Fólk - fimmtudagur - 12.11 2009 - 15:47

Kvikmyndin Desember fær stórkostlega dóma hjá öllum fjölmiðlum

Kvikmyndin Desember eftir Hilmar Oddson hefur allstaðar fengið frábæra dóma en í henni þreytir tónlistarkonan Lay Low frumraun sína á hvíta tjaldinu.

desember.png

Myndin segir frá Jonna sem er leikinn af Tómasi Lemarquis (Nói Albínói) sem snýr heim til Íslands í byrjun desember eftir að hafa eytt nokkrum árum í Argentínu þar sem hann eltist við tónlistardraum.

Hann á von á því að allt sé nánast eins og það var þegar hann fór að heiman en kemst sannarlega að öðru. Kærastan komin með nýjan, systirin í miklu rugli og mamma og pabbi bæði veik. Jonni heldur samt yfirleitt góða skapinu og reynir að gera sitt besta.

Í dómi frá Morgunblaðinu segir m.a.:

“Þetta er raunsæ saga um venjulegt fólk en umgjörð myndarinnar er stórbrotnari. Leikarar ljá persónum líf af stakri prýði og skiptir þar mestu að samskipti og tilfinningar milli þeirra eru trúverðug í alla staði. Samleikur Tómasar Lemarquis og fyrrverandi kærustu hans Lovísu E. Sigrúnardóttur (betur þekkt sem tónlistarkonan Lay Low) er magnaður og hrífandi og það sama má segja um samskipti Jonna við litlu systur sína, sem Laufey Elíasdóttir leikur. Hin unga og óreynda Unnur Birna Jónsdóttir í hlutverki dóttur Laufeyjar stelur svo senunni á köflum með fantagóðri innlifun og hún fullkomnar tengingu systkinanna.”

Að auki tekur gagnrýnandi Moggans (Hjördís Stefánsdóttir) fram að litrík og lífsglöð tónlistin bindi myndina saman:

“Söguhetjurnar Jonni og Ásta tengjast órjúfanlegum böndum í gegnum hrífandi tónlistarflutning sem gerir áhorfið enn ánægjulegra. Desember er hjartnæm mynd og boðskapurinn, sem er á köflum grátbroslegur, á vel við nú þegar aðventan nálgast vegna þess að raunasaga sem þessi er algengari en flestir eru tilbúnir að viðurkenna. Myndin er afburðavel gerð og kærkomin viðbót í íslenska kvikmyndasögu,” segir Hjördís.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar