Innlent - sunnudagur - 23.8 2009 - 10:28

Jón Ásgeir og Ingibjörg gera með sér kaupmála. Tiltekin verðmæti verða séreign annars þeirra

jonasgeirogingibjorg.jpgJón Ásgeir Jóhannesson og eiginkona hans Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir hafa gert með sér kaupmála. Þetta kemur fram í auglýsingu sem birt var í Lögbirtingarblaðinu í liðinni viku en kaupmálanum var skilað til sýslumannsins í Reykjavík hinn 3. júní sl. Í slíkum auglýsingum kemur ekkert fram um innihald kaupmálans.

Frá þessu er sagt á vef Viðskiptablaðsins.

Rifjað er upp að Jón Ásgeir var stjórnarformaður og stærsti eigandi Baugs áður en Baugur var úrskurðaður gjaldþrota. Hann er nú helsti eigandi fjárfestingafélagsins Gaums, sem m.a. keypti Haga út úr Baugi. Hagar voru reknir með 1,4 milljarða króna tapi á fyrri hluta síðasta rekstrarárs, þ.e. á tímabilinu 1.3.-31.8. 2008.

Á vef Viðskiptablaðsins segir að samkvæmt því uppgjöri hafi skuldir Haga verið um 22 milljarðar og eigið fé tæpir 7 milljarðar. Stór hluti skuldanna sé á gjalddaga nú í haust. Um mitt þetta ár hafi staðið til að birta ársuppgjör Haga fyrir síðasta reikningsár, en því hafi verið frestað um óákveðinn tíma.

Þá segir í fréttinni að nokkuð hafi borið á því eftir hrun bankanna sl. haust að áhrifamenn í viðskiptalífinu hafi gert kaupmála. Með kaupmála geti hjón ákveðið að tiltekin verðmæti skuli verða séreign annars þeirra.

70 ummæli

Rita ummæli

Denni
23.08 2009 kl.10:34

Honum verður bara rift.

Bónusheilinn
23.08 2009 kl.10:37

Það gilda tvenn lög í landinu önnur fyrir elítuna og önnur fyrir lýðinn.

aron
23.08 2009 kl.10:40

Auðróninn reynir að sjálffsögðu að bjarga sér á hlaupum, eina sem þetta lið kann, það er að stela með höndum og fótum!!!!

Grútur
23.08 2009 kl.10:44

Eru þetta ekki góðar fréttir? Bendir þetta ekki til að þau séu farin að sjá sína sæng upp reidda?

ronný
23.08 2009 kl.10:45

Þetta er mjög ógeðfelldur gjörningur hjá þeim hjónunum, ef sannur reynist.
Það þarf að stöðva þetta ef það er hægt.
Enginn má sleppa betur en aðrir.

koli
23.08 2009 kl.10:55

Hvað mun Jóni Ásgeiri takast lengi að fela sig í umfjöllun fjölmiðla á Íslandi?

johannes
23.08 2009 kl.11:00

Um að gera að nota öll trixin í bókinni til að koma eignum undan. Næst afsalar hann Tortola Reikn á börnin sín ?

Hlynur Þór Magnússon
23.08 2009 kl.11:00

Er Lögbirtingablaðið ekki í eigu Jóns Ásgeirs?

johannes
23.08 2009 kl.11:01

Já eða köttinn ?????

Steinþór M
23.08 2009 kl.11:02

koli@10:55
Jafnlengi og bankastjóri og bankastjórn Landsbankans gera honum kleift að eiga fjölmiðlana. Þeir sem hjálpuðu honum að stela 365 út úr gjaldþroti Íslenskrar Afþreyingar voru eftir taldir bankastjóri og bankaráðsmenn:
Ásmundur Stefánsson bankastjóri
Haukur Halldórsson formaður bankaráðs
Erlendur Magnússon
Stefánía K. Karlsdóttir
Salvör Jónsdóttir
Ása Richardsdóttir
Höldum þessu til haga.

Birgir Rúnar Sæmundsson
23.08 2009 kl.11:03

Það er ljóst hvert útrásarvíkingarnir stefna allir, gjaldþrot.

Koma eignum sínum fyrst í skjól, til að sleppa við sínar ábyrgðir
blessaðir kallarnir, enda fullir ábyrgðartilfinningar !!!

Sjáum hvað setur, það má gera slík sýndar plögg ógild fyrir dómi.

Það er greinilegt að þeir hafa harðann brotavilja.

Stone
23.08 2009 kl.11:06

Samfylkingin sér um að bjarga JÁJ fyrir horn, allar ókepis auglýsingarnar og spunaáráðurinn sem Baugsmiðlarnir eru búnir að hrauna yfir þjóðina á stóran þátt í að Samfylkingin er nú við völd.

erasmus
23.08 2009 kl.11:12

Þetta er málamyndagjörningur til þess gerður að skjóta undan eignum - eins og salan á Bónus og Hagkaupum! Ekkert mál að rifta fyrir dómi.

Stefán Ásgeir
23.08 2009 kl.11:17

Á gamla Íslandi var þetta samþykkt og kallað “að kunna að bjarga sér og sínum”. Skattasvik, kennitöluflakk og kaupmálar var líkt við íþróttir og allir vissu um og þekktu svínaríið, sögðu bara ok. Þannig er nú það.
Ég geri ekki ráð fyrir að landinn hafi lagast mikið, en ... vonandi.

GÖTALAND
23.08 2009 kl.11:19

HAHAHA hann var góður þessi gjörningur hjá honum, þessur verður að rifta
ef það gerist ekki þá verður skríllinn óður og enginn veit hvað mun gerast
þá. BYLTING KANSKE ?

vestfirðingurinn
23.08 2009 kl.11:21

enn reynir þetta lið að stinga undan eignum.staðinn fyrir að skammast sín og reyna alla vega að borga sínar skuldir.í hvaða heimi lifir svona gjörsamlega siðblinda lið sem kann ekki að skammast sín heldur bara endalaust áfram á meðan má almenningur í landinu þjást vegna gjörða þessara fáu einstaklinga

Gummi Sk
23.08 2009 kl.11:27

skiftir þetta nokkru máli eru Dómstólarnir ekki í eigu Jóns Ásgeirs?

Birgir Örn
23.08 2009 kl.11:35

Ef Hagar á eigið fé upp á 7 milljarða, og er sennilega ekki mikið meira virði, hvernig fékk þá JÁ yfir 30 milljarða til að kaupa félagið? Í hverju var tekið veð fyrir láninu? Hvert fóru peningarnir?

jóhann
23.08 2009 kl.11:36

er jón násker að reyna að koma einhverjum aurum undan lýðnum

Valur1
23.08 2009 kl.11:49

jæja þá er Tommi og Jenny byrjaður,haldið þið að Tommi nái Jenna Jóhannesyni í þetta sinn?

Orðlaus
23.08 2009 kl.11:57

Maður óttast að þessi einstaklingur skuldi með öllu milli 2-3.000 milljarða amk. Þegar allt er saman talið.
Það lítur út fyrir að hans markmið þessa daga sé að skjóta eins miklum eignum undan kröfuhöfum og hægt er. Til þess eru ýmis brögð notuð og BYR og Kaupthing tóku þátt í ruglinu.
Að borga mönnum til baka það sem hann skuldar þeim - virðist ekki vera hans áhugamál.
Er æskilegt að hann stjórni 70% af fjölmiðlum landsins?
Það hefur oft komið í ljós að umfjöllun um hann sjálfan í eigin miðlum er afar lítil. Nánast enginn. Sem er sönnun þess að þeir miðlar eru ónýtir.

Linka
23.08 2009 kl.12:04

Margur verður af aurum api

Salómón
23.08 2009 kl.12:13

Athugasemdirnar hér eru fyrir neðan allar hellur.

Kolla
23.08 2009 kl.12:13

Þetta þarf engum að koma á óvart. Við vissum það fyrir, að hann kann öll trixin. Spurningin er: Kann sérstakur saksóknari trixin sem eru trixum JÁJ yfirsterkari?

Kolla
23.08 2009 kl.12:14

Viltu útskýra þetta Salómon?

Ásta B
23.08 2009 kl.12:17

Ógeðfelld hjón.

Hafa þau einhvern tíma borgað fyrir eitthvað sem þau telja sína eign?

Haukur Kristinsson
23.08 2009 kl.12:19

Hættið þessu kjaftæði að JÁJ sé samfylkingarmaður.
Auðvitað er Samfylkingin „pain in the ass“, og ekkert síður eftir að villikötturinn Ingibjörg Sólrún dró sig í hlé, sem hefði mátt gerast fyrr.
Hún var búin að verða sér nóg til skammar sem untanríkisráðherra.
En Jón Ásgeir, sem öll hans fjölskylda, eru Íhaldmsmenn og eiga mikinn stuðning innan SpillingarFLokksins.
Hann hefur borið fé í marga flokksmenn þeirra.

Bönnum Sjálfstæðisflokkinn
23.08 2009 kl.12:39

Frystið þýfið áður en það fer á uppdiktaðar kennitölur og á “ómenguð” nöfn eiginkvenna og barna.

Birgir Örn
23.08 2009 kl.12:43

JÁJ nýtur pólitískrar verndar Samfylkingarinnar og hefur gert lengi. Því verður engin raunhæf tilraun gerð til að nálgast eignir sem skotið hefur verið undan.

thorg
23.08 2009 kl.12:49

@ Birgir Örn

“Ef Hagar á eigið fé upp á 7 milljarða, og er sennilega ekki mikið meira virði, hvernig fékk þá JÁ yfir 30 milljarða til að kaupa félagið?”

Er þetta ekki kjarninn í því hvers vegna svona er komið fyrir okkur. Kjarninn í bankastarfsemi okkar (fractional reserve) gengur út á verðmætasköpun sem verður til við skuldir (lán). Lánveitandi (bankinn) þarf í raun ekki að eiga nema 3 milljarða til að geta lánað út 30 milljarða. Hann getur hinsvegar innheimt vaxtagreiðslur af heilum 30 milljörðum! Og það er slatti.

Þetta er auðvitað engin alvöru verðmætasköpun í þessu kerfi, nema að því leiti að hægt er að innheimta vexti skuldinni. Því hærri skuld - því hærri vextir (arður) til bankans. Hvort viðkomandi getur greitt alla skuldina til baka virðist því oftast vera aukaatrið þegar svona lán eru gefin út.

Nú er þetta kerfi að springa enda hringavitleysa frá upphafi til enda þar sem við skattgreiðendur endum á því að borga reikninginn. Íslendingar borga t.d. himinháa skatta til fjármagnseigenda í formi verðtryggingar.

KVERÚLANTINN
23.08 2009 kl.13:09

Nú fara hjónin í verkin sín...að stela undan eins og þjófar að nóttu - frá almenningi.
Allt í lagi......þessu verður rift.........þau skulu ekki halda að þau sleppi.

Magnús
23.08 2009 kl.13:18

Þegar öllu er á botnin hvolt skiptir það eitt máli hversu mikið er hægt að endurheimta úr höndum JÁJ og félaga og koma í hendur skilanefnda sem sjá um þessi mál fyrir hönd kröfuhafa. Eftir því sem meira er endurheimt og nýtist til að byggja upp og endurheimta traust því betra. Hvort JÁJ og félagar verða gjaldþrota eða ekki er ekki höfuðmálið en mörgum finnst það vera réttlætismál að þeir fái að blæða illa og lengi.

Þetta er svo mikklu víðtækara því að það þarf að endurvinna allt kerfi upp á nýtt og skipta um alla hausa í brúnni og í að minsta kosti 4-6 næstu lögum þar fyrir neðan. Flokkapólitíkin er svo annað mál og þar er ekki minni þörf á tiltekt og opinberun til að skapa vinnufrið um það sem skiptir máli.

Kona3000
23.08 2009 kl.13:20

Jón Ásgeir og Kristín sleppa ekki auðveldlega frá þessu ef lögmaðurinn frá LOGOS vinnur verkin sín.

“Komi fram beiðni um greiðslustöðvun eða krafa um gjaldþrotaskipti einstaklings er hægt að krefjast riftunar á gjafagjörningum viðkomandi til nákominna einstaklinga.

Verður gjöfin að hafa verið afhent innan tveggja ára fyrir þann dag er krafa um greiðslustöðvun eða gjaldþrotaskipti er gerð. Í lögum um gjaldþrotaskipti eru makar og sambýlisfólk talið til nákominna í þessum skilningi.”(mbl.)

Óli
23.08 2009 kl.13:25

hvað er þetta hvíta framan á Jóni ?????

Sigurður
23.08 2009 kl.13:34

Fyrirmyndin er kaupmáli Óla og Dorritar.Bæði launuð af íslenska ríkinu sem
klappstýrur auðvaldssins og vinir ræningjanna frá TORTULA.

Hvar er ÓLI ? Furðuleg þöggun í gangi í fjölmiðlunum ?

Dóttirin Lögfræðingurinn hlýtur að geta hjálpað til, frá HÖGUM,KAUPÞING
LUXEMBURG orðinn lögfræðingur hjá ASÍ.

Gott fyrir alþýðunna.

Sigurður
23.08 2009 kl.13:37

Er ekki kominn tími til að mála Bessastaði í nýjum lit ?
Leiðinlegur náfölur ( Blanc litur ) á þeim byggingum.

Höskuldur
23.08 2009 kl.13:41

Það er skandall að dóttir ólafs ragnars sé komin í vinnu fyrir svokallað “Alþýðu”samband Íslands.

Starfsferill dætra forsetans er skrautlegur. Önnur hjá Kaupþingi í Lúxemborg og þaðan til Baugs. En hin hjá Samkeppniseftirlitinu þaðan til Lögmanna í Mörkinni (Gestur baugslögfræðingur) og svo til ASÍ.

Hreggviður
23.08 2009 kl.14:02

Sé það rétt hjá Jóni Ásgeir að kaupmálinn hafi verið gerður okt-nóv 2007, þá er ekki langur tími til stefnu með riftun. Tvö ár og þá er dæmið skothelt.
Það hlítur að vera skrítin tilfinning fyrir erfingja Hakaups, að missa heila hauginn í vesalinginn Jón.
Þessu þarf að rifta.

Robbi
23.08 2009 kl.14:21

Á ekki að frysta eigur íslenzku auðrónanna, áður en þeim tekst að koma öllu undan? Á bara að frysta eigur Tchenguiz, af þaví að hann er útlendingur og hefur ekki borið fé í stjórnmálaflokkana? Og hvenær ætlar fólk að hætta að verzla við þessa siðblindu menn eins og Baugsfeðgana, sem eiga Bónus og Karl Wernersson, sem á Lyf og heilsu, Apótekarann og Skipholtsapótek?

Jón Hreggviðsson
23.08 2009 kl.14:29

Þegar skilanefndir taka yfir félög skora ég á þau, að upplýsa hvað þessi félög hafa styrk stjórnmálaflokka um háar upphæðir.

Nú hafa stjórnmálamenn sett reglur að aðeins megi upplýsa um þetta ef félögin gefa leyfi til þess. Stjórnmálamenn passa líka upp á það að velja flokksgæðina í skilanefndirnar ....... eða hvað?

GG
23.08 2009 kl.14:37

Menn meiga ekki gleyma sér alveg hér. Hver veit það ekki að eiginkona Jóns var miklu auðugri honum þegar þau kynntust. Hún er dóttir Pálma heitins í Hagkaupum og það var hún og fjölskylda hennar sem átti Kringluna og Hagkaupsveldið allt.

Hildur
23.08 2009 kl.14:41

GG
Hahahahaha.
Manneskjan er búin að haga sér eins og vitfirringur síðustu ár.
Það er sko ekki hægt að hvítþvo þessa konu varðandi þessa gengdarlausu eyðslu og veruleikafirrtu flottheit.
En takk fyrir að hjálpa mér með magaæfingar dagsins, að ætla að líkja arfinum sem hún fékk við þetta peningafyllerí sem hún hefur verið á síðustu ár.

Brosi
23.08 2009 kl.14:49

Salómón
23. ágúst, 2009 kl.12:13

Ætlar þú Salómon ekki að útskíra innkastið þitt þú veist greinilega meira um þetta en við hin eða ertu líka farin í felur ??

Glaumur
23.08 2009 kl.14:54

Rotturnar flýja sökkvandi skip - í sitt hvoru lagi.

Agnar Thor
23.08 2009 kl.15:12

Fólkið í landinu sem tapaði hundruðum milljörðum í hlutabréfum vegna þessa mans, á að lögsækja hann persónulega því það virðist að allt sem hann hefur gert og oft í nafni almennings hlutafélaga, hefur verið gert með hans hagnað í huga. Sama með konuna hans því með 101 veldinu sem hún var að reyna koma upp (og síðan hefur hrunið allgjörlega) hefur hún skilið eftir sig slóð skulda í hundruðum milljóna.

Það verður einhver lögmansstofa að koma á fót systemi svo að einstaklingar sem töpuðu, geta lögsótt bankastjórana og forstjóra eins og Jón Ásgeir.

Mér finnst athyglisvert að 30 milljarða lánið sem Jón Ásgeri og Hagar fengu frá Kaupþingi til að kaupa Bónus o.fl. út úr Baugi, viðrist vera ofan á 20 milljarða eldri lán og ofan á stórkostlegan taprekstur. Kannski eru verðin í Bónus of góð til að vera sönn. Svipað og með vextina á Icesave og Edge reikningunum. Öllu þessu er haldið upp með stórkostlegu tapi. Svona verður maður Viðskiptamaður ársins 2008.

Zeitgeist
23.08 2009 kl.15:21

Koma þarf á neyðarstjórn* á Íslandi, stjórn sem nýtur trausts almennings og umheimsins. Stjórnmálaflokkarnir og stjórnmálamenn njóta hvorugs, heldur búa við megna tortryggni og andúð. Sama er að segja um stjórnsýslu landsins. Hið pólitíska kerfi er komið í þrot og ræður ekki við brýnustu úrlausnarefni þjóðarinnar.

Neyðarstjórnin þarf að fá afmarkaðan tíma til þess að vinna að eftirfarandi
verkefnum:

1. Neyðarráðstöfunum í efnahagsmálum
2. Rannsókn á efnahagshruninu
3. Endurskipulagningu stjórnsýslunnar
4. Stjórnlagaþingi

Neyðarstjórn verður skipuð fólki utan þings og nýtur almennrar virðingar og trausts meðal þjóðarinnar. Stjórnin mun fá til liðs við sig færustu sérfræðinga innan lands og utan.

Þegar stjórnlagaþing hefur skilað af sér drögum að nýrri stjórnarskrá, verða þau borin undir þjóðina til samþykktar eða synjunar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Samþykki þjóðin drögin verður stofnað nýtt lýðveldi á grundvelli nýrrar stjórnarskrár og boðað til alþingiskosninga.

Tímabært er að snúa baki við gömlu, úrsérgengnu stjórnmálakerfi og reisa kröfuna um utanþingsstjórn. Fulltrúar á Alþingi þurfa að þekkja sinn vitjunartíma og verja slíka stjórn falli.

* Neyðarstjórn almennings er utanþingsstjórn sem forseti Íslands skipar og meirihluti Alþingis sættir sig við.

http://www.neydarstjorn.org

http://www.facebook.com/share.php?appid=2530096808&src=box&tid=113280451146&u=http%3A%2F%2F

Tjaldur
23.08 2009 kl.16:06

@Zeitgeist

Svona eins og Borgarahreyfingin?

Rosabaugur
23.08 2009 kl.16:15

Samkvæmt meginlínu kverúlantanna sem hér tjá sig hlyti forsetinn að skipa vildarvini Baugs í þessa allt frelsandi utanþingsstjórn sem menn eru að væla eftir hver um annan þveran.

Kolla
23.08 2009 kl.16:23

Rosabaugur alias Salómon???

jóhann
23.08 2009 kl.16:34

drattastu fram slómon og komdu með skýringar

Einar
23.08 2009 kl.17:15

Var nóg fyrir þessa útrásaraumingja að styrkja flokkana um tugi milljóna?
Var það nóg til þess að þeir séu ósnertanlegir þrátt fyrir að hafa keyrt bankana í þrot og tekið með sér efnahag landsins í fallinu.

Þessir auðmenn svokölluðu hafa eyðilagt lífsskilyrði fólks.
Lagt í rúst afkomu fólks, sem hafði ekkert með þetta hrun að gera.

Lagt þannig skuldir á þjóðarbúið að börn okkar og barnabörn verða borgandi þetta með sínum sköttum, ef ekki barnabarnabörnin.

Þessir menn hafa lagt mannorð okkar í rúst erlendis frá.

Þrátt fyrir þetta eiga þessir menn fyrirtæki hér á landi í fullum rekstri sem mala gull fyrir þá (sum fyrirtæki, t.d NOVA), lifa í lúxus hér á landi og erlendis eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan borgar þjóðin skuldir þeirra með skattpeningum sínum og vörum sem hækkaðar hafa verið upp úr öllu valdi með álagningu stjórnvalda.. til að fá peninga í kassann til að borga skuldir þessara GLÆPAMANNA.
Stjornvöld gera ekkert fyrir almenning. Á meðan fólkið í landinu horfir á ævisparnað sinn meðal annars í formi fasteigna, fuðra upp vegna verðtryggingar og hruni krónunar. Í hvert skipti sem yfirvöld hækka skatta á einhverju, bensíni, áfengi, tóbaki eða öðrum vörum.. hækka húsnæðislánin... þetta gerir ríkisstjórnin ekkert í.. enda of upptekin í ESB draumórum.

Þrátt fyrir allt þetta mæta aðeins örfáar hræður til að mótmæla þessu.
80 þúsund manns geta hinsvegar mætt á GAYPRIDE. 100 þúsund manns geta mætt á MENNINGARNÓTT.

En þegar kemur að afkomu okkar, lífsskilyrðum ófæddra íslendinga.. að þá gerir fólk ekkert.... nöldrar við eldhúsborðið.. bloggar...

VAKNIÐ ÍSLENDINGAR!!! Það er verið að ræna okkur fyrir framan nefið á okkur!!!!!!

jóhann
23.08 2009 kl.17:56

gott innlegg Einar, haltu áfram

DisaP
23.08 2009 kl.17:59

Góður pistill Einar.
Sérstaklega þetta
“Á meðan fólkið í landinu horfir á ævisparnað sinn meðal annars í formi fasteigna, fuðra upp vegna verðtryggingar og hruni krónunar. Í hvert skipti sem yfirvöld hækka skatta á einhverju, bensíni, áfengi, tóbaki eða öðrum vörum.. hækka húsnæðislánin... þetta gerir ríkisstjórnin ekkert í.. enda of upptekin í ESB draumórum.”

og þetta:
“Þrátt fyrir allt þetta mæta aðeins örfáar hræður til að mótmæla þessu.
80 þúsund manns geta hinsvegar mætt á GAYPRIDE. 100 þúsund manns geta mætt á MENNINGARNÓTT.”

jóhann
23.08 2009 kl.18:01

um komandi kynslóðir, verður sagt að afi langafi amma langamma hafi verið á eyðslufyllirí, ef ekki verður komið höndum yfir þessa auðvaldsróna takk fyrir

GG
23.08 2009 kl.18:15

Þau hjón eiga og verða að borga sínar skuldir upp í topp. Ég vorkenni fólki sem missti sig í græðginni. Sé alltaf fyrir mér svínaauglýsingarnar þegar ég les um þetta fólk.....

Mjagmasuren
23.08 2009 kl.18:41

Jón Ásgeir hefur alltaf notið sérstakrar velvildar og verndar Samfylkingarinnar enda öflugasti kostunarmaður hennar fyrr og síðar með margvíslegum hætti. Hverjum dettur í hug að hróflað verði við þessu meðan Samfylkingin og spilling hennar halda áfram að grassera við völd?

Haraldur
23.08 2009 kl.18:46

Hvernig getur það verið að Fréttblaðið sem skuldar 6 milljarða sé enn að koma út og borið í hús??? Allt á bullandi yfirdrætti og á fullri ferð!

Danton-María
23.08 2009 kl.19:07

Ég styð VG. Er sammála því að Jón Ásgeir nýtur sérlegrar velvildar frá Samfó. Enda var hann í partíi ekki alls fyrir löngu með Samfylkingarfólki á Gay Parade.

Hann er búinn að væla sig svo inn í hjörtu þjóðarinnar að fólk mun allra síst veitast að honum. Hann er gulldrengur þjóðarinnar.

johann
23.08 2009 kl.20:11

Bæði jón násker og bjöggi eru enn að fljúga a saga class eins og kóngar, þó þeir eigi ekki bót fyrir rassuinn á sér, hvaða andskotans djók er i gangi ?

Guðbjörg
23.08 2009 kl.20:14

Algjörlega siðspillt lið,, en samt á launum frá samfó.. og okkur er greinilega alveg sama því ekki förum við að mótmæla þessu rugli.

Ásta B
23.08 2009 kl.20:25

Heyr, heyr Einar.

Váli
23.08 2009 kl.21:14

Jón Ásgeir segir að samningurinn hafi verið gerður 2007en ekki skilað inn fyrr en 2008. Það er gamalt trikk í bókinni að dagsetja aftur í tímann og nú á að beita því trikki.

Aggi
23.08 2009 kl.22:31

Ef einhver trúir einu orði úr munni þessa manns, þarf sá hinn sami að láta leggja sig inn. Það þarf að ná öllu til baka, sem þau og aðrir útrásarvíkingar, hafa stolið af saklausri þjóð. Slíkir málamyndagerningar eiga ekki að flækja það.

HG
23.08 2009 kl.22:44

Þessum “samningi” hlýtur að verða rift .....annars skapast fordæmi

og hinir Jónarnir úti í bæ gera svona samning/ kaupmála !

Ekki sama Jón eða Jón Ásgeir !

KK
23.08 2009 kl.22:59

Þetta er málamyndagjörningur sem verður að fá risft sem fyrst.

Þau bæði hafa baðað sig í auði þjóðarinnar og nú viljum við fá það aftur...

ALLT en ekki einhvern anskotans helming.

VIÐ EIGUM ÞAU BÆÐI MEÐ HÚÐ OG HÁRI, INN AÐ BEINI OG OFANÍ ÖLL VESKI.

Þetta er sóðalegur gjörningur að reyna...

RS
23.08 2009 kl.23:13

snýst allt um innihald kaupmálans hvort ástæða sé að rifta eða ekki. Þarf ekki að snúast um neitt annað en t.d. séreign varðandi arf eða að eignir sem viðkomandi kemur með inn í hjúskap verði áfram séreign viðkomandi

Friðjón
23.08 2009 kl.23:27

Samkævmt eftirfarandi lagareglu (http://www.althingi.is/lagas/136b/1978036.html) þarf hann að borga 0,4% sekt fyrir “gleymskuna” - en kröfuhafar þurfa ekki að kaupa þetta.

” 31. gr. [Fyrir stimplun kaupmála, sem gerðir eru á undan stofnun hjúskapar, skal greiða 50 kr.
Fyrir stimplun kaupmála, sem gerðir eru síðar, skal greiða 4 kr. fyrir hvert byrjað þúsund þeirrar fjárhæðar sem verður séreign samkvæmt þeim. Verðmæti fasteigna skal í þessu sambandi metið samkvæmt ákvæðum 17. gr. en frá verði þeirra þannig ákvörðuðu má draga eftirstöðvar áhvílandi þinglýstra veðskulda. Frá veði annarra eigna má draga eftirstöðvar þinglýstra skulda er á þeim hvíla. Lágmarksgjald samkvæmt þessari málsgrein skal vera 50 kr.]1)”

bergur bergur
24.08 2009 kl.01:16

Afhverju nýtur þessi maður friðhelgis? Það á að hirða allt af honum.

Arnór Valdimarsson.
24.08 2009 kl.01:39

Á hún þá snekkjuna í dag ¿¿¿

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar