Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins hefur beðist afsökunar á auglýsingu samtakanna í Fréttablaðinu í dag sem fór fyrir brjóstið á mörgum og var harðlega gagnrýnd af Femínistafélaginu. Auglýsingin hefur verið dregin til baka og verður ekki birt aftur.
Í yfirlýsingu sem Eyjunni barst í hádeginu, og undirrituð er af Jóni Steindóri Valdimarssyni framkvæmdastjóra SI og Rakel Pálsdóttur upplýsingafulltrúa, segir:
Samtök iðnaðarins hafa ákveðið að hætta birtingu blaðaauglýsingar með fyrirsögninni: Velur þú fagmann eða fúskara? Auglýsingin birtist í Fréttablaðinu í dag. Tilgangur auglýsingarinnar var að vekja fólk til umhugsunar um að fagmennska á við í öllum greinum. Myndmál auglýsingarinnar er mjög sterkt og hefur vakið hörð viðbrögð. Samtök iðnaðarins viðurkenna að þeim hafi orðið á mistök með birtingu auglýsingarinnar í ljósi þessa. Samtökin biðja alla þá sem telja sér misboðið afsökunar, sérstaklega heilbrigðisstéttir og konur.
Sjá fyrri frétt Eyjunnar um að Femínistafélag Íslands hefi fordæmt auglýsinguna harðlega.
Félag fæðingar- og kvensjúkdómalækna hafði líka krafist þess í dag að Samtök iðnaðarins bæðust afsökunar á auglýsingunni. Í tilkynningu frá formanni félagsins, sagði að SI ætti að biðja íslenskar konur og lækna afsökunar á þeirri grófu aðför sem lesa megi út úr auglýsingunni.
Í tilkynningunni segir Arnar Hauksson, læknir, að sú ímynd, sem Samtök Iðnaðarins hafi valið með auglýsingunni sé smekklaus, ruddaleg og niðurlægandi fyrir fagstétt lækna og konur í þessu landi og verði að teljast ósamboðin samtökunum.
Auglýsingastofan Hvíta húsið sem framleiddi auglýsinguna hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í dag vegna málsins:
“Vegna sterkra viðbragða við auglýsingu fyrir Samtök iðnaðarins vill Hvíta húsið taka eftirfarandi fram.
Tilgangurinn með auglýsingunni er að vekja fólk til umhugsunar um hvort rétt sé að velja fúskara til að sjá um verk fyrir sig eða að nýta sér þjónustu fagmanna. Eins og segir í auglýsingunni þá kemur ekki til greina að velja fúskara til sumra verka og með myndlíkingunni erum við að vekja fólk til umhugsunar um hvort önnur lögmál ættu að gilda um húsbyggingar, bílaviðgerðir og hárskurð svo dæmi séu tekin.
Á Íslandi erum við svo heppin að búa við fyrsta flokks læknisþjónustu hæfra fagmanna enda dettur engum í hug að ráða fúskara til að framkvæma læknisaðgerðir. Auglýsingin sýnir ekki mynd af lækni og kastar engri rýrð á fagmennsku eða hæfni íslenskra lækna heldur vísar hún þvert á móti til fagmennsku þeirra, sem enginn vill vera án. Alls ekki er verið að vega að starfsheiðri læknastéttarinnar, raunveruleikinn hér á Íslandi er sá að það eru ekki fúskarar í heilbrigðisstéttum, við myndum aldrei láta það viðgangast og við eigum ekki að láta það viðgangast í öðrum stéttum – það eru skilaboðin í auglýsingunni.
Sú staðreynd að íslenskar konur þurfa ekki að leita til fúskara til að fara í fóstureyðingu er einmitt ástæða þess að þessi líking var valin í auglýsingunni, þessi staða er óhugsandi á Íslandi og enginn myndi sætta sig við hana. Myndin dregur vissulega upp andstyggilega mynd af neyð kvenna sem var, en er sem betur fer ekki raunveruleikinn á Íslandi í dag. Að birta mynd af ástandi sem er óásættanlegt og hvetja til þess að slík spilling eigi sér ekki stað á öðrum sviðum, gerir að okkar mati ekki lítið úr erfiðri stöðu kvenna, heldur bendir þvert á móti á að þessi staða sé með öllu óþolandi.
Hvíta húsinu þykir miður að auglýsingin hafi valdið uppnámi, tilgangurinn var sannarlega ekki að stuða aðra en þá sem styðja ólöglega atvinnustarfsemi, samfélaginu til mikils tjóns.
F.h. Hvíta hússins, Sverrir Björnsson.”
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
37 ummæli
Rita ummæli29.04 2009 kl.12:08
Slóð
Ég þakka kærlega fyrir það.
Ég hef, sem karlmaður, ekki getað sofið síðan þessi auglýsing birtist fyrst.
Ég tel samt ekki nóg gert og krefst þess að konan sem gerði þessa auglýsingu og dró upp þessa ömurlegu mynd af okkur körlum verði látin fara strax.
Ég verð lengi að ná mér.
29.04 2009 kl.12:12
Slóð
Það þarf einhver að fordæma feminsta fyrir frekju og yfirgang.
29.04 2009 kl.12:15
Slóð
Já... ég er ánægður með að hún var tekin út...
Ég meina, erum við ekkert nema FÚSKARAR í augum kvenna???...
Krefst rannsóknar á málinu.
29.04 2009 kl.12:25
Slóð
Hvað er verið að auglýsa?
29.04 2009 kl.12:26
Slóð
Velti því fyrir mér hvort femínistar hafi náð kjarnanum í auglýsingunni. Fara þeir heim til sín og kalla til fúskara í pípulagnirnar og rafmagnið? Sé fyrir mér að hvort tveggja klikki á sama tíma. Á síðasta andartaki lífs síns mun femínistinn kveikja á perunni.
29.04 2009 kl.12:34
Slóð
Æi vitiði... það eru nú bara ca 20 mín síðan ég sá þessa auglýsingu og var ekkert búin að heyra á hana minnst né afstöðu feminista fyrr en núna
.. en mér brá þegar ég sá þessa auglýsingu.
Fannst hún frekar ósmekkleg. En ég skil alveg ef karlmenn eiga erfitt með að sjá afhverju...svona við fyrstu sýn, En fáið góða konu til að útskýra það fyrir ykkur.... og kannski sjáið þið þetta öðruvísi
Kjarninn í auglýsingunni fór ekkert framhjá mér
29.04 2009 kl.12:44
Slóð
Heiða gefur sér hjarðeðli kvenna. Hún gengur út frá því að allar góðar konur sjái hlutina út frá hennar sjónarhorni.
29.04 2009 kl.12:53
Slóð
og enn tekst mönnum, með hjálp sömu auglýsingastofunnar, að birta auglýsingu einu sinni en fá margfalt meiri umræðu en milljón birtingar hefðu skapað. Hræbillig aðferð til að koma skilaboðunum innundir hjá öllum.
Og auglýsingastofan fær annað verk frá SI á morgun ...
29.04 2009 kl.12:57
Slóð
Hér er mín skoðun (ég er læknir).
Tílvísunin í myndinni er í ólöglegar fóstureyðingar og passar 99% við það og illa við nokkuð annað.
Fjöldi kvenna deyr ár hvert í löndum þar sem þessar aðgerðir eru ólöglegar m.a. vegna sýkinga þar sem aðstæðurnar eru eins og á þessari mynd.
Maður þarf ansi fjörugt hugmyndaflug til að láta sér detta í hug að þetta sé tilvísun í eitthvað annað.
Annar möguleiki er sá að sá sem bjó auglýsinguna til sé arfavitlaus.
Auglýsingin er ósmekkleg.
Viðbrögð SA eru eðlileg og rétt.
Fréttablaðið er borðið í hvert hús og því er flett m.a. af börnum sem eiga ekki að þurfa að sjá þetta.
Hrútarnir sem eru að hrauna yfir femínista út af þessu hljóta að vera í litlum tengslum við konur og börn.
29.04 2009 kl.12:58
Slóð
Afsakið, Viðbrögð SI eru rétt en ekki SA.....
29.04 2009 kl.13:06
Slóð
Skoðun Odds er sérstök vegna þess að hann er læknir.
Þeir sem ekki hafa sömu skoðun og Oddur eru arfavitlausir.
29.04 2009 kl.13:06
Slóð
Gott innlegg hjá Oddi.
Annars gef ég ekkert fyrir þessa afsökunarbeiðni Samtaka iðnarins.
Þeir vildu athygli og fengu hana með þessum hætti.
.Segir töluvert mikið um þá.
Ég hef reyndar aldrei verið neitt virk i feministastarfi en furða mig oft á þvi hvað þær fá mikla gagnrýni fyrir sjálfsögð viðbrögð.
En afhverju gagnrýni i þeirra garð er svona hörð....því geta sennilega sálfræðingar sem sérhæfa sig i minnimáttarkennd og öðrum andlegum kvillum svarað betur.
29.04 2009 kl.13:31
Slóð
Ég hélt að þetta lægi ljóst fyrir auglýsingahönnuðum.
Munið lyftaraauglýsinguna....
29.04 2009 kl.13:43
Slóð
Ósk: Hvað meinarðu með að þú “gefir ekkert fyrir þessa afsökunarbeiðni”? Hvað ætlastu til fleira af Samtökum iðnaðarins úr því sem komið er? Mér finnst viðbrögð þeirra fagmannleg. Þeir eru vafalítið á öðru máli varðandi gagnrýnina en bregðast við henni á fagmannlegan hátt, viðurkenna mistök sín og draga auglýsinguna til baka. Hefðirðu frekar viljað að þeir hefðu ekki dregið hana til baka?
29.04 2009 kl.14:02
Slóð
Ég átta mig alls ekki á hugmyndaflugi og smekkleysi þeirra sem hanna auglýsingu sem þessa - þar liggur ábygðin þar sem “fagfólk” á að vera á ferð. En sáu þau í SI ekki að hér er á ferð markaðssetning sem nær alls ekki tilgangi sínum - aðeins neikvæðir umfjöllun? Auðvitað kom ekkert annað til greina en draga þetta til baka.
29.04 2009 kl.14:05
Slóð
Tek heilshugar undir með femínistum, þetta er afar ósmekkleg auglýsing. Mér datt reyndar ekki í hug fóstureyðingar, heldur einhver kolruglaður kvensjúkdómalæknir, en það er sama, þetta er ósmekkleg auglýsing. Áfram femínistar!
29.04 2009 kl.14:06
Slóð
Já gleymdi að segja það að þið karlar sem eruð að setja út á femínista, ættuð að skammast ykkar, þið eruð allir fæddir af konum, eigið ef til vill dætur og eða systur. Það er hagur okkar allra að vegur kvenna verði sem mestur, ekki hafa karlar sem stjórnað hafa öllu sýnt af sér neina snilli upp á síðkastið.
29.04 2009 kl.14:27
Slóð
Maðurinn á myndinni hér efst á síðunni er pottþétt að brosa af því að hann hatar konur. Er ekki hægt að gera eitthvað í þessu?
Þess má geta að hætt var að nota plankastrekkjara fyrir meira en 15 árum. Það nota þetta engir karlmenn lengur.
29.04 2009 kl.14:31
Slóð
Þór,
Við lifum ekki á hinum myrku miðöldum. Ég trúi ekki að aðilar samtaka iðnaðarins séu svo skyni skroppnir að þeir hafi ekki gert sér grein fyrir hversu fáránleg þessi auglýsing er. (ef þeir eru það , þá er enn verr komið fyrir Íslendingum en maður heldur).
Finnst mjög líklegt að þetta hafi verið gert vísvitandi til að fá umtal.
Þessvegna finnst mér þessi afsökunarbeiðni fölsk.
29.04 2009 kl.14:36
Slóð
Þar sem þetta var auglýsing frá SI þá skil ég ekki hvers vegna fúskarinn gat ekki verið smiður og verkið illa gert grindverk eða eitthvað álíka (ekki eru fóstureyðingar iðnaður). Það er eins og auglýsingastofan hafi ætlað sér að sjokkera svona og það tókst.
29.04 2009 kl.14:37
Slóð
Einn punktur er síðan ritstjórn Fréttablaðsins, sem fer ókeypis út um allt land.
Dapur vitnisburður um ritstjórahæfileikana á bænum þeim.
29.04 2009 kl.14:46
Slóð
Þessi auglýsing er einstaklega ósmekkleg og með ólíkindum að hún skuli hafa verið unnin sem hugmynd, síðan tæknilega og svo fengist birt í blaðinu. En þetta hefur ekkert með femínisma að gera, auglýsingin er einfaldlega forkastanleg og þarf engan femínisma til. Auk þess eru karlmenn sem gagnrýna femínista með minnimáttarkennd og fullkomlega ómarktækir í svona umræðu.
Hvað segir annars konan, upplýsingafulltrúinn, sem ber ábyrgð á þessari auglýsingu? hvað var hún að pæla? og allar konurnar á auglýsingastofunni? á Fréttablaðinu? sá virkilega enginn neitt athugavert við þetta...?
29.04 2009 kl.16:16
Slóð
Fín yfirlýsing frá Hvíta húsinu. Sammála öllu þar.
29.04 2009 kl.16:19
Slóð
Takk fyrir þitt innlegg Oddur Ólafsson.
29.04 2009 kl.16:26
Slóð
Það var nú ekki minni auglýsingastofa en Hvíta húsið sem gerði auglýsinguna. Hér er yfirlýsing frá þeim:
http://www.si.is/malaflokkar/markadsmal/markadsfrettir/nr/3736
29.04 2009 kl.16:46
Slóð
Annar punktur til - er varðar lækna sérstaklega - er samtrygging lækna Oddur. Kona sem verður fyrir mistökum við fæðingu barns gengur alls staðar á veggi þegar hún fer að leita réttar síns.
29.04 2009 kl.17:29
Slóð
Í yfirlýsingu auglýsingastofunnar segir:
„Hvíta Húsinu þykir miður að auglýsingin hafi valdið uppnámi, tilgangurinn var sannarlega ekki að stuða aðra en þá sem styðja ólöglega atvinnustarfsemi, samfélaginu til mikils tjóns“
Ekki eru þessir auglýsingamenn vel læsir á tilfinningar óspillts fólks ...
sem sagt: þeir eru FÚSKARAR.
29.04 2009 kl.17:35
Slóð
Mér finnst feministar vera að skjóta sig illilega í fótinn með svona bulli
það er ekkert í þessari auglýsingu sem er niðrandi fyrir konur.
Ég held að það sé betra fyrir þær að gera eitthvað sem maður tekur mark á ekki vera með svona bull.
Er kanski orðið svo lítið að hjá kvennþjóðinni að þetta er aðalvandamálið?
Þá getum við glaðst yfir því hvað stutt er eftir í jafnréttisbaráttunni.
29.04 2009 kl.18:07
Slóð
Sá þessa auglýsingu. Er hún ekki niðrandi fyrir bæði kynin? Annars pældii ég ekkert í henni. Fannst hún reyndar smekklaus.
29.04 2009 kl.18:19
Slóð
@ Heiða
Hver er kjarninn í auglýsingunni?
29.04 2009 kl.18:50
Slóð
Heimsmet í smekkleysu - algjör viðbjóður og öllum til skammar sem sáu þetta áður en þetta birtist í blaðinu án þess að mótmæla.
29.04 2009 kl.20:42
Slóð
Rífast, kvarta og banna. Skemmtilegt.
29.04 2009 kl.23:23
Slóð
@ Oddur
Ekki ætla mér eithvað að ég hafi eithvað sérstaklega fjörugt hugmyndaflug þótt þú hugsir eins og restin af hjörðinni.
29.04 2009 kl.23:45
Slóð
Ég sá þessa auglýsingu í Fréttablaðinu í dag og hún “sló” mig strax. Þó ekki eins og flesta hérna því mér fannst hún bara mjög athyglisverð. Hún vekur mann til umhugsunar um það hvers vegna það ætti að vera sjálfsagt að ráða fúskara í hins ýmsu verk þar sem í raun er krafist fagmennsku og réttinda þegar manni myndi ekki detta í huga að samþykkja fúskar í því hlutverki sem sýnt er á myndinni. Þetta er í raun frábær auglýsing og að mínu mati gerðu Samtök iðnaðarins mistök í að taka hana úr drefingu. Það er mér algjörlega hulin ráðgáta hvernig í ósköpunum einhverjir læknar eða femínista geta gert athugasemdir við þetta. Þarna er ekki verið að vega að einum eða neinum nema ófaglærðum fúskurum. Líta læknar á sig sem slíka?
30.04 2009 kl.00:01
Slóð
Er sammála þeim sem hafa gagnrýnt þessa auglýsingu. Sumir virðast forritaðir þannig að það er sama hvað kemur frá feministum, þeir byrja að gala um leið að þetta séu öfgar og óþarfa æsingur - alveg óháð því hvert málefnið er.
Mér finnst punktarnir sem Oddur kemur með mjög góðir, en það er líka eitt annað sem stingur mig verulega - það er samlíkingin sem auglýsandinn ætlar sér að ná fram sem er eitthvað á þessa leið: Rétt eins og þú vilt fá fagmann þegar kemur að læknisþjónustu, þá viltu líka fagmann þegar kemur að iðnaðarverkum. Með því að nota myndlíkingu af konu hjá kvensjúkdómalækni, þá er búið að draga fram samanburð við “að gera við kvenlíkamann” eða “að gera við heimilistækin”... Hvernig á maður að túlka þetta - að fyrst að sé sjálfsagt að fá fagmann til að krukka í líkama kvenna, þá megi nú ekki gera minni kröfur þegar þarf að gera við eldhúsvaskinn, þvottavélina eða raftækin á heimlinu????
Með fullri virðingu fyrir iðnaðarmönnum og heimilistækjum þá frábið ég mér slíka samlíkingu.
30.04 2009 kl.05:31
Slóð
Ok.
Er ekki bara verið að benda á að Talibana feministarnir þurfi fagmenn til að losa um í pípulögnum þeirra?
Vantar einhvern grjótharðan pípara, fagmann, sem kann klárlega að losa stíflur og gleðja feminista?
30.04 2009 kl.06:13
Slóð
Mér kom í hug kvensjúkdómalæknir þegar ég sá þessa auglýsingu. Ef myndmálið á að gefa í skyn að þetta sé fúskari en ekki fagmaður þá tókst það nú ekki, því ef karlmaður situr í þessari situasjón þá er hann kvensjúkdómalæknir, og þeir eru jú fagmenn en ekki fúskarar! Ólöglegar fóstureyðingar voru yfirleitt framkvæmdar af konum! Þannig að auglýsingagerðarfólkið er bara að setja fram steypu fyrir fullt af peningum. Og svo grunar mig að kaupandi auglýsingarinnar trúi smarta auglýsingafólkinu fyrir mati á markaðsálitinu. Smarta auglýsingafólkið er leikið í að sannfæra kúnnan sinn.
Góður punktur með börn, ég held að auglýsingasölufólkið og ritstjórnir séu að skjóta sig í fótinn hvað varðar börn og unglinga: þeim er hrint frá því að vilja skoða dagblöð því oft er þar fráhrindandi óhugnaður sem veldur því að ungt fólk hvað þá börn henda frá sér svona vöru!