Innlent - föstudagur - 21.8 2009 - 13:51

Hallgrímur Helga: Davíð hafði rétt fyrir sér. Fréttablaðið og 365 voru og eru Baugsmiðlar

hallgrimur-helga.jpgHallgrímur Helgason rithöfundur, einn þekktasti gagnrýnandi Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra, segir að eftir á að hyggja hafi Davíð haft rétt fyrir sér með að Fréttablaðið og 365 miðlar hafi verið það sem hann kallaði Baugsmiðla.

Þetta kemur fram í viðtali við Hallgrím í DV í dag.

 „Fyrir um það bil ári hitti ég háttsettan Baugsmann sem gumaði af því að hann gæti notað sína miðla eins og
hann vildi. Það var sorgleg uppgötvun og ég hugsaði með mér: Fjandinn hafði það, Davíð Oddsson hafði rétt fyrir sér. Þetta voru og eru Baugsmiðlar. Og þó að Baugur eigi DV í gegnum einhvern spámiðilinn finnst mér þóað þetta blað sé að reyna að sýna lit,“ segir Hallgrímur í DV.

Fram kemur að rátt fyrir þetta sé Hallgrímur enn á móti fjölmiðlafrumvarpinu sem Davíð Oddsson vildi fá samþykkt vorið 2004. „Þar var leiðtoginn orðinn Litli Pútín sem vildi drepa alla miðla nema Mogga sinn,“ segir hann.

Rætt er opinskátt við Hallgrím í DV um skilnað hans og Oddnýjar Sturludóttur borgarfulltrúa, nýju ástina í lífi hans, þátttöku hans í búsáhaldabyltingunni og fleira.

73 ummæli

Rita ummæli

SJ
21.08 2009 kl.13:54

batnandi mönnum er best að lifa!

Nonni
21.08 2009 kl.13:54

Hverjum er ekki sama hvað þessum manni finnst. Honum tókst að skrifa leiðinlegustu bók þessarar aldar. Rokland minnir mig hún heiti.

Karl
21.08 2009 kl.13:56

Þetta er nú meira skoffínið.
Þjóðin hefur rosalegan áhuga á hans lífi fyrr og nú.

Margrét
21.08 2009 kl.13:58

Ég legg til að hann skrifi sjáfsævisögu sem ber nafnið. Líf mitt fyrr og nú.

Stefán Mörk
21.08 2009 kl.13:58

Látum hann liggja !

Bönnum Sjálfstæðisflokkinn
21.08 2009 kl.14:00

Þetta hefur nú hingað til þótt almenn skynsemi sem allir sem ekki sjá lífið í gegnum dökkblá gleraug glæpaklíkunnar hans Davíðs og þeirra sem ekki sjá það í gegnum appelsínurauð gleraugu hægri kratanna.

Þetta var spurning um að Davíð næði að kúga alla fjölmiðla niður á sitt band og því voru þessi fjölmiðlalög vond. En því miður var það bara einn fjölmiðlaeigandi sem hafi hagsmun (á þeim tíma) af því að þessi kúgun Litla Pútíns (eins og Hallgrímur lýsir Davíð réttilega) næði ekki fram að ganga.

Davíð Oddsson er, og sagan mun dæma hann sem slíkan, mesti þjóðníðingur Íslands fyrr og síðar - og þá skiptir ekki nokkru máli hversu spilltur Baugur var og hversu mikill glæframaður Jón Ásgeir er.

Spotti
21.08 2009 kl.14:03

Hvernig er hægt að kalla Jón Ásgeir eiganda? Hann hefur skuldað frá upphafi og er nú hættur að borga. Hættur að borga. Hættur að borga. Hættur að borga. Hættur að borga.

Vegna þess að við borgum ALLT fyrir hann.

Alkinn
21.08 2009 kl.14:04

Skál Hallgrímur minn. ég hef nú ekki lesið þessa leiðinlegu bók en stundum pistlana þína og ég held það sé allveg hægt að drekka með þér eina kollu.
En er ekki óþarfi að viðurkenna það obinberlega að Do hafi rétt fyrir sér. ég meina........

Kristleifur Dadason
21.08 2009 kl.14:05

Hehe thid erud svo fyndin ... nuna er tudad yfir Hallgrimi Helgasyni ... hann er bara svona halfvenjulegur madur, stundum mjog fyndinn en stundum dalitid langordur ... ekkert serstaklega valdamikill en margir hlusta a hvad hann segir, ser til gamans m.a. ...

OG THID TUDID YFIR HONUM I KOMMENTAKERFI EYJUNNAR??? HVERNIG NENNIDI THESSU??

Her er eg ! Tudid nu yfir mer!

HB
21.08 2009 kl.14:06

Það á eftir að koma á daginn að DO hafði rétt fyrir sér á mörgum öðrum sviðum.

hp
21.08 2009 kl.14:06

Hallgrímur hagar seglum eftir vindi! Það gera reyndar fleiri Baugs-attaníossar eins og t.d. Sigmundur Ernir sem nú þiggur laun frá ríkinu á Alþingi.

Rósa
21.08 2009 kl.14:12

Menn geta haft sínar skoðanir á Hallgrími.

En þessar upplýsingar frá honum skipta máli og varpa ljósi á ástandið hér á landi nú og fyrr.

Fyrir það á hann þakkir skildar.

Hugsandi fólk sér þetta allt með öðrum hætti en áður. Það á m.a. við um Baugsmálið þar sem miðlum auðhringsins var óspart beitt.

Baugsmiðlarnir reyndist réffnefni og mikilvægt er að fólk hafi það í huga.

jD
21.08 2009 kl.14:12

Hallgrímur ofurtöffari virðist vera sérstaklega hrifinn að konum með pólitískan metnað.... sætt. Ég á annars New Era - húfu sem þú mátt fá lánaða Hallgrímur.

Denni
21.08 2009 kl.14:13

Litlu sníkjudýrin standa nú upp hvert á eftir öðru þegar fósturforðinn er farinn af mitti Jóns Ásgeirs.
Er styrktarlínan hætt Hallgrímur?

jD
21.08 2009 kl.14:14

Þetta er annars alger klemma. Við erum annarsvega með Baugsmiðlana og svo hinsvegar Ránfulgsmiðlana.

Askoti er þetta hart ástand....

geiri sæm
21.08 2009 kl.14:21

HB þú hlýtur að vera eini jarðarbúinn eftir sem hefur trú á DO. Ég held að að það sé einn maður í heiminum sem trúir ennþá á að jörðin sé flöt, Þíð ættuð að stofna Facebook súðu saman

FRG
21.08 2009 kl.14:21

Merkilegt. Það vissu flestir að þetta væru Baugsmiðlar nema náttúrulega Hallgrimur. Hundur glefsar ekki í höndina sem fæðir hann. En annars er mjög gott að vera laus við Hallgrím þennan tíma sem hann hefur verið í hvíld frá fjölmiðlum. Vona að það haldist sem lengst.

Ómar Torfason sjþj.
21.08 2009 kl.14:25

@ FRG - Var það ekki bláa höndin sem fæddi hudspottið Hallgrím H.? Hundurinn snýr aftur til spýju sinnar. Lögmál.

GG
21.08 2009 kl.14:28

Hvaða máli skiptir það sem þessi maður segir? Baugsmiðlar og sjálfgræðismiðillinn Mogginn eru málpípur sinna manna. Ekkert öðruvísi.

Fólk er ekki fífl og les þá þannig. Hvorugur trúverðugur . Það þarf engann Hallgrím Helgason til að segja okkur hver reki Fréttablaðið.

OMG.

SS
21.08 2009 kl.14:39

Það er nefnilega málið að Davíð Oddsson hefur í gegnum tíðina haft mjög oft rétt fyrir sér. Fjölmiðlafrumvarpið var eitt að þeim málum sem hann hafði rétt fyrir sér og einnig hefur hann rétt fyrir sér í Icesave málinu.

Birgir Örn
21.08 2009 kl.14:49

Ágæt hjá Hallgrími. Að vísu á Baugur ekki lengur þessa fjölmiðla heldur Jón Ásgeir og Samfylkingin. Þessi aðilar halda áfram að misnota fjölmiðla sína.

Halldór Á
21.08 2009 kl.14:50

Hallgrímur er einlægur og heiðarlegur. Hann fyrirleit Davíð fyrir einræðistaktana og var í raun þröngvað í faðm Baugsmiðlanna fyrir vikið.

Líklega hefur Hallgrímur einfaldlega ekki trúað því að menn eins og Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson hafi látið Baugsforstjórana segja sér fyrir verkum. En þeir gerðu það nú samt og væntanlega hefur Þorsteinn hætt á Fréttablaðinu með mikið óbragð í munninum. Eftir situr Jón Kaldal og hlýðir yfirboðurum sínum í einu og öllu. Nýjasti leiðarinn hans er málsvörn útrásarvíkingsins.

Tek ofan fyrir DV að “þora” þó að birta þetta. Ritstjórinn fær örugglega skömm í hattinn fyrir það. En kannski er ritstjóri DV sá fyrsti af ritstjórum Baugsmiðlanna sem áttar sig á því að Jón Ásgeir er í viðskiptalegum dauðateygjum og kannski engin ástæða til að bukta sig og beygja lengur fyrir honum.

Auður
21.08 2009 kl.14:50

Hallgrímur Helgason er tækifærissinni af guðs náð. Það hentaði honum á tímabili að skíta Davíð út og mæra Baugsmiðla og Jón Ásgeir. Hann hefur bara tapað karlinn, öllu sem var honum kært. Það vita allir núna að fjölmiðlalögin voru nauðsyn og forsetanum til skammar að fella þau. Það má gera því skóna að við værum í betra ástandi núna en við erum hefði lögin verið samþykkt og síðar endurskoðuð.

Halldór Á
21.08 2009 kl.14:52

Gleymdi að taka fram að ég er innilega sammála þeim sem finnst Rokland Hallgríms leiðinleg bók. Gafst upp á að lesa hana eftir 100 síður. Spái myndinni hörmulegum dauðdaga - en það yrði svosem ekki fyrsta íslenska bíómyndin sem floppar vegna lélegs handrits.

Ómar Torfason sjþj.
21.08 2009 kl.14:52

@SS - smá raunveruleikatékk:
DO var Seðlabankastjóri; DO hafði höndina á fjármálapúlsinum; Seðlabankinn hefur heildaryfirlit yfir bankastarfsemina í landinu á hverjum tíma; Seðlabankinn hefur vissa “parametra” til að fara eftir m.t.t. heilsu kerfisins; sérfræðingar frá Bandaríkjunum (Chicago o.fl.) og Englandi vöruðu við þenslunni; Seðlabankinn brást við með því að leysa bankana undan bindiskyldunni og hækkaði vexti. Íslenska hagkerfið lenti í vítahring. DO sem Seðlabankastjóri missti tökin á atburðarrásinni. Baugur Grúpp frjárfesti rosalega og gegn ráðleggingum (væntanlega) erlendra sérfræðinga. DO sá hvað var að gerast bak við tjöldin.
Er DO stjórnvitringur?
Hummmmmm......ekki sýnist mér það.

Orðlaus
21.08 2009 kl.14:53

Nú sér hann að Baugsveldið riðar til falls. Eins gott að yfirgefa skipið á meðan enn er sjéns.

jonina Ben
21.08 2009 kl.14:56

Þorsteinn Pálsson var að vinna fyrir Kaupþingsmenn fyrst og fremst.
Hann var ráðinn af Sigurði Einarssyni. Ég sá það gerast á Saga Class. Þorsteinn hefði aldrei unnið fyrir Jón Ásgeir, til þess er hann of fínn maður.

jonina Ben
21.08 2009 kl.14:57

Hallgímur sagði að vísu eitt rétt síðastliðin 10 ár í viðtalsþætti með mér. Að vinstri menn hefðu ekkert vit á fjármálum. Hann áttaði sig ekki á því að vinstri og hægri snérist við þegar Samfylkingin gerðis mega kapítalískur flokkur og Davíð Oddsson gerðist krati.

Glaumur
21.08 2009 kl.14:59

Spotti
21. ágúst, 2009 kl.14:03
Nákvæmlega! Þessir gúbbar hafa aldrei borgað krónu fyrir þessi fjölmiðlaveldi sína. Ekki frekar en Bjöggarnir fyrir Moggann og nú síðast kvótagreifarnir. Við borgum fyrir allt!

Ég er hugsa að fara í bíltúr í kvöld á Range Rovernum hans Jóns Ásgeirs (ég á hann líka), síðan ætla ég að fylla skottið af úldnu grænmeti í Bónus (ég á bónus líka), þar næst fer ég niður á Stöð 2 og tek við mig drottningarviðtal (ég á Stöð 2 líka). Eftir það verð ég kominn með svo mikið ógeð á þessum krípum þannig að ég meika ekki meir!

vihjalmur
21.08 2009 kl.15:03

Hinn óútskýranleg siðblinda og undirlægjuháttur vinstrimanna gangvart Baugsmafíunni er erfitt að skilja. Að Hallgrímur sé að fatta það nú í dag fyrir hverja Fréttablaðið og DV vinnur er aðeins lýsandi dæmi um siðblindu vinstrifólks gangvart valdasjúkum kapitalistanum og auðrónanum Jón ‘Asgeir. Kannski að Þorvaldur Gylfa opni sig næst. Og ekki skánar það þegar litið er á VG sem með sömu dýrkunarhætti virðast engar skoðanir hafa á athæfi Jón ‘Asgeirs sem nú um mundir starfar undur vendarvæng Steingríms J og Ömma hjá íslenska ríkinu í London. En vinstraliðinnu finnst það að sjálfsögðu eðlilegt.

Reiður
21.08 2009 kl.15:04

Fjármálavit ákveðinnar heilsuræktarkonu er að ljúga fé út úr veiku fólki.

Dada
21.08 2009 kl.15:07

Það ættu að vera hæg heimatökin hjá Hallgrími að komast að því hvaða spámiðill á DV því bróðir hans og eiginkona hafa stundum verið skráðir eigendur þess og eru þar í hátekjustörfum. Mágkona hans er þar framkvæmdastjóri...

Ætli þessi ummæli megi ekki skoða í því ljósi að nú fer fram hatrömm valdabarátta innan fjölmiðla Jóns Ásgeirs, hver erfa skuli hásætin eftir næstu uppstokkun.

Þór t
21.08 2009 kl.15:10

Það er alveg magnað hvað menn komust helv. langt á Davíðs Odds allt að kenna áróðrinum.
Meira að segja , forsetinn söng með

Zeitgeist
21.08 2009 kl.15:19

Viðtal í DV sem er í eigu ?

Ingimundur Kjarval
21.08 2009 kl.15:24

One ganster in town and you don’t have to take sides, two and you end up in the crossfire no matter what.

Svo hvor er meiri dólgur Davíð eða Jón Ásgeir, Bjöggi eða Finnur,
Sigurður Líndal eða Hannes Hólmsteinn.

Eins og að fara á Hraunið til þessa ráða löggur, dólgar í öllum klefum og Hallgrímur líka, hver er saklausastur í Helvíti?

Hvernig væri að skipta út öllum prestum á Íslandi og fá norska í staðinn.

Sóló
21.08 2009 kl.15:26

Er Hallgrímur Helga svona grunnur?

Hann er ekki að segja fréttir þetta vissu allir nema hann, forsetinn og nokkrir Samfylkingargæðingar.

Ætli það eigi ekki eftir að koma á daginn að DO hafi haft rétt fyrir sér á fleirum sviðum!!!!

Seiken
21.08 2009 kl.15:33

Ég hef aldrei séð neinn sérstakan mun á misnotkun blámanna og baugsmanna á fjölmiðlum sínum. Þessi lýður allur hefur einfaldlega stórskaðað landið og er enn að.

HG
21.08 2009 kl.15:38

Og hvað með það þó að 365 miðlar eða DV séu Baugsmiðlar

Hvað hefur Mogginn ekki verið í gegnum tíðina

Það er margt líkt með kúk og skít ! ! !

Halli ríkis
21.08 2009 kl.15:40

Hallgrím er greinilega hættur öllu Káptinking!

ala
21.08 2009 kl.15:48

Þettað hafa nú flestir séð og heyrt sem vilja sjá og heyra en eru ekki með fkokksgleraugu á nefinu

einar
21.08 2009 kl.15:56

er einhver hérna enþá með áskrift að stöð2? ekki ég!

Harry H
21.08 2009 kl.15:58

Er rithöfundur Baugs að flýtja sökkvandi skip.

Hildur
21.08 2009 kl.16:19

Er lífið virkilega svona slæmt að nuna eru allir að tala´ylla um alla omurlegt hvernig þetta er að þróast og mjög sorglegt. Vonandi sjáið þið sólina sem allra fyrst:):)

Viskíprestur
21.08 2009 kl.16:24

Skrifaði þetta við annað tækifæri. Set þetta aftur inn. Á við hér líka...

Þegar menn fara að rifja upp alla þá sem tóku upp hanskann fyrir Baug á sínum tíma - og menn gera það oft núorðið - þá gleyma menn alltaf því að bleika svínið virtist ekki vera skautum þá, en grísaskyttan mikla virtist svo sannarlega vera frá vitinu.

Þannig var að Davíð nokkur Oddsson hafði tekið ástfóstri við að hata Jón Ásgeir, og hann átti þennan eina stóra óvin. Og á þeim tíma þá voru allir þeir sem höfðu einhverja skynsemi farnir að sjá að Davíð var ekki heilbrigður þegar kom að því hvernig hann lét einsog naut í flagi þegar kom að allri stjórnsýslu, og einnig dómum sínum um menn og málefni. Auðvitað hafði hann rétt fyrir sér gagnvart Baugi, en hann hafði algjörlega misst hæfileikann að geta farið í dómarasætið. Og hann hélt uppi svo einhæfu skítkasti í átt að svíninu, jafnvel þegar margir aðrir léku sama leik sem voru hans eigin menn, að menn sáust ekki fyrir.

Þegar slíkt gerist þá fara menn að taka upp þykkjuna fyrir Baug, hvar í flokki sem menn standa. En - af einhverri sjálfstæðisknúinni ást - þá byrja menn núna að kreista safa úr þessum punkti og gera Davíð að einhverjum viskumanni og drottni alsherjar. Það gengur þó enganveginn upp. Hann var bara sá eini sem hataði einn útrásarvíking af heift. Ekkert annað. Að halda að hann sé merkilegri fyrir vikið er einsog að hrópa húrra fyrir manni sem hataði einn Nazista, en elskaði alla hina.

Þór t
21.08 2009 kl.16:54

Vískiprestur. Hver er mælikvarði þinn á heilbrigdi Davíðs?
Telur þú manninn ekki heilbrigðan að þiggja ekki mútugreiðslur frá Baugi.
Það má nú gera ýmislegt fyrir 300 milljónir ekki satt.

Gunnr
21.08 2009 kl.17:02

Merkilegt að hann er fyrst núna að fatta þetta. Það hefur verið alin upp stétt geldinga sem hafa titlað sig blaða/fréttamenn sem jarmað hafa eftir eigendum sínum versta dæmið er náttúrlega auglýsingablaðið Markaðurinn sem fylgdi Fréttablaðinu og ekki minnast á þetta.
Að enginn spyrji sig hvers vegna eignamenn eða lánakóngar séu að fjárfesta og stórtapa á fjölmiðlun. Ergo kvótakóngar að kaupa Morgunblaðið og tök Jón Ásgeirs í fjölmiðlum og væntanlega svíður mörgum Samfylkingarmanninum að hafa verið að sleikja sig upp við hann.

Mæja
21.08 2009 kl.17:14

Hallgrímur hefur frelsast við að fara í brúðkaupið á Flateyri innan um alla sjálfstæðismennina sem stálu hattinum hans hey hey Hallgrímur

Vilhjalmur
21.08 2009 kl.17:27

Spillingin sër um sina.................................Dalla Ólafsdóttir, dóttir Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands, hefur verið ráðin til lögfræðideildar Alþýðusambands Íslands. Hún hefur störf um miðjan september. Frá þessu er greint á vef ASÍ í dag.

Dalla lauk BA prófi í stjórnmálafræði 2002, BA prófi í lögfræði 2006 og Mag.jur prófi í júní 2008. Hún hefur meðal annars starfað sem lögfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu, Mörkinni lögmannsstofu og Útlendingastofnun.

Baldur
21.08 2009 kl.17:36

Þáði ekki flokkur Davíðs tugmilljónir af Baugi undir borðið á meðan hluti fokksins djölfaðist í fyrirtækinu opinberlega?

itg
21.08 2009 kl.18:53

Baldur!

Af hverju var þessi háttur hafður á?

jD
21.08 2009 kl.19:01

Vá, þessi þráður seldi í.þ.m. eitt stykki DV. Fer á efitr og styrki Jón Ásgeir og co.... hehehe ...

Hamar
21.08 2009 kl.19:04

Ja hérna var hann fyrst nú að átta sig á þessu. Hef nú haldið það hingað til að það þyrfti nú ekki meðal greind til að átta sig á þessu.

V. Jóhannsson
21.08 2009 kl.19:14

Eru þetta fréttir?

Andri
21.08 2009 kl.19:42

Hallgrímur fór í brúðkaup sjálfstæðismanna og hattnum hans var stolið. Hann er eins og íslenska þjóðin holdtekin í einum manni.

Magni Svínsson, stærð og félagsfræðingur
21.08 2009 kl.19:55

Já, Hallgrímur er ágætur. Fín frétt. Good luck!

Sæi
21.08 2009 kl.20:04

Hallgrímur var Baugspenni á launum hjá Baug.

Gunnr
21.08 2009 kl.20:45

”JÁKVÆÐIR BÓNUSAR”
http://www.visir.is/article/20090821/SKODANIR/59230123
Ég kemst eiginlega ekki yfir þessa grein eftir Jón Kaldal sem titlaður er ritstjóri Baugsmiðilsins Fréttablaðsins, sem er nú á síðustu metrunum. Húsbóndi hans Jón Ásgeir fer bráðum “undir hamarinn” en í stað þess ver hann bónuskerfið út yfir gröf og dauða. Tel ég í raun Jón Kaldal dæmigerðan fjölmiðlagelding sem því miður hafa ráðið yfir fjölmiðlum landsins hin síðari ár. Það er einn góður kostur við geldinga að þeir deyja út sem ég svo sannarlega vona að hér gerist. Það hafa fjölmiðlageldingar komist inn á þing á lista Samfylkingarinnar og lítið heyrst frá þeim. Kannski Jón Kaldal hugi að þingmennsku?
Meðan títtnefndur forstjóri Straums Burðarás Óttar Pálsson biður þjóðina fyrirgefningar og segir að hann sé raunveruleikafyrtur (= “rangt raunveruleikamat”). Hvað segir þetta um raunveruleikamat Jóns Kaldals?
Já alltaf versnar þetta. Loksins þegar Hallgrímur Helgason var búinn að sjá að í gegnum plottið með fjölmiðlanna og fjárglæframannanna sem bjuggu til nokkurs konar pótimkíntjöld. Pótemkin þorp var notað yfir gervibyggð sem ráðherra Katrínu II keisaraynju Grigory Potyomkin í heimsókn hennar á Krímskagan 1787. Potyomkin þessi sem leiddi rússneska herinn í krímstríðinu og bjó til gerviþorp á leið keisaraynjunnar. Það er gamalt ráð að reyna að falsa raunveruleikann, en því miður virðast fjölmiðlageldingarnir, alla vega sumir hverjir, ekki einu sinni sjálfir séð í gegnum þessi pótemkintjöld sem þeir sjálfir hafa verið með í að skapa. Loksins þegar sá góði maður Hallgrímur sér í gegnum þetta sem mörg okkar voru búin að sjá í gegnum. Ræðst fjölmiðlageldingurinn Jón Kaldal að honum. http://www.dv.is/frettir/2009/8/21/ritstjori-frettabladsins-hallgrimur-i-personulegri-krisu/
leyfi mér að vitna í þetta: ,,Hallgrímur á augsýnilega í mikilli persónulegri krísu yfir því að hafa verið kallaður Baugspenni og mér sýnist hann eiga erfitt með að gera upp við að veruleikinn reyndist ekki vera að öllu leyti eins og hann hélt. Það er mjög sorglegt að hans sé að reyna að draga aðra, sem hafa sinnt störfum sínum af fagmennsku og bestu samvisku, inn í þetta persónulega uppgjör. Ég lít reyndar á það sem hans vandamál en ekki okkar sem störfum á Fréttablaðinu,” segir Jón.”

Gunnr
21.08 2009 kl.20:49

Annars er það sorglegt að annars duglegur maður eins og Hallgrímur skuli ekki hafa séð í gegnum þetta fyrr en núna. Í raun sannar það að óvinir óvina þinna þurfa ekki að vera vinir þínir.

koli
21.08 2009 kl.21:00

Skál fyrir “Höfundi Íslands 2007″!

Óskar
21.08 2009 kl.22:01

Hallgrímur Helga lifir í núinu.
Núna er núið smá bömmer ;)

Gunnr
21.08 2009 kl.22:13

@Óskar
Held að það bíði “stór bömmer” eftir “geldingunum” á Baugsmiðlunum þegar meistari þeirra og verndari er endanlega fallinn í skítinn. Hallgrímur er að klippa á festarnar og væntanlega eru fleirri sem fara að ráði hans og flýja eins og rottur hið sökkvandi skip.

rækjan
21.08 2009 kl.22:20

Thor Vilhjálmsson og hallgrímur passa vel sem drykkjufélagar báðir jafn leiðinlegir , þeir gætu stúderað bækurnar þar sem grámosinn glóir og þetta er allt að koma, þetta eru þær leiðinlegustu bækur sem ég hef á æfini lesið. Kvað skiftir það máli kvað þessi maður segir, hann er bara froða.

KK
21.08 2009 kl.23:05

Alveg ótrúlega langur fattarinn í þessum gaur....

Hann sem rithöfundur hefði átt að getað áttað sig á “að þó það sé prentað þá er það ekki endilega satt”...

Fólk hér heima heldur of oft að ef það getur lesið í “traustum miðli” það þá hljóti það að vera satt og rétt...

marco
22.08 2009 kl.09:01

Viskíprestur hefur fullkomlega rétt fyrir sér!

Eyjólfur
22.08 2009 kl.09:06

Hallgrímur er reyndar fínn penni og góður rithöfundur

Anna
22.08 2009 kl.10:06

Hann var einu sinni fyndinn en hann er það ekki lengur.

Valgarður
22.08 2009 kl.15:33

Núna er Hallgrímur á milli línanna að fara fram á fyrirgefningu við íhaldið, auðvitað sjá menn í gegnum þetta Hallgrímur, fólk er ekki fífl. Reyndu annan. Vonlaust keis í alla staði og verður alltaf.

Einar
22.08 2009 kl.17:14

baugsprinsinn VOÐA VOÐA Snúa við blaðinu.

Kannski hræddur um að Jóhönnuklikan taki hann af listamannadúsunni

sem nemur 350 000 kr í hæsta flokk ( floksgæðingaflokk)

Atvinnuleisisbætur eru 140 000 á mánuði.

Hvílikur vindhani Hallgrímur Helgasson.

Sigurður
22.08 2009 kl.17:21

Hver með heila brú í hausnum nennir að taka mark á þessum fyrrum
sjálfstæðismanni umpólaður samfylkingarmaður og gvuð má vita hvað
næst ?
Hver mun borga best fyrir skoffínið þegar BAUGUR er orðinn gjaldþrota ?

Krisján
22.08 2009 kl.17:27

Titill næstu ævisögu Hallgríms Helgassonar gæti verið

HARMSAGA ÆVI MINNAR

Benedikt
22.08 2009 kl.17:35

Hallgrímur Baugsson hjá þér rís andleg örbyggð hvað hæst.

Gunnr
22.08 2009 kl.19:49

Hvað er verið að bögga bara Hallgrím. Hann sá þó að sér. Hvað með þá sem litu upp til Bjögganna og sáu jafnvel ekki sólina fyrir þeim, en þeir feðgar eru án efa dýrustu ódrættir Íslandssögunar. Eða þeir sem ennþá kjósa flokka sem gáfu vinum sínum bankastofnanir og í eftirlitsleysi og jafnvel barnaskap voru þetta gerð að spilavítum og reikningarnir liggja nú á borðum landsmanna meðan kúlukóngar og drottningar með afskrifaðar skuldir gagrýna þetta.
Það má segja það að Hallgrímur er búinn að sjá að sér en það þyrfti fleirri að sjá að sér.

Gunnr
22.08 2009 kl.20:10

Hallgrímur er skáld og sýnir sínar veiku hliðar, honum verður fyrirgefið enda gerði hann ekkert annað af sér en að halda að óvinir óvina sinna voru vinir hans en þeir voru ekkert betri. Gráðugum, andlausum og hrokafullum fjárglæframönnum og samstarfsmönnum þeirra úr stjórnmála og embættismannastétt á ekki að fyrirgefa þeim á að refsa.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar