Innlent - sunnudagur - 21.6 2009 - 19:17

Óttast að Bankasýsla ríkisins festi eignarhaldið í sessi, auki miðstýringu og dragi úr samkeppni

birgir-armannsson.jpgBirgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokkins, gagnrýnir harðlega áform ríkisstjórnarinnar um stofnun svokallaðrar Bankasýslu ríkisins. Stofnunin verður sett á laggirnar verði frumvarp ríkisstjórnarinnar að lögum, en hún á að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum og leggja þeim til fé fyrir hönd ríkisins á grundvelli heimildar í fjárlögum.

Birgir óttast að með þessu sé eignarhald ríkisins á bönkunum stofnanagert og bendi því til þess að ríkisstjórnin ætli að núverandi eignarhald verði viðvarandi, en það er “afbrigðilegt ástand” að mati Birgis. Hann hvetur til þess að ríkið losi eign sína sem fyrst.

Þá óttast Birgir að með miðstýrðri stofnun af þessu tagi verði ákvarðanir bankanna samræmdar um of og samkeppni milli þeirra því í hættu.

Í þriðja lagi undrast þingmaðurinn að nú eigi að búa til nýja ríkisstofnun á sama tíma og allir séu sammála um að draga stórlega úr kostnaði hjá ríkinu, hagræða og sameina stofnanir frekar en að stofna nýjar.

Bankasýslunni er ætlað að leggja áherslu á endurreisn og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkaðar og stuðla að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði. Hún á að sjá um að skipa menn í bankaráð og stjórnir fjármálafyrirtækja. Valið verður í höndum þriggja manna valnefndar, sem skipuð er af stjórn Bankasýslunnar. Tekið er fram í frumvarpinu að almenningi gefist kostur á því að bjóða sig fram í stjórnirnar. Þessari nýju ríkisstofnun eru ekki ætlaðir langir lífdagar því í frumvarpinu segir að leggja eigi hana niður eigi síðar en fimm árum eftir að hún verði sett á fót. Bankasýslan verður fámenn þrír til fimm starfsmenn auk forstjóra og er áætlaður rekstrarkostnaður 70 til 80 milljónir króna á ári.

78 ummæli

Rita ummæli

Hlín
21.06 2009 kl.19:24

Mér verður flökurt þegar ég sé þennan slaufugosa. Hann ætti að hafa vit á því að þegja.

Bergljót Aðalstewinsdóttir
21.06 2009 kl.19:28

Hvað er þessi nýfrjálshyggjudrengur að segja? Var það ekki hann og álíka lið sem gaf útrásarvíkingunum fullt frelsi til að ræna okkur? Með því að leggja niður eða gera eftirlitsstofnanir máttlausar ? Var það ekki Birgir sem vildi láta íbúðalánasjóð í hendur útrásarvíkinga? Enn og aftur ráðast þessir nýfrjálshyggjumenn að þeim sem reyna að slökkva eldana og reisa úr rústunum.

Sigurður
21.06 2009 kl.19:30

Sammála síðasta ræðumanni. Hef raunar ekkert við það að bæta. En hef áhyggjur af því að maðurinn er líklega með alzeimer og á sæti á þingi. Hann virðist ekki átta sig á því að íhaldið er búið að stjórna landinu í 18 ár með herfilegurm afleiðingum.

Priscilla
21.06 2009 kl.19:31

Sjálfstæðismenn ættu þá aðeins að dusta rykið af gömlum dagblöðum, og grafast fyrir um tilurð og afdrif “Lánasýslu ríkisins”.

Þeir eru ein gangandi mótsögn.

Kolla
21.06 2009 kl.19:34

´
Vinir og samstarfsaðilar útrásarglæpóna og kúlulánatottara ættu að hafa sig hæga þessa dagana og láta velmeinandi fólk um stjórnsýsluna.

Eiki S.
21.06 2009 kl.19:37

Tilraunir til samkeppni á Íslandi hafa hingað til leitt til fákeppni...með hörmulegum afleiðingum. Þessi flokkur er í botnlausri tilvistarkreppu...kv

EE
21.06 2009 kl.19:38

Geiiiisp....

Truth
21.06 2009 kl.19:50

Ein stærstu mistök Íslandssögunnar voru þegar Davíð Oddsson lagði Þjóðhagsstofnun niður.

Davíð kunni illa við forstöðumanninn :) og þær takmarkanir sem sú stofnun setti honum við efnahagstjórnun landsins og einka(vina)væðinguna.

Haukur Kristinsson
21.06 2009 kl.20:08

Hvað er stráksi eiginlega að gaspra. Hann óttast of litla samkeppni.
Er hann með í huga þá samkeppni sem var ríkjandi hjá bönkunum, þegar þeir voru í einkaeign? Eða á hann við þá samkeppni sem ríkti og ríkir enn á milli olíufélaganna? Sagði ekki Bjarni Ben að á Íslandi yrði aldrei nein samkeppni, í besta falli fákeppni. En þó líklega bara samráð?
Af hverju minnkaði ekki ríkisbaknið þegar Flokkurinn var við völd og tékjur ríkisins góðar? Það er mun auðveldara að hagræða, þ.e.a.s. að fækka störfum í góðæri, þegar nóg er af störfum til boða á vinnumarkaðnum.
Hinsvegar er mjög sársaukafullt að segja fólki upp á tímum eins og við upplifum í dag. Því þá blasir við atvinnuleysi.
Hví hefur þessi drengur ekki vit á því að þegja.

Margrét
21.06 2009 kl.20:10

Það kemur ekki til greina að selja bankana fyrr en við förum að borga af Icesave og það þarf að tryggja það KYRFILEGA að engin af þessum glæpamönnum fá svo mikið sem 1% í þeim. Helst á að selja þá útlendingum sem ætti að vera auðvelt þegar við erum gengin í ESB

Jón Óskarsson
21.06 2009 kl.20:22

Það er allt of stutt í Öskuhlíðina til að hægt sé að gera ráð fyrir eðlilegri samkeppni á Íslandi.

Sigún G.
21.06 2009 kl.20:25

Noh, Samfylkingin - eða jafnvel VG - virðist eiga sína skrýmsladeild. Á stuttbuxum. :D
Sbr. athugasemdirnar hér fyrir ofan.

Birgir blessaður hefur þarna merkilegt nokk eitthvað til síns máls.

Bankasýsla ríkisins! Common, þetta er líklega með stærstu draumum vinstrimanna á la Marteinn Mosdal! Rifjið endilega upp Martein Mosdal, getið kíkt á hann á youtube.com. Sjáið hvern hann minnir ykkur á.

Steini M
21.06 2009 kl.20:26

Bankasýslu ríkisins !!!
Nú kæmi Marteinn Mosdal sterkur inn.

Grímur Kjartansson
21.06 2009 kl.20:30

Fin stofnun ef hún sparar fyrir almenning.
En ég skil nú ekki hvernig Samkeppnisstofnun á að starfa næstu árin?
Getum við bara ekki lagt hana niður tímabundið?
Það er mjög óréttlátt gaganvart þeim fáu sem rekstraraðilum sem ekki eru tengdir ríkinu að þurfa að starfa eftir samkeppnislögunum.

Reiður Kjósandi
21.06 2009 kl.20:31

Birgir... frjálshyggjan setti Ísland á rúllandi hausinn.

Þú og vinir þínir urðu þess valdandi að ég kaus Vinstri Græna núna, EKKI sjálfstæðisflokkinn.

þið áttuð það skilið að fá rauða spjaldið í síðustu kosningum. útaf af með ykkur!

bjst
21.06 2009 kl.20:32

Barasvona segið mér nú Hvar hefur þetta blessað samkeppnisumhverfi virkað svona vel í þjóðfélaginu?
Elsku, segið dæmi:

Leifur Björnsson
21.06 2009 kl.20:36

Hvað er Birgir Ármannsson að tala um samkeppni það var enginn samkeppni á milli einkavinavæddu bankanna.
Það hefur enginn stjórnmálaflokkur norðan Alpafjalla gengið harðar fram í því að brjóta niður frjálsa samkeppni en Sjálfstæðissflokkurinn.
Þegar Birgir var framámaður hjá ungum Sjálfstæðissmönnum samþykktu þeir ályktun um að leggja niður bæði Fjármálaeftirlit og Samkeppnisstofnun.
Síðan flæmdi Sjálfstæðissflokkurinn Georg Ólafsson úr starfi forstjóra Samkeppnisstofnunar fyrir að fletta ofan af Olíusamráðinu.
Eins og fyrri daginn er trúverðugleiki Birgis enginn.

Refsivöndurinn
21.06 2009 kl.20:38

Marteinn Mosdal minni ótrúlega mikið á Jónas Kristjánsson fyrrum ritstjóra og ofurbloggara - þeir eru beinlínis alveg eins í útliti.

En er þetta ekki að ósk sænska ráðgjafans sem hótaði að hætta fyrir skömmu af því að honum fannst hlutirnir ganga of hægt fyrir sig?

OG hárrétt er það að þjóðin þarf ekki á vel skeindum stuttbuxnadrengjum sem hafa aldrei farið út fyrir borgarmörkin og hvergi orðið misdægurt í lífinu og aldrei ekið um verri bíl en BMW spotrara.

Birgir Ármannsson er einfaldlega ómarktækur varðhundur útrásarvíkinganna úr Sjálfstæðisfokknum sem voru að vonast til að fá bankana aftur til sín á silfurfati - enda reynslan sú að þeir fái bankana þegar þeim hentar. Enda veit alþjóð nú að Björgólfur Guðmundsson hefur ekki bara sett Útvegsbankann á hausinn heldur líka Landsbankann og þjóðina nú síðast. Hann treystir samt á hunda eins og Birgi til að veita sér bestu bitana þegar ríkisbankarnir verða einkavæddir að nýju undir forystu Sjálfstæðisflokksins eftir nokkur ár.

Einar
21.06 2009 kl.20:38

Kjölturakkar kommanna koma sterkir hérna inn - duglegir að koma sínu fólki til hjálpar.

Það sem kommarnir vilja er auðvitað að ráðskast með allt í okkar lífi og þeir sem því fagna eiga það allir sameiginlegt að vera undirmálsmenn sem hrís hugur við að bera ábyrgð á eigin lífi.

Smásálir sem þola ekki að til sé fólk sem er sterkara á svellinu en það sjálft.

Afætur sem vilja að Ríkið veki þær á morgnana og svæfi þær á kvöldin.

Fólk sem hefur aldrei unnið handtak á ævinni, heldur lítur á bætur og styrki sem fullkomlega eðlilega framfærslu vinnufærs fólks.

Ræflar sem heimta að aðrir vinni og greiði skatta svo það sjálft geti haft það dægilegt og hyggeligt á kostnað hinna vinnandi stétta.

Það eru slík sníkjudýr sem hafa komist til valda á Íslandi og ætla að kaffæra landinu í skattahækkunum og forræðishyggju.

Því miður er það svo að skynsemisraddir verða kæfðar af þessum ómerkilegum bakteríum næstu árin á meðan þjóðin áttar sig á því hversu stjarnfræðilega mikið glapræði það var að hleypa hér kommúnistum til valda.

bjst
21.06 2009 kl.20:46

“Ræflarnir” sem heimta aðaðrir vinni og greiði skatta eru flestir hinir heilögu “fjármagnseigendur”
Sem margir hverjir hafa hagnast á kvótabraski. verðbréfasvindli, skattsvikum o.s.frv.
Lifi íhaldið!

Haukur Kristinsson
21.06 2009 kl.20:47

Einar.......mér finnst nú satt að segja lýsing þín á Birgi Ármannssyni einum of ljót og ósanngjörn.

Jón Óskarsson
21.06 2009 kl.20:49

Einar er að öllum líkindum opinber starfsmaður..

.. eins og Hannes Hó

.. eins og Davíð var alla sína tíð

... og margir fleiri boðbertar frjálshyggjunnar.

Kjartan Hafsteins
21.06 2009 kl.20:59

Hlín hefur lög að mæla.
Slaufugosinn (sem sækir sér útlitsfyrirmynd til Kjartans Icesafe Gunnarssonar) vill að ræningjarnir fái fyrirtækin og bankana aftur sem fyrst...

Oddur Ólafsson
21.06 2009 kl.21:04

Þetta hlýtur að vera gott fyrst að þessi gosi er málinu svona ósammála.

Hann getur varla beðið eftir að komast að í næstu helmingaspillingarstjórn D og B.

Jón Hreggviðsson
21.06 2009 kl.21:09

Ég legg til að leið sjálfstæðisflokksins verði farin og þeir útnefni sína vini til að kaupa nýju bankana.

Annað er bara afbrigðilegt.

KVERÚLANTINN
21.06 2009 kl.21:17

Afbrigðilegt ástand er að hlusta yfirleitt á sjálfstæðismenn eða að leyfa þeim að ráða nokkrum hlut.

KVERÚLANTINN
21.06 2009 kl.21:19

Getur einhver bent mér á aðila sem teystandi er fyrir bönkunum ...annar en ríkið.??

So
21.06 2009 kl.21:23

Bankasýsla ríkisins! Hljómar ekki vel hvað sem Birgi Ármanns líður! :( Hvað næst? Matvöruverslun ríkisins? Bílaverslun ríkisins? Úffff....

Poe
21.06 2009 kl.21:23

Hættiði að ráðast á persónu Birgis Ármannssonar, útlit og klæðaburð.
Það er hægt að taka nánast flesta, ef ekki alla þingmenn og rakka niður ýmist fyrir lélegan klæðaburð, kauðalegan klæðaburð, tyggjósmatt, tafs, lélega framsögu, drullugt hár, sjarmaleysi, slæmt íslenskt málfar og lengi mætti telja.

Það er annað að vera honum ósammála málefnanlega. Fariði upp úr sandkassanum í smá stund að minnsta kosti.

Halldór
21.06 2009 kl.21:28

Fínt að hafa þetta í eigu ríkisins - mun skárra heldur en í eigu inhverrar mafíu sem efalaust mun neyta allra bragða til að arðræna saklausa borgara þessa lands enn og aftur eftir nokkur ár.

Nei - við skattborgarar og IceSave greiðendur þessa guðsvolaða lands krefjumst þess að eingöngu verði seldur hluti bankanna og þá aðeins til útlendinga þar sem tryggt hefur verið að ENGIN íslendingur muni nokkurn tímann fá að eignast hlut. Ríkið á svo bara að eiga rest.
Gott mál að halda þessum eigum frá mafíunni.

Karl Einarsson
21.06 2009 kl.21:30

Eini staðurinn þar sem það er samkeppni á Íslandi er í tölvugeiranum.

Ég borga 2x minna fyrir hita, rafmagn og vatn en gsm síma.... er það ekki soldið afbrigðilegt?

Á hvor staðnum er samkeppni?

Börkur
21.06 2009 kl.21:31

Ótrúlegt að lesa athugasemdir þessa veruleikafirrta fólks sem kaus yfir okkur þessa XXXXL vanhæfu ríkisstjórn.

Staðreyndin er því miður sú að þótt Jóhanna og Steingrímur séu af öllum vilja gerð til að bjarga landinu og landanum út úr kreppunni, þá er það nú bara staðreynd að þau munu afreka það að krassa þjóðinni fyrr en ef ekkert yrði að gert. Það er bara þeirra karakter. Þegar tveir hörkuduglegir klaufar með oftrú á eigin getu og með allt of mikil völd taka sig saman um að láta verkin tala, þá er annsi hætt á því að allt muni fara til andskotans fyrr en svörtustu spár geta spáð fyrir um. Þetta er því miður staðan í dag, og ekkert mun koma í veg fyrir það annað en þeim verði komið frá hið snarasta. Allt sem logið hefur verið upp á Sjálfstæðisflokkinn, umfram það sem hann á skilið, verður þegar upp verður staðið banamein þjóðarinnar.

Kolla
21.06 2009 kl.21:33

Þegar Þjóðverjar töpuðu stríðinu var NazistaFLokkurinn bannaður. SjálfstæðisFLokkurinn hefur lagt landið í rúst, tími til kominn að banna hann.

Gísli G
21.06 2009 kl.21:39

Það ætti líka að banna sósialisma fyrir sína blóði drifna og skelfilega sögu.

concerned
21.06 2009 kl.21:41

Einar 20:38 (Hannesson?):

“Ræflar sem heimta að aðrir vinni og greiði skatta svo það sjálft geti haft það dægilegt og hyggeligt á kostnað hinna vinnandi stétta.”
“Það eru slík sníkjudýr sem hafa komist til valda á Íslandi og ætla að kaffæra landinu í skattahækkunum og forræðishyggju.”

sorrý, þú hefur ekki fylgst með. Það er búið að kaffæra landinu af ræflum sem hafa það ennþá huggulegt á kostnað hinna vinnandi stétta. Þessi snýkjudýr voru við völd á Íslandi s.l. 18 ár. Þau heita Sjálfstæðisflokkurinn

GG
21.06 2009 kl.21:48

Það sem gerðist í haust gæti vart gert það augljósara að einkavæðing bankanna er ekkert sem við þurfum á að halda. Alveg sama hve spillt pólitíkin getur orðið þá er einkabransinn miklu spilltari, m.a. vegna þess að almenningur og fulltrúar almennings á þingi á ekki kröfu um upplýsingar t.d. um laun og hlunnindi og annað þessháttar hjá hlutafélögum og einkarekstri. - Hf-ingin hefur reynst lang mesta spilling Íslandssögunnar svo höldum okkur við það skásta þ.e. banka í ríkiseigu.

Halldór
21.06 2009 kl.21:48

@örkur

Já mikið megum við stolt af glæpum sjálfstæðisflokksins og ÞAKKLÁT!
Maður minn - ég fæ bara tár af þakklæti fyrir gjafmildi flokksins til mafíunnar hér í 18 ár.

Ingimundur
21.06 2009 kl.21:54

Tek undir með EE ... Geiiiiisp !!!

vigga
21.06 2009 kl.22:02

Sjálfstæðis-og Framsóknarflokkur eiga að vera í fríi sem lengst.

Poe
21.06 2009 kl.22:04

Þetta er rétt hjá Berki.

Þetta ágæta fólk ræður ekki við þetta og mun keyra okkur algjörlega í kaf.

stog
21.06 2009 kl.22:17

Hvaða hvaða,við reddum þessu , 3 snúningar á mann í viðbót, OG BJÖGGI KEMUR OG HJÁLPAR TIL, EÐA HVAÐ ?. VERIÐ JÁKVÆÐ .. ,,,,,,,,

b
21.06 2009 kl.22:20

Varð það ekki samkeppnin og einkavæðingin sem kom bönkunum og ábyrgðum þeirra í fangið á ríkinu. Ríkið reyndi að losa sig við þá, sjálfstæðismenn/ramsóknarmenn þorðu samt ekki að sleppa takinu alveg og bankarnir þorðu ekki að standa almennilega á eigin fótum.

Almennileg einkafyrirtæki standa og falla með sínum ákvörðunum. Almennilegir bankamenn hefðu flutt fyrirtækin sín til Evrópu úr íslenska hagkerfinu vegna ofmikillrar áhættu. Engin erlendur banki þorði að koma hingað.

En frjálshyggjupésar sjálfstæðisflokksins þeir standa einir að gróðanum en láta aðra falla með tapinu. Þessum mönnum verður seint treystandi.

Þó opinberrekstur hafi orðið skammaryrði á uppgangstímunum skulum við ekki hræðast slíkt. Frelsið til að gera... frelsi til að falla er ofmetin útópía.

hkþ
21.06 2009 kl.22:24

Lítill karl sem ætti að vit á því að þegja !

Beli
21.06 2009 kl.22:24

Hvað ætli hafi eiginlega orðið um Þann mæta mann Georg Ólafsson, ætli að Saddam Oddsson hafi látið taka hann af lífi eftir að hann tók á olíusvindlinu

Agnar Thor
21.06 2009 kl.22:27

Ég er alveg sammála #1. Það eru svona gæjar sem komu öllu í það ástand sem við eru í núna.

Það er eins og þeir geti ekki hugsað fyrir utan þennan littla heim sem ÞEIR lifa í.

Ríkið tók yfir alla bankanna og mun efalaust taka yfir mikið af stórfyrirtækjum sem við getum ekki verð án. Þessir ´slaufu lið´vill að það sé farið að huga að selja bankana sem fyrst en hver á að kaupa þá ? Fatta þeir ekki að þjóðin varð gjaldþrota og verður á barminum næstur 7-10 árin? NEMA, að við að sjálfsögðu LÁNUM fyrir hlutabréfakaupunum og réttum nokkrum aðilum bankanna fyrir engan pening. Þanning getum við selt þá. Við reyndum það einu sinni og það gekk svo rosalega vel. Held að við urðum ríkasta þjóð í heimi eða eitthvað svo leiðis.

Gunnar Kristinn Þórðarson
21.06 2009 kl.22:32

í seinasta hefti Foreign Affairs er talað um hættuna á ríkis-kapítalisma (state capitalism) sem gróðrasíta fyrir spillingu og þjóðgæðinga/olígarka.
sjá
http://efnahagsfrettir.is/index.php?option=com_n-content&Itemid=40&id=164

Andri
21.06 2009 kl.22:34

Þessi siðspillta frjálshyggju afæta ætti að sjá sóma sinn í því að segja ekki neitt. Maður fær klígju.

Beli
21.06 2009 kl.22:37

Svínakjötsútsölurnar eru í boði bankanna, kúabú er flest að verða í eigu Landsbankans Það er nóg að vera með eitt samyrkjufjós eitt svínabú og nokkur fjárhús. Það var íhaldið sem rétti Steingrím J draumaríkið upp í fangið Í dag treysti ég honum best og kellingum og Norðmönnum og ríkisvæðum sem mest ekki er útrásarskitunum treystandi

Beli
21.06 2009 kl.22:41

Hægri snú og borga iceve í nafni frjálshyggjunnar

Wisserbesser
21.06 2009 kl.22:47

Afbrigðilegt ástand, segir slaufukellingin.

Hún saknar þá væntanlega hins eðlilega ástands sem gerði aurapúkunum bræðrum hennar fært að selja börnin okkar í þrældóm.

Gaman fyrir hana að geta verið röndótt, bröndótt, köflótt og tíglótt í einu og með slaufu í ofanálag.

Beli
21.06 2009 kl.22:49

Eitt símafélag er nóg fyrir gjaldþrota dvergríki

Dúddi Bei
21.06 2009 kl.22:50

Mikið er ég sammála Birgi með Bankaskýrslu Ríkisins. Þetta er hættuleg þróun og gæti leitt okkur í algjört þrot.

Ég sef varla fyrir þessu og finnst orðið erfitt að ná andanum í þessu helvítis afturhaldskommatittaríki.

Við Sjálfstæðismenn verðum að gera bylingu og komast til valda og það fljótt.

Kommarnir eru á beinni leið með okkur til helvítis og það virkar kæfandi á menn eins og mig að vita til þess að hér verði fylgst með manni frá vöggu til grafar og menn geta ekki einu sinni stundað business í friði.

Birgir er drengur góður, afburðargreindur og kann að klæða sig þannig að eftir sé tekið. Málflutningur hans mótast af hógværð og greind. Hann er mjög fitt og flottur fýr.
Ég hef hitt hann og rætt við hann oftar en einu sinni. Hann er vinur vina sinna og við eigum gott skap saman.

Við Sjálfstæðismenn þurfum ekki að óttast leiðtogaskort þegar við höfum unga menn líkt og Birgi með svona mikinn kjörþokka og útgeislun.

X-D fyrir framtíðina.

Wisserbesser
21.06 2009 kl.22:57

Ætliði að gera bylingu, Dúddi?

Eru þið ekki nógu bylaðir?

Wisserbesser
21.06 2009 kl.23:02

@Dúddi “Við Sjálfstæðismenn þurfum ekki að óttast leiðtogaskort þegar við höfum unga menn líkt og Birgi með svona mikinn kjörþokka og útgeislun.”

Það held ég nú.

Eða Gunnar I. Birgisson.

Segðu.

Wisserbesser
21.06 2009 kl.23:03

X-D fyrir Islave.

Agnar
21.06 2009 kl.23:05

Óttast, það er vægt til orða tekið!

Jón
21.06 2009 kl.23:17

“Þegar tveir hörkuduglegir klaufar með oftrú á eigin getu og með allt of mikil völd taka sig saman um að láta verkin tala, þá er annsi hætt á því að allt muni fara til andskotans fyrr en svörtustu spár geta spáð fyrir um.”

Ertu að tala um Davíð og Halldór?

sr
21.06 2009 kl.23:20

Skyndilega er svo mikið að gera hjá þeim, brennuvargarnir gagnrýna slökkviliðið sem aldrei fyrr.

Ætli rökin séu ekki eitthvað á þá leið að ef brennuvargurinn gagnrýnir bara nógu andskoti mikið þá teljist hann ekki lengur vera brennuvargur. Svona einhvern tíman seint á næstu öld.

Wisserbesser
21.06 2009 kl.23:23

Ef lygin er endurtekin nógu oft verður henni trúað að lokum ...

NOT

S.S.
21.06 2009 kl.23:26

Segið mér eitt!
Voru engin mótmæli? Af hverju er ekkert talað um það?
Ég bý allveg hinum megin á landinu, þannig að einu fréttir sem að ég fæ er hér á eyjunni eða á rúv. Það er alveg augljóst að það er ekkert að gerast. Heyrði samt að einhver 4 manna fjölsk, flúði land og að bíladagar á Akureyri hafi gengið vel.
Mér er alveg sama hvort Birgir sé með slaufu eða hvort hann ekur um á BMW maðurinn var kosinn á þing og á að tala, það er hans vinna. Við vitum að við þurfum hærri skatta, meiri niðurskurð, minni lífsgæði. Það er kominn tími til þess að viðurkenna það. Þetta fólk sem stjórnar á að segja okkur það og svo framkvæma það. Við eigum ekki að sleikja okkur upp við ESB, við eigum ekkert erindi þangað fyrr enn við getum séð um okkur sjálf. Það er bara búið að tala um icesave, það er einn fimmti af heildarskuldum þjóðarinnar. Hvað skulda heimilin? hvað skuldar sjávarútvegurinn? það verður fjöldagjaldþrot meðal almennings. Það er bara þannig. Þessi lán sem voru í boði voru bara of dýr. Við verðum bara að borga, nú er að viðurkenna það. Og passa að þetta gerist ekki aftur. Meðan við borgum skulum við reyna að ná þeim sem gerðu okkur þetta með hjálp Evu Joly og við getum byrjað að láta þá gjalda þess með því að sniðganga þá og þeirra. Þeim verður ekki fyrirgefið fyrr enn þeir borga allt til baka með vöxtum og viðurkenna sín mistök opinberlega. ÞESSIR MENN ERU EKKI VELKOMNIR HÉR, EINS OG PAUL WATSON.

Stefán Þór
21.06 2009 kl.23:36

Æi æi æi æi æi æi Af hverju í ósköpunum gat Sigurður Kári ekki tekkið þennan frjálshyggjuhvolp með sér í fallinu út af þingi!!!!!!!!! Nú segi ég bara eins með Sjálfstæðisflokkinn og Jónas Fr. Stein grjóthaldið kjafti og hagið ykkur vel á meðan verið er að mokan skítinn eftir ykkur.

S.S.
21.06 2009 kl.23:37

Og hvað er málið með ferðamannaiðnaðinn?
Núna eigum við að treysta á hann, hvað gera menn sem að eru í þeim bransa, þeir okra á útlendingum. Hvalaskoðun hjá Norðursiglingu kostaði 3500kr í fyrra núna kostar hún 8500kr. Þeir selja í Evrum. Svo er það svipað í laxveiði. Leyfin eru seld túristum í evrum. Þeir eru að borga tvöfalt á við aðra. Ef þetta fréttist þá erum við ekki bara óvinsælir úti heldur líka hér heima!!
Við eigum að fá fleiri hingað er það ekki það sem vantar. Núna erum við eitt ódýrasta land í vestrænum heimi, þökk sé krónunni og við eigum að nýta það, en samt ekki með okri. Ef að þetta lagast ekki þá er það fólk sem stundar okur ekki neitt skárra heldur en þessir 30 sem að komu okkur í þessi vandræði.

Egill
21.06 2009 kl.23:40

Varð það ekki núverandi foringi þessa manns sem sagði í sjónvarpsviðtali í vor að það yrði alltaf fákeppni og einokun á íslandi. Og er sjálfur með puttana í markaði sem ætti svo sannarlega að vera rekinn sem ríkisrekstur. Morfís keppninn er greinilega í fullu gangi hjá Birgi hann slær ekkert af, það þarf einhver að vernda halta hagsmunahóruflokkinn.

Sigurður #1
22.06 2009 kl.00:10

Auki miðstýringu og dragi úr samkeppni??

UUUUhhhhhh???

Hvar var samkeppni á íslandi???

Matvörumarkaðnum??

Fjölmiðlamarkaðnum??

Olíumarkaðnum???

Tryggingamarkaðnum???

Bankamarkaðnum???

Ég er ekki fæddur í gær, en ég man aldrei eftir neinni samkeppni á íslandi.

Þessu hefur öllu verið miðstýrt eins lengi og ég man eftir mér.

Jón Gunnarsson
22.06 2009 kl.00:18

Það vekur alltaf meiri og meir furðu hjá mér hvernig stóð á því að þessi Bjarni Ármannsson komst á þing. Er búinn að vera eins og vælandi kerling síðan um bankahrun . Ef einhverjar tillögur koma frá öðrum en Framsóknar- eða Sjálfstæðisflokknum sama hverjar tillögurnar eru þá fer vællinn í honum í gang. Þessi maður er búinn að vinna markvisst að því að tefja fyrir mörgum bráðnauðsynlegum málum með ómálefnalegu gjálfri. Fyrir mér mega menna hafa hvaða skoðun sem er í einstökum málum og mér er sama í hvaða stjórnmálaflokki menn eru . Vona að vælið í honum eigi ekki eftir að hljóma yfir okkur næstu mánuði. BÁ óttast miðstýringu stjórnarinnar og vill fá miðstýringu Sjálfstæðisflokksins. Nei takk. Hann verður að fara að gera sér grein fyrir því að langmestur hluti þeirra erfiðleika sem þjóðin á í þessa dagana er í boði Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins og hér er um að ræða neyðarúrræði. Hann ætti nú að fara að snúa sér að því að hætta þessu leiðinlega væli og reyna að hjálpa til við að bæta fyrir mistök og misgjörðir flokksins eða fá sér aðra vinnu.

Poe
22.06 2009 kl.00:57

Jón Gunnarsson.

Birgir Ármansson er þingmaður en ekki Bjarni Ármansson.

gerber
22.06 2009 kl.01:48

Þetta er sá þingmaður sem vildi ekki frysta eignir auðmanna
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/23/vill_ekki_frysta_eignir_audmanna/

Sigurður #1
22.06 2009 kl.02:00

Gerber,

Þarna er líka fjallað um flokk sem vildi láta frysta þessar eignir.

Hann er í ríkisstjórn í dag, hvað hefur breyst???

Ragnar Karl Sig
22.06 2009 kl.02:16

Gott hjá þér Sigurður #1
Og alveg rétt.

Ég kalla svona lið sem að hangir á ríkisspenanum aumingja!!!

Og að pakk sem svona leyfir sér síðan að gagnrýna slökkviliðsstarfið sem að er í gangi núna ætti að hafa vit á því að þegja og það í hvelli áður enn það hlýtur verra af.

Ég er þeirrar skoðunar að ef að pólitíkinn er meira virði enn að hjálpa nágrannanum þá á sú mannskepna ekki á nokkurn veg rétt á sér í okkar þjóðfélagi.

Dóri G.
22.06 2009 kl.06:24

þessi drullupési ætti að steinhalda kjafti og koma sér burt enda ekki starfi sínu vaxinn frekar en Sigurður Kári, þessir tveir eru landráðamenn og ætti að draga þá fyrir landsdóm

sigthor
22.06 2009 kl.08:24

Einhvern vegin tel ég að 5 ár fyrir bankanna í eigu ríkisins sé lágmarks eignartími, en að sjálfsögðu vilja Sjálfstæðisglæpamennirnir selja bankanna helst í dag, svo að aðrir siðlausir vinir þeirra geti keypt bankanna á lítið sem ekki neitt og hefjast handa við að taka síðustu krónurnar af íslenskum almúga, er ekki eðlilegra að byggja bankanna upp og reyna að koma upp einhverjum verðmætum, við höfum öll séð að Íslenskir “viðskiptamenn” hafa ekki hundsvit á bankarekstri og það eina sem þeir kunna er að svíkja og pretta almennning og kaupa stjórnmálamenn, þannig at least, for the time being, tel ég stórkostlegt hagsmunamál að bankarnir verði í eigu ríkisins að minnsta kosti næstu 5 árin...

Rómverji
22.06 2009 kl.08:38

Úr stuttu og illa stíluðu kommenti stuðningsmanns Birgis Ármannssonar (brot af því besta):

kommarnir
Kjölturakkar
undirmálsmenn
Smásálir
Afætur
Ræflar
sníkjudýr
bakteríum

http://eyjan.is/blog/2009/06/21/ottast-ad-bankasysla-rikisins-festi-eignarhaldid-i-sessi-auki-midstyringu-og-dragi-ur-samkeppni/#comment-124945

Steinar F
22.06 2009 kl.09:24

Já frábært, förum annan hring. Einkavæðum bankana svo hægt sé að endurtaka leikinn. Frábært líka þessi 4 símafélög, brilliant happadrætti, maður veit ekki hver er hjá hverju félagi svo maður veit ekkert hvað maður borgar, gerir lífið spennandi

Jói HS
22.06 2009 kl.10:15

LÍFID ER LOTTIRÍ, GEFA BANKANA TIL BJÖRGÚLFANA AFTUR SVO DANSINN GETUR BYRJAD Á NÝJAN LEIK .

lobster
22.06 2009 kl.10:39

Er ekki langskást að fá Deutsche Bank til að stýra þessu apparati? Nicht?

Gummi
22.06 2009 kl.10:46

Hann minnir mig á lítinn fasistaforingja!

Tryggvi
22.06 2009 kl.12:12

Gera öfugt við það sem Birgir ráðleggur þá erum við á réttri leið.

Poe
22.06 2009 kl.12:44

Það er ekki hægt að taka þátt í þessari umræðu hún er á svo lágu plani.
Persónuníð og aumingjaskapur í þeim sem kommenta hér. Dapurt.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar