Innlent - sunnudagur - 11.10 2009 - 01:29

Sparnaður í utanríkisþjónustu: Sendiherrahjónin í Höfn fluttu úr 800 fermetra bústað í 680 fm

sendiherrabustadurkaupannah.jpg

Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, og eiginkona hans, frú Guðrún Ágústsdóttir, hafa flutt úr 800 fermetra bústað sínum í borginni í 680 fermetra lúxusvillu við Fuglebakkevej á Friðriksbergi.

Eldri bústaður sendiherrahjónanna var seldur í fyrra fyrir 653 milljónir króna. Nýi bústaðurinn kostaði 256 milljónir með endurbótum þannig að íslenska ríkið græddi um 400 milljónir króna á sölunni. Fjárhæðin hefur verið lögð í ríkissjóð.

Frá þessu er greint í sunnudagsblaði Morgunblaðins.

60 ummæli

Rita ummæli

olaf
11.10 2009 kl.01:36

æi verða hjónakornin að sætta sig við 680 fm. :)
Er ekki hægt að halda veislurnar í sendiráðinu sjálfu ?

Baldur
11.10 2009 kl.01:38

Þetta verða náttúrulega ægileg þrengsli.

Jón
11.10 2009 kl.01:47

hey, loka sendiráðinu og spara 256 millur í viðbót!!! Danir vilja ekkert við okkur tala hvort eð er.

Rómverji
11.10 2009 kl.02:03

“frú Guðrún Ágústsdóttir.”

Er búið að aðla Svavar Gestsson? Hann kynni því ágætlega. Ekkert er snobbaðra og heimóttarlegra undir sólinni en íslenskur “alþýðuvinur”. Nema ef vera skyldi fullkomlega getulaus ritstjóri með megalomaniu.

IceViking
11.10 2009 kl.02:03

Hvað kostar að gera langtíma leigusamning og selja bara allt draslið ?

Hvað er Svavar Kommi svo með í laun ?

veffari
11.10 2009 kl.02:05

Þetta nýja hús er auðvitað allt of lítið. Það dugar jú ekkert minna en hlaða fyrir þessa tegund af hænsnum.

Kolla
11.10 2009 kl.02:07

Æ, æ, hvar eiga þjónarnir þá að hýrast? Í hænsnakofa sendiráðsins kannski?

Hannes
11.10 2009 kl.02:13

Hvernig var það var það ekki Herra Svavar Alþýðu Snobbari sem eyddi tugum milljóna í stóla þegar hann var gerður að sendititti í Kanada um árið, jú bandaríkin vildu hann ekki ofan á allt.

Ef það er rangt endilega leiðréttið mig.

Grímur
11.10 2009 kl.02:16

Ja það er víða hægt að “græða”
Ef til vill ætti maður að kaupa sér Range Rover selja hann og kaupa Skoda þá er maður búinn að “græða” er það ekki?

Hannes
11.10 2009 kl.02:24

@ Grímur.

Tja er ekki vandamálið það að það eru of margir RR til sölu? :P

Kolla
11.10 2009 kl.02:29

Fyrir hverja er öllum þessum sendiskrifstofum haldið uppi? Skattgreiðendur á Íslandi? Varla!

Ísland starfrækir 31 sendiskrifstofu í 23 löndum. Starfsmenn utanríkisþjónustunnar eru um 280, þar af starfa um 180 í Reykjavík og á Akureyri. Um 170 starfa erlendis, þar af eru um 90 frá Íslandi en um 80 eru staðráðnir.

http://www.utanrikisraduneyti.is/utanrikisthjonustan/
http://www.utanrikisraduneyti.is/sendi-og-raedisskrifstofur/islenskar/nr/445

Við eigum að losa okkur út úr þessu og fækka silkihúfum um 90%.

Nonni
11.10 2009 kl.02:53

Er ekki sumarbúðstaður fullgóður handa þeim, ekki myndi ég gráta þó þau fengju tjald, til málamynda. En rassgatið á þeim er víst dýrara en á meðalmanni, að mati stjórnvalda......

L
11.10 2009 kl.03:03

er ekki hægt að líkja þessu við alkahólisma eða spilafíkn ... verðum við ekki að yfirvinna tapið til að þetta geti kallast gróði? ... er ríkið orðið að vogunnarsjóði þar sem menn gera ekki greinarmun á gróða eða tapi?

Stefán Þór
11.10 2009 kl.03:34

Fáránleg frétt. Hún er bæði jákvæð og neikvæð. Jákvæð af því leytinu til að nú er ekki lengur verið að kasta peningum í okurbruðl en neikvæð af því leytinu að það skuli hafa öll þessi ár verið að kasta peningum í okurbruðl og það að okurbruðlið verður bara soldið minna okurbruðl.

Það dugir að hafa eitt sendiráð á Norðurlöndunum. Betur má ef duga skal!!!!!

asi
11.10 2009 kl.03:40

Hverskonar framkoma er þetta gagnvart sendiherrahjónunum?

Ætlar engin að taka ábyrgð á þessu?

Skorrdal
11.10 2009 kl.03:47

Fer það ekki eftir kaupverðinu á sínum tíma, hvort verið sé að græða eða tapa?

asi
11.10 2009 kl.04:07

Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á hvað sem er.

Sendiherrar eru fólk eins og ég og þú.

Af hverju þarf að byrja að níðast á þessu fólki?

L
11.10 2009 kl.04:15

Hættu þessu bulli asi, voru þeir ekki fyrstir í röðinni eins og venjulega ...

Skarphéðinn
11.10 2009 kl.06:24

æi ! skildu þau lifa á grænu !
úr 800 í 680 ha ! þetta er agalegt skildi Steingrímur vita af þessu .

Skarphéðinn
11.10 2009 kl.06:27

afhverju er þessu Sendiráði ekki lokað , er ekki hægt að hafa eitt
sendiráð fyrir öll Norðulönd ,,,,,á ekki að spara !!

spurning
11.10 2009 kl.06:50

Fréttir í ísl. krónur missa gildi sitt, þegar á við eignir í DK. talið þá um dk.kr.

Fermetraverð á FRB. á þessum stað er 35 til 50.000.- dkk. þannig að bústaðurinn hefur lágmark kostað 23.800.000.- = 595.000.000.- miljónir ísl.kr.

Þá til að það leiki engin vafi á þessum tölum og upplýsingar sendiráðs getur blaðamaður farið fram á að fá sölu og kaups * “Skøde” og *”Resultatopgøre” fyrir báðar fasteignirnar.

Þar kemur fram hvaða dag eignirnar voru seldar ? á hvaða verði ?
og hvert / á hvaða ríkisreikning ágóðinn fór.

Allt upp á borðið sendiráð , ef ekkert er að fela.
Það borgar sig ef þið viljið fá rós í hnappagatið frá almenningi.

Hinu opinbera er lítið treyst þessa dagana. Því miður.

*Skøde = Þinglýst eignarskjal
*Reultatopgørelse = Allt uppgjör í kring um söluna.

Sverrir Steinn
11.10 2009 kl.07:06

Hvernig væri nú að skera almennilega niður og fækka þessum sendiherra-embættum almennilega?

Við lifum á tækniöld og þ.a.l er það ekki jafn mikilvægt að halda úti starfsfólki í öllum Norðurlöndunum. Við getum nýtt internetið !!!

Það væri t.d mjög góð hugmynd að halda úti norrænu sendiráði í Kaupmannahöfn og þá sérstaklega vegna landfræðilegrar stöðu Kaupmannahafnar í Scandinavíu. Stutt er þaðan til höfuðborga hinna landanna og þ.a.l mjög fljótlegt að koma sér þangað ef þörf krefur. Svo er kominn tími til þess að ráða fólk, sem kann að nýta sér upplýsingatæknina, í þessi embætti.

Bottom line: Eitt norrænt sendiráð fyrir Skandinavíu = Hörkiu sparnaður í utanríkismálum

Jasper
11.10 2009 kl.07:19

Var ekki hægt að láta Össur með í sölunni þó að við hefðum þurft að lækka verðið hefði það borgað sig

Valur1
11.10 2009 kl.08:01

Enn allavegna þá hlýtur að vera gott að fá svona Danskar milljónir inní ríkisjóð á þegar Íslenska krónan er svona lág.

Hvenær ætlar ríkistjórnin að selja sendiráðið í Bretlandi??

Jorey
11.10 2009 kl.08:01

Það fyrsta sem í huga mér er og ég las fréttina var það sama Grími 02.16.

Skelfing hefði sá blaðamaður sem skrifaði fréttina átt vel heima með Kaupþingsbankaliðinu!

albert
11.10 2009 kl.08:11

Hvað er vandamálið að geta ekki skorið niður um að minnsta kosti 60% hjá utanríkisþjónustunni? Auk þess er aðeins skorið niður um 8% hjá forsetanum sem er vitagagnslaus og rúin trausti þjóðarinnar.

Stone
11.10 2009 kl.08:22

Hvað þarf annað en ágætis skrifstofu góða nettengingu og fjarfundabúnað?
Óþolandi að maður sé endalaust að borga undir svona ríkisplebba sem hreifa ekki á sér rassgatið nema fá greitt úr ríkissjóði. Glæsileg niðurstaða hjá langafa.

KA
11.10 2009 kl.08:23

Það getur vel verið að það sé kanski verið að níðast of mikið á þeim hjónum. Hins vegar er hann gamall stjórnmalakall og kanski með ágætan skráp. Það má líka mynna á að hann er (eða allavega var) mjög mikið til vinstri í stjórnmálum þar sem “allir eiga að vera jafnir”. Nú fyndist mér að hann ætti að hafa miklu meira frumkvæði sjálfur á að húsnæði það sem sendiherrar búi í þurfi ekki að vera svo stórt, mikið og dýrt. Veislur á að halda í þartilgerðum veislusölum sem væntanlega er nóg af í Danmörku. Að leigja svoleiðis eina kvöldstund af og til ætti ekki að vera svo dýrt. Síðan á auðvitað ekki að vera með allt of mikið af veislum. Sendiherrar eru bara ríkisstarfsmenn og eiga ekkert að vera á einhverjum OFSALUXUS hvort það sé Svavar eða hver annar sendiherre. Og þetta er ekkert persónulegt á hann (nema sem maður langt til vinstri í stjórnmálum ætti sjálfur að beita sér fyrir því að ekki sé bruðlað að óþörfu).

Magga maur
11.10 2009 kl.08:38

Hva! Nennti hann að flytja?
Ekki nennti hann að semja um IceSave skrímslið.

Jón Þór
11.10 2009 kl.08:39

Best væri að þetta kommpakk myndi segja sig á bæinn.

Gunna
11.10 2009 kl.08:43

Þau hafa auðvitað ekkert að gera við 680 fm. Þvílíkt bruðl sem hefur viðgengist í þessum sendiherramálum. Skera meira niður og svo mega þingmenn líka alveg borga sjálfir matinn sinn á Alþingi. Er það bara alþýðan sem á að finna fyrir niðurskurðarhnífnum?

vestfirðingurinn
11.10 2009 kl.08:45

legg til að það verði aðeins eitt sendiráð á norður löndonum og það verði haft í noregi.leggja niður öll önnur sendiráð nema kannski í bandaríkjonum.leggja niður forseta embættið þar sem það þykir sannað að að er ekki að gagnast þjóðinni eins og það ætti að gera með að verja hagsmuni hennar td eins og í deilu íslendinga breta og hollendinga greinilegt að þetta er óþarft embætti og bara peninga sóun láta taka öll fríðindi af ríkisstjórninni eins og alla ráðherra bílana hljóta geta keirt á sínum einka bílum í vinnuna eins og almenningur höfum bara ekki efni á þessum fríðindum lengur handa þessari sér réttinda stétt skera niður alla stirki til stjórnmála flokka jú þetta lið er að sækjast eftir þesari vinnu afhverju eigum við almenningur að borga það með hærri sköttum svona mætti lengi telja það sem réttlátara væri að skera niður heldur en íþyngja heimlonum í landinum með hærri sköttum og allskonar niðurskurði og öðrum hækkunum

elias
11.10 2009 kl.09:01

Svo var fók að hneikslast á Hannesi Smárasyni sem lagaði húsið sitt fyrir 350 milljónir. Þetta kommalið er ekkert betra, verra ef eitthvað er því ég efa að þetta lið sé að vinna fyrir kaupinu sínu. skammist ykkar...

BB
11.10 2009 kl.09:01

Sýnir svo greinilega að samfylkingin með vg í eftirdragi er alveg jafn spillt og sjálfst. og framsókn. Það er nákvæmlega enginn munur. Ísland er gjaldþrota og það á að leggja niður utanríkisþjónustuna í núverandi mynd. Hægt að semja við t.d. Dani og hafa ein eða tvo starfsmenn inní í í einhverju ráðuneyti þar. Burt með afdankaða íslenska pólitíkusa sem hafa unnur þjóðinni stjórtjón á sínum ferli. Þeir eiga heldur ekki að fá ofur eftirlaun, heldur það sama og almenningur verður að gera sér að góðu.

Magga maur
11.10 2009 kl.09:04

Hvern einasta dag er verið að borga til stjórmálaflokkanna 2 millur.
Alla daga alltaf.
Það þykir alveg sjálfsagt og almenningi sagt að þetta sé nauðsynlegt.
Þetta þarf að skera niður og það strax.

nn
11.10 2009 kl.10:10

Þetta er í takt við allt sem þessi ríkisstjórn gerir að spara aurana og eyða krónunum. Að selja hús á versta tíma á lægsta verði þegar þess er ekki þörf þetta eru smápeningar. Afhverju lokuðu þeir ekki frekar Nýja Kaupthingi eða einhverjum af hinum tæknilega gjaldþrota bönkunum sem eru á fullu við að gera ekki neitt

Þ
11.10 2009 kl.10:19

Það er algjörlega absúrd að halda sendiherrum uppi á norðurlöndunum yfir höfuð. Við eigum í mesta lagi að hafa 3 sendiráð í heiminum. Eitt í Evrópu, eitt í Asíu og eitt Norður Ameríku. Svo geta menn rifist um nákvæma staðsetningu á þessum sendiráðum.

Bahamaeyjar sem eru með um 300.000 íbúa eru með tvö sendiráð! Við erum með 23 sendiráð, auk ræðisskrifstofa og fleira. Kostnaður við sendiráðin á næsta ári er áætlaður tæpir 3 milljarðar.

Það er auðvelt að skera þarna niður, við erum nú þegar með alltof stóra utanríkisþjónustu og stór hluti kostnaðar hennar er í erlendri mynt.

Auk þess hefur það sýnt sig að sendiherrarnir okkar virðast bara vera atorkusamir í skemmtanabransanum en ekki í málsvörnum fyrir land og þjóð í Icesave málinu.

Baldur
11.10 2009 kl.10:34

Tek undir með Þ. Það má auðveldlega skera utanríkisþjónustuna niður um 50-80% enda vita gagnslaus. Einkennilegt að gera það ekki fremur enn að skera niður velferðarkerfið sem ríkisstjórnin ætlaði sér að standa vörð um.

vigga
11.10 2009 kl.10:40

Baldur ! ég er alveg sammála, sendiráð eru gamli tíminn. Það hlýtur að vera hægt að stokka betur upp þar, við þurfum ekki sendiherra, það er bara óþarft snobb. Það er hægt að spara mun meira þarna , hlýtur að vera

Bessi
11.10 2009 kl.11:07

Sendiherrabústaður er að sjálfsögðu ekki bara íbúðarhús, þetta er líka vinnustaður sendiherra.

Mér finnst þetta gott mál að skera svona mikið niður í húsnæðiskostnaði, mér skilst að fleiri sendiráð og bústaðir séu á sölulista og mun hærri upphæðir þar í gangi.

Annars er það spurningin, eru ekki sendiráð bara fortíðin þegar samgöngur voru með skipum og fjarskipti aðeins bréfasendingar sem tóku margar vikur ,þarf ekki nýja Ísland að leggja niður öll sendiráð?..

tverhaus
11.10 2009 kl.11:29

Er þetta refsinginn sem hann fær fyrir ICESAVE... puff puff og puff.....

Þessi maður á að vera í gapastokk niður á austurvelli

KVERÚLANTINN
11.10 2009 kl.11:46

Það er nú gott að vita að ekki væsir um gömlu “félagana” Svavar og Ólaf Ragnar í villum sínum.
Þetta er ábyggilega það sem þeir höfðu í huga fyrir sig þegar þeir gerðust foringjar hinnar undirokuðu Alþýðu.

Erlendur
11.10 2009 kl.11:53

Ég bý sjálfur í danmörku og er að vinna þar, ég var með smá spurningu sem ég átti erfitt með að finna út úr sjálfur og ákvað að nýta mér sendiráðið þar sem það á jú að þjóna íslendingum erlendis hélt ég.

Sendi þeim stutt email, fékk ekkert svar, ítrekaði svo eftir mánuð, þá var ég settur í cc í meili þar sem einn starfsmaður var að forwarda á annan, síðan heyrði ég ekkert meir, síðan eru liðnir 12 mánuðir. Ég gafst náttúrulega bara upp á þessu.

Ég held það sé alveg óhætt að loka bara þessari skrifstofu eða allavega minnka hana til muna, reka hana meira með hinum norðurlandaþjóðunum kannski. Hefur líka að sjálfsögðu dregið til muna úr umsvifum íslendinga hérna og viðbúið að það muni halda áfram.

Önnur góð saga sem ég heyrði af sendiráðinu fyrir nokkrum árum í miðju góðærinu. Þá var ráðin nýr sendiráðsfulltrúi, einstæð kona með eitt barn, hún tók við af fjölskyldufaðir með 5 manna fjölskyldu. Hann hafði haft íbúð til umráða á íslandsbryggju sem er eitt dýrasta hverfið hérna. Nýja konan heimtaði að halda sömu íbúð og 5 manna fjölskyldan hafði haft, allt annað væri jú augljós kynjamismunun!

Þetta er náttúrulega svo mikil vitleysa að það nær ekki nokkurri átt og allt á kostnað íslenskra skattgreiðenda.

Stella
11.10 2009 kl.11:58

Hvað er frúin búin að eiga afmælið?
En í alvöru hvað erum við að gera með þetta? Það hefur sýnt sig að þetta fólk í utanríkisþjónustunni er engu að skila, allaveg hér í Evrópu. Það var deginum ljósar þegar efnahagshrunið skall á, ekkert hefur verið unnið í að byggja upp sterk tengslanet sem héldi þegar á reyndi. Loka öllum sendiráðum í Evrópu takk fyrir.

Sigurður
11.10 2009 kl.12:01

Snobb og afætulýður sem mergsígur almenning.Embættis og stjórnmála-
klíkan er söm við sig.
Blóðugar alþýðubyltingar hafa verið gerðar um allan heim til að losna við
sporgöngumenn auðróna, Óla Grísa Alþýðu Svavara.
Svo verður einnig hér á Íslandi.Annars verður ekki búandi hér.

JULI
11.10 2009 kl.12:05

Sendiráðin eru hreint bruðl og sendiherrastöðurnar heimabakaðar fyrir aflóga stjórnmálamenn eða aðra góðvini ráðamanna.

Það ætti að vera nóg á tímum tölva síma faxtækja og annarra nútímatækni að hafa EITT SENDIRÁÐ miðsvæðis á Norðurlöndunum. T:d. í Suður Noregi eða Suður Svíþjóð.

Sama má segja um sendiráðin í Evrópu. Bara fækka þeim í tvö og athuga svo hvað er eftir.
Þurfa Íslendingar virkilega að hafa sendiráð á hverju húlabúlaskeri sem þeir finna ? ? ?
Nú er talað um sparnað og niðurskurð Jón og Gunna þurfa víst að flytja í tjald í Laugardag og elda sér hafragraut.
Seilst er í vasa öryrkja og ellilífeyrisþega af “velferðarstjórninni “.

Staðan er vissulega erfið en er þá ekki hægt að skera niður í skrauti og prjáli eins og sendiráðin eru. Alþingi ætti líka að skera niður en kannski er allt bara farið til andskotans fyrir löngu síðan.

Ásta B
11.10 2009 kl.12:26

Hvað með ofurdýra sendiráðið í Tokyo ?

Þið eruð ómerkileg við hjónin
11.10 2009 kl.13:31

Það stendur til að hólfa húsið niður í herbergi og bjóða Íslendingum í atvinnuleit að gista fyrir lítið. Hjónin munu jafnframt bjóða upp á kost. Sjálf verða þau í litllu herbergi með aðgangi að útikamri.

Ásta B
11.10 2009 kl.13:36

Þið eruð ómerkileg við hjónin
11.10 2009 kl.13:31
Þú ert nú meiri dásemdin, er hér í hláturskasti :)

Langi
11.10 2009 kl.13:50

1 Nýji bústaðurðinn var keyptur 2007
2 Svavar og frú , búa þarna eins og safnmunirnir, eiga ekki spítu í húsi og flytja til Íslands um áramótin, þetta er ekki hús handa þeim. Þetta er rétt hús -Islendinga og rétt , réttast væri að breyta húsinu í gistiheimili fyrir Íslendinga sem eru í atvinnuleit.
3 Hvenænr var danskur hagnaður sendur til Íslands, fyrir eða eftir hrun ?
Það var ekkert gott við að fá dkr. til landsins 2007 þegar 1 ísl.kr. var rétt rúm 10,
nú er hún 25 ísl.kr.

SSGG
11.10 2009 kl.14:07

Íslensk sendiráð eru eingöngu notuð til veisluhalda og eru lúxus eftirlaunasetur fyrir stjórnmálamenn sem eru hættir á Alþingi.

Einn og einn veglaus íslendingur stingur inn nefinu öðru hverju í leit að aðstoð.

Fyrr á þessu ári var auglýst eftir starfsmanni í sendiráðið í Japan, u.þ.b. 30 sóttu um starfið, tveir af þeim sem sóttu um eru með BA í japönsku, annar einnig með BA í alþjóðaviðskiptum en hinn einnig viðskiptafræðingur, sá sem fékk starfið er lögfræðingur og hefur ekki lært japönsku en er systir Dags B. Eggertssonar.

Höfum við eitthvað að gera við að halda úti sendiráðum til að útvega stjórnmálamönnum og ættingjum þeirra flott störf í útlöndum?

Kolla
11.10 2009 kl.14:13

NEI!!! VIÐ HÖFUM EKKERT VIÐ ÞETTA AÐ GERA. Örfáir útrásarSKÚRKAR gætu átt leið þarna um og það er mokað undir þá auk þess sem sendiráðin eru notuð þegar þingmenn fara í “vettvangsferðir” til framandi landa. Getur helv.... pakkið ekki borgað undir sig sjálft???

Vinstri stjórnin ræður ekki við þetta, hér þarf BYLTINGU!!!

veffari
11.10 2009 kl.14:22

SSGG 14:07

Fékk systir Dags B-ekkertssonar stöðu vegna skyldleika?

kvistur
11.10 2009 kl.15:34

Gott fólk Frú Guðrún og Herra Svavar þurfa greinilega sér herbergi,með baði og skíta skál,nú svo þurfa allir þjónarnir og eldabuskurnar sér herbergi,þá er nú orðið lítið eftir af þessum 680fm,Svo var Herra Svavar að verða langafi svo það er að verða lítið eftir af þessu plássi,Herra Svavar verður að getað leikið sér við barnabörnin í ellinni,ef hann hefur þá þroska til þess.PUfffffffff

Jón
11.10 2009 kl.19:45

Selja slottin og reka alla sendiherra. (suma með ævarandi skömm íslensku þjóðarinnar)

Þeir hafa mínús virðingu landsmanna, gagnslausir með öllu og vinna landi og þjóð iðulega tjón.

Ég vil ekki setja skatta mína í þessa vitleysu.

Guðjón23
11.10 2009 kl.20:08

Þetta er náttúruleg djók, að niðurskurðurinn í utanríkissþjónustunni sé ekki meiri en þetta. Það á að selja öll sendiráð sem íslenskir skattgreiðendur eru að greiða fyrir. Og reka alla sendiherra ,er þetta kannski niðurskurður sem Norræna Velferðstjórnin treystu sé ekki að fara í.
Auðvitað þorrir Steingrímur ekki að reka Guðfaðir sinn úr starf.

Glámskyggn
11.10 2009 kl.23:16

Á Svavar Gestsson ekki að vera farin á eftirlaun?

Getur það verið að þessi verkalýðsvinur sé að þiggja hvorutveggja full eftirlaun sem þingmaður og ráðherra + laun sem sendiherra?

Jóna litla
11.10 2009 kl.23:36

Hann Svavar hann hirðir allt sem hægt er að hirða í peningamálum næst fer hann í tjald.

Arnar
12.10 2009 kl.03:31

Þið eruð öll vangefin - röflandi um hluti sem þið vitið akkúrat ekkert um

kristján þórðarson
13.10 2009 kl.00:43

reka þau gistiþjónustu

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar