Innlent - fimmtudagur - 15.10 2009 - 17:58

Læknir um detox Jónínu: Aðeins fávitandi fólk auglýsir svona rugl. Jónína stétt sinni til skammar

detox.jpgSvanur Sigurbjörnsson, læknir, fer hörðum orðum um detox-meðferðarauglýsingar Jónínu Benediktsdóttur á bloggi sínu hér á Eyjunni. Segir hann m.a. að “aðeins verulega fávitandi fólk um heilsufar og heilsuvernd myndi setja svona rugl í auglýsingu.  Aðeins fólk sem er að leita að skjótfengnum gróða myndi setja svona glepjandi markmið í auglýsingu.”

Svani ofbýður  að Jónína skuli auglýsa “djúsdaga” þannig að hægt sé að missa hálft kíló á dag.

“Hvað heldur Jónína að losni á þessum djúsdögum úr líkamanum sem léttir hann um hálft kílógram?  Hversu lengi heldur Jónína að það endist að hægt sé að losa hálft kg daglega?  Það vita allir sem hafa farið í megrun að það losna 1-2 kg á fyrstu 4-7 dögunum vegna þess að garnainnihaldið minnkar við það að minnka fæðuinntöku.  Með því að fara á fljótandi fæði (djúsdaga) eingöngu er þessari losun hraðað og að sjálfsögðu getur þá hálft kíló farið daglega í nokkra daga - en hvað svo?  Mér kæmi ekki á óvart að Jónína myndi þá ráðleggja ristilskolun því eftir fljótandi fæði er ágætt að fá nokkra þúsundkalla fyrir að soga öll hin gríðarlegu meintu eiturefni úr ristlinum.  Eiturefni sem enginn hefur sýnt fram á að séu til.  Líkaminn er fullkomlega fær um að losa sinn úrgang gegnum lifur og nýru,” skrifar Svanur.

Þá segir hann það blekkingu að léttast með þessum hætti. Fitan hverfi ekki jafn auðveldlega, auk þess sem djúsinn sé fullur af kolvetnum (sykri) sem haldi uppi insúlíni í blóðinu og því ekki hentugur til að megrast. Því auki það einungis líkur á að viðkomandi fitni strax aftur eftir að átakinu ljúki og verði þá jafnvel enn þyngri en áður. Síðan segir læknirinn:

“Manni blöskrar þessi ósvífni Jónínu að auglýsa svona gervilausnir og rugl sem ætti ekki að bjóða nokkru fólki.  Hún er íþróttakennari að mennt og er starfsgrein sinni til skammar. Maður hefur séð svona tálsýnir auglýstar í amerískum tímaritum allt frá 7. áratug síðustu aldar og hefur þótt það mikill kostur fyrir Ísland og Íslendinga að slík fáviska og frat væri ekki boðið hérlendis.  Því miður er það orðin staðreynd og maður verður að kyngja því líkt og öllu öðru hruni raunverulegra gæða sem hefur átt sér stað undanfarinn áratug.”

83 ummæli

Rita ummæli

Bibba
15.10 2009 kl.18:03

Hva hva er ekki í lagi að græða soldið, ekki svona abbó.

Þroftur
15.10 2009 kl.18:05

Mikið er frábært að einhver standi upp og svari hörmungas ruglinu í Jónínu. Hún er orðin of feitu fólki og fólki með átraskanir stórhættuleg.

Hjördís Vilhjálms
15.10 2009 kl.18:12

,,verulega fávitandi fólk um heilsufar..”

Fær hann ekki lögsókn á sig frá framleiðendum Citrosept ? Efast um að þiem líki þessi skrif læknisins, sér í lagi sé þetta vara frá USA.

Annars getur læknirinn grætt á þessu, veikist þeir fjölmörgu sem fara að ráðum Jónínu, svo það ætti hann bara að vera ánægður með.

Mér þykir aldrei fallegt að fólk sé kallað fávitar, enda man ég ekki betur en slíkt hafi verið bannað með lögum.

Er kannski farið að sneiða að köku lækna ?

Er kannski árangurinn af Detox það góður að menn innan stéttarinnar séu farnir að óttast um sinn hag, í formi minnkandi viðskipta til sín ?

Annars er ég persónulega á móti svona skyndilausnum, en fyrir þá sem hafa trú á þeim, sé ég ekki betur en að það sé á ábyrgð hvers og eins, óháð greindarfari, að fara á slíka kúra, og / eða í Detox meðferð.

Mér þykja skrif þessa læknis ekki vera honum til framdráttar, sjálf mun ég ekki eiga nein viðskipti við hann, þurfi ég á sérfræðiþekkingu hans að halda einhverntímann í framtíðinni ( veit reyndar ekki hver hún er, stendur bara að hann sé læknir). Beini viðskiptum mínum frekar til þeirra sem tala fallega og bera virðingu fyrir frelsi fólks til að velja og hafna.

Væri nær ef hann væri málefnalegur, og myndi t.d. vísa til rannsókna sem sýni fram á skaðsemi þessarar vöru og Detox, þar sem honum er svo annt um að allir séu frískir, sem er nú samt slæmt fyrir hans viðskipti.

SH
15.10 2009 kl.18:30

Með ólíkindum hvað þessi Svanur ræðst allaf að henni. Hefur hún neitað að fara með honum á stefnumót..... eða borgar einhver honum fyrir að láta svona barnalega og setja sig niður fyrir vikið sem læknir?? Alveg merkilegt þegar fólk fær einhvern á heilann, hefur hann látið athuga sig?

Björg F.
15.10 2009 kl.18:35

Svanur Sveinbjörnsson hin sjálfskipaði rannsóknarréttardómari fer hörðum höndum... um alla sem ekki eru Bókstafstrúar vísindahyggjumenn innan ákv. forms vísinda.. (veit þetta er flókið.. bull getur verið það)

Burtséð frá hvað fólki finnst um detoxið hennar Jónínu Ben þá er fólki svo fullkomlega frjálst að velja fyrir sig sjálft og eyða peningum sínum í það sem það langar til að eyða þeim í.. Sem betur fer og megi það vera þannig ætíð.

Ætla ekki að tjá mig um þessa detox meðhöndlun því ég hef engan áhuga á að fara í slíka meðhöndlun og hef enga þekkingu á henni en þoli bara ekki svona stóryrta prédikunarkarla sem þykjast hafa einhvert réttlæti að leiðarljósi.. Minnir mig á krossriddarana gömlu.

Björg F.
15.10 2009 kl.18:35

átti að vera Sigurbjörnsson.. afsakið

sls
15.10 2009 kl.18:41

Frábært Svanur Sveinbjörnsson !
Ég hef oft furðað mig á því hvernig þetta detox fólk kemmst upp með að lofa öllu fögru af því að líkaminn er eitraður að innann. Líkami minn er ekki eitraður nema að ég taki inn eitur, en þá trúlega dey ég og þarf ekki á detox að halda. Detox þýðir ekkert annað en það að losa eitur!!

Þeir einu sem mér kemur í hug er geta nýtt þetta eru eiturlyfjaneytendur, þeir þurfa að fara í detox.

ES
15.10 2009 kl.18:42

Grein um skammarlegar gervilausnir og rugl - lyfjanotkun barna á Íslandi:

http://www.laeknabladid.is/2007/12/nr/2997

Geiri
15.10 2009 kl.18:43

Loksins er farið að tala opinberlega gegn þessu kjaftæðismeðferðum hennar Jónínu.

Sveinn
15.10 2009 kl.18:52

Tek heilshugar undir hvert orð hjá Svani.

Fávitandi er raunsönn lýsing á atferli Jónínu sem og þeirra sem sem gagnrýna lækninn hér að ofan.

Að úthrópa mann sem setur fram réttmæta gagnrýni á vafasamar aðfarir aðila sem gætu valdið fólki heislutjóni frekar hinu gagnstæða, er í besta falli fáránlegt.

Fávitandi fólk mun því miður meðtaka þessi hæpnu skilaboð Jónínu en Svanur á heiður skilið að rétta illa upplýsu og ginkeyptu fólki hjálparhönd með upplýsingum.

Íslandsbersi
15.10 2009 kl.19:09

Hjördís Vilhjálms segir eftirfarandi: “Annars getur læknirinn grætt á þessu, veikist þeir fjölmörgu sem fara að ráðum Jónínu, svo það ætti hann bara að vera ánægður með.

Mér þykir aldrei fallegt að fólk sé kallað fávitar, enda man ég ekki betur en slíkt hafi verið bannað með lögum.”

Fyrri athugasemd Hjördísar er ósmekkleg þar sem dylgjað er um að læknar sækist eftir hagnaði af óförum og veikindum sjúklinga.

Seinni athugasemdin ber vott um skilningsleysi. Það er ekki sama merking í því að vera fávitandi eða fáviti.

ES
15.10 2009 kl.19:15

Íslandsbersi. Athugasemd Hjördísar á fullan rétt á sér.

http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=572218

Orðlaus
15.10 2009 kl.19:25

Þessi mál eru oft vandmeðfarinn. Bendi á að hér á Íslandi og allstaðar í heiminum eru seldar td. “snyrtivörur” sem eru auglýstar upp með hæpnum fullyrðingum.
Man ekki eftir “beinhörðum” rannsóknum um virkni andlitskrema td. Etv gera þau gagn....

Toni
15.10 2009 kl.19:33

Fyrir þá sem hafa bætt heilsu sína eftir meðferð hjá Jónínu eru þetta eflaust skrítnar fullyrðingar.

Guðbjörg
15.10 2009 kl.19:37

Gagnrýnum rökum eins og Svanur læknir setur fram á ósköp einfaldlega að svara með gagnrökum. Aðeins þannig er hægt að mynda sér skoðun á þessu stórmerkilega máli.

Hilmar
15.10 2009 kl.19:41

Fávitar er sterkt orð, og ber að varast eftir megni. Í þessu tilviki er orðið fáviti fullkomlega réttlætanlegt.

Feitar miðaldra kerlingar vita fátt betra en að láta ljúga því að sér, að aukakílóin fari fyrirhafnarlaust með gimmikum. Í raun er þetta orðin fíkn í lygina, þar sem þær hafa látið ljúga þessu að sér trekk í trekk.

Með því að hlusta á lygina tekst þeim að komast hjá því að taka á sínum málum, og grípa til þeirra aðgerða sem duga í baráttunni við aukakílóin.
Og auðvitað er þetta fyrsta fólkið sem bregst ókvæða við því, þegar menn eins og Svanur segja sannleikann. Sannleikurinn er eitthvað sem þessar konur höndla ekki.

Feitar og latar miðaldra konur þurfa að hreyfa sig og borða minna. Ekki að kaupa sér eitthvað rándýrt “losunar”rugl.

Hjördís Vilhjálms
15.10 2009 kl.19:47

@Íslandsbersi
15.10 2009 kl.19:09

Hversu mikið græða læknar á hraustu fólki ?

Ég sé ekki mikinn mun á að vera fávitandi eða fáviti, bæði orðin eru niðrandi og ekki fallegt að nota þau.

Svo skil ég ekki til hvers þessi læknir er að skipta sér af fyrirtæki Jónínu og til hvers hann er að gera lítið úr þeim sem til hennar leita. Veit ekki betur en að fram hafi komið að læknar séu með henni í þessu. Það eru margir læknar í útlöndum líka, og mér þykir þessi læknir vera að gera lítið úr starfsbræðrum sínum frá öðrum löndum í leiðinni. Minnir að fram hafi komið að það hafi verið pólskir læknar með henni í upphafi og svo sé nú einhver frá USA. Biðst afsökunar fari ég rangt með með menntun þeirra og þjóðerni, en þetta minnir mig.

Í mínum huga eru læknar engir Guðir.

Vissulega er mikil þörf á þeim og ég get ekki hugsað mér að hafa landið án ,,hefðbundinna” lækna. Margir standa sig án efa mjög vel, en inn á milli er líka læknar sem standa sig ekki eins vel, líkt og í öllum starfsstéttum.

En ég tel að s.k. óhefðbundnar lækningar, eigi einnig rétt á sér og að fólk eigi að geta valið þá leið sem það vill. Landlæknir þarf þá að hlutast til, að mínu mati, sé eitthvað alvarlegt að, en ekki einhver læknir útí bæ.

Nær væri, að ég tel, að hann vitnaði þá með málefnalegum hætti til rannsókna sem sanna skaðsemi Detox og þessa safa, eins og ég nefndi í fyrri athugasemd minni .

Tek fram að ég er perónulega á móti þessu, en það skiptir ekki máli fyrir þá sem eru hlyntir þessu. Ég hef mitt val og þau sem á þetta trúa, sitt val og á því þurfa þau sjálf að taka ábyrgð.

Veit ekki betur en að nokkuð algengt sé að sumir læknar séu sjálfir með skyndilausnir; lyfseðlar heitir það og aðgerðir, og ég tel að betur færi á því að tala við fólk og ráðleggja um breytt mataræði, hreyfingu og að létta sig, í stað þess t.d. að skipta um hnjáliði, þegar verkir geta alveg horfið í sumum tilfellum, við það eitt að léttast.

Það er t.d. gert þannig í Danmörku og gefur góða raun, tekur lengri tíma, en kostar minni upphæð fyrir skattgreiðendur þar og fólk heldur sínum hnjáliðum. Mér skilst að meðallíftími hjánliða séu 8-10 ár og þá þarf að skiota. Manneskja sem fer í slíka aðgerð um miðjan aldur og lifir til 90 ára, þarf því nokkrar aðgerðir. Ekki veit ég hversu oft líkaminn þolir slíkar aðgerðir.

En eflaust er betur greitt fyrir að ávísa lyfjum og gera aðgerðir ?

Eru það ekki einnig skyndilausnir ?

erlendur
15.10 2009 kl.19:49

Íslendingar elska Jónínu Ben. Íslendingar elska að láta stinga tólum í afturendann af fólki sem veit ekki hvað það er að gera. Flott fix fyrir landann.

Íslendingum er ekki viðbjargandi.

Bestla í Lóni
15.10 2009 kl.19:50

Hressileg skrif Svans læknis. Koma sér vel fyrir þá sem eru að bæta við sig þyngd. Upplýsingar sem hann setur fram eru sannfærandi og rökréttar.

Skyndilausnir við þyngdaraukningu sem duga skammt valda aðeins vonbrigðum. Þekki ekki megrunarkúra Jónínu, en líst betur á líkamsrækt hennar. Hreyfing skapar vellíðun.

Töfralausnir eru yfirleitt skammvinnar. Ristilskolun í einangrun suður á Velli eða í Pólandi eru ekki sannfærandi, nema til að létta á sér og slaka á. Öll umræða um mesta vandamál ofgnæta og lítilla hreyfinga er af hinu góða.

Gísli
15.10 2009 kl.20:20

Hjördís Vilhjálms:
Sjúklingar eru í langfæstum tilfellum “viðskiptavinir” lækna....
Talandi um fávitandi!

Hjördís Vilhjálms
15.10 2009 kl.20:24

@Gísli
15.10 2009 kl.20:20

Takk fyrir þetta, veit það reyndar, en þykir þetta orðið snúast svo mikið um peninga, að ég tel skoðunarvert að kalla sjúklinga sínum réttu nöfnum.

Man eftir skrifum læknis í eitthvert dagblaðanna fyrir nokkrum árum síðan, þar sagði hann að horfast þyrfti í augu við það að þetta væri ,,bara buisiness”. Þar fékk ég þessa hugmynd :) þetta er semsagt samkvæmt læknisráði, alveg hefðbundins...

Jónas Rectal
15.10 2009 kl.20:42

Ég seldi Jónínu Ben gamla haugsugu um dagin og mér skilst að það sé þegar orðið uppselt í “meðferðina”!
Góðar stundir segi ég nú bara.

Robbi
15.10 2009 kl.20:49

Gott hjá þér ES að benda á ofnotkun íslenzkra barna á Ritalíni. Þótt Ritalín eigi fullan rétt á sér við alvarlegri ofvirkni, er hrikalegt, að ávísunum hafi fjölgað úr 0,2% árið 1989 upp í yfir 25% árið 2006. Dæmigerðir íslenzkir öfgar, sbr. að hvergi er ávísað jafn miklu af svefnlyfinu Imovane, magalyfinu Nexium og sýklalyfjum og á Íslandi. Við þurfum alltaf að eiga heimsmet í allri vitleysu. Dómgreindarleysið er eins og hjá útrásarvíkingunum og eftirlit nánast ekkert. Lyfjastofnunin sinnir ekki sínu eftirliti frekar en FME gerði í útrásinni.

Hlynur Þór Magnússon
15.10 2009 kl.20:55

Kínalífselexírinn, miðilsfundir að hætti Láru svikamiðils og hvers konar skottulækningar á borð við endaþarmsmeðferð Jónínu lifa góðu lífi og gagnast á meðan fólk trúir á þetta! Sjálfur Ésu sagði á sínum tíma, ef mig rangminnir ekki: Trú þín hefur gjört þig heilan!

J
15.10 2009 kl.20:57

Auðvitað er þetta bara peningaplott !

En, það hafa margir látið þessa konu plata sig og drukkið endalausan ,,djús” !

Ef þessi kona er með eitthvert próf í íþróttafræðum, þá veit hún að það sem hún er að selja er ekki rétt !

Eina sem hún kann, er að tala !!!

Magnús
15.10 2009 kl.21:07

Hvað með heilbrigðisstéttina sem er að auglýsa svínaeiturefni til bólusetninga?

johannes
15.10 2009 kl.21:09

ER hún ekki bara að taka okkur í rassgatið bókstaflega eða þannig. Og við borgum fyrir það. Hún er snillingur.

Nanna
15.10 2009 kl.21:10

Jónínu gengur vel og er að fá fullt af útlendingum í hreinsun, gjaldeyrir og alles. Svo lítur hún orðið svo ansi vel út.
En auðvitað má þessi læknir allveg gagnrýna hana en fólk er ekki fífl og getur bara ákveðið þetta sjálf.

Nói
15.10 2009 kl.21:12

Já er þetta svínabóluefni ekki alger viðbjóður.

Bangsi
15.10 2009 kl.21:21

Segðu Nói!

Nú vill læknamafían stinga okkur með nál og gefa okkur bóluefni fyrir einhverju sem varð til fyrr á þessu ári...

Ef þetta er ekki áróður aldarinnar þá veit ég ekki hvað....

Öll heimsbyggðin fékk fréttir af fólki smitað af svínaflensu....

WHO birtir aðvaranir af faraldri....

Og viti menn... Til eru bóluefni.... FRÁBÆRT...

Virkar eins að þetta sé eitt alsherjar SVIK.. PLAT... SCAM....

Eiginlega fatta ég ekki afhverju þessi svínaflensa fékk svona rosalega mikla umfjöllun...

6000 manns deyja árlega í USA við að gera sms meðan það keyrir... Ég held að fórnarlömb svínaflensunar eru undir 6000.

Allavega fær læknamafían ekki að bólusetja mig....

Viðar Ingvason
15.10 2009 kl.21:32

Þetta megrunar og endaþarms-kukl er hluti af frelsisbrjálæðinu sem tröllriðið hefur vesturlöndum. Frelsi til að græða á vanþekkingu fólks. Gott framtak hjá Svani. Annað háskólamenntað fagfólk ætti að taka þátt í baráttu hans við eiturbyrglara og kuklara.

Jóhannes Laxdal
15.10 2009 kl.21:40

@ Hjördís, þessi læknir virðist leggja Jónínu í einelti. Hann fann hjá sér þörf til að ráðast á hana fyrr í sumar á hinu blogginu sínu. Og hann hefur líka komið fram í útvarpsþáttum með álíka aðdróttanir. Ég er sammála þér að þetta er honum til minnkunar. Fólk velur í vaxandi mæli óhefðbundnar lækningar af því læknar vilja lækna allt með lyfjum

MM
15.10 2009 kl.21:53

Ef það er ekki læknað og étið með pillum þá er það ekki gott.

Gunna
15.10 2009 kl.22:00

Ég er sammála þessum lækni, það getur ekki verið hollt fyrir líkamann að losna við mörg kíló á svo skömmum tíma. Ég er hins vegar ekki sammála þeim sem segja að fólk ráði þvi sem það gerir, lendir þetta ekki á okkur hinum að borga þegar þetta fólk er orðið fárveikt og komið inn á spítala.

Halli ríkis
15.10 2009 kl.22:02

Detox er það eina sem getur læknað alla sjúkdóma mannsins. Það er löngu sanað. Þessir læknar eru nú meiri rugludallarnir að trúa ekki því að gamall kúkur (allt að 19 ára gamall) getur falið sig í ristlinum og spýtt út eiturefnum um árabil. Einungis Detox getur tælt eitraða kúka út úr ristlinum. Detox læknar jafnvel Icesafismus, IMF-syndrome og EU-delerium. Það getur þó í völdum tilvikum valdið kúluláni þ.e. meður verður mjög heppin ef maður býr í kúluhúsi. Svo kostar Detox nánast ekki neitt. Allur fjórflokkurinn ætti að fara í Detox, sem fyrst. Detox á eftir að bjarga mannkyninu frá glötun og gömlum kúkum.

k.johonsen
15.10 2009 kl.22:11

þvílíkt andskotans blaður og rugl, hefur enginn neitt að gera nema ég? hver borgar fyrir að að drulla heil ósköp?

Stenni
15.10 2009 kl.22:30

Fólk getur bara tekið vítamín og vatn í einhverja daga. Verður dáldið sljór kannski en ágætis hreinsun svona ef maður er úldinn að innan.
En að grennast af því að drekka einhvern djús í nokkra daga? Er fólk virkilega að kaupa þetta?

sigga
15.10 2009 kl.22:43

læknastéttin í dag getur ekki horfst í augum við næturulækningum vilja ekki misa starfið sitt þessir læknar halda að lausnin sé að lyfja fólk alltaf upp

Dagný
15.10 2009 kl.22:44

Innilega sammála Svani Sigurbjörnssyni.
Takk fyrir góða grein.

SH
15.10 2009 kl.22:49

Ef fólki líður betur eftir svona meðferð þá er þetta að virka. Sumum líður betur eftir að hafa verið á sérfæði í Hveragerði, eða spilað fótbolta með Old Boys.

Að læknir skuli vera að skammast út í svona er dæmalaust og ekki einleikið hvað þessi eini læknir ræðs á þessa meðferð Jónínu.

Af hverju líður sumu fólki vel í hita og sól, og fer til sólarlanda? Þetta snýst allt um að láta sér líða betur, en það vill þessi læknir ekki skilja, kannski missir hann commision af lyfjasölu, hver veit?


15.10 2009 kl.22:49

Frábær grein. Takk kærlega fyrir góða grein Svanur. Orð í tíma töluð! Hef oft furðað mig á hvers vegna leyfilegt sé að auglýsa þetta detox - kukl. Þetta er bara heflv.... peningaplokk.

Heiður
15.10 2009 kl.22:55

Flott hjá Svani Sigurbjörnssyni.

Hafi hann þökk fyrir að nenna að upplýsa almenning um að
svona kukl og rugl stenst engan veginn.

Sumir græða á fáfræði og veikri von annara, sama hvaða bull er borið fram.

KVERÚLANTINN
15.10 2009 kl.23:02

Við sjáum nú hvernig henni tókst til við dítoxunina á Framsóknarflokknum...........eða hitt þó heldur ....................

Ekki beint traustvekjandi.

En ég mæli eindregið með því að hún setji Framsókn strax á “djúsdaga´´....þeir verða kannski aðeins skemmtilegri við það.........;-)..........hikk.....!!

........og senda þá svo strax aftur út til Noregs og sjá hvort þeim gengur eitthað betur þannig...........

Már Egilsson
15.10 2009 kl.23:06

Bangsi:

Við áhættuhegðunum koma forvarnandi aðgerðir einnig til sögunnar.
Í tilfelli sms notkunar eru aðgerðir t.d. í formi sekta og viðurlögum en einnig auglýsingum/áróðri t.d. frá umferðarstofu eða álíka fyrirbærum.

Þegar verið er að tala um smitsjúkdóm sem berst milli manna og getur dregið þá sem eru veikari fyrir sérstaklega til dauða eða örkumlunar eru bólusetning gegn sýkingarvaldi ein öflugasta manneskjubjargandi heilbrigðisaðgerð mannkynssögunnar.
Í því tilfelli er einnig beitt forvörnum eins og menn hafa séð, leiðbeiningar um handþvott og annað er varðar almenn þrif, tilmæli um að halda sig inni verði einkenna vart og þess háttar.

Heilbrigðisstéttum ber að virða þagnarskyldu, því er oft erfitt að tala um það sem gerist fyrir veikt fólk og þarf að hugsa sig vandlega um. Þannig getur verið erfitt fyrir heilbrigðisstarfsfólk að svara fyrir sig. En skrýtið er það líka þegar það þarf sífellt að vera á varðbergi fyrir óverðskulduðum eða undarlegum ásökunum. Mannflóran er misjöfn, sumir hafa sterkar aðsóknarhugmyndir, hvort sem það er vegna undirliggjandi sjúkdóms eða einfaldlega hluti af persónunni. Þegar aðsóknarhugmyndir ganga of langt getur komið til misskilningur og þá verða oft til misvísandi upplýsingar.
En hvað með það. Svínaflensan er vissulega eins og margar aðrar inflúensur. Líkt og áður hefur verið gert, t.d. við “hinni árlegu inflúensu” er boðið upp á bólusetningu. Tilgangur hennar er að forða fólki frá frekari dreifingu og skaða sjúkdómsins.

Sigurður Viktor Úlfarsson
15.10 2009 kl.23:10

Auðvitað ræður fólk hvort það tekur þátt í þessu Jónínudæmi en það er lágmark að það hafi réttar upplýsingar áður.

Gott Svanur!

anna benkovic
15.10 2009 kl.23:11

Takk Svanur að benda á þetta!

Tóta
15.10 2009 kl.23:12

Ef fólki líður betur eftir meðferðina, - og hefur verið tilbúið til að borga fyrir meðferðina ( og átt fyrir henni), hvað er þá að þessu??? Er pókerspil eða áhættufjárfestingar eitthvað betri leið til að stuðla að skammvinnri véllíðan?

koli
15.10 2009 kl.23:12

Áfram Svanur!

Bangsi
15.10 2009 kl.23:15

“Svínaflensan er vissulega eins og margar aðrar inflúensur”

Akkurat....

En áróðurinn í kringum þetta á heimsvísu veldur mér hugarángri!

Þór
15.10 2009 kl.23:17

Mæli með heilsuhæli Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Þar er tekið á þessum málum með skynsemi, hjartahlýju, hugsjónum og nær 60 ára reynslu af non profit sjálfseignarstofnun.

krissi
15.10 2009 kl.23:22

Carls Atlas notaði ristilhreinsun fyrir áratugum og gerði þær sjálfur,að missa mörg kíló er ekki hættulegt fitusog og líkamsfita eru skorinn af fólki í kílóa vís nokkur kíló í einu,Stundum missir fólk útlimi sem eru mörg kíló og ekki þykir hættulegt að missa 400 millilítra af blóði.

sls
15.10 2009 kl.23:23

ALMENN HEILBRIGÐ SKYNSEMI

er ekki svo almenn ;-) !!

Már Egilsson
15.10 2009 kl.23:44

Bangsi:

Þú skilur þá að það er ástæða til að birta aðvaranir vegna faraldurs, því það er einmitt það sem þetta er. Það er ekkert scam eða plat og það er ekki nein “læknamafía” á bakvið það.

Már Egilsson
15.10 2009 kl.23:47

Ég er hinsvegar sammála þér með að mikið upphlaup er í gangi. Hundurinn liggur grafinn hjá fjölmiðlum. WHO er að rækja skyldur sínar og sömuleiðis heilbrigðiskerfið. Fjölmiðlar eru hinsvegar ekki að sinna nógu vel upplýsandi og hlutlausri fræðslu heldur er alltaf undirtónn ótta eða reiði.

Gummi
16.10 2009 kl.00:00

Þetta er vara fyrir útrásar-Víkinginn á Bessastöðum
Þetta er antí -fita BEIKON

SJ
16.10 2009 kl.00:06

skemmtilegt að sjá að þetta er vinsælasta fréttin í dag - fólk komið með ógeð af IceSave?

kjartan
16.10 2009 kl.00:42

þessir læknar eru svo hræddir við þetta því þeir vilja ekki missa kúnana sýna nú er fólk byrjað að átta sig á detox og öllu náturulegu hvað það hefur hjálpað mörgum þekki konu sem hefur grenst um 50 kíló bara við að fara í detox og borða lýfræntaðan mat eins og ný en læknar halda það sé alltaf betra að nota lyf við öllu halda öllu niðri með lyfjagjöf nei takk burt með lækna lyf

baldur
16.10 2009 kl.00:45

ekk furða þótt sumir séu á móti þessu ættu ekki að vera rífa sig því það hefur ekki prófað þetta svo er orðið læknir prentað inn í hausin á flest öllum því það þekkir ekkert annað

Ónefndur
16.10 2009 kl.01:13

Með eða á móti, þið eruð heimskasta fólk Íslands.

Guðjón23
16.10 2009 kl.01:37

Fólk á bara að hreyfa sig meira og éta ekki of óhollan mat. Þá þarf fólk ekki að fara í svona meðferð. En fólk hefur val hvernig það vil létta sig.

Brosi
16.10 2009 kl.02:30

Ég er með pottþéttan megrunar kúr og lofa meira en hálfu kílói í þyngdartap á sólahring en kúrinn má ekki byrja fyrr en þú ert búin að borga mér fyrir hugmyndina, en kúrinn felst í því að drekka bara vatn og ekkert annað í mánuð.Ef þú ert undir 60 kílóum hentar ekki þessi kúr því þá hverfur þú en hinir verða sennilega veikir úr næringarskorti en þá vil ég benda þeim á að leita til annarra fagaðila eða lækna til að reyna að leysa úr því vandamáli, ég tek það ekki að mér.

Brosi
16.10 2009 kl.02:31

Svo er hér annar megrunarkúr borðaðu fjölbreyttan hollan og góðan mat ekki mikinn sykur eða dýrafitu og slepptu snaki og sælgæti og fáðu þer bara einu sinni á diskinn og svo er að hreifa sig smá á hverjum degi þannig að maður verði vel móður.Ég lofa 100% framtíðar árangri og þú þarft ekkert að borga fyrir þessa hugmynd

Grímur
16.10 2009 kl.02:41

Hefur ekki Herbalife verið markaðsett með svipuðum rökum og þetta hjá Jónínu

asgeir
16.10 2009 kl.06:18

Læknar á íslandi standa sig líka ansi vel í skyndilausnum, eigum við ekki metið í Rítalín notkun, Þó ég þekki það ekki þá grunar mig að við séum líka anski ofarlega í notkun pensilíns.

Magnus Jonsson
16.10 2009 kl.06:39

Af hverju mótmæla læknar ekki gengdarlausu sykuráti íslenskra barna ??

Jújú auðvitað má gagnrýna hitt og þetta í sambandi við megrunaraðferðir hjá Jónínu sem öðrum og hvort einhverjir rukki hundruði þúsunda fyrir ristilskolun, en að læknar þegi þunnu hljóði um sykurofneysluna á íslandi er skandallinn.

Það mál á eftir að sliga heilbrigðiskerfið í þrot þegar að fólk ekki orðið þrítugt er orðið óvinnufært vegna ofþungdar og líkamlegra vandamála vegna yfirþyngdar.

Svo rogast krakkar út úr búðunum með 2kg af bland í poka 3-4 snakkpoka og kippu af 2l kók ... fyrir hverja helgi.... og engin segir orð

ingi
16.10 2009 kl.09:45

Ódýr ristilhreinsun; láttu hamborgarann standa við stofuhita í tvo sólahringa áður en þú borðar hann...

hress
16.10 2009 kl.09:54

Það veitir nú ekki af því fyrir íslenskar konur að taka af sér nokkur kíló þær eru sennilega þær feitustu í Evrópu.

Björk
16.10 2009 kl.10:28

Það er alveg greinilegt að fæstir sem eru að tjá sig hérna þekkja almennilega til Detox meðferðarinnar hjá Jónínu eða vita hvað gerist í henni.

Hér er í gangi týpískt íslenskt slúður, byggt á kjaftasögum og því sem fólk “heldur” en veit ekkert um. Hefur Svanur virkilega kynnt sér dagskránna og meðferðina til hlítar hjá Jónínu? Mér skilst að það hafi hann alls ekki gert.

í meðferðinn er boðið upp á grænmeti daglega og má borða eins mikið og maður getur í sig látið á matmálstímum. 1 dagur er djúsdagur...og það er þá boðið upp á ferska grænmetis og ávaxtadjúsa sem eru ferskpressaðir á staðnum. Engin viðbætt efni í þeim djús. 1 dagur er vatnsdagur. í lok meðferðar er grænmetisdagur með fisk í kvöldmatnum.
Þannig fólk er ekki látið lifa á vatni og djúsi í 2 vikur eins og verið er að gefa í skyn hérna.
Auk þess er boðið upp á daglega hreyfingu, gönguferðir, leikfimi, fyrirlestra, viðtöl o.fl. Meðferðin snýst ekki bara um mataræði heldur um breytingu á lífsstíl.

Fólkið sem fer í meðferðina er af báðum kynjum, öllum aldursflokkum og stéttum.

Enginn þarf að fara í ristilskolun nema hann vilji það. Það ákveður bara hver og einn eins og hann vill. Boðið er upp á allskonar frábærar nudd og spa meðferðir.

Það væri óskandi að fólk kynnti sér málið betur áður en það dæmir allt hægri /vinstri. Ég þekki fleiri aðila sem hafa farið í þessa meðferð og allir hafa fengið betri líðan á eftir.

Það er hreinlega frábært að fara í Detox hjá Jónínu. Hún er með frábært og vel menntað starfsfólk. Og maður kemur þaðan endurnærður uppfullur af vellíðan. Hvað er svona hræðilegt við það?

Hér getið þið lesið umsagnir fólks sem hefur farið í meðferðina og veit hvað það er að tala um:
http://detox.is/stylesheet.asp?file=03012009195657

Margrét Hugrún Gústavsdóttir
16.10 2009 kl.11:17

Fólk var byrjað að skola í sér ristilinn löngu áður en langaangalangalangalang afi svans át roðskóna sína einhversstaðar vestur á fjörðum.

Áður en DaVinci teiknaði fóstrið.

Áður en Ísland var numið hafa menn og konur skolað ristlana sína.

Nútíma íslendingar lifa meira eða minna á brauði og margskonar jukki sem vart telst til almenninlegrar fæðu. Hvergi í heiminum er drukkið meira kók.

Hvað í andsk er að því að hvetja mannskapinn til að drekka djús i staðinn? Og auðvitað léttistu þegar bjúgurinn lekur af þér. Og hvað með það þó kílóin komi kannski aftur seinna?

Þú hefur þá allavega fundið muninn á því að nota djús sem orkugjafa í skrokki vs. kók og kaffi.

Svanur. Tjillaðu.

Bragi Gunnarsson
16.10 2009 kl.12:17

Ég get ekki orða bundist yfir heimskunni og fáviskunni (með örfáum undantekningum) sem grasserar í þessum athugasemdum. Geri mér grein fyrir að ég verð ekki meiri maður fyrir að taka þátt í þessu og þessi athugasemd mín verður eins og krækiber í helvíti innan um hálfitaskapinn hérna en ég get ekki sitið á mér. Ranghugmyndir fólks um læknastéttina og starf hennar virðist engum takmörkum háð. Einn af hápunktunum er þegar Hjördís nokkur talar um ísetningu gerviliða í hné sem “skyndilausn” lækna við vandamálum sem má leysa með breyttu mataræði. Hvernig getur nokkur maður trúað því að þessar aðgerðir séu gerðar án betri ástæðu?! Ótrúlegt! Svo á ég ekki til orð yfir ranghugmyndunum hvað varðar bóluefnið við svínainflúensunni. Fólk kallar þetta eitur?! Haldið þið að fólk sem vinnur við þetta séu hálfvitar?! Og heldur fólk að læknar séu að græða á þessum bólusetningum?

Og að lokum, eitt sem vill gleymast:
Eini munirinn á “hefðbundnum” og “óhefðbundnum” lækningum er að það er búið að sanna að þær hefðbundu virka með viðurkenndum rannsóknum. Ef detox virkaði á alla heimsins sjúkdóma væri þetta hluti af “hefðbundnum” lækningum og þá án efa eitt af því sem læknar ráðleggðu fólki. Mikið af þessum slæmu “lyfjum”, sem fólk hér virðist halda að læknar skrifi upp á af hreinni illsku og peningagræðgi, koma úr náttúrunni. Þau eru notuð því að það er búið að sanna að þáu gera meira gangn ef lyfleysa, og sönnunin felst ekki í að “einhver þekir einhvern sem gerði þetta og leið betur...” sem virðist vera sterkustu rökin fyrir gangsemi Detox-meðferðar.

Svanur á hrós skilið fyrir að reyna að upplýsa fólk um þetta kukl vitandi af þessari flóðbylgju heimsku og vantrú sem óumflýjanlega skellur á honum hérna.

ES
16.10 2009 kl.13:01

Bragi Gunnarsson kl. 12:17. Læknar eru misjafnir eins og þeir eru margir. Starfsheitið er enginn gæðastimpill.

Hjördís Vilhjálms
16.10 2009 kl.13:01

@Bragi Gunnarsson
16.10 2009 kl.12:17

Er það ekki skyndilausn, þegar seinvirkari aðferð eins og það að létta sig, er varla nefnd við fólk ?

Danir senda fólk í megrun með góðum árangri og spara þar með háar fjárhæðir með hnáliðaskiptum.

Í mínum huga er það skyndilausn, þegar aðrar leiðir eru hvorki ræddar né reyndar, áður en aðgerð er gerð.

Valur
16.10 2009 kl.13:41

Mér er nokk sama hvað sumum læknum finnst. Vil Svanur eitthvað ræða um baneitruð lyf sem fólki eru gefin?? Eða sjúkdómsgreiningar sem fara fram yfir skrifborð og án skoðana? Eða það að læknar fullyrði fullum fetum að það skipti engu máli hvað maður borðar?? F´safræðin hjá sumum læknum er mikil á þessu sviði.

Eftir að hafa heimsótt heimilislækni minn nokkuð oft og kvartað yfir ýmsum kvillum án þess að fá nokkurn annan árangur eða ráð önnur en þau að taka inn lyf eða fara í sjukraþjálfun og það án þesss að nokkur rannsókn eða skoðun færi fram ákvað ég að taka málin í mínar hendur. Gjörbreytti matarræðinu og fór í hreinsun í tvo daga. Einhverskonar detox. Og er allur annar maður. Ný heilsa og meiri orka.

JRH
16.10 2009 kl.14:31

Fari þeir sem fara vilja í detox, við hin sleppum því bara.

Ég persónulega mun aldrei fara í detox.

Sesar
16.10 2009 kl.14:47

Robbi skrifar: “Gott hjá þér ES að benda á ofnotkun íslenzkra barna á Ritalíni. Þótt Ritalín eigi fullan rétt á sér við alvarlegri ofvirkni, er hrikalegt, að ávísunum hafi fjölgað úr 0,2% árið 1989 upp í yfir 25% árið 2006.” Þetta er skiljanleg villa hjá Robba vegna þess að í netútgáfu Læknablaðsins er þetta líka vitlaust. Þetta er ekki 25 prósent (þ.e.a.s. 25 af hundraði-%) heldur 25 permill (þ.e.a.s. 25 af þúsund-‰). Þannig að í raun eru 2,5% barna á Íslandi að taka ritalín. Ef algengi ofvirkni er 5-10% eins og sumar rannsóknir benda til, þá getur þetta varla talist mjög öfgakennd notkun

Mandla
16.10 2009 kl.15:02

Bragi @ 12:17

Hvað eru krabbameinslækningar annað en tilraunir, tilraunir á fólki ? Lækningar bera ekki allar árangur, bólusetningar ekki heldur.

Með svínaflensubóluefnið er alsendis ónægjanlega kannað hvaða afleiðingar það hefur á fólk til lengri tíma, ekkert flóknara en það. Lyfjafyrirtækinu sem bóluefnið er keypt af hefur verið stefnt fyrir óvönduð vinnubrögð í Austurríki og ekkert í fyrsta eða síðasta skipti sem lyfjafyrirtæki verður uppvíst að slíku.

Einhverjir munu ekki mynda bóluefni þrátt fyrir bólusetningu og verða veikir, alveg á sama hátt og einhverjir fullfrískir (ekki með undirliggjandi sjúkdóma) munu falla undan veikinni. Það er ekkert nýtt undir sólinni, bara eðli vírusa.

Til að “hjarðónæmi” myndist, þurfa +75% þjóðarinnar að fara í bólusetningu, mótstaða er eitthvað sem tekur 2-3 vikur að myndast eftir bólusetningu.

Hvert er þá gagnið af bólusetningunni ? Að varna því að vírusinn stökkbreytist ? Að mynda mótefni hjá fólki svo það taki ekki við vírusnum þegar hann stökkbreytist ?

Hvernig dettur mönnum í hug að kaupa bóluefni fyrir alla þjóðina (fallega hugsað en ekki nauðsynlegt þegar smithraðinn er svona mikill) ?

Mandla
16.10 2009 kl.15:05

Og eitt að lokum Bragi.

Þú segir að eini munirinn á “hefðbundnum” og “óhefðbundnum” lækningum er að það er búið að sanna að þær hefðbundu virka með viðurkenndum rannsóknum. Hluti krabbameinslækninga er að gefa von, gleymdu því ekki en það hefur ekki verið gerð nein “viðurkennd vísindaleg” rannsókn á því, sumir hlutir eru órannsakanlegir ;)

Bragi Gunnarson
16.10 2009 kl.15:47

@ Mandla

Lækningar og bólusetningar bera vissulega ekki alltaf árangur, en gera þó oftar gagn en ekki. Það er eðli málsins samkvæmt ekki hægt að kanna áhrif þessa bóluefnis á menn til lengri tíma (ef það ætti að gera það væri engin þörf fyrir bóluefnið lengur) en það er byggt á sömu aðferðum og venjulegt influensubóluefni sem gefið er á hverju ári (eldri borgarar o.fl.) með góðum árangri, málið er að bóluefnið er talið gera meira gangn en skaða og að sjálfsögðu minni skaða en sjúkdómurinn

Hvað varðar vonina þá skiptir hún miklu máli, þess vegna eru virkni lyfja helst rannsökuð “tvíblint” gegn lyfleysu eða hefðbundninni meðferð. Þ.e. hvorki sjúklingurinn né læknirinn veit hvort er verið að gefa, og því ættu vonir eða væntingar ekki að vera meiri í öðrum hópnum en hinum og þannig ekki hafa áhrif á niðurstöðuna.

Það er þreytandi þetta viðhorf að læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sé á einhvern hátt að reyna að halda niðri “óhefðbundnum” aðferðum af peningagræðgi eða þröngsýni. Það eina sem er farið fram á er að sannað sé að meðferðin geri meira gagn en ekkert. Það ætti að vera lágmarkskrafa, sérstaklega þegar meðferðin er ekki í neinum takti við þekkingu okkar á mannslíkamanum í dag, eins og í þessu tilviki.

Rottweiler
16.10 2009 kl.15:53

Hverjir eiga lyfjafyrirtækið sem framleiðir Tamiflu svínaflensulyfið? Sagan segir að gamlir og úreltir pólitíkusar eins og Donald Rumsfeld fyrrverandi varnamálaráðherra í Bushstjórninni sé einn stæðsti eigandi.Pólitíkin er allstaðar m.a.s.í pillunum.Sí endurteknar bólusetningar ( shot in the Dark ) á mönnum og dýrum geta ekki verið góðar fyrir ónæmiskerfið til lengri tíma séð, (sjúkdómsvæðing ??? ),það sést best á blessuðum gæludýrunum sem eru orðin uppfull af allskyns krónískum sjúkdómum og rándýr dýralæknakostnaður í kjölfarið fyrir eigendur þeirra.Velti því stundum fyrir mér hvort þetta sé er rotinn bissness af verstu gerð.Allavega myndi ég frekar drekka djúsinn hennar Jónínu en taka inn pillur. Min skoðun.

SiggiS
16.10 2009 kl.18:50

Þetta var tímabær og góð grein. Næst vona ég að Svanur taki fyrir samsæri mjólkuriðnaðarins og blekkingarleikinn sem læknastéttin og manneldisyfirvöld eru í og mjólkuriðnaðurinn borgar fyrir eða styður. Drekktu tvö glös af mjólk á dag -- annars deyrðu.

Hjördís Vilhjálms
16.10 2009 kl.20:34

Tyra Banks með stólpípu í beinni, heimsmetabók Guiness mun fylgjast með.

Nú er lag að gagnrýna Tyru Banks opinberlega, bara spurning hvort hún liggi eins vel við höggi ?

Hér er slóðin :

http://www.dv.is/sed-og-heyrt/2009/10/16/stolpipa-i-beinni-hja-tyru-banks-myndband/

Guðbjörg
16.10 2009 kl.21:23

Allir sem eru að gagrýna hluti VERÐA að hafa eitthvað vit á því....ég hef farið sjálf í tvígang og veit nákvæmlega um hvað ég er að tala. Þetta er það besta sem ég gat gert mér og líkama mínum,hef aldrei liðið svona frábærlega og á hún Jónina heiður skilið í að vera svo dugmikil og fær í að koma þessu til landsins svo við ættum gott aðgengi að þessari þjónustu hjá henni.......Svanur prufa fyst gagrýna svo annars er ekki hægt að taka mark á því sem þú ert að segja.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar