Innlent - miðvikudagur - 19.8 2009 - 21:26

Hreiðar Már: Neitar að biðja þjóðina afsökunar. Á ekki peninga til að aðstoða við uppbyginguna

hreidarmarsig.jpgHreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings neitaði að biðja íslensku þjóðina afsökunar á hlut sínum og Kaupþings í fjármálahruninu í fyrrahaust í löngu viðtali í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld.

 Aftur á móti kvaðst hann vilja biðja hluthafa Kaupþings, lánveitendur og starfsmenn afsökunar á því hvernig fór. Þjóðin hafi hins vegar ekki tapað á falli bankans. Hann vildi ekki viðurkenna óbeina ábyrgð sína og stjórnenda bankans á ástandinu í íslensku þjóðfélagi.

Hann taldi aftur á móti að stjórnvöld hefðu brugðist og átt þátt í hruninu með viðbrögðum sínum.

Hreiðar Már kvaðst hafa tapað miklum fjármunum í hruninu, um 1500 milljónum krónum, og væri ekki auðmaður. Hann ætti ekki peninga til að aðstoða við uppbyggingu Íslands. Hann er nú búsettur í Lúxemborg.

Hreiðar Már varði þá lánastefnu sem birtist í lánabók Kaupþings á netinu, en hafði ekki svör við því að allir aðrir utanlands sem innan, lýstu furðu sinni á vinnubrögðum bankans.

Hreiðar Már viðurkenndi að gerð hefðu verið mistök í uppbyggingu launakerfis starfsmanna.  Þá viðurkenndi hann að samþjöppun hefði verið veikleiki Kaupþings.

154 ummæli

Rita ummæli

Þór
19.08 2009 kl.21:28

Aumingja Hreiðar!!!

Jón Jóns
19.08 2009 kl.21:29

Einn sannleikspunktur í þessu öllu er að vísu að það sem skuldsetur þjóðina í heild er ekki Kaupþing, heldur innlán sem Landsbankinn safnaði í gegnum Icesave.

En ................ hvað er hægt að segja við öðru sem kom fram

Væri ekki iðrun góð byrjun

ala
19.08 2009 kl.21:34

Hvar eru 500 miljarðarnir ?

Elinborg, eignalaus!
19.08 2009 kl.21:37

heldur þessi maður að við trúum honum honum væri nær að hósta upp öllum þeim miljörðum sem hann á geymda á Tortola, en að koma hér fram og ljúga því að hann sé saklaus.

Emil
19.08 2009 kl.21:37

Þetta viðtal var að mörgu leiti ágætt þó svo að Sigmar hafi nú ekki staðið sig mjög vel. Hreiðar komst vel undan öll að undanskildu spurningunni um að biðja þjóð sína afsökunar. Hann bað engu að síður hluthafa afsökunar og flest vorum við jú óbeint hluthafar í Kaupþingi í gegnum lífeyrissjóðina okkar.

Það sem hann er hins vegar réttilega að benda á er að það sem fellur á ríkissjóð kemur ekki frá Kaupþingi, ekki ein króna.

Það sem við, skattborgarar þessa lands, þurfum að gjalda fyrir er þrennt:
1. Icesave (Landsbankinn) - Tap sem getur numið allt að 600.000.000.000 kr.
2. Ástarbéfin (Seðlabanki Ísl) - Tap uppá ca 300.000.000.000 kr. (tikomið vegna lánvetinga SB (Davíðs) til m.a. lítilla Sparisjóða.
3. Peningamarkaðssjóðir (fyrri ríkisstjórn)- Tap uppá ca 200.000.000.000 kr. þar sem fyrrverandi ríkissjóð tók ákvörðun til að kaupa mikið til ónýtar eignir úr peningamarkaðssjóðum bankanna á miklu yfirverði.

Þetta er það þrennt sem er að falla beint á þjóðina og er það tap sem núverandi ríkisstjórn er að reyna að stoppa í, með miklum erfiðleikum.

En eins og fyrr segir tapar almenningur óbeint af öllum þeim skráðum fyrirtækjum á markaði sem fara í þrot í gegnum lífeyrissjóðina. Tap ríkissjóðs er hins vegar ekki komið frá Glitni né Kaupþingi heldur LANDSBANKANUM, SEÐLABANKANUM OG FYRRI RÍKISSTJÓRN.

Þetta held ég nú að sé allur sannleikurinn en gaman væri að fá málefnaleg viðbrögð ykkar við því?

Jónní
19.08 2009 kl.21:38

það er rangt hjá þér Jón Jóns og Hreiðar Már að gjaldþrot Kaupþings, sem var þriðja stæðsta gjaldþrot veraldrarsögunnar, hafi ekki lagt beinar fjárhagslegar byrðgar á almenning hér í þessu landi

Pöpullinn
19.08 2009 kl.21:38

Aumingja hann tapaði 1500 milljónum af illa fengnum loftpeningum.
En það er allavega gott að hann skuli vera búsettur í Lúx þar sem peningarnir hans eru og bankaleynd.

Páll
19.08 2009 kl.21:38

Þetta er ótrúlega hlutlaus frétt og fyrirsögn... eða ekki.

Jakob Þór Haraldsson
19.08 2009 kl.21:39

Þjóðin hafi ekki tapað á falli bankans, ótrúlegur húmorist....lol...:). Markaðsmisnotkun, blekkingastarfsemi af grófustu gerð og hann þarf auðvitað ekki að biðjast afsökunar á einu eða neinu....! Því miður hefur alltaf verið ljóst að þetta “bankalið” ætlar alls ekki að sætast við þjóðina og er það mjög miður!

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

SS
19.08 2009 kl.21:39

Eða tilheyra verslunarmenn ekki þjóðinni að þínu mati Emil?

Kristján Kristjánsson
19.08 2009 kl.21:40

Verulega áhugavert viðtal.
Hann virðist trúa þessu sem hann segir af hjartans einlægni.
Menn sem eru komnir þetta langt frá raunveruleikanum þurfa hjálp faglærðra sérfræðinga í andlegum sjúkdómum.

Hægt væri að kalla þetta afneitun, en þarna er eitthvað annað og mikið dýpra á ferðinni.
Vonandi fær hann þá sérfræðihjálp sem hann er í mikilli þörf fyrir.

helgi
19.08 2009 kl.21:40

Hvað með lífeyrissjóðinna sem voru notaðir í svikamyllu og öll kúllulánin til að halda gengi hlutabréfa uppi,þvílíkur hræsnari og siðblind mannvera, þetta var ótrúlegt viðtal ,og í orðisfyllstu merkingu þá þessi maður bágt og er mikið veikur þegar hann sagði í lokin að hann vildi aðstoða heimilin með niðurfellingu gjalda.

Villi
19.08 2009 kl.21:40

Þetta virkaði á mann einsog drottningarviðtal. Vanhæfur spyrill gerði sitt besta til að stýra Hreiðari frá því að tala um Seðlabankann, spurði ekki um hvort bankarnir hefðu tekið stöðu gegn krónunni allt síðasta ár og þar með fellt krónuna, spurði ekkert um Tortólu , Lux osfrv. Þetta var Hvítþvottur.

Halli ríki
19.08 2009 kl.21:41

Kúlulán eru bankarán!
Kúlulán eru bankarán!
Kúlulán eru bankarán!
50 cent

GÖTALAND
19.08 2009 kl.21:42

Hann lýgur um að Kaupþing hérna í Svíþjóð gangi vel sænska FME varð að taka þennan banka og sænska ríkið þurft að dæla mörgum miljörðum inn í bankann og nú er búið að selja hann svo er hann að segja að hann þurfi ekki að biðja almenning afsökunar á hruninu.

Vilhjálmur
19.08 2009 kl.21:42

En á ekki að biðja lántakendur Íbúðalánarsjóðs afsökunar Hreiðar litli? Bankinn “þinn” Hreiðar Már stundaði það að “dömpa” íbúðarbréfum á markaðinn í kringum útbúð Íbúðalánarsjóðs! Sem leiddi til hærri ávöxtunarkröfu óg því hærri útlánavaxta sjóðsins til almennings. Vini þínum Jónasi í FME sem hlammaði sér oft í sófann hjá þér fannst þetta ekkert athugavert!!

Andri
19.08 2009 kl.21:45

Hvað með tjónið sem “fáfróður almenningurW varð fyrir þegar það ákvað að selja ekki bréfin sín að því að Al Thani “keypti” í bankanum!!

Það gengur ekki að hafa menn eins og Sigmar að taka svona viðtal, það þarf að vera maður eins og Vilhjálmur Bjarnason sem kann á markaðinn.

Hreiðar kemst upp með að bulla við menn eins og Sigmar.

Einar Jóns
19.08 2009 kl.21:46

Frekar slappt viðtal. Vantaði alvega að spyrja drenginn spurninga.

Kolla
19.08 2009 kl.21:48

Hreiðar ætti að setja upp ráðgjafafyrirtæki fyrir siðblindingjana, kollega sína. Fyrirtækið fengi heitið “Hvítþvottur” og slóðin gæti verið:
hvitthvottur@landradamenn.is

villi
19.08 2009 kl.21:48

Tími til kominn að fólk átti sig á sérstöðu Landsbankans sem vegna Icesave hefur sett allt á vonarvöl. Það er hinn stóri vandi. Ekki er hægt að benda á neitt sambærilegt hjá Gltni og Kaupþingi. Þar eru það fyrst og fremst hluthafar og erlendir lánadrottnar sem blæða. Hreiðar Már benti líka á hlut Seðlabankans í halla ríkissjóðs í fyrra.

KE
19.08 2009 kl.21:48

Heidar has no idea how to run a bank and therefore is clueless as to the mistakes made by Icelandi bankers. Like they said in England - Icelandic bankers couldn’t even run a fish and chips shop. Heidar has no education in banking and no experience either. So we can only feel sorry for him.

SS
19.08 2009 kl.21:49

Sigmar á mikið hrós skilið fyrir skapstillingu. Það þarf hins vegar tvo í svona viðtal.

Jóna litla
19.08 2009 kl.21:49

Af hverju kom Heiðar Már í Kastljós, bað hann um það????
En ég hef aldrei séð annanð eins á bara eftir að melta þetta, er maðurinn spílafíkill???
Þessi þáttur var hrollvekja og Sigmar fær 5 stjörnur.

Heiður
19.08 2009 kl.21:52

Ég kæri mig ekki um afsökunarbeiðni frá þessum auðdónum
ekki eitt syndarinnar augnablik,
ég vil fara að heyra í handjárna-glamrinu !!!

Svo sannið þið til nú fara allar þessar lyddur að bera fyrir sig mannréttindarákvæðum rétt eins og Eva Joly talaði um.
Enn auðvitað taka allar þessar rannsóknir tíma -
Ég bíð “spennt ” og “þolinmóð”.

Sigmar var afspyrnu slappur spyrill í kvöld engan veginn undirbúin,
það væri ráð að fá Vilhjálm Bjarnason sem gestaspyril þegar svona
útsmognir landráðamenn koma og tjá sig, sá myndi þjarma að þeim og spyrja réttu spurninganna !

Svo er þetta eitt andsk.....siðleysið ....lesið þetta:

http://jonas.is/

Getur þetta þjóðfélag rotnað meira ?

Hjördís Vilhjálms
19.08 2009 kl.21:55

Ég hjó eftir því að hann sagði alltaf ,,við”, þegar hann talaði um KB.
Er hann enn að vinna þar ??
Einnig minntist hann á einhver lán, sem ekki komu fram í lánabókinni sem lak, eitthvað sem fór í aðra banka, náði því einhver hér hvað hann var að tala um ? Hvað meira vantaði í glæruyfirlitið ?

Einnig væri gott að hann væri spurður beint um hvað hann á mikinn pening; að nefna UPPHÆÐINA , það þýðir lítið að sættast við svör á borð við þau að eiga ekki mikið ofl. í þeim dúr, það er svo sveigjanlegt í túlkun,og leyfa þeim sem á hlýða að túlka það hvort það sé mikið eða lítið. Einnig að spyrja hann hversu mikla fjármuni hann komist í með PIN nr. sem hann hafi aðgang að. Ég er í raun engu nær um fjárhagslega stöðu hans eða kennitalna í hans eigu eða umboði. Flutti hann fjármuni og eða eignir á maka sinn eða aðra vini eða fjölskyldumeðlimi , eða til annarra fyrirtækja ? Þetta tel ég að þurfi að spyrja hann um.

Hvernig ferðaðist hann til landsins og hvað vill hann hingað ? Hvað er hann að gera í dag og hvernig er það fjármagnað ?

Annars stóð Sigmar sig vel að vanda, en ég tel þó að RÚV þyrfti að hafa amk 2 spyrla á móti ,,þeim”.

Gott að hann bað þó starfsfólkið ofl.afsökunar, meira en margir ,,þeirra” hafa gert, vonum að hitt komi síðar. Annars efast ég um að afsökunarbeiðni breyti miklu, en það er betra en ekki neitt, því ekki mun hann borga neitt til uppbyggingar hér, að eigin sögn.

púki
19.08 2009 kl.21:58

Ekki lagast það með þessum viðtölum við þessi smámenni. það er sama hjá þeim öllum,ekki til raunveruleg iðrun. Þrjú svör sem eru öll eins hjá þeim sem hafa komið í fjölmila. ...Þetta er yfirleitt öðrum að kenna að stærstum hluta....Þeir telja sig frekar blanka....Og þeir eiga ekki neina peninga aflögu. Samkvæmt ágætum heimildum er víst innihald vínkjallara Hreiðars verðmætara en húsið sem á honum stendur.

aa
19.08 2009 kl.21:59

haha svo mikil lygari þessi gaur

erasmus
19.08 2009 kl.22:00

Sigmar var ennþá meira clueless en Hreiðar Már - og til hvers að fara fram á afsökunarbeiðni? Við viljum rannsókn og sakfellingu eða sýknun, eftir atvikum.

Ómar Torfason, sjþj.
19.08 2009 kl.22:01

Þessi einstaklingur telur sig ekki skulda þjóðinni eitt né neitt. OK. Það er löngu tímabært að þjóðin sýni honum hvað hún skuldar honum, svokallað skuldar-fangelsi, þ.e. og eingu ef í ljós kemur að hann hafi gerst brotlegur við lög. Siðfræðin er annar handleggur og nokkuð sem hann þarf að kljást við utan síns heimilis. Hætt er við að einhver eða einhverjir taki þá svokölluð lög í sínar hendur og láti hann finna fyrir því, eins og það er kallað.
Manninum er vorkunn þótt honum sé það ekki.

lúlli
19.08 2009 kl.22:01

Jæja, sjáum til hvort þú eigir peninga þegar það verður búið að dæma þig og frysta eignir.

Þvílíkur hrokagikkur maður, ég var við það að henda sjónvarpinu út um gluggan.

Kristján
19.08 2009 kl.22:06

Hreiðar Már súper viðskiptaséní Íslendinga. Maðurinn sem Hr. Ólafur Ragnar heiðraði sérstaklega. Slummaði hann feitt með fálkaorðu.

Þessir tveir frægustu og viðbjóðslegustu hórkarlar Íslandssögunnar eru þjóðarskömm. Sannkölluð frík.

Comon
19.08 2009 kl.22:07

Mér fannst Hreiðar standa sig vel.

Gott hjá honum að þora að koma og tjá sig í Kastljósi.

Baðst afsökunar og sagðist hafa gert fjöldamörg mistök.

Heiður
19.08 2009 kl.22:09

Nei HROKAGIKKURINN skuldar okkur ekki neitt þó hann + ca.29 + flestir
ráðamenn hafi rænt þessa þjóð orðsporinu...!!!

Hvað er Hreiðar Már að gera í Luxemborg ?

Viðhalda rotnu orðspori Íslands ?

Auður M
19.08 2009 kl.22:10

Þessi vesalings maður, Hreiðar Már er ekki í nánd við raunveruleikann. Það má t.d. spyrja hvernig hann hafi safnað slíkum fjármunum og þeim sem hann barmar sér yfir að hafa tapað.

Ekki hefur okkur hinum áskotnast slíkur svimandi hagnaður/kaup (!!!) eða hvað á að nefna þetta brjálæði.

Hvenær ná þessir menn jarðsambandi?

Hjördís Vilhjálms
19.08 2009 kl.22:10

Frábær hugmynd hjá Anra 21:45 og hjá Heiður, 21:52, að fá Vilhjálm Bjarnason sem gestaspyril, hefði verið frábært ef hann hefði verið með Sigmari í kvöld.

Skora hér með á RÚV að taka upp slíkt fyrirkomulag, að fá gestaspyrla með í Kastljósið, fólk sem er sérfrótt um hin ýmsu mál. Það er erfitt , og í raun ósanngjarnt, að gera þá kröfu á frábært starfsfólk Kastljóss, að vera 100% inní öllum málaflokkum, það er engin skömm að því að fá liðsinni, þvert á móti mun það gera þáttinn mun vandaðri, það er ég viss um. Best væri ef gestaspyrlar væru með í sjálfboðavinnu, tel brýnt að svo sé.

Toni
19.08 2009 kl.22:11

Slappt viðtal. Sigmundur á það til að trufla menn þegar þeir eru að fara segja eitthvað merkilegt.

Hann hefði mátt leyfa honum að tala meira um hvað seðlabankinn og Landsbankinn hafa kostað ríkissjóð.

Spyrja Hreiðar hvað hann á við þegar hann segir að mikið sé búið að gera fyrir fjármagnseigendur á íslandi.

Og í lokin þegar Hreiðar nefnir að eitthvað verði að gera fyrir skuldara og sagði að hægt sé að koma með lausnir hvað það varðar.

Sigmundur, aldrei að trufla óvininn meðan hann er að gera mistök.

akkur
19.08 2009 kl.22:12

Ætli hann hafi fengið bónus á Tortola hjá vinum sínum eigendum Kaupþings - sem af einhverri ástæðu vildu gjarnan fá lánin sín greidd þangað...

Hvað með skuld íslenska ríkisins vegna endurhverfra viðskipta SÍ (lán til smábanka til að lána áfram stóru bönkunum) til að halda þessum rotnu bönkum gangandi? Þar eru miklir fjármunir sem falla á íslenskan almenning.

Hvað með fölsun á eiginfjárstöðu Kaupþings vegna lítilla 50 milljarða króna lána til starfsmanna?

Hvað með yfirlýsingar fram á síðustu stundum um að allt væri í fínu lagi?

Sigmar var illa undirbúinn. Hefði átt að vera miklu beittari og koma með ákveðin mál upp á borðið.

djúnki
19.08 2009 kl.22:14

Þessi maður er siðlaus þjóðníðingur.
Sat undir svörum vinar.

Komst upp með tóman moðreyk og þvælu.

SS
19.08 2009 kl.22:14

Toni. Þú náðir ekki einu sinni nafninu á spyrlinum. Varstu sofandi?

Robbi
19.08 2009 kl.22:16

Viðbjóðslegur siðleysingi. Vonandi verður hann dæmdur sem og Karl Wernersson, Björgólfsfeðgar, Baugsfeðgar, Bakkabræður og fleiri auðrónar, sem sviku þjóð sína. Það væri gaman, ef einhver léti prenta spil með myndum af þessum mest hötuðu auðrónum í fangafötum, svo komandi kynslóðir geti séð hverjir stýrðu hruninu.

Kristin
19.08 2009 kl.22:17

Hreiðar sagðist hafa tapað helling af peningum.. Hvernig er hægt að tapa því sem hann hefur aldrei átt. Hann fékk sem sé kúlulán fyrir hlutabréfum sem hann þarf ekki að borga því hlutabréf voru einungis í veðum fyrir láninu. Hann fékk hins vegar milljónir í arðgreiðslur af því sem hann átti ekkekrt í. Svo því spyr ég hverju tapaði hann ? Svar: ekki krónu en græddi heilmikið á arðgreiðslum sem hann greiðir bara 10% fjármanámsskatt af.

Jon
19.08 2009 kl.22:17

Siðferði Hreiðars Más er eins og rotnandi fjöldagröf. Stjórnendur bankanna komu því þannig fyrir að landið er á hausnum. Keyptu vonlaus fyrirtæki allt of dýru verði. Lánuðu í vonlaus verkefni án nokkurra haldbærra veða, fóru svo út í að afskrifa stór lán starfsmanna bankans.

Er Hreiðar Már að biðjast starfsmenn sína afsökunar á að hafa losað þá við skuldir upp á marga tugi milljarða með því að afskrifa þá við persónulegar skuldir við KB banka? Væri ekki nær að biðja þjóðina afsökunar á því, frekar en starfsmennina? Það eru jú landsmenn sem borga þennan pakka, en ekki starfsfólkið sem var skorið úr snörunni?

Þessi drottningarviðtöl við menn á borð við þetta í kvöld, og svo viðtal Egils Helga við Jón Ásgeir í vetur segir allt sem segja þarf um íslenkst fjölmiðlafólk. Það er handónýtt. Ekki starfi sínu vaxið. Það er endalaust að lepja upp fréttir löngu eftir að þær hafa átt sér stað. Það er ekki mikil fréttamennska.

Ef Hreiðar Már er tilbúinn að leggja til eitthvað af þem peningum sem honum hefur áskotnast með ruglinu í sér til að létta undir með skuldsettum fjölskyldum í landinu, þá er það fínt. Hann getur samt ekki ætlast til þess að aðrir geri það sama, einfaldlega vegna þess að hann og kverúlantar af hans kaliberi eru búnir að sjá til þess að engir peningar eru til í kassanum hjá neinum til að fara í einhverjar skuldaniðurfellingar.

Jólasveinninn
19.08 2009 kl.22:19

Þarna kom ekki fram ábyrgð Kaupþingsmanna að hafa fellt gengið á krónunni, sem varð til þess að húsnæðislán ruku uppúr öllu valdi. Hann skuldar ærlega afsökunarbeiðni til almennings.... og svo beint í fangelsið.

Árni#2
19.08 2009 kl.22:19

Góð hugmynd með gestaspyrla. Starfsfólk Kastljóss er einfaldlega ekki nógu vel inni í þessum málum til að spyrja réttra spurning eða til að fylgja nokkrum sköpuðum hlut eftir. Maður hefur séð hvert viðtalið á fætur öðru klúðrast niður í meðalmennsku og þvælu út af því.

Ganti
19.08 2009 kl.22:20

Það er alrangt hjá Heiðari Má að fall Kaupþings hafi ekki skaðað almenning, ríkissjóð, lífeyrissjóði og atvinnulífið.

Þeir notuðu útlánafé bankans til að halda uppi verði á hlutabréfum Kaupþings, sem allir ofangreindir aðilar keyptu og töpuðu síðan við fallið.

Aðaleigendur Kaupþings lánuðu sjálfum sér gríðarlegar upphæðir til að halda uppi verði á hlutabréfum sínum í bankanum, og til annarra eigin fyrirtækja. Þessir sömu aðaleigendur tóku gríðarlegar stöður með afleiðum gegnum Kaupþing gegn íslensku krónunni, en létu starfsfólk sitt selja viðskiptavinum sínum afleiður með krónunni. Þetta kom fram í kröfum Kjalars og Exista á þrotabú Kaupþings.

Bankaráðsmenn Kaupþings lánuðu sjálfum sér og fyrirtækjum á sínum vegum hundruð miljarða.

Stjórnendur Kaupþings, Aðaleigendur og Bankaráðsmenn misnotuðu aðstöðu sína í svo ríkum mæli að það hlýtur að vera saknæmt.

Almenningur, Ríkissjóður og atvinnulíf töpuðu gríðarlegum upphæðum við fall Kaupþings því að verð á hlutabréfum bankans var falsað með t.d. leikritinu um Al Thani, og fleiri leikritum sem við þekkjum ekki öll enn. Þeir tættu í sig lífeyrissjóði landsmanna.

Stjórnendur, Aðaleigendur og bankaráðsmenn Kaupþings bera ábyrgð á því hvernig komið er fyrir þjóðinni, alveg á sama hátt og aðrir kollegar þeirra í hinum bönkunum.

Hreiðar Már þarf ekkert að biðja mig afsökunnar, ég myndi ekki taka því.
Ég vona hins vegar að vinnubrögð og misnotkun þessarra aðila verði rannsökuð í botn, og þeir sem sekir reynast, verði dæmdir og látnir gjalda misgjörða sinna.

Sigmar hefði mátt vera betur undirbúinn. Þetta viðtal var misheppnað frá sjónarhól spyrjandans og áhorfandans.

baugi
19.08 2009 kl.22:22

Kannski skulda þessir menn okkur ekki krónu en þeir skulda okkur þjóðaræru (ásamt hinum glæframönnunum) sem þeir reyndar geta aldrei borgað okkur til baka. Við getum hinsvegar endurheimt æruna sjálf með heiðarlegu uppgjöri og vilja til að gera það sem við getum til að bæta fyrir klúðrið. Og svo verðum að sjá til þess að það skapist aldrei aftur pólitísk skilyrði til þess að svona ógæfumenn leiki lausum hala. Það á að vera skylda okkar sem íslendinga.

Þór
19.08 2009 kl.22:22

Það er alltaf verið að tala um tæknileg atriði og tæknilegar spurningar frá einum manni, Sigmari sem allir þessir menn vilja að tali við sig.

Mér finnst málið vera að þessir peyjar gerðu bankann sinn alltof stóran, spiluðu alltof djarft, voru alltof graðir og breyttu íslandi jafnaðarins í ísland stéttaskiptingar og hroka. Aldrei heyrði maður þessa menn tala um samfélagslega ábyrgð banka. Þeim var, og er alveg sama um Ísland.
Þetta eru siðlausir kvislingar og landráðamenn.

Tryggvi
19.08 2009 kl.22:23

Mér fannst Sigmar afar slappur í kvöld. Hann virtist illa undirbúinn og lét Hreiðar Má komast upp með staðhæfingar og röfl sem ekki standast. Það var til dæmis sláandi að ekki var minnst á undanskot fjármuna í skattaparadísir, sem Kaupþingsmenn sérhæfðu sig í. Engu líkara var en að Sigmar hafi samið við Hreiðar Má um að spyrja ekki vissra spurninga. Er hugsanlegt að Hreiðar Már hafi samþykkt að koma í Kastljós út frá slíkum díl? Kastljós er að verða ansi þreyttur þáttur. Hvers vegna er ekki pláss fyrir alvöru rannsóknarblaðamennsu hjá RÚV (þeim baust Kompás en þáðu ekki)?

utangáttar
19.08 2009 kl.22:23

Bankastjórar eru ráðnir af stjórnum fyrirtækja og spegla þarfir eigendanna.

Ritskoðun fjölmiðla á Íslandi gerir að eigendur fjármagnsins eða öllu heldur skuldarar skuldasúpunnar eru faldir bak við moðreyk eins og þyrlað er upp kring um þetta bankastjórabarn.

Stóra fréttin í lánabók Kaupþings var að Baugur et al var stærsti skuldarinn.
Núna kemur fram í sambandi við hið hljóða gjaldþrot Baugs að þeir eru einnig stærsti skuldari Landsbankans. Um hvorugt hefur verið fjallað í íslenskri pressu nemna bara neðanmáls.

Hvað skuldar Baugur Glitni bankanum sem þeir áttu og hver er skuldin hjá sparisjóðum og lífeyrissjóðum? Hvers vegna er ekki búið að opna sjóði Glitnis og sýna þeim sem áttu peningana þar hverju þeir töpuðu?

Þarna eru upplýsingar sem geta hjálpað okkur að greina vandann og finna leið út úr vandanum. Þessum upplýsingum er haldið frá okkur. Það er hneykslunarvert. Það þarfr ekki að hneykslast á´einum bankastarfsmanni sem gerði það gott á vertíðinni. Hann réð engu í bankanum sínum. Það gerðu aðrir.

Kristin
19.08 2009 kl.22:24

Hvaða rugl er þetta um að við töpum ekki á Kaupþing. Hvað með milljarðana sem voru lánuð rétt fyrir hrunið og fóru beint til eigenda bankans svo þeir gætui lifað í vellystingum um ókomna tíð. Því eins og lánabókin sýndi þá fengu Ólafur í Samskip og Bakkabræður stærsta hluta af þessu láni. Halda menn að þeir ætli að borga þessa peninga aftur?

Sunna
19.08 2009 kl.22:26

Hvernir stendur á því að þessi bankaræningi fær að koma til landsins?

Ásta B
19.08 2009 kl.22:27

Hvet ykkur til að kíkja á bloggið hennar Láru Hönnu þar er alveg ótrúlegt myndband úr Kaupþingi. Talandi um mikilmennskubrálæði nokkura manna...... Þið verðið að sjá þetta.

TBR
19.08 2009 kl.22:27

Maður er nú eiginlega farinn að halda að þessir blessuðu Víkingar útrásarinnar hafi hreinlega ekki andlegt þol til þess að viðurkenna sök sína gagnvart þjóð sinni, slík er afneitunin.

Ætli drengurinn sé ekki bara á landinu til þess að mæta í yfirheyrslu hjá henni Evu? :=)

aggi
19.08 2009 kl.22:27

hann er flúinn út og búinn að sofna fyritæki svo hann hlítur að eiga ykkvað þessi mörður http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/hreidar-mar-flytur-til-luxemborgar---veitir-fyrirtaekjum-og-fjarmalastofnunum--radgjof

Kaldi
19.08 2009 kl.22:28

siðblindur

Glaumur
19.08 2009 kl.22:32

Hefði ekki verið nær að sálfræðingur eða geðlæknir hefði tekið þetta viðtal og byrjað á spurningunni: “Hvernig er hægt að koma svona mikilli siðblindu, græðgi og firringu í eina persónu?”
Ári eftir hrunið biðst hann loks tilneyddur afsökunar á því að hafa tapað hundruðum millljarða í eigu hluthafa, lífeyrissjóða og erlendra kröfuhafa með glórulausum lánveitingum til að eigenda bankans (sem þekktust varla fyrr en eftir á að sögn HMS).
HMS lýgur og neitar að biðjast afsökunar á hruni samfélagsins sem glæpsamlegt fjárhættuspil hans og félaga olli á Íslandi og er beint hægt að rekja til gjaldþrots Kaupþings og hinna bankanna. Búnaðarbankinn hefði orðið 70 ára 14. júní s.l. en liggur í valnum eftir HMS og félaga. Seðlabankinn hefði orðið 50 ára 2011 en er nú öndunarvél eftir HMS og félaga. Lífeyrissjóðakerfi landsmanna er komið að fótum fram eftir fjárfestingar í svikamyllunni og svo mætti lengi telja.

Siggi
19.08 2009 kl.22:32

Hver bjó eiginlega til fyrirsögnina á þessari frétt!!
Einhver gamall kommi aftan úr rassgati??

Tek það fram að ég er enginn vinur hanns Hreiðars og finnst launastefna bankanns og lánastefna til algerar skammar fyrir þessa fyrverandi stjórnendur.

Meigi þeir dvelja sem lengst erlendis við skömm og eigi vera vært á Íslandi.

summi
19.08 2009 kl.22:33

Hvernig væri að skoða þetta í skjóli þess að þegar bankahrunið varð þá
sagði fyrrverandi
Menntamálaráðherra að hún hefði tapað miklu en hún hélt húsinu.

Jörðin Hof í Álftafirði er í eigu Kristjáns Arasonar sem er fyrrverandi
KB banka maður og
hans konu Þorgerðar Katrínar og annara

Kristján og Þorgerður voru stödd á Hofi 1. ágúst 2009.

eftirfarandi stóð á heimasíðu djjúpavogshreppí gær

18.08.2009 - Bréf frá Ólafi Áka Ragnarssyni bæjarstjóra

Heimasíðu Djúpavogshrepps hefur borist ósk frá Ólafi Áka Ragnarssyni
bæjarstjóra í sveitarfélaginu Ölfus um birtingu eftirfarandi bréfs og er
hér með orðið við þeirri ósk. AS.

Góðir dagar í Djúpavogshreppi !

Nú þegar ég sest við tölvuna eftir gott sumarleyfi þar sem ég dvaldi í
mínu gamla sveitarfélagi Djúpavogshreppi, fer í gegnum hugann minn
breytingar á högum fólks og ekki síst framkomu. Sumarleyfið mitt í ár
var eitt lengsta samfellda frí sem ég hef eitt í Djúpavogshreppi síðan
ég flutti þaðan 2002. Þar sem ég er fæddur og uppalinn á Djúpavogi og
forfeður mínir koma all flestir af þessu svæði, þá hef ég sterkar
taugar til sveitarfélagsins. Ekki síst til suðurhlutans þ.e.
Hamarsfjarðar og Álftafjarðar. Dalirnir inn af Álftafirði,
Geithellnadalur, Hofsdalur og Flugustaðadalur eru með þeim fallegri á
landinu. Sveitarfélagið á tvær jarðir í Álftafirði, Tunguhlíð og
Markúsarsel. Tunguhlíð fylgir m.a. svokallað Oddatún sem er norðan við
Hofsá ofan og neðan við brúna á Hofsá.

Laugardaginn 1. ágúst ákvað ég að fara með fjölskyldu minni inn í
Flugustaðadal og berja augum Markúsarsel og Tunguhlíð. Á þeim 16 árum
sem ég var sveitarstjóri í Djúpavogshreppi smalaði ég þetta svæði all
oft . Leiðin lá eftir veginum að kirkjunni að Hofi. Þegar fara átti út
af veginum fyrir neðan túnið á Hofi var slóðinn sem þar var áður fyrr
horfinn á kafla. Ákvað ég þá að fara fram hjá bænum í Hofi eins og
tíðkaðist á árum áður, ef slóðinn var ekki fær fyrir neðan túnið.
Þetta er eina leiðin sem fær er inn í Flugustaðadal og hefur verið
notuð um árabil, enda fjármögnuð af almannafé. Haldið var síðan sem
leið liggur yfir Hofsá fyrir innan Hof og að Tungunni og inn í
Markúsarsel. Töluvert var í ánum enda sumarið nokkuð rigningarsamt.
Dagurinn var þrátt fyrir lélegt útsýni dásamlegur og margar minningar
rifjaðar upp, m.a. um veru móður minnar í Tunguhlíð.

Þegar halda átti til byggða á ný og komið var að bænum Hofi var búið að
leggja bíl í eitt hliðið og læsa hinum tveimur með keðjum og lásum. Ég
ákvað því að fara gömlu leiðina eftir varnargarðinum við ána. Þeirri
leið var einnig búið að loka, en ég ákvað að opna hana og hélt sem leið
lá með ánni upp á veginn við Oddatún. Þegar keðjulásafólkið á Hofi var
þess áskynja að við gætum komist til byggða án þess að krjúpa fyrir
þeim, óku þeir á mikilli ferð frá bænum út á veginn á móts við Oddatún.
Þar staðnæmdist bíllinn (/Mitsubishi Pajero/) á miðjum veginum. Hurðinni
var hrundið upp og ljóst var að það átti að stöðva okkur og sennilega
veita tiltal fyrir að skoða landið okkar. Þegar bílstjóranum sem leit
út eins og KGB maður (en reyndist vera fyrrverandi KB bankamaður) varð
það ljóst að við værum ekki á þeim buxunum að láta hann stoppa okkur
þaut hann inn í bílinn og lokaði hurðinni.

Þessi yfirgangur Hofsfólksins kom nokkuð flatt upp á okkur enda aldrei
lent í slíku á þessu svæði. Það hefur ávallt verið greið leið fyrir
okkur sérvitringana sem eigum rætur á þessu svæði að skreppa á nokkra
ára fresti inn í dalina í Djúpavogshreppi og njóta náttúrufegurðar
þeirra og rifja upp minningar um okkar forfeður. Eitt af því
mikilvægasta fyrir hvert sveitarfélag er fólkið sem býr þar og fólkið
sem er burt flutt og heldur tryggð við æskuslóðirnar. Flestir
íslendingar eru þeirrar náttúru gæddir að halda tryggð við uppruna sinn.
Það er skoðun mín að það sé eitt af okkar dyggðum sem rækta á með
þjóðinni. Seigla okkar að halda byggð í landinu byggir m.a. á þessari
tryggð.

Það er von mín að sveitarstjórn Djúpavogshrepps taki mál sem þetta til
skoðunar. Það er mikið skref afturábak ef misvitrir fjárfestar geta
komist upp með að hefta aðgengi fólks að náttúruperlum okkar í
Djúpavogshreppi.

Ölfusi 11. ágúst 2009

Í dag stóð þetta á heimasíðu djúpavogs

Með samþykki Ólafs Áka Ragnarssonar og þess aðila sem málið beindist að hefur verið ákveðið að taka bréfið út.

Gummi
19.08 2009 kl.22:33

Þessi maður/drengur er svo veruleikafirrtur að mér varð óglatt af að hlusta á hann áðan í Kastljósi. Þetta viðtal ýfir bara upp sárin í Landanum, maður verður reiðari og reiðari með hverju viðtalinu. Hvenær á eiginlega að sækja þessa bankaræningja til saka? Sauðsvartur almúgurinn bíður og bíður eftir að réttlætinu verði fullnægt.

Ásta B
19.08 2009 kl.22:34

aggi
19. ágúst, 2009 kl.22:27

Þetta er með svo miklum ólíkindum að þetta er ekki fyndið. Að maður sem í kvöld viðurkenndi þó alveg ótrúleg mistök og “heimsku” í bankaviðskiptum ætli að fara gefa fyrirtækjum og fjármálastofnunum ráðgjöf er náttúrlega svo absúrt að það tekur engu tali. Þvílík siðblinda er eina sem hægt er að segja um þennan gúbba.

Grenjaði nærri því úr vonsku fyrir framan tækið í kvöld þegar hann var að mjálma um að þeir í Kaupþingi hefði ætlað að fara að bregðast við aðstæðum. Ætluðu að kynna þær ráðstafanir í lok október 2008 en “vonda” fólkið kom í veg fyrir það. Algjörlega með ólíkindum segi bara ekki annað.

SG....
19.08 2009 kl.22:35

Lítið annað en bindi og jakkaföt, aumkunarvert mann grey.

krissi
19.08 2009 kl.22:36

verða örugglega aldrei sóttir til saka mætta halda að þeir séu ósnertanleigir

Ásta B
19.08 2009 kl.22:37

summi
19. ágúst, 2009 kl.22:33

Þessi framkoma hjá þessu fólki kemur mér ekki á óvart:( Bara það að konan sitji á alþingi er í sjálfu sér þjóðarskömm.

Fannar
19.08 2009 kl.22:39

Summi, þetta fólk telur sig yfir aðra hafin. Frekjan og yfirgangurinn er algjör! Oj bara, ekki batnar álit mitt á Þorgerði frekju við þetta.

Stefanía Stefánsdóttir
19.08 2009 kl.22:40

Það kom vel í ljós í þessu viðtali við Hreiðar Már ,hvað þetta er siðblindur bankaræningi,,,,, þarf ekki að byðja þjóðina afsökunar--FIBBBLIÐ
Sigmar komst vel frá þessu, hefði mátt vera harðari við hann, auminginn getur ekkert hjálpað til, maður sem var með hæðstu mánaðartekjur af öllum á landinu,hann á örugglega böns af peningum, gott væri ef satt væri að hann hefði tapað miklu, bara vonandi öllu,,, það var eins og hann væri að reyna að fá samúð fólks...... ALDREI Í LÍFINU

rækjan
19.08 2009 kl.22:43

Kvar fékk hreiðar már þessar 1500 miljónir var hann á sjó áður en hann fór í bankann. Var ekki til dæmi um togara með 15 manna áhöðn sem þénaði vel, en það tæki hana 15-20 ár að vinna fyrir þessari upphæð, Hreiðar reindu að halda því fram að þetta sé eðlilegt. Af kverju spurði Sigmar hann ekki um hryðjuverkalögin sem voru sett á íslendinga. Það er nokkuð öruggt að það var vegna þessa að gríðarlegir fjármunir streymdu út úr bresku útibúunum yfir í þau íslensku. Svo í ofanálag dældi seðlabankinn 500 miljörðum inn í KB banka rétt fyrir hrun en Hreiðar og félagar launuðu greiðann með því að laumast með þá fjármuni út bakdyrameginn og gott betur 1500 miljarðar hurfu áður en þeir lokuðu á eftir sér . Þetta 25% viðmið með það kvað megi lána einstökum eigendum banka er svo glórulaust og sennilega samið af þessum sömu mönnum. Og að lokum Valgerður Sverrisdottir og Finnur Íngólfsson afnámu bindiskildu bankana í sinni ráðherratíð, það þyrftti að ræða þeirra hlut í þessum ósköpum sem yfir okkur hafa dunið.

Helga
19.08 2009 kl.22:44

Hann sagðist hafa “tapað” 1500 milljónum sem hann fékk út á lán sem hann þurfti ekki að borga en sleppti að nefna, og spyrillinn auðvitað alveg eins og sauður, að hann var búinn að hala inn ansi drjúgar fjárhæðir í arð af þessari “töpuðu” fjárhæð.

Veruleikafirring? Ég var oft að hugsa um það FYRIR hrun hvort þessir menn þyrftu ekki að fara að lgera sér víggirt hverfi til að þurfa ekki að koma nálægt okkur hundraðkallapakkinu - sjálfsagt hefðu þeir meiri þörf fyrir svoleiðis núna - en af öðrum ástæðumi.

Toni
19.08 2009 kl.22:46

SS kl 22:14, hvað heitir kallinn? Var reyndar glaðvakandi og verð það fram á nótt við að horfa á Zeitgeist.

Einnig hefði mátt spyrja Hreiðar um endurhverf viðskipti fjármálafyrirtækja og seðlabankans árið 2007 og 2008.

Unnur
19.08 2009 kl.22:46

Hreiðar á örugglega næga peninga. Hann þorir bara ekki að koma með þá aftur til Íslands, auðvitað eru þeir geymdir í einhverri skattaparadísinni eða í eignum einhvers staðar úti í heimi, á einhverju öðru nafni. Mér fannst Sigmar standa sig ágætlega í þessu viðtali. Hreiðar hins vegar var mjög ósannfærandi, lygin uppmáluð.

H.F.
19.08 2009 kl.22:49

Kjánalegt að hafa ekki beðið afsökunar bara. Útaf því það var margt til í þessu hjá honum í sambandi við Seðlabankann og síðan Icesave. Þessir tveir turnar sem er að setja þjóðina á hausinn.

sd
19.08 2009 kl.22:51

Til að öðlast þjóðarþögn
þegar þeir aðra véla
gefa sumir agnarögn
af því sem þeir stela

Hagfræðingur
19.08 2009 kl.22:52

Hversvegna er verið að ræða við Hreiðar Már yfir höfuð.
Það eru búin að vera ótrúleg drottningarviðtöl í
þessu kastljósi samanber viðtalið hans Sigmars við
Davíð Oddsson. Meira að segja Agnes Bragadóttir nær ekki
að trompa þessi viðtöl. Fyrir þetta eru við skattgreiðendur neyddir
til að borga 17.000 kr á ári með nefskatti. Fékk Hreiðar Már kannski
borgað fyrir að koma fram í þessu viðtali ?

Jónsi
19.08 2009 kl.22:54

Að stærsta bankagjalþrot heims bitni ekki á smáþjóðinni sem hýsti aðalstöðvar bankans er svo fokking heimskulegt að það hefði átti að henda þessum manni öfugum út úr sjónvarpssal.

Og fyrir utan það þekki ég fólk sem var ráðlagt, af ráðgjöfum Kaupþings, að selja ekki í bankanum af því að Al Thani var að “kaupa” í bankanum!

Og eitt af helstu markmiðum þessa manns var að kollvarpa Íbúðalánasjóði. Það gerðu þeir m.a. með því að bjóða fólki að taka lán hjá KB til að greiða upp lán Íbúðalánasjóðs sem koma sjóðnum í vanda.

aa
19.08 2009 kl.22:55

þetta á bara vel við þráðin

http://www.youtube.com/watch?v=ZrPJgT_xRqM

SS
19.08 2009 kl.22:57

Við getum öll þakkað fyrir það að þú tókst ekki viðtalið Toni. Þá hefðu allir sofnað.

Birgir Örn
19.08 2009 kl.23:00

Bretar bera stærsu ábyrgðina á falli Kb-banka. Það má bara ekki mynnast á það, því ekki má rugga bátnum. Væntanleg ESB aðild gæti verið í hættu. Manni verður óglatt af undirlægjuhætti stjórnvalda gagnvart glæpaverkum Breta.

Jónsi
19.08 2009 kl.23:00

Er virkilega enginn sem veit hvers vegna hann var í Kastljósi í kvöld? Munið þegar Bjarni Ármanns birtist og stuttu síðar keypti hann súkkulaðiverksmiðju og er svo á leið til landsins??

Fylgjumst vel með ferðum hans og gjörðum næstu daga?

Orðlaus
19.08 2009 kl.23:04

Eitt sem hann sagði var athyglisvert. - Sieger and Friedlander bankinn fékk ekki eðlilega meðhöndlun hjá Bretum. - Skil til kröfuhafa KB eiga að ná u.þ.b 80%. Sem bendir til þess að bankinn stóð mun betur en almennt var talið.
Vekur upp stórar spurningar um þátt Breta í hruninu.

Disa
19.08 2009 kl.23:04

Þetta er allt saman einn viðbjóður en af hverju grafa ekki fréttamenn RUV í landssöluna þá hina nýrri; hverjir standa að baki Magma, til dæmis? Eru það Bjarni Ármanns og álíka nótar? Smettið á þessu kvikindi, Hreiðari, þegar hann sagðist enga afsökunarbeiðni skulda þjóðinni, það hlýtur að standa okkur fyrir hugskotssjónum um ókomna framtíð

H.F.
19.08 2009 kl.23:04

Þetta var nú ekkert drottningaviðtal. Sigmar stóð sig ágætlega.
Hvernig hefði þetta verið ef Björn Ingi hjá MArkaðinum hefði tekið þetta viðtal.

Hjördís Vilhjálms
19.08 2009 kl.23:06

Kíkið að blogg Láru Hönnu, þetta er innahús myndband sem að sögn, lak úr KB banka, þar sem verið er að hvetja starfsmenn áfram.

Kannski ætti nýji KB að gera nýtt myndband , þar sem stjórnendur gamla KB eru hvattir til að biðjast afsökunar, sýna iðrun og skila peningunum ?

Hér er slóðin : http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/933712/

Hlaupadrengur
19.08 2009 kl.23:08

Hreiðar Már er í fullkominni afneitun.

Viðtalið við hann er dæmigert skólbókadæmi í glæpafræðum, þ.e.a.s. glæpamaðurinn trúir ekki að hann hafi framið glæpinn, þó svo að lögreglan hafi komið að honum standandi yfir líkinu með blóðugan hníf í hendinni.

Þetta viðtal minnti mig á þegar “líkfunda Jónas” kom fram í þættinum Ísland í dag nokkrum klukkustundum eftir að hann slapp úr gæsluvarðhaldi og hélt því blákalt fram af mikilli sannfæringu að hann væri alsaklaus.
Hann trúði sínum eigin orðum eins og Hreiðar Már.

hkþ
19.08 2009 kl.23:09

Viðbjóðlegur lygari.

Heiðar, sýndu okkur bankayfirlitið á Tortóla !

Næsat spurning er svo hvaða dömur voru með þér að sigla sl. sumar á mIðjarðarhafinu ?

KVERÚLANTINN
19.08 2009 kl.23:11

Þess maður er siðblindur og siðblindir menn eru og tala svona.
Hann getur ekki að þessu gert.
Hann þarf í langa meðferð.

Glaumur
19.08 2009 kl.23:12

Hreiðar Már gleymdi alveg að þakka Geir H. Haarde fyrir vinargreiðann með neyðarlögunum en með þeim var gert upp á milli kröfuhafa og innistæðueigendur settir í forgang á kostnað annarra kröfuhafa. Það þýðir að erlendir kröfuhafar greiða tap íslenskra innistæðueigenda í Kaupþingi sem annars myndu hafa tapað a.m.k. helmingi innistæða sinna ef ekki meir! Nú safna þessir erlendu kröfuhafar liði á hendur flórmokaranum Steingrími og þjóðarskömminni hans og heimta risavaxnar bætur.
Hreiðar heldur hins vegar heim til Lux á morgun til að telja peninga á meðan þjóðinni heldur áfram að blæða af hans völdum og félaga hans.

Óli
19.08 2009 kl.23:13

það er bara hægt að segja pass....

Andri
19.08 2009 kl.23:16

Hreiðar Már lenti í eignabólu, ofurlaunum og bankahruni eins og hann orðaði það, og nú lendir hann í fangelsi bráðlega, aumingjans maðurinn sem er alltaf að lenda í hinu og þessu.

Toni
19.08 2009 kl.23:26

Að fyrrum auðmaður og stjórnandi stærsta bankagjaldþrotsins skilji ekki ábyrgð sína er engin frétt.
Það er svo sem heldur engin nýlunda að fjölmiðlamaður reyni að gera úr því frétt.

Þetta viðtal var klúður, heimskar spurningar og fyrirsjánleg svör.
En þorsta einhverra var svalað, sem núna geta lagst til svefns sælir í heimsku sinni.

Helena
19.08 2009 kl.23:30

Siðblindur maðurinn.

Þráinn
19.08 2009 kl.23:31

Hreiðar Már

Ég var einn af þeim sem tók myntkörfulán af bankanum þínum, af ráðleggingum starfsmanna þinna. Lánið var upphaflega í 20 mkr. og ég lagði fram 7 mkr í eigið fé.

Í dag stendur lánið í tæpum 50 mkr!!!! Ég er búinn að tapa öllum sparnaði mínum og skulda rúmar 25 mkr umfram verðmæti eignar minnar.

Það er vitað að undir stjórn þinni tók bankinn massíva stöðu gegn krónunni sem var til þess að hún féll og eftir hrun bankans þá hefur orðsporð Íslands og íslenski gjaldmiðillinn orðið að engu.

Er þessi staða sem ég og fjölskylda mín alfarið mér að kenna þar sem ég fór að ráðleggingum sérfræðinga þinna eða berð þú og félagar þínir einhverja sök á því hvernig komið er fyrir mér og mínum.???

Vona að þú hafir það sem allra best og þurfir ekki að liggja andvaka af fjárhagsvandræðum, því það er bölvað.

Hjálmar
19.08 2009 kl.23:36

Ég skil ykkur hérna að ofan ekki alveg. Mér finnst að sama hvað Hreiðar Már hefði sagt í kvöld, hefðu flest ykkar samt talið hann siðlausan drullusokk.
Viljum við ekki öll að sannleikurinn komi í ljós ?
Af hverju ættu menn að koma fram og tjá sig um bankahrunið ef þeir fá bara skítkast fyrir ?
Vissulega hefur Hreiðar gert mörg mistök, fleiri en hann viðurkenndi, en hann var ekki einn og ég er nokkuð viss um að nokkrir þeirra sem kommentuðu hér að ofan hafi tekið fullan þátt í 2007 brjálæðinu.

Mér fannst mjög gott að hlusta á Hreiðar og margt þarft sem hann sagði. Ég er ekki sammála öllu en ég væri alveg til í að heyra mun meira frá Hreiðari Má á næstunni.

BBB
19.08 2009 kl.23:38

Hreiðar hamast á að ekkert hafi fallið á ríkissjóð. En hvað með almenning? En hvað með erlendu lánin sem hann er höfundurinn að. Er ekki Kaupþing með um 65% erlendu lánanna sem eru að knésetja stóran hluta almennings?

Hvað með allar kærurnar sem sérstakur saksóknari er að skoða á Kaupþing. Þær snúast allar um markaðsmisnotkun, - AlThani, Black Sunshine og hvað þetta var allt saman. Kaupþing var að villa um fyrir markaði og blekkja og halda uppi fölsku gengi á bréfum í Kauphöll Íslands. Þar voru þeir að svindla á fjárfestum og öllum almenningi, - sem Hreiðar segist ekki skulda afsökunarbeiðni.

JULI
19.08 2009 kl.23:39

Til hvers var verið að fá manninn í þáttinn ?
Til að tipla á tánum í kringum hann ?
Hann hefur kannski komið með þeim skilyrðum að ekki væri spurt um Tortola ?
Eða undanskot á fé og skatti ?
Sigmar var ótrúlega lélegur og ætti að fara ásamt öðru fjölmiðlafólki á námskeið hjá kollegum sínum erlendis í því hvernig á að sauma að svona fólki.

Það er eins og fjölmiðlafólk hér á landi sé hrætt við fv. auðmenn.
Meðhöndla þá nánast eins og heilaga menn.
Af hverju er Lalla Johns ekki boðið í þáttinn ?
Hann er örugglega líka mikið skemmtilegri en Hreiðar Már.
Þegar upp er staðið hefur Hreiðar Már stöðu grunaðs í Kaupþingsmálinu.
Kom það kannski til út af engu ?
Það er eins og skvetta olíu á eld að fá þennan mann í Kastljósið með sínar yfirlýsingar. Reiði almennings er eins og púðurtunna sem er kominn að því að springa.

Ben Ten
19.08 2009 kl.23:39

Áhugavert....

Það var margt mjög áhugavert sem fram kom í viðtalinu. Ég hlakka til að fylgjast með umræðunum næstu daga því menn eiga heldur betur eftir að velta sér uppúr staðhæfingunum sem þarna komu fram. Líka velti ég fyrir mér tímasetningu viðtalsins því maður hefur ekki heyrt neitt í Hreiðari frá hruninu fyrr en nú. Lánabókin vegur sennilega þungt þarna en á hinn bóginn hefur þjóðin sennilega aldrei staðið á jafn viðkvæmum tímapunkti. Þrátt fyrir að flestir horfi manninn hornauga skulum við ekki loka alveg augunum fyrir því að Hreiðar er langt frá því að vera vitlaus. Kannski á e-ð eftir að koma upp á yfirborðið í kjölfarið sem útskýri betur ástæðuna.

En smá pæling varðandi mörg viðbrögð (ekki öll) hér að ofan:

1. Mér finnst fólk alltof mikið velta sér uppúr því hvern maðurinn baðst afsökunar. Það skiptir nákvæmlega engu máli því ef hann hefði beðið þjóðina afsökunar þá er ég viss um að fólk væri samt að drulla yfir manninn. Ég man nú þegar Bjarni Ármanns baðst afsökunar - það var nú meiri útreiðin og hýðingarnar sem hann fékk á blogsíðum eftir það. Fyrir vikið finnst mér líklegt að enginn “víkingurinn” gerist svo “vitlaus” að biðjast afsökunar. Það er eins líklegt að einstaklingur myndi biðja að flytja sig úr fallöxinni uppá krossinn, því þar geti hann kvalist vel og lengi. Þetta sýnir sennilega best hvað mannskepnan er merkileg og hvað rök og tilfinningar fara engan vegin saman. Persónulega hef ég engar áhyggjur þessu því mikið púður er lagt í að velta öllum steinum og afbrotamönnum verður refsað - engin spurning.

Ég fer ekki oft á svona blogg því mér leiðast ítrekaðar blammeringar með litil rök á bakvið orðin. Það er eins og flestum sé skítsama hvað fram kom í viðtalinu fyrir utan það hverjir fengu afsökunarbeiðni og hverjir ekki - ég vill ekki trúa því að fólk einfaldlega skilji ekki allt hitt. Nú er ég ekki að taka upp hanskann fyrir Hreiðar eða nokkurn annan sem sitja undir ásökunum almennings en mig langar að hvetja fólk til þess að vera með málefnanlegri umræður.

Bónusheilinn
19.08 2009 kl.23:39

Músin hefur talað hvar er Rottan.
Og lýðurinn borgar afglöp þessara kjána.

Hjördís Vilhjálms
19.08 2009 kl.23:45

@H.F., kl.23:04

,,Hvernig hefði þetta verið ef Björn Ingi hjá MArkaðinum hefði tekið þetta viðtal.”

Hér er umfjöllun um Kastljós viðtalið á Pressunni, EKKI EITT ORÐ um að hann neiti að biðja þjóðina afsökunar , eins og allir aðrir fjölmiðlar virðast hafa í sínum fyrirsögnum; EKKI EITT ORÐ.

Hér er slóðin: http://pressan.is/Frettir/LesaFrett/hreidar-mar-vid-thurfum-ad-gera-eitthvad-fyrir-skuldara

Whatsername
19.08 2009 kl.23:45

Hvernig ætli Hreiðar skilgreini orðið “auðmaður”?

Ég hefði viljað að Sigmar léti Hreiðar útlista það nánar hvað hann ætti við með því. Ég er nú fullviss um að hann er ekki orðinn neinn láglaunamaður allt í einu, en kannski dottinn úr trilljarðaskýinu sem hann hefur svifið á undanfarin ár.

Þá hefði ég líka viljað að Sigmar léti hann útskýra hvers vegna Kaupþing hélt áfram að bjóða myntkörfulán í stórum stíl á sama tíma og bankinn var að taka stöðu gegn íslensku krónunni, og spyrja hann hvers konar viðskiptahætti hann teldi það vera.

Forhertir glæpamenn telja sig aldrei skulda afsökunarbeiðni, er það?

SS
19.08 2009 kl.23:47

Ben Ten. Þú getur pælt í afsökunum með Steingrími J. Sigfússyni.

Jakob Þór Haraldsson
19.08 2009 kl.23:50

Ótrúlegt að standa fyrir “svika- & blekkingarmyllu” og segja svo við þjóðina að slíkt hafi ekki valdið okkar samfélagi skaða.....lol...! Ganti hér að ofan bendir réttilega á: “...það er alrangt hjá Heiðari Má að fall Kaupþings hafi ekki skaðað almenning, ríkissjóð, lífeyrissjóði og atvinnulífið.” En þetta lið virðist því miður bara vera “peninga fíklar - algjörir SÝKÓPTAR sem Óli grís hefur verðlaunað með fálkaorðunni” enda þekkir Óli grís vel “skítlegt eðli”. Hann má þó eiga það félagi Árni Johnsen að hann viðurkenndi þó fyrir þjóð sinni að: “...honum hefði orðið á TÆKNILEG mistök” þegar hann braut 5 landslög....lol.....! Ég vona að Heiðar og aðrir aðilar fái nokkur ára fangelsisdóm fyrir sinn þátt í sukkinu.

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Óli
19.08 2009 kl.23:52

@Andri: 23:16
Snilld...

rækjan
19.08 2009 kl.23:59

Úr því að það er minst á Óla Grís þá var hann að detta af hestbaki enn eina ferðina og brjóta sig.hestur og grís eiga greinilega ekki samleið.

Spotti
20.08 2009 kl.00:04

Hestar eru næmar skepnur.

Gunnur
20.08 2009 kl.00:05

Hvernig var það fengu ekki þessir menn ofurlaun af því þeir báru svo mikla ábyrgð?
Hvar er ábyrgðin núna þegar allt er hrunið.
Hreiðar Már kann greinilega ekki að skammast sín.

GG
20.08 2009 kl.00:14

Grey strákurinn ! Við getum svo sem alveg beðið þangað til það fer að hringla í handjárnunum.....

Hann getur nú unnið fyrir skuldunum á Hrauninu, eru þeir ekki að útbúa númeraplötur og fl. Ég held líka að þeir taki að sér að klára ýmsa handavinnu, krossaum og fl. sem gefur einhvern pening, eða eru það nunnurnar í Hafnarfirði sem gera þetta???

Ég býst fastlega við afsökunarbeiðni frá honum blessuðum þegar nær dregur skuldadögunum.....

Halldóra Björnsdóttir
20.08 2009 kl.00:14

Já sæll í hvaða heimi býr þessi maður.
Ber enga ábyrgð og allt öllum öðrum að kenna.
Hann talar um gjaldþrot Seðlabankans. Kaupþing misnotaði aðstöðu sína í samstarfi við Icebank til að ná sér í fjármögnun í gegnum Seðlabankann. Stór hluti af þessum svokölluðu ástarbréfum eru gefin út af Kaupþingi sama banka og pjakkurinn stjórnaði.
Markaðsvirði Kaupþings var mörghundruð milljónir, þeir peningar töpuðust líka.
Ekki falsaði Seðlabankinn ársreikninga Kaupþing er það.
Ekki stofnaði Seðlabankinn skúffufyrirtækið Black Sunshine.
Ekki lánaði Seðlankinn alla þessa fjármuni með veði í hlutabréfum Kaupþings til þess eins að halda genginu á félaginu uppi svo stjórnendur gætu réttlætt himinhá laun, flogið um í einkaþotum og spilað sig sem einhverja stórkalla út í heimi. Ef stjórnendur Kaupþings og annara banka sem hafa farið í þrot hér á landi hefðu farið að lögum hefði engum heilvita manni dottið í hug að halda að þetta væru snillingar í viðskiptum sem þyrfti að borga stórlaun á alþjóðlegan mælikvarða. Eftir þetta viðtal sér maður að þessi maður er ekki með öllu mjalla og ber ekki neina ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut.
Hreiðar Már líttu þér nær og reyndu að vera svolítið auðmjúkur annars áttu ekki séns að rísa upp á ný hér á landi.

Halli
20.08 2009 kl.00:27

Ágæta fólk. Stærsti glæpurinn er þessi:

1. Þegar bankarnir höfðu aðgang að mjög ódýru lánsfé þá fóru þeir að bjóða fólki upp á myntkörfulán. Þ.e. fólk sá fram á að lánið myndi lækka ef krónan myndi styrkjast.

2. Hins vegar, á meðan þessu stóð yfir þá voru bankarnir og stærstu eigendur þeirra (allir vita um hverja er verið að tala) að taka ótrúlegar stöðutökur gegn krónunni sem auðvitað varð til þess að krónan átti sér ekki viðreinar von.

Er þetta ekki brjálæði?

Núna eru þúsundir Íslendinga ,,tæknilega” gjaldþrota og eiga sér ekki viðreisnarvon.

Solla
20.08 2009 kl.00:59

Horfið á þáttinn aftur - það ætla ég að gera - því ég hef á tilfinningunni að Sigmar hafi klúðrað viðtalinu með því að fylgja ekki eftir því sem Hreiðar sagði sem var margt mjög merkilegt heldur var Sigmar svo æstur og upptekinn af því að fá Hreiðar t.þ.a biðja þjóðina afsökunar. Það er staðreynd að það var ekki aðili á Íslandi sem sem setti KB í þrot heldur Bretland - hvers vegna? Þar brást Sigmar algjörlega.

sls
20.08 2009 kl.00:59

Þessi ungi maður er svo illa haldinn siðblindu að hann á sér ekki bata von. Hann mun aldrei sjá neitt rangt við sínar ákvarðanir í Kaupþing, annars hefði hann aldrei komið í þetta viðtal.
Heimskur spjátrungur það er hann.

Rut
20.08 2009 kl.01:44

Hugsið ykkur að ríkisstjórin og AGS gerðu samkomulag strax eftir hrunið að allar afskriftir/leiðréttingar á lánum almennings kæmu ekki til greina.

Afhverju var okkur ekki sagt þetta strax?

Enemy of the state
20.08 2009 kl.01:45

Robert Tjengiss ekkert tengdur aðili sagði hann og vitnaði í lög

Allmenningur er náttúrulega ekki lögfræðimenntaður en fyrst það

eru til lög sem segja að eigandi og stjórnarmaður séu ekki tengd

viðkomandi krimma... er þá ekki bara málið að kasta lögunum út um gluggan

Fallöxin er náttúrulega grimm og ómannúðleg meðferð þannig að ég

sting upp á að taka upp gamlan og góðan sið

TJÖRU OG FIÐUR

Rut
20.08 2009 kl.01:50

Þess vegna kom skjaldborgin aldrei

“Það mátti ekki hrófla við skuldum heimilanna því þær reiknast sem eignir hjá bönkunum.”

http://okurvextir.blogspot.com/

Elinborg, eignalaus!
20.08 2009 kl.02:20

Emil þarna í upphafi.
komdu og þurkaðu upp upp eftir mig, því mér er vorkunn að hafa sullað niður á meðan ég var upptekin af því að ræna þig.

Kolla
20.08 2009 kl.02:21

@summi kl.22:33
Ég er brjáluð. Hofseigandinn er væntanlega einn þeirra sem Hreiðar Már biður afsökunar. Ekki okkur og sjálfsagt finnst Hofseigandanum hann ekki skulda neinum afsökunarbeiðni! &$#&% ARGGG

hugsi
20.08 2009 kl.02:30

Hreiðar Már fór í þjálfunarbúðir í USA og kom heim þrautþjálfaður í að finna dautt fjármagn og gera það lifandi með veðsetningu heillar þjóðar og í boði fv. stjórnvalda og undir verndarvæng núverandi stjórnvalda

Peningarnir eru ekki lengur á Tortola heldur að öllum líkindum búið að breyta þeim í gull. ............. aftur í gegnum Luxemburg og inn á bankahólf í sviss

Voru ekki örugglega allir að horfa á framhaldið á Zeitgeist á rúv í kvöld, klukkan 23:30?

Í boði Rúv, loksins en samt svo seint til að tryggja það að helmingur þjóðarinnar sé annað hvort sofandi eða sofni á verðinum?

Zeitgeist
20.08 2009 kl.02:34

Af hverju ætti hann að biðja þjóðina afsökunar þegar að núverandi stjórnvöld vernda hann fyrir öllum sínum afbrotum, þetta er allt löglegt enda var þjóðin svikin um stjórnalagaþing til að breyta stjórnarskránni, til að fyrirbyggja það hægt sé að handtaka þessa menn og dæma þá í 150 ára fangelsi?

ein stór svikamylla .........

Elinborg, eignalaus!
20.08 2009 kl.02:46

Sammála lalla jóns kl,02,40
annars er bara eftir að fara á “walkabout”

Are
20.08 2009 kl.03:14

Hann fékk 64 milljónir á mánuði kallinn. Gott f. almennan launamann á Íslandi að vita af því og velta fyrir sér réttlætinu í því.

Þroftur
20.08 2009 kl.03:36

Veruleikafirrtur polli sem er ekki auðmaður í sínum skilningi.... Hvað ætli sé auðmaður í hans skilningi!

logi
20.08 2009 kl.04:10

Lalli Johns átti svipað tilsvar er hann sagði eitt sinn.” Það vað ekki mér að kenna að ég braust inn hjá þeim. Þau höfðu opinn gluggann.”

Nú verða þenkjandi manneskjur að stíga upp og átta sig á því að þessi maður er mesti glæpamaður Íslandssögunnar fyrr og síðar, ásamt Sigga siðblinda. Sigurjóni digra, Halldóri Joð ... og jú, laukrétt, kjartanni Gunnarssyni. Bjöggi eldri gerði sér aldrei almennilega grein fyrir hvað var í raun og veru á ferðinni, enda trúði hann því statt og stððugt að hann væri ósnertanlegt góðmenni með alla þessa fjármuni. Hann er ekki illa innrækttur líkt og fyrrnefndir. Hann vissi bara ekki betur.

logi
20.08 2009 kl.04:22

Hljóma eflaust eins og talsmaður Björgólfs Guðmundssonar, sem ég vil leiðrétta hér og nú. Það sem ég vildi sagt hafa er ... að í mínum huga (bara mínum huga) sé að ég tel hann ekki vera orsakavald ógæfunnar sem nú dynur yfir þjóðina. Það voru aðrir menn, með mjög einbeittan brotavilja sem töldu honum trú að hann myndi hagnast á öllu bullinu. Lokaorð: Hann var ekkert of klár með heift og hefnigirni að fyrirrúmi. Raunverulegir stjórnendur: Græðgi, brotavilji, og SIÐBLINDNI.

Logi

BB
20.08 2009 kl.04:40

Hvernig væri að setja kauða í að stimpla númeraplötur næstu 30 árin og sjá hvort ekki hrokinn minkar aðeins.

aron
20.08 2009 kl.06:33

Beint í fangelsi með þennan siðblinda drullusokk, á ekki langt að sækja þjófagenin. Mamma hans stal sjóðum 66 gráðum norður og setti fyrirtækið á hausinn.

Priscilla
20.08 2009 kl.07:13

Þar sem enn er verið að rannsaka hrunið úr ýmsum áttum hefði það verið harla óvenjulegt að fá einhverjar yfirlýsingar fram í svona viðtali.

Pétur
20.08 2009 kl.08:00

Í hvaða heimi býr þessi maður. Tapaði ekki þjóðin?

Svo er vitað að þeir voru að manipulera gengið á bréfum Kaupþings og annarra f.t.

Gunnr
20.08 2009 kl.08:20

Hann er augljóslega mikið skemmdur þessi maður.

Gunnr
20.08 2009 kl.08:23

Er hann ekki annars á leið í til Luxemburg? Til að hjálpa til þar og ekki minnst vinunum í gegnum króntappan á sköpnarverkinu Kaupþing Luxemburg þar sem þeir sturtuðu peningunum inn í skattaskálkaskúmaskot.

BK
20.08 2009 kl.08:24

Maður veltir bara fyrir sér tímasetningu viðtalsins, er e-h að koma í ljós á næstunni.

Einar H.
20.08 2009 kl.08:28

Auðvitað finnst honum fínt hvernig fór. Þetta var planið hjá honum.
Af hverju á maður að afsaka sig fyrir eitthvað sem er einbeittur vilji manns?

Daníel
20.08 2009 kl.08:40

Hefur ekki kostað ríkið krónu?

Hvað með endurfjármögnun bankans (70 milljarðar), lánið upp á 500 milljónir evra í haust, vinna í kringum hrun bankans og sú staðreynd að enginn mun þora að fjárfesta hér í langan tíma?

Er það ekki einhverskonar tap fyrir þjóðina?

Gunnar
20.08 2009 kl.09:02

Einn þreyttur.

Farðu að sofa.

Lúðvík
20.08 2009 kl.09:02

Er þessi auðróni ekki fluttur af Íslandi....... kanski fer sauðsvartur almenningur að átta sig á þessu.

Gunnar
20.08 2009 kl.09:05

ásta B. settu linkinn, hver er linkurinn á Bloggið hennar Láru Hönnu?

Hafliði
20.08 2009 kl.09:17

Kaupþing undir stjórn Hreiðars stundaði það að “dömpa” íbúðarbréfum á markaðinn í kringum útboð Íbúðalánasjóðs sem varð til þess að Íblsj. þurfti að hafa útlánavexti hærrri en annars! Þarna voru Kaupþings menn að leika sér að því að eyðileggja fyrir Íbúðalánasjóði og almenningur þurfti að borga hærri vexti!! Jónasi vini Hreiðars fannst þetta ekkert til að skoða!

Ragnheidur Magnúsdóttir
20.08 2009 kl.09:24

SIDBLINDUR.

Sigurgeir Þór
20.08 2009 kl.09:26

Þvílíkur múgæsingur, Hreiðar Már kom mjög vel út og svaraði þeim spurningum sem að honum var beint samviskusamlega. Hann var auðmjúkur og bað þá afsökunar sem áttu afsökunarbeiðni skilið. Kjarni málsins er sá að KB banki fór á hausinn eftir að breska ríkisstjórnin setti hryðjuverkalögin á og frystu bankann í sporum sínum. Bankinn var rétt fjármagnaður og hefur staðið skil á sínu. Skuldir bankans eru ekki að lenda á íslendingum ólíkt Icesave. Ég skil ekki hvað fólk er að væla yfir þessum manni, eins og hann eigi meiri sök á stöðu íslands og stöðu íslendinga allmennt. Ég held að margir íslendingar mættu líta í eigin barm og athuga hvort þeir eigi ekki sjálfir smá sök á stöðu sinni. Hvort þeir hefðu kannski ekki á að sleppa því að kaupa Plazma sjónvarp, Range Rover og íbúð á yfirverði, allt á Yen lánum. Er enginn sem ber minnstu ábyrgð á hvernig fyrir honum er komið sjálfur?

Ragnheidur Magnúsdóttir
20.08 2009 kl.09:30

Vantar allmennilegt ransóknarfjölmidlafókl á Íslandi!! Allt of slappt hjá tessum í Kastljósinu...Egill, tú átt Fálkaorduna skilid!

Jón
20.08 2009 kl.09:35

Að lána án veða og fella niður skuldir starfsmanna er bankarán.
Að gera ekkert í því að afturkalla ólöglegar niðurfellingar lána er spilling og landráð.
Að fangelsa ekki manninn frir bankarán er hugleysi.
Að flýja með fenginn til Lux er gunguháttur.

KB banki var gríðarlega valdamikil mafía sem valdi þau lög sem hún vildi fara eftir með ríkisstjórnir sér til varnar.
Þetta hefur ekkert breyst.

Hreiðar á meira fé og eignir en þúsundir íslenskra fjölskyldna samanlagt og það fé er illa fengið.

Hafliði
20.08 2009 kl.09:43

Sigurgeir Þór

Kb var á leið á hausinn í þó nokkurn tíma, það gerðist á á einni nóttu ekki frekar en önnur fyrir tæki fari á hausinn á einni nóttu. Eva Joly með alla sína reynslu fullyrti að stjórnendur banka viti alltaf að banki er að fara að rúlla! Þess vegna voru ábyrgðir starfsmanna t.d. felldar niður og skuldir færðar í ehf. félög.

Skuldatryggingarálagið á bankann gaf til kynna að hann væri gjaldþrota, enginn vildi lána honum. Búið spil löngu fyrir okt. 2008

Gunnar
20.08 2009 kl.09:43

Sigurgeir Þór, hann Hreiðar Már Sigurðsson er ekkert hvítþveginn þótt Björgólfarnir hafi verið verri.

Var það ekki eðlilegt að Bretar settur hryðjuverkalög á menn sem gerðu tilraunir til að ráðas á efnahagskerfi þeirra. Við sjáum hvernig bankarnir fórum með efnahagskerfi Íslands. Var það ekki hryðjuverk? Bara spyr?

Hafliði
20.08 2009 kl.09:47

gerðist EKKI á einni nóttu

Mæja
20.08 2009 kl.10:53

Aumingja maðurinn á nú fyrir sköttunum sínum eins og hann sagði við meigum vera þakklát fyrir það . Enn svipurinn sem kom á hann þegar hann var spurður hvort hann ætti ekki að byðja þjóðina afsökunar gleymist ekki.
Verði honum að góðu og vonandi heldur hann sig fjarri landinu við þurfum ekki svona fólk í þessu landi

Sjonni H.
20.08 2009 kl.11:43

Landssöfnun fyrir Hreiðar Már. Allir láti gott af sér leiða handa Hreiðari Má.

magister
20.08 2009 kl.11:54

Margt áhugavert í þessu viðtali en sú fullyrðing Hreiðars að ríkissjóður tapi ekki krónu vegna Kaupþings er í meira lagi vafasöm. Í fyrsta lagi var ríkið að setja 72 milljarða inní bankann til að endurfjármagna hann. Í öðru lagi er tap seðlabankans sem ríkið tók á sig m.a. tilkomið vegna skuldabréfa Kaupþings sem þar voru að veði. Í þriðja lagi er alls óvíst hvað endurheimtist af 500 milljörðunum sem veittir voru með veði í FIH en sú upphæð fengist allavega ekki í dag ef sá banki væri seldur.

Siggi
20.08 2009 kl.12:07

Hverju illa eru menn tilbúnir í svona viðtal, það hefði verið hægt að mála Hreðjar algerlega út í horn.. en .. nei þvílík hrútmáttlaus aðferð við að taka viðtal við einn af höfundum kreppunnar..

Guðgeir
20.08 2009 kl.14:22

Aðeins eitt sem ég vil segja við Hreiðar Má: FOKK JÚ!!

SKATTGREIÐANDINN
20.08 2009 kl.15:49

BEINT TAP LÍFEYRISSJÓÐA OKKAR var gífurlegt, þeir áttu mikið af hlutabréfum í bönkunum m.a. Kaupþingi. Ekki gleyma því að þetta víðfræga “FÉ ÁN HIRÐIS” er m.a. lífeyrisjóðir allra landsmanna.

Svo að það er ekki rétt hjá fyrrverandi forstjóra gjaldþrota bankans að ekkert tap falli á íslendinga við að banki eins og Kaupþing verði gjaldþrota.

Fyrir utan beint tap hluthafa sem voru mörg þúsund íslendingar, þá töpuðum við öll milljörðum í lífeyrissjóðunum okkar og svo á eftir að “setja inn fé” í Nýja Kaupþing - hvaðan kemur það fé, nema frá skattgreiðendum?

marco
20.08 2009 kl.15:50

Þeim sem líka ekki tök Sigmars má benda á að hann er ríkisstarfsmaður í fullri vinnu sem samhliða því að yfirheyra glæpamenn þarf að sinna allskonar hlutum öðrum. Allskonar infotainment, human interest bulli.

Það er ekki hægt að ætlast til þess að hann sé betur inn í aumingjadómi manna eins og Hreiðars Más eða Hannesarjafna heldur en þeir sjálfir verandi búnir að liggja yfir því mánuðum saman hvernig þeir geta klórað yfir drulluna.

SKATTGREIÐANDINN
20.08 2009 kl.15:55

Hreiðar sagðist ætla að biðja hluthafa bankans afsökunar, en ekki íslensku þjóðina.

Hver heldur þú, Hreiðar, að eigi lífeyrissjóðina sem voru mjög stórir hluthafar? Einhverjir óskilgreindir “ótengdir aðilar”??

Íslenska þjóðin í heild sinni voru hluthafar í bankanum, Hreiðar, .......so cought it up..........

Böddi
20.08 2009 kl.16:23

Auðjöfrar dagsins í dag eru allt annarrar tegundar. Þeir eru alþýðlegir menn sem setja sig ekki á háan hest -- leggja rækt við að sýna að þeir deili smekk almennings. Þeir láta fólkið hafa það sem það vill -- það sem áður var haldið frá því. Á því græða þeir auðvitað líka heil býsn. Það hefur risið ný kynslóð auðmanna sem nýtur aðdáunar. Hún þarf ekki að mæta á fundi hjá stjórnmálaflokkum; það er miklu sennilegra að stjórnmálamennirnir bíði í röðum eftir að fá áheyrn hjá þeim. Hún hefur ítök í fjölmiðlum og afþreyingariðnaði nútímans; býður fólki skemmtun, ódýrar flugferðir, meiri neyslu, endalaust úrval -- ótalmargt sem er fallið til vinsælda. Hún er býsna ólík gömlu auðstéttinni sem byggði á útilokun og forréttindahyggju.“

- Egill Helgason á bloggi sínu um auðmenn fólksins Pistill í DV 23. október 2004

laxi
20.08 2009 kl.17:46

Af hverju ekki að viðurkenna að Hreiðar stóð sig mjög vel í þessu viðtali.
Það voru ekki bara bankamenn sem gerðu mistök.
Af hverju eru alþingimenn ekki dregnir til ábyrgðar. eða fjármálaeftirlyt og hvað með seðlabankastjórnina. Var ábyrgð lífeyrisjóðsstjórana engin.

Doddia
20.08 2009 kl.19:09

Þarf ekki þjóðin að biðja Hreiðar Má afsökunar á öllu þessu veseni.

Danton-María
20.08 2009 kl.20:24

Þetta er skömm og svívirða, enda sá maður að hann var að ljúga, væla og vorkenna sér fyrir að hafa tapað 1400 milljónum.

Forherðingin var alger: “Skulda þjóðinni ekki afsökunarbeiðni.”

has
21.08 2009 kl.00:37

Er þetta ekki bara leikrit, er ekki búið að ákveða spurningarnar og hvert þetta á að leiða áður en viðtalið hefst, þessir menn mæta einfaldlega ekki í viðtöl ef það á að spyrja verulega erfiðra spurninga, það sýnir okkur kanski að fréttamenn eru aular og vinna ekki fyrir kaupinu sínu, við getum fengið hvern sem er til að flytja fréttir að utan sem eir fá sendar til sín og þessar micro fréttir héðan, það vantar harða fréttamenn sem láta þessa menn finna fyrir sér rannsóknablaðamenn eða eitthvað slíkt.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar