Innlent - þriðjudagur - 13.10 2009 - 04:53

Forsetinn vill 30 ára leynd yfir bréfum til útlendinga í þágu útrásarinnar

olafur-ragnar-2008.jpgForsetaembættið hefur synjað blaðamanni Fréttablaðsins um aðgang að sautján bréfum sem Rannsóknarnefnd Alþingis hefur fengið til skoðunar og forsetinn skrifaði til erlendra aðila til stuðnings íslenskum fjármálafyrirtækjum eða forsvarsmönnum þeirra. Embættið vill ekki birta bréfin fyrr en að liðnum þeim þrjátíu ára fresti, sem stjórnvöld geta nýtt, þegar birting upplýsinga telst vera skaðleg almannahagsmunum eða lögmætum hagsmunum einkaaðila. Fréttablaðið segir frá þessu í dag.

Eins og Fréttablaðið sagði frá 5. október er um að ræða bréf til ýmissa þjóðhöfðingja og áhrifamanna, meðal annars Al Thani, emírs af Katar, Bills Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og Hu Jintao, forseta Kína.

Rannsóknarnefnd Alþingis ritaði forseta bréf 11. ágúst og óskaði eftir afritum af fjórum tilteknum bréfum forsetans og spurðist fyrir um önnur bréf sem skrifuð hefðu verið “til stuðnings íslenskum fjármálastofnunum eða fyrirsvarsmönnum þeirra á tímabilinu 2000 til og með 2008″.

Í svarbréfi forsetaembættisins til rannsóknarnefndar Alþingis frá 27. ágúst eru tilgreind 13 bréf, auk þeirra fjögurra sem beðið var um. Aðeins eitt þeirra hafi verið gagngert skrifað í þágu fjármálafyrirtækis en í hinum sé vikið að starfsemi íslenskra banka í tilteknu landi eða þeirra getið í framhjáhlaupi um leið og fjallað er um önnur efnisatriði.

Fréttablaðið fékk aðgang að bréfaskiptum forsetaembættisins og rannsóknarnefndarinnar, og komst þannig á snoðir um tilvist bréfanna sautján og óskaði þá eftir aðgangi að þeim. Synjun forsetaembættisins barst blaðinu í gær. Þar er vísað til þess almannahagsmunir krefjist þess að aðgangur að bréfunum sé takmarkaður því þau hafi að geyma upplýsingar um samskipti við önnur ríki og það gæti spillt fyrir góðum samskiptum og viðkvæmu trausti við þjóðhöfðingja og erlenda ráðamenn ef bréfin eru birt enda hafi ekki verið gengið frá gagnkvæmu samkomulagi um birtingu.

Þá er vísað til þess að takmarka megi aðgang að gögnum sem varða “fjárhags- og viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila nema samþykki þeirra liggi fyrir”.

Fréttablaðið hefur vísað synjun forsetaembættisins til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

80 ummæli

Rita ummæli

xxx
13.10 2009 kl.06:18

obs Óli vast tad tú?
vast tad tú?

Jenný Stefanía
13.10 2009 kl.06:30

Afhjúpa þarf “leyndardóminn” í kringum manninn sem gegnir forsetaembætti íslensku þjóðarinnar.

Þetta verður varla verra .... úr þessu, nú er botninum á Bessastöðum náð.

Agnar Thor
13.10 2009 kl.06:30

Þegar svona upplýsingum er farið að synja þá veit maður að það er maðkur í mysunni.

Það versta sem getur gerst núna er að þjóðhöfðingi sjáist hafa verið að haft hag EINSTAKRA elítu einstaklinga sem flestir eru komnir með stöðu grunaðra í gjaldþroti heillrar þjóðar ENN ekki þjóðarinnar allar. Við verðum að geta trúað á þjóðhöfðingja sem er HLUTLAUS. Það að vilja fá 30 ára leynd á bréfunum núna þegar við verðum að vita nákvæmlega hver gerði hvar og fyrir hverja, segir mér bara eitt: Forseti Íslands var ekki forseti alls lýðveldisins heldur fárra einstaklingra og þeirra svindla.

Ísland er ekki Ítalía. Við höfum ekki Belluschoni. Allavega hélt ég ekki. Það virðist eins og ég hafði rangt fyrir mér.

Það er ekki skrifa í stein að forsetar séu heilagir og verði að setja út sín tímabil. Það virðist eins og Ólafur Ragnarsson hafi seldur sömu lygarnar og öllum öðrum og eins og allir áðrirð þá veður hann að vera maður með mönnum og taka sína ábyrgð og láta EKKI embætti Forseta Íslands gjalda sinns hégóma. Það er ekki þess virði. Við eru EKKI Ítalía !!

xxx
13.10 2009 kl.06:51

er ekki komin tími á eina rauða málingar klessu á Bessastaði?

HF
13.10 2009 kl.07:02

@Jenný Stefanía
13.10 2009 kl.06:30:
Sammála!
Það er að sýna sig að forsetinn var forseti fárra útvalinna útrásarræningja.
Ekki forseti almennings.

Rósa
13.10 2009 kl.07:04

Er botninum náð?

Held ekki.

En hringurinn þrengist utan um klappstýruna.

Fullkomið hneyksli að maður sé enn í embætti.

Jóhann
13.10 2009 kl.07:19

Þetta er áhugavert. Hvað er hann að fela?

Priscilla
13.10 2009 kl.07:28

Það er hálf skrítið að bera fyrir sig “viðskiptahagsmuni fyrirtækja”.

Hvers eðlis er forsetaembættið eiginlega?

Langi
13.10 2009 kl.07:32

Er einhver hissa á að hryðjuverkalögum var beitt gegn Íslendingum,
þegar sjálfur forsetinn hefur skrifað bréf ;
sem teljast vera skaðleg almannahagsmunum og þurfa 30 ára leynd.

Getur verið að forsetinn hafi ábyrgst Icesave í þessum bréfum sínum ?

linka
13.10 2009 kl.07:40

Ja hérna hvað hefur þessi maður að fela, vill hann ekki hreinsa sig.

s
13.10 2009 kl.07:40

Sundrunartákn þjóðarinnar.

Lalli
13.10 2009 kl.07:55

essassú Óli ?

sem varst vinur þeirra?

Héðinn Björnsson
13.10 2009 kl.07:56

Það er nú einkennilegt mat á almannahagsmunum sem sýnir sig þarna.

Bónusheilinn
13.10 2009 kl.08:03

Forsetin tákn örfá hefur tjáð sig.
Og lýðurinn borgar gleði og skemmtiferðir þeirra hjóna um veislusali ríka og fræga fólksins á meðan er skorið niður hjá sjúklingum og eldra fólki.

Jón Gunnarsson
13.10 2009 kl.08:05

Til hamingju Ólafur Ragnar Grímsson en svona leyndarhjúpur á ekki við núna. Við viljum alla upplýsingaR UPP Á BORÐIÐ STRAX EKKI EFTIR ÞRJÁTÍU ÁR.

Margrét Rún Guðmundsdóttir
13.10 2009 kl.08:05

Þetta er algjölega óþolandi!!!
Bréfin skulu birt eins og skot - eða forsetinn víkji eins og skot!!

Guðrún Hlín
13.10 2009 kl.08:08

Hann er svo mikið svona 2007.

NN
13.10 2009 kl.08:10

,,almannahagsmunir´´ my ars!

Lola
13.10 2009 kl.08:11

Nú er ég algerlega í sjokki yfir forseta mínum !! Hvað er að gerast hérna !!!

bjarni
13.10 2009 kl.08:11

Frá hruni er búið að skipta um stjórn í seðlabanka og fjármálaeftirliti. Þingmenn hafa endurnýjað umboð sitt í alþingiskosningum. Er ekki forsetinn sá eini sem situr eftir, sem ekki hefur gert upp sín mál við þjóðina og neitar því núna? Er ekki kominn tími á potta og pönnur fyrir utan Bessastaði?

Jasper
13.10 2009 kl.08:12

Þessi bréf eru um kjarnorku áætlun Íslendinga og þurfa að vera í felum í 30 ár

Magga maur
13.10 2009 kl.08:12

Nú þarf að leggja niður þetta embætti, endanlega.
Hvar er Flugger liðið?
Dj... er þessi maður ófyrirleitinn.
Sama hugsun og hjá auðrónunum fela, svindla pretta og svíkja sína þjóð.

kasper
13.10 2009 kl.08:12

Sáuð þið hana systur mína?
sú var orðin helst til full.
Kokhraust innbyrti áfengt sull;
loks fór hún glaseygð að gráta og hrína.

Af henni ganga ýmsar sögur;
oft hún lyftir sér á kreik
ítrekað fer hún í flennisleik
– sjón sem að seint þykir fögur.

Næfurþunn á nýjum degi
– með nýælt gallið út á kinn –
eigrar hún uns unnustinn
finnur hana á förnum vegi.

Er þetta ekki lýsingin á útrásinni og Óla

k
13.10 2009 kl.08:18

Rannsóknarnefnd Alþingis hefur bréfin til skoðunar, verður ekki að treysta henni til að meta hvort eitthvað sé í þeim sem sé aðfinnsluvert?

kasper
13.10 2009 kl.08:20

Þarna eru upplýsingar um meðsekt í ólögmætum gjörningum
og gætu varðað refsingu s,k,v lögum..
svo það er ekki skrítið þó kallin vilji loka bókinn og ´fá eftirlaun sem hann á ekki skilið

Jóhannes Laxdal
13.10 2009 kl.08:35

Ég hef bara áhuga á að sjá bréfin til sjeik al tani’s. Og í framhaldi af því vil ég að Óli grís segi af sér

Jón Ottesen
13.10 2009 kl.08:40

Er ekki kominn tími til að leggja þetta úrelta embætti niður?

Kostar stórfé að reka þetta batterí sem skilar svo ekki neinu, örugglega hægt að finna fjármununum betri farveg.

Sama gildir um öll sendiráðin sem eru ekkert annað en rándýr elliheimili fyrir afdankaða pólítíkusa.

bergur bergur
13.10 2009 kl.08:40

Ekkert traust, nýjar forsetakostningar sem fyrrst!

Þessi maður virðist bara vera klúðurs forseti.

Sjonni H.
13.10 2009 kl.08:47

Er nýtt einskonar Watergate-hneyskli í uppsiglingu hér á landi?

Hvað mun þetta hneyskli verða kallað? Bessastaðagate?

Endar þetta bara ekki með að forsetinn verður að fara eins og Nixon forðum daga?

En hvar er pottaorma og pönnuliðið núna? Og hvar er Hörður Torfa? Ætlar þetta lið ekkert að láta í sér heyra út af þessu?
Ef það gerir það ekki, þá hefur þetta lið sjálft sturtað trúverðugleika sínum niður í klósettið.

ljósberi
13.10 2009 kl.08:52

Ég man að rétt fyrir hrun talaði Bill Clinton um að ísland væri framtíðin í orkumálum heimsins. Nú vitum hver var á bakvið það...

Rómverji
13.10 2009 kl.08:55

Ólafur.

Á Íslandi varð efnahagshrun. Fordæmalaust. Við þurfum að gera upp við þetta hrun. Það verður ekki gert með því að fela upplýsandi gögn um hrunið.

Davíð, Halldór, Valgerður, Finnur, Árni, Geir, Ingibjörg, Björgvin ... . Þau þarf öll að krefja svara. Bréf forsetaembættisins eiga að sjálfssögðu að vera aðgengileg almenningi og rannsakendum.

Halli
13.10 2009 kl.09:03

Burt með klappstýru útrásarþjófanna af Bessastöðum, hann svertir og traðkar Bessastaði niður á skítlegt plan !

Friðrik
13.10 2009 kl.09:03

Þarna fór síðasta 1% held ég.

Steinþór M
13.10 2009 kl.09:06

Eki minn forseti. Skilur svínið ekki kröfuna um Nýja Ísland?

Þjóðvaldur
13.10 2009 kl.09:17

Hr. forseti, Ólafur Ragnar Grímsson.
Þér er hér með sagt upp störfum. Uppsögnin tekur gildi nú þegar.

Virðingarfyllst,
1/300.000 af íslensku þjóðinni.

(Um meðferð bréfs þessa gilda íslensk upplýsingalög og eðlilegar kröfur um opið og gagnsætt þjóðfélag.)

pavarotti
13.10 2009 kl.09:18

Nú verður niðurlæging forsetaembættisins varla meiri. Nú verða þeir horkagikkir á Bessastöðum Ólafur og Örnólfur að skilja að þeirra tími er liðinn.

Þar sem Ólafur og ekki síður Örnólfur hefur gjarnan verið snjall pr maður þá er ekki úr vegi að þeir segi af sér forsetaembættinu vegna álags og heilsuleysis.

Forsetaembættið er þjóðarinnar og hefur gjarnan verið hafið yfir hið pólitíska dægurþras. Maðurinn sem þar situr er ekki lengur þjóðarinnar og á að skilja sinn vitjunartíma.

Burt með þá félaga frá Bessastöðum. Á þessum tíma þurfum við landsföður eða móður sem skilur hina siðferðilegu niðurlægingu og þjáningu þjóðarinnar.

Joi
13.10 2009 kl.09:23

Er mannhelvítið eitthvað ruglaður? Það eru allir að leysa svona þagnarbindindi af óþægilegum málum, þá kemur gamli komminn upp forsetanum. Maður er kominn a það stig að nú er þolinmæðin á þrotum.

Það verður að stöðva þennan mann. Fólkið í landinu er búið að fá sig fullsatt af þvælunni í honum.

Jótland
13.10 2009 kl.09:24

Innihald þessara bréfa hefur verið eitthvað gáfulegt raus eins og búast má við frá þessum manni. Auðvitað á að birta bréfin, en það er hann auðvitað hræddur við því það gæti þýtt að hann yrði skilyrðislaust að segja af sér sem rreyndar er löngu tímabært.

KVERÚLANTINN
13.10 2009 kl.09:34

Þetta er valdbeiting af hálfu forseta til að fela eigin spor.

Hann verður kominn undir græna torfu þegar þetta verður birt.

Spursmál hvort hann hafi þá framið ólögmætt athæfi.

Er farinn að minna óþægilega á Berlusconi.

Ólíðandi að hann skuli enn sitja og ber mest vott um hroðalega eigingirni.

Bjartsýnn
13.10 2009 kl.09:41

Allt á að vera uppi á borðinu.

Það sagði Jóhanna
Það sagði Steingrímur
Það sagði Davíð
Það sagði Sigmundur Davíð
Það sagði Bjarni Ben
Það sagði Þór Saari og allir hinir.
Og það segir öll þjóðin.

En “sameiningartáknið” ORG segir “min mistök eiga ekki að fara upp á borðið”
En ORG sagði Ekki ég

IS
13.10 2009 kl.09:49

Með ólíkindum hvað þessi forseti vor er setinn. Hann hefði betur látið það vera að taka þetta kjörtímabil þá hefði hann sloppið úr embætti með smá virðingu. Nú virðist hann eiga minna en 1% traust eftir eða sennilega komið í 0%. Skilur hann ekki að hans tími er búinn og það fyrir löngu. Það er löngu kominn tími á að slá í potta og pönnur við Bessastaði.

Guðrún Sigurðard.
13.10 2009 kl.09:51

Hvað þarf að gerast til að Ólafur Ragnar skilji að þjóðin er með óbeit á honum og vill að hann fari. Hvað þarf að gerast til ða hann átti sig á því að það er búinn að dæma hann út leik sem ómerking spjátrung og kjánalegan lygalaup sem gerði illt miklu miklu verra og er hjákátlegur innanlands sem utan. Hvað þarf að gerast?

Gunna
13.10 2009 kl.09:58

Ólafur Ragnar, stígðu nú fram og gerðu það sem þú hefðir átt að vera búinn að gera fyrir löngu síðan, AÐ SEGJA AF ÞÉR.
Þú ert úr öllum tengslum við hina íslensku þjóð.

Hanna
13.10 2009 kl.09:59

Potta og pönnur á Bessastaði, og smá málningarsletta myndi ekki skaða.

Sigursteinn Másson
13.10 2009 kl.10:14

Úr því að Ólafur Ragnar reynir að skýla sér á bak við það að ekki var samið á gagnkvæman hátt um birtingu bréfanna við erlenda þjóðhöfðingja þá er rétt að krefjast þess að hann hlutist til um afléttingu trúnaðarins tafarlaust vegna þeirrar fordæmalausu stöðu sem Ísland er í.

Að öðrum kosti verður ekki séð að ‘Olafur sé að gera annað en að reka nagla í líkkistu forsetaembættisins en vandséð hvað þjóð í okkar stöðu hefur annars að gera með þetta embætti nú. Ólafur Ragnar Grímsson er ekki áhorfandi að hruninu heldur beinn þátttakandi í því í gegnm stuðning hans við útrásarvíkinga. Honum ber skylda til að leggja spilin á borðið.

Ragnheidur Magnúsdóttir
13.10 2009 kl.10:16

Reka Forsetann. VANHAEFUR

Vilhjalmur
13.10 2009 kl.10:19

Hvar er vinstri skrílinn sem strulaðist af fögnuði þegar grísinn neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin, sem áttu að taka á einokunartilburðum auðrónans Jón ‘Asgeirs.Hvar er þetta lið í dag,sem fagnaði þegar forsetinn sá enga gjá milli þings og þjóðar í sambandi við afgreiðslu á Icesave.Best væri að vinstri menn færu í ærlega naflaskoðun og aflúsun.

Jakob Þór Haraldsson
13.10 2009 kl.10:27

Óli grís þú ert “tær snild” - 1% landsmanna talar um að þú sért sameiningartákn þjóðarinnar - jólasveinni Ófriður nýtur hylli 2% þjóðarinnar! Ástþór er talsmaður “friðar” en Óli grís er talsmaður “spillingar..!” Farðu nú að koma þér í burtu félagi, þú ert “stórasta klúður Bessastaða - ever..!

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Lalli
13.10 2009 kl.10:34

Ólafur þinn tími er liðin.

Það er mikill aumingjskapur að fara framá 30 ára leynd á þessi bréf,
er það til að þú verðir örugglega komin undir græna torfu ?

Sigurður
13.10 2009 kl.10:43

Væri ekki ráð að prófa ,,hina” leiðina til að afla upplýsinga um þessi bréf þ.e. óska eftir þeim hjá þeim sem fengu þau. Efast um að þar séu menn eins viðkvæmir fyrir þessum upplýsingum.

Blaðamenn Fréttablaðsins verða bara að vera á undan forsetanum, hann liggur örugglega í símanum og hringir í alla sem fengu svona bréf á sínum tíma og biður um 30 ára reglu.

Þórður Björn Sigurðsson
13.10 2009 kl.10:43

Ef við erum nógu góð til að borga þá erum við nógu góð til að vita.

Krefjumst þess að öll gögn rannsóknarnefndarinnar verði gerði opinber.

GH
13.10 2009 kl.10:45

Þetta er svolítið skakk keyrt þegar stjórnvöld eru að reyna blekkja fólk með þvi að allt eigi að vera uppi á borðum og upplýst og það er ekkert upp á borðum fréttir um stöðu grunaðra og ákærðar koma fra Bretlandi og nú forsetinn með þetta út spil.
Enn ein lygaþvælan til að róa okkur er að 90% náist upp í Icesave skuldina. Það er þegar búið er að selja ef þeim tekst að selja og þeir hafa ekki hugmynd um hvaða verð þeir fá fyrir þessar eignir þegar þeir selja þær.
Ég vil ekki einhverja bjartsýnis spá bara kaldar staðreyndir þegar sala eigna hefur farið fram og það sem kemur í hlut Íslands eftir að allt annað hefur verið greitt er ljóst.

IceViking
13.10 2009 kl.10:47

Leyndin á að þjóna almannahagsmunum og reisa hér traustið.

Ólaf burt og forsetaembættið helst líka.

Þessi maður er reigin hneyksli.

Margrét Rún Guðmundsdóttir Kraus
13.10 2009 kl.10:50

Leyndin á að þjóna almannaheilii!!!

Hvað heldur þessi Bessastaðabúi að við Íslendingar séum vitlaus?

Hörður Ingvaldsson
13.10 2009 kl.10:51

Þar er orðin einhver allsherjar venja og ósómi að komast upp með leynd alltaf þegar yfirvöld og fjármálastofnanir lenda í vanda með sín klúður og svik.
Það er lágmarkskrafa almennings í því ástandi sem ríkir í landinu að afnema öll upplýsingarhöft.

Joseph.
13.10 2009 kl.11:12

Burt með Ólaf Ragnar.

bergur bergur
13.10 2009 kl.11:23

Það er ekki neinn búinn að skrifa hér að hann sé sáttur og hlynntur forsetanum.
Það væri fróðlegt að sjá hvað myndi koma út úr skoðanakönnunum núna.
Hafa verið einhverjir undirskriftalistar í gangi sem vilja Ólaf Ragnar úr forstetaembæti?

L
13.10 2009 kl.11:24

Hér verður ekki friður

Anna
13.10 2009 kl.11:27

2004 gerðist það í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins, að forseti gekk gegn vilja þjóðkjörins þings og synjaði frumvarpi staðfestingar.

Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafði góð tengsl við Jón Ásgeir. Kosningastjóri hans í forsetakjöri 1996 var yfirmaður eins af fyrirtækjum Jóns Ásgeirs, og dóttir hans var í hálaunastarfi hjá Jóni Ásgeiri. Við svo búið var frumvarpið dregið til baka.

Jón Ásgeir og auðmæringar honum tengdir hrósuðu sigri. Eftir þetta töldu þeir sér alla vegi færa. Forseti Íslands var tíður farþegi í einkaþotum þeirra og dugleg klappstýra á samkomum þeirra erlendis. Þegar erlendir kunningjar forsetans skruppu til Íslands til að gera sér glaðan dag eftir fangelsisvist (eins og Martha Stewart), voru Jón Ásgeir og aðrir lendir menn að sjálfsögðu boðnir á Bessastaði. Vinsælir rithöfundar, Hallgrímur Helgason og Einar Kárason, gerðust kinnroðalaust hirðskáld auðmanna.“

Sýnum að við séum ekki sátt og ekki sofnuð á verðinum og förum og berum þessi hirðfífl út af Bessastöðum...

Forseti Íslands á ´tóran þátt í því að helmingur þjóðarinnar er að flýja land og stór hluti þeirra sem eftir eru bíða eftir að verða bornir út.. Á meðan erum við að borga undir þetta lið lúxus húsnæði, Luxus bíl, bílstjóra og þjónustulið
og að auki fleiri milljónir á mánuði í laun og ferðarisnur...

Það verður aldrei friður fyrr en þessi maður drullast út af Bessastöðum..

Bubbi
13.10 2009 kl.11:28

Hér opinberast hugarfar samspillingarinnar, ORG er aðal SIÐAMEISTARI
um hegðunar reglur pólitískra dindla samspillingarinnar

Þetta lið er ÓGEÐSLEGT

vestfirðingurinn
13.10 2009 kl.11:29

ætti að segja af sér strax.er gjorsamlega vanhæfur til að gæta hagsmuna ALMENNINGS

jonas
13.10 2009 kl.11:37

Ólafur er ekki í neinum tengslum við veruleikan, hvað þá alþýðuna.

Hann á að segja af sér .

Gunnr
13.10 2009 kl.11:38

Hagsmunir almennings, er einhver sem trúir þessu?
Eigum við kannski að fá þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta?

Siggi
13.10 2009 kl.11:50

Ef einhver hefur áhuga á að sjá hlutafélagaskrá mesta Mafíu fyrirtækis Íslands þá gerið svo vel....... letrið er ekki stórt en stjórn félagsins skipa

Jón Ásgeir Jóhannsesson´( mafíu kóngurinn sjálfur )

Jóhannes Jónsson Godfather

Guðrún Tinna Ólafsdóttir ( dóttir Ólafs Ragnars Grímssonar)

EF ÞETTA ER EKKI EFNI Í GÓÐA MAFÍU BÍÓMYND ??

http://oktober.blog.is/users/5c/oktober/img/hltf2_730974.jpg

Kristján Kristjánsson
13.10 2009 kl.11:50

Það þarf að bera forsetann út.
Maðurinn er gjörsamlega búinn að ganga fram af þjóðinni.

has
13.10 2009 kl.12:02

Það þarf að upplýsa þetta, það er kanski eitthvað í þessu sem felur í sér lögbrot og því ætti að dæma hann eins og aðra þjóðfélagsþegna og ef hann er ekki þjóðfélagsþegn þá á hann að koma sér í burtu hið snarasta.

L
13.10 2009 kl.12:10

Ólafur ... hefur þetta eitthvað með orkuútrásina að gera?

Stefán Þór
13.10 2009 kl.12:21

Mikil sorg var á mínu heimili þegar hann var kosinn 96 og ekki er sorginn minni nú enda sorglegur maður þar á ferð.

gg
13.10 2009 kl.13:23

Ólafur segi af sér -

með einum eða öðrum hætti

Andri
13.10 2009 kl.14:50

Vá hvad hefur Ólafur ad fela núna. Vid vitum öll ad Óli er útrásarvinur nr.1.
Bara burtu med Óla og frú.....

Bjarni E
13.10 2009 kl.15:09

Hneyksli! gjörsamlega óásættanlegt svar, er ólafur búinn að koma málum í þann farveg á Bessastöðum að verk hans í “þágu þjóðarinnar” þola ekki dagsljósið!

Það verður ekki friður um þetta embætti þar til það verður hreinlega lagt niður

BGG
13.10 2009 kl.15:58

Með SVÍNKU í embætti forseta er búið að breyta Bessastöðum í SVÍNASTÍU.
Hvaða fólk valdii þetta viðundur í þetta starf. Það er augljóst að hann er haldinn skítlegu eðli og á að hverfa STRAX.

Gunnr
13.10 2009 kl.16:21

Held í raun að það sé ekki hlutverk forsetans að ákveða þetta enda hefur rannsóknarnefnd Alþingis miklar heimildir.
Hann hefur greinilega eitthvað að fela og við viljum skítin út á tún á Bessastöðum ásamt farþegalistum einkaþotanna þær ættu eiginlega að leka út á Wikileaks...

gg
13.10 2009 kl.17:01

Psycopatar með athyglissýki á háu stigi hafa verið rannsakaðir í USA, þar sem nóg er af þeim, einkum í stéttum sem krefjast athygli:
Leikarar, prédikarar og stjórnmálamenn.
Athyglin er þeim lífsnauðsyn.
Allt verður að víkja fyrir þessu eina: “ÉG um MIG frá MÉR til MÍN!”
Neikvæð athygli er jafnvel betri en engin athygli.
Þannig eru dæmi um að menn hafi játað á sig glæpi sem þeir hafa ekki framið og er gert í þeim tilgangi að fá þá athygli sem er þeim alger nauðsyn.
Oftast kunna psycopatar að dáleiða fólk til fylgis við sig með sérlega töfandi framkomu þótt oft gretti þeir sig og tali illa um viðmælandann jafnskjótt og hann snýr baki í þá.
Psycopat þarf oftast andstæðing til þess að hann geti þannig myndað um sig fylkingu aðdáenda sem eiga þennan sameiginlega óvin sem getur t.d. verið stjórnar(að)andstaðan eða djöfullinn eða jafnvel heil þjóð eða mestallur heimurinn - eins og við núna.
Ekki spillir ef andstæðingurinn er líka psycopat og hefur stóra hirð um sig einnig.
Þá getur leikurinn staðið lengi fyrst báðir þurfa hins við.
S.k.v. þessu verður líka að gera ráð fyrir að ekkert misjafnt sé að finna í nefndum bréfum frá ónefndu embætti, en athyglin er góð þótt neikvæð sé.

ee
13.10 2009 kl.17:55

Forseti Íslands hafði milligöngu og tók þátt í því að koma á viðskiptasamböndum osfrv. sem greiddi götu hvítflibbaglæpamanna í að svíkja út fé í þúsunda milljarðatali af erlendum fjármagnseigendum sem og góðgerðarfélögum, sjúkrahúsum ofl í nágrannalöndum Íslands.

Þessi maður á að segja af sér eins og skot.

Hann er samsekur nánast í því að eyðileggja lífsskilyrði þjóðar “sinnar”.

Svei manninum.

Hjalti Ómar Ágústsson
13.10 2009 kl.21:08

Alveg er þetta fordæmalaust heimskuleg umræða sem fer fram hérna.
Það vill til að þetta eru SAMskipti, sem þýðir að á hinum endanum eru einstaklingar, þjóðhöfðingjar og fleiri, sem verða að geta treyst á að samskipti þeirra við Forseta Íslands séu bundin trúnaði.

Sigurður Viktor Úlfarsson
13.10 2009 kl.21:47

Æi, ég hef verið stuðningsmaður Ólafs, fannst hárrétt hjá honum að vísa fjölmiðlalögunum til þjóðarinnar og einnig hárrétt að styðja við bakið á íslenskum fyrirtækjum og félagasamtökum víða um heim fyrir, í og eftir hina svokölluðu “2007-útrás”. Hér misles hann hins vegar stöðuna.

Hann hefði átt að segja að verið væri að vinna í því að fá leyfi frá viðkomandi þjóðhöfðingjum, vegna sérstakra aðstæðna á Íslandi, til að opinbera viðkomandi bréfaskriftir. Efni þessara bréfa er hvort eð er örugglega ekki neitt leyndarmál í sjálfu sér heldur í raun aðeins samhljóma ótal ræðum sem Ólafur hefur haldið til stuðnings íslenskum fyrirtækjum og íslenskri starfsemi víða um heim og gert vel. Hér er um formsatriði að ræða að diplómasían geti átt samskipti sín á milli og treyst því að þau séu ekki öll komin í blöðin daginn eftir.

Þegar óvenjulega árar þarf að fara óvenjulegar leiðir. Þar á forsetinn frekar að ganga á undan en að vera dragbítur. Núna er ekki rétti tíminn fyrir það.

Hann hefur vonandi vit á því að draga þessa yfirlýsingu til baka.

núman
14.10 2009 kl.00:38

Alveg frá fyrsta degi hrunsins hafa sjallatrúðar hvatt til mótmæla og spellvirkja við Bessastaði.

Af hverju drullist þið ekki til þess sjálfir?

Eða er þetta alltaf sami sjallatrúðurinn undir mismunandi nöfnum?

blankur
14.10 2009 kl.01:03

Ólafur ég kaus þig,nú vill ég þig í burtu!!!

Daninn
14.10 2009 kl.06:11

Jahá... stjórnmálamaðurinn, vinstrimaðurinn, vindhaninn, útrásarvíkingurinn og lýðræðisfrömuðurinn Ólafur Ragnar Grímsson mættur á svæðið.... eða ekki.

Ekki hafði ég gert mér grein fyrir því að forsetaembættið beitti sér eins og leyniþjónusta í þágu þjóðarinnar.

Það er sorglegt hvernig forseti vor hefur breytt tiltölulega vinsælu embætti í eitthvað sem þjóðin hefur mestu fæð á þessi misserin.

Skoðanakönnun á morgun takk um traust þjóðarinnar til embættisins og mannsins sem því gegnir!!

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar