Innlent - laugardagur - 12.9 2009 - 10:14

Stöð 2: Forseti ASÍ var í stjórn fjárfestingarfélags sem tvö skúffufélög á Tortóla stofnuðu

gylfiarn.jpgGylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sat í stjórn fjárfestingarfélags í Lúxemborg sem var stofnað í gegnum tvö skúffufélög í skattaparadísinni Tortola. Það var aldrei nein starfsemi í félaginu segir Gylfi sem segist ekki hafa vitað að Tortola hafi blandast inn í stofnun félagsins.

Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Fram kom að félagið Motivation Investment Holding var stofnað í Lúxemborg árið 2000 og hafi Kaupþing í Lúxemborg séð um að stofna það. Það hafi bankinn gert í gegnum tvö félög sem skráð eru á eyjunni Tortola.

Umrædd félög á Tortóla heita Waverton Group Limited og Starbrook International Limited og komu margoft við sögu þegar Kaupþing stofnaði félög í Lúxemborg. Félögin lögðu svo fram 2,5 milljónir íslenskra króna í stofnfé  hins nýja félags Motivation Investment Holding.

Stöð 2 sagði að endurskoðandi félagsins hafi verið  Rothley Company Limited sem sé skráður til heimilis í Road Town á Tortola. Endurskoðunarfyrirtækið og stofnfélögin hafi sama pósthólf á Bresku Jómfrúareyjunum.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, hafi verið einn af fimm skráðum stjórnarmönnum Motivation Investment Holding.

Í samtali við Stöð 2 í gær sagði Gylfi að þegar félagið hafi verið stofnað hafi hann gegnt stöðu framkvæmdastjóra eignarhaldsfélags Alþýðubankans. Félagið starfaði á innlendum fjárfestingarmarkaði og átti m.a. hluti í Hugviti. Til hafi staðið að bjóða starfsmönnum þess upp á kaupréttarsamninga og hafi sú leið verið valin að stofna félag í Lúxemborg þar sem Hugvit var með starfsmenn víða um Evrópu.

Staðsetningin hafi verið valin til að gæta jafnræðis meðal starfsmanna. Haft var eftir Gylfa að hann hafi ekki haft vitneskju um að eyjan Tortola hefði blandast inn í stofnun félagsins. Aldrei hafi verið nein starfsemi í félaginu en það var leyst upp í febrúar á síðasta ári.

68 ummæli

Rita ummæli

Haukur Kristinsson
12.09 2009 kl.10:19

Þessi maður er greinilega mjög svo “mótíveraður”.

eljan
12.09 2009 kl.10:23

Í stjórn hvaða lífeyris- (fjárfestinga)sjóðs sat svo varaformaður ASÍ?

KVERÚLANTINN
12.09 2009 kl.10:28

Það er eins og ég hef alltaf sagt....þessi maður er ólíkindatól.

Og eitt er víst....að þetta fyrirbæri gengur ekki erinda alþýðunnar, það getið þið bókað.

Síðan mætti gjarnan gera athugun á höfði þeirra sem kusu þennan mann yfir sig.

Hvílíkt djók.

P. Bergmann
12.09 2009 kl.10:46

Þú líka Brútus bróðir....

Hlutlaus
12.09 2009 kl.10:51

Þetta bara gengur ekki lengur, ári eftir hrun sitja menn í háum stöðum og eru á engan hátt hafnir yfir grun.
Ég hélt í einfeldni minni að við ætluðum að byggja nýtt þjóðfélag, þjóðfélag uppgjörs og sanngirni.
Við þurfum ekki á þessu að halda akkúrat núna. Það hljóta að fyrirfinnast velmenntaðir einstaklingar án óhreins mjöls í pokahorninu.

H@lli
12.09 2009 kl.10:57

Ég hló við að lesa þetta, hehe.

Hvílíkt djók hehe

Áfram Ísland, land þar sem spilling er engin, land fólksins, alþýðunnar, hehehe.

Nú er bara eftir fyrir Jón og Gunnu að reisa landið við úr rústunum fyrir þessa öðlinga, verkalýðs frumkvöðla og aðra mæta menn fólksins, hehe

GS
12.09 2009 kl.10:58

ESB og áhugi á inngöngu í það stórveldi er lykillinn að allri fjármálaspillingu á Íslandi

sigthor
12.09 2009 kl.11:04

Menn tala um að ekki sé til heiðarlegur stjórnmálamaður á Íslandi, ég velti því fyrir mér hvort að heiðarlegt fólk yfir höfuð finnst á Íslandi...

Þetta er ótrúlegt, ætti þessi maður ekki að segja af sér????
En ég gleymi því, þetta er Ísland, hér segja menn ekki af sér, þeir gegna ábyrgðarstöðum en vita aldrei hvað er í gangi,

HVERNIG ER HÆGT AÐ SITJA Í STJÓRN FYRITÆKIS OG EKKI VITA HVAR ÞAÐ ER SKRÁÐ?????????

Björn Heiðdal
12.09 2009 kl.11:15

Ég vissi ekki heldur að eyjan Tortola hefði blandast inn í stofnun fyrirtækisins.

Ásta B
12.09 2009 kl.11:23

sigthor
12.09 2009 kl.11:04
Segi bara það sama og þú. Manni er hreinlega orðið óglatt að vera hér á landi :(

ES
12.09 2009 kl.11:55

Forseti Alþýðusambands Íslands hreiðrar um sig á Tortólu - án þess að vita af því.

Það þarf eiginlega að senda þessa frétt sem víðast - til að umheimurinn átti sig á því sem hér er að gerast.

Glaumur
12.09 2009 kl.12:07

Tortola, kaupréttarsamningar, skúffufyrirtæki, framkvæmdastjóri ASÍ - allt í sömu frétt. Það kemur manni ekkert á óvart.

ragnhildur
12.09 2009 kl.12:09

Hvar er sleggjudómahjörðin sem lagt hefur undir sig athugasemdadálkana hér á eyunni? Þessi frétt hefði einhvern tíma vakið hana til verka.

Eða er kannski í lagi að fjármagnseigendur í Samfylkingunni dylji slóð sína á Tortola?

guddi
12.09 2009 kl.12:15

Ekki held ég að Gylfi sé spilltur, veit þó ekkert um það. Eina sem mér finnst skrýtið mað ASÍ liðið að það pressar ekki meira á leiðréttingu húsnæðis- og bíla lána.

Fá þann þjófnað til baka, er okkar mikilvægasta kjarabót.

Gabriel
12.09 2009 kl.12:15

Mér persónulega finnst að þar sem Gylfi hefur núna komið við sögu tortola.
Bara það að hægt sé að tengja hans persónu við tortola grafi undan hans tákni sem maður alþýðunar.

Hann á að segja af sér og safna skeggi aftur, það var eitthvað sem hann gat gert af list.

bjarnveig
12.09 2009 kl.12:21

Viljum við svona mann í forystu ASÍ

Þröstur Halldórsson
12.09 2009 kl.12:32

Það vakna upp fleiri spurningar við þessa frétt t.d. langar mig til að vita hvort hann Gylfi Arnbjörnsson sitji í fleiri fyrirtækjum og þá hvaða?

fannarh
12.09 2009 kl.12:36

hvað ætli margir aðrir í Samfó hafi setið í stjórnum skúffufyrirtækja og þegið fyrir það fé?

Raggi noname
12.09 2009 kl.12:42

Þarna kemur skýringin á því hvers vegna ASÍ hefur legið undir þungri gagnrýni fyrir aðgerðarleysi. Félagsmenn líða fyrir það að forystan hefur ekki þorað að beita sér vegna hræðslu við að sannleikurinn komi í ljós.

Alveg ljóst að kjósa þarf nýja forystu hið bráðasta.
Kalla eftir neyðarfundi.

gabriel
12.09 2009 kl.12:52

Hvað getur einn maður sinnt mörgum stöðugildum.

Efast um að venjulegur verkamaður geti farið hingað og þangað um bæin og sinnt hinu og þessu, samt þurfa samt að skila 8kl vinnudegi.

Frétt af visi.is
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, hefur ekki lækkað laun sín frá því að bankahrunið varð að veruleika í byrjun október.

Í viðtali í Kastljósinu í kvöld sagðist Gylfi hins vegar hafa ákveðið að gegna starfi framkvæmdastjóra ASÍ samhliða forsetastarfinu. Gylfi sagðist vera með um eina milljón króna í laun á mánuði. Hann hafnaði því algerlega að hann skammtaði sjálfum sér laun. Það væri nefnd á vegum ASÍ sem ákveddi hvaða laun hann fengi en ekki hann sjálfur.

Nefndin hafi óskað eftir því að hann tæki að sér framkvæmdastjórastarfið samhliða því að gegna embætti forseta. Gylfi var kjörinn forseti ASÍ í lok október á síðasta ári.
http://www.visir.is/article/20090324/FRETTIR01/544802984/undefined

Oddur Guðmundsson
12.09 2009 kl.13:01

Það þrengist hringurinn um þennan Samfylkingarmann.
Segðu af þér Gylfi.
Frá því að Gylfi var kjörinn til embættis forseta ASÍ hefur álit manna á ASÍ batteryinu snarminnkað enda gengur það nú svo til eingöngu erinda Samfylkingarinnar og atvinnurekenda.
Ætlar Gylfi að ákveða hvaða fyrirtæki eru lífvænleg og eiga að fá styrk úr LÍFEYRISSJÓÐUM OKKAR?
Burtu með Gylfa.
Tiltrú manna á verkalýðsfélögunum er þverrandi. Enda hefur Gylfi og megnið af stjórn ASÍ gert þá fáu verkalýðsformenn sem STANDA sig fyrir sitt fólk, hornreka innan verkalýðshreifingarinnar.
Eina félagið sem stendur uppi í hárunum á Gylfa og kumpánum er Verkalýðsfélag Akraness. Eina félagið sem hefur látið í sér heyra.
Eina félagið sem vinnur fyrir sitt fólk. Allavegana heyrist ekki tíst í öðrum félögum. Enda hefur Vilhjálmur Birgisson ekki beigt sig undir ofurvald
Don Gylfa frá Tortula.

Kolla
12.09 2009 kl.13:01

@ Raggi noname
12.09 2009 kl.12:42
Einmitt! Þögnin úr sölum ASÍ var æpandi þegar fólk sameinaðist á Austurvelli sl. vetur og krafðist þess að spillingunni yrði vikið burt. Það sést nú hver ástæða aðgerðaleysisins var; forseti sambandsins á kafi í helv.... spillingu sjálfur.
Vík burt Satan!

ala
12.09 2009 kl.13:06

Einn helsti stuðningamaður fyrverandi Borgarstýru

Kristján Kristjánsson
12.09 2009 kl.13:12

Ætli Gylfi sé nokkuð í sveitarstjórn á Tortolu.
Maður spyr nú bara svona aulalega, því ævintýrin komast hvergi nærri Íslenska raunveruleikanum hvað uppátæki varðar.
Hér virðist ríkja ringulreið á öllum mögulegum og ómögulegum sviðum.

Græðgi hömluleysi og oflátungsháttur.

GG
12.09 2009 kl.13:33

Og þessi maður er fulltrúi alþýðunnar? Segðu af þér Gylfi !

Margrét S.
12.09 2009 kl.13:51

Burt með Gylfa Arnbjörnsson!

Hann hefur ekki verið maður alþýðunnar. Hann hefur varið hagsmuni fjármagnseigenda eingöngu. Þessi maður semur um lúsarlaun fyrir verkalýðinn og vill ekkert gefa eftir í verðtryggingunni. Hann er varðhundur verðtryggingarinnar númer eitt. Gylfi er sjálfur á himinháum launum við að gera nákvæmlega ekkert annað en að sitja nokkra kaffifundi á mánuði. Í UMBOÐI OKKAR ALÞÝÐUNNAR og við greiðum honum launin, munum það.

Gylfi og restin af elítunni í ASÍ hefur enga hugmynd um hvernig er að lifa af venjulegum launum. Hann hefur ekki komið á Austurvöll til að standa með verkafólki og íbúðarlánaþrælum sem komu á Austurvöll til að hlusta á ræður og krefjast réttlætis.

Það þarf að endurnýja algjörlega í verkalýðshreyfingunni. Þetta fólk er á alltof háum launum og hefur bara getað hallað sér aftur og beðið eftir að verðtryggingin reddi öllu fyrir það. Það hefur ekkert þurft að hafa fyrir neinu undanfarin ár. BURT MEÐ ÞESSA VERKALÝÐSFORYSTU. ÉG ER LÖNGU BÚIN AÐ FÁ NÓG!!

Jón
12.09 2009 kl.14:30

Gylfi heldur að hann eigi lífeyrissjóðina hans persónulega fé. Verslunarmanna félag Reykjavíkur er nú beðið um að hætta að borga fé til AS’I. og greiða samtökunum Heimilin það fé sem þeir borga til AS’I
Þar er kraftur og þor. Held að þar líti fólk á lífeyrissjóðina sem sameign. En ekki einkaeign útvaldra. Hver er til í að borga fólki laun til að sjá um að lífeyrissjóðirnir ávaxtist um fimm prósent í sjö ár og tappi svo 50 prósentum á sjö ára fresti
Vaknið gott fólk

Jarl
12.09 2009 kl.14:30

Gylfi er sá sem stjórnar því hvort verðtryggingin sé afnumin eður ei, allt í samráði við spillingargengið í Samfó. Tengsl hans við lífeyrissjóðina eru skuggaleg og viðskiptalífið almennt. Sterk tengsl eru á milli Gylfa og Gunnars Páls fv. formanns VR., rekja má fjölda fyrirtækja þeirra á milli um allan heim, enda er Eva Joly ekki að fá heilan her hingað til lands frá Bretlandi að ástæðulausu.

Grímur Kjartansson
12.09 2009 kl.14:44

Er enginn endir á þessum spillingarmálum
Er virkilega enginn með hreinan skjöld
Hvenær varð það almennt viðhorf á Íslandi að heiðviðrit fólk væru asnar
maður skammast sín fyrir að hafa ekki fylgst betur með
þá byggi maður sjálfsagt erlendis í dag

Margrét S.
12.09 2009 kl.15:04

Við þurfum auðvitað öll á því að halda, við launafólkið, að hér séu starfræktir Lífeyrissjóðir sem fjárfesta varlega og af viti. Það sem ég vil meina með þessari víðtæku verðtryggingu að þá þurfi þessir aðilar, Lífeyrissjóðir og verkalýðsfélög ekkert að hafa fyrir hlutunum, verðtryggingin sér um að sjóðirnir eru ávallt með belti og axlabönd. Þá skiptir engu máli hvernig þeim er stjórnað því verðtrygginginsem meira að segja hækkar lánin þegar áfengi og tóbak er hækkað í forvarnarskyni sem þýðir að þeirra sjóðir tútna sífellt út.

Einnig þegar skattar, t.d. fasteignaskattar hækka, þá hækka lánin líka sjálfkrafa því þá hækkar “kostnaður af að búa í húsnæði” sem aftur hækkar neysluvísitöluna.

Verkalýðshreyfingin og ASÍ þeir vilja hafa þessa víðtæku verðtryggingu. Það gerir það að verkum að þeir geta kjaftað á kaffifundum og þeir þurfa engar áhyggjur að hafa af Lífeyrissjóðunum.

En núna er komnir nýir tímar. Nú þurfa þessir stjórar hjá Lífeyrissjóðum og verkalýðsfélögum kannski að fara að athuga sinn gang því fólkið er að vakna og sjá hvers konar spillingaröfl og ofurlaunapakk hefur verið á spenanum hjá þessum félögum.

Elías
12.09 2009 kl.15:15

Því líkt og annað eins rugl. Burt með þennan mann í hvelli úr hreyfingunni.

ÞE
12.09 2009 kl.15:22

Ætlið þið að leyfa honum að sitja áfram?
Hvenær verða hagsmunir almennings látnir ráða?
Á endalaust að kaupa bullið um það að við þurfum verðtryggingu annars drepum við lífeyrinn okkar? Er ekki komin tími á að lífeyrissjóðirnir læri að ávaxta sitt pund án þess að almenningur haldi uppi ávöxtun með ólum og axlaböndum?

Hvenær er nóg orðið nóg?

oo
12.09 2009 kl.15:42

Ég sé ekki glæpinn

Hann er í stjórn fyrirtækis fyrir 8-9 árum síðan og hættir í henni fyrir 7 árum. Fyrirtækið útfærir valréttarsamning fyrir alla starfsmenn, hérlendis og erlendis og ætlar að nota félag í Lux fyrir það það er síðan hætt við þetta og félagið er aldrei starfrækt.

Hvar er glæpurinn – það er ekkert að hér nema starfsaðferðir Kaupþings við skráningu félaga í gegn um einhver skjól, Gylfi er varla ábyrgur fyrir því.

Elín Erna Steinarsdóttir
12.09 2009 kl.15:45

,,Aldrei hafi verið nein starfsemi í félaginu en það var leyst upp í febrúar á síðasta ári”.

Til hvers þarf stjórn yfir félagi sem ekki er nein starfsemi í? Kannski til að fá laun fyrir stjórnarsetuna?

ASÍ hefur enga þörf fyrir fólk sem hefur ekki meiri dómgreind en þetta. Almenningur hefur orðið fyrir allt of miklu tjóni vegna allra þessara skúffufyrirtækja og svindls sem viðgengist hefur hér á landi.

Maðurinn á að segja af sér strax.

oo
12.09 2009 kl.15:53

Hann hættir í stjórnum fyrir 7 árum, hann amk. er ekki að fá stjórnarlaun. Það er alvanalegt að félög sem ekki eru í rekstri séu ekki lögð niður strax.

Laggo
12.09 2009 kl.15:59

Já ég er sammála ykkur, látið jólasveininn fara. VR gerði hreinsun hjá sér fyrr á þessu ári og það þarf greinilega að losna við þetta sníkjudýr úr ASÍ.

Margrét S.
12.09 2009 kl.16:11

@ oo

Það er ekki verið að tala um einhvern glæp hérna. Heldur frekar siðleysi.

Maðurinn hefur sýnt á umliðnum 12 mánuðum síðan hrunið varð að hann er vanhæfur sem fulltrúi okkar launafólks.

Við verðum að hafa heiðarlegt toppfólk í verkalýðsbaráttunni.

Ekki fólk sem gengur erinda skúffufélaga og fjármagnseigenda. Hann hefur eingöngu beitt sér fyrir fjármagnseigendur og ég vil hann burt og það strax.

Margrét S.
12.09 2009 kl.16:16

Þetta stendur í fréttinni og er haft eftir Gylfa:

“Til hafi staðið að bjóða starfsmönnum þess upp á kaupréttarsamninga og hafi sú leið verið valin að stofna félag í Lúxemborg þar sem Hugvit var með starfsmenn víða um Evrópu.

Staðsetningin hafi verið valin til að gæta jafnræðis meðal starfsmanna. Haft var eftir Gylfa að hann hafi ekki haft vitneskju um að eyjan Tortola hefði blandast inn í stofnun félagsins. Aldrei hafi verið nein starfsemi í félaginu en það var leyst upp í febrúar á síðasta ári.”

FÉLÖG Í LUXEMBURG!! Við vitum öll til hvers félögin voru stofnuð í Luxumburg. Luxemburg er eitt besta skattaskjól Evrópu. Gylfi er í stjórn félagsins og HANN ÞYKIST EKKI VITA AÐ ÞAÐ HAFI VERIÐ SKRÁÐ Á TORTOLA OG Í LUXEMBURG. Bíðið við, ætlið þið að segja mér að Gylfi hafi bara EKKERT vitað um þetta sem stjórnarmaður???

Common,........ við erum ekki fífl.

Margrét S.
12.09 2009 kl.16:18

@ oo

Hvernig veist þú að hann hætti í stjórnum fyrir 7 árum. Hann var skráður stjórnarmaður þangað til í febrúar 2008. Hann segir að engin starfsemi hafi verið í félaginu..... ok þetta var skúffufélag, það getur samt verið að fjárfesta.

vestarr lúðvíksson
12.09 2009 kl.16:40

Ógeðslegt, enda maðurinn með margföld laun verkamanna og kvenna. burt með hann !

Atli
12.09 2009 kl.17:03

Þetta gæti skýrt hvers vegna ASÍ ver verðtrygginguna með kjafti og klóm.

Whatsername
12.09 2009 kl.17:19

oo:
“það er ekkert að hér nema starfsaðferðir Kaupþings við skráningu félaga í gegn um einhver skjól, Gylfi er varla ábyrgur fyrir því.”

Ef þú ert framkvæmdastjóri eða situr í stjórn félags, þá berð þú ábyrgð á starfsemi þess. Grundvallarhlutur eins og hvar félagið er skráð er hluti af því.

Algjörlega sammála Margréti S. hér að ofan.
Staðsetning í Luxemborg “valin til þess að gæta jafnræðis meðal starfsmanna” já já einmitt. Og hefur ekkert með það að gera að Lux er - eins og allir vita og hafa vitað lengi - skattaskjól þar sem bankaleynd er eins og trúarbrögð.

Hvar hefur verið sýnt fram á að hann hafi hætt í þessari stjórn fyrir 7 árum og ekki þegið greiðslu fyrir stjórnarsetu?

Burt með þennan mann úr ASÍ og það strax!

Örn
12.09 2009 kl.17:26

Bless Gylfi Arnbjörnsson

Ganti
12.09 2009 kl.17:43

Gylfi Arnbjörnsson er refur í grárri sauðargæru.

Magnús Ólafsson
12.09 2009 kl.18:03

BURT MEÐ ÞENNAN MANN!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Guðrún
12.09 2009 kl.18:44

Gylfi tengdur tortóla
Magnús í stjórn seðlabankans að gefa ráð um gjaldeyrisviðskipti.
Gamli bankastjórinn í seðlabankanum nú ráðinn í skjaladeild seðlabankans aftur ( á hann yfirleitt að koma nálægt gömlum skjölum og vinnuplöggum seðlabankans.) ?
Útrásarvíkingarnir ekki á flæðiskeri staddir bara að fjárfesta áfram og fá felldar niður skuldir.
Ekkert bólar á björgun heimilanna eða bættum kjörum almennings og búast má við uppsögnum hjá hinu opinbera þegar líður á haustið.
Niðurstaða allra þessara mála er sú að spillingin grasserer hér ennþá og mafían sér um sína en þjóðinni blæðir. Takk allir mér er að verða þetta ljóst.

Guðmundur Guðmundsson
12.09 2009 kl.19:38

Þetta er enn eitt dæmið um niðurlægingu verkalýðsforystunnar.

Formaður VR, Gunnar Páll Pálsson, vélaði um risabónusa og kúlulán í stjórn Kaupþings. Launfólk er nú að súpa seyðið af þeirri ráðdeild.

Forveri Gylfa, Ari Skúlason, munstraði sig í Landsbankann. Almenningur verður næst árin að moka skítinn eftir hann.

Og Gylfi sat í stjórn skúffufyrirtækis áður en hann varð forseti ASÍ! Hann er svo fullkomlega vanhæfur verkalýðsforingi að það hlýtur að vera heimsmet.

S.Á.
12.09 2009 kl.19:53

Ætlar hann ekki að “axla ábyrgð” og segja af sér án tafar eða þarf að bíða eftir næsta ASÍ þingi, og þá sjá, hvort hjörðin sem þar situr sé nógu sjálfstætt hugsandi til að segja honum upp? Foringi ASÍ, hvílíkur brandari! Ég efast um að hann fái starf í Brüssel eftir þessa uppákomu eins og hann hefur dreymt svo vota drauma um.

HG
12.09 2009 kl.19:59

Hversu lengi ætla Íslendingar að sætta sig við allskonar fyrirbæri sem virðist

ekki þola dagsljósið ?

Þetta verður ALLT gleymt þegar ´byrjað verður á næsta ÁLVERI eða því þarnæsta.

Hvað er að þessari þjóð ?

has
12.09 2009 kl.20:24

Þetta er bara enn einn útrásarvíkingurinn, það væri gaman að sjá hvort hann hafi notið góðs frá bönkum og lífeyrissjóðum svo sem lán og aðra fyrirgreiðslu, skyldi hann geta sýnt framá að hafa ekki misnotða sér aðstöðu sína ? Ég skora á hann að sýna okkur það.

Gunnar
12.09 2009 kl.21:12

Gylfi segi af sér hið fyrsta.

Kalli
12.09 2009 kl.22:47

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sat í stjórn fjárfestingarfélags í Lúxemborg sem var stofnað í gegnum tvö skúffufélög í skattaparadísinni Tortola.

Þessi maður poppar upp annaðslagið og er hneigslaður á aðgerðaleysi.
Þvílík endaleisa hvað hefur hann gert ?

Allir vinnandi menn hljóta að spyrja sig, er þetta maður sem vinnur fyrir
okkur ?

ninni
12.09 2009 kl.23:17

Segja af sér öllum trúnaðarstörfum fyrir verkalýðshreifinguna, öðruvísi verður ekki sátt hjá verkafólki við ASÍ.

Margrét S.
12.09 2009 kl.23:27

Ég hvet ykkur öll til að skrifa verkalýðsfélögum ykkar tölvupóst þar sem þið hvetjið þá til að segja upp aðild að Alþýðusambandi Íslands. ASÍ batteríið er gjörspillt og vinnur eingöngu fyrir fjármagnseigendur. Félagsaðild að ASÍ er líka mjög dýr. T.d. borgar V.R. 75 milljónir á ári til ASÍ. Ég vil ekki borga laun Gylfa lengur. Gerið ykkur grein fyrir því að það er launafólkið, við, sem borgar ofurlaunin fyrir verkalýðsforingjana. Það eina sem hefur komið frá þeim síðan bankahrunið varð er stöðugleikasáttmáli um nákvæmlega ekki neitt, verðlaust plagg sem var búið til á nokkrum kaffifundum til að friða þrælana.

Ég er búin að fá gjörsamlega nóg af Gylfa Arnbjörnssyni og vil hann burt sem allra fyrst úr forystu verkalýðshreyfingarinnar.

Stefanía Stefánsdóttir
13.09 2009 kl.01:03

Þessi maður er ekki að vinna fyrir okkur, hann er bara eins og hinir raftarnir sem hafa verið í vinnu við að skara að eigin köku, það er alveg ótrúlegt hvað er mikið af óprútnu og gráðugu fólki til á Íslandi, sérstaklega nú síðustu ár.

Krían
13.09 2009 kl.02:26

Og enn vellur flórinn....

SG....
13.09 2009 kl.07:17

Ég hef aldrei treyst þessum Gylfa Tortola Arnbjörnssyni, forseti ASÍ,,þannig að mér kemur ekkert á óvart þó hann sé með báða fætur á kafi í skíta haugnum,,,,Gylfi Tortola lætur verkin tala,,,eða hvað?

albert
13.09 2009 kl.08:44

Hann verður að hætta og einnig útrásardóttir forsetans.
Hvað varð um verkalýðsforystuna???
Allir verkalýðsforingjar a kafi í sukki lífeyrissjóðanna.

Sjonni
13.09 2009 kl.09:03

Það er ekkert skrítið að það gerist EKKERT í málum fólks í landinu.. því það eru 2 stéttir hér í landinu..

Spillingar stéttin sem ekkert vill að komi upp á yfirborðið.. og vilja halda öllum sýnum leyndarmálum um sukkið fyrir sig til að geta haldið áfram að sukka ..

og síðan

Eru það þeir sem borga brúsann.. og get ekkert annað

Gunna
13.09 2009 kl.09:06

Einhvern veginn hefur mér aldrei fundist Gylfi vera talsmaður verkalýðhreyfingarinnar. Mér hefur alltaf fundist hann sitja hinum meginn við borðið. Hann er algerlega úr takt við grasrótina, situr í fílabeinsturni og horfir niður á hina vinnandi stétt.

Hanna
13.09 2009 kl.09:11

Sammála Margréti S. ASÍ er ekkert nema bákn sem hirðir peninga af launafólki. Verkalýðsforystan hér áður fyrr vann fyrir fólkið, enda voru verkalýðsleiðtogar þess tíma að vinna af hugsjón, ekki græðgi, eins og nú er. Þeir voru á sömu launum og allir hinir, á sama báti. Nú sitja þessir leiðtogar í fílabeinsturni og sjá enga ástæðu til að vinna að betri kjörum hinnar vinnandi stéttar, vegna þess að þeir hugsa bara um eigin rass. Svei þeim!!

RSG
13.09 2009 kl.09:21

Á tíma þar sem laun hafa rýrnað um helming, miðað við rýrnun krónu
á aðeins einu ári - allt hækkar nema laun.

Þá er brýn þörf á almennilegum Verkalýðsforingja, sem slær í borðið !!!

Okkar Íslendinga er Gylfi sem er einnig hálaunaður verkalýðsforingi -
Hann hefur þó ekki tíma til að berjast fyrir rétt launafólks í landinu.

Það sem hefur hug hans eru eigin skúffufyrirtæki á Tortola og í Lúxemborg,

Þykist þó koma ofan af fjöllum þegar blaðamaður spyr og fer að bendla Hugvit við þetta, skattaskjól fyrir starfsmenn Hugvits, til að beita jafnræðis milli starfsmanna Hugvits.
(Má ekki gleyma að Gylfi stofnaði Hugvit og er í stjórn fyrirtækis)

Skítalykt af þessu, sannleikann á borðið Takk.

Bregolas
13.09 2009 kl.12:41

Það eina sem hefur heyrst frá ASÍ er kvak um inngöngu í ESB. Þar enduróma
þau málflutning húsbónda sinna í samspillingunni.

Ómar Torfason, sjþj.
13.09 2009 kl.13:14

Þetta er eilítð merkileg umræða.
Það er sem mál Gylfa komi mönnum í opna skjöldu. Það var í gildi almennt fjárfestingarfyllirí, þeir náðu mestu sem stóðu næst kötlunum. Akureyrarsvæðið lenti svo sem ekki í bólunni nema hvað þáverandi bæjarstjóri sýnist mér hafa makað krókinn duglega.
Það er ekki í mínum verkahring að ákveða lögformlegheit eða lögleysi hlutanna. Hins vegar tel ég fyllilega í mínum verkahring að tjá mig um siðferði. Löglegdt en siðlaust? Gott og vel, en burt með hann samt. Hann kom ekki fram eftir hrunið og upplýsti um hluti heldur kom fram fyrir alþjóð sem ekkert væri. Hann er þannig að mínu mati engu skárri en þeir sem gengu og ganga enn beint i skrokk á þjóðinni.
Ég vil að Stóru-Tjarnarskóli, Þingeyjarsýslu, verði gerður að fangelsi til hýsingar þeim sem níðst hafa án yfirbótar á þjóðinni .
Henda má klefalyklinum í Ljósavatn.

OJ
13.09 2009 kl.15:27

Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hvernig þetta píramítasvindl virkar. Flest allir sem hefður átt að stoppa það og standa vörð um hagsmuni almennings hafa fengið einhverjar sponslur í formi stjórnarsetu, hárra launa, bónusa, fjárhagsstuðning til framboðs, fá far með einkaþotunni, boð í veislur, lán með verði í hlutabréum langt umfram 50% veðsetningarhámarkið, o.s.frv. Síðan sá ríkisstjórnin og lífeyrissjóðirnir um að bjóða almenning með í píramótaspilið að honum forspurðum. Þekki reynar Gylfa ekki neytt, og veit því ekki hvort hann hafi tekið þátt í spilinu sjálfviljugur

Sóða-Gandur
13.09 2009 kl.16:21

Heyrst hefur að kröfuhafar bankanna séu Íslendingar sem hafa keypt kröfurnar á slikk af bönkum erlendis. Sömu leikmenn og voru áður í hrunaspilinu kaupa allt bakdyramegin.

Bragi
13.09 2009 kl.23:55

Krefjumst nýrra kosninga hjá ASÍ, strax.

gerber
14.09 2009 kl.09:25

Síðan þú fórst hef ég verið með magakveisu,
Skildir ekkert eftir nema þessa peysu
Verst finnst mér þó að núna ertu með honum
Veistu hvað hann hefur verið með mörgum konum?
Svo farðu bara, mér er alveg sama
Ég þoli ekki svona barnaskóla drama
Ég ætla að pakka í töskurnar og flytja til
tortola
tortola

Allar stelpurnar hér eru í bikiní
Og ég er búinn að gleyma peysuflíkinni
Ég laga hárið og sýp af stút
Búinn að gleyma hvernig þú lítur út
Í spilavítinu kasta ég teningum
Í fyrsta sinn á ég helling af peningum
Borga með einhverju korti frá þér
Sem ég tók alveg óvart með mér til
tortola
tortola
tortola
tortola

Alla daga ég sit hér í sólinni
Minnugur þess þegar ég var í ólinni
Þú sagðir mér þá að þrífa og þvo
Meðan í takinu hafðir tvo
Núna situr þú eftir í súpunni
Ófrísk og einmana, alveg á kúpunni
Og þennan söng hef ég sér til þín ort
Og ég vona að ég fái kort til
tortola
tortola
tortola
tortola
tortola

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar