Vinir og vandamenn ítalska forsætisráðherrans, fjölmiðlamógúlsins og milljarðamæringsins Silvo Berlusconi hafa hvatt karlinn til að leita sér hjálpar við kynlífsfíkn.

...þetta mun vera afleiðing þess að eiginkona hans hefur farið fram á skilnað, orðin langþreytt á lauslæti eiginmannsins en á miðvikudag mun hún leysa frá skjóðunni í heilli bók um líf sitt með Berlusconi.
Eiginkona Berlusconi, Veronica Lario (52) hefur loksins gefist upp eftir “tuttugu ár af svikum og lygum”. Vandræðin fóru af stað fyrir alvöru þegar upp komst að Berlusconi hafði mætt í 18 ára afmælisveislu baðfatamódelsins Noemi Letizia í apríl en þar gaf hann henni hálsfesti að andvirði rúmlega einnar milljón íslenskra króna.
Vændiskona hefur einnig haldið því fram að hún hafi eytt nótt á heimili forsætisráðherrans í nóvember í fyrra, en þessu neitar hann.

Í kjölfar stjórnleysisins munu vandamenn Berlusconis hafa hvatt hann til að leita sér meðferðar við vandanum og endurskoða svo skilnaðinn við Veronicu Lario. Hann á að hafa farið í eins til tveggja vikna meðferð við þessu, skömmu fyrir G8 leiðtogafundinn.
Það olli því töluverðu uppnámi þegar sást til stelpuhnátunnar á snekkju við landareign forsætisráðherrans á eyjunni Sardínu. Sjálfur var hann reyndar fjarri góðu gamni en Noemi skemmti sér þarna með nokkrum vinum sínum.

Hin 52 ára Veronica Lario, starfaði sem leikkona áður en hún gekk í hjónaband með þessum spillta Ítala. Hann sá hana fyrst árið 1980 þar sem hún kastaði af sér klæðum á leiksviði og beraði brjóstin.
Frú Veronica segir það vonlaust að taka saman við forsætisráðherran aftur, lygarnar og svikin hafi gengið svo langt að hún geti aldrei treyst honum og að hún treysti sér ekki til að standa lengur við hlið hans.
“Það sem mér finnst verst er hvað hann hefur skemmt mikið fyrir sjálfum sér. Hann hefur látið svo margt gott af sér leiða en í dag á fólk aðeins eftir að horfa á það sem hann hefur gert rangt”.


Á miðvikudaginn næsta kemur út bók þar sem Veronica lætur gamminn geysa um hjónaband sitt og Berlusconi (einskonar “Jónínu Ben” króníka).
Þar mun reyna á þolrif Ítala í skandalamálum en margir telja þá með sjóuðustu þjóðum heims í þessum efnum.

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
10 ummæli
Rita ummæli24.08 2009 kl.17:18
Slóð
Mikið rétt hvenær kom bókin hennar Jónínu út ???
24.08 2009 kl.18:02
Slóð
Vá hvað ég fíla Berlusconi.
Berlusconi sem næsta forseta Íslands.
24.08 2009 kl.18:09
Slóð
Smart
24.08 2009 kl.20:37
Slóð
Svalasti maður í Evrópu?
VIVA BERLUSCONI!!!
24.08 2009 kl.21:32
Slóð
til hvers að vera ríkur með völd ef maður fær svo ekki flottar læður.
24.08 2009 kl.21:35
Slóð
Hvaða læti eru nú þetta,
stelpan er áreiðanlega bara kokkur á bátnum hjá kallinum, þetta er smekkmaðkur, allavega er stelpan flott.
25.08 2009 kl.04:21
Slóð
ég þori að veðja að angelina Joile lýti út eins og fyrrverandi kellingin hans Berlus eftir c.a 20 ár!!
25.08 2009 kl.10:38
Slóð
Eitthvað er blaðamaður að ruglast á móðurmálinu í fréttinn þegar hann skrifar “...þetta mun vera afleiðing þess að eiginkona hans hefur farið fram á skilnað,”
Ég held að þetta hafi þvert á móti verið orsök þess að farið var framá skilnað. En svo er hægt að segja að það að halda áfram að hitta þetta baðfatamódel sé afleiðing þess að hann er á lausu núna... Eða hvað.... hefði hann ekki hvorteð er hitt þessa konu? Hvort kom á undan eggið eða hæna, hvort er orsök og hvort er afleiðing?
25.08 2009 kl.12:50
Slóð
er fólk hér fyrir ofan að hrósa þessum spillta manni?
kannski ekki skrítið miðað við að við erum Íslendingar .. erum vön svona.
60 kall að hamast á 18 ára hnátu.
ojbara!
26.08 2009 kl.10:03
Slóð
Svo er stelpan meira að segja ekkert spes og ekki hann heldur,
eitthvað svo strekktur og steiktur, aumingjas fólkið !