Hörðustu andstæðingar Icesave-samninganna í Sjálfstæðisflokknum eru svo reiðir Bjarna Benediktssyni flokksformanni og öðrum þingmönnum flokksins, sem sátu hjá við atkvæðagreiðslu um ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu á Alþingi á föstudaginn, að þeir hvetja þá til að ganga í Samfylkinguna. Þeir segja að þingmenn sem staðfestu ríkisábyrgðina eða greiddu götu hennar ættu að skammast sín.
Þetta má lesa í Vefþjóðviljanum sem harðjaxlar til hægri í flokknum halda úti á netinu.
Árna Johnsen og Birgi Ármannssyni er hrósað fyrir að greiða atkvæði gegn ríkisábyrgðinni. ‘Einnig er sjálfsagt að muna að formaður Framsóknarflokksins stóð sig oft afar vel, og þingmanna best, í umræðum um þetta mál, og komst oft að kjarna þess, ólíkur mörgum öðrum þingmönnum stjórnar og stjórnarandstöðu, að ekki sé talað um fréttamenn og álitsgjafa,’ segir Vefþjóðviljinn.
Þá segir: ‘Þeir fjórtán þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem í gær vörðu atkvæði sínu ekki gegn ríkisábyrgð á icesave-reikningum Landsbankans, ættu að óska inngöngu í Samfylkinguna.’
Vikið er sérstaklega að Árna Johnsen: ‘Allir vita að síðustu ár hafa margir gagnrýnt Árna Johnsen og talið hann eiga lítið erindi á Alþingi. Ekki þarf að rekja þá umræðu. En þeir sem vilja fjalla af sanngirni um Árna, þeir mega vel viðurkenna að í gær stóð hann sig betur, og átti meira erindi á Alþingi, en mikill meirihluti þeirra sem þar sitja. Fjórtán af sextán þingmönnum Sjálfstæðisflokksins eru kyrfilega í þeim hópi.’
Vefþjóðviljinn gagnrýnir einnig fjölmiðla og bloggara: ’Áhugaleysi fréttamanna og álitsgjafa á raunverulegum atriðum icesave-málsins er ótrúlegt. Ekki síst þegar horft er til ofboðslegs áhuga sem sömu aðilar fá stundum á allskyns þýðingarlitlum smámálum. Þá er öllum flötum velt upp og málin rætt langt fram yfir síðasta söludag, en þegar hundruð milljarða eru í húfi, þá er enginn áhugi. Hann vaknar líklega ekki fyrr en næst finnst smámál til að hrópa sig hásan yfir. Þegar hundruð milljarða eru í húfi og allt veltur á því hvort lagaleg rök eru, eða eru ekki, fyrir því að ábyrgð á þeim fjárhæðum hvíli á Íslendingum, þá reynist mönnum ómögulegt að hugsa eða tala um að kjarna málsins.’
Í ritstjórn Vefþjóviljans sitja Glúmur Björnsson, Hörður Helgason og Þorsteinn Arnalds.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
48 ummæli
Rita ummæli30.08 2009 kl.12:06
Slóð
“Harðjaxlar til hægri”... hvaða newspeak er þetta? Þessi hópur hefur hingað til gengið undir því gamla góða nafni skrímsladeildin.
30.08 2009 kl.12:16
Slóð
Þetta kallast að hræra ærlega upp í geitungabúinu.
30.08 2009 kl.12:21
Slóð
Mæli með að Davíð komi aftur til valda sem formaður flokksins, Bjarni er ekki að höndla þetta, mitt mat.
30.08 2009 kl.12:25
Slóð
Þetta er sami flokkurinn og gékk strax til samninga við breta í haust um nákvæmlega sömu skuldbindingar.
Sjálfstæðisflokkurinn er algerlega marklaus í þessari umræðu.
Þarna er rjóminn af kúlulána aðalinum, með dæmdan þjóf og mútuþega á hæsta stalli í dag.
Nei takk, aldrei aftur.
30.08 2009 kl.12:27
Slóð
Jamm.
30.08 2009 kl.12:33
Slóð
Ég strikaði yfir Árna...
Sé eftir því núna. Hann hefur greinilega lært af reynslunni og reyndi að borga þjóðinni milljónfalt til baka það sem hann stal...
Bara að allir hinir alþingismennirnir hefðu haftr þor til að gera upp sína samvisku á sama hátt.
Þeir flestir hafa stolið, það hefur bara ekki komist upp...
30.08 2009 kl.12:35
Slóð
Er þessu ekki öfugt farið?
Að það sé armur í Samfylkingunni (sennilega ekki lítill), sem eigi meiri samleið með Sjálfstæðisflokknum heldur en jafnaðarstefnu?
30.08 2009 kl.12:37
Slóð
xS = bætur fyrir alla... greiddar af verkalýðnum
xV = bætur fyrir alla... greiddar af verkalýðnum
xD = (eigum við ekki að láta e-h annan botna þetta) ?
30.08 2009 kl.12:37
Slóð
Af hverju er yfirleitt einhver að pæla í innanhúsmálum FLokksins?
Átökin þarna skipta íslenska þjóð ekki máli - megi þeir skrímslast hver um annan þveran.
30.08 2009 kl.12:41
Slóð
FLokkurinn er EKKI þjóðin!
30.08 2009 kl.12:44
Slóð
Árni Johnsen sýndi að hann er ótíndur glæpamaður, enn á ný með því að reyna koma þjóðinni í margra vetra ánauð þegar hann kaus gegn ríkisábyrgð Icesave. Þvílíkur siðleysingi!
Hitt örverpið sem kaus gegn Icesave í xD ætti að hypja sig úr FLokknum og stofna Skrímslaflokkinn.
Skrímsladeild xD er í minnihluta, ef einhverjir kljúfa sig úr xD þá eru það monsterin.
30.08 2009 kl.12:58
Slóð
samþykkti ekki sjálfstæðisflokkurinn icesave með miklu hærri vöxtum?
30.08 2009 kl.13:05
Slóð
Þessi flokkur!! guð minn góður. Það er í raun ekkert sem hann getur gert sem er ekki rangt einhverstaðar á hinu siðferðilega litrófi. Flokkurinn er hvortveggja Seibei og Ushitora.
30.08 2009 kl.13:06
Slóð
Þetta er Sjálfstæðisflokkurinn í dag:
Vitstola öfgamenn og hófsamari hægri menn í bland.
Öfgamennirnir vilja koma frjálshyggjunni aftur til valda en hinir eru með óbærilega sektarkennd vegna hrunsins, sem þeir þó þurfa að fela öllum stundum. Þeir vita sem er að frjálshyggjan er sökudólgurinn.
Þessir tveir hópar eiga álíka vel saman og vatn og olía.
30.08 2009 kl.13:12
Slóð
Það er óskandi að þetta sé formlegt upphaf endaloka Sjálfstæðisflokksins.
30.08 2009 kl.13:20
Slóð
Ég skil ekkert í Sjálfstæðisflokknum að vera ekki búinn að skipta um forystu. Bjarni Ben er enginn leiðtogi og ekki þarf að eyða orðum í Þorgerði Katrínu, hún er búin að vera. Ég er sammála þessu með Ice-save, málið er hneisa.
30.08 2009 kl.13:28
Slóð
“...en þegar hundruð milljarða eru í húfi, þá er enginn áhugi. Hann vaknar líklega ekki fyrr en næst finnst smámál til að hrópa sig hásan yfir.”
Sennilega á Vefþjóðviljinn hér við smámál eins og þegar Morgunblaðið var “selt” með 3000.000.000 króna afslætti.
30.08 2009 kl.13:30
Slóð
Það þarf að leggja niður sjálfstæðisFLokkinn
30.08 2009 kl.13:30
Slóð
Um tíma las ég Vefþjóðviljann, hætti því svo, nennti því ekki. Á of lágu plani, veruleikafirrt bull, hvort sem hið margrómaða „framtak einstaklingsins“ eða loftlagsbreytingar voru til umfjöllunar. Alltaf hakkað í sama gamla íhaldsama farinu. Þeir reyndu að tjá sig um flest á milli himins og jarðar, en sjaldan brá fyrir Intelligens eða þekkingu.
Þarna sitja líklega nokkrir heildsala- og lögfræðingasynir, fæddir inn í Íhaldið, bíðandi eftir því fá lítt krefjandi starf, innan stjórnsýslunnar, sem sagt á ríkisspenanum. Eitthvað sem þeir myndu ráða við.
En sú bið gæti orðið æri löng, því nú er margt að breytast til batnaðar á skerinu.
Þessi hópur er farinn að minna geigvænlega mikið á vitstola öfgamenn í USA.
30.08 2009 kl.13:41
Slóð
Það væri fróðlegt að fá einhverja alvöru skoðanakönnun í dag.
Kaldæðin staðreynd er sú að Sjáfstæðisflokkurinn væri örugglega stærstur.
30.08 2009 kl.13:49
Slóð
Væri ekki nær að þessir menn gengu bara í framsókn úr því að þeir eru svo hrifnir af einkavinavæðingarsyninum?
30.08 2009 kl.13:59
Slóð
Já hvenær fáum við alvöru skoðunarkönnun um fylgi flokkanna?.
30.08 2009 kl.14:06
Slóð
Lífskjör þjóðarinnar gangi fyrir umhverfisruglinu.
Nýtum orkulindirnar og þráðbeinann veg yfir sprengisand sem fyrst.
Sameinnumst sunnlendingar og norðlendingar í atvinnusköpun.
30.08 2009 kl.14:09
Slóð
“Harðjaxlar til hægri”. Eru það ekki Nazistar.?
Icesave er 100% afsprengi sjálfstæðismanna og auðvitað á að láta þá borga
Um hvað voru Geir Haarde og Árni Matt að semja við Breta og hollendinga í haust með 6,7% vöxtum ef þeir segja í dag að við eigum ekki að borga.? Var ekki öll aðstoð erlendis frá stopp þar til félagarnir samþykktu að við ættum að borga.
30.08 2009 kl.14:11
Slóð
Af hverju ganga þessir menn ekki úr flokknum fyrst þeim er svona misboðið? Líður þeim eitthvað illa utan flokka?
30.08 2009 kl.14:12
Slóð
Bill Gates (Microsoft) is investing tens of his millions along with the Rockefeller Foundation, Monsanto Corporation, Syngenta Foundation and the Government of Norway, among others, in seed bank on Svalbard.
So, Syngenta is a Rockefeller Partner and just like the EU Commission, the European Environmental Agency, Copenhagen, and Rockefeller partner KWS Saat a client of EuroCare - and besides a participant in the Svalbard seed bank!!!
30.08 2009 kl.14:13
Slóð
Það stefnir sem sagt allt í það að Árni Johnsen verði formaður Sjálfstæðisflokksins. Hahahahhahahahahahhahahahhahahahhahahahhahhahahhaaaaaaaahahhahahaaaaaaaaaaahahhahahahhahahahhhahha.....yndislegt.
30.08 2009 kl.14:16
Slóð
Sjálfstæðisflokkurinn er einfaldlega klofinn stjórnmálaflokkur. Verður gaman að sjá framhaldið af þessum klofningi.
30.08 2009 kl.14:22
Slóð
Henry Kissinger declared in the 1970’s, ‘If you control the oil you control the country; if you control food, you control the population.’
Fylgist með codex 21.12.09
30.08 2009 kl.14:46
Slóð
Ekki taka bóluefnið (vaccine)
30.08 2009 kl.14:52
Slóð
Það vantar flokk fyrir þjóðernissinna. Aðal efniviðurinn er í XD og VG enda ekki stór munur í mörgu á þessum flokkum, en fyrir okkur hin er nauðsynlegt að losna við þetta fólk úr öðrum flokum
Það kann að verða dýrkeypt að sjálfstæðisþingmenn greiddu ekki atkvæði með þessu , það eykur mjög líkur á höfnun frá viðsemjendum Það er þá á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins
30.08 2009 kl.15:11
Slóð
Samfylkingin þakkar og tekur á móti kjósendunum.
Þingmenn FL-okksins ættu hins vegar flestir að snúa sér að einhverju öðru.
30.08 2009 kl.15:42
Slóð
Það skondna við hægrustu hægri hlið Sjálfstæðisflokksins er að þeir minna mig á það sem er eftir af Repulicana flokknum hér Í Bandaríkjum. Þeir trúa að þú sért einn á móti heiminum, að allt sem liði að samfélagslegri hagsmuna stefnu sér slæmt og jaðri við sósialisma, að loftslagbreytingin er Kínverjum og Indverjum að kenna og með trúarofstækinu þá er Guð forstjórinn svo framanlega sem leyfir öllum að vera vopnaðir upp fyrir haus.
Sem betur fér þá vanntar trúarofstækið hjá Sjálfstæðisflokknum. Það kemur kannski einn dag og Guð verður yfir flokknum. Hver veit.
Gallinn við báða er að það virðist sem engin jarðtenging er hjá þessu fólki. Þau eru allgjörlega úr takt við tíman og oft á tíðum fastir í 18. aldar hugsanahætti. Kannski þeir vilji fá Danina aftur því á þeim dögum var allt svo gott. Maður veit ekki.
Það eina sem ég næ ekki er að það er engin auðmýkt hjá neinum af alþingismönnum Flokksins og heldur ekki í systurflokknum Framsókn. Við vitum öll hver kom up kerfinu sem leyfði vitelysingunum að taka yfir. Við vitum öll hver leyfði vitleysingunum að vera ósnertanlegir í 8 ár. Stjórnmálamenn eiga að vernda þjóðfélagið fyrir slíku enn í staðinn þá slökuðu þeir á lögnum. VIð vitum það öll.
Það er tími til kominn að Flokkurinn fari í langt sumarfrí eða 17 ár eða svo, á meðan við byggjum upp nýtt þjóðfélag þar sem lög frumskógarinns eru EKKI leiðarljós eins og Frjálshyggja Hannesar Hólmsteins og Davið Oddsonar reyndis vera.
Ég vil EKKI Ísland þar sem einstaklingnum er leyft að troða á öðrum svo hann geti verið góður business maður. Ég vil ekki Ísland sem er stétt skipt með milljarðamæringum og fátæknum.
Hugsið ykkur. Við eru núna að upplifa tíma þar sem fátækt er staðreynd á Íslandi. Þar sem fólk hefur ekki efni á að senda krakkana sína í skóla, hefur ekki efni á að fæða sig og klæða. Við eru að upplifa tíma þar sem þær bætur sem fólk fær, hvort sem atvinnuleysis eða örorkubætur, duga ekki útaf stöðugum hækkunum sem Ríkið getur ekki og hefur í raun ekki efni á, að halda í við.
Við munum aldrey gleyma hvaða flokkar komu okkur í ástandið og við munum aldrey gleyma hverjir veðsettu Ísland og þar með Íslendinga fram í tímann.
Við munum aldrey gleyma !!
Agnar Thor
30.08 2009 kl.15:47
Slóð
Bjarni Ben. hefur útskýrt afstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokksins mjög vel - ég skil afstöðu Árna og Birgis en er ekki sammála þeim - skipt var um samninganefnd þegar ríkisstjórn JS tók við völdum - það var því eðlilegt að ríkisstjórnin axlaði alla ábyrgð á samningnum - ef ríkisstjórnin nær ekki að klára þetta risastóra mál gagnvart Bretum&Hollendingum á hún að segja af sér og axla þannig pólitíska ábyrgð því aðeins stjórnarliðar ýttu á já takkann -
30.08 2009 kl.16:18
Slóð
Þetta öfgalið er þegar langt komið með að eyðileggja Sjálfstæðisflokkinn, ekki bara ímynd hans heldur innviðina líka.
Það eru þeir sem eiga að hypja sig úr flokknum og láta flokkinn eftir þeim sem hófsamari og skynsamari eru.
30.08 2009 kl.16:24
Slóð
Þessi ríkisstjórn, sem nýtur aðallega stuðnings þingmanna sem eru áhugamenn um golf og víndrykkju á auðvitað að segja af sér nú þegar. Aumara fyrirbæri hefur aldrei stýrt þjóðarskútunni. Einmitt nú þarf þjóðin helst á stjórn að halda sem ber hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti, ekki erlendra kröfuhafa. Núverandi ríkisstjórn undir forsæti Jóhönnu og SJS veldur ekki þvi verki sem vinna þarf, enda var svo sem aldrei hægt að búast við því.
30.08 2009 kl.16:29
Slóð
og hvað Birgir Örn ? Fá sjálsfstæðísflokkinn aftur til valda ? Flokkinn sem á 99% af hruninu ? Flokkinn sem gaf glæpamönnum Landsbankann sem síðar skuldsettu þjóðina ? Flokkinn sem hefur sérhagsmunagæslu auðmanna og glæpamanna að leiðarljósi ? Flokkinn sem inniheldur alla kúlulánaþingmenn þjóðarinnar ? Flokkinn sem brenndi landið til grunna og þvælist svo fyrir björgunarstarfinu? ÞESSI GLÆPALÝÐUR MÁ ALDREI KOMAST HÉR TIL VALDA AFTUR!
30.08 2009 kl.16:39
Slóð
Sjálfstæðisflokkurinn mun klofna innan árs. Nýr hægri skrímslaflokkur verður stofnaður sem fær til sín óánægjufylgi, eins og VG gekk á fyrstu 10 árin og gamli Sjálfstæðisflokkurinn undir stjórn Bjarna og Þorgerðar mun minnka niður í stærð Framsóknar. Sama stjórnarmynstrið og nú er mun ríkja næstu fimmtán, tuttugu árin og ísland verður þá orðið norrænt velferðarríki í ESB. Ísland lengi lifi.
30.08 2009 kl.17:57
Slóð
Eitthvað hafa xD nú gert gott fyrst ÞIÐ kusuð þá aftur og aftur í meirihluta seinustu 20 árin?
Ég kaus þá fyrst núna og ástæðan var einföld.
Vinstri bleikir og rauðliðarnir eru öfgaflokkar, þar er engin skímsladeild því allir þar eru skrímsli.
Ég skal goodera Jóhönnu svo lengi sem hún tekur að sér félagsmálapakkann enda er xD ekki að vinna fyrir þann markhóp.
Upphaf ICESAVE má rekja til vinstrimanna og þess gallaða regluverks sem þeir neyddu okkur undir með EES samningnum.
Ef texti EES er lesinn þá skilur maður ekki afhverju Icesave er vandamál, það er einfaldlega þetta sósíalíska hugarfar ESB sem er að ráða för í þessu máli.
Ísland skeit á sig, Ísland á að borga...
Það er ekkert pælt í hverjir eru með peningana í dag og hvernig hægt er að fá þá til baka...
xD mundi frekar hefja samstarf um innheimtu frekar en að gangast undir þessa ábyrgð.
30.08 2009 kl.18:19
Slóð
Afsakið að trufla bloggið.
Hverjir haldið þið að séu að hagnast á bóluefninu?
Heimselítan auðvitað.
Microsoft Corporation Joins Hand with the Pharmaceutical Cartel
Þeir gera sínar tilraunir í þriðju heimsálfunni og öðrum ríkjum eins og Póllandi og Tékklandi og nú Kína svo það valdi ekki eins mikla eftirtekt þegar fólk deyr af völdum bóluefnisins enn það veldur líka skemmdum á ónæmiskerfið og veldur krabbameini ásamt fleirri aukaverkum.
Venandi er einhver að ná einhverju af þessu þetta kemur allt til Íslands fyrr eða síðar,alveg eins og IMF hrijuverkasamtök heimselítunnar.
30.08 2009 kl.19:31
Slóð
the one
Algerlega sammála þér
Birkir örn er Hó G
láttu hann ekki vera trupla þig við vitum öll hvernig hann er.
30.08 2009 kl.19:43
Slóð
Harðjaxlar???
Meira svona Nötters
30.08 2009 kl.20:28
Slóð
Kaggi vonandi rætist framtíðarsýn þín.
30.08 2009 kl.20:34
Slóð
Þeir ættu nú að láta athuga hjá sér loftræstinguna þarna á vefþjóðviljanum, það virðist eitthvað vera þarna sem veldur varanlegum heilaskemmdum og ranghugmyndum.
30.08 2009 kl.22:20
Slóð
Það eina sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert núna eftir áramót er að afneita fortíðinni og skamma þá sem reyna að bjarga því sem bjargað verður en það fatta þeir ekki því jú fortíðinni sem þeir skópu er afneitað. Skírasta dæmið eru nýleg viðbrögð höfundar stefnunnar sem keyrt hefur verið á síðustu 17 ár mister Hannes kenndur við Hólmstein. Engin furða að hann fái ekki að vera í friði með kommúnistakverið í mótmælunum á Austurvelli.
30.08 2009 kl.23:36
Slóð
Tími Bjarna Ben er því miður liðinn. Við þurfum Davíð Oddson aftur!
31.08 2009 kl.05:12
Slóð
ÍHALDSFLOKK
31.08 2009 kl.07:29
Slóð
Árni Johnsen stal af þér.
Árni Johnsen stal af þér.
Árni Johnsen stal af þér.
Árni Johnsen stal af þér.
Restin af Sjálfstæðisflokknum studdi hann til embætta hjá RARIK og í flokkinn aftur. Samsekir allir saman sem ekki töluðu gegn því að honum væri boðið á fundi og í þingflokkinn. Þrælseðli sumra íslendinga er þannig að þeir átta sig ekki á því að: Árni Johnsen stal af þér.