Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra sætir harkalegri gagnrýni frá þingmönnum stjórnarandstöðunnar, útgerðarmönnum og Samtökum iðnaðarins vegna ræðunnar sem hann flutti á ársfundi Alþýðusambandsins (ASÍ) í gær.
Ráðherra sagði meðal annars í ræðunni að ef sjávarútvegur og stóriðja gætu ekki þolað hóflega innköllun veiðiheimilda og hóflega auðlindaskatta væru spurning hvort Íslendingar væru yfir höfuð að veðja á réttan hest og yrðu að leita annarra kosta um framtíðaratvinnuuppbyggingu. Þá kvað hann fast að orði um atvinnurekendur og fylgismenn stóriðju.
„Það er langt síðan orðræða af því tagi sem félagsmálaráðherra hafði uppi hefur heyrst. Óforskammaðir kapítalistar, útgerðarauðvald, erlendir auðhringar, ginningarfífl stóriðju, grátkór og kveinstafir útgerðar og álfyrirtækja skal það nú heita,“ segja Samtök iðnaðarins í yfirlýsingu í morgun. Vonandi sé ráðherrann ekki að gefa tóninn fyrir lokasprettinn í stöðugleikasáttmálanum.
Málið var rætt við upphaf þingfundar í dag. Illugi Gunnarsson, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, sagði að ýmis ummæli í ræðunni væru varla eftir hafandi. Áhugavert væri, að velta því fyrir sér hvort um væri að ræða stefnu Samfylkingarinnar í atvinnumálum, en til þessa hefði verið talið að stefnumörkun ríkisstjórnarinnar um stóriðjuskatta væri ættuð frá Vinstri grænum. Ummæli ráðherrans lýstu hins vegar sama viðhorfi til atvinnulífsins, að berja niður stóriðjuna og sjávarútveginn.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, sagðist hafa hrokkið verulega við þegar hann heyrði af ræðu Árna Páls. Vísaði hann til þeirra orða, að gengisfellingin hafi fært peninga frá íslensku launafólki til sægreifa og stóriðju og sagði að ráðherrann hlyti að þurfa að skýra þetta.
„Orð ráðherrans eru honum ekki einungis til minnkunar vegna þess hroka sem hann sýndi þeim sem vinna við þessar atvinnugreinar. Þau eru einnig vanvirða við það góða fólk sem mátti sitja undir ræðu hans,” segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdarstjóri LÍU í yfirlýsingu í morgun.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
90 ummæli
Rita ummæli23.10 2009 kl.11:20
Slóð
Frábær ræða hjá Árna! Tæpitungulaus og sanngjörn!
Grátkór fyrirtækjanna sem fengið hafa gríðarleg auðæfi án nokkurs endurgjalds er óþolandi.
23.10 2009 kl.11:21
Slóð
Gott hjá Árna Páli.
Það þarf að veita þessu forréttindaliði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar aðhald.
Ofurfrelsi þessara aðila á frjálshyggjutímanum gerði að verkum að þeir skuldsettu sjávarútveg út úr heiminum og orkufreki iðnaðurinn á ekki að hafa ótakmarkaðan aðgang að orkulindum þjóðarinnar á útsöluverði.
Hugsa þarf um hag þjóðarinnar fyrst.
23.10 2009 kl.11:21
Slóð
Loksins kom ropi úr hálsi Samspillingarmanns sem virðist ekki vera kostaður af fámennum hópi spilltra lénsherra, skuldakónga og sjálftökumanna.
Nú er að fylgja þessu eftir Árni! Þjóðin bíður!
23.10 2009 kl.11:22
Slóð
GÓÐUR ÁRNI PÁLL!
23.10 2009 kl.11:24
Slóð
Því skyldi ekki þjóð í nauðum mjólka sínar heilögu kýr?
23.10 2009 kl.11:26
Slóð
Góð ræða hjá Árna Pál.
Allveg merkilegt að heyra forvísismenn útgerðarinnar væla yfir því að þeir geti ekki tekið á sig einhverjar birgðar vegna hruns bankakerfisins sem flokkurinn þeirra á með húð og hár. Útgerðinn er i dag vel í stakk búinn að til að taka á sig einhverjar birgðar.
Það pólitík Sjálfstæðisflokksins og útibúi þeira sem er LÍÚ að það ber að setja allar birgðar yfir á almennt launafólk.
Pólitík Sjálfstæðiflokksins er að einkavæða gróðan en þjóðnýta tapið.
Mikið er ég feginn að íhaldið er ekki við stjórn.
23.10 2009 kl.11:27
Slóð
hahah...
Árni snýr við í þessu sem öðru...
Hafið þið einhverja trú á öðru með þennan framapotara...
Hve/ar er Jóhanna?
23.10 2009 kl.11:27
Slóð
haldið þið virkilega að þetta snúist um flokkanna...þetta snýst um að fólk haldi vinnu sinni. Og hvaða afleiðingar mun þetta hafa fyrir landsbygðina..það verður að skoða það.
23.10 2009 kl.11:28
Slóð
Ágætis ræða hjá Árna Páli.
Það er ekki einsog allir þurfi að fara af taugum þótt Friðrik Arngrímsson opni munninn.
23.10 2009 kl.11:28
Slóð
Flott hjá Árna. Ekkert óeðlilegt við það að þeir aflögufæru hjálpi til. Grátkór er réttnefni á þessa aðila.
23.10 2009 kl.11:30
Slóð
Það er athyglisvert hvað Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn ertu tilbúnir í að ganga langt til þess að vernda gamlar hugsanir.
Þessi ræða var þrusuræða, og ég tel að flest fólk í landinu hafi verið sammála Árna Páli.
Það er allt í lagi að virkja og byggja, en það skal gert með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi, ekki hagsmuni útvaldra flokksgæðinga og einkavina þeirra.
23.10 2009 kl.11:31
Slóð
Loksins rumskaði Árni Páll - flott hjá honum - nú þarf hann að sýna okkur ða hann meinti það sem hann sagði
23.10 2009 kl.11:31
Slóð
Árni Páll á HRÓS skilið fyrir að vekja athygli á að “ef sjávarútvegur og stóriðja gætu ekki þolað hóflega innköllun veiðiheimilda og hóflega auðlindaskatta væri spurning......” Árni Páll eins og Steingrímur J. setja báðir fram mjög eðlilegar spurningar, þ.e.a.s.: “Eru stóriðjan & sjávarútvegurinn að greiða eðlileg gjöld til samféalgsins???” Eflaust eru 90% Íslendinga á þeirri skoðun að auðhringar álveranna hafa svo sannarlega ekki greitt eðlilegt verð tengt raforkuverðinu, ekki greitt fyrir byggingu á virkjunum & stækkum á hafnaraðstöðu og aðrar framkvæmdir sem bæjarfélg eða ríkið þarf að leggja út í til að koma upp starfsemi til að selja þeim orku. Auðhringar greiða gjöld, skatta & raforkuverð - en spurningin er: “greiða þeir eðlilegar upphæðir?????” Svarið er því miður augljóst NEI.
Kvótakerfið er ljót svikamylla sem Davíð & Halldór Ásgrímsson bjuggu til, það hefur ekki skilað okkar samfélagi “arðsemi né stækkun á þorskveiði kvótum” en lélegir stjórnendur margra fiskvinnslufyrirtækja hafa veðset óveiddan kvóta til að geta tekið þátt í “verðbréfa braski...!” Er þetta boðleg vinnubrögð????? Já, segir LÍÚ, SA og ASÍ (þetta lið er ávalt til skammar) en NEI segir 80% af þjóðinni. Við viljum vitrænar & málefnalegar umræður. Árni Páll & Steingrímur J. eiga HRÓS skilið fyrir að ÞORA að taka upp þessar umræður og fyrir að þora að vilja fá aukna skatta frá þessum atvinnugreinum. Ef þessir aðilar geta ekki lagt fram aðstoð þegar samfélag okkar er að hrynja, þá gengur dæmið bara ekki upp...! Við Gylfa hjá ASÍ vil ég segja: “hættu - hættu þú spilar ávalt með vitlausu liði - þú ert til háborinnar skammar!”
Íslenskir sjómenn eru hetjur okkar og þeir ásamt bændum færa okkur bjargir í bú, hörku duglegt fólk sem heldur í raun uppi okkar samfélagi með þrotlausri vinnu. Hins vegar sýnist mér kvótakerfið vera þannig uppbyggt að það neyðir okkar sjómenn til að taka þátt í brottkasti á fiski - ég er talsmaður þess að taka upp svipað kerfi og vinnaþjóð okkar færeyingar nota. Taka það kerfi upp og auka strax fiskveiðar um 100 þúsund tonn, og auka einnig veiðar í Barentshafinu. Fiskveiðistjórnun RÁNFUGLSINS hefur verið til skammar síðustu 10 árin eða svo - það er ekki rétt gefið - förum nú að gera hlutina að einhverju viti. Hættum þessum ömurlega skotgrafar hernaði sem SA, ASÍ & LÍÚ ávalt stunda og spyrjum “hvað get ég gert fyrir þjóð mína til að koma henni áfram í stað þess að standa í vegi fyrir umbótum...!”
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
23.10 2009 kl.11:34
Slóð
Þegar Húnar voru að þrotum komnir sprettu þeir upp æð á bringu reiðhests síns og drukku blóð úr honum .
Þó ekki meir en klárinn þoldi, því fátt þótti þeim vænna um.
23.10 2009 kl.11:35
Slóð
“Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, sagðist hafa hrokkið verulega við þegar hann heyrði af ræðu Árna Páls. Vísaði hann til þeirra orða, að gengisfellingin hafi fært peninga frá íslensku launafólki til sægreifa og stóriðju og sagði að ráðherrann hlyti að þurfa að skýra þetta.
-----
Þarf að tyggja allt ofan í þennan mann?
Við gengisfall íslensku krónunar og vegna verðbólgu hefur launafólk þurft að þola gífulega launalækkun.
LíU græðir því að launakostnaðurinn lækkar og söluverðmæti hækka.
Hélt að alþingismenn væru með lágmarks fjármálalæsi...
23.10 2009 kl.11:37
Slóð
Auðlindir á alls ekki að skatta. Hvernig á annars að fjármagna morgunblaðið.
23.10 2009 kl.11:38
Slóð
Góður Árni, auðvitað sárnar þessum greifum
23.10 2009 kl.11:40
Slóð
það er alltaf eins með 101 fólk hafið ekki hundsvit á hvað er að gerast á landsbyggðinni . Hún má bara éta það sem úti frýs.Á hverju hafa Íslendingar lifað Sjávarútvegi !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
23.10 2009 kl.11:41
Slóð
Allt sem Árni sagði í þessari ræðu er satt og rétt og nákvæmlega það sem
margfaldur meirhluti þjóðarinnar hugsar.
Það er kominn tími á að grátkórinn haldi kjafti og taki þátt í þeim risavöxnu verkefnum sem bíða þessarar þjóðar í endurreisn bæði efnahags og siðferðis.
Vonandi meinar Árni það sem hann segir, vonandi er þetta ekki bara popúlismi, við þurfum svo virkilega á því að halda að hér verði breytingar á samfélaginu og afstöðu þrýstihópa til lýðræðis og samkenndar.
Ef tekið er dæmi um eitt ömurlegast rugl sem haldið er að fólki þessa dagana þá er það söngurinn um að ákvörðun Umhverfisráðherra varðandi línulagnir hafi sett allt í uppnám.
Það vita allir sem eitthvað vita að það eru vandræði með fjármögnun verkefna og kröfur aðila um sértæka skattaafslætti sem tefja.
Sama fólkið og grætur mest um þessa ákvörðun stendur svo á Alþingi Íslendinga og berst á hæl og hnakka gegn áætlunum um að auka traust á fjármálakerfinu, því sama trausti og þarf til að tryggja fjármögnun stórra verkefna.
Um þetta er bara eitt að segja, skammist ykkar.
23.10 2009 kl.11:42
Slóð
Bíðið við, Árni er ekki að mótmæla Bakka og Helguvík og talar um hóflega innköllun aflaheimilda. Yfir hverju eru ginningarfíflin að væla? Hann vill gera svipaðað hluti og þau, en hann vill reyna að gera það almennilega en ekki með sérhagsmuni og spillingu í huga. Þannig les ég alla vega ræðuna hans. Anda ginningarfífl, anda.
23.10 2009 kl.11:42
Slóð
Álver eða dauði !
23.10 2009 kl.11:42
Slóð
Skelfilegur þingmaður.
Er að reyna að fá athygli.
Hefði frekar átt að múna.
23.10 2009 kl.11:43
Slóð
Hrökkva nú við allir hagsmunagæslukútarnir
Árni Páll Láttu það ekki stöðva þig !!!!
23.10 2009 kl.11:43
Slóð
Ræða Árna var honum til minnkunar.
Hvað þýðir orðið sægreifi??
Í mínum huga er það orð yfir þá sem selt hafa útgerð sína og eru hættir í greininni með góðum hagnaði. Sægrifi á alls ekki við um útgerðamenn sem eru atvinnurekendur og eru með fjölda manns í vinnu. Það er merkilegt hvað stórmálamenn og fjölmiðlar leyfa sér að leggja eina stétt í landinu í einelti.
23.10 2009 kl.11:45
Slóð
Áliðnaður og orkuveitur væla hæst .
Mest skuldugu fyrirtækin, minnsti hagnaðurinn , fæstir vinnustaðir og
bestir til að ráða erlend vinnuafl ( Tíma ekki að ráða Íslendinga )
Mest menguðu og fyrirtæki sem hafa þegið hvað mest ríkisfé.
Sömu fyrirtæki mótmæla að þurfa að greiða eðlilegan orku skatt.
Skattur sem greiðist alls staðar í heiminum , en hefur gleymst að rukka á Ís.
Er ekki rétt að spyrja
hvort Íslendingar væru yfir höfuð að veðja á réttan hest .
Það eru Íslendingar ekki , því miður.
Dáldið seint að átta sig á því, en betra seint en aldrei.
Takk Árni, tímabær umfjöllun.
23.10 2009 kl.11:46
Slóð
Hvernig væri nú að drífa í að klára málið? Það er ekki endalaust hægt að hræða skrílinn með þeim hroða sem yfir dynur ef hægri flokkarnir komast að.
23.10 2009 kl.11:47
Slóð
Ég styrkist meira og meira í þeirri trú minni að eftir því sem meira kemur frá honum að Árni Páll sé tómur vindbelgur í fögrum umbúðum.
23.10 2009 kl.11:48
Slóð
Það er löngu kominn tími til að hreyfa við þessum lénsherrum sem hafa fengið auðlindir landsins á silfurfati.
Ef útgerðin getur ekki þolað fyrningu veiðiheimilda hversvegna getur hún þá verið að kaupa veiðiheimildir hver af öðrum formaður LÍÚ hefur verið iðin við að segja mönnum og málleysingjum að útgerðin sé búin að kaupa 90% af veiðiheimildunum og þess vegna megi ekki taka þetta af þeim??????????
Ef ég fæ pláss á elliheimili má ég þá leigja það út og ef ég má leigja það út má ég þá ekki líka selja það til hennar Gunnu sem hefur ekki fengið pláss, mér er að sjálfsögðu sama hver á plássið á elliheimilinu bara ef ég get sýnt fram á að ég hafi fengið þetta pláss og því hafi ég yfirráðarétt yfir því.
Ég get svo keypt mér bílaumboð eða fótboltafélag fyrir gróðan af sölunni
Mér er samt illa við Árna Páll þó að hann hafi nú hreyft við máli sem löngu tímabært er að hreyfa við.
23.10 2009 kl.11:49
Slóð
ÁFRAM ÁRNI PÁLL
ÁFRAM ÁRNI PÁLL
23.10 2009 kl.11:51
Slóð
Árni fær betri viðbrögð hér í Kommentum á Eyjunni og meiri stuðning , en á þessum fundi ASÍ, ef marka má fréttina.
En varla tekur hann mark á þeim stuðningi sem hann fær hér...slæmt fyrir hann.
23.10 2009 kl.11:53
Slóð
Jón Magnússon
þarna er ég sammála þér, segi og skrifa á meðan þingmenn VG er virkilega að standa sig í erfiðu umhverfi þá eru þingmenn Samfó ekki að gera sig, og besta dæmið frá því Davíð var við völd að allir þingmenn XD voru undir hans dutlinum settir..... þingmenn er til sölu og það eru aumingjarnir í samfó.
SAMA á við um úrhrökin í Samfó allir undir duttlunum og ræfilsskaps Jóhönnu og Össurar..... bölvaðir aumingar, nær væri að setja Steingrím í forsætisráðherra stólin en ónýta kerlingu.
23.10 2009 kl.11:54
Slóð
Held að það þurfi að skipta landinu í tvennt... höfuðborgarsvæðið með 101 sem höfuðborg og svo Landsbyggðin þar sem sjávarútvegur ræður ríkjum, með dash af stóriðju...
Ég er flúinn út á land...
23.10 2009 kl.11:55
Slóð
Aron Árna
23.10 2009 kl.11:43
Ertu þá að ræða um útgerðarfyrirtæki sem gera út 2 báta, fá úthlutuðum kvóta fyrir fisk sem þeir veiða ekki, og leigja hann svo.
Er þetta heiðarlegir útgerðarmenn....
En þetta er raunveruleikinn, og er ekkert annað en sægreifi því þeir fá sitt lifibrauð frá skattborgurum og eigum þeirra
23.10 2009 kl.11:56
Slóð
Loksins tala einhver máli okkar fólksins gegn auðvaldinu :) !!!!
23.10 2009 kl.11:56
Slóð
Hann Árni á að halda sig við það sem að honum snýr hjálpa skuldsettum. Hann er eins og fáviti þegar hann kemur fram í sjónvarpinu . Það virðist alveg vera dottin niður umræðan um skuldsett heimili. Niður með Árna
23.10 2009 kl.11:57
Slóð
Flott hjá Árna. Það eru tvær þjóðir í þessu landi, þeir sem vilja fá allt fyrir ekkert og svo við hin sem eigum að borga brúsann. Það er kominn tími til að sérhagsmunahópar þjóðfélagsins borgi fyrir að veiða fiskinn okkar og nýta orkuna okkar.
Vonandi verður farið í það að fullri alvöru að framkvæma þetta. Þá myndi loksins glitta í heilbrigt þjóðfélag hérna.
Áfram Árni !
23.10 2009 kl.11:58
Slóð
Skattlagning auðlinda hefur þann kost að fyrirtæki geta ekki vikist undan því að greiða hann eins og þau geta gert að miklum hluta með tekjuskatt með því að flytja gróðann úr landi með bókhaldsbrellum.
23.10 2009 kl.12:02
Slóð
Ömurleg ræða hjá Árna Skattmann þar sem hann ræðst á launþegann og heimta læri launa og hærri skatta af launþeganum hann veitt vél að með aukinni álögum fyrirtækja í landinu lækka laun og skattar hækka. Vitið þið ekki hér að ofna að eftir því sem meiri álög eru á atvinnustarfsemi lakka launin.
Læri laun þýða læri tekju til ríkissjóð læri tekju í ríkissjóð þýða hærri álögur þar sem best er að nái í þær og það eru launin okkar.
23.10 2009 kl.12:02
Slóð
Þetta orð auðvald er nú að verða svolítið ofnotað!!!!!!!!
23.10 2009 kl.12:04
Slóð
Og þjóðin grefur sína eigin gröf með því að hlusta á og taka mark á þessum lýðskrumara. Minnir óneitanlega á þá hrifningu sem menn báru fyrir útrásarvíkingunum á sama tíma og þeir voru að féfletta þjóðina m.a. með aðstoð þessa ráðherra og flokks hans. Sumum er ekki viðbjargandi, en þjóðin er að vitkast og þessi spaug ríkisstjórn nýtur stuðnings minnihluta þjóðarinnar.
23.10 2009 kl.12:04
Slóð
Ó vá, ráðherra vogar sér að viðra skoðun sem gæti svo hugsanlega verið hárrétt í þokkabót og hagsmunasamtökin flibba. Það er nú oft þannig í stjórnmálum að hægt er að meta hversu réttar yfirlýsingar stjórnmálamanna eru á viðbrögðum hagsmuna hópa og miðað við þetta held ég að hann hafi alveg rétt fyrir sér. Go Árni
23.10 2009 kl.12:11
Slóð
Það er einkenni bananalýðvelda að lúta stjórn stórfyrirtækja. LÍÚ er einhvers konar ægivald sem á sinn eigin stjórnmálaflokk og fjölmiðil. Við verðum að nota tækifærið núna og hrista þetta af okkur. Þess vegna er þetta gott útspil hjá Árna Pál en það þarf meira. Við verðum að fá kvótann til ríkisins.
Niður með herraþjóðina (óSjálfstæðisFLokkinn)
23.10 2009 kl.12:12
Slóð
Góð ræða!
Áfram Árni!
23.10 2009 kl.12:12
Slóð
Gott hjá Árna að stugga við innvígðum og innmúruðum hagsmunaöflum sem flytja arðinn af auðlindunum skattfrjálst úr landi.
“Þetta er maðurinn [Vilhjálmur Egilsson] sem um árið var formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í hjáverkum, en framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins að aðalstarfi og laumaði árið 1996 inn lagabreytingum, sem gerðu sægreifum fært að flytja söluandvirði gjafakvótans skattlaust úr landi. Talið er að þannig hafi alikálfar Davíðs og Halldórs flutt allt að 500 milljarða króna í skattaparadísir Lúxemborgar, Hollands, Ermarsundseyja og víðar.”
http://www.sverrirhermanns.is/index.php/greinar/2008/106-ofravikjanlegar-kroefur
23.10 2009 kl.12:15
Slóð
Tjaldborg heimilanna sem er að verð gjaldþrota, svona ræðu skrum er ekki fyrir minn smekk vil fara sjá þennan hrokagikk fara gera einkvað fyrir heimili þessa lands
Þessi maður veður upp í pontu og blaðrar,
hvað svo píp og aftur píp sem kemur frá honum
23.10 2009 kl.12:20
Slóð
Gott hjá Árna Páli - orðin ansi þreytt á grátkór kvótaeigenda og eigenda einkahlutafélaga, held þeir ættu að halda kjafti á meðan einstæðar mæður, öryrkjar og ellilífeyrisþegar láta sér nægja að herða sultarólina um enn eitt gatið.
23.10 2009 kl.12:23
Slóð
Árni Páll kom á óvart. Gott hjá honum.
23.10 2009 kl.12:26
Slóð
Gott hjá Árna Páli.
Dæmigerð viðbrögð hjá LÍÚ.
Árni Páll hefði þó mátt spyrjast fyrir um útflutningsverðmætin frá Sjávarútvegnum sem koma ekki inn í landið. Gengið styrkist ekki á meðan gjaldeyrinum er ekki skilað inn. Sá gjaldeyrir sem kemur inn í landið er ekki að endurspegla hækkun á virði útflutnings. Einfalt reikningsdæmi sem Seðlabankinn á að geta reiknað út. Þar á bæ er fjöldi manns að reikna út hvað Jón og Jóna tóku mikið af gjaldeyri með sér til Spánar í stað þess að einbeita sér að stóru tölunum. Því sem máli skiptir.!
Losnum heldur ekki við höftin á meðan.
23.10 2009 kl.12:27
Slóð
Frábært hjá Árna.
Kominn tími til að menn tali hreint út og kalli hlutina réttum nöfnum.
Ríkisstjórnin á að gæta hagsmuna þjóðarinnar allrar, ekki bara grátkórsins.
23.10 2009 kl.12:29
Slóð
Góður Árni.
Þú ert að vaxa með vandanum, ekki öfugt.
23.10 2009 kl.12:37
Slóð
Aldeilis frábær ræða hjá Árna Páli. Fróðlegt að sjá hverjir hafa valist sem forsöngvarar “grátkórsins” á alþingi....Gunnar Bragi og Illugi, þ.e. kaupfélags-(framsóknar-) maðurinn og tengdasonur f.v. útgerðarmanns:)
Árni Páll....stattu þig strákur og haltu áfram á þessari braut.
23.10 2009 kl.12:47
Slóð
Árni Páll kom mér á óvart.
Og húrra fyrir honum!
Það er hugsanlega séns að það fari að flæða undan spillingarmafíunni með svona viðhorf á þingi.
Ekkert skrítið að margir séu skíthræddir núna.
Þeir hafa líka fulla ástæðu til.
23.10 2009 kl.12:50
Slóð
Ég átti ekki von á þessu frá Árna. Flott hjá honum.
23.10 2009 kl.12:52
Slóð
Hárrétt hjá honum. Útgerðarmenn eru aumustu business menn sem eftir lifa hér á landi. Fyrir ú utan að þeir fóðra sig á stolnum fjöðrum´, þá geta þeir ekki einu sinni rekið þessar dollur sínar, þrátt fyrir milljarða í gjafafé.
Bara taka af þeim kvótann og færa fólki sem getur þetta.
23.10 2009 kl.13:03
Slóð
Flott ræða hjá Árna.
Loksins, loksins kemur einhver og segir atvinnurekendum til syndana. Þeir voru ansi duglegir að kynda undir með útrásavíkingunum, enda koma þeir úr þeirra röðum. Þetta væri ekki svona ef við hefðum ekki farið í Kárahnjúkavirkjun; sem hafði það með sér að gengið var fest allt of hátt (af tillögu Davíðs, Frikka Sóf og félaga) til þess að við þyrftum ekki borga of mikið fyrir helv. virkjunina. Og við vitum svo hver var eftirleikurinn. Svo er sjálfstæðismenn að rífkjaft á þingi og um allan bæ, þeim væri nú nær að viðurkenna hlutdeild sína í þessum ósköpum og halda sér til hlés. Bjarni Ben og Guðrún Katrín rífandi kjaft eins og þau eiga enga sök á neinu...kommon hættið bara þingmensku hleypið að óspiltum alvöru sjálfstæðismönnum sem eru ábyrgir gjörðum og tali.
23.10 2009 kl.13:08
Slóð
þessi maður er hrokagikkur og ekkert annað hann er ekki að gera rassgat fyrir fólkið í landinu burt með Árna Pál !!!!!!!!!! gjaldborg það er hann
23.10 2009 kl.13:13
Slóð
Loksins!
Árni Páll kom svo sannarlega á óvart! Átti ekki von á einhverju af viti frá honum Nú þarf hann bara að skoða betur frumvarpið til hjálpar heimilunum!
23.10 2009 kl.13:15
Slóð
Loksins, loksins!!!
Frábær ræða hjá Árna, loksins segir einhver hlutina eins og þeir eru.
Varla nema von að varðhundar aðalsins gjammi sig hása þegar grímunni er flett af honum.
23.10 2009 kl.13:19
Slóð
Árni kemur til.
23.10 2009 kl.13:24
Slóð
Loksins. Eftir að hafa talað í hringi í lánasúpuvandræðum íbúðareigenda þá ratast honum bara gott á tunguna. Auðvitað hefur útgerðarauðvaldið hagað sér eins og verstu bankabandittar og við vitum, að þeir hafa tekið virkan þátt í hruninu, orsökum þess og upphafi. Þeir hafa sett stórpeninga í rúllettuna og tapað miklu, margir. Svo eru hinir, sem eru með kvótann. Þeir hafa margir keypt hann og skulda mikið. Auðvitað eru kvótamálin þannig, að þeir fyrstu græddu eða gátu grætt. Og þeir, sem hafa haft vit á því að selja kvótahlut sinn, alias hlutabréf, á síðasta viðskiptadegi fyrir hrun hlutafjárverðs banka. - Þeir hinir næstu eru í vandræðum og gráta mikið. Þegar Þorsteinn Vilhelmsson í Samherja seldi sinn hluta kvótans fyrir nokkrum árum, á um 4 milljarða minnir mig, þá sagði hann: - “Þessir peningar eru ekki teknir af neinum.” - Þetta er eins og að hella vatni út í mjólkina, til að fjölga lítrum í sölu, og segja svo að það tapi enginn á því. -
Já, svona byrjaði ballið. - Bjarni Ármannsson segir líklega við sjálfan sig, að milljarðarnir hans séu ekki af neinum teknir. - Fjármálakerfið gerði ekki neitt og þá sáum við, að peningar geta orðið til eins arfinn í moldarbeðunum. - Þessvegna viljum við öll taka þátt í uppskerunni og þá með kúlulánum ef ekki annað. -
23.10 2009 kl.13:26
Slóð
Þetta lið er eins og grimmir hundar og byrjar að gelta um leið og einhver segir eitthvað. Þöggun sú sem átti sér stað í samfélaginu var að hluta til vegna hræðslu við afleiðingar þess að segja skoðun sína. Flott hjá þér Árni (-; Ég hlustaði á þig og trúði ekki eigin eyrum. Þú sýnir kjark með því að lokka varðhundana út úr hreiðrinu.
23.10 2009 kl.13:27
Slóð
Djöfull væri ég til í að sjá þetta pakk hérna sem er að hrósa Árna fyrir þessa ræðu og skella því út á sjó í svona 6 mánuði. ég er nokkuð viss um að eftir þessa 6 mánuði þá verðið þið farinn að skylja það að fólkið sem vinnur við sjáfarútveginn á skilið allt það sem það vinnur sér inn fyrir. Sjómennskan er ekkert grín.
23.10 2009 kl.13:41
Slóð
Helgi.......... Það er stór munur á að vinna við sjómennsku eða braska með kvóta sem hefur verið fenginn gefins frá yfirvöldum. Fullt af flottum útgerðarmönnum en eins og í öðrum stéttum er inn á milli gráðugir einstaklingar sem hafa hegðað sér óskynsamlega og fjárfest um of.
23.10 2009 kl.13:43
Slóð
Heyra í þessu vitgranna liði sem hrósar Árna Páli.
Með þessu ætlar Árni Páll að slá pólitískar keilur og tryggja sér stuðning fólks yst til vinstri til að verða næsti formaður Samfó.
En Guð mun góður hvað maðurinn hefur drullað upp á bak með þessu. Framavonir hans verða að engu. Hann veit ekki að hann skaut sig í fótinn.
Stóriðjufyrirtæki og sjávarútvegur eru þau öfl sem halda Íslandi á floti nú í kreppunni. Þetta skilur ekki þetta lið sem hrósar Árna Páli, enda hefur þetta lið aldrei unni almennilega vinnu né díft hendinni í kalt vatna, heldur hefur það alltaf verið í einhverjum óskilgreindum verkefnum eða í einhverju óreglulegi snatti á pólitíska spenanum.
Réttast væri að að öll sjávarútvegsfyrirtæk og stóriðjufyrirtæki flyttu úr landi og hæfu starfsemi á Grænlandi eða í Færeyjum. Þar er nefnilega fólk sem skilur hugtakið ativnnulíf og verðmætasköpun. Það færi svona helmingur af þjóðinni með.
Það væri þá gaman að heyra í þessu liði sem styður Árna Pál ef þetta yrði af veruleika.
23.10 2009 kl.13:48
Slóð
Sjonni. Ætlarðu þá að taka kvótann þinn með þér ???????
23.10 2009 kl.13:51
Slóð
Sjonni hefur þú lesið ræðunna hverju ert þú á móti af því sem hann segir:
“Við heyrum oft nú að skattahugmyndir og fjandsamleg afstaða stjórnvalda komi í veg fyrir atvinnusköpun. Kvótaeigendur óttast um sinn hag. Erlend stórfyrirtæki kvarta sáran undan töfum í stjórnkerfinu og ýmsir ágætir vinir mínir hér innan dyra taka undir þær áhyggjur. Ekki stendur á mér að hvetja til góðra vinnubragða í stjórnsýslu og þess að gætt sé sanngirni í samningum við erlenda fjárfesta.
Við viljum semja við erlend fyrirtæki en ekki upp á hvaða býti sem er. Við erum til dæmis ekki tilbúin að semja um óendanlega skattaafslætti. Atvinnulíf sem ekki getur lagt af mörkum til samfélagsins er ekki upp á marga fiska. Við getum tekið dæmi af sjávarútveginum sem hefur notið ríkulega ávaxtanna af stórfelldri gengisfellingu, en kveinar samt viðstöðulítið undan hugmyndum um hóflega innköllun aflaheimilda. Afkomubati sjávarútvegsins á síðasta ári hleypur á tugum milljarða. Þessi afkomubati er fenginn með fórnum ykkar og ykkar félagsmanna. Gengisfellingin færði peninga frá íslensku launafólki til sægreifa og stóriðju. Grátkór og kveinstafir útgerðar og álfyrirtækja er háværari og ágengari á sama tíma og launafólk hefur stillt kröfum í hóf og sýnt mikið þolgæði. Það er íhugunarefni. Ef sjávarútvegur og stóriðja geta ekki þolað hóflega innköllun veiðiheimilda og hóflega auðlindaskatta er spurning hvort við séum yfir höfuð að veðja á réttan hest. Verðum við þá ekki að leita annara kosta um framtíðaratvinnuuppbyggingu?”
Ef að þessi fyrirtæki sem eru nú að hafa nær helmingi meiri tekjur vegna gengisfalls krónunar geta ekki borgað meira í dag, þá hvenær. Á meðan borgum við allt margfallt.!
23.10 2009 kl.13:52
Slóð
Góð ræða hjá Árna. Forsvarsmenn stóriðju verða að una því að ráðherra fari eftir lögum og reglum og að hlutir séu ekki keyrðir í gegn eins og gert var í góðærinu.
Þeir sem vilja bara víkja öllum stjórnsýslureglum til hliðar hafa ekkert lært.
Einnig er ljóst að stóriðjufyrirtækin eru að nýta sér ástandið enda er MJÖG hagstætt fyrir þau að starfa hér. Laun og kostnaður að mestu í krónum og sala í dollurum. Raforkuverð á spottprís og ríkið fjármagnar virkjanaframkvæmdir með skuldsetningum og dýrum lánum sem við eigum fullt í fangi með að greiða.
Áhættan og umhverfisskaðinn okkar. Gróðinn þeirra.
23.10 2009 kl.13:56
Slóð
Pétur Gunnarsson benti á eftirfarandi brot:
“Markaðurinn er góður þjónn en afleitur herra. Það eru sígild sannindi þótt þau hafi gleymst í lestarferð Eimreiðarhópsins undanfarin 20 ár.
...
Við ætlum ekki að endurreisa gærdaginn.
...
Við eigum að standa með ...okkur sjálfum, setja viðskiptalífinu skýr mörk og verða ekki ginningarfífl stóriðju og útgerðarauðvalds með sama hætti og við eltum sérhagsmuni bankadrengjanna og útrásargosanna á undanförnum árum. ”
Menn með slík spjótalög eru kappar.
23.10 2009 kl.14:01
Slóð
Vælubíllinn mætur hjá LÍÚ
23.10 2009 kl.14:03
Slóð
Heimskuleg ræða og pópúlísk.
Hver trúir því að þessi maður sé tilbúinn að fylgja eftir þessu blaðri sínu?
Spuninn og óheilindin eru helsti einkenni Samfylkingarinnar.
Þessu mali verður ekki fylgt eftir - því miður.
Þetta er blaður.
23.10 2009 kl.14:03
Slóð
Heyr, Heyr, gott hjá Árna, kominn tími til að velgja spillingarklíkunni undir uggum.
23.10 2009 kl.14:08
Slóð
Álfyrirtæki halda landinu ekki á floti, og borga varla skatta,
peningarnir fara sjaldnast í gegn um Ísland,
aðeins sendar nokkrir þúsundkallar til að borga ræflunum laun sem láta sig hafa það að vinna fyrir glæpafyrirtækinn. Og það eru ekki margir, og flestir farandsverkamenn sem taka að sér að vinna í Álbræðslu.
Landið mun sökkva endanlega ekki verður staldrað við,
Álrisarnir þurfa að halda kjafti augnablik !
Það eru meiri og alvarlegri mál sem þarf að leysa fyrst !
Ferðamannaiðanður heldur landinu á floti., og sjávarútvegur getur mögulega undir réttri stjórn og með réttri skattaálagningu gert landinu gott.
Það sem laðar ferðamenn og fiskinn að Íslandi er hreinleikinn,
og hreinleikinn hverfur með álverum , það er staðreynd.
23.10 2009 kl.14:17
Slóð
Nú er ekki tími fyrir kurteisi, síst af öllu gagnvart ráðandi öflum í samfélaginu. Flott ræða hjá Árna.
23.10 2009 kl.14:20
Slóð
Það er ömurlegt að heyra framkvæmdastóra LÍÚ og aðra fulltrúa kapítalsins ásamt Sjóði 9 á alþingi reyna að stilla sér upp sem samherja launafólks.
“.....vegna þess hroka sem hann sýndi þeim sem vinna við þessar atvinnugreinar.”
Hverjir eru það sem holuðu út innviði íslenskra fyrirtækja þannig hér stendur nú allt á brauðfótum?
Hverjir eru það sem eru búnir að kasta 15.000 íslendingum á framfæri Atvinnuleysistryggingasjóðs?
Nú koma þessir menn organdi og þykjast vera málsvarar þeirra sem vinna verkin.
Ömurlegt.
23.10 2009 kl.14:24
Slóð
Það verður seint sagt um mig að mér finnist Árni bjartasta kertið á kökunni en í þessari ræðu komu loksins punktar sem vert er að hrósa honum fyrir. Það þarf hugrekki til að gagnrýna opinberlega það sem hefur verið tabú í marga áratugi.
Hér verður að staldra við og hrósa Árna Páli!
23.10 2009 kl.14:29
Slóð
Húrra fyrir Árna.
Loks er þjóðinni foringi fæddur.
Árni, taktu ekki illsku gróðaaflanna nærri þér. Þessir samfélagsóvinir er aðeins það afl sem þér ber að vinna á og eyða úr íslensku þjóðfélagi.
Það á kannske við nú í þínu lífi heiti ævisögu afa þíns “Hjá vondu fólki”
23.10 2009 kl.14:34
Slóð
Enn einn naglinn í líkkistu gjaldþrota vinstri stjórnar!!!!!!!!!
Burt með þessa stjórn og það strax
23.10 2009 kl.14:36
Slóð
Sigurgeir
Ég á engan kvóta, En minni á það að það er til nokkuð sem heitir úthafsveiði á alþjóðlegu hafsvæði.
Er ekki best að ofvernda fiskistofnana hér við og leyfa þeim að lifa sem fæðu fyrir hvalina. Það er það sem vinstrimenn vilja.
23.10 2009 kl.14:37
Slóð
Það er mikil tíska hjá sumum að níða niður undirstöður atvinnulífsins.
Var fjármálaútrásin etv. rétti hesturinn úr því veðjað er á rangan nú.
Mikil speki þetta
23.10 2009 kl.15:04
Slóð
Hvernig stendur á að fiskverð í erlendri mynt hefur fallið um tugi prósenta ég hef ekki nokkra trú á að fiskverð rokki upp og niður um tugi prósenta í löndum þar sem verðbólga hefur verið undir 5% í fjölda ára.
Ég held að það sé kominn tími til að losna við LÍÚ mafíuna eins og hún leggur sig og ef það þar að innkalla veiðiheimildir til að lostna við þetta pakk þá er best að innkalla þær allar í einu og leigja þær svo út frá ríkinu.
Ég er alveg viss um að fiskurinn verður veiddur þrátt fyrir að félagsmenn LÍÚ geti ekki verið að selja og leigja fiskveiðiheimildir.
Það yrði gríðalega góð og þörf endurnýjun í þessari stétt útgerðamanna ef allar veiðiheimildir yrðu innkallaðar í einu að vísu færu bankarnir aftur á hausinn en hvað með það þeir hefðu þá ekki átt að lána út á hluti sem ekki voru öryggir eins og fiskur sem syndir í sjó.
Það er nóg til af köllum til að veiða fiskinn og kominn tími til að útgerðamenn reyni það á eigin skinni að það er ekkert sjáfgefið að þeir einir eigi að ráðskast með veiðiheimildir og auðlindir þjóðarinnar.
23.10 2009 kl.15:29
Slóð
Við borgum hærri skatta og dregið er lífshættulega úr samfélagsþjónustunni, það er ekki nauðsynlegt, við sjáum það vel á 440.000.000 gjöf ríkisins til Eskju.
Það finnast spilltir örhópahagsmunagæslumenn innan stjórnmálaflokkanna, sumir þeirra eru þingmenn. það þarf að sparka þeim út en til þess þarf það fólk sem enn er flokksbundið í þessum flokkum að láta í sér heyra og sópa út spillingunni,
Þá fyrst sjáum við skattalækkanir sem leiðir til aukinnar neyslu og meiri hagsældar FYRIR ALLA.
23.10 2009 kl.15:33
Slóð
Glæsilegt hjá Árna að láta þetta lið sem ætlar að setja landið aftur á hausinn heyra það.
23.10 2009 kl.16:59
Slóð
Hverjir gerðu fjárfestingarsamninginn við Norðurál um Helguvík fyrir 5 mánuðum. Töluðu hann upp mánuðina þar á undan. Man ekki betur en að það hafi verið Árni Páll og Samfylkingin. Var það ekki allt í lagi?
Hverjir töluðu bankana upp eftir að þeir settust í ríkisstjórn í maí 2007. Man ekki betur en að það hafi verið Árni Páll og Samfylkingin. Var það ekki allt í lagi?
Hver er ginningarfíflið sem minnst er á í ræðunni ? Um hvern er verið að tala ?
23.10 2009 kl.18:37
Slóð
Gott hjá Árna.
23.10 2009 kl.19:39
Slóð
Frábært innlegg hjá Árna Páli.
Laungu kominn tími til að ræða fríðindi fárra á kostnað almúgans. Útrásavíkingar sem fóru erlendis með skjalatösku íslensks samfélags og töpuðu innihaldinu eiga ekki rétt á að spila með það littla sem eftir er.
Nú er bara að hefja stækkun Littla-Hrauns til að hýsa loddaranna....
23.10 2009 kl.20:41
Slóð
Helgi
23.10 2009 kl.13:27
Sjómennskan er ekkert grín!
Þú gefur í skyn að það sé aðeins og færi fárra útvaldra að valda því starfi?
Á hvaða öld lifir þú kallinn minn. Sjómennskan er ekkert erfiðara starf en margt sem annað fólk starfar við. Mér þætti gaman að sjá þig sinna þeim störfum sem t.d. eru unnin á öldrunarstofnunum á hverjum degi og það fyrir aðeins brot af því sem sjómenn fá í laun.
Ég skal bara upplýsa þig um að það eru mun færri sem komast að í sjómennsku en vildu. Konur hafa t.d. ekki á upp á pallborðið þegar kemur að sjómannsstörfum og hafa fáar fengið að komast þar að. Þið kallar sitjið að kjökötlunum eins og ormar á gulli einfaldlega vegna þess sjómannsstarfið er vel launað, mjög vel launað.
Hvað með alla sem gera að fisknum í fiskvinnslustöðvum, þau störf eru skelfilega illa borguð, en það er sjálfsagt vegna þess að það eru ómerkilegri störf en hinn miklu karlmennisstörf sjómanna.
Skammastu þín svo bara fyrir að láta eins og sjómenn séu þvingaðir til að vera úti á sjó, því það eru þeir að sjálfsögðu ekki og eins og fyrr sagði komast færri að en vilja.
23.10 2009 kl.22:22
Slóð
JÁ OG HVAÐ? ER EINHVER TIL Í AÐ HUGSA UM HAGSMUNI ÞJÓÐARINNAR?
24.10 2009 kl.00:17
Slóð
Helga, ekki Árni!
24.10 2009 kl.02:36
Slóð
Árni Páll skilur því miður ekki að það þarf að breyta höfuðstól íbúðarlánanna svo að aðgerðin virki!
í því felst dapurleikinn!
24.10 2009 kl.02:49
Slóð
Þessi ræða Árna Páls sýnir að vinstristjórnin muni rífa og rústa atvinnulífinu
Hann á vera Atvinnumálaráðherra, og talar niður til tveggja atvinnugreinann sem munu eiga stærsta þátt að kom Íslandi úr kreppunni. Hann vil að sem flestir fari á atvinnuleysibætur. Það kannski best að þessar atvinnugreinar greiði þessa skatta en til greiða hann þurfa þau að segja upp fólki.
Það vil Árni Pál, hann ræður bara fleiri aðstoðamenn án auglýsingar.
Það er engin munur á kommistum í VG og þeir í Samfylkinginu hafa bara verið í felum.