Lögmannsstofa á Akureyri gleymdi að lýsa fjögurra milljarða króna kröfu lífeyrissjóðsins Stapa í Straum fjárfestingabanka fyrir tilskilin frest. Krafan er glötuð nema stór hluti annarra kröfuhafa fallist á að hún verði tekin til greina.
Frá þessu var sagt í hádegisfréttum RÚV.
Fram kom að frestur til að lýsa kröfum í Straum rann út þann 18. júlí síðastliðinn, en Straumur hafi fengið heimild til nauðasamninga. Lífeyrissjóðurinn Stapi á Akureyri eigi um fjögurra milljarða króna kröfu í bú Straums Heildarstærð lífeyrissjóðsins er um 100 milljarðar króna og sjóðsfélagar eru um 45-50 þúsund.
RÚV sagði að fyrir mistök hefði Lögmannstofan ehf. á Akureyri gleymt að lýsa þessari fjögurra milljarða króna kröfu lífeyrissjóðsins í Straumsbúið og því væri alls óljóst hvort krafan yrði tekin til greina.
Fram kom að samkvæmt gjaldþrotalögum þurfi handhafar þriggja fjórðu hluta heildarfjárhæðar almennra krafna að samþykkja kröfu lífeyrissjóðsins eftir að frestur hefur runnið út til þess að lífeyrissjóðurinn geti endurheimt fjárhæðina að hluta. Kvaðst RÚV hafa heimildir fyrir því að þegar hafi verið send út bréf til um 300 kröfuhafa þar sem óskað er eftir samþykki þeirra á kröfunni. Fáist þetta samþykki þeirra ekki sé þessi krafa lífeyrissjóðsins í bú Straums töpuð.
Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri Stapa, lífeyrissjóðs vildi ekki veita RÚV viðtal vegna málsins í dag. Hann vildi bíða og sjá hvort krafan yrði ekki samþykkt af hinum kröfuhöfunum áður en hann tjáði sig opinberlega um málið.
Ekki náðist í talsmann Lögmannsstofunnar á Akureyri.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
41 ummæli
Rita ummæli25.08 2009 kl.12:43
Slóð
Eru lögmenn vanir að “gleyma”? Kaupi þetta ekki.
25.08 2009 kl.12:53
Slóð
Lögmenn hljóta að vera með starfsábyrgðartryggingu sem dekkar þetta fyrst þeir geta sent reikninga upp á 250.000.000 (voru nokkuð fleiri núll?).
25.08 2009 kl.12:53
Slóð
Mikið rétt Kolla
25.08 2009 kl.12:55
Slóð
@Kolla
Fáránlegra komment hef ég varla séð!!
25.08 2009 kl.12:57
Slóð
Það er verið að hlýfa vinum sínum í straumi á kostnað lífeyrisþega!
25.08 2009 kl.12:58
Slóð
@Finnbogi - Hvað meinarðu?
25.08 2009 kl.12:58
Slóð
Á að reka alla fórstöðumenn fyrir svona vanræksli -- ef þetta gerðist erlendis væru þeir bunir að segja af sér. En a Íslandi, þá er þetta bara “uups!”
25.08 2009 kl.12:59
Slóð
Hvernig er staðan hjá Lífeyrissjóði VR ? Getur Ragnar Önundarson vinsamlegast svarað því?
25.08 2009 kl.13:04
Slóð
Fáheyrð mistök hjá Stapa, segir í fyrirsögn.
Voru ekki mistökin hjá lögfr.stofunni?
25.08 2009 kl.13:04
Slóð
Er þetta nýjasta trikkið til að vernda þá ósnertanlegu; ,,úps, ég bara gleymdi...”
Að mínu mati á lögfæðistofan að greiða þetta tjón, vilji tryggingafélagið það ekki, að öðrum kosti að fara í þrot.
25.08 2009 kl.13:08
Slóð
Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna sumir karlar virðast hafa heiminn í hendi sér þrátt fyrir oft vítaverða vanrækslu og vanhæfni. Þeir virðast geta gert það sem þeim sýnist þó þeir valdi ekki ábyrgð og vanrækja allar helstu skyldur sínar.
Það er eitthvað mikið að - og við skulum ekki alltaf benda á aðra, þetta er okkar samfélag sem við sjálf berum líka ábyrgð á - ekki bara embættismenn og yfirvöld .
Hvernig stendur á þessu ?
Hvað er að hjá okkur ?
25.08 2009 kl.13:12
Slóð
Æ, sorrí.
25.08 2009 kl.13:20
Slóð
Þeir gleyma ekki að rukka einstaklinga.
Þetta er svínarí , skipulagt
Nú á lífeyrissjóðurinn ef hann kemst ekki lengra með málið
að sækja á lögmennina um skaðabætur fyrir ÖLLU.
25.08 2009 kl.13:25
Slóð
Þetta verndar engan... það er enginn einn að græða á þessu.
Þetta er líklegast nákvæmlega eins og kemur fram í fréttinni. Þetta bara gleymdist...
25.08 2009 kl.13:27
Slóð
Var þeim nokkuð mútað til að “gleyma”? Myndi aldrei gleyma að stefna svona hárri kröfu, enda tapaði ég þá um leið hárri innheimtuþóknun sjálfur!
25.08 2009 kl.13:34
Slóð
Finnbogi. Svaraðu Kollu
25.08 2009 kl.13:38
Slóð
Hva, þetta eru Akureyringar! Hvað er fjárhæð sem þessi milli vina??
Fékk ekki Penninn - og Mogginn - megaafslátt?? :)
25.08 2009 kl.13:40
Slóð
@ Hreinn
25.08 2009 kl.13:25
Að sjálfsögðu græða aðrir kröfuhafar, því þá eru þessir fjórir milljarðar ekki að þvælast fyrir þeim. Svo er spurning hvort Lögmannsstofan ehf gæti hagsmuna einhverra annarra kröfuhafa (nú eða ættingja) í leiðinni og láti lífeyrissjóðinn gjalda.
@ Finnbogi
Er ekki kurteisi að svara einfaldri spurningu? Ef ekki, falla ummæli þín dauð og ómerk!
25.08 2009 kl.13:52
Slóð
1.Stapi átti fyrir það fyrsta ekkert með að eiga 4ma kröfu á hendur Straumi. Það er vítavert kæruleysi.
2. Lögmannsstofan representar amk. LÍ og Glitni, veit ekki með Straum en vítavert kæruleysi er það engu að síður.
3. Skaðabætur ættu sjóðfélagar að reyna að sækja til:
a) Stjórnarmanna lífeyrissjóðsins sem bera ábyrgð á sjóðnum.
b) FME sem átti að hafa eftirlit með áhættu sjóðsins.
c) Lögmannsstofunnar sem klikkaði svona fallega.
25.08 2009 kl.13:57
Slóð
Ég skal taka að mér að “rukka þessa fábjána sem eiga Lögmannsstofan ehf”, ég tek 25% þóknun fyrir að rukka þessa jokera - en á Stapi ekki að verða fyrir tjóni af því að þessir aðilar valda ekki störfum sínum...lol....!
kv. Heilbrigð skynsemi
25.08 2009 kl.14:01
Slóð
Vangæsla á að lýsa kröfu leiðir ekki til annars réttindamissis en að kröfuhafi getur ekki greitt atkvæði um nauðasamninga með eða á móti. Komist nauðasamningur á fær viðkomandi kröfuhafi greitt skv. honum þrátt fyrir vanlýsingu. Frásögn af þessu er ekki mjög nákvæm í fjölmiðlum.
25.08 2009 kl.14:14
Slóð
Hvað hafa þessir hagsmunagæslumenn í laun. ??!!
25.08 2009 kl.14:19
Slóð
Hmmmm.......... Akureyringar “gleyma” að innheimta og fulltrúi svæðisins í Samfóinu, SER, mögulega drullufullur í pontu á Alþingi, eða hvað? Menn eru að nefna þetta “málaþrugl” SER hér á stofu.
25.08 2009 kl.14:20
Slóð
Þessari sömu lögmannsstofu sem og gjörvöllu embætti Ríkislögreglustjóra var sigað á þá sem græddu á gjaldeyrisviðskiptum í tölvukerfi Glitnis en þeim var gefið að sök að hafa grætt ólöglega, vegna mistaka bankans, einhverjar 20 millur sem þeir endurgreiddu med det samme. Reikningar voru frystir og menn handteknir. Þá virkaði Ríkislögreglustjóri eins og deild innan Glitnis og wham bam! menn voru komnir í yfirheyrslu í járnum þótt sakarefnið væri þokukennt. Á sama tíma voru yfirmenn bankans að pönkast á landsmönnum með markaðsmisnotkun eins og Stím-dæminu, stöðutöku gegn krónunni og almennum djöfulskap en hvar var Ríkislögreglustjóri þá ?
25.08 2009 kl.14:41
Slóð
Hver gleymdi þessu? Það eru einstaklingar sem gleyma ekki satt?
25.08 2009 kl.14:44
Slóð
Sá sem trúir því að þetta hafi GLEYMST, rétti upp hönd!!
25.08 2009 kl.14:49
Slóð
Þetta gleymdist ekkert.
Sénsin..
25.08 2009 kl.15:21
Slóð
Það verður lítið eftir í tryggingasjóði lögmanna þegar þessar skaðabætur hafa verið greiddar.
25.08 2009 kl.15:39
Slóð
@Elli kelling
25.08 2009 kl.14:20 Hafa skal það sem sannara reynist og það var EKKI starfsmaður á þessari lögmannsstofu sem misnotuði og græddi á tölvumistökum hjá Glitni. Það eru fleiri en ein lögmannstofa á Akureyri sko!
25.08 2009 kl.15:49
Slóð
Stapi fer þá að SJÁLFSÖGÐU í mál við lögfræðistofuna!
Það er alveg með ólíkindum hvað það hefur ráðist vitlaust og duglaust fólk til lífeyrissjóðanna almennt.
Það væri sko ekki atvinnuleysi í landinu ef atvinnuleysingar þyrftu að hafa jafn lítið til brunns að bera og þetta lið.
Maður fær hreinlega aulahroll!!
25.08 2009 kl.15:56
Slóð
Ja hérna,, þetta á eftir að verða okkur íslendingum dýrt,, því það er líklega sama sagan í gangi í Reykjavík en komst bara ekki í fréttir,,
Þessir útrásargæjar og meðreiðar sveinar eru enn að vaða uppi og þjóðin horfir getulaus á en stjórnmálamenn líta undan,,
25.08 2009 kl.16:51
Slóð
Gætu ekki þessir lögmenn fengið vinnu hjá sérstökum saksóknara ? Mér sýnist vera jafn mikill ákafi hjá þeim í að ljúka málum
25.08 2009 kl.17:07
Slóð
Er lífeyrissjóðurinn ekki búinn að fá sér aðra lögmannsstofu til fara í mál við aulana á hinni ?
Auðvitað kemur lögmannsstofan þssum gjörningi á einhver annan !!!
25.08 2009 kl.17:33
Slóð
Ábyrgð þessara stjórnenda er mikil, það höfum við sannreynt á launagreiðslum til þessara manna, en þegar á hólminn er komið er hún engin og þeir mega svínast með lífeyrisgreiðslur okkar.
4.000.000.000 tapast og enginn ábyrgur hjá lífeyrissjóðnum. Bara hærri laun til þeirra rétt eins og bankastjórnendanna.
25.08 2009 kl.17:50
Slóð
Um 100 þúsund krónur á hvern sjóðsfélaga, fyrri helmingurinn tapast vegna þess að fjárfest var í Straumi og sá seinni vegna klúðurs við kröfulýsingu. Viðvaningahátturinn í lífeyrissjóðskerfinu er ótrúlegur.
25.08 2009 kl.19:17
Slóð
So@15.39 þú þarft að lesa betur því ég sagði hvergi að starfsmaður á þessari stofu hafi verið brotlegur eða nokkur hafi verið brotlegur eða misnotað nokkuð yfirleitt.
Ég sagði að þessari stofu auk Ríkislögreglustjóra hafi verið sigað á þá sem áttu að hafa gerst brotlegir í þessu máli.
Það er svo skáldlegt að þessir varðhundar Glitnis hafi síðan skitið svona svakalega í buxurnar fyrir hönd lífeyrissjóðsins.
25.08 2009 kl.20:10
Slóð
Íbúðalánasjóður tapaði 7 millljörðum ca. á Straumi!
25.08 2009 kl.23:09
Slóð
Lögrfæðingar hvað??? þeir virðast geta haft hlutina eins og þeim sýnist, bullað eitthvað sitt á hvað,,, ég hef enga trú á þessu fólki, það virðist enginn bera ábyrgð á sínu
26.08 2009 kl.07:14
Slóð
Sammála Elli kellingu
26.08 2009 kl.10:56
Slóð
Laga stærsta krafa sem Lögmannsstofan hefur fengið til innheimtu og þeir gleymdu henni, alzheimer þarna á ferð ?, veit Borgarflokkurinn af þessu.
26.08 2009 kl.12:24
Slóð
Eru ekki lögmenn með ábyrgðartryggingar eins og ýmsar aðrar stéttir og samkvæmt lögum, verða þeir ekki að greiða þetta sjálfir.
Taxtinn er mjög hár þar sem þeir eru með langskólamenntun og bera mikla ábyrgð..
Eru fjölmiðlamenn með alzheimer þegar þeir fjalla um svona fréttir, hvar er ábyrgð lögmanna ????? hver er fréttin ???