Innlent - þriðjudagur - 8.9 2009 - 10:50

Hofmóður? „Í engu öðru landi mundi blaðamaður hringja beint í seðlabankastjóra“

margudmundsson.jpgNýi seðlabankastjórinn, Már Guðmundsson, er ekki sáttur við að fjölmiðlar hafi milliliðalaust samband við hann. „Í engu öðru landi mundi blaðamaður hringja beint í seðlabankastjóra,“ er haft eftir honum á forsíðu Fréttablaðsins í dag. Már neitar þar að svara spurningu blaðamanns Fréttablaðsins um viðtal sem hann hafði veitt Reuters-fréttstofunni og vísaði á fjölmiðlafulltrúa bankans.

Vakin er athygli á þessum orðum  á fréttavefnum AMX  þar sem þau virðast talin til marks um hofmóð nýja seðlabankastjórans. ’Hvað hefði verið sagt, ef Davíð Oddsson [fyrrverandi seðlabankastjóri] hefði talað svona til blaðamanns? Ætli það hefði ekki verið sérstök frétt um það í 08.00 fréttum RÚV?’ er spurt á AMX. Þar velta menn því einnig fyrir sér hvort seðlabankastjóri hafi  sagt eitthvað svipað við fréttamenn Reuters-fréttastofunnar.

62 ummæli

Rita ummæli

Nýi Dexter
08.09 2009 kl.10:52

Gamall Sovétdýrkandi.

Kristján Kristjánsson
08.09 2009 kl.10:53

Svona svar menn sem hafa lélegan málstað að verja og eða tapað spil.

Halli ríkis
08.09 2009 kl.10:55

Það er aldeilis upp á honum typpið! Davíð var “gentleman”, þetta er bara rumpulýður sem nú stjórnar þsssu landi.

H
08.09 2009 kl.10:55

Þetta er bara hárrétt hjá manninum - í engu öðru landi myndi blaðamaður hringja beint í seðlabankastjóra.

Birgir Rúnar Sæmundsson
08.09 2009 kl.10:55

Þeir líta stórt á sig þessir Tappar!

Eru aumkunarverðir litlir kallar, á flótta frá raunveruleikanum.
Lifa í Fílabeinsturni líkt og Hannes og Davíð.

http://www.icelandcrash.com/antisocial-personality.html

Magnús
08.09 2009 kl.10:58

Þetta er hárrétt hjá Má. Auðvitað eiga frétta- og blaðamenn ekki að eiga beinan persónulegan aðgang að seðlabankastjóra hvenær sem er. Það tíðkast hvergi og getur verið mjög slæmt fyrir efnahagsstjórn að stöðugt komi mismunandi fréttir og mismunandi túlkanir blaðamanna á orðum seðlabankastjóra úr einkaviðtölum. Eðli hans embættis er slíkt. Þetta kemur ekki hroka við.

Hitt skiptir síðan enn meira máli að allar forsendur ákvarðanna Seðlabankastjóra séu byggðar á gegnsæjum gögnum og slík gögn liggi fyrir. Á sama hátt þarf að hafa embættismenn og fjölmiðlafulltrúa sem geta veitt svör við einstökum atriðum eftir því sem við á.

Sóða -Gandur
08.09 2009 kl.10:59

Það var heldur ekki algjört hrun í neinu öðru landi. Þetta er veruleiki sem við höfum búið við og þurfum ekki að breyta þó Má finnst eh. annað.

kristinn
08.09 2009 kl.10:59

Ekki bodar thetta nu gott, Ef thetta er thad sem skiptir mestu mali !!!

boe
08.09 2009 kl.11:01

Það er sjálfsagt rétt hjá Má, að í engu örðu landi geti fréttamaður hringt beint í seðlabankastjóra, en málið er að við búum á Íslandi og einn af kostum landsins okkar er að „valdhafar“ eiga ekki að vera uppí einhverjum fílabeinsturni þar sem ekki næst til þeirra. Það síðasta sem við þurfum nú eru „valdhafar“ sem ekki veita fjölmiðlum aðgengi að sér. Ef þetta er hugsunarháttur hans þá vil ég manninn úr stólnum strax.

Ólinn
08.09 2009 kl.11:05

Já... shit... einhver low life blaðamaður að hringja í elítuna... BEINT...

Hvað næst.. .bönnum við honum að leigja þyrlu???

Runi
08.09 2009 kl.11:05

Er Már svona mikilvægur að hann kemst Guði næst að tölu?

..og hvað er að því að menn hringi beint í þá sem er búið að ráða í ábyrgðarmiklar stöður.

Þessir menn eru að vinna fyrir fólk í landinu?!

Sigurður #1
08.09 2009 kl.11:06

sammála boe.

Þetta er lítið land, þar sem fjölmiðlamenn hafa alltaf haft aðgang að ráðamönnum beint.

Forsætisráðherra þar á meðal.

Márinn er ekkert of merkilegur til að svara blaðamönnum á íslandi.

H
08.09 2009 kl.11:08

Magnús (10.58) útskýrir þetta ágætlega.

Dísa
08.09 2009 kl.11:17

Hver heldur hann að hann sé?

asi
08.09 2009 kl.11:19

Við búum ennþá í litlu landi Már -- vinsamlega hættu að ímynda þér að þú getir kallað Greenspan kollega þinn.

Hjördís Vilhjálms
08.09 2009 kl.11:22

Og hverju skiptir það þó það gerist ekki í neinu öðru landi, við erum á Íslandi og svona gerum við hlutina, augljóslega.

Það er heldur ekki í neinu öðru landi sem hrunið varð svona svakalegt og svo erfitt að ná tali af fólki , það þarf greinlega að nota allar aðferðir til þess að reyna að fá upplýsingar. Of algent er að heyrist í fréttum: ,,og ekki náðist í....þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir”.

Vilji maður eins og hann hafa þetta kurteist og siðmenntað, þá þarf líka að sýna kurteisi á móti og tala við almenning í gegnum blaða-og fréttamenn, að mínu mati.

Obama, valdamesti maður jarðarinnar, sést oftar í fjölmiðlum en okkar eigin æðstu ráðamenn.

Seðlabankinn hefur góðan aðgang að fjölmiðlum þegar þeir þurfa á að halda og það þarf að vera gagnkvæmt að mínu mati.

Kannski að blaða-og fréttamenn ættu bara að standa saman og hunsa SÍ ? Leyfa SÍ bara að eyða peningum í að auglýsa þær upplýsingar sem þeir vilja koma á framfæri, sem gæti þá dregist af launalið þeirra.

Mér þykir hann setja sig á of háan hest og sýna hroka með þessu. Að tala við fjölmiðlafulltrúa er ekki það sama og að tala við Seðlabankastjóra, það á hann að sjá sjálfur og vita að orðin hafa ekki sama vægi.

Sé vilji til að hafa þetta með þessum hætti, þá þarf líka að gera orð fjölmiðlafulltrúa SÍ, jafn þung og ábyrg og þeirra sem hann talar fyrir höndina á hverju sinni, að mínu mati.

Stína
08.09 2009 kl.11:23

Comes with the djob!!!!

hinni hippi
08.09 2009 kl.11:23

Er þessi maður Georg Bjarnfreðarson ?

Halldór Á
08.09 2009 kl.11:25

Blaðamenn hafa beint samband við ráðherra ríkisstjórnarinnar - þeir hringja bara í farsíma þeirra og ráðherrarnir hafa sjálfval um það hvort þeir svara eða ekki.

Er Seðlabankastjórinn merkilegri en ráðherrarnir? Ef hann vill ekki tala beint við blaðamenn, þá þarf hann ekkert að svara símanum.

Ekki byrjar þessi ferill Más Guðmundssonar í embætti Seðlabankastjóra glæsilega. Hroki og dramb (dæmigerð svosem fyrir gamla kommúnista) og svo í bullandi vörn fyrir peningastefnu Seðlabankans sem setti þjóðfélagið á hliðina - en Már var einmitt einn aðalhöfundur hennar.

Æ, æ, hvers á þessi þjóð að gjalda?

Glaumur
08.09 2009 kl.11:26

Það var nú bara hann Natsuko Waki hjá Reuters sem virðist hafa spjallað við Má Guðmundsson Seðlabankastjóra eins og oft gerist.
http://www.forbes.com/feeds/afx/2009/09/07/afx6854846.html
Við erum þrjúhundruð þúsund einstaklingar hér á landi og svona stjörnustælar ala forsetinn eru ekki mönnum bjóðandi.

hress
08.09 2009 kl.11:26

Maður pantar nú ekki einu sinni klippingu orðið án þess að fara í gegnum skiptiborð...þannig að slakið nú aðeins á dramanu.

Rúnar
08.09 2009 kl.11:26

Í engu öðru landi greiðir þú 750.000 kr á 7 mánaðar tímabili af 20 milljón króna láni og stendur svo í 21 milljón. Ég er stoltur að vera af kynslóðinni sem segir fari þetta til helv....
Tímaskekkja að ráða mann sem kvittar upp á svona rugl.
Ef hús er illa byggt er mun ódýrara að jafna það við jörðu og fá nýja smiði að uppbyggingu.

Áki
08.09 2009 kl.11:31

Ég hef ekki séð að menn í banka og stjórnsýslu séu að gera hlutina hér eins og í öðrum löndum fram að þessu.

Einar
08.09 2009 kl.11:32

Þetta eru góð tíðindi. Hér er maður sem hefur tileiknað sér fagleg vinnubrögð. Það er ekki hlutverk Seðlabankastjóra að sitja fyrir svörum hvenær sem blaðamanni dettur í hug að hringja. Því miður er lítill skilningur á vinnubrögðum sem þessum hjá ýmsum í blaðamannastétt en vonandi er að fagmennska eigi eftir að vaxa á þeim bæjum.

nn
08.09 2009 kl.11:33

Það var aldrei hægt að ná beinu sambandi við Davíð Oddsson, það fór allt í gegnum ritara hans og gat tekið margar vikur að fá slíkt viðtal

Haukur Kristinsson
08.09 2009 kl.11:35

Auðvitað er þetta rétt hjá Má. Hvaða blaðamaður er svo vitlaus að láta sér detta til hugar að hringja beint í seðlabankastjórann.
Christiane Amanpour kannski, en ekki “fisléttir” blaðamenn í Reykjavík.
En þetta er einkennandi fyrir kunningjasamfélagið. Einhver klappar þér á öxlina, segjandi; blessaður vinur. En þú hefur aldrei séð manninn.
Stundum dettur mér til hugar, að taka skyldi upp aftur þéringar á skerinu.

ES
08.09 2009 kl.11:37

Glaumur. Már vill bara tala beint við útlenska blaðamenn. Þessir íslensku eru eitthvað svo lummó.

Joi
08.09 2009 kl.11:43

Í engu öðru landi hefði fyrrum efnahagsráðgjafi lélegasta fjármálaráðherra íslandssögöunnar (Ólafs Ragnar) verið ráðinn Seðlabankastjóri.

Halldór Á
08.09 2009 kl.11:44

Rétt hjá ES - Már vill bara tala beint við útlenska blaðamenn, það er svo fínt. Og svo eru íslenskir blaðamenn bara með leiðindi, spyrjandi um það hvers vegna þurfi svona háa stýrivexti ef þeir hafa engin áhrif önnur en að friðþægja erlendum lánardrottnum. Íslenskir blaðamenn eru líka helvítis dónar að spyrja Má hvort hann eigi ekki beinan þátt í hruninu, með peningastefnu Seðlabankans.

Már, svaraðu ekki símanum, dragðu gluggatjöldin fyrir og læstu hurðinni. Þú ert bestur þannig.

BB
08.09 2009 kl.11:47

Vill hann kanski fá sér akrein líka? Hvernig væri að minka aðeins hrokan og fyrirlitninguna. Eða bara að segja af sér og þá mun enginn blaðamaður væntanlega hringja! Það er alveg ljóst að við ætlum ekki að fara út í eithvert ritskoðað sænsk kerfi. Og þar sem kerfið á íslandi er svona meingallað og spillt og ömurlegt þá munu blaðamenn sem eiga að vera vörður tjáningarfrelsis lýðræðisríkis hringja í hvern þann sem þeim listir, þegar þeim listir. Það er þannig sem það virkar í lýðræðisríkjum. Það virkar hins vegar ekki svona í t.d. kóreu, eða kína.

SH
08.09 2009 kl.11:50

Hér á landi býr fámenn þjóð sem vill nálægð við það fólk sem er á launum hjá almenningi, það er seðlabankastjóri svo sannarlega.

Við höfum fengið nóg af feluleik og ónógum upplýsingum.

Með öðrum orðum: Hvar er Jóhanna og vikulegu fréttamannafundir með Steingrími?

Gísli Sig
08.09 2009 kl.11:56

Held hann hafi mun nauðsynlegri hlutum að sinna heldur en að svara sígapandi blaðamönnum.

Spotti
08.09 2009 kl.11:59

Már er mikilvægur og sérhæfður maður. Einfaldir blaðamenn geta hvorki endursagt né túlkað það sem hann hefur fram að færa. Má vantar aðstoðarmann, upplýsingafulltrúa og fjölmiðlafulltrúa ekki seinna en núna.

Lovísa
08.09 2009 kl.12:07

Held honum sé nú ekki vorkun að það sé hægt að hafa samband við hann. Hvort það tíðkist annars staðar en hér kemur málinu ekkert við, það er þá bara stillingaratriði á símstöðini í Seðlabankanum.

En vá hvað það þarf lítið til að koma Davíð inn í umræðuna.

Magnús
08.09 2009 kl.12:08

Þetta kemur ekki því við að Seðlabankastjórinn sé merkilegri en ráðherra eða pólitíkusar. Þetta er EÐLI STARFS HANS. Seðlabankastjóri Bandaríkjanna gefur minna færi á sér en forseti Bandaríkjanna - ekki af því hann er merkilegri en forsetinn heldur er það eðli starfsins.

Sumir segja að við eigum að gera hlutina örðuvísi en allir aðrir - af hverju? Viljum við kunningjasamfélagið? Einum er veittur greiði? Orð seðlabankastjóra hafa bein áhrif á markað með mun meira afgerandi hætti en flest önnur orð. Hvernig fór þegar Davíð veitti Kastljósviðtalið fræðga og blaðraði þar meira en góðu hófi gegnir? Er að sem við viljum? Alþjóðasamfélagið stóð á öndinni yfir orðum Davíðs og allt hrundi.....

Spotti
08.09 2009 kl.12:15

Rétt Magnús. Það er EÐLISMUNUR á Má og öðrum. Einfaldir eiga erfitt með að skilja þetta.

Magnús
08.09 2009 kl.12:18

Spotti....
Það er eðlismunur á STARFI Más og t.d. STARFI pólitíkusa. Þetta átta allar aðrar þjóðir sig á. Hættum að persónugera þetta og svarið frekar þeim rökum sem eru að baki slíkri ákvörðun - ekki bara hér heldur alls staðar annars staðar.

SO
08.09 2009 kl.12:20

Ja hérna! Hvað heldur maðurinn að hann sé? Er þetta hið Nýja Ísland? Þetta er í takt við hina ráðamenn þjóðarinnar sem fela sig í fílabeinsturnum sínum þessa dagana. Jóhanna hefur ekki sést lengi eða eiginlega enginn samfylkingarráðherra og eini maðurinn sem sést hjá VG er Steingrímur.
Við höfum farið úr öskunni í eldinn :(

Spotti
08.09 2009 kl.12:25

Rétt Magnús. Það er eðlismunur á ÖLLUM STÖRFUM. Takk fyrir að leggja áherslu á þetta atriði.

skussinn
08.09 2009 kl.12:47

Hvernig er þetta hjá öðrum 300þús manna þjóðum?

Jótland
08.09 2009 kl.12:51

Gaukur í Fílabeinsturni ósnertanlegur á ofurlaunum við að bulla tóma vitleysu og þvaður, ætli merki Seðlabnkans innihaldi bráðum hamar og sigð?

Jón Erlingur Jónsson
08.09 2009 kl.13:00

Þetta er að ég held alveg rétt hjá Má. Það er mikilvægt að skilaboð frá Seðlabanka séu skýr og skilmerkileg og öllum (jafn) aðgengileg. Þau þurfa að vera úthugsuð m.a. til að bjóða ekki upp á misskilning. Seðlabanki á að gera góða grein fyrir rökstuðningi fyrir ákvörðunum sínum og það þarf að koma fram ef ágreiningur er innan bankans um ákvarðanir (það endurspeglar óvissu um ástand eða horfur)

Seðlabankastjóri á hins vegar ekki að blaðra út og suður í fjölmiðlum.

Magnús
08.09 2009 kl.13:07

Eðli Starfs seðlabankastjóra ræðst ekki í grundvallaratriðum af stærð samfélagsins. Nákvæmlega sömu rök gilda hér og annars staðar, þ.e. að orð seðlabankastjóra hafa áhrif á markað. Ákvarðanir eru teknar af yfirveguðu ráði og síðan kynntar formlega. Á slíkum kynningarfundum er síðan opnað fyrir umræðu þar sem allir hafa jafnan og opinn aðgang með spurningar.

Það eru fullt af störfum hér á landi þar sem orð eru dýr og samtöl við frétta- og blaðamenn eru takmörkuð. Dæmi, læknar og aðrir sem höndla með persónuleg gögn. Ráðuneytisstjórar veita td einnig ákaflega sjaldan viðtöl enda starfa þeir yfirleitt í nánu sambandi við viðkomandi ráðherra. Í þessum störfum gilda sömu rök og annar staðar og það gengur ekki að segja við lækni - ja við búum í svo litlu samfélagi að trúnaðarsamband læklnis og sjúklings eiga ekki við. Ég er ekki að segja að seðlabankastjóri sé í sömu stöðu og læknir gagnvart sjúklingi heldur er ég að segja að EÐLI starfa hér á landi lúta sömu rökum og eðli starfa erlendis.

Hættum að krefjast sérmeðferðar á Íslandi... hegðun okkur eins og fullþroska þjóð.

Benedikt Sig Kristjánnsson
08.09 2009 kl.13:09

Þegar ráðamenn siguðu lögreglunni á okkur við Rauðavatn var friðurinn úti
Hér gilda ekki ein lög hér býr ekki ein þjóð.
Hér búa ræningjar sem eru hafnir yfir lög og rétt með aðstoð húskarla sinna.
Aðal húskarlinn og klappstýra þeirra er Óli Grís.

Vesaldómur ef íslendingar losa sig ekki við svona spjátrunga.

Númi
08.09 2009 kl.13:09

hvað í ósköpunum þýðir hofmóður?

Bóas
08.09 2009 kl.13:26

Úr Kastljósviðtali fimmtudaginn 20. ágúst 2009.
Þóra Arnórsdóttir ræðir við Má Guðmundsson nýráðinn seðlabankastjóra.
Umræðuefnið í þessum hluta viðtalsins er gengismál (einkum gjaldeyrisforði).

Már Guðmundsson:
Það þarf hugsanlega að vera virkari á gjaldeyrismarkaði heldur en menn voru. ..... Þegar mikið gjaldeyrisinnstreymi kaupa þá gjaldeyrinn, og svo þegar kemur útflæði þá selja hann.

Þóra Arnórsdóttir:
Það þarf þá að hafa nægan (gjaldeyris)forða til.

Már Guðmundsson:
Nei, þetta er ekki spurning um forða. Þetta er spurningin um að að að hérna að að sko þú, þú lætur forðann sveiflast eftir, eftir hagsveiflunni, nú það hversu mikið þú gerir ræðst auðvitað af forðanum. En Íslendingar þurftu ekki forða til þess að kaupa gjaldeyri á árunum 2005-2006. Þá höfðu þeir byggt upp (gjaldeyris)forða. Og þeir höfðu keypt þetta fyrir íslenskar krónur.

Þessi síðasta hugleiðing Más en æði torskilin.
1. Þetta er ekki spurning um forða. En hversu mikið keypt er ræðst auðvitað af stærð forðans.
2. Íslendingar þurftu ekki forða til að kaupa gjaldeyri. Þeir áttu forða og höfðu m.a.s. keypt hann fyrir íslenskar krónur.
Um 1. er það að segja að þarna segir Már að þetta sé ekki spurning um forða heldur sé þetta spurning um forða. Þessi tautología virðist aðeins sett fram til að setja spyrjandann út af laginu.
Um 2. er það að segja að það þarf ekki forða til að kaupa gjaldeyri þegar menn eiga forða (sic!). Þetta er einnig tautología.
Bæði þessi svör Más eru óskiljanleg og lýsi ég fullri samúð með spyrjandanum, sem hefur væntanlega verið skapi næst að lýsa því yfir að keisarinn væri ekki í neinum fötum. En slíkt gerir ekki fullorðið fólk, einungis börn.

snjólfur nafnlausi
08.09 2009 kl.13:32

Vandamál Íslands hefur verið að hér hefur ekki ríkt nein fagmennska á neinum sviðum. Fólk hefur verið að fúska.

Rétt hjá Má, gera þetta almennilega og eftir settum leiðum. Þegar Seðlabankastjóri er á kafi í reikningsmódeli eða að lesa merkilega grein sem gæti hjálpað okkar aumu þjóð, þá á hann ekki að þurfa að eyða tíma sínum í að svara spurningum þessara aumu blaðamanna sem við Íslendingar eigum.

Davíð svaraði engum spurningum heldur. Hann fæst aldrei í nein viðtöl nema við vel valda menn sem þora ekkert að spyrja hann að neinu sem máli kemur. Sjáið þið fyrir ykkur Davíð í HardTalk??? Nei aldrei.

halli
08.09 2009 kl.13:44

jú, í löndum eins og faereyjum og og ödrum smáríkjum, hvar heldurdu eiginlega ad thú sért?

Jóhannes
08.09 2009 kl.13:52

Már er embættismaður og á sem slíkur að starfa í kyrrþey. Mér finnst að betra hefði verið fyrir Íslendinga að Davíð Oddsson Seðlabankastjóri hefði látið minna fyrir sér fara og gæta hófs í yfirlýsingum.

Þurfum við virkilega að hafa Má daglega með séríosinu, soðningunni og sjónvarpssnakkinu?

Einar
08.09 2009 kl.13:56

Hofmóður hofmóðugur, dramb hroki. Prestur í hofi.

Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur
08.09 2009 kl.14:03

Auðvitað er Már haldinn siðfötlun. Það hefur mátt vita það allan tímann. Svo verður innihaldið í hans vinnu og viðbrögðum tengt hans eigin glímu við blaðamenn og umhverfið þar sem hann er að reyna að sanna sig og sýna þjóðinni, að hann sé ekkert háður gamalli þrætubókarlist heimskommúnismans eða annarrar alræðishyggju. Fingurbrjótar hans eru farnir að sýna sig.

Kurious Oranj
08.09 2009 kl.14:14

Algerlega sammála Má. Það er hreint ótrúleg tilætlunarsemi ef blaðamenn ætlast til að þeir hafi aðgang að seðlabankastjóra í tíma og ótíma. Hins vegar fyndist mér að seðlabankastjóri mætti leggja sig eftir því að vera sýnilegri, sérstaklega á óvissutímim sem þessum, jafnvel með reglulegum blaðamannafundum.

SH
08.09 2009 kl.14:15

Var það ekki Már sem hætti í Seðlabankanum þegar DO kom inn? Er þess vegna verið að bera þá tvo saman í frétt Eyjunnar? Hann verður bara að losa sig við númerið sem forverar hans svöruðu fyrst það er svona óþolandi að við viljum fylgjast með og draga fyrir.

Emil i Katthult
08.09 2009 kl.14:41

Már Guðmundsson þú er bara á Íslandi og hér búa bara 320.000 manns.
Ég vona að þú látir ekki titilinn stíga þér til höfuðs.
Heldur látir verkin tala og sínir okkur vinnuveitendum þínum (almenningi) að þú getir náð einhverjum árangri í stað þess að gefa auðvaldinu peninga þjóðarinnar einsog forverar þínir.

vihjalmur
08.09 2009 kl.14:43

Gamli Stalínistinn loksins farinn að sýna sitt rétta andlit , ekki ólíkt Steingrími J. Valdasýkin fer oft illa með men , þessir menn eru sönnun þess.

Carlos
08.09 2009 kl.14:43

Má ekki trufla Má. Hann er önnum kafinn við að endurreisa peningamálastefnuna sem hann kom á fyrir HRUN.

XXX
08.09 2009 kl.14:53

Þetta minnir óneitanlega á þegar Geir Haarde húðskammaði Sindra Sindrason fyrir að sitja fyrir sér á tröppum stjórnarráðsins.

Lúðvík Friðriksson
08.09 2009 kl.15:16

Davíð Oddsson aftur í bankann! eða strax í Forsætisráðherrastólinn!!!

S.Á.
08.09 2009 kl.15:17

Það má segja margt slæmt um Má Guðmundsson, en að hann skorti sjálfsálit, nei, það er ekki satt! Hann er ekki endilega hrokafullur, miklu frekar verulega rogginn.

Ásmar Hannesson
08.09 2009 kl.17:26

Vonandi er þetta óheppilegt svar hjá kallinum spuring hver er hofmóðugri blaðammaðurinn eða Seðlastjóri? Ekki rétt að gefa honum smá tíma til að hreisna eða fylla bankan af seðlum ?

Ólafur
08.09 2009 kl.19:18

Eigi skal höggva!

Elinborg, eignalaus!
08.09 2009 kl.21:29

í engu öðru landi hefði aðstoðar höfundur fv, seðlabankastjóra sem stuðlaði að fallinu verið ráðinn seðlabst.
Hvurn andskotann heldur þetta fríkk að hann sé!! honum væri nær að gefa einhver almennileg svör en að .þykjast of góður til að tala við blaðamenn.
VIÐ BORGUM ÞESSUM FÝR OFURLAUN!
HELDUR HANN AÐ HANN HAFI LEIFI TIL AÐ VERA MEÐ FELULEIK Í VINNUNNI, EKKI Í MÍNUM SEÐLABANKA!!!

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar