Innlent - þriðjudagur - 25.8 2009 - 06:18

Fé gamla Landsbanka sem átti að greiða niður Icesave-skuldir gufar upp hjá auðmönnum

landsbankinn31.jpgDV segir frá því í dag að gera megi ráð fyrir að eignir gamla Landsbankans, sem nota á til að greiða niður Icesave-skuldirnar, muni rýrna um 60 milljarða króna hið minnsta í ljósi nýlegra frétta um afskriftir á lánum sem skilanefnd Landsbankans þarf að framkvæma hjá tveimur viðskiptamönnum bankans.

Í síðustu viku var greint frá samkomulagi sem langt var komið á milli skilanefndar Landsbankans og Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. Það samkomulag snýst um að skilanefndin afskrifi á fimmta tug milljarða króna af skuldum Magnúsar og eignarhaldsfélaga hans við bankann.

Í DV í dag segir að skuldir Magnúsar Þorsteinssonar við gamla Landsbankann nemi um 24 milljörðum króna og trúlega eigi Magnús litlar eignir upp í kröfurnar, en Magnús var úrskurðaður gjaldþrota í sumar.

Ef þessar afskriftir eru settar í samhengi við áætlað verðmæti eignasafns Landsbankans sjáist að ef tekist hefði að innheimta þessar kröfur hefði það getað aukið virði eigna bankans um 15%, en þær eru nú metnar á 1.100 milljarða króna. Það er sú tala sem byggir á mati skilanefndar Landsbankans frá því í lok apríl.

30 ummæli

Rita ummæli

Gs
25.08 2009 kl.07:06

Hvar er umfjöllunin um 100 miljarða skuld Baugs? Hvar er umfjöllunin um Stoðir? Hvar er umfjöllunin um öll félögin sem fengu greiðslustöðvun í upphafi kreppunnar og eigendur hafa fengið að hagræða í í 10 mánuði áður en til gjaldþrots kemur?

Hvar er umfjöllunin um eignarhald á fjölmiðlum Baugssamsteypunnar og hvernig það er til komið?

Hvar er umfjöllunin um hvað varð af Icesave peningunum?

Við vitum að Jón Ásgeir hafði 50 000 manns í vinnu í bretlandi og skuldar Landsbankanum að minsta kosti 100 miljarða.

Allt Baugsgjaldþrotið er án veða. Það sem bitastætt er í samsteypunni er komið í önnur félög. Án veða þýðir afskrift skulda.

Halda menn að ísland hafi trúverðugleika í útlöndum á meðan ekki er tekið á aðalfólkinu? Þeim er haldið í pólitisku skjóli og skjóli fjölmiðla okkar íslendinga sem þeir hafa eignarhald á.

Mér finnast svona fréttir litlar fréttir áður en aðalvíkingurinn og hans pólitisku sambönd eru gerð upp. Fyrr verður ekki sátt í landinu.

BB
25.08 2009 kl.07:09

“Betra fólkið” fær að fara fyrst í björgunarbátana og svo getur liðið á þriðja klassa séð um sig sjálft þegar skútan sekkur. Hefði verið betra eftir á að hyggja að ekki kaupa miða þessa ferð :)

En ekki hafa áhyggjur, þið þriðjuklassa farþegar getið óhullt flutt til hinna norðurlandanna og þar er bannað með lögum henda ykkur nöktum út á götu bara vegna þess að einhver bankamafía vill það! Bara ekki ganga um götur stokhólms, kaupmannahafnar eða osló með íslenska gjaldþrotaflaggið gargandi ættjarðarsöngva, allt annað gengur!

Halldór Á
25.08 2009 kl.07:20

Góð samlíking hjá BB við björgunarbátana.

Er Ísland ekki eins og Titanic? Skipstjórinn (ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og síðan Samfylkingar) hlustaði ekki á varnaðarorð um ísjaka (á erlenda sérfræðinga sem sáu ruglið). Skipið fór að sökkva (hrunið) og aðalsfólkið á fyrsta farrými (stóru skuldararnir, útrásarvíkingarnir) höfðu forgang í björgunarbátana (skuldir afskrifaðar).

Almenningi á öðru og þriðja farrými (okkur) var sagt að éta það sem úti frýs og bjarga okkur á sundi. Við óskuðum eftir að fá björgunarvesti, en var sagt að útgerðin hefði ekki efni á þeim, vegna þess að allir peningarnir höfðu farið í björgunarbátana.

Valkosturinn sem við höfum er að reyna að svamla, þótt hafdýpið virðist endalaust, eða bara láta okkur drukkna.

ES
25.08 2009 kl.07:24

GS. Við vitum þó að fé sem Jón Ásgeir fékk gefins fer í rekstur á blöðum og sjónvarpi. Einhver þarf að matreiða bullið fyrir hann. Það gufar ekki upp.

Gs
25.08 2009 kl.07:32

ES það er ótrúlegt að sjá hið sterka samband milli æsifrétta DV um einhvern sem ekki er á baugslínunni og þess að nýr skandall kemur upp í baugsveldinu. Núna er það gjaldþrot baugs sem nemur uþb Icesave skuldunum.

Það er fullkomnlega óþolandi að menn sem steyptu þjóðinni í þessar skuldir ráði umræðunni í landinu, séu með því í pólitisku skjóli og geti magnað upp moldveður hvenær sem passar þeim til að dylja eigin slóð.

ÞEIR ERU ENN MEÐ LYKLAVÖLDIN Í ÞEIM FYRIRTÆKJUM SEM SETTU LANDIÐ Á HAUSINN!

anna benkovic
25.08 2009 kl.07:33

Væri ekki nær að nota þessar afskrifti í heimilin? Fókið í landinu myndi endurheimta réttlætiskendina.

ES
25.08 2009 kl.07:41

Já, GS.

“Halda menn að ísland hafi trúverðugleika í útlöndum á meðan ekki er tekið á aðalfólkinu? Þeim er haldið í pólitisku skjóli og skjóli fjölmiðla okkar íslendinga sem þeir hafa eignarhald á.”

Þetta er svo innilega rétt hjá þér. Þetta blasir við öllum nema fjölmiðlamönnum og stjórnmálamönnum.

Magnús Jónsson
25.08 2009 kl.08:02

Ísland hefur engan trúverðugleika erlendis.
Þannig á það eftir að verða um ókomin ár, sama hvað men þykjast vera að rannsaka og gera hér.
Svo kemur nú fram að ekki séu til aurar til að rannsaka meinið.

Sér er nú hver forgangsröðin þegar að alþingismenn hafa sérstakann mann í að bera töskuna fyrir sig.

Zeitgeist
25.08 2009 kl.08:15

Haft er eftir Jóni Ásgeiri sem segir að menn séu heppnir ef eignasafnið sé 10% í Landsbankanum. Ætli að Gög þekki ekki Gokke best?

Glaumur
25.08 2009 kl.08:15

Skuldir Baugs eru eignir Landsbankans í UK.

Jón Ásgeir er veð landsmanna fyrir 700 milljarða skuldum IceSave.

Guð hjálpi Íslandi.

ES
25.08 2009 kl.08:34

http://eyjan.is/silfuregils/2008/11/03/365-og-raudsol/

Hver er rekstrarkostnaðurinn við alla þessa miðla? Af hverju þarf Jón Ásgeir ekki að borga af sínum lánum? Getur hann talist eigandi? Hvaða hagsmuni hefur þjóðin af því að halda uppi miðlum sem rembast við að flytja ekki fréttir af svokölluðum eiganda sínum? Af hverju láta stjórnvöld þetta viðgangast?

Ásdís
25.08 2009 kl.08:42

Tel þetta ekki vera alveg svona einfalt. Það að féð hafi gufað upp.

Menn eins og Björgólfur Thor fá fé í gegnum röð fyrirtækja, fela slóðina á leiðinni með hjálp klókra lögfræðinga. Nota síðan þetta sama fé til þess að fjáfesta í nýjum fyrirtækjum. Þess vegna getur B.Thor verið rólegur með fyrirtæki sín eins og CCP og hvað þau öll heita.

Marinó G. Njálsson
25.08 2009 kl.08:44

Er ekki hér um misskilning að ræða? Það voru eignir Landsbankans í erlendu dótturfyrirtækjunum og útibúinu í London sem áttu að ganga upp í Icesave, ekki eignir á Íslandi. Þannig mun hugsanlegt tap Landsbankans vegna Baugur Group bitna á Icesave, en ekki tap vegna Baugs.

Valur1
25.08 2009 kl.08:51

Hvenær eru næstu forsetakosningar????

Váli
25.08 2009 kl.08:53

Marinó: Ég tek það fram að ég hef ekki lesið fréttina hjá Dagblaðinu en lánabók Landsbankans er ca. 20% til Iceland sem er m.a. í eigu JÁJ og mér skilst að 40-50% séu asset base lending sem eru veð í lagerum og framleiðslutækjum. Geri ráð fyrir að það sé í einhverjum druslum sem JÁJ selur. Mér finnst það þurfi að skoða Baug, Baug group, Haga, Gaum og hvaða ónefnu sem þau fundu í samhengi. Þessu var velt eins og pizzudegi á milli fyrirtækja og landa þannig að ég myndi ekki líta á neitt sem heilagan sannleik í þessu.

Valur1
25.08 2009 kl.09:01

Er ekki tími Óla Ragg að renna út???
Svo við getum farið að gera alvöru þjóðarhreinsanir hérna.
Jóns Ásgeirs smígur á milli laga og reglugerða eins áll og notar svo sína fjölmiðla til að afvegaleiða fólkið í landinu.
Það þarf að fara að ná tak á honum,enn ekki öfugt.

Guðbjörg
25.08 2009 kl.09:03

Vill ekki Gordon Brown taka High street of London upp í skuldir á Icesave ? Það þyrfti bara að hóta honum að loka öllum verslununum í stað þess að afskrifa alla þessa miljarða á Jón og leyfa honum að halda áfram þessu rugli sínu sem hann hefur greinilega ekkert efni á.

Tek undir með það sem sagt er hér fyrir ofan,, afhverju ræðir DV ekki neitt um allar skuldir Baugs,316 miljarða og afskriftir á 365, 11 miljarðar, 90 miljarða tap FLgroup 200 miljarða tap í stoðum, ásamt fleiri fyrirtækjum?

Ef DV er með Lánabók Landsbankanns af hverju birta þeir ekki skuldir Baugs, og Stoða í stað þess að henda skít í einhverja litla kalla þarna í bankanum?

Af hverju var engin umfjöllun í Kastljósi,,, um skulasöfnun Baugs? Eru stjórnendur þar líka innviklaðir í Baugs mafíuna ásamt dómstólum og Samfylkingunni?

Það eru mörgum spurningum ósvarað og það verður ekkert gert í þessu fyrrr en einhver eða einhverjir nýir einstaklingar af götunni stofni dagblað.

Marinó G. Njálsson
25.08 2009 kl.09:24

VÁLI: Ef við skoðum gögn frá Kaupþingi, þá urðu engin lán eftir í gamla bankanum sem veitt voru fyrirtækjum með íslenska kennitölu. Hafi sama fyrirkomulag verið viðhaft hjá Landsbankanum, þá eru skuldir innlendra viðskiptamanna (eigenda og einkavina) hluti af lánasafni NBI (nýi Landsbankinn), en ekki gamla bankans. Afskrftir á lánasafni NBI hefur vissulega einhver áhrif á upphæð skuldabréfsins sem nýi bankinn lætur þann gamla fá, en fyrst og fremst áhrif á framlag ríkissjóðs til NBI. Þessar afskriftir gætu því lagst á skattgreiðendur en hafa ekki áhrif á greiðslur vegna Icesave.

Nú er ég að gera ráð fyrir að skilin milli gamla og nýja Landsbankans séu framkvæmd á sama hátt og skilin milli gamla og nýja Kaupþings. Það gæti vissulega verið röng ályktun.

GH
25.08 2009 kl.09:31

Gleymum ekki frægu DV viðtali við Magnús Kristinsson.

Það sagði hann fjálglega:
“Allt sem ég snerti verður að gulli!”

Nú getur þjóðin bætt við:
“Allt sem hann segir verður að bulli!”

Sigurður
25.08 2009 kl.10:07

Óla grís klappstýru og verndara ræningjanna frá TORTULA úr embætti með
góðu eða illu.
Munið eftir því hvernig fór fyrir góðvini hans Cjásesku í Rúmeníu ?
Skotin ein og hundar í brynvörðum bíl af eigin fólki.

GG
25.08 2009 kl.10:11

Þessir menn hljóta að verða gerðir gjaldþrota eins og annað fólk sem getur ekki borgað. Þjóðin mun aldrei sætta sig við að þeir fái afskrifaðar skuldir og haldi sínum fyrirtækjum. Það nær ekki nokkurri átt.

Það þarf að efla rannsóknir og fá meiri mannafla í þau verk. Svo er einkennileg þessi þöggun í sambandi við skilanefndirnar. Af hverju starfa þær ekki fyrir opnum tjöldum? Og hvenær verða sett lög sem banna kennitöluflakk?

Ísland er ömurleg spillingarstía. Eru stjórnvöld virkilega að kóa með þeim sem hafa steypt landinu í glötun? Það er allt matað ofan í okkur almenning af lélegum fjölmiðlum og það vantar alveg að stjórnvöld komi fram og tali við almenning.

Kastljósviðtal við Jóhönnu um gang mála takk ! Af hverju er sagt að SF sé að tefja rannsókn á hruninu? Vil fá svar við því:

Ómar Torfason, sjþj.
25.08 2009 kl.10:26

@GG - Það situr fast Kastljósviðtalið við Evu Joly á dögunum, þar sem hún sagði að annar stjórnarflokkurinn stæði gegn rannsókn. Aðspurð kvaðst hún ekki tilgreina það nánar - að sinni. Eni - meni - kúaspeni - og það varst þú! Hvor? Gettu! Þú mátt geta tvisvar, fyrra skiptið telst ekki með.

Kolla
25.08 2009 kl.10:37

Góð samlíking BB og Haldórs Á við Titanic. Á fyrsta farrými þess voru líka pólítíkusarnir, ráðherrar og alþingismenn, sem voru svo “forsjálir” að flytja peningana sína á ríkistryggð bréf eða þá til Tortóla.

@GH kl.09:31
“Gleymum ekki frægu DV viðtali við Magnús Kristinsson.
Það sagði hann fjálglega:
“Allt sem ég snerti verður að gulli!”
Nú getur þjóðin bætt við:
“Allt sem hann segir verður að bulli!””

Ef verið er að afskrifa skuldir Magnúsar, geri ég ráð fyrir að búið sé að taka þyrluna, Toyota-umboðið, kvótann, húsið og bílana hans.
Ef ekki; hvaða skilaboð er þá verið að senda fólki sem lenti á vonarvöl vegna HANS OG HANS LÍKA?

Móvinda
25.08 2009 kl.10:57

Og hvað ætlar “Heilög Jóhanna” að gera við svona dæmi?

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/08/25/a_vanskilaskra_i_greidsluadlogun

Að vísu er þessi örugglega ekki “útrásarvíkingur” - og á því tæpast rétt á neinni “sérmeðferð” .. er það...

KK
25.08 2009 kl.11:12

Uppgufun peninga er reyndar þekkt vandamál á Íslandi...

Það er eins og suðumark þeirra sé eitthvað lægra svona nálægt norðurpólnum.

Glaumur
25.08 2009 kl.11:17

Marínó.
Það er hægt að fara í alls konar greiningarvinnu sem byggist á “forsendum” skilanefndanna en það skilar varla neinu nema réttlætingu fyrir lagatæknana. Mergurinn málsins er sá að Sigurjón Árnason og Landsbankinn er aðallánveitandi Jóns Ásgeirs. Landsbankinn rak ekki útibú í Bretlandi - þetta var einn stór pottur sem fjármagni var dælt úr til Baugs, Baugs group, Gaums, Haga, 365, Dagsbrún, Teymi, Stoðir, FLgroup, you name it o.s.frv. Innlán Breta fóru bara í hítina af tærri snilld!

En maður bíður bara eftir staðfestingu þegar lánabækur Landsbankans verða birtar eða þær sóttar til Landsbankans eða skilanefnda. En veð landsmanna vegna IceSave er að stærstum hluta Jón Ásgeir.

hjalli
25.08 2009 kl.11:30

HELVÍTIS FOKKING FOKKKK !!!

SigG
25.08 2009 kl.12:27

Hvert mannsbarn á Íslandi skuldar 1.000.000 vegna gjaldþrots Baugs, finnst ykkur það í lagi. Hvað ætli þær séu ef allt er lagt saman, Gaumur og fl.

Sniðgangið verslanir Jóns Ásgeirs, Hagkaup og Bónus í 1 mánuð hann myndi fljótlega finna fyrir því. Persónulega hef ég getað sniðgengið hans verslanir í nokkur ár og lifi góðu lífi og með góða samvisku.

Í fréttum stöðvar 2 í gærkveldi var hvergi minnst á gjaldþrot Baugs er það tilviljun?

BS
25.08 2009 kl.15:04

Hvenær ætli stjórnvöld átti sig á því að aðeins lítinn hluta Icesave skuldarinnar verður hægt að greiða með eignum Landsbankans, ég giska á 10%.

Og hvenær ætli stjórnvöld átti sig á því að rangt fólk situr í skilanefndunum og að þau eru að gera afdrifarík mistök með því að frysta ekki eignir fjárglæframanna.

Stína
25.08 2009 kl.22:42

BS þú et svarsýnni en ég!!
Ég ætlaði að skjóta á 25 prósent.
Kannski er ég bjatsýn?

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar