Fólk - þriðjudagur - 27.10 2009 - 21:35

Vísindalega sannað: Karlmenn vilja ekki mjóar konur

Vísindamenn við St. Andrews háskólann í Bretlandi hafa nú endanlega sýnt fram á það með vísindalegum tilraunum að karlmenn kjósa konur í kjörþyngd.

article-1223331-043c763b000005dc-11_224×773.jpgarticle-1223331-01962b24000004b0-304_224×773.jpg

Það segir okkur að dömur á borð við Victoriu Beckham og Keiru Knightley hafa ekkert kynferðislegt aðdráttarafl séu þær bornar saman við t.d. Scarlett Johanson og Jennifer Lopez.

Rannsóknin fór þannig fram að kvenkyns nemendur skólans voru ljósmyndaðir og myndirnar voru svo sýndar strákunum og þeir beðnir að gefa einkunn.

Niðurstaðan var augljós. Þrátt fyrir horrenglutískuna kjósa ungir menn undantekningarlaust konur sem er í “eðlilegri þyngd”.

article-1223331-06fb6b5a000005dc-888_224×729.jpgarticle-1223331-068b9888000005dc-310_224×729.jpg

Drengirnir telja þannig konur á borð við Scarlett Johanson og Jennifer Lopez bæði fallegri og heilbrigðari að sjá og þar af leiðandi meira aðlaðandi.

Þeir fengu að skoða myndir af 84 konum á aldrinum 18-26 ára og undantekningalaust völdu þeir stúlkur í kjörþyngd framyfir þær sem voru undir henni.

Sú sem fór fyrir rannsókninni, Vinet Coetzee, sagði að niðurstöðurnar ættu að senda skýr skilaboð til ungra kvenna sem trúa því að til þess að vera aðlaðandi þurfi þær að vera undir eðlilegum þyngdarmörkum.

47 ummæli

Rita ummæli

Eggert
27.10 2009 kl.22:07

Við karlarnir höfum alltaf vitað þetta!

V. Jóhannsson
27.10 2009 kl.22:19

Þetta var umtalað, bæði í fyrri og seinn heimsstýrjöldinni.
Það sagði mér þýsk kona á sínum tíma, að hún hafi sloppið við nauðganir af rússum, af því að hún var svo horuð. (sem sagt, ekki mannbær)!

Árni#2
27.10 2009 kl.23:14

Rússarnir hafa sennilega forðast þýsku vinkonu þína af því að þeir hafa haldið að hún væri veik.

En þetta er vel þekkt fyrirbæri og hefur komið fram í mörgum rannsóknum. Það eru ekki normal karlmenn sem velja tískusýningarmódel, það er alveg á hreinu.

Svenni
27.10 2009 kl.23:40

Er þetta ekki út af því að karlmennirnir í tískubransanum eru margir hverjir samkynhneigðir og laðast að strákslegum líkömum fremar en kvenlegum?

Grágarpur
27.10 2009 kl.23:58

Sætu strákarnir kjósa mjóar konur. Sjáið bara David Beckham hann vill greinilega mjóar konur.

Annars er bara svo leiðinleg svona fréttamennska þar sem verið er að reyna að hafa áhrif á hvað fólki finnst.

Hvað vakir fyrir blaðamanni þessarar greinar en að reyna að láta öllum strákum á Íslandi finnast feitari konur sætari en grannar?

Það þýðir ekkert fyrir blaðamenn að reyna að breyta smekk þeirra stráka/karla sem vilja grannar konur.

Svo er líka heilsusamlegra að vera grannur en með aukakíló. Það er löngu vísindalega sannað.

Grágarpur
28.10 2009 kl.00:08

Svo er líka eitt. Það er spurning um ábyrgðarleysi blaðamanns að reyna að fá stelpur/konur til að fitna? Þessi grein bókstaflega hvetur stelpur til þess að fita sig.

Það er alls ekki gott að hvetja til fitusöfnunar þegar Ísland og td. Bandaríkin berjast við hrikalegan vanda sem of mikil líkamsfita veldur.

Aukakílóavandinn er stórfellt vandamál á vesturlöndum og er sökudólgur allra helstu sjúkdóma sem herjar á fólk.

Það deyja milljónir manna á ári hverju í heiminum vegna líkamsfitu vandans.

Þessara upplýsinga gæti blaðamaður td. aflað sér hjá öllum heilbrigðisráðuneytum allra landa í hinum vertræna heimi. Hann fengi þessar staðreyndir staðfestar eins og skot.

Svartálfur
28.10 2009 kl.00:15

YESSSSSS - lítil samkeppni um álfakroppana mjóu - jeij

Gunnr
28.10 2009 kl.00:22

Er þetta einhver frétt?
Þetta hefur alltaf verið svona. Fjölmiðlar og tískuheimar hafa aðra ímynd en flestir karlmenn.
Klárlega er það ekki spurning hvaða konur eru mest sexy hérna. Annars hefur klámiðnaðurinn fattað þetta fyrir löngu síðan.

blankur
28.10 2009 kl.00:26

Mjónur nei takk:)

Gunnr
28.10 2009 kl.00:27

Grágarpur þvílíkt þrugl,
það er verið að tala um konur í eðlilegri þyngd og kannski rétt yfir. Annars er anorexia og megrun óholl og veldur beinþynningu og dauða margra ungra kvenna. Ágætt að komi til skila að þetta er ekkert attraktívt.

ein mjó
28.10 2009 kl.02:00

Ég vildi segja það að ég hef verið mjó alla ævi og ekki mörg aukakílóin utan á mér og hefur alltaf fundist nokkuð spes í svona umræðum að nefna aldrei það að það eru til helling af stelpum sem eru bara grannar og geta því ekkert breytt og svona umræður um að við séum þá ekki heilbrigðar í útliti eru ekkert skárri fyrir okkar hóp heldur en umræðan fyrir þykkari konur að heyra þær vera of feitar. Mér finnst að fólk eigi bara að sætta sig við það að fólk er mismunandi í laginu og þannig er það bara og erfitt að gera eitthvað í því. Mér finnst að allar konur séu fallegar í laginu meðan þyngdin er ekki farin að íþyngja þeim sem sjúkdómur. Ég persónulega er ánægð með að vera grönn meðan ekki er hægt að telja rifbeinin á manni og ég hef einhverjar línur.

stóní
28.10 2009 kl.02:16

Sko.

“Svo er líka heilsusamlegra að vera grannur en með aukakíló. Það er löngu vísindalega sannað.”

Þetta var sagt hérna fyrir ofan.

þegar það er verið að bera saman stelpur eins og Jennifer Lopez og Vicktoriu Beckham, þá þarf að vera rosalega fáfróður til að halda því fram að Beckhamstelpan sé heilsusamlegri. Hún er hársbreidd frá því að halda sér varla uppi útaf anorexíu.
Lopez er eðlileg í vexti og er kannski með pínulítið utan á sér.

Mannslíkaminn ÞARF að vera með pínulítinn aukaforða af glúkósa og glýkogenólýsum.

Það er enginn að tala um aukakíló á borð við offituna sem fyrirfinnst í usa eða eitthvað svoleiðis. Bara pínulítið auka til að klípa í.
En það eru til allar stærðir og gerðir af fólki. Sumir eru með auka að eðlisfari, sumir eru grannir, og sumir eru bara þykkir.

En, þeir sem berjast við að vera eins og Beckhamstelpan (og hún sjálf)..það er geðsjúkdómur!
Fyrir þá sem eru að reyna að líta þannig út, með því að fara í ræktina 2 á dag og borða ekki neitt nema vatn, vil ég benda á þetta númer hér að neðan.
- Geðdeild 31E, Hringbraut 543 4050

Brosi
28.10 2009 kl.05:16

Sammála konur í kjörþyngd og jafnvel þó rúmlega væri eru mikið heilbrigðari og glæsilegri heldur en þessar beinahringlur sem líta út fyrir að vera sjúkar af næringarskorti

Sæmundur Ekhlíð Fáfnisson
28.10 2009 kl.08:10

Jájá, gott mál. Þið takið bara þessar feitu strákar, ég sé um rest. :Þ

Þarmur Þórðarson
28.10 2009 kl.08:12

Margir tískuhönnuðir eru samkynhneigðir og hanna föt sem höfða til þeirra fantasíu. Að modelin þeirra líti út eins og smá strákar er eitt dæmi um pedofíl tendens hjá þessum gæjum.

Óðinn
28.10 2009 kl.08:24

Það eru nokkrar rannsóknir sem ég hef séð sem benda allar í þessa átt

Þetta með hollustu þeyrra sem eru grannir þá er það mjög tvíeggjað að halda því framm á útskýringa td er betra að að stunda hreifingu og vera of þungur en að stunda ekki hreifingu og vera í kjörþyngd

Eins og læknirinn minn sagði að útlit og þyngd eru verstu mælieiningar á heilsu sem til eru

Það er hinsvegar innprentað í okkur menn að laðast að konum sem geta komið genunum okkar áfram og til þess eru konur með rass og brjóst betri kostur.

En mjónu tískan komst ekki á fyrr en á síðustu 40 árum

Og núna halda fatahönnuðir að þó að þeir séu að leita eftir hinum fullkomna dreng í brjósta lausum fyrirsætum þá vilji allir að konur líti út einsog 17-19 ára strákar ehhh nei

Ég fyrir mig verð að segja að kona eins og Victoria Beckham er í mínum hug holdgerfingur alls þess sem er verið að reina að segja okkur að kaupa en svo endar greyjið á að líta út eins og tannstöngull með sílikonbrjóst .

Ómar
28.10 2009 kl.09:26

Bíddu þvílikt bull, auðvitað er fallegast að vera í kjörþyngd heldur en undir/yfir.

Ófeigur
28.10 2009 kl.09:31

Tískuiðnaðurinn er á valdi MEMENTO MORI-heillkennisins, sem var auglýst í gríð og erg af miðaldakirkjunni. Það sýnir best hversu öflug erkitýpa dauðans er að henni skuli af öllum stöðum skjóta upp í munúðarfullu umhverfi hátískunnar. Það sýnir að Jung blessaður, hafði ekki að öllu leyti rangt fyrir sér þegar hann hélt því fram að manneskjan væri leiksoppur sálrænna dularkrafta sem hún hefði engin tök á að skilja til hlítar.

Ari
28.10 2009 kl.10:10

Má ekki svo deila um það hvernig eru myndirnar settar fram? Þú getur sett fram skelfilega mynd af grannri konu og svo frábæra mynd af “eðlilegri” konu!
Þannig er hægt að fá þá niðurstöðu sem þú óskar eftir úr rannsókninni?

Sbr. þessar myndir hér að ofan, þar eru grönnu stelpurnar settar fram kjánalega. Persónulega finnst manni Kiera Knightly töluvert flottari en Scarlett Johanson, en á þessum myndum tekur Scarlet sig betur út!

Alex
28.10 2009 kl.11:08

láta eins og þetta séu einhverjar stórar fréttir! auðvitað er mikið fallegra þegar konan hefur eitthvað utan um sig, en ekki að falla í sundur úr hori.
það er mikið skemmtilegra að leika sér með konu sem hefur eitthvað til að klípa í og þú þarft ekki að hafa áhyggjur um að hún detti í sundur.

Gudni
28.10 2009 kl.11:20

Það þarf engin vísindi til að sanna þetta. Ef fólk heldur annað þá mæli ég með því að þið kannið klámiðnaðinn. Þar eru kvenmenn nánast alltaf með hold utan á sér. Grindhoraðar stelpur hreinlega komast ekkert að í þeim bransa þar sem það er ekki aðlaðandi.

Ég og allir strákar sem ég þekki vilja stelpur sem eru eðlilegar í vexti. Þessi stefna sem er í tískuiðnaðinum lýsir engan veginn hvað okkur finnst aðlaðandi. Margar af þessum módelum eru hreinlega óaðlaðandi því þær eru svo grannar. Victoria’s secret módelin er svona þar sem limitið liggur á hversu grannar stelpur eru aðlaðandi. Sumar þeirra eru reyndar of grannar.

Mæja
28.10 2009 kl.11:25

Enn strákar!! Hvernig ætli sú rannsók kæmi út með ykkur karlmenn hvort viljum við konur feita eða granna karlmenn . Gaman væri að rannsaka það!!!!!!!!!!!!

Jón Bertill
28.10 2009 kl.11:43

Mér finnst að konur eiga að vera vel feitar eins og sagt er að þær eigi að róa í spikinu þær eru miklu þakklátari með mann

Wiggum
28.10 2009 kl.11:49

Mæja
konum er alveg sama hvort að karlar séu feitir eða grannir, það er þykktin á peningaveskinu sem þær hafa áhuga á, þetta vita allir

nimbi
28.10 2009 kl.12:09

Þetta er e-h svo kjánaleg umræða. hverjum er ekki sama hvað Karlmenn vilja eiga stelpur ekki bara að vera það sem þær eru eða vilja vera fyrir sjálfan sig og hætt að reyna að líkjast e-h hollywood pakki í gríð og erg!
Að reyna endalaust að falla inn í e-h steríó týpu sem hefur ekkert með þeirra sannasjálf að gera svo að e-h karlpungar horfi á eftir þeim í kringlunni, ég held að það geti ekki gert konur hamingjusamar.

Kjörri
28.10 2009 kl.13:52

Hvað er kjörþyngd??

Er það ekki sú þyngd sem ég kýs að vera í??

Það sem einum finnst fallegt finnst öðrum ljótt, það er nú bara svo sem betur fer, og því er það alltaf frekar furðulegt að það skuli alltaf verið að reyna að steypa okkur í sama mót, og fá okkur til að velja samskonar trend...

Ég er engu að síður viss um að það er fótur fyrir þessu, en ekki er þetta algilt frekar en annað.

Og varðandi okkur karlpungana og okkar þykkt (fita eða veski) þá er það eflaust jafnbreytilegt líka hvað kvennþjóðinni finnst....

Agnar Svínsson, Stærð og félagsfræðingur
28.10 2009 kl.14:03

Anorexíur eru frámunalega óspennandi. Það má vel vera að of mjóar konur beri sérhannað tískufatnað betur (að mati hönnuða) heldur en eðlilegar konur. Það vita þó allir karlmenn að konur með hæfilega mikið utan á sér eru meira aðlaðandi heldur en hinar ofur grönnu kynsystur þeirra.

ehm
28.10 2009 kl.14:04

voða er létt að vinna hjá eyjuni.. fara á digg og þýða nokkrar greinar

Sigrún
28.10 2009 kl.15:59

Kjörri, kjörþyngd er ekki smekksatriði, þó það sé smekksatriði hvað sé fallegt, en kjörþyngd er bara sú þyngd sem er æskilegt að hafa, ef maður fer fyrir ofan hana er maður líklegri til þess að fá hjartasjúkdóma o.fl. og ef maður er undir kjörþyngd er maður vannærður. En ég er sammála að kílóin eru ekki allt sem skiptir máli og maður á ekki að láta segja sér hvað er fallegt og hvað ekki.

GAUR.
28.10 2009 kl.16:58

Konur vilja horaðar konur. þær geta bara ekki viðurkennt það.
sko. eru konurnar ekki markhópurinn í lang lang flestum tilfellum þegar grindhoraðar konur eru að pósa með einhverri vöru eða í bíómynd? hmm..
Þetta selur.

KONA
28.10 2009 kl.17:36

Mér finnst augljóst að það er kvenlegra að vera ekki að detta í sundur úr hor ,,flestir menn sem ég hef hitt á ævinni finnst það sama og þessi frétt segir til um .. ég hef aldrei eins mikið og ég hef reynt skilið hvað er fallegt við mjaðmalausa og brjóstalausa og innsogsmaga og beinagrindarfætur ég bara næ því ekki .en auðivtað er ekkert aðlaðandi að vera með fellingar sem valla upp úr buxum og fl heldur .. En það er þessi gullni meðalvegur ..

Tvítugur
28.10 2009 kl.17:45

Flottu strákarnir velja grannar stelpur. Feitu strákarnir velja feitari spelpur.

Ari Kristinn
28.10 2009 kl.20:26

Fólk er mikið að rugla saman því að vera grannur og í formi. Tvítugur og Jón sem dæmi. Það hefur enginn áhuga á stelpu bara af því hún sveltir sig allan daginn.

Stelpa sem er í góðu formi hinsvegar er í kjörþyngd og líklegri til að vera heit heldur en grönn eða feit stelpa.

ellen
28.10 2009 kl.20:42

þetta er nú bara persónubundið skoooo... haha þetta er ekkert flókið, sumir vilja grannar sumir vilja í kjörþyngd og sumir eru chubby chaisers... og sumir vilja vöðva eitthvað bull. Þetta eru engin geimvísindi krakkar ;)

Nanna
28.10 2009 kl.23:04

Viktoria og Keira eru hvorugar í kjörþyngd og tala ég af reynslu hvað varðar átröskunarsjúkdóma. Mér finnst ekkert að þessari grein, fínt framtak hjá þessum rannsakendum og ef að þetta fer svona í taugarnar á ykkur þá var ENGINN að biðja ykkur um að lesa greinina né eyða tíma ykkar í að kommenta hér undir!

karl
28.10 2009 kl.23:11

Og hvað er notað til að mæla “ofþyngd”, jú svokallaður BMI stuðull.

“It was invented between 1830 and 1850 by the Belgian polymath Adolphe Quetelet during the course of developing “social physics”

Hvernig ætli líkamsástand karlmanna hafi almennt verið á þessum árum miðað við í dag... ef það hafa þá ekki verið smágerðir belgískir strákar :-þ

Karlmaður sem er 180cm og 81 kg er kominn í ofþyngd, ef hann er 97 kg þá er hann kominn í alvarlega ofþyngd.

Svartálfur
28.10 2009 kl.23:36

Ég elska grannar konur

Pési
29.10 2009 kl.01:26

Ofureinfalt. Það er þróunarlega óheppilegt að kjósa sér maka sem virðist eiga erfitt með matar- og forðasöfnun, þ.e. óeðlilega granna einstaklinga. Það er líka þróunarlega óheppilegt að kjósa sér maka sem getur augljóslega ekki veitt og forðast rándýr, þ.e. óeðlilega feita einstaklinga.

Svo fellur þetta nú allt undir normalkúrfuna. Sama hvað Darwin segir, þá finnst alltaf einhverjum ofurmjóu/þybbnu stelpurnar flottastar.

Vala
29.10 2009 kl.09:59

“Fyrirmyndir” eins og Victoria Beckham og Keira Knightley eru vel undir kjörþyngd og óhóflega grannar, þið verðið að athuga það að myndavélin bætir 5 kg við manneskjuna, hversu mjóar haldið þið þá að þær séu?
Þetta er jákvað grein að því leiti að menn kjósa ekki of grannar konur, en auðvitað kjósa margir menn grannar konur, ég get ekki sagt annað en að Scarlett sé grönn þó hún sé líka með brjóst og rass, hún er bara flott, það er ekkert verið að tala um heldur að menn kjósi frekar “feitar” konur. Sem betur er er smekkur manna misjafn.

b.b.
29.10 2009 kl.12:46

Ef þú hefur skoðað Playboy einhvern tíma þá ætti þér að vera ljóst að erkitípan þar er í rúmlega kjörþyngd. Mjúkar kvennlegar línur, mm..... sílikonið er sammt ekkert spennandi.
Karlmaður

Stóní
29.10 2009 kl.14:37

Wiggum... okkur (flestum, það eru náttúrulega undantekningar) er alveg drullusama hversu þykkt peningaveski þið eigið.

Ef þið eruð góðir og skemmtilegir þá er það, það eina sem skiptir máli.
Við erum ekki jafn drullu shallow og þið. Við hugsum ekki um hversu MJÓIR þið eruð.

Lúpa
29.10 2009 kl.15:14

OMG, var ekki rétt nýbúið að hvetja alla við að fara í megrun!! Á maður kannski að fara í fitun núna?!

Karlar...Hvort viljið þið bústnar konur eða þær sem eru fit?

Tinna
29.10 2009 kl.15:24

Ekki væri ég til í gaur sem er eitt stykki kjötbolla... :) Mig langar í strák sem er góður, skemmtilegur, hraustur náungi.

Helgiiii
29.10 2009 kl.16:35

Þið eruð öll kexrugluð, fréttamaðurinn & “vísindamennirnir”(hafa-ekkert-að-gera-mennirnir) líka...
Og að kalla þetta “vísindalega sannað” er eitthvað það vangefnasta... tökum 100 manneskjur, látum 50 dæma 50 og hvaða vaxtarlag/hárlitur/beinskekkja/augnlitur er heitastur og HVAÐA NIÐURSTÖÐUR SEM ER væru eðlileg frávik þegar að úrtakið er svona lítið...
Misjafn er smekkur mannana.
Haha og að dæma aðferðir annara til að laða að sér maka er líka með því heimskulegra.

gaur
29.10 2009 kl.22:20

karl: “Hvernig ætli líkamsástand karlmanna hafi almennt verið á þessum árum miðað við í dag... ef það hafa þá ekki verið smágerðir belgískir strákar :-þ

Karlmaður sem er 180cm og 81 kg er kominn í ofþyngd, ef hann er 97 kg þá er hann kominn í alvarlega ofþyngd.”

Tja, já. Ég er 180 cm og hef spannað þetta þyngdarsvið. Ef þú ert tæp 100 kg og þetta hár, þá finnurðu á þér að eitthvað er að, burtséð frá öllum samfélagslegum sjónarmiðum.

Jón V
31.10 2009 kl.09:31

Hvernig væri að stofna sér arm í tískugeiranum þar sem bara gagnkynhneigðir karlar fá að segja sitt? Það yrði forvitnilegt að sjá hvort konurnar verði ekki eðlilegri.
Mér finnst mjög sennilegt að samkynhneigðir karlar laðist að ,karlmannslegri’ líkömum of grannra kvenna. Það er alveg skiljanlegt og ekkert slæmt við það sem slíkt.

Hinsvegar veit ég fátt meira óaðlaðandi en konur sem eru vel í yfirþyngd, það er bara mín skoðun. Þá er ég að tala um bumbur og rassa sem myndu duga 3 konum í kjörþyngd. Það virðist samt ekki hafa stoppað aðra menn en mig hingað til .

Anna
04.11 2009 kl.23:40

Stendur ekki “eðlilegri kjörþyngd” en ekki feitar konur!? Það eru allt of margar stelpur sem telja allt of grannt vera “eðlilegt”, og þá er ég ekki að tala um þessar grönnu týpur sem fitna ekki, heldur þær sem komast ekki í háttinn nema vera búnar að telja kaloríufjöldann sem þær innbyrgðu um daginn. Fínt að sjá að karlmenn vilji venjulegar , hraustar píur! ;)

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar