Innlent - þriðjudagur - 25.8 2009 - 08:31

Ross Beaty reynir að fá Steingrím til að hætta við áform um að ríkið eignist hlut OR í HS Orku

rossjbeaty.jpgKanadíski athafnamaðurinn Ross J. Beaty mun í dag eiga fund með Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðhera til að freista þess að fá ráðherrann til að falla frá áformum um ríkið kaupi hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Ross er forstjóri og aðaleigandi fyrirtækisins Magma Energy sem vill kaupa hlutinn og hefur uppi stórhuga áætlanir um jarðhitaframkvæmdir á Suðurnesjum. Er rætt um fjárfestingar fyrir um 75 milljarða króna í því sambandi. Magma á þegar hlut í HS Orku, en vill eignast allt að 40% á móti Geysi Green Energy.

Vaxandi andstaða er við frekari kaup Magma á hlutum í HS Orku. Hefur verið boðað til borgarafundar um málið í Grindavík síðdegis. Andstaðan er einkum innan Vinstri grænna, en þó er einnig einhver óánægja innan Samfylkingarinnar. Þannig hefur þingmaður flokksins, Ólína Þorvarðardóttir, gagnrýnt samninginn við Magma og sagt að erlent stórfyrirtæki sé að reyna að ná undir sig verðmætum nýtingarrétti auðlindar á brunaútsölu.

81 ummæli

Rita ummæli

þór
25.08 2009 kl.08:39

Pólitísk afskipti af eignarhaldi á bönkunum komu okkur heldur betur í koll.
Hvers vegna viljum við endilega endurtaka sama leikinn aftur með pólitískum afskiptum af orkufyrirtækjunum ?

Örn
25.08 2009 kl.08:44

Ég spái því að eftir þennan fund falli Steingrími J. Sigfússyni frá áformum sínum um ríkið kaupi hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku.
Steingrímur er þekktur fyrir að standa ekki við neitt af því sem hann seigir.
Hvað varð um verðtrygginguna burt?
Hvað varð um skjaldborgina sem átti að slá utan um heimili landsmanna?

BB
25.08 2009 kl.08:48

Þór 0839 - “VIД viljum ekki neitt! Það eru þeir sem kusu vinstri græna sem vilja! Og nýja ísland er í boði þeirra, með ríkisstyrktum terroristum sem heita “”"saving iceland”"” sem koma og “tala” við þig ef þú ert ekki “góður” :) Þannig að þarmeð var útséð um “sprotafyrirtækin” sem áttu að bjarga okkur í framtíðinni, því það er ekki mikil iðnaðarstarfsemi sem félgögum í flokknum (VG) er vel við. Kanski það verði bara eitt stórt SPAAAAAAA

Gunnar Ársæll
25.08 2009 kl.08:51

Þessi maður er economic hitman ef einhver er það.

En munið þið eftir manninum sem var fengin til að leika mikin áhuga sinn
á að kaupa Morgunblaðið. Hann ætlaði að koma og kaupa mikið meira en
hefur ekki sést meira. Það var gjaldþrota EKKI miljónamæringur.

heiddal
25.08 2009 kl.08:56

Með hverju á þá að borga Icesave og AGS lánin? Stóð ekki til að borga þau niður með arði af orkusölu.

thorg
25.08 2009 kl.08:57

Ef við getum komið í veg fyrir að þessi karakter eignist orkuveituna okkar þá er það gott mál. Hvað í ósköpunum ætlast einhver útlendingur annars með orkuver staðsett á íslandi. Getur einhver svarað því hvernig það er okkur til hagsbóta?

Það blikka viðvörunarljós út um allt. Við höfum jú séð þetta áður er það ekki?

thorg
25.08 2009 kl.08:59

@heiddal

Maður selur ekki mjólkurkýrnar sínar og þetta er reyndar meira svona eins og að gefa gullkálfinn sinn.

Váli
25.08 2009 kl.09:00

Á að selja orkuna og vatnið til þess að geta endanlega fallið á hnén og beðið fólk um að gefa okkur að drekka? Eru Íslendingar í skammtímagræðgi sinni haldnir sjálfseyðingahvöt? Bjarni Ármannsson, Árni Sigfússon, Hannes Smárason, Ólafur Jóhann Sigurðsson, er græðgi ykkar engin takmörk sett. Hvar er föðurlandsást ykkar? Þið vekið viðbjóð hjá fólki.

Jósí
25.08 2009 kl.09:00

Þeir þurfa að fá 70% af kaupverðinu að láni hjá orkuveitunni, kúlulán til 7 ára, hvernig hafa þeir efni á því að fjárfesta fyrir 75 milljarða á næstu árum?
Er ekki eitthvað bogið við þetta, á nú að fara að taka snúning á okkur eina ferðina enn.

Joi
25.08 2009 kl.09:02

Blákalt mat varðandi Steingrím J. í þessu máli er að býður Milton Friedman bæði orkuveituna og rörin sem flytja vatnið niður til suðurnesja til sölu á slikk. Steingrimur er nefninlega haldinn þeirri maníu að gera alltaf öfugt við það sem hann segir. Hann er ekki mjög orðheldinn maður Steingrímur J.

Icesave málið sýnir hvar þessi náungi stendur. Var fyrst á móti icesave, síðan vildi hann samþykkja hann án skilmála, núna er hann kominn inn á skilmála..... hvað gerist næst er ekki auðvelt að segja. Málið tekur sífellt nýja stefnu í hans höndum. Þannig er það með mörg mál sem hann kemur nálægt. Hann gæti meira segja tekið upp á því að hætta við að fara með ruslið út í tunnu fyrir samfylinguna, og ákveðið að fara bara með ruslið í vinnuna. Kæmi ekki á óvart miðað við það sem á undan er gengið!!!!

ES
25.08 2009 kl.09:11

Já, það verður fróðlegt að sjá hvernig Steingrímur mun reyna að matreiða það ofan í fólk að hann hafi ekki getað hafnað þessu góða tilboði Ross Beaty.

Námsmaður erlendis
25.08 2009 kl.09:17

Hælbítar og úrtölu aum.... Það er óendanlega vesælt að hlusta á ykkur, Steingrímur er af heilum hug að reyna að moka út skítnum sem safnast hefur fyrir á 18 árum. Og þið grípið upp einhverja frasa sem þið hafið heyrt þessa aumu stjórnarandstöðu nota um að Steingrímur sé ekki maður orða sinna. Það er það eina sem þeir finna á hann, hann er ekki að gera rangt, nei hann er bara ekki að gera eins og hann sagðist ætla að gera.

ER ÞAÐ EKKI STÆRSTA HÓLIÐ Í ÞVÍ FÓLGIÐ AÐ FRAMKVÆMDIR OG GERÐIR FJÁRMÁLARÁÐAHERRA ERU MIKILVÆGARI EN HELDUR EN PERSÓNULEGIR HAGSMUNIR ÞESS SEM STARFINU GEGNIR. ERUM VIÐ EKKI BÚIN AÐ FÁ NÓG AF HINU?????? EINKAVINAVÆÐINGUNNI OG FLOKKURINN FRAMAR HAGSMUNUM ÞJÓÐARINNAR

silo
25.08 2009 kl.09:19

Hvað með að Steingrímur selji honum Íslandsmið með einu góðu kúluláni til 25 ára.? Þetta virðist frekar viðfeldinn náungi. Þá væri Steingrímur a.m.k. búinn að standa við kosningaloforðið um að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu! Við fáum örugglega vinnu hjá þessum kanadíska. Er hann ekki af vestur-íslensku kyni?

Guðrún Hlín
25.08 2009 kl.09:20

Já Jósí. það er líka með þessi 70% kúlu lán á 1.5% vöxtum með veði í bréfunum sjálfum. Þetta er svona 2007 tilboð þegar þjóðin var með enn með löngu asnaeyrun.Verjum eignir okkar svo framtíð barna okkar verði ekki svartari en hún þegar er.

GG
25.08 2009 kl.09:21

Við eigum ekki að selja auðlindir okkar !

ES
25.08 2009 kl.09:26

Það er það eina sem þeir finna á hann - að hann sé ekki maður orða sinna.

Reiður
25.08 2009 kl.09:28

Þór
Vilt þú skýra málið örlítið betur?

el_magnifico
25.08 2009 kl.09:29

“70% kúlu lán á 1.5% vöxtum með veði í bréfunum sjálfum”

Þarf að segja meira ?

Jú reyndar, það að samningar af þessu tagi eru yfirleitt til 10-20 ára en ekki 2×65 ára fyrir klink-afnotagjald. 30 og eitthvað milljónir er ekki einu sinni nóg fyrir 2 range rover.

thorg
25.08 2009 kl.09:29

Hvet alla til að lesa grein Láru Hönnu um málið

http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/936786/

Ólafur
25.08 2009 kl.09:40

Er ekki eitthvað að þeim í Grindavík, af hverju seldu þeir simm hlut í HS það kom þessari vitleisu af stað. Þegar einhver selur sína eign getur sá hinn sami ekki ætlað að stjórna hvað verður um hana.

ES
25.08 2009 kl.09:56

Rétt hjá þér Ólafur. Veistu hver ber ábyrgð á sölunni í Grindavík? Varla Árni Sigfússon í Keflavík?

http://www.grindavik.is/v/3496

KVERÚLANTINN
25.08 2009 kl.09:57

Nöfn þeirra stjórnmálamanna sem framkvæma þann gjörning að selja útlendingum nýtingu auðlinda þjóðarinnar - verða vel geymd - því þau nöfn munu að öllum líkindum fara í sögubækurnar á MJÖG neikvæðan hátt.

Gætið að hvað þið eruð að gera núna, því með þessum athæfi bætist ofaná svik og klyfjar.............það að ræna fólkið í landinu VONINNI......og það væri kannski alvarlegast af öllu i þessu gjörningaveðri sem landið er í .

KVERÚLANTINN
25.08 2009 kl.09:59

Á VON UM BETRI TÍÐ .........verður aldrei settur verðmiði.

Gætið að þvi stjórnmálamenn.

HG
25.08 2009 kl.10:03

Steingrímur nú reynir á hversu megnugur og marktakandi
stjórnmálamaður þú ert,

ég hvet fólk til að lesa bloggið hennar Láru Hönnu Einarsdóttur

http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/936786/

Hvað vitum við annars um þennan Ross J. Beaty ?

Orðlaus
25.08 2009 kl.10:07

Það sér það hver heilvita maður að þetta er algjört rugl. Ekki þörf á að eyða fleiri orðum í það.

AB
25.08 2009 kl.10:07

Ef Steingrímur klikkar núna þá eru VG endanlega búin að vera.

SG
25.08 2009 kl.10:17

Er innilega sammála AG kl. 10:07 það hefur enginn leyfi til að selja eigur allra íslendinga, við getum ekki komist út úr okkar vandamálum ef við látum frá okkur það dýrmætasta sem við eigum.

Móvinda
25.08 2009 kl.10:18

Nú er komið að því... “Þistilfjarðarhagfræðin (SJV)” á eftir að koma eftir smá “leiksýningu” .... og segja okkur að ... ekkert sé hægt að gera í málinu... við erum bara “neydd” til að selja...

Árni Páll - Össur og fleiri ráðherrar stíga núna örugglega á stokk og garga á okkur landsmenn .... að AGS heimti að við minnkum vergar landsskuldir með því að selja útlendingum auðlindirnar....

Viskíprestur
25.08 2009 kl.10:20

Þarna er kominn enn einn flassguðjóninn, maður sem kemur sem frelsandi engilll en er með rauðar klærnar faldar bakvið vængina.

,,Ég mun fjárfesta mikið í framtíðinni og bjarga ykkur dálítið ef ég fæ bara að kaupa oggulítinn hlut í HS-orku,” segir hann og vonast til að geta stungið stórutánni innfyrir dyrnar, bara til að geta síðan spennt upp hurðina alveg og setið einsog gamaldags blóðsuga á landinu. ,,Hross Joðbítíll heiti ég, og ég mun veita ykkur gull og græna skóga... Jájájá, bara að skrifa undir, það þarf bara smá blek og ég mun frelsa ykkur dálítið.”

BBB
25.08 2009 kl.10:21

Erlend fjárfesting hraðar uppbyggingu. Ef við notum innlent fé frá hinu opinbera (sem væntanlega er erlent lánsfé) í uppbyggingu á þessu fyrritæki þá er það fé ekki að fara í önnur verkefni sem flestir telja ofar á verkefnalista hins opinbera. Erlend fjárfesting gerir okkur kleyft að hefjast þegar handa. Tekjur koma fyrr inn í samfélagið sem hið opinbera skattleggur og þar með styrkir það ríkissjóð. Það á ekki að skipta svo miklu máli með eignarhald fyrirtækja ef ríkisvaldið tryggir umgjörð, aðhald og eftirlit. Steingrímur á að vera með hugann við það en ekki að hringja út um allan bæ að skrapa saman peningum í verkefni sem þegar er komið fjármagn í.

Móvinda
25.08 2009 kl.10:29

Sorrí BBB...

Ég kaupi þessa rullu ekki lengur.. - saga þessara fyrirtækja þróast alltaf út í aukin völd og áhrif ... eins og þessi náungi Beaty segir sjálfur... hann elskar að auka hagnnað hluthafanna...

Honum er skítsama um þig og mig... og hættið svo að stilla þessu fjármagnsliði upp eins og þetta séu einhverjir “frelsandi englar” með lausnir á öllum málum....

Þeim er skítsama um “hitt pakkið” eða neikvæð áhrif fyrir aðra... - en hafa hins vegar fínar lausnir fyrir sjálfa sig og sinn hagnað...

BBB.. þú ert væntanlega ekki boðinn í þá einkaveislu hluthafa í Magma Energy...

Halldór Lárusson
25.08 2009 kl.10:30

Endilega seljið auðlindir okkar þannig að við stöndum á endanum uppi slipp og snauð og eigum ekki lengur vatnið sem rennur úr krönunum okkar. Fyrst kreppa, svo selja allt til erlendra aðila á gjafaprís til að fá smá skotsilfur og láta arðræna landið okkar. Mjög gáfulegt...

Hagfræðingur
25.08 2009 kl.10:55

@ Þór kl. 8:39
Orkufyrirtæki og bankar starfa í tveimur gjörólíkum pörtum í hagkerfinu og markaðirnir eru allt öðruvísi uppbyggðir. Orkumarkaðurinn (vatnspípur, rafmagn etc.) er klassíska dæmið um það sem er er kallað “náttúruleg einkokun”. Í slíkum mörkuðum geta fá og jafnvel aðeins eitt fyrirtæki starfað innan markaðarins og það fyrirtæki sem kemst fyrst inn á markaðinn “eignast” hann, þ.e. fær yfirburða markaðshlutdeild. Þess vegna eru markaðir sem falla undir náttúrulega einkokun einkennið oftast nær í eigu hins opinbera (eða reglugerðavarðir út í eitt). Það er hins vegar lítið mál að stofna banka og byrja að veita fjármálaþjónustu til allra. Svo að bera saman orkugeirann og bankageirann er eins og að bera saman svart og hvítt.

Ross er algjört gúrú þegar kemur að orku- og málmageiranum í öllum heiminum. Hann eignaðist á sínum tíma nánast allar silfurnámur í S-Ameríku og þið getið ímyndað ykkur hvað gerðist fyrir þær auðlindir þegar erlent eignarhald komst í þær - arðurinn var að stórum hluta fluttur úr landi. Ef hann kemst með krumlurnar í vatnsorkuna hér á Íslandi mun svipað verða uppi á teningnum. Til þess er hann jú að fjárfesta hérlendis, til að græða á því.

hp
25.08 2009 kl.10:55

“hefur uppi stórhuga áætlanir um jarðhitaframkvæmdir á Suðurnesjum”

Hvað felst í þessu. Jarðhitakerfin á Suðurnesjum eru nú þegar stórkostlega ofnýtt. Semsagt, hafa ekki verið nýtt á skynsamlegan og sjálfbæran hátt, heldur eingöngu með græðgis- og gróðasjónarmið í huga.

Mér líst lítið á þennan gæja. Skynsamlegast ef hann færi bara aftur til Kanada.

Glaumur
25.08 2009 kl.10:56

Forsetinn er búinn að hitta Magma forstjórann og nú er það Steingrímur J. fjármálaráðherra!

Minnir á þegar Geir H. Haarde var alltaf að hitta Björgólf Thor - við vitum hvernig það endaði!

runa
25.08 2009 kl.10:56

Ef orkusala fer fram á þessu landi, er eins gott að fara að skila inn húslyklunum og láta sig hverfa af þessu skeri.

Fjármagnseigendur,þingheimur allur geta þá sjálfir greitt Icesave og þá skuldavafninga sem bætast við af völdum okursölu á orku.

Ég trúi ekki að Íslendingar sætti sig við að þurfa að borga fyrir regnvatnið eins og þeir í Afríku þurfa að gera.

Andri
25.08 2009 kl.11:02

Þessi Kanadamaður er frontur fyrir Íslenska fjársvikara. Steingrímur á ekki að eyða tíma í svona menn.

sk2
25.08 2009 kl.11:02

Burt með þennan þjóf! Við erum búin að fá nóg af frjálshyggjuruglinu og einkavinavæðingarkjaftæðinu síðustu tvo áratugi með kúlulánaskítnum sem fylgdi! Það er ekki hægt að ljúga að okkur lengur. Steingrímur, þú verður að stoppa þennan þjófnað!!!

Glaumur
25.08 2009 kl.11:03

Það ótrúlegt hvað margt ágætisfólk er tilbúið að líta framhjá því hvernig forsetinn hefur hagað sér sem “facilitator” í útrásinni og núna innrásinni?

15. ágúst 2009
Nýting jarðhita
Forseti á fund með Magnúsi Bjarnasyni stjórnanda Glacier Partners og Ross Beaty forstjóra Magma orkufyrirtækisins um möguleikana á nýtingu jarðhita víða um heim. Rætt var um hvernig jarðhiti gæti orðið einn af helstu orkugjöfum veraldar á komandi áratugum og hvernig tækniþekking Íslendinga getur nýst á þessum vettvangi. Slíkar breytingar á orkukerfum heimsins séu nauðsynlegar til að koma í veg fyrir ógnvænlegar breytingar á loftslaginu.

Það er ekki til nóg af rauðri málningu til að útmála þann skaða sem þessi maður hefur valdið með framgöngu sinni. Hvenær koma “fjárfestarnir” frá Katar sem Ólafur og Össur með útrásarklíkunni sinni?

Móvinda
25.08 2009 kl.11:06

runa...

Bíddu bara... það kemur fyrr en okkur grunar... - og “Þistilfjarðarhagfræðin” jarmar örugglega yfir okur að við verðum bara að láta þetta yfir okkur ganga...

... Og steinþegja þegar við verðum neydd til að láta börnin okkar vera heima þegar fjárskortur í skólahaldi fer virkilega að segja til sín...

Það er örugglega búið að “finna það út” að það þarf að takmarka menntunarmöguleika fólksins hér... og beina framtíðar vinnuaflinu frá menntun.. - til að stórfyrirtækin fái nú ódýrt og ómenntað vinnuafl...

... það er ekki peningar til að borga menntun fyrir þau... ICESAVE... og SAMSPILLINGIN ganga fyrir ... - Jú nefnilega styrkirnir frá útrásinni til stjórnmálaflokkanna eru líka inni í pakkanum sem þjóðini er nú að blæða út fyrir ....

... af hverju ekki að láta okkur borga fyrir vatnið líka...

Birgir Örn
25.08 2009 kl.11:06

Þessi ríkisstjórn er brandari.

Bestla í Lóni
25.08 2009 kl.11:12

Kanadísk fyrirtæki sem hér bera niður hafa ekki skilað neinum VARANLEGUN árangri. Á Rifi er vatnsverksmiðja í lausu lofti og fjármögnun óljós, eigandinn með flækjufót. Í Keflavík fór kanadískt fyrirtæki í þrot. Eimskip tapaði milljörðum í Kanada.

Magma er með veltu upp á nokkrar miljónir og mikið tap. Er með skuldsetta 8 MW virkjun í Nevada, en OR með 215 MW.
Eru þessir menn líklegir til að verð bjargvættir og koma með 75 milljarða? Ameríska-ensk fjármögnun felst í að láta hluthafa og skuldsetta banka véla fjármagn sem heimtar sér reglur og skattaívilnanir. Ávísun á vandræði og undirlægjuháttur.

Búkolla
25.08 2009 kl.11:12

ZEITGEIST!

ZEITGEIST!

ZEITGEIST!

Samkvæmt þættinum er hann Ross J. Beaty kominn hingað til Íslands til að múta Steingrími og bjóða honum gull og græna skóga...

EN ef það virkar ekki senda þeir efnahags böðul til Íslands...

EF ÞAÐ VIRKAR EKKI,

Þá senda þeir Jackalinn og Steingrimur eða einhver annar finnst bráðkvaddur...

Vakna Steingrímur.... Senda þennan drullusokk til Kanada með fyrstu vél..

Kona3000
25.08 2009 kl.11:28

Það myndi staðfesta uppgjöf ríkisstjórnarinnar ef hún léti auðlindir okkar af hendi til erlendra aðila. Þau hafa engan veginn samþykki þjóðarinnar við gerð slíkra samninga og eru því umboðslaus og ættu frekar að segja af sér.

Doddi D
25.08 2009 kl.11:34

Það er ekki erlend fjárfesting til uppbyggingar þegar ríkiseignir eru seldar. Það er í raun skattahækkun.

Það er fáránlegt að selja öruggar eignir á lágu verði, svo ekki sé talað um þá firru að ætla lána kaupandanum fyrir kaupunum með 1,5% vöxtum.

Það er erlend fjárfesting til uppbyggingar að fá gagnaver á Blönduós og Húsavík. Það skapar NÝ störf og er áhættufjárfesting.

Hvernig væri að kapítalistarnir hundskuðust til að taka áhættu.

Kolla
25.08 2009 kl.11:38

MAGMA’S MISSION:
TO BE THE PRE-EMINENT GEOTHERMAL ENERGY COMPANY IN THE WORLD.

Magma Energy Corp. is a new geothermal energy company focused on exploration, development and operation of geothermal energy projects globally. The Company currently owns one operating geothermal plant and an extensive portfolio of geothermal exploration and development projects in Argentina, Chile, Peru and western USA and is actively expanding its projects portfolio worldwide.

Magma Energy var stofnað snemma árs 2008 og hefur hagnast gríðarlega strax. Ross Beaty hefur komið að földa fyrirtækja (í málmi og flugfélögum m.a.) í S-Am. og víðar, sækist eftir hámarkshagnaði, þannig að ef hann getur verðlagt vöru sína sjálfur hugsar hann að sjálfsögðu um eigin hagnað og ekkert annað.

Páll
25.08 2009 kl.11:45

Steingrímur!

Ekki láta fjármagnseigendasleikjurnar í Samfylkingunni rugla í thér. Afthakkadu pent töfrabrögd thessa pilts frá Ameríku. Óhraeddur. Thjódin gengur ekki med fjármagnseigendum í dag. Audlindirnar glatast ekki thótt vid gefum thaer ekki til erlendra peningamanna núna. Thad liggur ekkert á ad rádstafa audlindunum. Ekki svona. Ekki núna.

Thér er thó vorkunn vinur. Thad er betur og betur ad koma í ljós fyrir hvad thinn samstarfsflokkur stendur.

Ægir
25.08 2009 kl.11:46

Ég myndi setja skylirði inn í samninginn þannig að gjöldin til almennings á Íslandi muni ekki hækka, og Íslendingar fái rafmagn og heit vatn á sömu góðu kjörunum.

Grýla
25.08 2009 kl.12:08

Ef að Steingrímur mun gefa eftir þá mun ég seigja mig úr VG.

Ægir
25.08 2009 kl.12:15

Glæpamaðurinn Bjarni Á. stendur á bakvið þetta..sannið til

vondur
25.08 2009 kl.12:29

Það virðist ljóst að Ross Beaty er ekki hér á ferð sem Lions maður í leit að góðu verkefni að standa á bak við. Hann sækist eftir hámarkshagnaði. Við megum ekki leyfa þetta gerast að við afhendum slíkum mönnum yfirleitt aðgan að auðlindinni. Hvað með Geysir Grín sóttust þeir ekki bar í byrjun eftir litlum hlut ríkisins til að geta sýnt viðskiptavinum sínum erlendis, og ráða þeir ekki nú yfir vel rúmlega helming fyrirtækisins. Hvernig var fyrsta aðkoma Magma, bara að hjálpa pínulítið til með því að kaupa smá hlut af Geysi Grín, en forstjórinn nú komin í hraðflugi til að sannfæra ráðamenn um að grípa nú ekki inn í algera yfirtöku þessara kóna. Við verðum að hafa hugrekki til að standa á móti, og gera hvaeina til að koma í veg fyrir að þetta verði látið renna í gegn. Yfirtökum þennan mink sem í hænsnabúið kom, og setjum Geysir Grín inn í nýstofnað eignarhaldsfélag ríkisins. Þá höfum við tryggt það að minnsta kosti í bili að auðlindirnar og nýting hennar sé ekki á brunaútsölu. Stattu þig Steingrímur

þór
25.08 2009 kl.12:30

Mig brestur fræðilega þekkingu til að deila við HAGfræðing um muninn á orku- og fjármálaiðnaði.
Ég er hins vegar alltaf efins um bein pólitisk afskipti af úthlutun og ekki úthlutun eins og þetta er. Þetta er í eðli sínu pólitisk afskipti af viðskiptum, eins og úthlutun bankana var.Ég held það sé ekki gæfulegt.
Ef við ætlum að ríkisvæða orkuiðnað þá skulum við gera það og segja öllum sem áhuga hafa að fara annað.
Auðvitað ætla mennirnir að græða á þessu , ég ætla rétt að vona það !
Þeir eru hugaðir eftir þá útreið sem erlendir fjárfestar hafa fengið hér.

Hjördís Vilhjálms
25.08 2009 kl.12:42

Við þurfum öll að drekka vatn, hvar í flokki sem við stöndum, hvar sem við búum, hvort sem við erum í flottum fötum eða ekki eins flottum, hvort sem við erum með háskólagráður eða ekki. Hvort sem við erum svört eða hvít, og hvort sem við erum kristin , búddar eða múslimar.

Í Bólivíu fengu þeir sem keyptu vatnsauðlindir þeirra, einnig einkarétt á REGNVATNINU, já REGNVATNINU.

Með því að selja þessar auðlindir úr opinberri eigu og til einkaaðila, er verið að stíga skref í þá átt, það kannski gerist ekki á fyrsta degi, en gerist samt, okkur verður ekki hlíft frekar en þeim í Bólivíu. Að telja sjáfum sér trú um annað er hroki að mínu mati.

Þar var gerð bylting og eftir að her og lögregla höfðu gefist upp , þá var samningnum rift. Þau voru ekki með nein búsáhöld í þeirri byltingu og hún stóð í marga mánuði.

Auðlindir hafa verið einkavæddar um allan heim og ég veit ekki neitt dæmi þess að það hafi verið til hagsbóta fyrir íbúana, en án efa til mikilla hagsbóta fyrir einka-eigendur; það slær enginn hendinni á móti eins pottþéttri söluvöru og vatnið er.

En af einhverjum ástæðum sjá þeir það ekki, þeir sem stjórna opinberum fyrirtækjum hér á landi. Getur verið að þeir séu einnig búnir að ,,gambla rassinn úr buxunum”, eins og útrásarvíkingarnir ?

Höldum sjáfsvirðingu okkar, höldum þessum auðlindum í opinberri eigu.

Minna getur engin þjóð á, engin.

The One
25.08 2009 kl.12:49

Það er stórmerkilegt að einhverjum hafi dottið til hugar að selja orkuna úr landi á annað borð. Þetta er það eina sem útrásarpakkið náði ekki að stela svo neinu nemur og þá á að afhenda útlendingum þetta á silfurfati. Reyndar ganga sögur um að glæpamaðurinn Finnur Ingólfsson sé með puttana í þessu, Kæmi ekki á óvart, þar sem er skítur er Finnur mjög oft á næstu grösum.
ÞAÐ MÁ EKKI SELJA ORKUNA ÚR LANDI OG ÞAÐ MÁ HELDUR EKKI GEFA HANA EÐA SELJA ÍSLENSKUM GLÆPALÝÐ. ORKAN ER EIGN ÞJÓÐARINNAR OG Á AÐ VERA ÞAÐ ÁFRAM.

Kolla
25.08 2009 kl.12:52

@ þór
25.08 2009 kl.12:30 - Þú vonar að Magma græði á kaupunum. Reiknarðu með að gróðinn komi úr heiðskíru lofti? Eða finnst þér í lagi að gróðinn komi af hækkuðu afnotagjaldi rafmagns?

Grýla
25.08 2009 kl.12:54

Fjárfestirinn segir að það sem fái hann fram úr rúminu sé að græða pening fyrir fjárfesta.
En hvað þarf til að draga menn fram úr rúminu til að hugsa um hag almennings í þessu landi?

Ekki er hægt að treysta á Samfó, það er bara samansafn rúmlegufólks sem selur sál sína fyrir smáaura

Agnar Thor
25.08 2009 kl.12:55

Það er sama hvað fólk hefur sagt hér að ofan þá er eins og eitt hafi farið fram hjá fólki og það er að Magma getur ekki einu sinni borgað fyrir hlutin sem þeir vilja kaupa og þar með byrjar ein vitleysan enn.

Ef Magma gæti staðgreitt allt kaupverðið þá myndi ég örugglega ekki vera eins neikvæður á samningin, en það að borga valla út 1/3 og síðan restin eftir 7 ár bundið við krónuna í dag, er ALLGJÖRT brjálæði. Höfum við ekkert lært.

Það að Geysir Green Energy er ennþá á ferðinni með einhverja deala í dauðaslitrunum, er allveg makalaust. Fyrirtækið er gjaldþrota, að mestu í eigu Ríkisbanka og eftir að hafa reynt að svíkja og svindla með Sjálfstæðismönnum á síðasta ári (sem betur fer komst allt upp í tæka tíð) þá eru þeir ENN að. Og í hverra þáu. Ekki okkar, heldur meir fyrir stjórnendur þess því þegar því verður lýst gjaldþrota þurfa þessir gæjar vinnu og ég væri ekkert hissa ef þeir væru þeir nýju stjórnedur Magam á Íslandi. Það er þess vegna sem þessu þarf að flýta í gegn, einn, tveir og þrír.

Annað sem Ísland hefur ekki lært er að margar þjóðir takamarka eignarhlut erlendra félaga upp að 49% og í orkugeiranum á Íslandi ætti það að vera grunn skilyrði. Ennginn nema íslendingar ættu að eiga 51% EÐA meira í orkunni. Helst ætti orkan að vera almenningseign eins og hún hefur verið í tugi ára því það er EINA leiðin til að tryggja sanngirni í verði á orku.

Ef fólk virkilega heldur að einkafyrirtæki eins og Magma séu í þessu í góðgerðastarfi þá þurfa þeir hinir sömu að vakana. Magma sér mikinn hagnað í þessu og það fyrir lítin pening því við ættlum að gefa þeim fyrsta bitann líkt og við gerðum með bankana. Svo lengi sem ég dreg andan þá er það víst að Magma mun hækka verð á sinni gjaldskrá um leið og þeir hafa yfir 50% eignarhlut því þeir eru jú í þessu til að skapa mikinn arð fyrir sinn eiganda.

Og hverjir hafa síðan leyft að þetta gerist. Jú, borgar og bæjarstjórnarmenn Sjálfstæðisflokksins, því þeir halda enn að nýfrjálshyggjan sé hið besta mál og henni eigi að halda áfram sleitulaust. Sjálfstæðismenn lærðu ekkert af bankahruninu því að sjálfsögðu var það ´einhverjum öðrum að kenna..´.
Svo vitleysan heldur áfram. Hvenæar mun sjóða upp úr í orkugeiranum? Þegar orkuverð hefur hækkað um 150%, 200%, 250% eða 300% ? Þá verður það orðið of seint !!

Agnar Thor
25.08 2009 kl.12:58

Er Magma hið nýja ENRON ??

Hreggviður
25.08 2009 kl.12:58

Af hverju erum við komin í þessa aðstöðu, að verjast erlendum brunnmígum, sem eru komnir með fingurna á hálsæðinni á þjóðinni?
Svarið er einfalt. Geysir Green og gújónarnir á bakvið þá svikamyllu, ætla án þess að blikka auga, að svíkja þjóðina endanlega. Þeir hafa bæjarstjóra smánina í Reykjanesbæ með í plottinu og nú átti að höggva stórt.

Búið að véla eingarhluta smáþorpanna af þeim og hafnfirðingar hálf gjaldþrota, seldu sinn hluta til að redda bókhaldinu í smá tíma. Þetta lá allt vel við höggi.

Ríkisstjórnin ætti að senda kostnaðarreikninginn fyrir vörn gegn þessu ofbeldi, á bæjarstjórann og Geysir Green. Þeir eru ábyrgir fyrir herlegheitunum.

HF
25.08 2009 kl.13:04

Steingrímur!
Hugsaðu bara eins og þú gerðir fyrir ári síðan, þá treysti ég þér.
...
Tvær forsendur eru ófrávíkjanlegar:
- Þeir sem vilja eignast nýtingarrétt á orkulindum landsins verða að borga fyrir það. Kúlulán eru ekki inni í myndinni.
- Nýtingar tíminn má ekki fara yfir tímabilið eina kynslóð. Þ.e svona 20-40ár.
Magma uppfyllir hvoruga þessa kröfu og kemur því ekki til greina.

Hjördís Vilhjálms
25.08 2009 kl.13:09

@ Hreggviður, kl.12:58: ,,Þeir hafa bæjarstjóra smánina í Reykjanesbæ með í plottinu og nú átti að höggva stórt.”

Hvað ætli hann fái mikið í eigin vasa fyrir þessa ,,sölu” ? Hann er sagður mjög blankur.

Þórhallur Ólafsson
25.08 2009 kl.13:18

Mjög nú ærast íhaldsroð
því engu fá að stjórna
Ata auri Steingrím Joð
sem auðlind vill ei fórna

Kolla
25.08 2009 kl.13:19

@ Agnar Thor
25.08 2009 kl.12:55
Er jafnvel hugsanlegt að stjórnendur GGE (og kannski fleiri), sjái fram á væna þóknun sjálfum sér til handa fyrir viðvikið? Góður díll er þetta alla vega ekki!

Samstöðufundur í Grindavík
Náttúruauðlindir í eigu Íslendinga
Staðsetning: :Saltfisksetrið í Grindavík
Tímasetning:25. ágúst 2009 18:00
Allir velkomnir!

Hreggviður
25.08 2009 kl.13:20

@Hjördís Vilhjálms

Mér finnst hann andlega blankur.
Það er alvarlegt átand á bæjarstjóra.
Peningalega hlítur hann að spjara sig, hann á jú fína vini út um allt landið, sem örugglega gauka að honum einum og einum þúsundkalli endrum og eins.
Ég efast ekkert um að hans hlutur úr dæminu átti að verða verulegur.

Kristin
25.08 2009 kl.13:23

Rétt ef Steingrímur klikkar er VG búið að vera. Er í lagi 70% kúlulán með veð í bréfunum sjálfum til 65 ára. Á vitleysan engan endi að taka.

pim
25.08 2009 kl.13:27

Allir þeir stjórnmála og embættismenn sem eru fylgjandi svona sjálfsvígshugmyndum eru greinilega frímúrara eða fylgjandi eitthvað að þessum leynifélugum ljótu kallanna. Aumingjar og vesalingar sem stjórna á bakvið tjöldin og hafa allir hag sinnar reglu yfir lönd og þjóðir. Sjálfir njóta þeir mylsnanna sem falla til þegar kakan er skorinn. Enda eru allar þjóðir í heiminum stórskuldugar nema þrjár.
Er ekki tími tilkominn að við sturtum þeim niður. Svona allaveganna í huganum. Muna að vinka.

Kristin
25.08 2009 kl.13:27

Steingrímur það þýðir ekki að Haardast nú (þetta máltæki á eftir að slá í gegn en það þýðir að gera ekki neitt eins og ríkisstjórn Geirs Haarde

Guðrún
25.08 2009 kl.14:20

STEINGRÍMUR STATTU ÞIG Í ÞESSU MAÐUR. Nú eða aldrei.

Valur1
25.08 2009 kl.14:21

Það er alveg rétt hann er samningarmaðurinn sem kemur á undan hitman.
Brithis colombia,,,,,,nafnið colombia er bara nóg til að kveikja aðvörunar bjöllur mínar.

þeir sérhæfa sig í að bora í fátækari ríkjum suður Amerímu og bara allstaðar sem þeir komast inn til að bora eftir gulli og silvri.
Eru í samvinnu við cia.

http://resources.bnet.com/topic/silver+and+vancouver.html

Setjið þennan hér í google

AF234BaseMetalsInvesting

Kannski finnur maður eitthvað meira.Greyp þetta bara í fljótu bragði,

Dóri
25.08 2009 kl.14:23

Er það rétt að Árni Sigfússon hafi opnað útibú Glitnis í New York ?.

Guðrún Hlín
25.08 2009 kl.14:26

Nei Ksistn70%kúlulán með 1,5%vöxtum til 65 ára er ekki í lagi.Verjum Landið okkar fyrir svona NÍÐSLU.

Hjördís Vilhjálms
25.08 2009 kl.14:31

@ Dóri , kl. 14:23

Veit ekki, en man enn eftir að hafa séð hann í sjónvarpsfréttum í því tilefni, skælbrosandi og undraðist mjög að sjá opinberan starfsmann þar og minnist þess ekki að það hafi komið neitt um þetta erindi hans í fréttum, sem vakti undrun mína þá og gerir enn.

Hvað var hann að gera við opnun Glitnis ? Hversvegna var honum boðið og hver greiddi ferðina ? Var hann á launum hjá Reykjanesbæ bæ á meðan, eða var hann í launalausu leyfi ? Var fjallað um þessa ,,heimsókn” hans bæjarstjórn ? Þá ætti það að vera til í bókun bæjarins.

vondur
25.08 2009 kl.14:39

Er það ekki fyrrum starfsmaður Glitnis sem situr við hægri hönd Hins Góðhjartaða kandamanns á fundinum í morgun. http://visir.is/article/20090825/FRETTIR01/45356783/-1

Loki Laufeyjarson
25.08 2009 kl.14:41

Alls ekki að hleypa innrásarvíkingum inn.
Fyrst hann er svona sólginn í þetta, hlýtur þetta að vera á góðri útsölu. Ekki satt?

Bessi
25.08 2009 kl.14:42

Þór,

Ertu á móti því að þjóðin hagnist á auðlindunum.

Afhverju eiga einstaklingar og þá helst útlendingar alltaf að hirða hagnaðinn en við almenningur að sitja uppi með kostnað, tap og áhættu.tt.

Eru ekki auðlindir Norðmanna í þjóðareign og þjóðin fær hagnaðinn, er það ekki gott.

Valur1
25.08 2009 kl.14:43

Setjið þetta í google leit.

Pa042466

Og ef þið viljið komast að meiru setjið þá cia fyrir aftan nafnið hans þá koma upp öll suður ameríku löndin og boranir í þeim löndum eftir gulli 0g silvri.

GÖTALAND
25.08 2009 kl.14:46

Um að gera selja alt landið og almenning með sem þræla fyrir hina ekta
Íslensku aðalsættirnar, er ekki búið að veðsetja fiskikvóta í botna svo er
skríllinn að væla um að ESB innganga muni taka auðlindirnar af ykkur
jösses hvað þetta land getur sokið djupt í eimd..

Valur1
25.08 2009 kl.15:01

Mér líst ekkert á þetta,við verðum að herða lög okkar um ríkiseign okkar auðlinda,
VIÐ VERÐUUUUUMMM.

http://www.caseyresearch.com/displayExplorer.php?id=105

Mr. Beaty is a past President and current member of the Executive Committee of the Silver Institute in Washington, DC

brandur
25.08 2009 kl.15:38

Við þurfum ekki stórhuga leppa.

snælda
26.08 2009 kl.00:40

Er ekki réttast að gefa þeim bara Landsvirkun líka fyrst verið er að þessu á annað borð?

Brosi
26.08 2009 kl.01:30

Auðlindir landsins til lands og sjávar á að vera eign okkar allra eign þjóðarinnar og ekkert annað á að koma til greina

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar