Hafin er undirskriftasöfnun á norska vefnum Opprop, sem tengdur er dagblaðinu Aftenposten í Osló, þar sem hvatt er til þess að Ísland og Noregur sameinist í einu ríkjabandalagi. Þannig verði komið í veg fyrir að Ísland verði þvingað inn í Evrópusambandið í kjölfarið á því að gróðabrallarar hafi lagt efnahag landsins í rúst.
Rétt um eitt hundrað manns, þar af nokkrir Íslendingar, hafa ljáð undirskriftasöfnuninni nafn sitt eftir að hún hófst fyrr í sumar.
Þeir sem standa að áskoruninni vilja að málið komist í brennidepil í þingkosningunum í Noregi sem verða 14. september næstkomandi. Hafa þeir þegar vakið athygli flokkanna og frambjóðenda á áskoruninni.
Það er tæplega þrítugur bloggari og námsmaður, Sylvia Melvin Kjennerud, sem er frumkvöðull að undirskriftasöfnuninni. Fjallar hún um málið á bloggsíðu sinni.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
137 ummæli
Rita ummæli19.08 2009 kl.10:47
Slóð
heyr heyr, þó að ég sé reyndar Evrópusinni. En þá styð ég ríkjabandalag við Norsara og myndi kjósa það umfram ESB.
19.08 2009 kl.10:49
Slóð
Þetta líst mér á. Tel mig eiga meiri hagsmuna að gæta með norðmönnu frekar en ítölum t,d.
19.08 2009 kl.10:50
Slóð
Af hverju ekki bara Norðurbandalagið - Noregur, Ísland, Grænland og Færeyjar. Þá verður allt Norður-Atlantshafið okkar hafsvæði
19.08 2009 kl.10:52
Slóð
Margt vitlausara ...
19.08 2009 kl.10:52
Slóð
Undir öðrum þjóðum komið hverjir taka af skarið og yfirtaka stjórn Íslands.
Landsmenn áhuga og eða getulausir að hrista af sér glæpaklíkurnar sem hér hafa stjórnað og stjórna enn.
Dofnir horfa menn hver á annan og bíða eftir einhverju sem ekki gerist.
19.08 2009 kl.10:53
Slóð
Ágætis hugmynd, betri en aðild að ESB.
19.08 2009 kl.10:54
Slóð
Ríkjabandalag við Norðmenn jafngildir afsali sjálfstæðis. Að ganga inní ESB er hinsvegar að fara í samstarf við aðrar sjálfstæðar þjóðir í alþjóðasamtökum sem sjálfstæð þjóð. Þetta lið sem er með þennan blauta norska draum og gegn ESB er alveg ótrúlegt!
19.08 2009 kl.10:56
Slóð
Góð hugmynd! Við getum lært ýmislegt af Norðmönnum, t.d. þætti eins og sparsemi og aga.
19.08 2009 kl.10:56
Slóð
hahaha.... Jón Ásgeir Smárason stendur undir nafni...öllum nöfnunum...
19.08 2009 kl.10:57
Slóð
1262 all over again.
19.08 2009 kl.10:57
Slóð
Gott mál - einmitt sem við þurfum.
19.08 2009 kl.10:58
Slóð
Ég er ESB sinni,en þessi hugmynd er ekki svo slæm,ég hef sagt það áður að sá kostur að fara í bandalag með Norðmönnum vegna sameinilega tengsla og lanfræðilega tengsla.
19.08 2009 kl.10:58
Slóð
@ Theo
Athyglisverð hugmynd.
19.08 2009 kl.11:05
Slóð
Sammála Theo.
Norgur Færeyjar Grænland Ísland. Þetta yrði öflugt ríkjabandalag með miklar auðlindir. Styð þessa hugmynd heilshugar.
19.08 2009 kl.11:06
Slóð
ísland grænland færeyjar og kanada
19.08 2009 kl.11:07
Slóð
“Nordic Union” framar “European Union”
19.08 2009 kl.11:09
Slóð
Þarf ég þá að fá mér gönguskíði?
19.08 2009 kl.11:10
Slóð
Mig minnir að þessi hugmynd hafi þegar verið viðruð svo snemma sem í okt, 08. þá voru viðbrögðin öll önnur, svo sem “nú vildu Norðmenn yfirtaka litla ísland einu sinni enn” ég hefði heldur stutt þessa hugmynd og taka Grænland og Færeyjar með í dæmið heldur enn ESB, þangað sem fjárlögum Löggunnar hefur verið fleygt vegna umsóknarinnar einnar.
19.08 2009 kl.11:13
Slóð
Ef Noregur væri verr staddur en hann er værum við þá að hugsa þetta mál.
Eða er það bara þannig að alltaf þegar íslendingar sjá peninga þá fara þeir á þeysireið!
Hvað sagði Gordon Gekko? “Follow the money” (eða var það einhver annar sem sagði þetta:)
19.08 2009 kl.11:15
Slóð
Ég styð þetta, ef helvítis svíarnir koma hvergi nærri málum.
19.08 2009 kl.11:17
Slóð
Við erum etv mun betur sett í ríkjabandalagi (hvað sem það er nú nákvæmlega) en að fara í ESB. Sem fáir nema samf. fólk hafa raunverulegan áhuga á.
Minni á að Steingrímur J. forsetisráðherra okkar nefndi ESB ekki í Hólaræðunni. Ekki einu orði.
19.08 2009 kl.11:20
Slóð
Heyr heyr það er eitthvað vit í þessu :)
19.08 2009 kl.11:20
Slóð
Við þurfum bara að passa upp á að við fáum aðgang að þeirra en þeir ekki okkar þá fyrst getum við verið í vinabandalagi með þeim.
19.08 2009 kl.11:21
Slóð
Margar hugmyndir hafa komið fram undanfarið, þetta er ein og er hún skárst allra, við myndum ekki fara varhluta af ríkja- og samvinnusambandi við Noreg. Skárri kostur en EB. Hugsið ykkur sameiginlega hagsmuni í sjávarútvegi og olíuvinnslu, maður talar nú ekki um orkuna og náttúruna.
19.08 2009 kl.11:22
Slóð
Ég bjó í Noregi í 5 ár. Ég veit, að flestir Norðmenn vilja stofna ríkjabandalag við Ísland, Færeyjar og Grænland. Þetta er samt eitthvað, sem þeir tala aðeins um á öðru glasi. Nú kemur þetta uppá yfirborðið, enda gera þeir sér grein fyrir, að gangi Íslandi í ESB, yrði erfiðara fyrir Noreg að viðhalda sjálfstæði sínu utan ESB. Eins vita þeir (eins og við), að Íslendingar eru örvæntingarfullir og sjá fram á áratugi í fátækt (eins þótt við gengjum í ESB). Góð byrjun á Norðurbandalagi væri, að stofna ríkjabandalag Íslands og Noregs. Norðmenn myndu dempa marga vitleysuna, sem hér er í gangi og verður sennilega alltaf í gangi, ef við verðum ein á róli. Og tvímælalaust tek ég þetta fram yfir það að ganga í ESB. Kannski myndu Skotar, Írar og Kandamenn einhvern tímann bætast í hópinn og jafnvel fleiri Norðurlandaþjóðir, ef(þegar) ESB leysist upp. En það væri seinni tíma mál.
19.08 2009 kl.11:22
Slóð
Íslendingar hafa ekkert með það að gera að vera sjálfstæð þjóð, þeir eru hálfvitar upp til hópa, kunna ekkert með peninga að hafa og stjórnmálamenn eru seldir mafíunni sem hér ræður ríkjum.
Förum aftur heim til Noregs.
19.08 2009 kl.11:25
Slóð
Er harður Evrópusinni en væri meira en til í að skoða hvað fælist í þessari hugmynd.
19.08 2009 kl.11:33
Slóð
Verst er að samfylking mun keyra þessa hugmynd um koll eins og skot.
Hún er með ESB sýki af verstu sort og sér ekkert annað.
Bíðið bara og sjáið þeirra viðbrögð.
Þeir munu afskrifa þetta strax.
19.08 2009 kl.11:35
Slóð
Þeir sem eru á móti ESB en styðja þetta, ættu að taka smá stund og hugsa málið. Innganga í Noreg mundi þýða algert afsal á sjálfstæði íslendinga, og allir málaflokkar mundu flytjast til norskra stjórnvalda.
Þetta gerist ekki við inngöngu í ESB. Þar sem stjórnvöld eru til staðar, allir málaflokkar á hendi stjórnvalda og sjálfákvörðunarvald yfir málum þjóðarinnar.
19.08 2009 kl.11:35
Slóð
1262 ++ ?
Af hverju ætti noregur að vilja ríkasamband við Ísland?
Fyrir flesta Norska stjórnmálamenn kemur umsókn Íslands í ESB eins og himnasending, því þeir vilja líka inn í ESB - sér í lagi gildir þetta um AP!
Dream on
19.08 2009 kl.11:37
Slóð
”Sylvia Merlyn Kjennerud ble i Tønsberg tingrett dømt til 15 dager betinget fengsel”
19.08 2009 kl.11:40
Slóð
Kannski að Syliva sé með sömu glæpagenin og Íslendingar?
19.08 2009 kl.11:40
Slóð
Þýðir ekki ríkjasamstarf eins og t.d. Færeyar hafa við Danmörku að danir fara með utanríkismál og hafa reyndar hönd á ýmsu öðru en Færeyingar eru með heimastjórn sem ég veit ekki hvernig virkar. (Veit það einhver?)
Það væri t.d. martröð að fá Norska bílaskatta á Íslandi, en ýmislegt annað eins og að hægt væri að leggja niður utanríkisþjónustuna væri hið besta mál. Annars eru Norðmenn sjálfir margir efins um að þeir lifi af að olían klárist! Þannig að þetta væri kanski að fara úr öskunni í eldinn?
19.08 2009 kl.11:43
Slóð
Jón Frímann?
afhverju ætti ísland að missa sjálfstæðið frekar sem sambandsríki við noreg heldur en innlimun í esb?
19.08 2009 kl.11:43
Slóð
ég er búinn að vinna með Norðmönnum í þrjú ár, og að öðrum þjóðum ólöstuðum (hef unnið með nokkrum þeirra) þá finnst mér Norska þjóðin best.
Þeir eru tæknilega mjög þróaðir, kunna með fé að fara, og eru frábærir iðnaðar menn, harðduglegir til vinnu, með mikla reynslu í hernaði, framleiða nánast allt milli himins og jarðar í heimalandinu, hvað viljið þið meira!
Það verður að losna við innflutningsaðalinn á Íslandi og monkey bissnessinn
clean baby bankaofurmennin, fiskikvóta þjófagerið, ómerkilega pólitíkusa,
kynvillingaelítuna, ofl. ofl. fyrr verður aldrei neitt á Íslandi.
Förum í badalag með Norðmönnum ef við höfum tök á því.
EU er hallærislegt í dag, Þjóðverjar og Englendingar þykjast vera að fallast í einhveja faðma, þvílík hræsni.
19.08 2009 kl.11:43
Slóð
Eins og ég hef alltaf klifað á ... Ísland og öll hin norðursvæðin... Canada með og USA... - og Rússar..
Við höfum miklu meiri hagsmuna að gæta með þessum löndum en þeim sem eru sunnar...
enda er fyrirsjánalegt að um miðja öldina gæti staðan verið þannig að svæðin töluvert fyrir norðan (og sunnan ?) miðbaug verði einhver mikilvægustu matvælaframleiðslulönd á kringlunni...
19.08 2009 kl.11:51
Slóð
Nokkuð góð þessi ;-)
http://aftenbladet.no/lokalt/966128/Soga_om_islendingane_og_det_store_pengespelet.html
19.08 2009 kl.11:53
Slóð
Nú hringja viðvörunarbjöllur á stjórnarheimilinu og innan veggja Samfó er verið að safna í lið gegn þessari hugmynd,það skildi þó ekki vera að nú hafi opnast leið fyrir Steingrím út úr hinni pólitísku kynskiptiaðgerð sem hann varð að fara í
19.08 2009 kl.11:57
Slóð
Búinn að segja þetta í mörg ár. Ísland Færeyjar og Grænland í ríkjasamband. Og jú, fínt að fá Noreg með. Þessar þjóðir hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta.
19.08 2009 kl.11:59
Slóð
Elinborg, eignalaus! @ 11:43. Vegna þess að ríkjasamband þýðir að viðkomandi svæði hefur ekki fullt sjálfstæði yfir sínum málum, og aðeins ein stjórnvöld taka þar ákvarðanir.
Engin ríki eru innlimuð í ESB. Ég hefði talið að umsókn Íslands um inngöngu í ESB hefði drepið þessa fáránlegu fullyrðingu í eitt skipti fyrir öll, en lengi lifir heimskan. Því miður. Við inngöngu í ESB þá mundu íslendingar taka þátt í starfi ESB á jafnréttisgrundvelli, og móta stefnu Evrópusambandsins. Enda er ESB samband sjálfstæðra ríkja í Evrópu og ekkert annað.
19.08 2009 kl.12:00
Slóð
Frábært! Mér finnst að þjóðirnar hér við íshafið, Ísland, Noregur, Færeyjar og Grænland eigi að sameinast í ríkjabandalagi.
19.08 2009 kl.12:01
Slóð
Norðmenn hafa lengi viljað gína yfir ekki bara Norðurheimskautssvæðinu, heldur eru þeir líka með svæði á Suðurskautslandinu sem þeir telja sig eiga.
Jan Mayen ætti augljóslega að vera íslenskt, en þar haf Nojarar auðvitað komið sér upp bækistöð.
Annars hefur svona “Norður-Atlantshafsbandalag” með norskum formerkjum verið prófað áður og náði líklega hámarki einmitt árið 1262.
Sannleikurinn er hinn bóginn sá, að smáríki blómsta nú þegar innan Evrópusambandsins, Slóvenía, Malta, Eistaland, “you name it”. Þetta á jafnvel í enn ríkara mæli við sjálfstjórnarsvæði þjóðarbrota eins og Katalóníumanna o.fl. sem hafa öldum saman verið undir hæl stórra “yfirþjóða” eins og Frakka og Spánverja.
19.08 2009 kl.12:12
Slóð
Vissulega !
Íslensku pólitísku drullusokkarnir hafa sannað að þeir eru ófærir um
að þjónusta fólkið og vinna fyrir það.
Fólkið á Íslandi er betur komið undir stjórn eins ríkasta þjóðfélags í veröldinni, en einhverra Íslenskra glæpa pólitíkusa, sem þrælpína
alþýðu manna, og stela öllu steini léttara frá fólkinu/þjóðinni.
19.08 2009 kl.12:16
Slóð
Yrðum ósigrandi í Júróvsjón!
19.08 2009 kl.12:16
Slóð
Heyr , heyr.....lengi lifi hinn norræni kynstofn.
19.08 2009 kl.12:19
Slóð
Vá. Bara að ég sé að hugsa þetta sem möguleika!
19.08 2009 kl.12:22
Slóð
Norðmenn eru náttúrulega hræddir vegna þess að þeir sjá fram á að vera eina þjóðin í Evrópu utan ESB og að þeir eingangrist í kjölfar þess að Ísland gangi í ESB. Þeir eru náttúrulega bara að hugsa um eigin hagsmuni...
19.08 2009 kl.12:23
Slóð
@ Móvinda....ég er þér hjartanlega sammála.
Það þarf mótvægi við ESB og önnur ríkjasambönd.
Framundan er hlýnun jarðar , vatnsskortur og styrjaldir.
ZOG er ekki framtíðin.
19.08 2009 kl.12:27
Slóð
Norðmenn eru þróaðir í olíuvinnslu og nísku það er staðreynd. Fiskveiðar, vegagerð, túrismi og annað slíkt er þessari ágætu þjóð ekki í blóð borið. Þessi þjóð hefur vinnudaginn kl 7 og fer heim kl 15 annað þarf ekki að ræða. Ef Norðmenn væru olíulaus þjóð, þá (sem þeir verða) væru þeir fisketevjande veraballeetarar eins og Íslendingar, en Norðmenn sjá að möguleiki er að Ísland finni olíu og ekki bara það heldur er makríllinn á leiðinni til Íslands þannig að betra er að hafa gott veður. Nei við þurfum ekki ríkjasamband við Noreg það þarf bara að hreinsa út bankaskrílinn, lögfræðingaliðið og sjálfstæðismenn, þá verður þetta ágætis land að búa í.
19.08 2009 kl.12:27
Slóð
Við erum í EFTA. Þarf annað en efla það samstarf og dýpka með færeyingum og grænlendingum. Það má auðvitað bjóða Canada með.
Ríkjasamband með Noregi einum er ekki álitlegur kostur. Það er jafn arfavitlaust og ESB aðild.
19.08 2009 kl.12:32
Slóð
Norðmenn eru leiðinda smá-imperíalistar og síðasta þjóðin sem við ættum að fara í bandalag við. Það væri meira að segja örlítið minna brjálað að skríða aftur undir pilsfald Dana.
Eiginlega hálfgerð sifjaspell, þeir eru jú svo skyldir okkur... ;)
19.08 2009 kl.12:34
Slóð
Vox,
Ef valið væri á milli ESB og Noregs þá kýs ég Noreg að öllum líkindum.
En valið er í raun á milli Noregs eða ekkert.
ESB er dautt.
Nýjasta könnun Gallups dró klæðin ofan af líkinu.
Ef þið haldið að vinsældir ESB eiga eftir að aukast þá vitna ég í Spánska embættismannin sem sagði að Spánn væri afar spenntur fyrir inngöngu Íslendinga í ESB. Hans inlegg var frábært að heyra. ESB andstæðingar hefðu ekki geta fengið betra inlegg í umræðuna.
19.08 2009 kl.12:37
Slóð
Meðan ég þarf ekki að hlusta á fólk tala norsku, er þetta athugandi
19.08 2009 kl.12:40
Slóð
Jón Fríman, @ 11,59.
sammála þér lengi lifir heimskan.
En heldur þú virkilega að “innlimun og innganga” sé eitthvað ólíkt þegar um er að ráða lítið eyríki og stórt sambandsríki?
Ég er allavegana ekki svo heimsk að halda það.
Það er betra að hafa allann varann á með það í hvaða ból ísland stekkur, það gæti verið ból bjarnar.
Það lætur því betra að 3 smálönd saman í hagsmuna samband með 1 stóru, sem sagt Færeyjar,Grænland og ísland, í coop með Noreg, án fullveldis-slappleika.
19.08 2009 kl.12:40
Slóð
Já, endilega að gera þetta.
Svo getum við líka sent mann til tunglsins og byrjað að rækta ananas í Aðalstrætinu með stórfelldan útfluttning í huga.
19.08 2009 kl.12:41
Slóð
Orðlaus:
Við hefðum áfram okkar alla hentisemi sem ESB-aðilar, Brussel er það langt í burt. Brussel er aukinheldur það besta sem komið hefur fyrir hin mjög mörgu þjóðarbrot innan einstakra ESB-ríkja.
Osló-valdið myndi hins vegar líta á Ísland eins og hvert annað hérað í Noregi, Hálogaland, Fjarðafylki eða Hringaríki.
Þannig var það til forna og þannig yrði það að nýju,
Gleymdu ekki að Nojarar hafa alltaf talið “Snorre Sturlason” vera norskan...
19.08 2009 kl.12:42
Slóð
Ríkjasamband Íslands, Noregs, Færeyja og Grænlands!
Þetta er bara FRÁBÆR hugmynd
19.08 2009 kl.12:43
Slóð
Það sýnir vel ástand fólks hér hversu vel er tekið í þessa hugmynd. Norðmenn eru að vísu frændur okkar og besta fólk upp til hópa en þeir hafa löngum verið taldir mjög samansaumaðir þegar kemur að fjárútlátum. Telur fólk virkilega að þeir muni sjá um að borga skuldir íslenskra “óreiðumanna”?
19.08 2009 kl.12:44
Slóð
Heyr heyr..gott mál.
19.08 2009 kl.12:47
Slóð
Yrði þetta þá kallað Nýi Sáttmáli?
Arfa vitlaus hugmynd, og það fyndna að það eru væntanlega sömu vitleysingjarnir sem taka undir hana hérna, og gala hæst um “fullveldismissin” við að ganga í samband fullvalda Evrópu ríkja. Af hverju flytja þeir ekki bara til Norge ef þá dreymir um að fá hlutdeild í Olíusjóðnum?
19.08 2009 kl.12:55
Slóð
íslendingar og norðmenn eru langt frá því að vera eins þekjandi.við lifum fyrir augnablikið enn norðmenn leggja línunar fyrir framtíðina og eru miklu agaðri en við getum látið okkur dreyma um
19.08 2009 kl.12:57
Slóð
Styð að skoða þetta. Styð frekar að tekið sé á spillingu innanlands.
19.08 2009 kl.12:58
Slóð
Það er kannski spurning hvort þá eldri og þroskaðri geri mann úr þessum vanþroska og snarvitlausa unglingi sem við erum
19.08 2009 kl.12:58
Slóð
Finnst þetta mjög spennandi
19.08 2009 kl.12:59
Slóð
Verður Ólafur Ragnar þá kóngur, nóg er nú samt.
19.08 2009 kl.13:00
Slóð
Tótinn,
allar þróaðar þjóðir hafa lent í bólum eins og við. ALLAR!
Hættum þessari ofur-vantrú og finnum meðalveginn.
19.08 2009 kl.13:04
Slóð
MW 19. ágúst, 2009 kl.12:23
Einmitt það sem ég er að segja - Svo má Vox Veritas endilega skýra út hvernig hann gerir saman´burð á Íslandi ... einu tækniivæddasta landi á sínu sviði ... ef litið er til iðnaðar og viðskiptaumhverfis...
á móti “vélvæddu-handafli” austantjaldaþjóðanna...
Við erum skuldug kannski... og búum við svipað eða hærra spillingarstig og austantjaldslöndin... en við erum samt komin lengra en þessar þjóðr...
Sorrí... og hættu svo að tala niður til þeirra sem enn eru hérna að reyna að þrauka áhrif SAMSPILLINGARINNAR...
19.08 2009 kl.13:09
Slóð
við hlaupum af stað við hvert einasta tækifæri sé við fáum til að skuldsetja okkur. Ekki þessa afneitun orðlaus hún er kjánaleg
19.08 2009 kl.13:10
Slóð
Já..
19.08 2009 kl.13:11
Slóð
Orðlaus @ 12:34. Nýjasta könnunin um þetta mál var framkvæmd að nýfrjálshyggju náhirðinni í Andríki, sem er hluti af sjálfstæðisflokknum. Það var ekkert að marka þessa könnun, frekar en könnun heimssýnar um sama mál.
Ég býð eftir næstu könnun fjölmiðla um stöðu íslendinga varðandi ESB. Ég tek frekar mark á þeim heldur en könnunum frá útibúum sjálfstæðisflokksins.
19.08 2009 kl.13:16
Slóð
Þessa hugmynd þarf sko að skoða nánar
19.08 2009 kl.13:17
Slóð
Það er ótrúlegt hve margir virðast hrifnir af þessari tillögu. Ég hef búið í Noregi í meira en þrjátíu, kann vel við mig hérna en er handviss um að ríkjabandalag við Noreg myndi enda með því að Ísland yrði innlimað í Noreg. Norðmenn líta margir hverjir á Ísland sem norska eign og myndu aldrei hlusta á okkur. Noregur viðurkennir ekki einu sinni yfirráðarétt Rússa yfir Frans Josefslandi, sterk öfl í Noregi eru hafheimsvaldasinnuð.
19.08 2009 kl.13:23
Slóð
Mér finnst þessi tillaga mun betri en ESB vegna þess að við myndum að öllum líkindum hafa meira ráðrúm til að semja við Norðmenn heldur en ESB-báknið.
Ég held að þetta sé enginn Gamli sáttmáli. Við þurfum stuðning og bandalag við önnur ríki - hef heyrt margt vitlausara en þetta.
Séra Jón: Gordon Gecco sagði: “Greed is Good”
Forstjóri FBI sem kallaði sig Deep Throat á meðan Watergate-málinu stóð ráðlagði blaðamönnunum tveimur að “Follow the money”.
19.08 2009 kl.13:24
Slóð
Nei takk.
Ég hef svo sem ekkert á móti Norðmönnum.
Ég vill bara vera áfram íslendingur það er ef eigin stjórnvöld flæma mann ekki úr landi með skjaldborginni sinni
19.08 2009 kl.13:33
Slóð
Við eigum miklu meiri seimeiginlegt með Noregi og öðrum löndum á norðurslóðum heldur en með t.d. Ítalíu, Spáni og Frakklandi svo ég tali ekki um Grikki og Tyrki, ef Tyrkir komast inn í ESB
Stið þessa hugmynd!!!
19.08 2009 kl.13:34
Slóð
1. Norðmenn eru ekki að verða olíulausir
2. Norsk níska er ekki alslæm , eitthvað sem við getum lært af.
3. Norskur agi er bara af hinu góða.
4. Norðmenn eru fjárhaldslega sjálfstæðir og engum háðir á því sviði. Þess vegna hafa Norðmenn meðal annars einir þjóða gagnrýnt framferði Ísarelsmanna gagnvart Palestínumönnum.
5. Norðmenn eru ekki helspilltir og að deyja úr græðgi.
6. Íslenskir ráðamenn eru eitthvað það aumasta sem sést hefur á þessari jörð þannig að betra er fyrir Íslenskan almening að vera hérað í Noregi en að búa við þetta andsk. bull sem viðgengst hér.
19.08 2009 kl.13:36
Slóð
Almenningur velti þeirri hugmynd upp strax í október síðastliðnum að Ísland ætti að mynda bandalag með Grænlandi, Færeyjum, Noregi og Kanada. Þær auðlindir sem slíkt bandalag hefði undir höndum eru ekkert minna en gríðarlegar.
Almenningur bendir á, að með þeim hætti skapaðist raunverulegur möguleiki á að tryggja sjálfbæra nýtingu sjávarfangs á ansi stórum hluta norðurhvels jarðarinnar, svo ekki sé minnst á ráðstafanir í mengunarmálum.
19.08 2009 kl.13:51
Slóð
JÁ JÁ JÁÞETTA LÍKAR MÉR .....THEO! HINIR KOMA ÖRUGGLEGA Á EFTIR
19.08 2009 kl.13:54
Slóð
Þetta er djók - það kemur heldur ekki til greina af hálfu Norðmanna að «sameinast» Íslandi.
Ekki kæmi það til greina heldur fyrir Ísland að afselja allt vald til Noregs. Er verið að reykja eiturlyf?
Enn einu sinni kemur líka í ljós hvað sumar fréttir hér á Eyjunni eru ótrúlega óheiðarlega framsettar.. dæmi, efst er skrifað:
«Hafin er undirskriftasöfnun á norska vefnum Opprop, sem tengdur er dagblaðinu Aftenposten í Osló, þar sem hvatt er til þess að Ísland og Noregur sameinist í einu ríkjabandalagi.»
Þetta er presenterað eins og undirskriftasöfnunin sé á nokkurn hátt tengd vefnum Opprop - sem aftur er tengt við Aftenposten..
Nú er Opprop bara vefsíða þar sem hvaða idiót sem er getur búið til undirskriftarlista. Undirskriftarsöfnunin (petition) kemur vefnum nákvæmlega ekkert við, frekar en aðrar undirskriftasafnanir á honum, eins og:
- Arne Erlandsen ut af HamKam (190 undirskriftir)
- Ja til demokrati i Burma (4072 undirskriftir)
já og svo auðvitað:
- Ja til union mellom Norge og Island ! (79 undirskriftir síðan 15. júni 2009)
Neðst á síðunni kemur auðvitað fram:
«Nettstedet drives av Dagbladet.no men meningene som kommer frem her, er ikke Dagbladets egne.»
Auðvitað fattar hver einasti maður það sem tékkar á vefsíðunni, en þetta er kynnt í fyrstu línum «fréttarinnar» hér á Eyjunni með því að taka það fram að vefurinn Opprop «tengdur dagblaðinu Aftenposten í Osló». Um.. af hverju, nema til þess að gefa þessu bulli eitthvað autoritet? Þetta er alveg ótrúleg ekki-frétt.
Dramtíkin heldur áfram þar sem Eyjan telur að «rétt um eitt hundrað manns, þar af nokkrir Íslendingar» hafi skrifað undir. Mhmmm..
Ef sjötíuogníu er betur lýst sem «rétt um eitt hundrað» í stað «tæplega hundrað», þá er það svosem innan skáldaleyfis «fréttamanns» en alvöru fréttamaður hefði líka fattað að þetta eru 79 manns skráðir síðan 15. júní. «Rétt um» TVEIR á dag hafa skráð sig.. á undirskriftarlista á netinu.. sem í eðli sínu skiptir engu máli. Hvernig er þetta frétt?
En áfram er kynt undir röngum niðurstöðu, er Eyjan skrifar að «nokkrir Íslendingar» hafi skrifað undir.
Nær öll nöfnin á listanum eru íslensk. Nær lagi er að segja að «nokkrir Norðmenn» hafi skrifað undir.
Svo ekki-fréttin hefði verið rétt sögð á þessa leið:
«15. júní s.l. hófst undirskriftasöfnun á norska undirskriftasöfnunarvefnum Opprop, og á rúmum mánuði hafa 79 manns, flestir íslendingar, skrifað nafn sitt undir viljayfirlýsingu þess efnis að Noregur og Ísland sameinist.»
Ef ekki eru til fréttir, þá bara búum við þær til™ (Eyjan.is)
19.08 2009 kl.13:58
Slóð
Já ,það væri fróðlegt að skoða þennan möguleika, þessar þjóðir eiga auðvitað marga sameiginlega hagsmuni.
19.08 2009 kl.13:58
Slóð
Jæja, almenningur kl,13,36.
varst það þú sem skrifaðir eitthvað um þessa hugmynd í okt08, ég var viss um að hafa lesið það einhverstaðar.
Takk fyrir að staðfesta það.
19.08 2009 kl.13:58
Slóð
Einmitt Almenningur... við ræddum þessi mál sl haust og eigum að halda þeim duglega á lofti sem mótvægi við ESB...
Svo má ekki hengja sig á að Norðmenn séu þeir einu sem koma til greina...
Inuitar - Canadamenn - Austurhluti Bandaríkjanna og Rússar eiga fullt erindi í svona samstarf..
Sérstaklega ef að siglingaleiðir eru að opnast um norðurskautið..
19.08 2009 kl.14:02
Slóð
Þessa hugmynd er vert að skoða gaumgæfilega. Bjó sjálfur í Noregi um tíma. Ekkert sem við þurfum að óttast þar.
Legg til að Seðlabankinn verði lagður niður og breytt í hótel.
Legg til að Bessastöðum berði breytt í sauðfjárbú.
Legg til að stjórnarráðinu verði breytt í fangelsi fyrir útrásarvíkinga.
19.08 2009 kl.14:09
Slóð
eru menn á lyfjum hérna á þessum bloggþræði. við erum þegar í ríkjasambandi við noreg. bæði í gegnum norðurlandaráð og ees. og stöndum í stöðugum deilum við þá út af nokkrum fiskum á mörkum efnahagslögsögu landanna. hér vilja menn fá noreg í “nánara” samband. sem væntanlega fæli í sér meira afsal af fiskveiðum okkur en nokkurntíman í samningum við esb. það er ef allir þessir hrifnu bloggarar hér telja að noregur muni borga icesave og aðrar óreiðuskuldir landsins. halda menn að þeir myndu gera slíkt af góðmennskunni einni saman?
19.08 2009 kl.14:09
Slóð
Góður Uni
19.08 2009 kl.14:17
Slóð
Við erum áttavillt þjóð. Ég vil fara inn í ESB en vil alveg velta þessu fyrir mér.
En afsal fullveldis til Noregs kemur ekki til greina. Við verðum að halda í það sem við eigum. Ekki innlimum takk eins og einhver nefnir hérna.
Það eru ótrúlega margir sem eru með ranghugmyndir um ESB. Þekki t.d. Íslendinga sem búa á ESB svæðinu. Þeir tala um það að umræðan hérna sé svo lituð að ranghugmyndum og vitleysu að það jaðri við heimsku.
Við verðum einhvernveginn að komast upp úr hjólförunum. Annars verður ekki líft hérna. Ég fæ sjokk alltaf þegar ég versla í matinn. Hækkanir eru nánast daglega. Skattar hækka og við búum við okurvexti og ónýtan gjaldmiðil.
Við megum ekki stinga hausnum í sandinn. Enginn heilvita maður vill lifa við þetta ástand til lengdar. Þess vegna verðum við að skoða málin með opnum huga.
Ég gæti grátið þegar ég hugsa til þess að ég fæ líklega ekki börnin mín sem eru að klára nám erlendis aftur heim. Þeirra vinahópur er farinn að skoða húsnæði, sumir komnir í góða vinnu og svo frv.
Við skuldum unga fólkinu okkar það að byggja upp þjóðfélag þar sem hægt er að lifa góðu lífi, sambærilegt við nágrannalönd okkar.
19.08 2009 kl.14:18
Slóð
Skoða málið strax og láta Icesave bíða.
Fyrr skal ég frjósa í helvíti en að samþykkja ESB. Komst ekki einhver þingmaður, um það bil svona að orði um Samfylkinguna?
19.08 2009 kl.14:23
Slóð
Það er þegar orðið fullljóst að þessi seinni tilraun Íslendinga til að standa á eigin fótum hefur mistekist hrapalega og tímabært að viðurkenna það og fara bara aftur heim til mömmu
19.08 2009 kl.14:47
Slóð
Hvaða mömmu...
Við erum upprunalega frá Írlandi - Bretlandi - Skotlandi - Hjaltlandseymum - Orkneyjum - Danmörku - og Noregi...
Take your pick
19.08 2009 kl.14:50
Slóð
Gamli sáttmáli endurnýjaður - 1262 - 2009. Óskadraumur Norðmanna rætist að lokum.
19.08 2009 kl.14:58
Slóð
Eina leiðin til að losna við glæpalýðinn sem hér hefur stolið ölu steini léttara síðustu áratugi er að láta stjórn landsins í hendur útlendinga. Noregur eða ESB, mér er skítsama, í báðum tilvikum yrði hér eftirlitskerfi þannig að mafíusamtök á borð við sjálfstæðisflokkinn yrðu gerð óstarfhæf. Rétt sem sumir hér benda á, við höndlum ekki sjálfstæði. Það er ekkert eftir nema að viðurkenna það.
19.08 2009 kl.14:59
Slóð
Snorre Sturlason var nordmand dersom Islendinger er jo nordmenn. Du mä aldrig glemme det at du er nordmand kjære Islending, bare litt isprengt Irsk blod og (50/50). Det finns også de i Norge som har samme slags personlige egenskaper som Islendinger flest, til exempel de som bor i Nord-Norge. Men så var Kveldúlfur da også fra Nord-Norge, omend han var Samisk.
Það væri ekki slæmt, ef tækist að ala upp í Íslendingum sparsemi og virðingu fyrir náttúrinni. T.d. gætu Norðmenn kennt Íslendingum að njóta náttúrunnar án þess að nota til þess dýrar vélar svo sem: Vélsleða, fjórhjól, torfæruhjól, torfærubíla, þyrlur, hraðbáta, þyrlur o.s.frv. Hvernig væri að kynnast skíðagöngu, fara um landið gangandi, hlaupandi, ríðandi, róa á vötnum í árabát eða kajak? Það er margt annað sem hægt er að gera í náttúrunni en að geysast um hana á einhvers konar vélfákum. Og þá skiptir ekki öllu máli, hve margir km eru lagðir að baki pr. klst. Halda mætti hér námskeið með norskum leiðbeinendum, þar sem “umotorisert turisme” væri námsgrein.
Þeir sem vilja heldur ganga í ESB en Noreg ættu að leita sér læknis.
19.08 2009 kl.14:59
Slóð
Stofnum ríkjabandalag Grænlands, Íslands, Færeyja og Norges og nefnum það “Sameinuðu Norrænu Olíufurstadæmin”.
Gefum ESB langt nef með þessu.
Öll þessi ríki eru nefnilega talin eiga mikið af olíu í hafsbotninum undan ströndum sínum....sem ESB vill gjarnan fá yfirráð yfir.
19.08 2009 kl.15:14
Slóð
S.Á. 19. ágúst, 2009 kl.14:59
Jamm Kveldúlfur sagði nú líka eitthvað á þá leið á sínum tíma að: ... “Í þá VERSTÖÐ fer ég aldrei”...
ekki satt...
... enda er verið að sanna það með fornleifafræðinni að Ísland var notað sem verstöð í einhvern tíma trúlega fyrir landnám...
Kannast einhver við svipuð “teikn á lofti” í dag...
19.08 2009 kl.15:28
Slóð
Fín hugmynd. Móta má samstarfið þannig að ekki sé um afsal sjálfstæðis en mikla samvinnu að ræða. Styð þetta.
19.08 2009 kl.15:30
Slóð
Ef valið stendur um að vera sjálfstæð ESB þjóð með evruna eða að ganga í Noreg verða Norðmennirnir að vilja sameinast okkur.
Hættan er sú að þegar ríkt og árangursríkt samfélag sameinast samfélagi með allt niðrum sig eins og raunin væri í þessu tilfelli, þá munu Íslendingar upplifa sig sem annars flokks Norðmenn .
Austur Þjóðverjar upplifðu sig sem annars flokks Þjóðverja eftir sameiningu Þýsku ríkjanna.
Það er hinsvegar klárlega betra að sameinast Noregi en að taka upp einangrunarstefnu.
19.08 2009 kl.15:34
Slóð
Ekki ríkjabandalag.Helur að Noregur taki Ísland yfir og losi okkur við sorpið. Þeir geri það óskaðlegt en endur ýti það ekki eins og virðist vera á ferðinni hér.
19.08 2009 kl.15:44
Slóð
Ég er sáttur við þetta ef náttúruauðlindir okkar innan 200 sjómílna séu tryggðar og settar inní reglukerfi okkar um að séu algerleg í rikiseigu (Okkar eigu)
Snona til gamans spá Nostrdamus um Ísland.
STJÓRNARBYLTING LEIÐIR AF SÉR BREYTINGAR TIL HINS BETRA:
“Breytingin verður mjög erfið en borgin og landið hagnast á henni.Hinn skynsami nær völdum og hinn óverðugi verður hrakinn brott.Stjórnkerfi þjóðarinnar,til lands og sjávar mun breytast.”
Það þýðir ekki að þau sem eru við völdin nú séu að gera eitthvað merkilegt enda næstum búinn að klúðra öllu uppá icesave,EU og IMF.
Enn Enn hinn skynsami nær völdum hver sem hann verður nú??
Svo er annar spádómur hérna.
NIÐURLÆGING ÍSLENSKA LÝÐVELDISINS SKAPAR VALDAMIKINN ÞJÓÐARLEIÐTOGA.
Eftir það kemur frálandi hjara veraldargermanskur leiðtogi til æðstu valda.
ánauðinni er mætt með byltingu.
Lýðveldið verður við lýði enn vekur ekki lengur aðdáun.
19.08 2009 kl.16:15
Slóð
Talandi um spádóma. Hér er einn sem tengist friðarsúlunni í Við-ey Imagine Peace Tower.
“Many past prophets pointed to Iceland as a place where a great light of peace and spiritual awakening would be lit, including Nostradamus, Rutherford, and Cayce.”
“Dr. Adam Rutherford in his book, The Prophesies Of The Great Pyramids published in the 1930’s, contextualized these prophesies and spoke of Iceland’s great inheritance. And that Iceland would be a source of light in a darkened world, and would turn on a ray of light.”
19.08 2009 kl.16:20
Slóð
Þetta er sú besta hugmynd sem hefur komið fram hingað til. Ríkisstjórn Íslands er rúin trausti þó hún reyni að klóra í bakkann. Það virðist líka sami rassinn undir öllum þingmönnunum nema Borgarahreyfingunni og nokkrum vinstri grænum. Það eru Álfheiður Lilja Mósesdóttir Guðfríður Lilja Ögmundur og Atli Gíslason. Ég mundi treysta þessu fólki í stjórn. Vandamálin eru mörg og stór sem þarf að taka á. Því er mikilvægt á tímum eins og þessum að RÍKISSTJÓRNIN STANDI MEÐ ÞJÓÐ SINNI.
í staðinn fyrir að standa eins og refsinornir með bölbænir og hótanir svo að þjóðin segi já og amen við Icesave.
Það eru alltaf aðrar leiðir út úr ógöngum. Við þurfum bara að koma auga á þær leiðir og hugsa óhefðbundið.
19.08 2009 kl.16:25
Slóð
Mikið lýst mér vel á þessa hugmynd. Það eina vitræna í stöðunni. Tvær auðlindaríkustu þjóðir í Evrópu per mann að leggja saman í púkk.
Tær snilld og ótrúlegt af hverju við reynum ekki þessa leið.
Við gætum t.d. sparað okkur utanríkisþjónustuna eins og hún leggur sig, þurfum ekki sjálfstæðan seðlabanka eða fjármálaeftirlit. Gjaldmiðilsmálin leyst, AGS prógrammið óþarft og við segjum UK og NL að eiga sig með Icesave kröfurnar.
Miklu betra að hafa norskt yfirvald heldur en evrópskt. Hagsmunirnir liggja í stórum dráttum eins.
19.08 2009 kl.16:32
Slóð
Mér líst vel á hugmyndina. Ástæðan fyrir því að við förum skríðandi á fjórum fótum til Brussel, er máttlaus króna.
Ríkjabandalag við Noreg gæti gengið mun hraðar fyrir sig. Norðmenn gætu verið búnir að taka upp íslenska krónu innan nokkurra mánaða. Það mundi styrkja hana verulega.
19.08 2009 kl.16:34
Slóð
Þið gleymið einu. Við þyrftum fyrst að ná Grænlandi af Dönum!
19.08 2009 kl.16:37
Slóð
Eru það gáfuleg samtök sem flagga Halldóri Ásgrímssyni (sjá mynd) í dag ??
Ég held að þau samtök vera á miklum villugötum ?
Auðvitað geta þetta verið vinir framsóknar í Noregi ?
19.08 2009 kl.16:37
Slóð
Helena
19. ágúst, 2009 kl.16:15
Já ég hef heyrt eitthvað um þetta líka :)
Þyrfti að grafa aðeins í því um spádómana sem benda ti okkar eyju frá pýramýdum á Gisa.
19.08 2009 kl.16:39
Slóð
Hugsið ykkur hvílíkur sparnaður: Leggja niður m.a. Seðlabankann, Utanríkisbattiríið og ekki síst ríkisstjórnina og forsetaruglið.
19.08 2009 kl.16:40
Slóð
Göngumst undir Noregs-konung. Losnum þannig undan valdaklíkunni hér á landi með allri hennar spllingu. Með Norðmönnum er von að vð förum að haga okkur sem ein heild og teljast til siðaðra manna þjóða.
19.08 2009 kl.16:56
Slóð
JR 19. ágúst, 2009 kl.16:37
Ég er sammála þessu með Dóra-Gullrass... hann á ekki að vera neitt tákn fyrir ÍSLAND frekar en hinir trúðarnir ... DO - GHH - ISG - JS- eða SJS... - svo ég nefni einhver nöfn til viðbótar...
19.08 2009 kl.17:13
Slóð
Sendið þennan link á alla þá sem þið þekkið:
http://www.opprop.no/opprop.php?id=nordisk
þá fer kannski eitthvað að gerast, við höfum engu að tapa.
Stöndum saman nú....
19.08 2009 kl.17:17
Slóð
Heja Norge.....
19.08 2009 kl.17:29
Slóð
Norðmenn gera ekkert fyrir okkur nema að við sínum það í verki að við meinum það sem við erum að benda þeim á.
Heia Norge
19.08 2009 kl.17:33
Slóð
Allt annað, er Áhugaverðara en ESB!
19.08 2009 kl.17:45
Slóð
@ el_magnifico kl.16:34
Hinn 21. júní sl. öðluðust Grænlendingar sjálfsákvörðunarrétt um að verða fullvalda ríki þegar og ef þeir svo kjósa. Sjá mbl frétt:
http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/06/24/vidurkennd_thjod_en_ekki_fullvalda/
Ríkisútvarpið fjallaði líka um þetta þ. 21. júni sl.
19.08 2009 kl.17:59
Slóð
Bezti möguleikinn í stöðunni í dag, er að Noregur yfirtaki Ísland og við verðum eitt af fylkjum Noregs hér úti í ballarhafi. Fólk er að átta sig á því, að við höfum ekkert við sjálfstæði að gera. Við erum heldur betur búin að fá smjörþefinn af því, með allt niður um okkur og orðin að athlægi út um allan heim. Það mun taka áratugi að bæta skaðann eftir útrásarvíkingana og bankamennina. Það geta liðið mörg ár, þar til við komumst inn í Evrópubandalagið og við höfum ekki tíma til að bíða svo lengi. Við þurfum að losna við íslenzku krónuna og verðtrygginguna sem fyrst.
19.08 2009 kl.18:01
Slóð
Ég held að gamli sáttmáli sé enn í gyldi.
19.08 2009 kl.18:46
Slóð
ömurleg hugmynd. Sjáumst frekar í ESB innan fárra ára.
19.08 2009 kl.18:47
Slóð
Fær enginn annar en ég kjánahroll? Takið þið ekki eftir því að á undirskriftarlistanum eru nær einungis Íslendingar. Nær enginn Norðmaður lætur sig detta í hug að skrifa undir, enda hafa þeir engan áhuga á samstarfi við gjaldþrota þjóð.
Ef Zimbabwe myndi detta í hug að koma á einhvers konar sambandi við Ísland, myndu Íslendingar segja já?
19.08 2009 kl.18:49
Slóð
Óskaplega er nú gert úr þessu bloggi sem þessi óþekkta norska stúlkukind hefur komið af stað.
Er ekkert viss um að Norðmennirnir vildu fá okkur til sín.
19.08 2009 kl.18:59
Slóð
Á Íslandi eru fiskimið og vatnsorka. Jafnvel olía. Af hverju erum við þá með Ísland á útsölu? Við urðum jú fyrir áfalli vegna glæpamanna aðallega vegna þess að okkur datt aldrei í hug að slík krimmagen fyndust í íslensku fólki og í stað varkárni lágum við í aðdáandakasti yfir þeirri frægðardýrð sem virtist steypast yfir okkur frá hinum útrásargjörnu víkingum. En hjarðþjóðin Íslendingar liggja nú allir i valnum og bjóða sig á ódýrasta uppboði sem fyrir finnst eða fyrir ekki neitt eða við bjóðumst til að borga með okkur með auðlindum okkar ef einhver vill.
19.08 2009 kl.19:11
Slóð
Jæja krakkar mínir, nú á að slökkva á tölvunni og fara að bursta tennurnar.... nóg komið af rugli í dag.
19.08 2009 kl.19:21
Slóð
bölvuð heimska í ykkur að halda að stjórnmálamenn noregs og esb séu eitthvað skárri en okkar pakk.
skítur flýtur.
losum okkur við okkar eigin skít fyrst.
sameining heimsins er góð hugmynd.
en þetta bjargaðu mér viðhorf er bara hlægilegt.
við þurfum að losa okkur við allt stjórnkerfið og byrja uppá nýtt. gera gagnsætt kerfi.
sjá til þess að framapotarar og eiginhagsmunaseggir, komist allsekki til valda.
losa okkur við viðskiptaveldin.
punktur og basta.
þýðir ekkert að setja sig undir önnur viðskiptaveldi og stærri.
þá erum við bara í dýpri og verri skít.
19.08 2009 kl.19:22
Slóð
Det blever bra, vi skal bleve en Syssel i Norge.
19.08 2009 kl.19:24
Slóð
en ef við getum það ekki. þá náttla verður bara að bjarga okkur.
peningar skipta stjórnmálamenn og viðskiptaveldi meira máli en fólk.
svo við verðum bara að hafa þrælslund enn um sinn.
því það er lítið bræðralag bakvið hjálpina...
án efa , gefa upp fiskimið og olíu... og ýmislegt annað.
sama hvaðan ´hjálpin´ kemur.
19.08 2009 kl.19:26
Slóð
annars er noregur ekkert svo slæm hugmynd, nema að því leyti að þeir munu seint líta á okkur sem jafningja.
þrátt fyrir að við stöndum þeim mun framar að mörgu leyti.
19.08 2009 kl.20:24
Slóð
Það skiptir ekki máli þótt “einhver stúlkukind” hafi byrjað á undirskriftum þar sem hugmyndin er góð - og verður alltaf betri og betri þegar maður hugsar meira um hana.
Við getum sent hluta af skógarmönnunum okkar til Noregs, virkjað olíu, jarðhita og fleira og síðan tekið Grænland af Dönum.
Við yrðum öflug þjóð í bandalagi með Norðmönnum.
19.08 2009 kl.21:02
Slóð
Egill Helgason skrifaði
„Auðjöfrar dagsins í dag eru allt annarrar tegundar. Þeir eru alþýðlegir menn sem setja sig ekki á háan hest -- leggja rækt við að sýna að þeir deili smekk almennings. Þeir láta fólkið hafa það sem það vill -- það sem áður var haldið frá því. Á því græða þeir auðvitað líka heil býsn. Það hefur risið ný kynslóð auðmanna sem nýtur aðdáunar. Hún þarf ekki að mæta á fundi hjá stjórnmálaflokkum; það er miklu sennilegra að stjórnmálamennirnir bíði í röðum eftir að fá áheyrn hjá þeim. Hún hefur ítök í fjölmiðlum og afþreyingariðnaði nútímans; býður fólki skemmtun, ódýrar flugferðir, meiri neyslu, endalaust úrval -- ótalmargt sem er fallið til vinsælda. Hún er býsna ólík gömlu auðstéttinni sem byggði á útilokun og forréttindahyggju.“
- Egill Helgason á bloggi sínu um auðmenn fólksins Pistill í DV 23. október 2004
19.08 2009 kl.21:49
Slóð
Þetta er næstbesta leiðin – af aðeins 2 möguleikum, að Ísland verði hérað í Noregi. En ég vil frekar hinn möguleikann, að Ísland verði sjálfstætt ríki í ESB og jafngilt öðrum sjálfstæðum ríkjum þar.
19.08 2009 kl.21:58
Slóð
“Rétt um eitt hundrað manns, þar af nokkrir Íslendingar, hafa ljáð undirskriftasöfnuninni nafn...”
Réttara væri sennilega að segja: Norðmenn hafa engann áhuga, þeir sem skrifa undir eru nánast eingöngu raunveruleikafirtir íslenskir húmoristar.
19.08 2009 kl.22:04
Slóð
Það er dapurlegt að dellumakerí einhverrar bilaðrar norskrar stúlku sem ekkert veit og ekkert skilur skuli verða frétt á Íslandi, endurtekin hvað eftir annað í útvarpi allra landsmanna. Og enn dapurlegra að lesa viðbrögð fjölda fólks hér á síðunni sm er ekki betur upplýst en blessuð stúlkan.
Ísland ER nú þegar í ríkjasambandi með Noregi. Það heitir Evrópska efnahagssvæðið (EES). Auk þessara tveggja landa er Liechtenstein með sína 35 þúsund íbúa í sambandinu. Norðmönnum hefur alltaf fundist Íslendingar borga svo lágt hlutfall heidarframlags til EES að þeir ættu ekkert að vilja upp á dekk og hafa skoðun á einu eða neinu í þessu ríkjasambandi. Þeir hafa hvað eftir annað haldið Íslendingum utan við viðræður og upplýsingastreymi innan Evrópubatterísins.
Að hafa sameiginlegan gjaldmiðil: Dettur einhverjum í hug að Íslendingar fengju að ráða einhverju um efnahagsstefnu og peningamál í ríkjasambandinu?
Að löndin eigi sameiginlega hagsmuni í sjávarútvegsmálum: HALLÓ! Íslendingar og Norðmenn eru og hafa alltaf verið keppinautar. Norðmenn gæta aðeins sinna eigin hagsmuna á hafsvæðum.
19.08 2009 kl.23:24
Slóð
Sólveig , þú ert neikvæð , líttu á þetta jákvæðum augum ,
Ísland , Norge, liechtenstein , Græmland , Færeyjar og Kanada ,
Norður Atlands hafs bandalagið , ekkert smá hafsvæði , engar smáauðlindir
og engin smá þekking , á fiskveiðum , olíuvinnslu , gasvinnslu
og svo framvegis .
Gott framtak hjá stelpuni , búin að skrá mig og hvet aðra til að gera það líka
. kv skarphéðinn
20.08 2009 kl.01:34
Slóð
985 undirskriftir komnar, fyrir sólarhring voru þær innan við 100,
þetta er frábær hugmynd.
20.08 2009 kl.09:22
Slóð
@ MW
19. ágúst, 2009 kl.13:34
Ekki gleyma að norðmenn eru ekki kana eða ESB sleikjur
Treysti norðmönnum betur til að gæta hagsmuna okkar heldur en þeirra eiginhagsmunaseggja, og siðblindleysingja sem ráðið hafa ríkjum hér síðan 1262.
Þá gæti maður loksins farið að sofa.......
20.08 2009 kl.13:55
Slóð
Við fjölskyldan ætlum að flytja til noregs og afsala okkur íslenskum ríkisborgararétti við fyrsta tækifæri, ég ætla rétt að vona að noregur fari ekki að bindast spillta Íslandi meir en þörf er á.
20.08 2009 kl.16:21
Slóð
Margt vitlausara þegar ég var að vinna í Noregi þá voru vinnufélagar mínir alltaf að tala um þetta. Lýst betur á þetta en EB. Við skullum bara átta okkur á því að við erum ekkert sjálfstæð þjóð í dag nema að nafninu til við erum undir hælnum á Bretum og hollendingum með stuðningi annara EB þjóða.
21.08 2009 kl.12:29
Slóð
Dálítið skondið þegar einhverjir halda því fram, að betra sé að vera sjálfstæð þjóð í ESB en í ríkjasambandi við Noreg. Og spyrja svo hvort við viljum afsala okkur fullveldi með því að ganga í Noreg. Ég segi nú bara: Fullveldisafsal eða ekki fullveldisafsal: Mun líst mér betur á að sameinast Noregi en ESB. ESB er skrifræðismonster handan lýðræðis. Í norska konungsríkinu verðum við þegnar í lýðræðisríki
22.08 2009 kl.12:49
Slóð
Spilltir embættismenn hafa eyðilagt sjálfstæði þessarar þjóðar.
21.10 2009 kl.21:07
Slóð
En Nordisk Union med vetorett og ekte selvstendigheit for hvert land, hver nasjon, ikke som Europeiske Unionen.
I viktige saker som angår landenes selvråderett må man ha reell veto. Den Nordiske Unionen må bli en reellt demokratisk union som ikke tråkker på sine medlemsstater eller overstyrer noe land på det viset EU gjør med sine medlemsland.
Vår Union bør alltid basere sine valg på folk og ikke på hva bedrifter og storkonsern ønsker. Finne måter å holde merkantilt og kommersiell lobby press vekk fra Unionens beslutningsprosesser. Kriminaliser forsøk på å presse gjennom lovgivning som bare gavner bedrifter eller spesielle komersielle interesser.
Håper noen kan oversette hvis det trengs :)
Eller jeg kan begynne å poste på engelsk? ;)