Fjárskortur veldur töfum á rannsókn meintra efnahagsbrota útrásarvíkinganna segir í DV í dag.
Niðurskurður hefur verið hjá embætti skattrannsóknarstjóra á þessu ári og í efnahagsbrotadeildinni er glímt við manneklu, en frestun á rannsókn þessara mála gæti haft í för með sér vægari refsinu, ef til refsingar kemur yfirleitt.
Síðastliðin ár hafa sakborningar oft hlotið mildari dóma en ella vegna tafa á afgreiðslu mála, ýmist sloppið við fangelsisdóma sem annars hefðu verið niðurstaðan, eða fengið mildari dóma.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
32 ummæli
Rita ummæli25.08 2009 kl.07:51
Slóð
hvers vegna mannekla núna, borga þeir svona illa?
25.08 2009 kl.08:02
Slóð
Samfylkingin enn og aftur á ferðinni að útiloka rannsókn. Þeir munu eflaust finna ráð til að bjarga sínum á einn veg eða anna. Flokkur sem er á móti rannsókn, á móti Evu Joly, skiptir ekki um skoðun tí svona. Þeir slettu 100 millum sem sýndargreiðslu í þetta fyrir nokkru. Þar með búið.
25.08 2009 kl.08:11
Slóð
“Það er eftir svo litlu að slægjast í búunum!” segja lagatæknarnir.
Réttlætið skiptir ekki máli.
En guð hjálpi þér ef þú stelur hangikjötslæri í Bónus.
Réttarríkið er í rúst eftir Björn Bjarnason.
25.08 2009 kl.08:24
Slóð
Ef samfylkingartruntan sér ekki að sér þá mun almenningur taka lögin í sínar hendur....
Það er allavega talað um það í kringum mig.. Venjulegir fjölskyldufeður sem hafa ekki einu sinni fengið punkt í ökuskirteinið sitt tala svona...
Þá er eins gott fyrir þessa fjárglæpamenn og aðra sem áttu þátt í þessu hruni og spillingu að drífa sig úr landi með sitt hafurtask...
Þegar þú ert með fólk á eftir þér sem er hvorki í vímu eða á öðrum lyfjum þá myndi ég vera drullu hræddur..
25.08 2009 kl.08:33
Slóð
Réttlæti er ekki til í þessu landi nema þá fyrir lýðinn, stjórnmálamenn eru alltof spilltir til að geta tekið á nokkrum hlut enda þessir menn góðir félagar og frændur, mágar eða eitthvað slíkt og því ekki hægt að gera neitt allsstaðar út í heimi væri búið að stinga íslensku stjórnmálamönnum í tuktið og henda lyklinum þeir eru glæpamenn þessa lands.
25.08 2009 kl.08:35
Slóð
Trúir því einhver að þeir sem eru ábyrgir hvað svo sem þeir heita komi til með að sæta refsingu? Þetta er ísland, ekki gleyma því! “gjörendur” sæta ekki refsingu á íslandi, nema kanski það þurfi að koma þeim frá með einum eða öðrum hætti, eins og dæmin sanna ef litið er til síðustu áratuga... OG ÞESS UTAN - það verða hvort eð er allir ósakhæfir bráðum, allt í boði VG :)
25.08 2009 kl.08:40
Slóð
Baugur = 315 milljarða gjaldþrot (sennilega lítið eða ekkert til í búinu)
Stoðir = 220 milljarðar afskrifaðar í nauðarsamningum
Landic Properties = 200 milljarða gjaldþrot framundan a.m.k.
Teymi = 57 milljarða gjaldþrot
Hagar = 55 milljarða skuldir
.þetta gerir cirka 3 millur á hvert mannsbarn á íslandi , allt í boði baugs
Því hefur ítrekað verið haldið fram í fréttum að lánið sé á einum gjalddaga á árinu 2010, en Jón Ásgeir segir það ekki rétt. Hann segir að fjármögnunin sé tvískipt til sex ára. Fyrri hlutinn sé á gjalddaga árið 2011 og sá síðari árið 2014. “Félagið mun standa við sínar skuldbindingar,” segir hann. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun Nýja Kaupþing samt sem áður fylgjast áfram gaumgæfilega með rekstri Haga til að vernda hagsmuni sína.
Í fréttinni segir Jón Ásgeir rekstur Haga ganga vel þrátt fyrir þrengingar í íslensku efnahagslífi. Það sé ekki aðeins matvöruhlutinn sem gangi vel heldur einnig sérvöruverslanir félagsins. “Fyrirtækið er á áætlun og gott betur. Sérvaran hefur gengið mjög vel, ekki síst vegna þess að verslunin hefur færst heim frá útlöndum,” segir hann
25.08 2009 kl.08:45
Slóð
Hvenær eigum við að fjalla um ábyrgð stjórnmála- og embættismanna ?
Aldrei ? Stjórnmálamenn munu koma í veg fyrir að almenningi verði sagt frá spillingu innan stjórnmála - og embættismannakerfisins, og sjá til þess að Landsdómur verði aldrei kallaður saman.
Þetta mun brjóta samfélagssáttina.
25.08 2009 kl.08:51
Slóð
Samfylkingin sér um sína.
Fjöldi þingmanna og ráðherra flokksins þáðu “styrki” af auðmönnum.
Nú er sá tími kominn að skuldin er innheimt.
25.08 2009 kl.09:00
Slóð
@Þór - Mér hugnast Landsréttur og Grágás. Sé samt ekki hvernig því verður við komið með Samfylkinguna við stýrið. VG hefur svo sem engra spillingarhagsmuna að gæta, en vissulega er mjúkur og hlýr fjármálaráðherrastóllinn að veði. Kannski vakna þeir. Borgarahreyfingin virðist heillum horfin.
25.08 2009 kl.09:06
Slóð
“One RING to bind them ALL - one RING to RULE them all” - Toxit Baugur, geislabaugur....!
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
25.08 2009 kl.09:34
Slóð
@ Rósa
Þú segir að Samfylkingin sjái um sína. Ef þingmenn SF hafa þegið styrki frá auðmönnum þá mun það koma í ljós. Þeir þingmenn sem hafa þegið styrki frá auðmönnum hvar í flokki sem þeir eru þurfa að stíga fram og viðurkenna það.
Stjórnmálamenn hljóta að átta sig á því að mikil reiði er í þjóðfélaginu og allar tafir á rannsókn hrunsins munu aðeins auka á reiðina. Allar afsakanir um að ekki sé til fjármagn til að fjölga fólki hjá skattrannsóknarstjóra og efnahagsbrotadeild eru bara kjaftæði. Það mun aldrei verða sátt um neitt hjá þjóðinni ef þetta hrun verður ekki rannsakað almennilega og klárað.
Ég vil að þingmenn og ráðherrar SF stígi fram og útskýri af hverju það sé talað um að SF sé að tefja fyrir rannsókninni. Er þetta satt eða logið?
Svar óskast.
25.08 2009 kl.09:44
Slóð
Ekki málið, ég skal vinna þarna fyrir 100 þúsund á mánuði, kann á tölvu og Excel og skal vinna fríkeypis yfirvinnu og hella upp á kaffi þegar þess er þörf.
25.08 2009 kl.09:45
Slóð
Samspillingin sér sko um sína... það er orðið kristaltært...
Ég hitti móður þriggja barna í verslun í gær.. hún var að kaupa skólavörur handa börnunum sínum. - í fyrra borgaði hún 7.000 kr. fyrir skammtinn og taldi sig hafa verið að kaupa svipað magn af vörum og í fyrra...
Hún var búin að greiða tæpar 15.000 krónur og var ekki búin - því hún þurfti að kaupa teikniblokkir og fleira sem skólinn hafði skaffað - en vegna ástandsins þurfa börnin að skaffa með sér núna það sem var talið sjáflsagður hlutur í fyrra og þar áður að skólinn sæi um...
Takk útrásarvíkingar... og SAMSPILLINIGIN.. ekki einu sinni erum við þjóðin neydd til að borga skuldir ykkar aumingjanna... heldur líka er búið að færa menntunarstig barna okkar niður á plan sem ríkti hérna um og uppúr 1900....
25.08 2009 kl.09:46
Slóð
@GG - Kannski verðum við að viðhafa sama hátt á og þegar vopnaðar sveitir skila vopnum í skiptum fyrir sakaruppgjöf? Með því móti væri m.a. hægt að rekja slóðir, endurheimta fé uppí Icesave o.fl. Það verður að eyða óvissu í þessu samfélagi. Óvissan skrælir beinin. Reiðin sýður undir, skemmarverk eru og verða unnin, okkur borgurunum til aukinna útgjalda. það verður að komast á friður. Hugmyndin með einhvers konar Landsrétti væri að fá fram játningar/viðurkenningu á sök með sakaruppgjöf í kjölfarið. Sakaruppgjöf án endurheimtingu fjár er sem stendur vafaatriði.
25.08 2009 kl.10:02
Slóð
SAMSPILLING OG JÓHANNA.
-það er fylgst með ykkur.......við vitum að þið eigið hagsmuna að gæta sem Baugs-Flokkur.
Hafið þið svo mikið að fela að þið skerið blygðunarlaust niður fjármagn til rannsókna.........er það virkiega svo?
Ykkur hefur verið komið frá völdum einu sinni ....og það er hægt að gera það aftur.........munið það!
25.08 2009 kl.10:04
Slóð
Og gerum okkur grein fyrir því að STYRKIRNIR til stjórnmálaflokkanna eru örugglega partur af skuldunum sem við erum að borga...
Ég geri ekki ráð fyrir að þessir plebbar hafi átt fyrir styrkjunum til stjórnmálaflokkanna frekar en öðru sem þeir spreðuðu með...
25.08 2009 kl.10:08
Slóð
Fjárskortur er engin afsökun !
Það vera læti í vetur ef ekki fer að glytta í réttlæti !
25.08 2009 kl.10:53
Slóð
Það verður ekkert réttlæti hér á landi - nema þegar samlokuþjófar og aðrir slíkir eiga í hlut - meðan Samfylkingin ræður ferðinni.
25.08 2009 kl.11:39
Slóð
En er ekki nóg að biðjast afsökunar? Ef ekki eru til peningar í rannsóknir vegna meints bankahruns, þá verður bara að hafa það! Þeir óánægðu geta bara farið úr landi!
25.08 2009 kl.11:42
Slóð
hvað helv rugl er þetta, er fólk bara ekki í lagi það er verið að ræna öllu af þjóðinni og það er bara látið gerast, þetta er svo óþolandi að ég er farinn að vona að þessir málaragæar fari að gera eitthvað rótækara en að sletta málingu, það er greinilegt að við íslendingar eigum að fara að læra af líðnum í Frakklandi hvernig á að vera með alvöru mótmæli !!!
helvítis fokking fokk
25.08 2009 kl.11:46
Slóð
Það væri svo sem eftir því að þeir myndu sleppa allt eins á þessu landi Steingrímur joð ónýtur
25.08 2009 kl.11:55
Slóð
Eitt af fyrstu embættisverkum Björns Bjarna (ef ekki það fyrsta) eftir hrun, var að lækka fjárframlög til efnahagsbrotadeildar! Eru þeir enn að moða úr pakka Björns?
Um fyrningu brota sem tengjast hruninu, verða að gilda aðrar reglur en í almennum málum. Það er engan veginn boðlegt að stórglæpamenn njóti góðs af hægagangi dómsmála sem stafar af fjárskorti ;/ !
25.08 2009 kl.12:10
Slóð
Peningarnir sem þessir þjófar stálu eru einhvers staðar. Það er eitthvað gruggugt við að það skuli ekkert vera reynt að hafa upp á þeim.
25.08 2009 kl.12:25
Slóð
thá verdur tehtta bara gert upp á gamla mátann
25.08 2009 kl.12:32
Slóð
Það er ekkert mál að fá erlent lán í þetta verkefni, en áhuginn er ekki fyrir hendi. Einfalt!
Hér verða aldrei neinir dæmdir.
25.08 2009 kl.13:30
Slóð
@Kolla - Björn Bjarnason, tjáði mér skjst., hélt því blákalt fram á Bylgjunni fyrir margt löngu en þó eftir hrunið, að ekki yrði gripið til víðtækra rannsókna vegna þess hversu djúp yrði farið í saumana á hlutunum. Guðni Ágústsson vildi í sama viðtali kalla til erlenda sérfræðinga, LSE þmt.
Skerðing á fjármunum til rannsókna bæði af hálfu Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar ætti ekki að koma neinum á óvart.
25.08 2009 kl.14:09
Slóð
@ Ómar Torfason, sjþj.
25.08 2009 kl.13:30
Björn sagði (þegar gengið var á hann) að hægt væri að koma á fót nefnd sem rannsakaði hvort grunur væri um glæp! Hljómaði mjög sannfærandi....not!
Það er rétt, það stóð aldrei til hjá SjálfstæðisFLokknum að rannsaka eitt eða neitt, enda eru þeir svo stórlega flæktir í þeirri draugadræsu að það væri dauðadómur FLokksins. Engeyjarættin er sömuleiðis stórskuldug.
25.08 2009 kl.14:25
Slóð
Mér hefur verið kennt um að taka þátt í meintu góðæri, að hafa keypt mér flatskjá og kannski skoppið 2-3 til útlanda síðan 2005 og meira að segja að hafa tekið börnin mín með mér.
Þar sem ég á ennþá nokkrar krónur eftir, þó sparnaðurinn rýrni með hverjum deginum sem líður vegna lydduskapar stjórnvalda er ég samt tilbúinn að leggja ríkinu lið.
Ég er tilbúinn að borga nefskatt ca. þá upphæð sem ég borga til að horfa (ekki horfa) á RÚV, til að þessir menn verði sakfelldir fyrir grófa árás á allt sem íslenskt er. Þessir menn hafa logið að okkur með þessum skelfilegu afleiðingum sem við stöndum frammi fyrir núna, með stöðu fyrirtækja, tekið stöðu gegn ísl. krónunni, þeir hafa stundað innherjaviðskipti o.fl o.fl.........
25.08 2009 kl.15:01
Slóð
@Kolla - Eitthvað heyrst frá Evu Joly þessa dagana? Það þarf garnakúst á við hana að moka skítnum út. Hér er allt innviklað í embættismannaspillingarkerfið, þá helst VG með þokkalegt á hreinu en getulítill flokkur. Keyrði jeppa um daginn, Nissan Patrol. Mikill hávaði, lítll kraftur. Bílinn nefndi ég Steingrím J. Sigfússon. Þráinn þversumstæði blokkaði Borgarahreyfinguna. Hún virðist hafa kafnað.
Það er fátt til varnar. Vil fara suður-afrískuleiðina. Post-Apartheit.
25.08 2009 kl.15:16
Slóð
Hefur eitthvað heyrst í sambandi við Serious Fraud Office í Bretladni og tilboð þeirra um að koma að rannsókn hér ?
Það verður að gerast, þó BB sé á móti því.
25.08 2009 kl.22:24
Slóð
Ég held að þetta endi með skelfingu og látum ef stjórnvöld fara ekkert að gera sannanlega í alvöru