Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segir að það traust og sá trúnaður sem hann og þjóðin sýndu forystumönnum fjármálafyrirtækja í útrásinni hafi ekki verið verðskuldaður og hafi kannski verið misnotaður með margvíslegum hætti.
Forsetinn lét þessi orð falla í viðtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins í tilefni af því að forsetaembættið birti í morgun nokkur þeirra bréfa sem forsetinn skrifaði erlendum aðilum til stuðnings útrásinni.
Í einu bréfanna er forsetinn að beita sér fyrir því að Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, komi á fund stjórnenda Glitnis. Í öðru bréfi reynir hann að fá Bill Clinton, fyrrum forseta Bandaríkjanna, til fundar við Landsbankamenn.
Bréfin sem birt voru í morgun eru hluti þeirra bréfa sem rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið bað um vegna rannsóknar á þætti forsetans í útrásinni.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði í viðtalinu á RÚV að hann og þjóðin yrðu að draga lærdóma af því sem gerst hefði og allir þeir sem að slíkum málum kæmu í framtíðinni. Hann kvað gagnrýni á forsetaembættið eðlilegan þátt í viðbrögðum við því áfalli sem þjóðin hefði orðið fyrir með bankahruninu.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
80 ummæli
Rita ummæli24.10 2009 kl.13:15
Slóð
Ætlar hann að segja af sér og axla á þessu sína ábyrgð. Hver eru fjárhagsleg tengsl forsetans við þessa útrásarvíkinga/fjárglæframenn? Gáfu þeir ekki út ævisögu hans eða borguðu ævisöguritaranum, meðan forsetinn fékk hagnaðinn óskiptan í eigin vasa.
Segðu af þér Ólafur, þjóðin þarfnast sameiningatákns á þessum erfiðu tímum. Það hefur jafn lítið traust á þér og fjandvini þínum Davíð Oddsyni.
24.10 2009 kl.13:18
Slóð
Misnotkun og lærdómur í stórasta landinu.
24.10 2009 kl.13:20
Slóð
Um daginn hafði hann ekki heyrt neinar gagnrýnisraddir, hér er hann Hr. Ólafur Ragnar Grímsson að smíða sér stakk eftir vesti.
24.10 2009 kl.13:21
Slóð
Auðvitað á hann að segja af sér punktur
24.10 2009 kl.13:22
Slóð
Ég legg til að Frú Dorritt fái einhvern góðan hönnuð til þess að gera hauspoka fyrir ORG sem hann hefur á sér þangað til hann hættir sem forseti. Því fyrr sem hann hættir, því betra.
24.10 2009 kl.13:24
Slóð
Þetta er hárétt hjá þér ÓRG og segnu nú af þér
Þú verðu maður af meiru, en ekki vindhani þessara mála og manna
24.10 2009 kl.13:31
Slóð
Þetta á bara að rannsaka eins og allt annað í kringum hrunið.
Einfalt mál.
24.10 2009 kl.13:36
Slóð
Baldur Guðlaugsson sagði af sér til að starfsfriður mætti ríkja (en ekki af því að hann hefð gert neitt rangt). Ólafur mætti taka hann sér til fyrirmyndar. Svo legg ég til að embætti forseta Íslands verði lagt niður. Ég hef aldrei skilið tilganginn með þessu embætti.
24.10 2009 kl.13:37
Slóð
Gott hjá Ólafi Ragnari.
Það var allt í lagi með hann en frjálshyggjulýðurinn í atvinnu- og fjármálalífinu misnotaði allt sem þeir gátu, og steyptu þjóðinni í botnlausar skuldir á endanum, allt í þágu eigin hagnaðar.
Þetta er ljót saga.
24.10 2009 kl.13:52
Slóð
Ólafur Ragnar Grímsson er til fyrirmyndar.
Þeir sem halda um bláu höndina ættu að taka hann sér til fyrirmyndar og biðjast afsökunar á að hafa hjálpað útrásarvíkingunum, bönkunum og öðrum frjálshyggjuskríl að koma þjóðinni langleiðina á hausinn. Það er erfitt að láta þessa firrtu menn finna til ábyrgðar á eigingjörðum en þeir eru alltaf jafn ákafir í að setja smjörklípur á aðra sem lítið komu við sögu í aðdraganda hrunssins.,
Þeir eru líka ákafir í að reyna að koma sök á blessaðann forsetann.
24.10 2009 kl.14:01
Slóð
Það sorglegasta við þennan forseta er að hann er ekkert sameiningatákn fyrir þjóðina!
Á erfiðum tímum sem þessum vantar forystumann í samfélaginu sem keyrir jákveðni og kjark í þjóðina. En það er þveröfugt farið með þessum þungu og leiðinlegu leiðtogum sem við eigum í dag, sem kunna ekkert með vald sitt að fara.
24.10 2009 kl.14:07
Slóð
“hann og þjóðin yrðu að draga lærdóma af því sem gerst hefði”
Maðurinn er firrtur. Þjóðin hafði EKKERT um þetta að segja frekar en hún hefur eitthvað um það að segja þegar kemur að því að taka við skuldasúpunni sem þessir græðgismenn vilja og FÁ að henda á herðar almennings.
Hann er FORSETI Íslands og leðurlyktin er ennþá af rassgatinu á honum síðan hann sat í einkaþotum, gott ef gosið úr kampavíninu hefur ekki bara farið í heilann á honum frekar en magann.
24.10 2009 kl.14:12
Slóð
Alhæfingar um að þjóðin hafi sýnt hinum og þessum trúnað eru ekki til annars en að dreifa ábyrgðinni.
Ég (og ég hygg þorri þjóðarinnar) ber enga ábyrgð á þessu og það er óþolandi þegar forseti, ráðherrar og þingmenn eru hvað eftir annað að ákæra þegna um eigið lögbrot og/eða siðferðisbrest.
24.10 2009 kl.14:19
Slóð
Hvenær ætlar ORG að bera virðingu fyrir sjálfum sér og seigja af sér
24.10 2009 kl.14:21
Slóð
mesti rugludallur sem .island hefur alið
24.10 2009 kl.14:23
Slóð
Það þýðir ekkert fyrir forsetann að dreifa ábyrgðinni yfir á þjóðina. Þjóðin var einfaldlega blekkt. Það er að vísu eins með kapitalismann og var með kommúnismann, að báðar þessar hugmyndastefnur hafa reynt með stanslausum áróðri að hafa áhrif á hugarfar fólks og haft árangur sem erfiði. Fólk hefur látið glepjast af fyrirheitunum sem síðan eru svikin þegar völdin eru tryggð.
Kapitalistarnir kaupa gjarnan stjórnmálamenn og aðra framámenn til fylgis. Þannig buðu bankar útrásarmannanna t.d. ýmsu háttsettu fólki svokölluð kúlulán og flæktu það þannig í net sín.
Forsetinn hafði ekki þann siðferðisþroska að standa fyrir utan, hvað þá gegn valdsókn fjárglæframanna og lét þá tæla sig, algerlega blindur á hvers konar félagsskap hann væri kominn í. Einfaldlega sorglegt fyrir þjóðina að hafa haft svo auman leiðtoga.
24.10 2009 kl.14:25
Slóð
Ólafur stóð sig mjög vel í því sem hann gerði fyrir Íslensk fyrirtæki, það er engin spurning, það sem aftur á móti er gagnrýnivert er að setja forsetaembættið að veði fyrir einstök fyrirtæki og framgang þeirra á erlendri grund. Það gerir það að verkum að orðstýr Íslendinga hrynur með þeim þegar svo háttar til eins og nú.
En er það Ólafi að kenna eða eiinhverjum öðrum sem mótað hafa athafnir embættissins.
Þrátt fyrir það er það Ólafur sem er sá forseti sem sat í brúnni og verður það aldrei trúverðugt meðal annara þjóða nema að Ólafur axli ábyrgð og segi af sér, þá svo að hann hafi staðið sig vel og að kenna mætti einhverjum öðrum um trúnaðarbrestinn.
24.10 2009 kl.14:26
Slóð
Misnotkun!
Þarf ekki að láta Stígamót vita af þessu, svo hann geti fengið hjálp?
24.10 2009 kl.14:27
Slóð
Rétt hjá Dorrit “Ólafur stórasta stjórnmálaklúður Íslands” Kannski Óli grís hafi veit þessum “auðrónum blindan stuðning í ljósi þess að ein dóttir hans vinnur fyrir Baugsveldið. Þessir útrásar skúrkar eru engir bjánar, þeir pössuðu sig á því að “ráða rétta fólkið í vinnu - fólk sem er innmúrað í réttu FL-okkanna & réttu ættirnar” með síkum ráðningum & örlátum styrkjum (ath: ekki mútur.....lol...styrkir...lol...!) þá fengu þessir aðilar auðvitað allt það frelsi & trúverðugleika frá spiltum íslenskum stjórnmálamönnum..! Ég hef bara eitt að segja við Óla grís “segðu af þér - hunskastu úr embætti - núna - þjóðin vil þig ekki sem Forseta Íslands, bara 1% af siðblindum skíthælum bera traust til þin - segir það þér ekki neytt félagi????? Þú ert ekkert sameiningartákn þjóðarinnar, þú veldur sundrung & deilum, því ber þér að stíga niður sem fyrst...! Farið hefur fé betra, svo maður noti nú orð Bjarna Ármanns...lol...!
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
24.10 2009 kl.14:30
Slóð
Er ekki einmitt núna spurning um traust og trúnað þjóðarinnar á honum ?
24.10 2009 kl.14:30
Slóð
Bankaræningjarnir plötuðu ALLA up úr skónum, jafnt DO sem ÓRG og mig líka! Fokking fokk! Maður hefði átt að lesa Andrésblöðin betur í gamla daga og þá sérstaklega um aðferðir Bjarnabófanna! Er nú að rifja þau upp. Á nokkur 3. tbl 1962?
24.10 2009 kl.14:39
Slóð
Sammála þér, Guttormur.
Ég vil sjá öll bréfin til að fella endanlegan dóm, en það sem komið er lítur vægast sagt illa út.
Bjóða Al Gore á fund með stjórnendum Glitnis, reyna að fá Bill Clinton á fund með Landsbankamönnum.
Hann reyndi að fá málsmetandi erlenda stjórnsýslumenn á fund með aðilum sem eiga stærstan þátt í hruni þjóðarinnar. Fellur það ekki undir “aiding and abetting” þótt hann sé núna vitur eftir á?
Ömurlegt ástand hér á landi. Davíð á mogganum að endurskrifa Hrunið, Ólafur situr enn á Bessastöðum eftir að hafa hjálpað útrásarmönnum í glæpastarfsemi þeirra.
24.10 2009 kl.14:43
Slóð
Hvar er Hörður Torfa.
24.10 2009 kl.14:52
Slóð
Rétt, draga lærdóm, en líka sæta ábyrgð. Menn sem eru í stöðu eins og forsetinn, hann á að sæta ábyrgð. Sá sem misnotar aðstöðu sína jafn miskunarlaust og forsetinn í að hossast undir þessum bófum með jafn skelfilegum afleiðingum og raun ber vitni þarf að segja af sér.
Davíð Oddsson var hrakinn úr Seðlabankanum. Ekkert við því að segja, hann var látinn sæta ábyrgð. Ríkisstjórn Geirss Haarde var bolað frá völdum. Af hverju er forsetinn ekki látinn sæta ábyrgð? Þessi maður er svo sannarlega ekki forseti þjóðarinnar. Hann situr í einangrun á Bessastöðum, rúinn öllu trausti. Bókin sem kom út um síðustu jól þar sem hann er að lýsa eigið ágæti hefur snúist upp í hrollvekju. Maðurinn verður frá að hverfa. Hann er of mikið 2007.,
24.10 2009 kl.14:53
Slóð
hann nefnir þarna það traust sem hann og þjóðin og sá trúnaður sem hann og þjóðin sýndi.....þetta traust þarna og trúnaður sem hann Hr. Ólafur Ragnar Grímsson sýndi forystumönnum fjármálafyrirtækjana í útrásinni hafa ekkert með þjóðina að gera og á hann ekkert með að flækja henni í þessar bréfaskriftir sínar.
24.10 2009 kl.14:55
Slóð
þessi maður er haldinn svo mikilli siðblindu að maður verður hálf hræddur.
Ég fullyrði það að hann sér ekkert rangt við vinnubrögð sín og mun aldrei segja af sér embætti.
24.10 2009 kl.14:56
Slóð
Bill Clinton og Al Gore.....já það er aldeilis gaman að leika sér með stóru köllunum út í heimi.
Svona menn eiga vafasaman feril á bakvið sig og Ólafur er þarna að sleikja sig upp við þetta lið.
http://www.youtube.com/watch?v=3gkAEUAdh7k&feature=related
24.10 2009 kl.14:57
Slóð
Baldur fékk nú vel greitt fyrir ad haetta, hann faer litlar 13,5 milljónir útgreidda i 15 mánudi á naestunni, hann leysti lika út 180 milljónir med innanbúdarupplýsingum sem vid saudsvarti pöpullinn höfdum ekki adgang ad. jónas fékk líka 20 milljónir í lokagreidslu en hafdi sofid á verdinum vid ad gaeta aleiguna okkar, klíkan sér um sína!
24.10 2009 kl.14:58
Slóð
Þetta er nú meira skítkastið hjá sumu fólki á Ólaf Ragnar Grímsson .
Ég lenti óvart í afmælisboði hjá mestu íhaldsbullum á Íslandi .
Þá var Glitnir að opna útibú í Kína, það barst í tal hvað þessir menn væru nú klárir og sniðugir þá datt út úr mér hvað Ólafur væri gera upp á dekk svarið var fljótt að koma það væri nú lágmark sem grísinn gæti nú gert fyrir okkur. Ég var ekki sammála, þá var sagt þetta er það eina sem við getum notað hann í.
Nú er þetta sama fólk að skíta hann út .
Ólafur er einn mesti stjórnmálamaður á Íslandi það var honum að þakka að verðbólgan fór úr 170% og niður í einsstafstölu þegar hann kom á þjóðarsáttinni þegar hann var fjármálaráðherra . Fyrir þetta öfunda íhaldsmenn hann og að geta sætt sig við þennan einstæða árangur hans.
24.10 2009 kl.14:59
Slóð
Hvernig er með búsáhaldagengið, er það ekki á leiðinni að Bessastöðum. Vanhæfur forseti.
24.10 2009 kl.15:03
Slóð
Við verðum að losna við þennan mann úr embætti forseta. Hann hefur verið algerlega úr takt við þjóðina á undanförnum árum og dregið vagn auðmanna í stað þess að styðja við bak þjóðar sinnar. Fyrir nokkrum árum síðan fékk ég þennan mann til þess að heimsækja ráðstefnu, ég fékk þá tilfinningu að hann væri kóngur en ekki forseti, fyrirmæli ritara hans voru til dæmis þau að ekki mætti heilsa honum fyrr en hann væri kominn þrjá metra frá forsetabílnum. Klappstýra auðmann er sú arfleifd sem Ólafur Ragnar fær í sögu þjóðarinnar, versti embættismaður sem þjóðin hefur haft að mínu mati.
24.10 2009 kl.15:06
Slóð
Hann var klappstýran í útrásarliðinu. Ekki skamma klappstýrunar of mikið.
Hverjir völdu útrásarliðið? Voru það ekki foringjar í framsóknar- og sjálfstæðisgengjunum? Svo kom samfylkingargengið til hjálpar seinustu
metrana.
24.10 2009 kl.15:08
Slóð
Það er ekki hægt að ætlast til þess að hann segi af sér fyrir að hafa verið þjóðarspegillinn á þessum tíma. Það voru allir Íslendingar að dansa í kringum gullkálfinn. Hann var sameiningartákn þóðarinnar með því að vera í miðju útrásarævintýrinu.
Hann á frekar að segja af sér fyrir að hafa ekki talað okkar málstað í útlöndum eftir hrunið. Að hafa ekki nýtt sér sambönd sín og Dorritar til þess að hjálpa Íslandi.
Eða vill hann bara ferðast um heiminn með góðar fréttri en ekki erfiðar?
24.10 2009 kl.15:08
Slóð
@ oli
ekki ertu Óli ( ÓRG )
kallinn byrjaður að blogga sjálfur um sjálfan sig
he,he,he
24.10 2009 kl.15:12
Slóð
Hvað er fólk alltaf að væla um ´,,sameiningartákn fyrir þjóðina”?
Þjóðin er fólkið í landinu og hefur aldrei getað staðið saman. Hvernig ætti eitthvað tákn að fá fólk til að standa saman þegar sundrungin er milli þeirra ríkari og þeirra fátækari. Þeirra sem hafa fengið allt á silfurfati og þeirra sem hafa þurft að þræla og púla alla sína hunds og kattar tíð fyrir því litla sem það ber úr býtum.
Það getur ekkert afl sameinað þessa þjóð í eina rödd. Til þess eru hagsmundir of margra í húfi. Elítan grenjar hæst og hrópar og kallar og hefur til þess óskertan aðgang að fjölmiðlum landsins. Þau eiga sér rödd og nota hana óspart.
Þrælarnir gera ekki komið sér saman um neitt og er þar hver höndin upp á móti annarri og eiga því enga rödd. Þrælarnir eru hræddir og gera bara það sem þeim er sagt að gera, þegja þótt þeir þurfi að borga sukk og svínarí elítunnar, halda áfram að þræla og púla í sínum skuldafangelsum án þess að reyna að bera hönd fyrir höfuð sér.
Elítan grenjar og hótar öllu illu til þess að fá sitt og viti menn auðvitað fá þeír sínu fram eins og alltaf. En raddleysingjarnir, sem ekki hafa þor né þrek til að berjast þeir fá ekkert og tapa öllu sínu.
Og þeir sem verða vest úti í þessum ömurlega hráskinnaleik eru börnin, gamalmennin og öryrkjarnir því þeirra raddir fá engan hljómgrunn. Það eru fáir sem tala þeirra máli og hafa stjórnvöld, fjölmiðar, elítan og þrælarnir engan áhuga á því sem þessir þjófélagshópar hafa að segja.
Vð hin, sem teljumst ekki til elítunnar og ekki til öryrkja, gamalmenna eða barna erum aumingjar. Hreinir og klárir aumingjar sem höfum ekkert að berjast fyrir, engar hugsjónir, ekkert þor nér þrek til þess að vera manneskjur. Þá er auðvitað bara best að við séum áfram þrælar!
24.10 2009 kl.15:13
Slóð
glitnir var að gera fína hluti í geothermal bransanum i USA, kæmi ekkert á óvart ef honum er saknað i USA núna..ég er ekkert að verja þennann banka almennt, en þetta var ekki allt tómur skandall sem var í gangi í ‘útrasini’ (hvað sem það þýðir)
24.10 2009 kl.15:18
Slóð
@Petur
Já Næstum OJG
24.10 2009 kl.15:23
Slóð
ég er viss um að ef hann hefði verið í lopapeysu faðmandi rollur á þessum tíma í staðinn fyrir að hjálpa íslenskum fyrirtækjum erlendis þá hefði hann verið gagnrýndur fyrir það.
24.10 2009 kl.15:35
Slóð
Það þarf enginn að halda að búsáhaldaliðið = Vinstri grænir mæti á Bessastaði, þetta er þeirra maður, þó svo að mér sé það gjörsamlega hulið hvernig vinstri menn geti fundið samsömun með þessum forseta útrásarinnar.
24.10 2009 kl.15:43
Slóð
Er nú Ólafur Ragnar Grímsson allt í einu fórnarlamb? Var það þá misnotkun auðmanna á forsetaembættinu sem neyddi hann til að hafna fjölmiðlalögunum? Neyddist hann til að fá far með einkaþotum? Neyddist hann til að agitera fyrir útrásarvíkingunum?
Ólafur Ragnar Grímsson hefur alltaf verið gífurlega flinkur lýðskrumari, með dyggri aðstoð Gunnars Steins Pálssonar og Einars Karls Haraldssonar, og nú sem endranær fer hann þá braut að kenna öðrum um. Ekki játa það að hann, eins og svo margir aðrir þegnar og embættismenn Íslands sporðrenndi ruglinu í útrásarvíkingunum. Og ekki dettur honum, frekar en hvaða pólitíkus sem er, að játa mistök!!!! Nei, hann er bara fórnarlamb, að eigin sögn.
Fari hann og veri.
24.10 2009 kl.15:49
Slóð
Auðvitað á ORG að segja af sér. Ætli VG og Samfó væru ekki grenjandi yfir því að Dabbi Kóngur ætti að segja af sér ef hann hefði verið forseti og gert svipaðar gloríur og útrásargrúpppían ORG hefur gert.
24.10 2009 kl.15:49
Slóð
Ólafur Grímson er aðeins sameiningartákn og forseti 1/5 hluta þjóðarinnar sem er fylgjandi IceSave ánauðinni, útrásarvíkinga og þeirra fylgifiskum.
Það eru ma. þeir sem mæra hann hér, nema það er hann sjálfur undir ýmsum nikkum?
24.10 2009 kl.15:53
Slóð
Hvar er búsáhaldarbyltingarfólkið núna. Verður ekkert trommað á Bessastöðum ????
24.10 2009 kl.15:53
Slóð
oli.
“Ólafur er einn mesti stjórnmálamaður á Íslandi það var honum að þakka að verðbólgan fór úr 170% og niður í einsstafstölu þegar hann kom á þjóðarsáttinni þegar hann var fjármálaráðherra . Fyrir þetta öfunda íhaldsmenn hann og að geta sætt sig við þennan einstæða árangur hans.”
Ólafur Ragnar Grímsson reyndi að HEFTA þjóðarsáttina. Hann átti akkúrat engan heiður að henni, engann. Það voru aðallega Gvendur Jaki heitinn, Einar Oddur Kristjánsson heitinn og Ásmundur Stefánsson. Það eina sem ÓRG gerði í þjóðarsáttinni var að samþykkja hana með seimingi, því litla trú hafði þáverandi stjórn á þessum gjörningi. ÓRG meir að segja reyndi að sprengja samheldni atvinnu- og verkalýðsfélaganna með t.d. áfengishækkun.
Ólafur Ragnar Grímsson á ekki skilið að vera skreittur stolnum fjöðrum af þjóðarsáttinni. Þær fjaðrir eiga mætir menn, lifandi og gengnir, ekki þjóðartrúðurinn Ólafur Ragnar.
Mæli með ritun Guðmundar Magnússonar um þessa sögu: http://gudmundurmagnusson.blog.is/blog/gudmundurmagnusson/entry/576348
24.10 2009 kl.16:16
Slóð
Segðu af þér.
24.10 2009 kl.16:21
Slóð
ÞAÐ ER KOMIÐ KAPPNÓG AF ÓLAFI RAGNARI OG GLINGURMEYNNI DORRIT.
ÞAU EIGA ENGA SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKU VINNANDI FÓLKI.
HANN Á AÐ SEGJA AF SÉR ÁN EFTIRLAUNA SVO GETUR HANN BÚIÐ HJÁ DORRIT EINS OG BJÖRGÚLFUR GUÐMUNDSSON HJÁ SINNI KONU, HA?
24.10 2009 kl.16:30
Slóð
Það er fullt af fólki sem sér ekkert rangt við gerðir Ólafs Ragnars og finnst að hann hafi bara verið að sinna hlutverki sínu þegar hann missti sig í útrásinni.
Það er aðallega Samfylkingarfólkið sem getur ekki gagnrýnt Ólaf þótt ljóst sé að hann hefur gert stór afglöp í starfi. Það er spurning hvort þessi afglöp séu vítaverð. Að minnsta kosti hefur honum orðið svo mikið á að það ætti ekki að líðast.
Sjálf er ég VG og styð ríkistjórnina. Ég vil hvorki Davíð né Ólaf Ragnar. Það vantar ekki gagnrýni á Davíð, sem er réttlætanleg, en þegar fólk getur ekki gagnrýnt Ólaf, fer mér ekki að standa á sama.
24.10 2009 kl.16:42
Slóð
Please Óli segðu af þér!!!
Mér verður flökurt í hvert sinn sem þessi maður sést á sjónvarpsskjánum. Sama má segja um alla sem ég þekki. Hvers vegna sér þessi maður ekki sóma sinn í því að segja upp? Þarf virkilega að beita brögðum til að láta hann hætta eins og gert var við Dabba? Hann yrði maður að meiri ef hann segði af sér. PLEASE!
24.10 2009 kl.16:46
Slóð
@Óli. Ha er Ólafur einn mesti stjórnmálamaður landsins? Þú hlýtur að vera að grínast. HAhahahahahahahahahahahaha Eini hæfileiki hans er að hann hefur góðan talanda rétt eins og Gunnar í Krossinum!
24.10 2009 kl.16:56
Slóð
Alltof lítið alltof seint Ólafur minn, sínir alveg hversu óþarfur þú ert...
24.10 2009 kl.17:04
Slóð
Segðu af þér í guðanna bænum!!! Leyfðu okkur að kjósa okkur nýjan forseta sem friður er um.
24.10 2009 kl.17:28
Slóð
Ólafur segðu af þér. Þú ert búinn að misbjóða þjóðinni og nýtur ekkert trausts eða virðingu frekar en forsetaembættið, sem á að leggja niður og spara með því ansi álitlega upphæð. Þar sem þú ert í bullandi pólitík, þá er sjálfsagt að þú færð að njóta ávexta þess að hafað verið forseti útrásarinnar og gengur til liðs við Samfylkinguna sem nýtur góðs af stuðningnum við það þokkagengi.
24.10 2009 kl.17:29
Slóð
Æi geturðu ekki farið á hestbak eða eitthvað
24.10 2009 kl.17:37
Slóð
Gunnhildur Ólafsdóttir 15:12
“Hvað er fólk alltaf að væla um ´,,sameiningartákn fyrir þjóðina”?
Þjóðin er fólkið í landinu og hefur aldrei getað staðið saman..........
”
Tek svo sannarlega undir þennan pistil !
24.10 2009 kl.17:59
Slóð
Er það ekki einum of Ólafur að reyna að troða okkur (Þjóðinni) inní þennan dans sem þú og þínir stiguð með glæpalýðnum sem er búinn að setja þjóðina á hausinn...
Hvað verður skrifað um þessa atburði líðandi mánaða eftir 50 ár?
Útrásarvíkingar settu þjóðina á hausinn og þurftu margir að sæta ábyrgð gerða sinna já nema forseti Íslands hann var á kafi í spillungunni en honum fannst hann yfir það hafinn að þurfa að byðja lýðinn afsökunnar og hvað þá að honum dytti í hug að segja af sér......
Þessi maður og hans fjölskylda var á kafi í spillingunni það var fullt af greiða fyrir greiða business í gangi sem flestir vita af eins og að dóttir Ólafs var gerð að stjórnarmanni og yfirmanni hjá Haga.. Hverju var sá greiði eyrnarmerktur... Stjórn Haga má sjá hér
http://oktober.blog.is/users/5c/oktober/img/hltf2_730974.jpg
24.10 2009 kl.18:05
Slóð
Ólafur Ragnar, gerðu þjóðinni nú stóran greiða og segðu af þér. Er ekki komið nóg.
24.10 2009 kl.18:07
Slóð
Já, í guðanna bænum segðu af þér og gefðu eftirlaunin eftir. Það væri hægt að hjálpa fjölskyldunum í landinu fyrir þann pening.
24.10 2009 kl.18:54
Slóð
Herra Ólafur Ragnar Grímsson
Sýndu að þú hafir einhverja sjálfsvirðingu
SEGÐU AF ÞÉR!
24.10 2009 kl.18:58
Slóð
Það væri best ef fram færi undirskriftarsöfnun meðal þjóðarinnar þar sem farið er fram á að ÓRG segi af sér.
24.10 2009 kl.19:36
Slóð
Ólafur Ragnar á að segja af sér það væri mikill spanaður fyrir utan síma kjaftaði upp á margar millur eins má loka alþingi þá væri ísland í góðum málum og islendingar tækju af ser strjórnina allur hópurinn. Við fórum og hentum Elínu út úr Landsbankanum eins getum við gert með alþingi hent þeim út.
24.10 2009 kl.19:49
Slóð
@Einn upplýstur
Þetta er alltaf sama sagan, þið íhaldsbullur eruð illa upplýstar. Ef þú hefur starfað innan raða í verkalýðshreyfingunni þá veistu sannleikann. Þú ert illa upplýstur og það vantar ljós á peruna hjá þér, þú ættir að afla heimilda á réttu stöðum, sorrí. Guðmundur og Einar áttu hönd í bagga með Ólafi.
24.10 2009 kl.20:11
Slóð
@ oli
oli minn, nú ertu að vaða vitleysuna
þú ættir að fara fá þér kaffi-bolla með honum
Ásmundi fyrrum ASÍ, um aðkomu ORG
24.10 2009 kl.20:22
Slóð
Ólafur segðu af þér STRAX. Það er krafa þjóðarinnar.
hg
24.10 2009 kl.20:43
Slóð
Fékk ÓRG greitt fyrir að markaðssetja bankana, Actavis og fleiri fyrirtæki ?
Eða er þetta hluti af embættisskyldum hans, að markaðssetja íslensk fyrirtæki ?
Án gríns, sé þetta ekki í protokollinu, þá tel ég brýnt að athugað séð með % sem hann kann að hafa fengið fyrir vinnu sína, ég er ekki til í að greiða honum laun fyrir að sinna verkefni sem honum er ekki uppálagt að sinna og ekki í hans starfslýsingu.
Talað er um að bréfin á árunum 2000 - 2008 , muni ég það rétt, séu yfir 3000 talssins. Hvað ætli mörg þeirra séu til að hjálpa einkafyrirtækjum ? Og hvað ætli bréfin sé mörg í heildina, frá 1996 til dagssins í dag ?
Og ætli hann fái alltaf svör við bréfum sínum ? Hvað ætli svarbréfin séu mörg ?
24.10 2009 kl.20:45
Slóð
Ólafur Ragnar Grímsson, Davíð Oddsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Þessir menn ganga ekki heilir til skógar, allir fullir af minnimáttarkennd og fleiri komplexum. Eiginlega eiga þeir allir bágt.
Samt hafa þeir verið svo áberandi í samfélagi okkar að furðu gegnir.
Allir eru þeir sæmilega vel greindir, en engir afburðamenn.
Þeir mundi gera þjóðinni mikinn greiða með því að draga sig til baka úr öllum embættum og störfum, ekki síst á þessum tímamótum, enda allir komnir á aldir.
Fyrir það ættu þeir skilið allar þá heiðurspeninga sem við getum veitt.
24.10 2009 kl.20:53
Slóð
Þvílík vitleysa - við hlustum ekki á þetta bull. Forsetinn á að birta öll bréfin og ekki viðhafa þessi undanskot. Ætla svo núna að fara að segja okkur að fjármálafyrirtækin hafi misnotað hann - hvaða endaleysa er þetta. Að setja fram þessa barnalegu skýringu og ætlast til að fá einhverja meðaumkun vegna misnotkunar er alveg hámark fáránleikans. Gunnar Steinn, hugmyndasmiður, hefur eflaust aðstoðað við að setja málið í þennan búning. Gott og vel, en ég vil að hann segi af sér og er ekki ein um það.
24.10 2009 kl.21:23
Slóð
Ólafur Ragnar er góður forseti og frábær fulltrúi þjóðarinnar erlendis.
Hann hefur komið okkur á blað í samfélagi þjóðanna, meira en nokkur annar forseti í sögu þjóðarinnar. Hann nýtur virðingar erlendis.
Það eru einkum fulltrúar náhirðar Davíðs og Hólmsteins sem hafa reynt að klína á Ólaf Ragnar að hann hafi gert eitthvað óeðlilegt í útrásinni. Það gera þeir einungis til að draga athyglina frá sínu eigin hlutverki og ábyrgð á útrásinni.
Útrásin var skilgetið afkvæmi Hólmsteinanna og Tryggvi Þór var helsti hagfræðingur útrásarinnar.
Ólafur Ragnar gerði einungis það sem allir forsetar hefðu gert, þ.e. að styðja íslensk fyrirtæki í verkefnum erlendis.
Hann gat ekki vitað betur en að allt væri í lagi með þessi fyrirtæki og banka, enda voru þeir í umboði ríkisstjórnar Íslands (þ.e. Davíðsstjórnanna).
Ekki láta Hólmsteinana blekkja ykkur, þó þeir séu háværir.
Allt sem frá þessu liði kemur eru ósannindi.
24.10 2009 kl.21:31
Slóð
Hvers vegna skyldi náhirðin í Sjálfstæðisflokknum hatast svona mikið við Ólaf Ragnar?
Hatrið má vel sjá í skrifum Agnesar Bragadóttur (og einnig hjá Davíð og Styrmi og Jóni Steinari og náttúrulega Hannesi). Þetta fólk sefur ekki á nóttunni vegna haturs á Ólafi.
Ástæðan er sú, að þau þola það ekki að einhver annar en gegn-marineraður Sjálfstæðismaður sé í embættinu.
Davíð hugleiddi á sínum tíma að fara í forsetaframboð. Hann hætti við vegna þess að hann hafði ekki fylgi hjá þjóðinni, segir Matthías Jóhannessen fv. ritstjóri mbl. í dagbókum sínum.
Ólafur vann kosninguna og síðan hefur þetta fólk verið friðlaust í hatri sínu á honum.
Nú reynir hirðin að klína á hann ábyrgð á útrásinni.
Það er mjög öfugsnúið.
24.10 2009 kl.21:33
Slóð
@Karl Pétur
24.10 2009 kl.21:23
Hvernig veistu hvort hann njóti enn virðingar erlendis ?
Ég hefði talið, að hann hefði einnig glatað trausti þar eftir hrunið.
24.10 2009 kl.21:54
Slóð
Það er augljóst að stór hópur fólks er annað hvort í náhirð Davíðs eða náskershirð Baugs.
Ég vil frábiðja mér hvoru tveggja.
Það er ekkert bara út af því að Ólafur vann kosningu að náhirðin hatast út í hann. Það vann hann sér inn sjálfur. Hann er rangur maður á röngum stað, alveg eins og Davíð var í Seðlabankanum og nú á Mbl.
Hann missti sig í útrás og spillingu.
24.10 2009 kl.22:21
Slóð
hef engan áhuga á þessu fólki sem er búið að vaða upp í nafni þessara þjóðar og þarf að koma fram og biðjast afsökunar, hvers vegna er ORG að biðjast afsökunar svona saklaus sem hann lætur sig vera nú er það öðrum að kenna ekki honum
þetta er eins og leikskóla krakki ekki ég
24.10 2009 kl.22:22
Slóð
Forsetaembættið eykur aðeins á vandamál íslensku þjóðarinnar en leysir engin. Því þarf að leggja embættið niður. Með endurfæðingu Ólafs Ragnars sem hann hefur sjálfur lýst þannig að hann ætli að frelsa þjóðina og leiða hana í einhvers konar Mósesgöngu út úr þrengingunum mun aðeins skekkja og trufla þá baráttu sem við þurfum heyja, sem þjóð í neyð og rugla fólk í ríminu þannig að það þvælist hver fyrir öðrum í skuldasúpunni í stað þess að vinna okkur frá vandamálunum á raunhæfan hátt.
24.10 2009 kl.23:31
Slóð
Sá galli er við turna þeim hættir til að falla.
Oft gerist það þegar búið er að valta yfir lýðinn að turnarnir falla.
Aumi hégóminn að vera lítil þjóð með tóma turna.
Betra væri að losa sig við hégómann áður en lengra er haldið.
24.10 2009 kl.23:49
Slóð
Hvað ætli útrásarglæpahyskið hafi greitt Óla í umboðslaun?
24.10 2009 kl.23:49
Slóð
Maðurinn trúði bara að þetta væru fjármálasnillingar eins og meginhluti þjóðarinar.
25.10 2009 kl.00:59
Slóð
Í alvöru talað, Ólafur Ragnar Grímsson það besta sem þú gætir gert fyrir íslenska þjóð er að þú segir af þér embætti forseta Íslands...
:Þjóðin er í molum og þú getur ekki þvegið hendur þínar af því að hafa hjálpað til við að koma þjóðinni í þá stöðu sem hún er....
Það mun engin friður verða um þetta embætti ef þú heldur áfram sem forseti
EKKI SETJA SJÁLFAN ÞIG OFAR EMBÆTTI FORSETA ÍSLANDS EF ÞÚ VIRÐIR ÞETTA EMBÆTTI....
EKKI VILTU AÐ BÖRN ÞESSA LANDS LÍTI Á EMBÆTTI FORSETA ÍSLANDS SEM EITTHVAÐ SPILLINGARTÁKN?
ÞANNIG ER STAÐAN Í DAG
SEGÐU AF ÞÉR ÓLAFUR RAGNAR
25.10 2009 kl.01:27
Slóð
Hvað er að því að styðja íslensk fyrirtæki á erlendri grundu. Fyrirtæki sem fengu blessun frá Fjármála eftirlitinu, Ríkistjórnini og fleirri eftirlitsaðilum.
á Forsetinn að víkja úr embætti fyrir að vera blekktur ???
Hvernig væri að þið tækjuð höfuðið útúr rassgatinu á ykkur. Það er sólarglæta á íslandi.
Ef ekki þá bið ég Guð um að blessa ykkur því ykkar líf er ekki öfundsvert. Að lifa í eintómu hatri hlýtur að vera það versta sem til er!
25.10 2009 kl.02:30
Slóð
Heilög er Jómfrúin að vestan, hún vissi ekki neitt.
Stórust, já og mestust, mikið er það leitt:
Hún eða hann, jú þau skildu ekki neitt.
Vitið út, líkist valdahrokinn sjálfum sér
vílar ekki að segja þjóðina blekkta og þér:
Gamli bragðarefur og stjórnmálafræðiprófessor.
25.10 2009 kl.10:16
Slóð
Ólafur Ragnar Grímsson er FÓRNARLAMB.
Hann er fórnarlamb manna sem plötuðu hann og misnotuðu embætti forseta Íslands.
Það er alls ekki hægt að gera þá kröfu til forseta Íslands að hann hafi dómgreind, hvað þá að hann hafi átt að gagnrýna umsvif og flottræfilshátt útrásarvíkinganna á sama tíma og þeir buðu honum í ferðalög og hann bauð þeim í veislur á Bessastaði.
Ólafur Ragnar Grímsson er FÓRNARLAMB.
25.10 2009 kl.10:30
Slóð
Vel við hæfi
Fórnarlamb, karlinn er orðin að fjórfætlingi sem þjóðin vill slátra
en við sem þjóð viljum fórnarlamb mér finnst ÓSG vel við hæfi