Innlent - föstudagur - 10.7 2009 - 21:55

Björk fagnaði fullveldi Grænlands á frumsýningu tónleikamyndarinnar Volta

bjork.jpgBjörk Guðmundsdóttir stjórnaði ferföldu húrrahrópi frumsýningargesta fyrir fullveldi Grænlands þegar hún kynnti tónleikamynd sína Volta, Live in Paris í Háskólabíói í dag.

Hún sagðist ekki hafa átt von á því þegar hún flutti lagið fyrst árið 2007 að Grænlendingar fengju fullveldi svo fljótt. Rúmar tvær vikur eru síðan Grænlendingar öðluðust fullveldisrétt.

Lagið “Declare Independence” er meðal laga sem flutt er í tónleikamyndinni, sem tekin var í París og Langholtskirkju í Reykjavík á síðustu tónleikaferð Bjarkar og hljómsveitar hennar í fyrra og hitteðfyrra. Lagið tileinkaði Björk jafnan sjálfstæðisbaráttu Grænlands og Færeyja í ferðinni. Flutningur hennar á laginu í Sjanghæ í mars í fyrra reitti kínversk stjórnvöld til reiði, þegar hún kallaði “Tíbet! Tíbet!” í lok lagsins. Sjálfstæðissinnar í Tíbetar stóðu þá fyrir harðvítugum mótmælum gegn kínverskum stjórnvöldum, sem náðu svo hámarki síðar í þeim mánuði.

declare.jpgÍ tónleikaferðinni, sem náði til allra heimsálfa nema Afríku og tók tvö ár voru einkum flutt lög af síðustu tveimur hljóðversplötum Bjarkar, Volta og Medulla.

DVD diskur með tónleikamyndinni er jafnframt hluti af safninu Voltaic sem Björk gaf út í gær. Í safninu eru fjórir diskar með tónleika-,  hljóðvers- og endurblönduðum útgáfum laganna úr ferðinni.

11 ummæli

Rita ummæli

Birgir Örn
10.07 2009 kl.22:08

Auðvitað höfðu Grænlendingar vit á því að vera ekki í ESB og stefna á sjálfstæði með allar sínar auðlindir.

Orðlaus
10.07 2009 kl.22:13

“Declare Independence” don’t let them do that to you segir Björk.
Hmmm...
Greinilega á móti ESB.

th
10.07 2009 kl.23:00

þetta eru ekki fréttir þetta er vandamál

SJ
11.07 2009 kl.01:29

grænlenskur útrásarvíkingar setja þjóðina á hausinn eftir 65 ár. Það þarf ekki lengri tíma en það til að setja allt á hvolf.

Jenný Stefanía
11.07 2009 kl.04:18

Óska Björk innilega til hamingju með þessa útgáfu.

Aðdáunarverður trúnaður hennar við sjálfa sig, list sína og lífsskoðun.

Þetta kallast að vera fylginn sjálfum sér, sama hvað á dynur.

anna benkovic
11.07 2009 kl.04:45

Til hamingju Grænlendingar....!
:-)

ps: Birgir örn...”how stubid can one be?”

Bárður
11.07 2009 kl.04:57

Perhaps stupid enough to spell “stupid” with a b .

Ragnhildur
11.07 2009 kl.10:23

Björk vakti heimsathygli þegar hún hún lýsti stuðningi við tilvistarbaráttu Tíbeta. Nú óskar hún Grænlendingum til hamingju með fullveldið.

En hver er afstaða Bjarkar til fullveldis Íslands? Hefur hún tekið þátt í baráttu Íslendinga fyrir að halda sínu fullveldi; að standa sem sjálfstæð þjóð? Utan ESB.

Kannast einhver við það?

Eiríkur
11.07 2009 kl.11:19

...enda er hún grænlensk :)

Bárður
11.07 2009 kl.17:09

Segjum okkur úr NATO og Schengen og segjum upp EES samningnum og öllu norrænu samstarfi og segjum okkur helst úr Sameinuðu þjóðunum líka. Annars erum við ekki sjálfstæð þjóð. Skítt með alla samninga okkar við önnur lönd og skítt með allt alþjóðlegt samstarf, slíkt er ekkert nema kúgun og okkur til tjóns.
Önnur lönd hafa aldrei gert neitt fyrir Ísland annað en að mergsjúga okkar frómu þjóð. Sjáið bara Marshall aðstoðina t.d. Djöfuls óþverrauppátæki sem það var. Og við eigum hvort eð er enga vini nema Færeyinga. Þessir helvítis Svíar og Danir og Finnar og Norðmenn vilja ekki ekki einu sinni lána okkur pening strax, bara af því að það eru einhverjar óskiljanlegar efasemdir um að íslensk stjórnvöld geti að rekið skynsamlega efnahagsstefnu og staðið við skuldbindingar sínar gagnvart einhverjum bjánum sem týndu peningunum sínum í íslenskum bönkum. Þetta eru þjóðir sem kunna ekki að græða á daginn og grilla á kvöldin og við höfum ekkert að gera með samstarf við svoleis lið. Nema nátturlega samstarf sem byggist á því að þeir láti okkur hafa pening þegjandi og hljóðalaust og láti af þessum stælum sínum um að sjá eitthvað sem þeir kalla “efnahagsáætlun”. Eins og Íslendingar hafi eitthvað með slíkt að gera. Djöfuls Skandinavar.
Tökum upp sjálfsþurftarbúskap aftur svo lendum ekki í klónum á einhverjum útlendingum sem vilja stunda viðskipti við okkur. Þeir eru stórhættulegir (verst að Frjálslyndi flokkurinn kom aldrei innflytjendastefnunni sinni í framkvæmd by the way), en við Íslendingar erum ekkert nema göfuglyndið. Spyrjið bara Breta og Hollendinga.

BB
12.07 2009 kl.10:28

Hvað er hún að skifta sér af einhverju sem henni kemur ekki við! Grænlendingar eru með milljalrða mínus á sínum fjárlögum og Danir verða að borga millimunin, og svo heimtar þetta fólk sjálfstæði!

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar