Innlent - fimmtudagur - 12.11 2009 - 17:04

SUS vill spara með því að leggja niður allar menningar- og rannsóknarstofnanir ríkisins

olafurornsus.jpgSamband ungra sjálfstæðismanna leggur til að menningar- og rannsóknarstofnanir ríkisins verði lagðar niður og Ríkisútvarpið selt. Þannig verði hægt að spara fjármuni og sleppa því að hækka skatta. Á meðal stofnana sem SUS vill að fái engin fjárframlög frá ríkinu eru Þjóðleikhúsið, Listasafn Íslands, Kvikmyndamiðstöð, Sinfóníuhljómsveitin, Rannsóknarsjóður og Ríkisútvarpið. Þá verði einnig skrúfað fyrir fjárframlög til norrænnar samvinnu.

Ungir sjálfstæðismenn kalla tillögur sínar “Raunhæf fjárlög án skattahækkana”. Skýrslan verður send öllum þingmönnum á Alþingi og afhendi Ólafur Örn Nielsen, formaður SUS,  Guðbjarti Hannessyni, formanni fjárlaganefndar Alþingis, fyrsta eintak skýrslunnar í Alþingishúsinu í dag.

SUS vill að Sjálfstæðisflokkurinn biðjist afsökunar á fyrri útgjöldum

SUS fagnar efnahagstillögum þingflokks Sjálfstæðisflokksins en telur jafnframt að þar sé gengið alltof skammt í átt til lækkunar ríkisútgjalda. Þó telur SUS að Sjálfstæðisflokkurinn verði að biðjast afsökunar á sínum þætti í því að hafa stóraukið ríkisútgjöld á síðustu árum.

Stjórn SUS telur að vel sé hægt að spara í rekstri ríkisins þannig að hægt verði að ná fram raunhæfum fjárlögum án skattahækkana og án þess að það komi verulega niður á velferðar-, heilbrigðis- eða menntakerfinu. Telur SUS að niðurskurður sé eina færa leiðin fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu sem hafa ekki svigrúm til aukinna skattgreiðslna. 

SUS leggur til að útgjöld ríkisins verði lækkuð um 72,7 milljarða. Auk þess megi varlega áætla að breyting á skattlagningu lífeyrisgreiðslna muni bæta afkomu ríkissjóðs um allt að 40 milljarða króna og að bætt umhverfi viðskiptalífsins myndi skapa um 5.000 störf og 15 milljarða í auknum skatttekjum. Samanlagt er því um að ræða 127,7 milljarða króna sem myndu minnka fjárlagahallan um 64,6 milljarða án skattahækkana.

Menning og rannsóknarstarfsemi lögð niður

Niðurskurðartillögur SUS eru róttækar og er ljóst að menningar- og rannsóknarstarfsemi á ekki upp á pallborðið hjá ungum sjálfstæðismönnum. Að þeirra mati á ekki að lækka framlög til stofnana, einsog gjarnan er gert á niðurskurðartímum, heldur einfaldlega að leggja þau alfarið af.

Þannig á að leggja af fjárframlög til Ríkisútvarpsins og spara með því 3,2 milljarða króna. Þá á Þjóðleikhúsið ekki að fá krónu, en með því myndu sparast 698 milljóninr, Kvikmyndamiðstöð yrði lögð niður, en hún á að fá 463 milljónr samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem þó er 20% niðurskurður frá þessu ári. Niðurfelld gjöld til Sinfóníunnar myndu spara 513 milljónir, Íslenski dansflokkurinn 119 milljónir, Listasafn Íslands 160 milljónir, Listasafn Einars Jónssonar 17 milljónir, önnur söfn og safnasjóður 330 milljónir, önnur listastarfsemi 826 milljónir, Rannsóknarsjóður 815 milljónir, Rannsóknarmiðstöð 174 milljónir, Ritlauna- og rannsóknarsjóður prófessora 182 milljónir, Markáætlun á sviði vísinda og tækni 315, Háskóla- og rannsóknarstarfsemi 174 milljónir, norræn samvinna 191 milljónir og ýmis íþróttamál 338 milljónir, svo aðeins fátt eitt sé nefnt í tillögum SUS. Í öllum þessum tilfellum er lagt til að fjárframlög verði lögð af, sem myndi þýða að viðkomandi stofnanir yrðu lagðar niður.

 

 

162 ummæli

Rita ummæli

BeGuud
12.11 2009 kl.17:07

Sammála þessum tillögum sem skattborgari. Ömurlegt að vera að greiða niður afþreyingu annarra.

kvistur
12.11 2009 kl.17:08

þá er komið að stuttbuxna liðinu í XD að reina að lappa uppá XD;)

AGG
12.11 2009 kl.17:10

Blessaðir drengirnir. Er þeim virkilega alvara? Er þetta framtíðarsýn ungra sjálfstæðismanna(kvenna)? Það fer um mann hrollur.

Nafnlaus gunga
12.11 2009 kl.17:11

Er ekkert um þjóðkirkjuna þarna?


12.11 2009 kl.17:18

En dæmið er bara reiknað til hálfs: Með því að leggja niður stofnanir þá missa fleiri vinnuna. Það þýðir þá að þeir sem missa vinnuna borga ekki skatta til rísins, heldur þarf ríkið að borga þeim bætur. Hvernig lítur dæmið þá út ? Fyrir utan að einhver hluti af þessu fólki á að öllum líkindum eftir að flýja land enda einhverjir með sérmenntun á þessu svið og ekki lengur vinna fyrir það á landinu. Félagslegu áhrifin eru svo í þá átt að afþreying fyrir vinnandi fólk verður ekki eins aðgengileg og þar með hversdagurinn grári, lítð annað að gera fyrir utan að vinna og tilveran einhæfari.
Endilega, skoðum heildarmyndina en ekki frímerkið!!

Rómverji
12.11 2009 kl.17:19

Gerumst grasbítar.

Rómverji
12.11 2009 kl.17:21

Annars er þessi nýji formaður rosaflottur. Lofar góðu:

http://www.visir.is/article/20090928/FRETTIR01/432434795

Jón Ingi
12.11 2009 kl.17:21

Veruleikafyrringin er algjör... misstu sjálfstæðisbörnin af hruni frjálshyggjunnar. ?

Ætli komi ekki að eigi að einkavæða íbúðalánasjóð og selja póstinn næst... Þau hafa fundið gamla plötu með Sigurði Kára, Hannesi Hólmsteini og Birgi Ármannssyni frá því fyrir hrun ;-)

Svarta Hauskúpan
12.11 2009 kl.17:22

Oh hvað ég man vel eftir því að vera í menntaskóla með lausnir á öllum vandamálum heimsins á hreinu:) Good times.

Mætti nú sossem alveg kíkja á þetta hjá strákunum. Varla verri lausnir en hjá þeim gerspilltu og raunveruleikafirrtu stjórnmálamönnum sem við höfum.

fannarh
12.11 2009 kl.17:28

Jón Ingi. eina sem hrundi var nýfrjálshyggjan og allt það sósíalíska ríkiskerfi. með endalausri útþennslu ríkisins og ríkistryggingu á einkafyrirtækjum. eitthvað sem frjálshyggjan er algjörlega á móti. en sósíalistar eins og þú eru voða hrifnir af. enda eru það vinstri flokkarnir sem eru núna að afskrifa skuldir kúlulánsþegar og útrásarvíkinga á meðan almenningur er blæða út vegna lána og skattahækkanna.

Hverfandi
12.11 2009 kl.17:30

Íslendingar geta bara byrjað að setja saman bíla fyrir Indverja , vinna í álverum, þrífa skítinn eftir ferðamenn, ekkert of fín í það og láta börnin endilega ekki trúa að önnur störf séu föl í þessu lífi.

Menning og rannsoknastarf er langt yfir landið hafið... svoleiðis fínerí er bara fyrir ríku löndin ...

Eða hvað meinar stráklingurinn á myndinni að ofan , sem mútaði fólki til að kjósa sig.. Þvílíkur pólitíkus..

Sif Halldórs
12.11 2009 kl.17:31

Þau störf verða til annars staðar ef það er ekki drepið niður allt framtak með háum sköttum.
Peningur úr ríkissjóði þýðir ekki að hann fuðri bara upp. Heldur er hann þá frekar hjá fólkinu, sem mun þá nota hann til að annað hvort kaupa sér meiri vörur eða þjónustu sem leiðir af sér störf, nú eða leggja fjármunina í banka sem svo lánar þá út til atvinnsköpunar.

gaggligú
12.11 2009 kl.17:33

Alltaf jafn lélagar hugmyndir hjá þessum Susurum. Hvernig væri frekar ef sparað væri t.d. með því að endurheimta hitaveitumælana sem Frumherji keypti af Orkuveitinni?

http://www.dv.is/frettir/2009/1/23/finnur-faer-200-milljonir-ari/

Eða láta aðra slíka sóun ganga til baka sem farið var í á tímum ,,hagræðingar” XD og XB.

Einar
12.11 2009 kl.17:33

Næsta skref að taka upp ensku sem móðurmál.

Ég hygg að SUS geri sér ekki grein fyrir því að markaðurinn sjái ekki um íslenskt mál.

T.d. hlusti maður á fréttir stöðvar tvö heyrir maður hversu illa fréttirnar eru unnar, fréttamenn sem kunna ekki íslensku.

Ætli Bjarni Ben vilji líka leggja Þjóðleikhúsið niður?

Sigurður
12.11 2009 kl.17:36

Það ætti kannski að senda þessa kappa á skyndinámskeið í hagfræði.

Flestar rannsóknir benda til þess að framlag og styrkir til menningarstarfsemi skili meiru til baka en lagt er í.

Arni Bjorn
12.11 2009 kl.17:38

þetta er snarruglað lið. Þvílikt bara.

Gunnar
12.11 2009 kl.17:39

Frábær hugmynd!

Allt óþarfa stofnanir sem geta alveg séð um sig sjáfar!...

Magnús
12.11 2009 kl.17:41

Þekkir einhver hvað rannsóknarsjóður gerir...var að reyna að googla þetta.. 815 millur og maður finnur ekkert um þetta eða hvað þeir styrkja ?? Á þetta kannski að vera Rannis ?

Ragnhildur
12.11 2009 kl.17:42

Hvaða bull er þetta í barninu,SjálfstðisFLOKKSMENN hafa aldrei getað sparað,þeir auka bara álögur á veika og gamla fólkið.ÞANNIG HEFUR ÞAÐ VERIÐ GERT SÍÐUSTU ÁRATUGINA.og íslensku asnarnir hafa verðlaunað þá fyrir, og við eigum vissulega heimsmet í asnagangi.

Hilmar
12.11 2009 kl.17:44

@ gaggligú 17:33

Samsæriskenningasmíði er vandasamt verkefni. Maður þarf að afla sér allskonar “sannana”, blanda það með hæfilegum skammti af hugarórum og henda í smá dashi af deleríum.

Og af því að ég veit hversu erfið svona smíði er, þykir mér afskaplega leiðinlegt að benda þér á að Don Alfredo var í nánu samstarfi við Ingibjörgu Sólrúnu og aðra vinstrimenn þegar Reykjavíkurborg og OR gerðu þessa frábæru samninga við Finn.

Hermann
12.11 2009 kl.17:45

Góð hugmynd hjá þeim.Ég myndi þó vilja hafa Rkisútvarpið áfram inni eins og staðan á fjölmiðlum er í dag. Annað má vel missa sín.

Einar H.
12.11 2009 kl.17:47

E. Þ. hefur rétt fyrir sér. Að leggja niður allt þetta þýðir að það verði sennilega fljótt 20-30% atvinnuleysi. Það er þá orðið snjóbolti sem erfitt er að stoppa.
Skatttekjumissir og atvinnuleysisbætur til framtíðar. Björt framtíð!
Nema að allar þessar þúsundir manns sem eru að vinna við þetta flytji bara beint til útlanda. Þá er þetta náttúrulega “bara” skatttekjumissir.
En það ætti þá að innleiða brottflutningsstyrk upp á 3-4 milljónir á kjaft til þess að hjálpa atvinnulausum Íslendingum að flytja til útlanda og finna starf þar.
Þetta fer smám saman að hljóma eins og þjóðflokkahreinsanir sem voru stundaðar í Evrópu fyrir miðja síðustu öld.

Hilmar
12.11 2009 kl.17:47

Annars eru þetta fínar tillögur.

Spurningin er eða ætti að vera, viltu hlusta á sinfóníutónleika í Ríkisútvarpinu á meðan þú ert borinn út úr húsi, eða viltu bara halda áfram að búa í kofanum hlustandi á lélegt rokk á Bylgjunni?

Magnús K. Magnússon
12.11 2009 kl.17:47

Ekki ætla ég að tjá mig hér um tillögu SUS-ara í menningarmálum (get þó sagt að mér finnst hún meira en lítið skammsýn). En að ungt fólk með metnað fyrir sinni þjóð skuli leggja til að leggja niður framlög til vísinda er svo ótrúlega vitlaust, þröngsýnt, skammsýnt að engu tali tekur. Það liggur fyrir að allar vestrænar þjóðir (með USA í broddi fylkingar) leggja í sívaxandi mæli aukin framlög í vísindi og tækni. Það er gert m.a. vegna þess að slíkar fjárfestingar eru FORSENDA hagþróunar, velsældar og framfara.
Eru þessir ungu verðandi pólitíkusar svo skini skroppnir að þeir sjá fyrir sér nýja Ísland sem land frumgreinavinnslu og menntunarleysis. Það er ekki bjart fram undan hjá Sjálfstæðisflokknum ef þessir eiga að erfa flokkinn .... Þetta er arfavitlausar tillögur.
PS: Allt sem ég segi um vísindamál get ég örugglega líka heimfært upp á mennigartillögur þeirra en lætaðra um það..

Ásta B
12.11 2009 kl.17:53

Er eitthvað í þessari skýrslu um fjárútlát til stjórnmálaflokka sbr. SjálfstæðisFLokksins?

íslendingur erlendis
12.11 2009 kl.17:53

Þeir eru ekki með öllum mjalla!

Það þarf að setja þessa ungu drengi (aftur) á skólabekk og kenna þeim hversu mikilvæg EIGIN menning er. Svo ekki sé talað um sérstæða menningu lítillar þjóðar, sem m.a. talar 1200 ára gamalt tungumál.

En þessir kappar vilja senniega bara liggja á spenanum hjá Evrópusambandinu. ESB á í þeirra augum líklega að borga kostnaðinn við að halda uppi íslenskri menningu.

Einar H.
12.11 2009 kl.17:55

Svo er það náttúrulega þannig að í svona “Arbeitslager” eða “Gúlagi” eins og Íslandi þarf enga góða afþreyingu.
Eins og þeir sögðu hér áður “Arbeit macht frei!”.

Jón
12.11 2009 kl.17:55

Við erum ekkert án menningar.
Ef þetta er framtíðin hjá Sjálfstæðismönnum þá má byrja á því að leggja hann niður.

Nellý
12.11 2009 kl.17:57

Nú þyrfti eldra fólk í Sjálfstæðisflokknum að siða þessa kálfa til og kenna þeim sitthvað um lífið, tilveruna, markaðinn og mikivægi eigin menningar.

Þessum flokki er ekki viðbjargandi og margir sem fagna því.

Elías
12.11 2009 kl.17:59

SUS er mannskemmandi.

Sveinbjörn Halldórsson
12.11 2009 kl.17:59

Hér sjáið þið arf þeirrar stefnu sem hefur ráðið hér ríkjum. Að það skuli vera framtíðarsýn ungs fólks að eyða menningu sinni, gerir mann einfaldlega dapran. En það segir manni einnig að afleiðing hrunsins tekur ekki aðeins til bágborins efnahags, heldur einnig til margs ungs fólks sem er svo gjörsamlega slegið út af laginu að það heldur að menning sé eins og hver önnur afgangsstærð. Mér sýnist blasa við taka þurfi allt skólakerfið til endurskoðunar. Það hefur lengi verið ljóst að alvarleg brotalöm er á efri skólastigum, sérfræðingar útskrifast án lágmarks þekkingar á menningarsögu, þeir eru eins og ómálga börn í sínum fyrirséða heimi. Og nú þegar nýsprotnir kvistarnir fá rödd, þá enduróma þeir morkna kredduhugsun þeirra eldri. Samfélag sem vill rísa úr rústum verður að auðga anda þeirra sem yngri eru, annars er allt unnið fyrir gýg.

Anna R
12.11 2009 kl.18:00

Neikvæð umfjöllun er betri en engin umfjöllun :)

Það alversta sem sumir geta hugsað sér er að fá enga athygli.

Hafþór
12.11 2009 kl.18:02

Fyrsta skrefið væri þá væntanlega að leggja niður stöðu Hannesar Hólmsteins við ríkisháskólann?

Hilmar
12.11 2009 kl.18:04

Merkilegt.

Það virðist ekki vera möguleiki á menningu án ríkissins.

Nú ætla ég að vera rausnalegur að bjóða fólki að horfa á Rúv í kvöld og hlusta á Rás 2 á morgun með því hugarfari að leita að menningu.

AT
12.11 2009 kl.18:04

Leggjum niður Sjálfstæðisflokkinn, það myndi spara

Einar H.
12.11 2009 kl.18:04

Og fjölga súludansstöðum, takk fyrir!

Einar H.
12.11 2009 kl.18:05

...og fjölga líka hóruhúsum. Þar er markaðurinn!
Sennilega hægt að peppa soldið upp á GNP með þeim.

Sigurrafn
12.11 2009 kl.18:08

Ef Indverjar treysta Íslendingum að hefja samsetningu rafbíla er það gott mál. Ómar Ragnarsson og fleiri sem ekki eru lífhræddir gætu þá endurnýjað bíla sína. Atvinnuskapandi á meðan láglaunalandið tekur við sér.

En hver trúir því að við höfum tök á verðbólgunni með alla nýju skattana í startholunum. Venjulega tekur ekki langan tíma að ofkeyra eyðsluhákinn og krefjast hækkana sem engin innistæða er fyrir.

Loksins kemur eitthvað jákvætt frá Sjálfstæðismönnum. Lífeyrissjóðirnir eru ofvaxtakýli sem koma ekki til með að halda í við verðbólguna. Valdakerfi þeirra er ekki lýðræðislegt og gegnsætt. Hvað vitum við t.d. um ávöxtun þeirra eða dreifingu fjárfestinga?

Íslendingur
12.11 2009 kl.18:13

Afsprengi sauðspiltrar Valhallarmafíu að koma fram með hugmyndir til sparnaðar fyrir fjölskyldur landsins... hmm.... SUS kann svo sannarlega ekki að skammast sín fyrir pólitískan uppruna sinn, flokk sem steypti efnahag þjóðar í glötun...

Er Sjálfstæðisflokkurinn búinn að endurgreiða mútur sem þegnar voru frá Landsbanka og Fl group ???

Ungi maður...ef eitthvert réttarkerfi væri starfandi á Íslandi í dag ætti að draga Geir Haarde, Davíð Oddson,Kjartan Gunnarsson og marga fleiri hjá flokki þínum fyrir landsdóm og ákæra fyrir vanrækslu og svik gagnvart þjóð.

Góðar stundir.

Arnar
12.11 2009 kl.18:13

Hvar er þessi skýrsla aðgengileg? Hvernig ná þeir fram 72 milljarða niðurskurði? Það sem talið er upp hérna nær ekki 10 milljörðum.

Afhverju eru þeir að fela skýrsluna?!?

GVG
12.11 2009 kl.18:16

Það fer um mig hrollur! Að þetta sé niðurstaða ungra sjálfstæðismanna er hreinlega með ólíkindum. Framtíð Sjálfstæðisflokksins er sannarlega ekki björt.

Leggjum niður ísland
12.11 2009 kl.18:16

Fyrst er að loka skólunum, óþarfi að ríkið sé að vasast í því. Hvað hefur fólk að gera við lestur? Það ætti frekar að vinna!

gaggligú
12.11 2009 kl.18:22

Hilmar

er það ekki einkennandi fyrir svona fugla einsog þig, að þú heldur að allir hugsi einsog þú, og því geti vinstrimenn ekki séð spillingu í eigin ranni!! Þetta er barnalegt, kjánalegt og að vissu leyti séríslenskt. Og það vissu það allir, já hvert móðir mannsbarn, að Don Alfredo (þeas framsókn) var innvinklað í R-listann, jafnvel ómálga börn. En Alfredo var XB maður, hvað sem samkrullinu líður. En R-listin hagaði sér heimskulega síðustu árin, og hefði átt að æpa á þessa nautsku.

Spilling og heimska er slæm hvar sem hún kemur fyrir, en alveg sérstaklega er djöfullegt að horfa upp á glæpóna í stjórn borgar eða ríkis leika afleiki og almenningur þegir - sjálfsagt oftast vegna þess að þeir eru í sama flokki og sá apaköttur sem tók hina spilltu ákvörðun. Og þú gætir vel hugsast vera einn af þessum fuglum - einn af þeim sem úthrópar Jón Ásgeir en aldrei Björgúlfsfeðga, þegar hvorirtveggja eru glæpahundar. Men einsog þú, sértu þannig, þeas andlega eineygðir, eigið að halda ykkur til hlés.

Og ætlir þú að leita að menningu, þá held ég að það sé alveg sama hvað að þér sé rétt, sé það á kostnað ríksins, þú munt alltaf svara: Nei, þetta er ekki menning!

Stórlax
12.11 2009 kl.18:28

Hvar er skýrslan sjálf ?
Mig langar að sjá hvort Susarar hafi skoðað sparnað sem hægt væri að ná með því að borga pólitíkusum eða kunningjum þeirra ekki aukalega fyrir að vera í ráðum og nefndum sem þeir skipa, hvort ekki mætti fækka þingmönnum stórlega og hvort þeim þyki ekki eðlilegt að ríkisstyrkir til stjórnmálaflokka verði lagðir niður.
Einnig mætti athuga sendiráðsstöður, kjördæmapot og fleiri og fleiri bittlinga sem viðgengist hafa í stjórnkerfinu.
Kannski byrjuðu þeir samt á að skoða það, ég vona það allavegana, því að með þessu mætti allavegana byrja sparnaðinn.

Hilmar
12.11 2009 kl.18:34

@ gaggligu

Var eitthvað point í þessu reiðiblabla hjá þér?

Ég var bara svo vænn að benda þér á að spillingin sem þú ætlaðir Sjálfstæðismönnum var bara ekki Sjálfstæðismanna heldur vinstra liðssins í R listanum og á sérlegri ábyrgð fyrrum borgarstjóra R listans, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.

Það er fremur lítilmannlegt að ráðast að mér fyrir að segja þér sannleikann.

En kannski er þér bara illa við að vera leiðréttur af einstaklingi sem þiggur ekki laun frá ríkinu. Eins og allir vinstrimenn vita, þá er enginn fær um kennslu nema ríkisstarfsmaðurinn og enginn er fær um listgjörning nema á framfærslu ríkissins.

Vertu svo bara vinsamlegur að hoppa upp í óæðri endann á þér.

Stórlax
12.11 2009 kl.18:35

Kannski væri samt mestur sparnaðurinn sem SUS ætti að íhuga, að sleppa því að einkavæða banka og annað sem byggt hefur verið upp af almannafé, bara svona í ljósi þess að mesta tap íslandssögunnar hefur orðið vegna þessa.

Sóti Saxafónleikari
12.11 2009 kl.18:37

Ég segi pass.

BB
12.11 2009 kl.18:40

Sammála þessu. Það hlýtur að verða að skera niður þetta bákn.

Thu
12.11 2009 kl.18:41

http://www.mbl.is/media/99/1799.pdf
Hérna er skýrslan fyrir áhugasama til að skoða.

Kaldi
12.11 2009 kl.18:51

“Þó telur SUS að Sjálfstæðisflokkurinn verði að biðjast afsökunar á sínum þætti í því að hafa stóraukið ríkisútgjöld á síðustu árum.”

Ónei, Sjálfstæðisflokkurinn sem slíkur stóð ekki fyrir auknum ríkisútgjöldum. Hvað eftir annað ályktuðu flokksmenn hans á landsfundum um ráðdeild í opinberum rekstri og settu með því stefnu flokksins.

Það voru hins vegar ýmsir í hópi kjörinna fulltrúa flokksins sem daufheyrðust, kiknuðu undan þrýstihópum og samstarfsflokkum sínum og létu undan. Þeir eiga að biðjast afsökunar.

Vér Sjálfstæðismenn biðjumst ekki afsökunar á skuldum óreiðumanna.

Adam
12.11 2009 kl.18:55

Hvað um þá sem verða atvinnulausir? Eða ætla þeir kannski að leggja bæturnar niður líka....eða byggja fleiri álver

Bubbi
12.11 2009 kl.19:02

Sjálfstæðisflokkurinn bjó til þetta ofvaxna skrímsli (ríkið) ágætt að börnin þeirra hafi þroska til

Og komi með tillögu um að þau fari ekki á opinbert framfæri einsog foreldrarnir

TJ
12.11 2009 kl.19:04

Hvernig væri að Sjálftæðshyskið seldi ofan af sér vöggu spillingarinnar - Valhöll?

Þá ættu þeir kannski fyrir vaxtalausu mútuskuldunum til FL-group og Landsbankans!!!

Taka svo þessa óþekktar anga og setja á svið opinbera flengingu á berann bossann á þeim - það myndu allir listamenn landsins taka þann gjörning að sér frítt og því ekki króna sem það kostaði ríkissjóð.

Bubbi
12.11 2009 kl.19:07

@ TJ

vandamálið þitt er Jón Ásgeir samspillingar-foringi

Guðrún
12.11 2009 kl.19:11

Það á sem sagt ekki að byggja nýja Ísland á nýsköpun.

Ásta B
12.11 2009 kl.19:13

Er eitthvað í þessari skýrslu um “frjálshyggju” liðið sem hefur raðað sér á ríkisjötuna t.d í stjórnsýslu og í Háskóla Íslands??? Eða gildir þessi niðurskurður þeirra vel greiddu eingöngu um aðra?

SSGG
12.11 2009 kl.19:16

Á ekkert að skera niður hjá Þjóðkirkjunni? Eða Bændasamtökunum?
Er annars sammála SUS.

Jón Frímann
12.11 2009 kl.19:19

Það er mikill sparnaður við að leggja niður SUS. Það mundi spara þjóðinni ómældan kostnað.

Þessi stuttbuxnadeild sjálfstæðisflokksins er til skammar, eins og sjálfstæðisflokkurinn sjálfur.

Geir
12.11 2009 kl.19:22

Það eru margar góðar hugmyndir sem þeir hafa þarna, ég skil ekki þessa áráttu hjá vinstrimönnum að rífa strax niður allar hugmyndir sem koma frá öðrum en þeim og ekki einusinni hugleiða þær. Afhverju í andskotanum er ekki tekið skattgreiðslur í lífeyrissjóði strax í staðinn fyrir að kæfa allt niður með níðingshætti? Er það vegna þess að þessi hugmynd kemur frá sjálfstæðisflokki?

Bubbi
12.11 2009 kl.19:26

@ Jón Frímann

en ESB bullið þitt

Stórlax
12.11 2009 kl.19:29

Þó svo að í megindráttum virðist SUSari hafa lítinn áhuga á að lifa í samfélagi og því algerlega fyrirmunað að skilja þá sem það vilja, þá eru nokkrar tillögur í skýrslunni sem flestir ættu að geta verið sammála um og vil ég fyrir mitt leyti gefa þeim plús í kladdann fyrir það.

Annars vil ég leggja til að SUSarar finni sér nýtt land, helst ónumið og óbyggt því að það er ekki til nokkurt land í veröldinni sem lætur sér detta í hug að reyna að fylgja hugmyndafræðinni sem SUSarar telja hina einu réttu.

Nellý
12.11 2009 kl.19:29

Það mætti spara með því að leggja niður forsetaebættið...

Guðrún
12.11 2009 kl.19:39

SUS vill andlega auðn á Íslandi fremur en að borga skatt sjálfir eða láta þá efnameiri í eitt skipti borga sanngjarnan skerf. Skilningsleysi þeirra er aumkunverð.

Warburg
12.11 2009 kl.19:44

SUSarar gætu byrjað á að spara útgjöld í eigin ranni. T.d. gætu þeir dregið úr kyndingarkostnaði heima við með því að taka upp á því að klæðast síðbuxum;-)

Bubbi
12.11 2009 kl.19:48

Hér á landi hefur verðið alvarleg lýi í anda Hannesar Hólmstein

allir geta fengið vinnu hjá ríkinu eins og hann bara
klára lélegt próf frá Háskóla Íslands

Ásta B
12.11 2009 kl.19:48

Warburg
12.11 2009 kl.19:44
Ha, ha, ha. Góð tillaga :)

Geir
12.11 2009 kl.19:52

Austurvöllur laugardaginn 21 Nóv, þá eru boðuð mótmæli vegna Iceslave og öðrum níðingshætti ríkisstjórnar.

Hilmar
12.11 2009 kl.19:53

Eðlilegir menn eru hér að ofan að velta því fyrir sér, af hverju vinstrimenn verða alltaf svo reiðir þegar aðrir koma fram með tillögur.

Það er raunar frekar auðvelt að svara þessum vangaveltum, ástæðan er sú að vinstrimenn koma ladrei neinu í verk sjálfir.

Svo rammt kveður að þessu getuleysi stjórnarliða að erlendir ráðgjafar kvarta hástöfum fyrir þessu.

Skelfilegt að svona fólk skuli stjórna landinu á krísutímum.

Elli kelling
12.11 2009 kl.20:12

Flokkurinn þeirra er búinn að ráða öllu í 20 ár og báknið hefur þanist út á þeim tíma og því er það kannski eðlilegra að þessir strákar spyrji HádegisMóra hverju það sætir.
Það er að sjálfsögðu ekki rétti tíminn að segja upp stórum hópum í miðri kreppu.
SUS er bara brandari eins og sést ef farið er yfir lista formanna þess fyrirbæris...
...svona pabbastrákafélag.

Hlédís
12.11 2009 kl.20:15

Hafið þið aldrei heyrt að sjálfstæðisfólk sé heilaskemmt?.Það útskýrir allavega veruleikafirringu þeirra. Í stað þess að þegja og skammast sín þá gala þeir eins og hauslausar hænur á alþingi þeim öllum til skammar.Sem sagt ekki neitt.

tryggvi
12.11 2009 kl.20:36

Góðar tillögur en þessi kommastjórn mun aldrei geta reyst Ísland við heldur mun hún sökkva allri þjóðinni í endanlega fátækt eftir hrunið.

Bubbi
12.11 2009 kl.20:37

@ Hlédís

“Við kvöddumst með kossi eins og við byrjuðum þetta,” sagði Geir Harde
eftir fund með Ingibjörgu Sólrúnu

tryggvi
12.11 2009 kl.20:37

reyst=reist smá leiðrétting

Sjalli
12.11 2009 kl.20:45

Fiskvinnslukonur á Flateyri eiga ekki að þurfa að niðurgreiða leikhúsferðir og aðra álíka afþreyingu tannlækna og endurskoðenda úr Garðabæ. Þeir geta bara borgað sitt menningarlíf sjálfir, á Flateyri borgar fólk sjálft sína miða ef hljómsveit að sunnan mætir á svæðið.

jóa
12.11 2009 kl.20:46

12.11 kl20;37 Hlédís alltaf jafnsmekklaus. Hvur var að tala um kossa? saurugur hugsunarháttur....

Villi
12.11 2009 kl.20:46

“SUS leggur til að útgjöld ríkisins verði lækkuð um 72,7 milljarða” með þessu sem er aðeins 10% af 700 milljarða Icesave reikningi. Eru menn virkilega ennþá að spá í að borga Icesave?

fannarh
12.11 2009 kl.20:52

vaaá hvað menn eru málefnalegir hérna. ekki virðist vera vottur til af neinu því sem heitir virðing fyrir skoðunum annara eða lýðræðislegt umburðarlindi. þessi skrif vinstrisinnaðra aðila hér að ofan sanna að lýðræði og mannréttindi eru orð sem notuð eru á titlidögum hjá vinstriflokkunum. um leið og þeir komast í völd er þessu öllu sparkað út í hafsauga.

Sigurður Páll
12.11 2009 kl.20:59

Sjálfstæðismenn vilja breyta Íslandi í eyðimörk frjálshyggjunnar.

Menningarsnautt ójafnaðarþjóðfélag, þar sem hátekjufólkið fleytir rjómann ofan af öllu og þorri almennings lepur dauðann úr skel.

Þá verður vinnuafl svo ódýrt að gróði auðmannanna magnast enn frekar.

Þetta Sjálfstæðisfólk hefur opinberað sig.

VIð verðum að verja Íslands.

Bubbi
12.11 2009 kl.21:01

@ Sigurður Páll

Já og hækka skatta

Gubbi
12.11 2009 kl.21:02

SUSarar eru að grína!! Nú veltast þeir um af hlátri fyrir að hafa rutt þessari þvælu yfir okkur og skemmta sér yfir viðbrögðunum. Það rennur af þeim fyrir hádegi á morgun.

Geir
12.11 2009 kl.21:03

Um að gera að allir mæti á Austurvöll laugardaginn 21 Nóv, þá eru boðuð mótmæli vegna Iceslave og öðrum níðingshætti ríkisstjórnar. Og látið það berast og mætið! Enga helvítis leti fólk, við erum búin að sitja þegjandi alltof lengi.

Skippí
12.11 2009 kl.21:23

Ekki dæma stuttbuxnadrengina of harkalega!

Vissulega eru þeir sálarlausir, en það er sennilega bara vegna þess að þeir fóru á mis við ást og umhyggju í æsku, og/eða var einungis kennt að elska rassgatið á sjálfum sér.

Næst þegar þið hitti einn úr þessum hópi, ekki vera reið, faðmið viðkomandi.

Theódór Norðkvist
12.11 2009 kl.21:26

Til að fyrirbyggja allan misskilning tek ég fram að ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn beri höfuðábyrgð á hinu hrunda Íslandi. Þessi ungi maður hefur lært valdaránsfræðin af hinum eldri lærifeðrum sínum, eins og fræg flugferð vestur á firði sýnir.

Hinsvegar er margt gott í þessum tillögum. Það er enginn að tala um að leggja niður menningu þó skorið sé niður til hennar a.m.k. tímabundið.

Mjög stór hluti af þessum gjaldaliðum eru tóm della. Hvers vegna eiga þeir sem sarga á fiðlu að vera á kaupi hjá skattgreiðendum við að spila tónlist sem enginn hlustar á?

Ég vil að við beinum sjónum okkar að því að styðja frekar við lyst (með ypsiloni) en list. Við horfum framan í mögulegt og mjög líklega gjaldþrot landsins.

Við erum að tala um að stór hluti landsbúa muni ekki eiga fyrir mat. Hvernig dettur þjóð sem ekki hefur efni á LYST að hún hafi efni á að spreða í LIST?

EÞ 12.11 2009 kl.17:18:

“En dæmið er bara reiknað til hálfs: Með því að leggja niður stofnanir þá missa fleiri vinnuna. Það þýðir þá að þeir sem missa vinnuna borga ekki skatta til rísins, heldur þarf ríkið að borga þeim bætur.”

Þetta er hárrétt. En bíðum við, er þetta ekki svolítið skrýtinn hugsunarháttur. Ertu þá að leggja til að ríkið reki svona atvinnubótavinnu til að falsa atvinnuleysistölur? Er ekki réttara bara að viðurkenna að það er stærri hópur sem hefur ekki tekist að verða sér út um eða skapa sér atvinnu, en atvinnuleysistölur segja til um?

J
12.11 2009 kl.21:28

Mesti sparnaðurin er að segja upp öllum flokksfélögum þeirra stuttbuxnadrengja sem vinna hjá hinu opinbera !

Jú, þeir segja sjálfir að það nenni hvort sem er engin ríkisstarfsmaður að vinna, vegna þess að þar er engin hvati til vinnu !

Farið strax í að finna flokksskírteinin opinberir sjálfstæðismenn ?

Hlédís
12.11 2009 kl.21:28

Sorrý Jóa hvar skrifaði ég um kossa ég var að tala um siðblinda sjálfstæðismenn ef þú kannt að lesa hefðir þú skilið það.

Hlédís
12.11 2009 kl.21:38

En ef hverju erum við að ergja okkur á stuttbuxnadeildinni yfir höfuð?.Þ

Skítlegt eðli
12.11 2009 kl.21:40

Það sem á að leggja niður er FLokkurinn.

Skítlegt eðli
12.11 2009 kl.21:42

Geir kl. 19.22, ert þú Haarde?

Hlédís
12.11 2009 kl.21:47

Sorrý var ekki búin að klára kann ekki nógu vel á þessa hluti .Enætlaði að segja að þeir auglýstu sig vel í dag og örugglega ekki í velþökk margra sjálfstæðismanna en gott að innrætið upp á yfirborðið og ég skrifa undir réttu nafni .

Gunnr
12.11 2009 kl.21:48

Ánægjulegt að stuttbuxnadrengirnir skuli loksins láta frá sér heyra. Það heyrðist nefnilega lítið frá þeim þegar ríkisútgjöldin jukust um 43% frá 2002 til 2008 í raun er þetta sáraeinfalt. Viðu þurfum bara að færa ríkisútgjöldin tilbaka til 2002.
Annars eru þessar hugmyndir populistiskar og vega ekki einu sinni á móti skattahækkununum sem koma núna. Ef þeir draga í land skattahækkanirnar þá eru eftir langt yfir 200 miljarðar. Þessi ríkisstjórn er búin að bakka tilbaka til 2007 þann Nefna þeir nokkuð styrki til stjórnmálaflokkanna stuttbuxnadrengirnir? Ég bjóst heldur ekki við því. Annars verða þeir að taka upp vasatölvurnar. Stærstu útgjaldaliðirnir eru Félagsmála-, Heilbrigðis- og Menntamálaráðuneytið. Þeir þurfa væntanlega að leggja niður klakstöðvar í Háskóla Reykjavíkur það liggur í augum uppi og Bifröst enda er það nóg komið af hagfræðingum og viðskiptafræðingum ásamt lögfræðingum. Við þurfum raungreinamenntað fólk og fagmenntað fólk til að skapa gjaldeyristekjur.

Geir
12.11 2009 kl.21:55

Jebb, in the flesh. Og stundum er ég Dabbi kóngur ; )
Nei í alvöru, hversu margir geirar eru á íslandi?
Ég er óflokksbundinn maður sem hafði akkúrat engan áhuga á stjórnmálum fyrr en ég missti draumavinnuna mína(verkamannavinnu) vegna þeirra!
Og mér blöskrar framferði stjórnvalda þessa dagana svo nú læt ég í mér heyra!

Mjög mjög hissa
12.11 2009 kl.22:03

Sturluðu börn. Á ekki bara að brenna íslenskar bækur líka? Og íslenska tónlist á báli? Óhugguleg ungmenni og sturluð. Fækka störfum og þurrka sem mest út af menningu, afþreyingu og vísindum? Á að breyta öllum hér í þunglynda alkóhólista og eina afþreyingin sem væri í boði, nema sjálfsprottin og sjálfsköpuð afþreying, væri skjár 1?

Gunnr
12.11 2009 kl.22:07

Ef þið skoðið áætlunina fyrir fjárlögin 2010 í samhengi með hin fjárlögin http://www.mbl.is/media/47/1747.pdf og gerum ráð fyrir að þjóðarkakan verði ekkert stærri en 2002/2003 og til viðbótar bætast 100 miljarðará hverju ári í vexti/afborganir af erlendum lánum sem munu bara hækka og íslenskankrónan falla ef ekkert er að gert. Ef tekst að stoppa þetta þá hækkar krónan og þarmeð sú upphæð sem fer í greiðslu erlendra lána sem mun gera þetta auðveldara. Held því miður að ef fólk vill hafa heilbrigðiskerfi og menntakerfi í sama flokki eins og nágranalöndin okkar þá þurfum við að hafa hærri skatta eins og ástandið er.
“G(r)óðærið” var byggt á sandi og skatttekjurnar sem ríkið fékk af lánaðri eyðslu kemur aldrei aftur, laun hafa dregist saman, atvinnuleysisbætur verður liður upp á 30miljarða á næsta ári auk vaxta og afborgana af erlendum lánum. Þetta verður hræðilega erfitt. Í frumvarpinu 2010 hafa menn ofreiknað tekjustofna og arfleið síðustu stjórna er agaleysi í fjármálum hins opinbera. Já þeir þurfa að keyra þetta svo hart að þeir sem fara yfir fá ekki krónu í viðbót og verði þá kauplausir það sem eftir er árs. Það þarf að stýra þessu með járnaga.

Steini
12.11 2009 kl.22:14

Þessi grey eru gjörsamlega heilalaus!

Horfum framjá því að eina leiðin til að þessar aðgerðir SUSara virki er að starfsmenn í þessum stofnunum eigi baraað éta það sem úti frís ístanðrusveiflu hægristefnunnar frá 1929. Gleymum því bara að þarna er fólk sem einhvern vegin þarf að sinna fjölskyldum sínum - það má vera að SUSarar haldi að atvinnuleysisbætur eigi ekki við þannig að þarna eigi að senda tugþúsindir beint í það að betla á götum Reykjavíkur! Djöfulli er þetta flott lausn hjá SUSurum! Djöfilli hlýtur þetta að þrælvirka!

En svo er hitt.... hmmm hefur þetta fólk bara verið að vinna þarflausa vinnu? O.k. - Óperan.... kannski gengi hún á Íslandi ef það væru lægri skattar og hástéttin borgaði bara fyrir að sjá sýnar uppasýningar.... kannski....

En halda þessi fífl að starfsemi Veðurstofunnar og Hafrannsóknarstofnunar verði ekki unnin ef þau verða lögð niður? Þvílíkt bull? Það hefur sýnt sig að þegar fólk reiðir sig á starsemi erlendra veðurstöðva þá hafa erlendir ferðamenn lent í miklum ógöngum - og jú, kannski halda SUS-arar að LÍU geti bara rekið Hafró - en hversu lengi halda þessir hálfitar að fiskistofninn lifi þegar skammsýnissjónarmið þeirra ráða ríkjum?

Nei, þessar sparnaðartillgur SUSara eru hreint og klárt bull - eins og annað sem frá þeim flokki kemur!

Hlynur Þór Magnússon
12.11 2009 kl.22:18

Legg til (í anda framtíðarfólks Sjálfstæðisflokksins) að dómstólar verði lagðir niður - og þá jafnframt fangelsin. Slíkt myndi spara ríkissjóði mikið fé.

Hannes.
12.11 2009 kl.22:19

Ég er algjörlega sammála þeim enda sé ég ekki tilganginn af því að vera að halda úti afþreyingu fyrir aðra með þeim peningum sem ég borga í skatta á meðan mótorhjólið mitt er skattlagt í botn.

Fólk á að velja sjálft hvaða afþreyingu það vill en ekki ríkið. Fólk má niðurgreiða þessar stofnanir með eigin peningum ef það vill og er það þeirra mál.

Ps atvinnuleysisbætur eru brot af því sem það kostar ríkið að niðurgreiða þessa óþarfa starfsemi sem er ekkert nema byrði á þegnum þessa lands.

Gunnr
12.11 2009 kl.22:29

Með að leggja niður Háskólann í Reykjavík sparast 2000 miljónir og hluta þeirra ætti að nota til að leggja í Tækniskólann. Það ætti í raun einnig að leggja niður megnið af starfsemi Bifrastar og Háskólans á Akureyri skera niður alla yfirstjórn og koma á fjarkennslu enda eina vitið sameina kraftanna. Sannleikurinn er að ngir þessara svokölluðu háskóla nærri því að vera alþjóðlega viðurkenndar háskólastofnanir / universities og komast ekki á blað yfir 500 bestu háskóla heimsins. Meðan allir háskólar hinna Norðurlandanna eru meðal 100 bestu. Of lítið of dreyft of veikburða enda eru þetta bara ítroðslustofnanir eða nokkrus konar “súper gaggó”. Með að sameina þetta myndi ávinnast tvennt það væri hægt að sameina kraftanna og gera einn öflugan alvöru háskóla og spara stórfé til viðbótar auka gæðin og minka kostnaðinn.
Það þyrfti að lækka atvinnuleysisbætur og hindra að fólk sé bæði á bótum og vinna á svörtu og þeir sem staðnir væru að því fengju aldrei aftur bætur alla vega ekki næstu árin. Ef vinna bíðst þá þarf fólk að taka þá vinnu eða vera hent út af bótum. Þei gera ráð fyrir 30 miljörðum þarna og gríðarlega mikilvægt að reyna að minnka þennan lið og þarna verður að spara. Hinn endin er sjúkrastofnanir og þar þarf að sameina og leggja niður enda er 80% af kostnaðinum launakostnaður þetta og marg fleirra óþægilegt þarf að gera.
Auðvitað ættu þeir bara að leggja niður Reykjarvíkurflugvöll og flytja allt til Keflavíkur það væri gríðarlegur sparnaður að því.
Hér eru möguleikar og ef mönnum tekst að minnka opinbera geiran og auka afköstin, minka skrifræði og þá getur þetta orðið okkar mesta blessun sérstaklega ef okkur tekst að halda þjónustustiginu góðu.

Ríkisbákn
12.11 2009 kl.22:38

Hvað fer mikill hluti skattfésins í ráðstefnur, fundi, námskeið og ferðlög hjá þessum ríkisbáknum.

Þeim er borgað fyrir að tala hvert við annað.

Ef fólk sæi árangur af öllum þessum fundum og námskeiðum. Þeir sem eru vinsamlegir og nógu duglegir að sleikja sér upp við þetta lið, þá kannski fær að tala við þau.

Mikið bruðl þarna. Svei mér þá ef það er ekki bara eitthvað til í þessu hjá SUS.

Gunnr
12.11 2009 kl.22:38

Annars fær ríkissútvarpið 3200 miljónir 2010 en er það ekki í gegnum eyrnamerkt gjald á að halda áfram að innheimta það ef hætt er að styrkja ríkissjóð. Ef þeir hætta að innheimta þetta gjald þá er þetta enginn sparnaður. Annars er framlagið til RÚV í gengum þetta gjald einungis 10% af því sem þeir áætla að þarf til að standa straum af atvinnuleysistryggingum og það eru margir sem telja það vanáætlað. Ef þeir td. leggja niður Háskóla Reykjavíkur sparast 2000 miljónir beint persónulega myndi ég frekar vilja halda symfóníunni, óperunni, ballett og leikhúsunum og leggja niður Háskóla Reykjavíkur í staðinn þetta á væntanlega við fleirri þeir gætu tekið Bifröst í þokkabót og enda get ég ekki séð að það er neitt þjóðhagslega nauðsynlegt nám þar enda er það staðreynd að á Íslandi verður aldrei stunduð alþjóðleg fjármálastarfsemi og eiginlega sóun að vera að etja fólki í viðskiptanám.

Ríkisbákn
12.11 2009 kl.22:40

@ Gunnr

Innanlandsflugið til Keflavíkur og nýja Háskólasjúkrahúsið, það hangir saman.

Gunnr
12.11 2009 kl.22:45

Það hangir ekkert saman að hafa flugvöll við sjúkrahúsið þvílíkt kjaftæði. Það er jafn langt frá Gardemoen til Óslóar eins og frá Keflavíkur til Reykjavíkur. Þetta er algjör fjarstæða og það er meira að segja hægt að sýna það með læknisfærðilegum rökum. Það sparast stórfé við brunavarnir og þessi sparnaður bitnar ekkert á þjónustu. Auk þess heldur er ákveðin hætta að vera með flugvöll í borg.

Böli
12.11 2009 kl.22:46

Vatnsgreiddir stuttbuxnadrengir, aldir upp á útrásarheimilum.
Spara 5000 störf með því að segja upp 5000 manns, ég hef vonda tilfinningu fyrir framtíð Íslands.
Því þessir drengir verða við stjórn eftir 2-3 ár.
Og 30% af þjóðinni, miðað við skoðana kannanir, kýs þetta podel lið.
Kanski er íslendingum ekki við bjargandi?

ad nauseum
12.11 2009 kl.22:52

við verðum að styðja norræna menningar samfélagið með skattpeningum
annars leggst öll menning af. ójöfnuður frjálshyggju sjálftökuFLokkurinn

Gunnr
12.11 2009 kl.22:53

Böli það skiptir í raun ekki máli hver stjórnar það þarf að spara að halda einhverju öðru fram er náttúrlega ekki rétt.
Annars er það að þessi skoðanakönnun um 30% fylgi Sjálfstæðisflokksins stenst í raun ekki heldur það voru tæp 60% sem vildu svara og af þeim sem svöruðu voru 25% sem skiluðu auðu eða vildu ekki gefa upp og af þeim 75% sem þá voru eftir voru 30% sem sögðust kjósa Sjálfstæðisflokkinn það eru ekki 30% heldur voru það um 13% af þeim sem voru í úrtakinu og fylgi hinna flokkanna var þeim mun minna þannig að þetta getur aldrei skoðast sem einverjar gríðarlegar vinsældir, eða er það?

GG
12.11 2009 kl.22:57

Vilja þeir ekki líka að við eflum ferðamannaiðnaðinn? Ætla þeir að halda úti dagskrá fyrir ferðamennina þegar það verður búið að loka á alla menningarstarfsemi?

Legg til að þeir byrji strax að æfa leikritið um hrunið. Það eru hæg heimatökin að gera þetta almennilega með alla helstu gúrúa hrunsins innan safnaðarins. Svo gæti Davíð haldið grínræður , Árni Johnsen spilað á gítarinn og Haarde sungið nokkra slagara. Þorgerður gerir svo kúlulaga kandífloss...

Já þeir eru gáfaðir þessir strákar í ungmennafélagi safnaðarins.....við þurfum engu að kvíða á meðan Ísland á slíka syni....

Ríkisbákn
12.11 2009 kl.22:58

Vegakerfið í Reykjavík ræður ekki lengur við svona stóran vinnustað sem Hátæknisjúkrahús á einum stað eins á þeim stað sem ætlað er að byggja það, því verður að flytja það þangað þar sem vegakerfið er betra. Hraðbraut með 3 akgreinum á milli Reykjavíkur og Keflavíkur, það væri lausnin.

Það er líka hægt að sanna með bæði læknisfræðilegum rökum og verkfræðilegum rökum.

Ríkisbákn
12.11 2009 kl.23:02

GG

þá losnum við við ferðamannamengunina, átroðning á landinu okkar og slit á þjóðvegum eftir auka fólk sem kemur hingað til lands.

Við viljum búa í hreinu landi og ferðamennirnir menga mikið og skilja eftir sig rusl sem kostar mikið að brenna eða urða, tala ekki um mengunina af bílum þeirra.

Við eigum ekki losunarheimildir fyrir þennan ferðamannaiðnað ofan á allt annað.

Gunnr
12.11 2009 kl.23:03

Annars hef ég aldrei skilið þennan frjálshyggjustipil sem ríkisstjórn Sjálfstæðis og Framsóknar og senna Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hafa fengið. Já það var einkavæðing en hún var í raun einkavinavæðing og algjört hneyksli þetta kallast í raun crony capitalism http://en.wikipedia.org/wiki/Crony_capitalism þetta er alþekkt í Rússlandi og Kína þar sem ríkisfyrirtæki eru gefin eða látin í hendur vildarvina.
Annars varð 43% aukning á ríkisútgjöldum frá 2002 til 2008 og algjört agaleysi í fjárlögum enda er Ísland tekið fram sem dæmi um hrapalega lélega efnahagssjórn. Þessar stjórnir Sjálfstæðisflokksins voru svo langt frá því að vera frjálshyggjustórnir enda ekki skrítið enda hefur sjálfur Hannes Hólmsteinn alltaf verið á framfæri ríkisins og var að lokum troðið inn í Háskólann.

Ríkisbákn
12.11 2009 kl.23:09

Ásamt mörgum öðrum áskrifendum vildarvina flokkana og örugglega með milljón á mánuði, skrifandi bækur á ríkislaunum.

Svona er þetta enn í dag þegar allt á að vera uppi á borðum en traustið er algjörlega farið. Allir að ráða vini sína og velunnara í stöður, en venjulega Jón og Gunna fá umslag frá Vinnumálastofnun mánaðarlega.

Gunnlaugur
12.11 2009 kl.23:11

Snjallar tillögur. Snjallt ungt fólk.

Stjórnmálamenn framtíðar, gott mál.

Gunnr
12.11 2009 kl.23:13

@Ríkisbákn.
Þú hefur kannski ekkert á móti þessum jarðhitavirkjunum og brennisteinsmengunninni þaðan en þessi mengun er stórhættuleg. http://en.wikipedia.org/wiki/Sulfur-dioxide það voru þessi eiturefni sem drápu bæði menn og skepnur við Lakagíga gosið/móðuharðindin 1783-1784.
Annars er það kaldhæðnislegt að þeir sem áður kynntu sig sem á móti ríkisbákninu voru þeir sem juku þátt hins opinbera mest af öllum í allri vesturevrópu frá stríðslokum var Sjálfstæðisflokkurinn það er í raun og réttu flokkurinn sem getur skreytt sig með að vera ríkisbáknflokkur.
Skítt með VG sem er með ríkisbákninu þeir þurfa að skera niður, þetta er eiginlega svolítið kalhæðnislegt er það ekki?

Gunnr
12.11 2009 kl.23:21

@Ríkisbákn,
Vegakerfið er alveg nógu stórt. Það eru bara allt of margir sem keyra á bílunum sínum. Ef þeir setja á vegatolla þá td. það myndi kosta 600 kall að keyra inn í Reykjavík og vegatolla á hinum og þessum stöðum geta þeir minnkað umferðina gríðarlega. Snarhækkað stöðumælagjöld og fækkað bílastæðum. Notað síðan peningin sem þarna fengist inn til að auka og bæta almenningssamgöngur þannig myndi bæði minnka mengun, spara eldsneytiseyðslu og minnka umferð og væri þá hægt að sleppa því að byggja og bæta umferðarmannvirki og þar sparaðist stórfé.

Ríkisbákn
12.11 2009 kl.23:23

ALLT mengar ef út í það er farið. Öll þessi framleiðsla einnota plastglösum og áhöldum sem við notum, í stað þess að vaska upp. Þá komum við að sápunni sem við skolum niður og fer í sjóinn. Hvernig er rafmagnið búið til sem þessi framleiðslufyrirtæki nota til að geta framleitt þetta einnota dót?

Við erum alltaf að menga, mismikið. Olíumengun er stórhættuleg, Kolabrennsla er stórhættuleg, Gasmengun er stórhættuleg, Kjarnorkuver geta verið stórhættuleg, Rafmagn er yfirhöfuð stórhættulegt. Rétt eins og brennisteinsmengun.

Lýsislamparnir voru fólki líka stórhættulegir og kolaeldavélarnar.

Málið er, að það kemur alltaf ný tækni við hverju vandamáli og fyrirtæki finna nýjar lausnir til að lágmarka skaða eða mengun.

Gunnr
12.11 2009 kl.23:27

Annars er þessi brennisteinsmengun stórhættuleg þetta breytist í brennisteinssýru og það sést best á að það fellur miklu meir á silfur en fyrr. Það er fleirri km radíus í kringum þessar virkjanir sem fólki er ekki ráðlagt að vera á ferli. Þetta er því miður ekkert kjaftæði þetta er hættulegt sérstaklega þegar þetta er allt í kringum fjölmennasta svæðið á Íslandi. Þessi auðlind er ekki einu sinni endurnýjanleg. Merkilegt að fólk fari ekki frekar í fallvatnsvirkjanir þær spúa ekki eitri út í loftið.

Ríkisbákn
12.11 2009 kl.23:31

Er ekki verið að tala um möguleika á að binda brennisteininn í jörðu. Af hverju ertu að velta þessu svona mikið fyrir þér? Vinnurðu við svona rafmagnsframleiðslu?

S.Á.
12.11 2009 kl.23:54

Ég hef ekki séð tillögur þeirra í heild sinni, en velti því fyrir mér, hvort þeir vilji ekki draga eitthvað úr kostnaði við Þjóðminjasafnið. Ég held að endurbætur á því hafi kostað nokkra milljarða. Það er að vísu samflokkskona þeirra, sem þar stjórnar, svo líklega má ekki klípa af henni. Gaman væri ef einhver myndi googla hvað Náttúrufræðistofnun hefur þanist mikið út, síðan eiginmaður Margrétar Frímannsdóttur varð þar forstöðumaður. Hræddur um að raungildi fjárveitinga til þeirrar stofnunar hafi margfaldast á ca. 15 árum. Margrét stóð dyggan vörð um útþenslu þessarar stofnunar, meðan hún var í fjárlaganefnd, og vék ekki af fundi, þegar þar var rætt um málefni hennar.

