Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir gegnsæi mikilvægt svo trúnaður ríki um að fyrirtæki fái samræmda meðferð innan bankakerfisins.
Hún segir ekki sjálfgefið að sömu eigendur að komi að stjórn þeirra fyrirtækja sem bankar afskrifi lán hjá í stórum stíl.
“Mér finnst að í þeim tilvikum eigi að fara fram útboð, að minnsta kosti þegar um stærri fyrirtæki er að ræða,” sagði Jóhanna á blaðamannafundi í morgun þegar rætt var um hugsanlegar milljarðaafskriftir.
Þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra undirstrikuðu á blaðamannafundinum að verið væri að endurskoða reglur fyrir fjármálamarkaðinn, sem meðal annars væri ætlað að koma í veg fyrir krosseignatengsl og misnotkun á markaði.
Nánar í frétt mbl.is af blaðamannafundi ráðherranna.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
30 ummæli
Rita ummæli03.11 2009 kl.18:17
Slóð
Mikið er maður nú orðinn leiður á þessu gegnsæis kjaftæði í henni Jóhönnu, það hefur sko ekki sýnt sig að það gerist hjá henni leyndarmálum fjölgar og það er aldrei neitt uppá borðum hjá henni ja annað en feluleikurinn, fólk hlýtur að fara að sjá í gegnum þennan skrípaleik í henni blessaðri.
03.11 2009 kl.18:20
Slóð
Þá var nú gegnsæið í nýju Kaupþingsauglýsingunni flottara.
03.11 2009 kl.18:25
Slóð
“has” :Èg hélt ad Jóhanna hefdi ekkert ad fela, er hún ekki löngu komin út úr skápnum.......??
03.11 2009 kl.18:25
Slóð
Af hverju “stærri”?
Hversu stór eru “stærri”?
Þetta er voðalega loðið og teygjanlegt. Eins og að horfa á raunveruleikann í gegnum botninn á lítilli kókflösku úr gleri.
Af hverju má gegnsæið ekki vera gegnsætt?
03.11 2009 kl.18:28
Slóð
Af hverju á annað að gilda um stærri fyrirtæki en minni?
03.11 2009 kl.18:39
Slóð
Smjöööörklíípa og kjaftæði, það verður EKKERT gagnsæi á sumum
handvöldum tengdum, og vel greiddum fyrirtækjum.
03.11 2009 kl.19:09
Slóð
Þetta er bara konunni til skammar. Við vitum öll að þetta er bara í nösunum á henni og hún meina ekki rassg.. me þessu - það hefur hún fyrir lifandis löngu sýnt okkur.
03.11 2009 kl.19:18
Slóð
Var að hlusta á Hreint Heitt Loftsson í Ruv í kvöld.
“Hagar er vel rekið fyrirtæki”!
Sagði “viðskipta-sjeníið”.
hmmmm.......
Ef hægt er að kalla fyrirtæki sem hefur skuldar 3x meir en það er metið á
“vel rekið” þá skil ég vel hversvegna staðan er ein og hún er.
Viðskiptahálfvitar á heimsmælikvarða!!
03.11 2009 kl.19:25
Slóð
Einmitt Orðlaus. Skuldum vafið einokunarfyrirtæki. Hvernig er það hægt?
03.11 2009 kl.19:26
Slóð
Priscilla
Fyrirtæki er Stórfyrirtæki þegar það skuldar nægilega margar miljarða !
Fyrirtæki sem veltur engu miðað við skuld er Stórfyrirtæki í augum Jóhönnu,
eins og Hagar, Icelandair, SS , Sjóvá, Actavis, N1 o.fl. o.fl.
Nú er svo komið að versló nemandi getur reiknað það út að þessi “stórfyrirtæki” standa ekki undir sér... úps þá eru góð ráð dýr.
Ráðið er að þurrka út skuldir fyrirtækjana og láta þau rúlla áfram í eigu annarra auðmanna eða ríkisbubba klíku Íslands.
Svo geta almennings lúserarnir borgað það sem afskrifað verður..
Og alveg öruggt að ríkisbubbarnir sem fá fyrirtæki í gjöf frá Jóhönnu,
eiga eftir að sanka skuldum á ný... og yfirveðsetja sömu fyrirtækinn.
03.11 2009 kl.19:33
Slóð
Ef Jón Ásgeir skuldaði mér 50 milljarða og neitaði að borga skuldina en kæmi með tilboð upp á fimm milljarða fyrir 60% eignarhlut gegn því að ég gæfi honum eftir 45 milljarða þá myndi ég henda honum öfugum út.
En áður en ég gerði það myndi ég kæra hann til lögreglunnar því að einhvers staðar eru þessir peningar og ég myndi leggja ansi mikið á mig til að ná í þá.
Af hverju er yfirhöfuð talað við þessa spillingar- og skuldagúbba?
03.11 2009 kl.19:39
Slóð
Glaumur minn - Jón Ásgeir var reyndar kærður og m.a.s. dæmdur líka. Fyrir fjársvik. Að ógleymdum öllum hinum ákæruliðunum sem íslenskt dómskerfi hafði hvorki vit, þor né sjálfsvirðingu til að dæma hann fyrir. ´
Merkilegt að stjórn ríkisbankans Nýja Kaupþings skuli ekki hafa rekið í þetta glyrnurnar. Kannski eru augu þeirra svona haldin að þau sjá aðeins Svarta-Pétur og glæpagengið hans?
Ég geri það að tillögu minni að Jón Gerald verði settur sem sérlegur bústjóri yfir eigur ríkisins í Högum og Jón Ásgeir verði sendur þangað sem hann á heima - í tugthús.
03.11 2009 kl.19:43
Slóð
Og ég held að við ættum að hunskast til að standa með Jóhönnu í bili - það er altént ljóst að hún er að reyna að hreinsa til og okkur er það bara ekki ofverkið að a) gefa henni svigrúm til þess og b) sýna ríkisstjórninni að við viljum sjá tiltektina í verki. Það gerum við ekki með því að breyta umræðunni í stjórnmálalegt skítkast og kúamykjubombur fyrir gamla flokksbelgi heldur með því að sjá til þess að aðalatriðin séu á hreinu. Rétt sé rétt og satt sé satt.
03.11 2009 kl.20:10
Slóð
Útboð
Hverjir eiga peningana eða hafa aðgang að lánsfé??????
03.11 2009 kl.20:16
Slóð
@ Ránka
Þegar
A Mágur Innibjarga Sólrúnar stjórnar KB-Banka
B Mágur Ara Edwards situr í stjórn Haga fyrir KB banka
Þetta kallar samspillingin opið og gegnsætt ferli samspillingin er
mörgum sinnum veri en Sjáfstæ-Framsóknarflokkarnir til samans
og Jóhanna er í pólitík fyrir þetta lið
03.11 2009 kl.20:17
Slóð
Það deginum ljósar að bankastjórarnir eru sjálfstæðismenn og voru skipaðir af Árna Matt.
Fyrir utan ein Ásmundur en skipaður af Steingrími
Þeir higla sínum flokksbræðrum sem eru í eftri kanti þjóðfélagsins.
03.11 2009 kl.20:26
Slóð
Finnur Sveinbjörnsson er ekki mágur Ingibjargar Sólrúnar.
03.11 2009 kl.20:37
Slóð
Það eru sömu starfsmenn sem enn vinna í nýja KB og voru í gamla KB þótt nokkrir toppar voru látnir fara úr gamla KB sem svo sem gerðu lítið annað en að leika sér, þannig er það því hægðar leikur fyrir JAJ að stjórna þessu vesæla liði sem þægum hundum sem sitja og standa eftir því sem JAJ skipar til, eins og hann hefur gert alla tíð ,síðan er spurt er búið að finna kvittun sem vantar þegar JAJ fékk lánaðar rúmar 1.300.000.000,- í eigin vasa en ekkert finnst um málið í bankanum ?????
Finnur veit og vill vita sem minnst og svo verður áfram.
jæja Steingrímur fjármálaráðherra hvernig er það að sjá öll þau gildi sem þú hefur logið að lýðnum alla þína tíð að þú stæðir fyrir “heiðarleika” eru orðin tóm og lýðsskrum.
Og lýðurinn borgar.
03.11 2009 kl.20:41
Slóð
- - “Hún segir ekki sjálfgefið að sömu eigendur að komi að stjórn þeirra fyrirtækja sem bankar afskrifi lán hjá í stórum stíl.” - -
Segir Jóhanna að ofan. Þetta er svolítið klaufalega orðað. Auðvitað á það ekki að vera sjálfgefið -- -- ef afskrifað er í stórum stíl. Það á bara ekkert að vera afskrifað í stórum stíl, alls ekkert. Slík fyrirtæki á að taka til gjaldþrotaskipta. Hver er það, sem á að geta afskrifað? - Það jafngildir skatti á almenning og það á bara að vera á hendi þingsins. Afskriftir rýra eignir nýja KB banka og auka þörf fyrir rekstrarfé af hendi fjármálaráðuneytis.
03.11 2009 kl.20:44
Slóð
“verið væri að endurskoða reglur fyrir fjármálamarkaðinn”
Betra seint en aldrei, en þær reglur verða örugglega ekki tilbúnar fyrr en búið er að selja alla bestu bitana
03.11 2009 kl.21:10
Slóð
Útboð.. hehe.. það muna nú allir lóðabull útboðin í reykjavík í boði samfó.
03.11 2009 kl.21:24
Slóð
Ránka.
Mikið held ég að þetta sé votur draumur Jóns Geralds. Sér fyrir sér að sigla á skútunni sjálfur inn í sólsetrið. Gubb.
03.11 2009 kl.21:32
Slóð
mér finnst það djók að leita álits hjá Hreini Loftssyni.
03.11 2009 kl.22:31
Slóð
Vonum svo sannarlega að gamla góða Jóhanna skíni þarna í gegn.
Hélt hún væri alveg heillum horfin.
En ef við erum raunsæ og afskriftir eru óumflýjanlegar - væntanlega fjöldanum til hagsbóta, þ.e. Jón Ásgeir og allt hans veldi vs. almannafé og störf fjölda manns - þá er skömminni skárra að láta hann ekki hanga á þessu öllu með allt sitt óeðli.
Bjóða út og gefa heilbrigðri samkeppni sjens.
03.11 2009 kl.22:32
Slóð
Af hverju erum við svona miklir vitleysingar? Er það hreyna loftið sem gerir það.
Er það kanski af því að við erum alltaf innan um svo mikla vitleysinga?
03.11 2009 kl.23:17
Slóð
Best af fara í búðarferð
-með síðustu krónu sem ég á.
Bónus er með besta verð
-ég borga nebblega eftirá.
03.11 2009 kl.23:45
Slóð
Er þetta hér bara ekki gott mál:
http://pressan.is/Frettir/LesaFrett/fjolmennur-hopur-aetlar-ad-gera-nyja-kaupthingi-tilbod-i-60-prosenta-hlut-i-haga
03.11 2009 kl.23:51
Slóð
Uppboðsaðferðin er ekki vitlaus. Seljum hverja, Bónus, 10-11 og Hagkaupsverslun á uppboði á eBay og setjum skilyrði um gegnsætt eignarhald og hámarksmarkaðshlutdeild eins aðila.
04.11 2009 kl.01:08
Slóð
ætla íslendingar ekkert að læra af hruninu spillingin helst en saman
http://i.imgur.com/aCOwC.jpg
04.11 2009 kl.07:27
Slóð
Þetta er ódýrt hjá Jóhönnu.
Hún hefur ekkert um þetta að segja, en gerir stjórnendum bankanna erfitt fyrir.
Ábyrgðarlaus Forsætisráðherra.