Útflytjendur hafa keypt krónur á aflandsmarkaði í stað þess að skila gjaldeyri heim, einsog skilt er í lögum um gjaldeyrishöft.
Eftir að gjaldeyrishöftunum var komið á laggirnar til að sporna við erlendu útflæði gjaldeyris og styrkja gengi íslensku krónunnar hafa margir stórir útflytjendur verið með sérstaka undanþágu frá reglunum. Borið hefur á því að einhver fyrirtækjanna sem í hlut eiga hafi nýtt tekjur í erlendum gjaldeyri til þess að kaupa krónur á aflandsmarkaði, þar sem miklu fleiri krónur fást fyrir t.d. evrur, og þannig hagnast á reglunum í stað þess að fylgja skilaskyldunni samviskusamlega. Svein Harald Øygard, seðlabankastjóri, hefur nú boðað fulltrúa tuttugu stærstu útflutningsfyrirtækjanna á Íslandi á sinn fund til þess að ræða eftirlit og eftirfylgni með framkvæmd reglna um gjaldeyrismál. Morgunblaðið segir frá þessu í dag.
Fara yfir starfshætti
“Markmiðið er að fara yfir starfshætti og ræða fyrirliggjandi gögn um gjaldeyrisflæði. Þetta ferli er ekki vegna gruns um brot hjá fyrirtækjunum,« segir Øygard við Morgunblaðið. Hann segir að þær undanþágur sem mörg fyrirtækin hafi séu ekki ætlaðar til þess að fyrirtækin hagnist vegna reglnanna. “Seðlabanki Íslands er ánægður með viðtökur fyrirtækjanna á þessu boði og yfirlýstan vilja til samstarfs varðandi þetta mál,” segir Øygard. Fjármálaeftirlitið hefur að undanförnu rannsakað átta mál þar sem grunur leikur á að reglur um höftin hafi verið brotnar. Forstjóri FME sagði við Morgunblaðið í síðustu viku að ýmsar aðferðir væru notaðar til að fara framhjá reglunum. Dæmi eru um að tekjur af útflutningi skili sér ekki nema að hluta til baka. Eftirlitið hafi því eftir ábendingar frá Seðlabankanum farið að rannsaka slík tilvik. Brot geta þýtt stjórnvaldssekt upp á tíu þúsund til tuttugu milljónir króna fyrir einstakling. Hjá fyrirtækjum eru sektirnar frá fimmtíu þúsund og upp í sjötíu og fimm milljónir króna.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
39 ummæli
Rita ummæli20.06 2009 kl.06:20
Slóð
Landráð!
20.06 2009 kl.07:04
Slóð
bíðið við þetta er ekkert annað en landráð voru ekki sett lög um daginn sem heimila að ef þeyr skila ekki gjaldeyrinum hingað til lands varðaði það stórum sektum og fangelsi hef ekki orðið vör við að þeyr gerðu mikið til að framfylgja þeym lögum
20.06 2009 kl.07:52
Slóð
Það á að setja neyðarlög sem gefur stjórnvöldum heimild til að taka þessi fyrirtæki yfir og fangelsa þetta fólk, sem grefur undan heimilunum í landinu
20.06 2009 kl.08:03
Slóð
Varla í fyrsta skiptið að fyrirtækin geri þetta en mj-g alvarlegt núna þegar það
er svo erfiðir tímar, væri réttast að þeir sem gera þetta fengu stóra sektir....
20.06 2009 kl.08:08
Slóð
þeir eiga ekki að fá að eiga útflutningsfyrirtæki sem svíkja þjóð sína á erfiðleikatímum.
20.06 2009 kl.08:18
Slóð
Þessir herramenn hafa gert þetta í áratugi.
Td. kvótabófarnir skila aldrey nema 30 til 40 % af utfluttu aflaverðmæti
til landsins , mismunurinn fer inn á banka erlendis.
Þannig blóðmjólka handhafar auðlindarinnar , þjóðina árin út og inn, og hafa gert síðastl. 20 til 30 ár.
Og ekkert er gert í þessu frekar en öðru.
Sérstakur saksóknari ætti að fara ofan í þessi mál strax og láta járna þá sem uppvísir eru að þessu háttalagi. Því að þessir kvótatappar eru raun orsökin fyrir hvernig komið er fyrir þjóðinni.
Og svo eru kvótamálin þannig að ekki á að breyta neinu í fiskveiði kerfinu !
Þvílíkt spillingar bæli sem Ís eyjan er orðin !
Verkin sýna merkin.
20.06 2009 kl.08:29
Slóð
Engin spurning! - Ef um er að ræða sjávarútvegsfyrirtæki á að taka af þeim kvótann í heilu lagi. Taka starfsleyfi af hinum!
Eða gera fyrirtækin bara upptæk.
Það er með ólíkindum hvað samkenndin með þjóðinni í vandræðum hennar er lítil hjá stjórnendum eða eigendum þessara fyrirtækja.
20.06 2009 kl.08:31
Slóð
Það kemur sífelt betur og betur að þessar aðgerðir geta hindrað útflæði gjaldeyris en ekki aukið innflæði.
Það er í raun verið að neyða fyrirtæki sem stunda útflutning og væntanlega eru það mörg fyrirtæki í vandræðum til að koma með hann til Íslands og selja hann á 40% lægra innanlandsgengi til að ríkið geti áfram haldið áfram að selja gjaldeyri á útsölu. Held í raun að þetta skjól skolist brátt burt og það vonandi en það er náttúrlega háð hagstjórninni, hallalaus fjárlög er frumskilyrðið auk þess að endurfjármagna fjármálakerfið og koma á sáttum við alþjóðasamfélagið.
Annars verður þetta löng eyðimerkurganga.
20.06 2009 kl.08:46
Slóð
Kvótamenn meiga allt þeir verða að redda erlendu veðsetninguni á kvótanum en hann er veðsettur að 80-90 prósent erlendis þetta eru landráðamenn og fjórflokkurinn gerir ekki neitt enda búnir að borga mikið í kosningasjóð og verða að fá eitthvað fyrir sinn snúð þessir landráðamenn.
20.06 2009 kl.09:05
Slóð
Við lifum á fiskveiðum, þaðan kemur sá gjaldeyrir sem heldur þjóðarbúinu gangandi. Á tímum sem þessum þá getum við gleimt því að rétta þjóðarbúið af ef þessar gjaldeyristekjur skila sér ekki. Um 2000 áður en bankarnir voru einkavæddir stofnuðu Landsbaki og Búnaðabanki útibú í lux, síðarnefndi bankinn réði sérfræðing í skattsvikum frá skattstjóra til að vera þeim mönnum innanhandar er vildu koma sínu féi í ló í lúx. Það er ekki vafi á því að þar hafa fiskútflitjendur verið á ferð. en það furðulega við þetta er að bankarnir voru í ríkiseigu.
20.06 2009 kl.09:11
Slóð
Ef magn á útflutningsskýrslum og gjaldeyrisskil til landsins eru ekki trúverðugar tölur hvers vegna eru ekki málin rannsökuð?????
:Það er ekki nægilegt að gefa yfirlýsingar. Fólk verður að vinna vinnuna sína.
20.06 2009 kl.09:14
Slóð
Hvenær ætla menn að átta sig á því að höftin virka ekki, hafa ekki virkað og munu aldrei virka???
Þetta hefur verið marg reynt áður, og víðar en hér.
Menn finna ALLTAF smugu fram hjá lögunum, alveg sama hvað er reynt að stoppa í þau.
Gjaldeyrishöftun hafa verið í hálft ár núna, og krónan aftur orðin eins og hún var veikust, þetta virkar ekki???
Það bentu fjölmargir hagfræðingar á það strax á fyrsta degi, að þessi höft væru bara til að tefja fyrir, mun betra væri að láta krón8una bara hrynja strax, og leyfa henni svo að byggja sig upp, það yrði gríðarleg dýfa, en stutt.
20.06 2009 kl.09:18
Slóð
Einmitt, hirða fiskinn af þjóðinni fyrst og fella krónuna svo.
20.06 2009 kl.09:49
Slóð
Buffa þetta lið
20.06 2009 kl.10:19
Slóð
samkvæmt þessari frétt þá eru þessi fyrritæki með sérstaka undanþágu frá reglunum og þess vegna er ekki um lögbrot að ræða. Held að fólk ætti að slaka aðeins á og lesa alla fréttina áður en það för að ráðast á aðra með skít og skömmum.
20.06 2009 kl.10:24
Slóð
Innkalla allan kvóta strax.
20.06 2009 kl.10:32
Slóð
Þetta eru engin tíðindi, þetta var vitað, erum við ekki með stjórnvöld sem eiga að sjá um þessa hluti, er þetta pakk ekki kosið til þess.
20.06 2009 kl.10:54
Slóð
Að sjálfsögðu myndi fyrirtæki, sem fær tekjur sínar í Evrum eða öðrum gjaldmiðli, leitast við að fá sem flestar ISK til að greiða laun og annan kostnað. Þetta er gersamlega augljóst. Hvers vegna að skipta og fá 168 ISK fyrir 1€, ef hægt er að fara til annars aðila og fá 220 ISK fyrir þessa sömu 1€?
Að halda að það séu landráð að reyna að hámarka ágóða eigin fyrirtækis er sérkennilegt. Sumt er etv. réttlætanlegt, eða var það amk. með eldri lögum og þessi lög minna því miður á bannárin. Það er ekki hægt að banna mannlegt eðli, hvort sem er til að hindra að menn komist í “sopann”, eða þá að banna það að menn reyni að hámarka eigin hag.
Minnir að Lars Christiansen hjá Danske Bank hafi sagt að það væru alltaf leiðir framhjá lögum. Þessi sami aðili spáði fyrir um bankahrun löngu áður en það kom (og var gert grín að honum þá). Eigum við ekki að líta í eigin barm og átta okkur á stöðunni?
Þessi höft eru því miður vonlaus í framkvæmd nema í einhvern mjög stuttan tíma og með þeim undirbúningi að allir tækju þátt með eh. konar algerri samstöðu. Hvorugt var gert og þetta mun halda áfram. Af augljósum ástæðum.
20.06 2009 kl.10:57
Slóð
@Ægir
Ægir rétt skal vera rétt, þ.e. SjálfstæðisFLokkurinn og Framsókn settu leikreglurnar, það eru réttnfnd stjórnvöld í þessu tilfelli.
En einmitt þeir sem æpa hæðst þessa dagana og deila á núverandi stjórnvöld, ættu að skammast sín og hafa vit á að taka þátt í að leysa vandann.
n.b. Takið til dæmis eftir formanni FramsóknarFLokksins, ER EKKI ALLTÍLAGI ??
20.06 2009 kl.11:10
Slóð
Hvers vegna í andskotanum hefur ekki verið tekið á þessu ennþá? Þeir eru búnir að stunda þetta í fleiri mánuði en það er alltaf sama sagan - ekkert er gert frekar en fyrri daginn. Það ætti nú ekki að vera mikill vandi að að setja reglur sem synja þessum andskotum um útflutningsleyfi nema þeir geti sannað að þeir hafi skilað inn gjaldeyri.
20.06 2009 kl.11:13
Slóð
Sammála Suasor, menn eru ekki að vinna vinnuna sína. Það eru holur í kerfinu, Það er vitað, sér í lagi vegna þess að löggjafinn er tengdur atvinnulífinu ákveðnum hagsmunatengslum. Því hefur verið haldið fram að löggjafinn gæti hagsmuna sinna; síðan koma spekúlantarnir og finna götin og spila á þau. Löggjafinn heldur að sér höndum, vitandi það að þarna er leki, vegna eigin hagsmuna. Þess vegna er afar mikilvægt að fá til rannsóknar Evu Joly, Kroll International o.fl. til að klippa á þessi hagsmunatengsl. Það er ekki tilviljun að fyrir liggur viss krafa þess efnis að saksóknarinn víki vegna hagsmunatengsla. Hverng á annars að vera hægt að taka á málum sem þessum?
20.06 2009 kl.11:16
Slóð
Það verður seint hægt að ná í skottið á þessu liði.
Eitt stórt útgerðarfélag við innanaverðan Eyjafjörð, hefur um árabil sent allar sínar afurðir beint til fyrirtækis í Englandi, sem er kaupandi að öllum afurðum útgerðarinnar sem framleiddar eru hér á landi.(og vill svo heppilega til að er í eigu sömu aðila og útgerðin hérlendis)
EN svo óheppilega vill til að þetta fyrirtæki í Englandi hefur ekki getað greitt jafn há verð og önnur fyrirtæki í sömu grein..elendis !
Verðin sem fást til Íslensku deildar útgerðarinnar er u.þ.b. 10-20 % lægri en almennt gerist.
Okkur sem störfuðum hjá þessari útgerð var bætt upp tekjumissir með ýmsum hætti, en sá sem hefur tapað er Íslenska ríkið, skattstofn félagsins lækkar all herssilega við svona vinnubrögð.
Gæti trúað að ef við tækjum 10% af veltu kvótahæðstu útgerðar landsins, af veiðum, og bættum því við skattstofn fyrirtækisins......... og reiknuðum skattinn af því sem skotið hefur verið unda frá upphafi kvótakerfisins.::..
Mér kæmi ekki á óvart að við gætum hent Bandorminum.. !
Þær útgerðir sem alltaf hafa leikið sér að því að því að níðast á leikreglunum, eiga ekk mina samúð.
20.06 2009 kl.11:37
Slóð
Í mínum huga eru svona fyrirtæki sem fara svona gegn almenningi í landinu í sama hópi og “útrásarglæpamennirnir” landráðamenn.
Þetta er siðferðilega rangt svo einfallt er það fyrir utan að menn eru líklega að brjóta lög.
Taka á þessu strax eins og það á að taka á “glæpahyskinu” strax.
Ég verð reiðari út í þetta lið með hverjum deginum sem líður, samt er ég manneskja með frekar mikið jafnaðargeð.
20.06 2009 kl.11:42
Slóð
http://pressan.is/Frettir/LesaFrett/vr-lifeyrissjodurinn-skuldar-gomlu-bonkunum-93.175.000.000
Nice að skoða þetta , þetta segir kannski mest út af hverju við erum í slæmum málum , stjórnendur hafa gjörsamlega svifist einskins við að koma sér áfram persónulega !!!
Og auðvitað er ekkert gert við þetta fólk
20.06 2009 kl.12:53
Slóð
Íslensk alþýða hefur verið arðrænd með gengisfellingu krónunnar frá upphafi.
Auðvaldið á íslandi hefur kúgað stjórnvöld til þess að fella gengið og lækka þannig laun hinns almenna launþega.
það er greinilegt að auðvaldið finnur nýjar leiðir til þess að arðræna okkur með því að gengisfella krónuna.
Ef gjaldeyrishöftum verður aflétt þá eru miklar líkur á að krónan verði algerlega verðlaus og auðvaldið haldi okkur þannig eins lengi og það getur, það er ekkert sem segir að sú dýfa verði stutt, þá mun innflutningur nánast leggjast af , verslanir tæmast og verðbólgan fara upp úr öllu.
Þessir glæpamenn ætla sér að blóðmjólka þjóðina til hinns síðasta blóðdropa, hvað vitum við nema þeir séu á launum hjá erlendum auðhringum sem biða eftir að hirða auðlindir okkar og gera okkur að láglaunaþrælum sínum eins og þeir hafa gert víða um heiminn.
20.06 2009 kl.13:31
Slóð
Guðmundur Þór -
Vertu nú maður en ekki aumingi og segðu nafnið á útgerðinni
og kærðu glæpamennina til yfirvalda.
Annars ertu ekkert annað en samsekur.
20.06 2009 kl.14:44
Slóð
Þetta er hyski
20.06 2009 kl.15:51
Slóð
Þessa menn á að kæra og dæma þá til þyngstu refsinga, þetta eru ótíndir glæpamenn og þjóðníðingar. Til hvers eru lögin hér í landinu, eru þau eingöngu fyrir þá sem stela prinspóló í sjöppu eða hvað, hvað er að þessu dómskerfi okkar eru emnn kanski of innvinklaðir hver öðrum þannig að ekki sé hægt að dæma neinn nema almúgann. Ef þetta heldur svona áfram þá endar þetta með uppreisn og engu öðru þessi stjórn okkar og dómskerfi verður að fara að vinna fyrir kaupinu sín ellegar koma sér í burtu og þá helst af landi brott ef þeir ætla að sleppa við dóm alþýðunnar.
20.06 2009 kl.16:00
Slóð
Er það ekki dæmigert, stórlaxarnir fá undanþágu. Svo ef þeir brjóta reglurnar eru þeir friðhelgir. Svo fellur gengið og lánin hækka hjá þeim sem eru ekki með tekjur í erlendum gjaldeyri. Þetta er stórkostlegt rán sem enn er stundað og það heldur áfram þó vitað sé af brotunum og til séu viðurlög við þessum þeim.
Það er ekki skrítið að þessir eigingirnispúkar skuli halda þessu áfram vegna þess að þeir eru í raun friðhelgir. Íslenskt réttarkerfi tekur bara á smáþjófnuðum þeirra sem ekki hafa pening til að kaupa sér friðhelgi.
20.06 2009 kl.16:17
Slóð
Bíddu nú við. Eru þetta ekki sömu fyrirtækin (örugglega flest í Vestmannaeyjum) sem þykjast ‘eiga’ kvótan og hafa bókfært hann sem tekjur, og eru núna að vinna á móti Lýðveldinu ?
Það á að birta lista yfir þessu 20 fyrirtæki og ég skora á að ef einhver hefur þennan lista að þá endilega koma honum á framfæri svo almenningur fái að VITA hverjum er meiri hagnaður að styrkja krónuna og þar með ALLA íslendinga heldur enn að hugsa bara um græðgi til þess eins að hægst sé að sína hagnað fyrir örfáa hluthafa.
Ég hélt að þetta væri á móti lögum og Seðlabankinn ætti því að koma fram kærum á þessi fyrirtæki og þeirra menn til að sýna að það er réttarríki á Íslandi. Þetta er einfalt mál. Það er vitað hvað mikið þessir fyrirtæki veiddu, hvar þeir seldu, fyrir hvað mikið o.s.frv. Ætti að vera mjög einfalt að finna allar þessar tölur.
Birtið lista yrir þessi 20 fyrirtæki (og fleiri ef fleiri eru sek) svo við getum séð hvaða fólk hefur ekkert siðferði heldur bara græðgi að hugsun.
Þau ættu síðan að missa ALLAN kvótann því ég veit að það eru til fyrirtæki sem eru heiðarleg og gera það nákvæmlega það sama þ.e. að ná fiski úr sjó.
20.06 2009 kl.16:28
Slóð
Jæja þá er búið að svindla á okkur í báðar áttir í gjaldeyrismálum !!!
20.06 2009 kl.18:03
Slóð
Tökum leyfin af þessum köllum sem eru að skara eld að eigin köku.
20.06 2009 kl.18:20
Slóð
Spurning hvort útgerðarmenn sem sjá framá gjaldþrot séu að koma peningum undan.
Svo er spurning hvort að sjómenn á frystitogurum séu hlunnfarnir í þessu.
20.06 2009 kl.18:31
Slóð
Sjómenn hlunnfarnir? Hverjum er ekki sama um það? Þeir hafa hlunnfarið ríkissjóð árum saman með því að greiða lægri skatta en við hin.
20.06 2009 kl.21:32
Slóð
@ Keflvíkingur;
Það hefur verið rætt um þetta mjög oft, bendi m.a. á grein í fiskifréttum 2003.
Þetta hefur verið á vitorði flestra sem viljað hafa af vita, enginn hefur þorað í þetta, enda lagagrundvöllur óviss.
Útgerðin ræður alfarið hverjum hún selur aflann af skipinu.
@ Agna Thor; Ef ég man rétt var það árið 2003 að Hæstiréttur felldi svokallaðan “Hrannardóm” en sá dómur fól í sér að útgerðum var heimilað að draga kostnað sem hlaust af fjárfestingu í veiðirétti, frá tekjum, fyrir skatt, og að útgerðin gæti jafnframt EIGNFÆRT veiðiréttinn í bókhaldinu sínu.
Þessi dómur er rannsóknarefni.. !!!!
@OK, Sjómannaafsláttur í skattinum vegur mjög lítið, er smánarfjárhæð sem ekki er nein ástæða til að öfundast yfir, það er ekki málið sem vegur þyngst þessa dagana, það er nefnileg SAMSTAÐA ! sem við þurfum, en ekki að beina umræðunni í þessa átt núna.
20.06 2009 kl.21:36
Slóð
Er fréttaflutningur um Soffanías Cesilsson h/f á Grunarfirði sofnuð.
Voru þeir ekki að gera tilraun til að ná veiðiréttinum í nýtt félag og að skilja skuldirnar eftir í gamla félaginu ?
Hvar eru fréttamenn núna ?
sjá DV.
20.06 2009 kl.22:39
Slóð
@Guðmundur, er ekki réttara að halda umræðunni fyrir utan einstök fyrirtæki? Grundarfjarðardæmið er fjölskylduharmleikur ofaní annað. Hafi menn farið að lögum en gerst gráðugir, þá uppskera menn svo sem þeir sá. Nái menn að skjóta gjaldeyri undan með lögin bak við sig, þá er við Alþingi Íslendinga að sakast. Sumt er löglegt en siðlaust. Nefni sem dæmi þegar kvótakerfinu var komið á. Helsti frumkvöðull þess hafði verulegra hagsmuna að gæta vegna fyrirtækis á suðausturhorni landsins. Lítið við því að gera á þeim tíma. Það er hins vegar út í hött og allsendis óþolandi, eigi fulltrúar okkar á þingi verulegra hagsmuna að gæta vegna tengsla sinna við atvinnulífið og hliðra svo til lögum, að þeim verður það til hagnaðar. Þá um leið verður ekki hjá því komist að aðrir nýti sér sömu eða svipaða möguleika. Þetta getur orðið stöðugur eltingaleikur um lagatúlkanir. Það sem vantar er bætt siðfræði og harðar tekið á stríðandi hagsmunum. Það er almenn reiði vegna þess að almenningi finnst sem ekki sé gætt siðfræði í hruninu. Gjaldeyririnn skilar sér ekki, mál ekki tekin fyrir fyrr en eftir dúk og disk o.s.frv. Það ríkir ákveðin efasemd að tekið verði á gjaldeyrismálunum, jafnvel þótt sýnt sé að heimild sé til inngripa. Burtséð frá því, þá er sterk tilfinning fyrir því hér á Eyjunni að landsmálavandinn snerti alla og það sé siðferðileg skylda útflutningsaðila að taka þátt í endurreisninni. Alþingi verður að halda vöku sinni og taka á málum fljótt og örugglega eftir því sem götin birtast. Höfum við trú á slíku?? Eru hagsmunirnir þingmanna ekki bullandi?? Það er mál að Alþingi Íslendinga fari að láta verkin tala.
21.06 2009 kl.07:21
Slóð
Flott , er hægt að fá lista yfir þessa útflytjendur ??
nei bara , var hugsa um að senda þeim bílalanin mín , það er best að þeir borgi þau , úr því að þeir sjái um að hækka þau .
ÞAÐ ER ALLTAF SAMA SKRÚMPAST GRÆÐGIN Í YKKUR , ÞIÐ LÆRIÐ ALDREI , EKKI EINU SINNI ÞÓ ÞJÓÐIN SÉ FARIN Á HAUSIN .
EN , YTRI AÐSTÆÐUR SKAPAÐAR AF SAMFYLKINGU OG VG SEM ERU
ALGJÖRLEGA VANHÆF TIL AÐ TAKAST Á VIÐ VANDAN , RÍKISSTJÓRN SEM
BER AÐ FELLA STRAX .
FLOTTUR HÖRÐUR TORFA , ÉG MÆTI NÆSTA LAUGARDAG .
POTTÞÉTT , OG ÉG HVET ALLA SEM GETA KOMIÐ TIL AÐ
KOMA , NÚ ER NÓG KOMIÐ , STOPPUM ÞESSA VITLAYSU Í EITT
SKIPTI FYRIR ÖLL .
kv Skarphéðinn
21.06 2009 kl.21:59
Slóð
Birta lista yfir þessi fyrirtæki strax takk fyrir.