Innlent - mánudagur - 9.11 2009 - 15:11

Könnun: 67% telja íslenska stjórnsýslu spillta

spilling.jpgRúmlega tveir þriðju hlutar landsmanna telja spillingu í íslenskri stjórnsýslu vera mikla eða mjög mikla.

Þetta er niðurstaða í könnun sem Háskólinn á Bifröst gerði fyrir Borgarahreyfinguna.

Í tilkynningum samtakanna segir að árum saman hafi því verið haldið fram að Íslandi væri eitt óspilltasta land í heimi. Transparency International hafi reglulega framkvæmt mælingar á spillingu og samkvæmt aðferðum þeirra hafi Ísland verið til fyrirmyndar meðal annarra vestrænna ríkja.

Borgarahreyfingin segir að Bifröst hafi “að beiðni BH kannað viðhorf fólks til umfangs spillingar í stjórnsýslunni á Íslandi.”

Spurt hafi verið í símakönnun hversu mikil spillingin væri að mati viðkomandi. Úrtakið var 1.350 manns á landinu öllu og svarhlutfall 63,6%.  Í ljós kom að rúm 67% þeirra sem afstöðu tóku töldu spillingu í íslenskri stjórnsýslu vera mikla eða mjög mikla.

Sjá niðurstöður í PowerPoint skjali

39 ummæli

Rita ummæli

siggi
09.11 2009 kl.15:16

Voru þessi 33% Leikskólakrakkar?

Ásta B
09.11 2009 kl.15:17

siggi
09.11 2009 kl.15:16
Stuðningsmenn SjálfstæðisFLokksins kannski?

vigga
09.11 2009 kl.15:20

Ég vildi að það væri satt, eins og komist er að orði, að ÍSLAND sé óspilltasta land í heimi. Greinin á við þjóðfélagið, en ég held að við þyrftum líka að taka okkur saman í andlitinu, gagnvart umgengni við landið sjálft..............Þar erum við heldur ekki óspillt

Val
09.11 2009 kl.15:21

Það bregst ekki alltaf er sökinni klínt á Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn en ef við skoðum málið þá er Samfylkingin og VG ekkert betri. Þannig að mér finnst oft sammast hér að oft glymur hæst í tómri tunnu eða sumir sjá flísina í auga náunga síns en ekki bjálkann í sínu eigin auga.

Rómverji
09.11 2009 kl.15:21

Stóra ósagða fréttin er sú að ekkert er verið að gera sem breytir ástandinu. Halda á áfram á sömu braut.

Ásta B
09.11 2009 kl.15:24

Rómverji
09.11 2009 kl.15:21
Sammála þessu og þetta er þyngra en tárum taki :(

Bessi
09.11 2009 kl.15:25

Það er ekki nóg með að stjórnsýslan sé spillt, það er líka grafið undan henni af frjálshyggjumönnum sem vilja koma á markaðsalræði og þeir bíða í röðum eftir starfi hjá hinu opinbera til þess eins að geta lamað eða eyðilagt stjónkerfið.

gerber
09.11 2009 kl.15:31

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472541/2009/11/08/
40 mín inn í viðtalið.
Ekki spilt í heild sinni.. bara smá.

Erlir H.
09.11 2009 kl.15:36

Látið verkin tala þegar engin treystir ykkur.....
Sýnið almenningi að þið voruð þess virði að vera kosinn.

Segið hvernig þið séuð að vinna og fyrir hvern....
Almenningur sér ekkert jákvætt gerast og daglegar fréttir af fúski,
sparnaður allstaðar nema á afskriftum stórfyrirtækja.

Það verður ekki 1% eftir sem styður ríkisstjórn með þessu áframhaldi.

haxel
09.11 2009 kl.15:38

gerber
09.11 2009 kl.15:31

Það er vont en ekki spillt ! Þetta lið er dásamlegt.

Ásta B
09.11 2009 kl.15:41

gerber
09.11 2009 kl.15:31
Hlustaði á þetta í gær.... hrollur dauðans :(

Bessi
09.11 2009 kl.15:41

@Erlir H

Það tekur mörg ár og jafnvel áratug að laga það sem græðgisvæðingin hefur eyðilagt, annað er bara óraunhæft.

Glaumur
09.11 2009 kl.15:44

Bad to the bone!

Rósa
09.11 2009 kl.15:49

Þessi könnun segir ekki neitt.

Hvernig skilur fólk hugtakið stjórnsýsla?

Það er fyrst of fremst pólitíkin sem er spillt.

Hefði verið spurt um pólitíska spillingu á Íslandi er ég viss um að 90% hefðu talið hana mikla.

Jói Erlendsson
09.11 2009 kl.16:00

Af hverju haldið þið að sjallar eru svo andvígir inngöngu i ESB, það er vegna þess að þá þarf að herða lög í landinu og þeir eru hræddir um að missa
kverkatakinu á öllu þjóðfélaginu. Hver þorir að fjárfesta í hlutabréfum þegar stærstu hluthafarnir fá að haga sér eins og þeim hentar og fá aldrey dóm á sig fyrir innherjaviðskipti...

sls
09.11 2009 kl.16:08

ÍSLAND ER SPILLTASTA LAND Í HEIMI. Verum ekkert að reyna að breiða neitt yfir það.

Kristján
09.11 2009 kl.16:41

Ísland spilltasta land í heimi.

stubbur
09.11 2009 kl.16:46

Spilling, Vinarvæðimg, Ættartengsl, og Rassasleikingar, Nákvæmlega eins og það er í dag.

Ragnhildur
09.11 2009 kl.16:50

ÍSLAND HEFUR VERIÐ SPILT Í ÁRTUGI,ÞAÐ ÞARF MEIRA EN MANNSALDUR TIL AÐ LEIÐRÉTTA ÞAÐ....SJÁLFSTÆÐISFLOKKSMANNASPILLINGIN, ÞAÐ ER NAFNIÐ SEM VIÐ GETUM NOTAÐ Á ÞENNAN ÓSKAPNAÐ.

Warburg
09.11 2009 kl.17:01

............og 33% aðspurðra voru einfeldningar?

MW
09.11 2009 kl.17:04

LOL...hvað er að 33 % þjóðarinnar ?
Og það eru ekki bara pólitíkusar. Ráðaneytist. ofl. embættismenn eru líka gerspilltir annars hefði þetta ekki gengið.
Gleymum ekki blaða og fréttamönnum...

BGG
09.11 2009 kl.17:36

Þetta er rotnasta og spilltasta misréttisþjófafélag í heiminum engin spurning um það

S.Á.
09.11 2009 kl.17:37

Transparency International virðist ekki trúverðugt. Hver skyldi hafa fóðrað þá með upplýsingum um stöðu þessara mála á Íslandi? Forvitnilegt, ef einhver gæti upplýst það.

BGG
09.11 2009 kl.17:37

Þessi 33% voru þjófarnir sjálfir

1. Kolla
09.11 2009 kl.17:41

Er hugsanlegt að þessi 33% vinni sjálft eða eigi maka eða börn í stjórnsýslunni og njóti góðs af spillingunni?

Guðrún
09.11 2009 kl.17:41

BGG ! Sammála.

Agnar Kr. Þorsteinsson
09.11 2009 kl.17:51

S.Á.

Transparancy International vnnur þannig að þeir senda út fyrirspurnir til valdra aðila um hvort .þurfi að beita ´mutum til embættismanna eða slíku við stofnun fyrirtækja eða fyrirgreiðslu viðskiptasamninga af hálfu hins opinbera. Ísland heyrir undir skrifstofuna í Berlín sem sendir fyrirspurnir þaðan, vinnur svo upp úr svörunum í Excel og gefur út niðurstöðurnar

Þeir sem svara þessum spurningum eru svo valdir menn úr viðskiptalífinu og sérfræðingar úr kerfinu. M.ö.o. það er haft samband við Björgólf, Finn Ingólfs og félaga og þeir spurðir hvort það sé spilling á Íslandi. Fyndið á vissan hátt en grátlegt á marga vegu.

TJ
09.11 2009 kl.17:52

33% sem er sama og fylgi siðleysingjaflokksins mældist í síðustu könnun.

Tilviljun???

Nei, held ekki.

BÖNNUM SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN - til að sporna við spillingunni!

Joseph.
09.11 2009 kl.17:55

Ísland spilltasta land í heimi.

Ragnhildur
09.11 2009 kl.17:59

Það er alltaf að koma betur í ljós,að skoðanakannanir eru lítið marktækar.
Hverjir eiga þessi fyrirtæki og mælingatæki sem notuð eru? ÞAÐ VÆRI ÁHUGAVERT AÐ SKOÐA ÞAÐ.

has
09.11 2009 kl.18:45

Alveg er ég nú handviss um að það er að minnsta kosti 90% af stjórnsýslunni gerspilt og restina ja eigum við að segja talsvert spillt það er ábyggilega teljandi á fingrum annarara handar þá sem eru algerlega heilir í þessari stjórnsýslu okkar, en þetta er nú bara mitt mat

innfæddur reykvíkingur
09.11 2009 kl.19:26

ég held að stjórnsýslan, starfsmenn, séu alls ekki spilltir upp til hópa, þ.e.a.s. alls ekki meðvitað, en þögnin, þöggunin, undirlægjuhátturinn, samdaunin, og allt það sé eitthvað sem síast inn í fólk meðvitundarlaust og umhugsunarlaust
- og kjarkleysið mikið
- enda hvergi skjól, ef t.d. ákveðnir pólitíkusar ákveða að taka viðkomandi niður (sbr. orð ritstjóra DV í hlerunarmálinu) þanng virkar þetta.

jóhann
09.11 2009 kl.20:06

stjórnsýslan er gerspillt

SH
09.11 2009 kl.20:26

þessi 33% hljóta að hafa verið embættismenn, forstjórar og framkvæmdastjórar hjá hinu opinbera, sama hvort það eru ríkisbankarnir Glitnir, Íslandsbanki eða Landsbankinn, eða aðrar stofnanir. ´Valdníðslan og hrokinn er algjörlega að fara með þetta fólk í stjórnlausu landi.

Hvað er gert ráð fyrir miklu fé í fjárlögum fyrir næsta ár til að halda þessu liði uppi í eintómum ferðalögum og bitlingum. Nei, skattahækkanir á almenning svo þetta lið geti snobbast saman í laxveiði eða veislum.

veffari
09.11 2009 kl.20:35

Flytjum út Íslenskt hugvit!

Garðar Garðarsson
09.11 2009 kl.21:38

Ekki hissa á þessari könnun.

TEK EFTIR að Eyjan birtir ekki frétt um skoðanakönnun þar sem kemur fram að 62% telja að Ólafur Ragnar Grímsson þurfi ekki að segja af sér sem forseti, en aðeins 29% telja að hann eigi að segja af sér og rest hafði ekki skoðun. Þetta er þrátt fyrir árásir og smjörklípur margra hér á Eyjunni, Mogganum og DV til þess að dreifa athygglinni frá hinum seku sem höfðu raunveruleg völd til þess að koma okkur í þá stöðu sem við erum í dag.

Svavar Bjarnason
09.11 2009 kl.21:55

Pólitísk spilling hefur verið mikið í umræðunni núna eftir hrunið, og er það skiljanlegt. En slík spilling, þar sem stjórnmálavöld og peningavöld hafa blandast, á óeðlilegan máta, hefur tilheyrt okkar þjóð í mjög langan tíma.

En hvernig hefur slík spilling fylgt stjórnmálaflokkunum?

Sjálfstæðisflokkurinn hefur stjórnað okkar þjóðfélagi í óhugnanlega langan tíma. Enginn efast um að feykileg spilling hefur fylgt honum. En spilling hefur vissulega fylgt öðrum flokkum. En hvernig? Alþýðuflokkurinn fékk á sig spillingarorð á sínum tíma, en það var á þeim tíma þegar hann var í stjórn með Sjálfstæðisflokki. Nákvæmlega sama gerðist með Framsóknarflokkinn, þegar hann var í slagtogi með íhaldinu. Þá kepptust Framsókn og íhald, samkvæmt hinni alræmdu helmingaskipareglu, að hygla sér og sínum. Þá var lagður grunnurinn að hruninu, með hinni gjörspilltu einkavinavæðingu bankanna. Samfylking lenti í stjórn með íhaldinu, rétt fyrir hrunið og fékk á sig meðsekt og spillingarorð.

Af þessu má sjá að Sjálfstæðisflokkurinn er samnefnari spillingar sem hefur viðgengist allt of lengi í okkar þjóðfélagi. Gefum honum frí, í að minnsta kosti tvö kjörtímabil!

j.a.
09.11 2009 kl.22:15

Finnast virkilega 33% íslendingar sem trúa því að allt sé í lagi hérna á ‘Islandi. Ef svo er þá er í miklu ábótavant í menntun á Íslandi. En gott mál þá reyna þeir að sitja sem fastast á Íslandi, en ég vona að þeir sem átti sig á hlutunum komi sér sem fyrst í burtu af skerinu. Fljótt, fljótt.

tverhaus
10.11 2009 kl.01:33

Hvar er VG og stóru orðin...

VG hefur ekki gert neitt til þess að gera stjórnsýsluna gegnsærri.... þeir eru mestu lýðskrumarar sem ég hef gastað atkvæði í...

ojbara...

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar