 kl.11:26
Slóð
Fáránleg auglýsing og nú fara hálfvitar netsins eins og t.d. Ragnar á kreik.
Samtök iðnaðarins ættu að skammast sín.
29.04 2009 kl.11:27
Slóð
Atli
Sóley Tómasdóttir sér reðurtákn í hverju horni....og klofi. Og svo skella þær þessu á okkur því við viljum allir niðurlægja þær.
Þeim er kennt þetta í Kynjafræðinni við HÍ eða réttara sagt kenna þær hver annarri þetta og annað bull án nokkurrar viðurkenndra fræðilegra tengsla við annað.
Það sama gerðist hjá Múslimunum þegar öfgamennirnir tóku yfir þau trúarbrögð (eru í eðli sínu full af kærleika) og sneru þeim yfir í kreddur og túlkuðu þær síðan út og suður.
Ég held reyndar að þessi reðurótti þeirra eigi meira skylt við bælingu sem brýst svona út hjá stúlku greyjunum.
29.04 2009 kl.11:28
Slóð
Nánast viðbjóður.
Ég þarf að fara í dálítið viðhald á húsinu og mun nú nota „fússkara“ eins og ég get.
Hvet alla til þess sama!
29.04 2009 kl.11:29
Slóð
Þið eruð aldeilis toppmenn sem komið með athugasemdir hér, virkilega smart og málefnalegt!
29.04 2009 kl.11:30
Slóð
Sammála Ósk,
til hverra á þessi mynd eiginlega að höfða,
mér finnst þetta vera fyrir neðan allar hellur,
29.04 2009 kl.11:30
Slóð
AB
Gott hjá þér.
Ég er með einn á mínum snærum.
Hvað er vandamálið hjá þér?
Ég meina, hefur það eitthvað með pípulagnirnar hjá þér að gera eða...?
Við reddum öllu.
29.04 2009 kl.11:31
Slóð
Auglýsingin er góð. Fúsk er dauðans alvara.
29.04 2009 kl.11:31
Slóð
Ég sé ekki að þetta séu neitt frekar toppstelpur ef þær kenna aumingjans auglýsingargerðarmanninn við kvenofbeldi og fleira í þeim dúr í þessari saklausu auglýsingu...
29.04 2009 kl.11:34
Slóð
Furðulegir þessir feministar
29.04 2009 kl.11:36
Slóð
Hvaða viðkvæmni er þetta...þetta er tvíræð auglýsing og femínistarnir mega ekki taka þessu svona bókstaflega. Hefðu þær sagt eitthvað ef maður hefði legið á bekknum og kona verið framkvæma aðgerðina? Fullt af fátækum einstæðum körlum í heiminum sem eiga ekki fyrir læknisaðgerðum, og væri þá ekki verið að nýta sér neyð þeirra? Ég fór einu sinni á fund hjá femínistafélaginu og tel það gegna göfugum tilgani, en stundum skjóta þær svolítið hátt yfir markið.
29.04 2009 kl.11:42
Slóð
Mér finnst þetta samt anga af kvenfyrirlitningu - sorry strákar en þessi auglýsing undirstrikar enn og aftur hlutverkaskiptingu karla og kvenna, svona í stíl við Talíbana.
Karlmaðurinn er læknir, fyrirvinna, í dóminerandi stöðu gagnavart hjálparvana konu sem liggur alveg berksjölduð.
Þessi auglýsing undirstrikar eiginlega allt sem ég hélt að væri löngu horfið ú íslensku samfélagi. Greinilegt er á kommentunum hér að viðhorf karla er greinilega á talíbana/kromagnon stiginu ennþá. Sorglegt
29.04 2009 kl.11:43
Slóð
Þetta er karlmannsfótleggur!!!!!!!!!
29.04 2009 kl.11:44
Slóð
Nei ÆGIR.. .hann er ekki læknir... Hann er glæpamaður, fúskari...
Og sem karlmanni ætti mér að blöskra það að við erum gerðir að fúskurum en ekki konur?...
29.04 2009 kl.11:45
Slóð
Gæti þetta ekki vel verið karl með rakaða og kvenlega fótleggi að fara í pungaðgerð?
29.04 2009 kl.11:45
Slóð
“Pick your battles” er orðtak sem mætti hamra inn í hausinn á þessum kynlegu kreddubreddum. Það markverða sem kemur frá þeim gjörsamlega drukknar í endalausu flóði af innihaldslausu smásmyglisnöldri.
29.04 2009 kl.11:46
Slóð
Held að allir geti verið sammála um að þetta er algjörlega misheppnuð auglýsing, hvort sem þeir skilgreini sig sem feminista eða ekki.
Er ekki verið að vara við iðnaðarmönnum, hvar koma heilbrigðisstarfssmenn inní þetta????
Hver er hugmyndasmiðurinn á bak við þetta, hvaða hvatir liggja að baki hjá honum?????
29.04 2009 kl.11:46
Slóð
Já Geir þetta er bara fínlegur karlmaður. Eiga þá ekki fínlegir karlmenn að mótmæl. ÚFF svakalega er maður orðinn leiður á þessari vitleysu. Geta bara femmarnir flutt í burtu og verið samna og látið okkur í friði.
29.04 2009 kl.11:46
Slóð
Ég fordæmi harðlega að Feminísta félag Íslands skuli vera svona ótrúlega hörundsárt.
Það dettur engum heilvita manni í hug að gera lítið úr neyð kvenna og svona málflutningur veikir bara málstað þessa félags.
29.04 2009 kl.11:49
Slóð
Sparnaður: leggja niður kynjafræði við HÍ ... kynjafræði amk eins og hún er kennd við HÍ er eins og að kenna eingöngu marxisma í stjórnmálafræði
29.04 2009 kl.11:50
Slóð
Annað sem er svolítið fyndið: Þetta er klúbbur örfárra stelpna sem senda út fréttatilkynningu og allir gleypa. Best er nú bara að láta þessa örfáu femma eiga sig.
29.04 2009 kl.11:50
Slóð
Ok.. lítum á þetta frá öðru sjónarhorni
Er það ekki niðurlægjandi fyrir karlmanninn að vera settur í hlutverk fúskarans?
Eins og konur séu alltaf fórnarlömbin og kallarnir vondu kallarnir og svindlarar?
Ég held perónulega að hlutverk þessarar auglýsingar sé einfaldlega að vekja athygli fólks, en ekki að setja kynin í einhver “hlutverk”
29.04 2009 kl.11:52
Slóð
Hefur ekkert með feminisma að gera. Þetta er bara léleg auglýsing.
29.04 2009 kl.11:52
Slóð
Jú, ég sé það núna....
Þetta er ekki kona á bekknum, heldur lady-boy sem er búinn að vera í hormónameðferð.
Hann er kominn með brjóst og laus við hár á fótum.
Þarna er verið að undirbúa lokaatriðið í kynskiptingu hans, skera af honum slátrið og breyta því í vagina (má segja það?).
Þetta er stórkostlegt brot á rétti þeirra manna sem vilja verka konur/kellingar.
Mér er misboðið að læknirinn sé ekki kona heldur greinilega siðlaus perri sem ætlar að misnota sér mein drengsins sem liggur varnarlaus á bekknum og bíður þess að fá píku/vagina....
Þetta er óhugnalegt og sem verðandi kona þá frábið ég mér allar svona auglýsingar enda er mér misboðið mjög....
29.04 2009 kl.11:56
Slóð
AÞ kl. 11:46
Það er verið að vara við fúskurum. Eru iðnaðarmenn fúskarar í þínum huga?
29.04 2009 kl.12:05
Slóð
Ég mótmæli þessarri auglýsingu harðlega.
Þetta er árás á okkur karlmenn og þessi auglýsing er pottþétt gerð af konu (eða homma).
Ég meina, læknirinn, karlmaður, er gerður bæði ljótur og perralegur.
Af hverju?
Ég mótmæli harðlega og er misboðið fyrir hönd kk. að við skulum vera sýndir í þessul ljósi (læknisins/fúskarans).
Mig grunar að konan sem hannaði þessa auglýsingur hafi lært Kynjafræði við HÍ ásamt Sóleyju Tómasd.
Talibanar og aðrir karlhatarar ganga sífellt lengra. Tel fulla ástæðu til Sifjadeild Sýslumanns kanni hag kk.barna þessarra kvenna því margt bendir til þess að þeir geti verið í mikill hættu.
29.04 2009 kl.12:06
Slóð
Atli.
Í reglubundnum skoðunum þínum hjá kvensjúkdómalæknum hefur þú máske orðið fyrir því þar sem þú liggur nakinn á bekk, með fætur í köldum ístöðum, kynfæri þín beruð ókunnugri manneskju án þess að vera fær um að sjá hvað viðkomandi er að gera, að reidd sé á loft og munduð sprauta í ofurstærð.
Slíkt þekkist hins vegar ekki í almennum heimsóknum til kvensjúkdómalækna og það er ekkert við þessa mynd sem endurspeglar reynslu venjulegrar konu af slíkri heimsókn.
Það er óheppilegt fyrir SI að helmingur samfélagsins skuli vera konur, sem þekkja af eigin raun þær tilfinningar sem fylgja slíkum skoðunum og túlka munu þessa ljósmynd útfrá eigin upplifun. Fjöldi kvenna greinist og lætur lífið árlega af völdum leghálskrabbameins og vitað er að ein af megin orsökunum er að “skoðanir” líkt og sú sem sýnd er á myndinni eru fjölda konum svo þungbærar að þær treysta sér illa til að undirgangast þær.
En þú hefur kannski aðra sýn eða skilning á þessu sem þú værir tilbúinn til að upplýsa okkur konur og femínistadruslur um?
29.04 2009 kl.12:06
Slóð
Ég er ekki alveg að sjá vandamálið við þetta, nema hvað að með því að gera endalaust aumingja úr konum þá grafa feminstar undan sjálfum sér og þessari svokölluðu “baráttu” sinni. Grenja yfir nánast öllu. Ógeðslega aftarlega á merinni hér á Íslandi og í raun alveg afvegaleiddar.
Ég sá ekki fóstureyðingu frekar en hvað sem er annað sem gerist á milli lappa.
Ég sá auglýsingu sem á að höfða til kvenna.
29.04 2009 kl.12:07
Slóð
Ég hef nú aldrei verið aðdáandi Feministafélags Íslands og rifist við þær hér á netinu meira en hollt er.
Núna er ég hinsvegar sammála þeim og ég skil ekki hugmyndafræðina að láta sér detta þetta í hug af ÖLLUM HLUTUM til að sýna fúskara innan iðnaðarmannastéttar.
Þætti það sama ef þetta væri kvenkynslæknir að fara að misnota eða meiða eða “fúska” dreng...en svona í alvöru, við vitum held ég öll að svoleiðis auglýsing yrði aldrei gerð...það er nefnilega rétt hjá Feministafélaginu að svona lagað er ennþá 2009 bundið við konur.
29.04 2009 kl.12:10
Slóð
Þetta er víst skírskotun í fóstureyðingu - ég kannast ekki við það að við konur fáum spautu í klofið, í þessari stellingu, af neinni annarri ástæðu en vegna fóstureyðinga.
þetta er mjög augljóst
og þetta er ógeðslegt.
29.04 2009 kl.12:12
Slóð
Þetta nálgast að vera klínískar ranghugmyndir hjá femínistum að túlka þetta á þennan veg. Þær hafa greinilega ekkert annað viðfangsefni.
29.04 2009 kl.12:13
Slóð
Ég veit ekki hvort ég á að þora segja þetta hér.... en mér finnst þetta afar erótískt, nánast sexý, en þetta kveikti allavega í mér.
Sorrý, við eru ekki allar eins. Eða sem betur fer kannski.
29.04 2009 kl.12:17
Slóð
Bryndís.
Má þá ekki draga þá ályktun að kona eða kvensjúkdómalæknir hafi gert þessa auglýsingu?
Ég þekki ekki marga karlmenn sem eru svona vel að sér um hvað gerist þegar konur fara í skoðun, og þaðan af síður svo vel að hægt sé að smíða auglýsingu með jafn augljósri skírskotun í fóstureyðingar eins og þú kallar það.
Hitt er svo annað mál að þessi auglýsing er léleg um það er varla hægt að deila, en að gera þetta að einhverju meira en það er paranoja á versta stigi.
29.04 2009 kl.12:39
Slóð
Auglýsing á neið kvenna eða byggð á íllmensku karlmanna. Hvorutveggja vont en málin reddað auglýsingin hefur verið dregin til baka.
Rétt að stofna nemd útvaldra þar sem femenistar eru í forsvari sem fer yfir allar auglýsingar sem ákveða hvort þær eru boðlegar saklausum Íslenskum sveitalubbum og borgarblesum.
Frelsi og tjáningar. Hvað er það að þvælast fyrir kreddufullum körlum og konum????
29.04 2009 kl.12:43
Slóð
Þetta er löngu tímabær auglýsing, því fúsk er dauðans alvara.
Við þurfum ekki að líta lengra aftur en til gærkveldsins til að skilja alvöru málsins. Þegar tugir barna hlutu næstum stór skaða vegna fúsks á vinnu svala sem hrundu undan þeim.
En þarna hittu Samtök iðnaðarins svo sannarlega naglann á höfuðið og ef feministum fynnst þetta svo léttvægt málefni að þeir geti leyft sér að útþynna það með fordómum í garð karkyns lækna í bílageymslum og listræns frelsis.
Þá vorkenni ég þeim.
Já, þó þið geti vaðið yfir flest í krafti frekju og pólitískrar rétthugsunar þá skulu þið ekki komast upp með að setja börnin okkar í hættu.
29.04 2009 kl.12:50
Slóð
Ég er algjörlega ósammála nöfnu minni hér að ofan.
Þessi auglýsing er ógeðsleg.
Merkilegur fjári hve margir telja ástæðu til að djöflast sérstaklega á nafngreindum feministum vegna þessa. Ég hef ekki hitt eina konu, sem er sátt við þessa auglýsingu.
29.04 2009 kl.13:05
Slóð
Hvað er að!! ekkert má á þessu guðsvolaða landi, fólk hefur engann húmor og tengir allt einhverri kynjamisnotkun, Feministar er bara bæða asnaleg og aumkunarverð samtök einhverra kellinga sem engir karlmenn hafa lyst á.
29.04 2009 kl.13:17
Slóð
Neyð kvenna hvað?
Hvað með aumingja heimilislækninn á myndinni?
Enginn vorkennir honum. Hvers á hann að gjalda?
29.04 2009 kl.13:33
Slóð
Auglýsingastofurnar hér eru að skila almennt flottum afurðum.
Þetta er ósmekklegt og gert af vanþekkingu!
29.04 2009 kl.13:47
Slóð
ASNAR.
29.04 2009 kl.14:02
Slóð
Dj. kjaftæði. Femínistafélag Íslands. Ótrúlegar. Í rauninni afar svona VG legt.
29.04 2009 kl.14:42
Slóð
Helvíti er ,,hún” loðun á lærunum, ætti ..hún” ekki að vera loðin um lófana ?
29.04 2009 kl.14:47
Slóð
ég verð að segja ég elska konur út af lífinu , en mikið rosalega geta sumar þeirra vælt yfir gjörsamlega öllu. Ef karlmenn værum vælandi yfir öllu hvernig væri þetta þjóðfélag. Suckit up girls :)
29.04 2009 kl.15:16
Slóð
Feministar eru öfgafullur jaðarhópur í ætt við hústökufólk og hjálpræðisherinn. Eiginlega sambland af hvoru tveggja. Furðulegt að það alltaf verið að minnast á í fjölmiðlum hvað þeim finnst um þetta eða hitt. Hverjum er ekki sama.
29.04 2009 kl.15:49
Slóð
Ég get nú með engu móti séð hvernig hægt að flokka hjálpræðisherinn í þessum flokki Andri.
29.04 2009 kl.16:08
Slóð
Siðleysi íslendinga ríður ekki við einteyming ef dæma má auglýsinguna sjálfa og bloggfærslur margar hér að ofan. Skammist ykkar þið sem ekki skiljið hið ógeðfellda sem í þessu fellst. Ekki skrítið að illa er komið fyrir landinu með svona fólk búandi í því.
29.04 2009 kl.16:31
Slóð
súbbuleg auglýsing ekki spurning
Femínistafélagið hefur rétt fyrir sér
spurning frekar um siðferðismeðvitund fólks sem finnst þetta vera í lagi
29.04 2009 kl.16:36
Slóð
Það var nú ekki minni auglýsingastofa en Hvíta húsið sem gerði auglýsinguna. Hér er yfirlýsing frá þeim:
http://www.si.is/malaflokkar/markadsmal/markadsfrettir/nr/3736
29.04 2009 kl.17:09
Slóð
Algjörlega sammála henni Guðrúnu og þeim örfáu sem hér skilja eftir sig athugasemdir af viti.
Við erum í vondum málum með þessa vesalings kjána sem hér fara offari gegn konum sem barist hafa fyrir réttindum kvenna og barna.
Ég vildi ekki þurfa að eiga neitt undir þessum sóðum sem skvetta hér úr ömurlegum hlandkoppi hugsana sinni yfir fréttina.
Er það nema von að við séum illa sett á þessu landi.
29.04 2009 kl.17:13
Slóð
Guðrún og Jenný Anna hyggja á krossferð gegn hlandkoppum.
29.04 2009 kl.17:50
Slóð
Spotti !
Þú átt verulega bágt. Og miðað við fjöldann af ömurlega siðlausum bloggfærslum hér að ofan er landið að mestu siðlaust og vel að efnahagsástandi sínu komið.
29.04 2009 kl.17:54
Slóð
Voðalega eru kynbræður mínir viðkvæmir fyrir gagnrýni.
Mér finnst þessi auglýsing hálf misheppnuð og sé ekkert að því að hún sé rædd og gagnrýnd .. án þess að ráðist sé á viðkomandi með offorsi.
29.04 2009 kl.17:55
Slóð
Þá er ég ekki bara að tala um þessa auglýsingu. Sama hvað femínistasamtökin senda frá sér .. að sumir karlmenn líta á það sem persónulega árás á sig .. sama hvað það er.
Sérstakt.
29.04 2009 kl.18:03
Slóð
Æi hvað það er sorglegt að sjá hvað það er margt ómálefnalegt fólk að commenta á netinu alltaf hreint.
Gott þegar fólk rökræðir og hefur mismunandi skoðanir en margar athugasemdirnar hér eru svo hallærislegar að fólk ætti að skammast sín fyrir að hafa “misst ” þær út úr sér :(
29.04 2009 kl.18:03
Slóð
Held að eina ástæðan fyrir því að allir voru ekki sammála um að auglýsingin sé óviðeigandi hafi verið... FEMINISTAFÉLAGIÐ...
Það hefur bara átt við PR vandamál...
Og hananú...
peace...
29.04 2009 kl.18:11
Slóð
Einkennilegt hvað sumum veður umhugað um dindilinn á sér þegar Femisinstar láta í sér heyra. Hef einhvern veginn á tilfinningunni að sumum ,,karlmönnum” finnist feministar á einhvern hátt vega að ,,karlmennsku” þeirra með því einu að vera til. Mér dettur helst í hug að það sé getuleysi þessara manna sem reka þá til að vera með þennan subbuskap í garð kvenna.
29.04 2009 kl.18:11
Slóð
Áuglýsingin er gerð af konum fyrir konur!
Það er ekki hægt að áfellast Saxa lækni þó að hann hafi verið fenginn sem fyrirsæta á þessa mynd.
Konur eru konum verstar!
29.04 2009 kl.18:24
Slóð
Sorglegt hvað við femínistar eigum langt í land... Ég skil ekki hvað fólk á bágt með að skilja hlutverk femínista. Við erum ekki einungis að berjast fyrir jafnrétti, heldur líka fyrir viðhorfsbreytingum. Að sumum ykkar skuli finnast auglýsingin í lagi og sýna svo svona lítilsvirðingu gagnvart systrum ykkar, dætrum og mæðrum. Finnst ykkur kannski bara cool að þola ekki femínista? Skoðið auglýsinguna aðeins betur og veltið því fyrir ykkur hvaða skilaboðum sé verið að koma fram... Ef þið eigið enn erfitt með að skilja pointið hjá okkur femínistum þá verð ég nú að segja að dóttir mín og sonur eiga stórt verk fyrir höndum...
29.04 2009 kl.18:44
Slóð
Þessi auglýsing er ekkert að frekar að sýna fóstureyðingu heldur en t.d. ferð til kvensjúkdómalæknis sem hefur ekki próf.
Það er ekki verið að niðurlægja konuna heldur er verið vara við hættunni á fúskurm.
29.04 2009 kl.18:50
Slóð
Sem kona og femínisti tel ég þessa auglýsingu enga sérstaka árás á mig. En hún er klárlega misheppnuð og smekklaus. Hún er ekki skýr fyrir konur sem hafa ekki farið í fóstureyðingu. Ég sjálf er blessunarlega laus við að hafa þurft að fara í fóstureyðingu og hafði áður en ég sá þessa auglýsingu ekki hugmynd um að það væri gert með svona sprautu. Þannig voru skilaboðin ekki skýr og auglýsingin þess vegna misheppnuð.
Fóstureyðingar eru viðkvæmt mál og starfsfólk Hvíta hússins hefði átt að vita að aðgát skal höfð í nærveru sálar og svona mynd gæti hæglega farið fyrir brjóstið á mörgum.
Þetta með að ráða fúskara til starfa er hins vegar alvarlegt mál sem mikilvægt er að varpa ljósi á og ég vona að Samtök iðnaðarins láti gera aðra auglýsingu sem hittir betur í mark.
29.04 2009 kl.19:01
Slóð
Mér finnst þessi auglýsing sérlega ósmekkleg og vitaskuld dettur konum frekar í hug fóstureyðing en karlmönnum. Sýnatökur eru ekki framkvæmdar með svona tólum.
Hvað annað er verið að gera með sprautuna? Tæknifrjóvgun hjá fúskara?
Alveg jafn ósmekklegt.
Setjið ykkur í okkar spor og snúið dæminu við. :=
29.04 2009 kl.19:02
Slóð
Sara Hrund: Flott hjá þér og ég er algjörlega sammála.
29.04 2009 kl.19:10
Slóð
þessi auglýsing er frekar fyndin. Mér finnst að við ættum að vera duglegri að gera grín af hlutum eins og alnæmi,, íslömskum hryðjuverkamönnum, fóstureyðingum og svínaflensu. Ég skil ekki svona viðkvæmni. En svo á hinn bóginn finnst mér fljótfært að hrapa að þeirri ályktun að á myndinni sé verið að framkvæma fóstureyðingu.
29.04 2009 kl.19:11
Slóð
Krakkar, krakkar.. slappiði af.... Hvernig er að taka lífið svona alvarlega, er það ekki leiðinlegt?
29.04 2009 kl.19:33
Slóð
Ég er ekki í neinni fljótfærni að álykta neitt. Í yfirlýsingu Hvíta hússins kemur fram að á myndinni sé verið að framkvæma fóstureyðingu.
Hins vegar er ég alveg sammála því að fólk megi slappa af. Starfsfólk Hvíta hússins er búið að játa mistök og biðjast afsökunar.
Þarf þá nokkuðu að ræða þetta frekar?
29.04 2009 kl.19:51
Slóð
Minnist á “femínista” og það er eins og bavíanar Íslands, allir með tölu, klifri niður úr trjánum og fari skyndilega að blogga á netinu. Og nóg er af þeim.
Stór hluti þessa umræðuþráðar er til háborinnar skammar. Það er eins og “þið” (þ.e. þeir sem skrifuðu bjánalegustu póstana) séuð bókstaflega skjálfandi á beinunum af kvenótta og karlmennskukomplexum, kúgaðir af minnimáttarkennd, og fullir af hatri í garð þess sem þið ekki þekkið.
Slakið á og farið í yoga.
Svona auglýsing gæti bara birst í tveimur löndum í Evrópu: Íslandi og Grænlandi.
29.04 2009 kl.20:23
Slóð
Heheheheheeeh sjá allar þessar reiðu kéllingar hérna inni sörfa á stormöldu í vatnsglasi. Sjáið t.d vísa auglýsinguna sem sýnd var mjög oft. Butt naked karlmaður hlaupandi... Eina sem kom frá feministum þá var velþókknunarstuna.
29.04 2009 kl.20:58
Slóð
Þessi ofurviðkvæmni gagnvart þessarri auglýsingu minnir helst á viðbrögðin við fermingarstúlkunni í “klámstellingunni” sem birtist framan á Smáralindarblaðinu hér um árið.
Þessi auglýsing á að vera sláandi og á að koma þeim skilaboðum á framfæri að maður eigi ekki að sætta sig við fúsk, hvar sem það kemur fyrir. Það gerir hún vel. Mér finnst hálf kjánalegt af Samtökum iðnaðarins að lúffa svona fyrir svona hugsunarhætti.
29.04 2009 kl.23:44
Slóð
Ég sá þessa auglýsingu í Fréttablaðinu í dag og hún “sló” mig strax. Þó ekki eins og flesta hérna því mér fannst hún bara mjög athyglisverð. Hún vekur mann til umhugsunar um það hvers vegna það ætti að vera sjálfsagt að ráða fúskara í hins ýmsu verk þar sem í raun er krafist fagmennsku og réttinda þegar manni myndi ekki detta í huga að samþykkja fúskar í því hlutverki sem sýnt er á myndinni. Þetta er í raun frábær auglýsing og að mínu mati gerðu Samtök iðnaðarins mistök í að taka hana úr drefingu. Það er mér algjörlega hulin ráðgáta hvernig í ósköpunum einhverjir læknar eða femínista geta gert athugasemdir við þetta. Þarna er ekki verið að vega að einum eða neinum nema ófaglærðum fúskurum. Líta læknar á sig sem slíka?
30.04 2009 kl.10:24
Slóð
Mér finnst femmurnar oft fara hamförum yfir furðulegustu hlutum en nú er ég sammála þeim.
Hvers vegna í andskotanum er aldrei hægt að auglýsa/tæla fólk (karlmenn) til að kaupa nokkurn skapaðan hlut án þess að vísa í píkur, brjóst og ríðingar? Getur einhver sagt mér það? Mér finnst að KARLMENN ættu að mótmæla þessu meira - það er jú verið að gera því skóna að þeir hugsi með klofinu alla daga og nætur! Eruð þið ekkert orðnir þreyttir á þessari ímynd sem þið hafið? Að lillinn ráði öllum ykkar hugsunum og gerðum?