Sigurrafn
13.11 2009 kl.00:07

Gunnr

Valhallarmenn ættu að fá þig í fjarkennslu um sparnað á háskólastigi. Katrín fyrrum menntamálaráðherra var byrjuð á að sameina skóla en varð að eftirláta nöfnu sinni starfið. Reyndar hafði Björn Bjarnason markað stefnuna um menntun á háskólastigi, sem ekki er lengur þörf fyrir. Kennara á Bifröst lifa í þeirri trú að markaðurinn leysi atvinnumálin. Háskólar skapa engan auð nema vinna sé fyrir þessa gáfumenn.

Menntastigið er hátt en atvinnulífið á brauðfótum enda aldrei kennt að koma fyrirtækjum á legg. Eina sem vinstri mönnum hefur dottið í hug er að endurbyggja gamla spítalann og endurvekja draum Davíðs í flugvallarkrikanum við Öskjuhlíð. Sé reyndar lítinn mun á stefnu VG, Samfylkingar og Sjálfstæðismann í þessum efnum.

Allir sammála að eyða samfélagspeningunum í tóma vitleysu. Bæta við hótelrýmum þegar nýting dregst saman. Væri ekki nær að setja alla borgarstjórnina í netvinnu og leigja ráðhúsið undir stjörnu hótel.

Floki
13.11 2009 kl.00:12

Orð í tíma töluð - ég hef ekki séð niðurskurðinn hjá ríkinu! Það er augljóst og kemur fram hjá SUS að þeir vilja biðjast afsökunar á ríkisbólgunni síðast liðin ár.

Lykilatrið að stinga á þá bólu, velmegun þeirra sem treysta á ríkisjötuna er að koma okkur um koll.

baugi
13.11 2009 kl.00:28

Innköllum leyfi einkaaðila til útvarps-og sjónvarpsrekstrar. Eflum ríkisútvarpið-sjónvarp og eflum menningarstofnanir ríkisins. Einkareknar ljósvakastöðvar hafa ekki skilað neinu fyrir menninguna í landinu. Setjum á laggirnar minningargreinasíðu á vef ríkisútvarpsins þannig að Mogginn verði endanlega óþarfur. Og innköllum líka einkaleyfi til símareksturs, endurvekjum Póst-og síma. Einkareknir ljósvakamiðlar og símafyrirtæki gera lítið annað en að plokka aura af börnum og unglingum eftir að hafa vakið með þeim gerviþarfir.

Ragnar
13.11 2009 kl.00:35

Góð hugmynd hjá þeim. Loka þessum stofnunum í 4 ár. Bara hafa hita á þessum húsum og skella í lás. Senda svo þessa starfsmenn í launalaust leifi, skella þeim á LÍN og senda til frekara náms í útlöndum. Síðan kemur þetta fólk aftur til vinnu eftir 4 ár og þá er af nógu að taka. Gera upp 2010 til 2014 og selja fallega ritröð af menningarþróun íslendinga þessi 4 ár. Sú saga verður eflaust stórskemmtileg lesning.

Ég myndi þó vilja hafa Rkisútvarpið áfram inni eins og staðan á fjölmiðlum er í dag. Annað má vel missa sín í 4 ár á meðan við erum að borga.

Ef það a ekki að setja þennan niðurskurð í gatið þá á að taka þessa vísindadundurs-peninga og setja í eitthvað annað, eins og t.d. niðurgreiðslu á orku til bænda sem eru í raunverulegri vísindabaráttu við að þróa tækni við ræktun og fleira til manneldis og flr. Þar er allavega verið að stunda vísindi og framleiða eitthvað sem gefur íslendingum pening. Ekki eitthvað hobby dundur fyrir vísindamenn sem gera ekkert á þessum vísindastofnunum nema þá að dunda sér eitthvað. Fólk sem getur ekki staðið í örum heimi þróunar hjá einkafyrirtækjum. Höfum ekkert við svona stofnanir að gera núna.

Dísa
13.11 2009 kl.00:38

Unga kynslóðin hvort sem hún heitir SUS eða eitthvað annað erfir landið.
Kannski er kominn tími til að hlusta á unga fólkið sem oft hefur ferska sýn þar sem aðrir hjakka í gömlum hjólförum. Kannski er kominn tími til að kasta út pólitískum flokkum hér á klakanum.

Á “góðæristímanum ” virtist allt fljóta hér í peningum og engin stórmál sem unga fólkið þurfti að berjast fyrir. Nú eru breyttir tímar og kannski ætti unga kynslóðin að hafa málþing og hugmyndasmiðjur um það hvernig hægt væri að stjórna þessu landi á óbrjálaðan hátt.

Unga fólkið er á leið út í lífið og nú er rétti tíminn til að það hefji upp raust sína og fyrst og fremst skeri upp herör gegn spillingaröflunum sem þrífast í öllum stjórnmálaflokkum hér á landi.

HG
13.11 2009 kl.00:40

Hvernig stendur á því að það laðast aldrei neinir gáfumenn í FLokkinn.

Þetta fólk í HRunFLokknum talar alltaf bara í einhverjum Morfis frösum,
þeir þarna í HRunFLokknum hafa ráðið og drottnað sl. 18 ár og enda erum við í djúpum skít.

þessi nýjasti ungforingi hjá þeim þarna ætti frekar að hafa vit á því að þegja heldur enn að vera með svona blaður og kjaftæði !

Engin menning - engin þjóð !

svo er alltaf hægt að hafa vit fyrir öðrum er það ekki enn OK. þá þarf maður að byrja á sjálfum sér.

http://www.visir.is/article/20090928/FRETTIR01/432434795

snúðu þér að einhverju öðru drengur !!!

Dísa
13.11 2009 kl.00:41

Mér finnst líka að þrátt fyrir að ráðamenn lyfti svipunni núna í skattahækkunum og niðurskurði þá sé holur hljómur í rödd þeirra.

Nú á að eyða milljörðum í mannfreka og dýra ESB nefnd ...........eins og það sé brýnasta málið hér í dag. Yfirbyggingin á ríkisbákninu er líka alltof mikið.

Lausn ráðamann eru að litla Gunna og litli Jón með breiðu bökin borgi gillið fyrir útrásarvíkingana.

Floki
13.11 2009 kl.00:59

Ég veit ekki með þig lesandi góður en þessar skattahækkanir munu hafa svakaleg áhrif á mig og mína afkomu, ég er viss um að ég myndi búa hér áfram sem ánægður íslendingur og takast á við niðursveifluna með glöðu geði ef ég gæti treyst stjórnvöldum. Ef ég hefði viljað þá hefði ég getað valið fyrir þrem árum að verða njótandi í samfélagi íslendinga en ég valdi að leggja meira á mig og mína. Nú á að skattleggja mig og mína sem byggist á þátttöku í uppkeyrslu sem ég hafði enga stjórn á.

Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að fá hér aftur “hægri stjórn” sem við getum treyst - ég er ekki með lausnina en ég sé vandamálið.

Einar H.
13.11 2009 kl.01:10

“Hægri stjórn”: fínt, ef hún heldur áfram með ESB umsóknina.

L
13.11 2009 kl.01:18

Hægri flokkar, vinstri flokkar ... skiptir engu máli, almenningur verður alltaf látin blæða ... hvenær ætlar fólk að læra að skilja ?

Hreggviður
13.11 2009 kl.01:18

@Floki
Ertu ekki að lifa í vellystingum “hægri stjórnar” núna?
Þetta er arfegðin, njóttu nú vel vitleysingur.
Þú kanske villt leggja afkomendum þínum lið og reyna krafsa til baka stolna peninga, sem “hægra” súperliðið stal af þeim?
Segðu þá Evu Joly frá öllu sem þú veist.
Þú et aumur og ekki líklegur til að verða nokkrum manni til bjargar.

Vilhjálmur Árnason
13.11 2009 kl.01:34

Það kemur bara eitt upp í huga mér.

Guð blessi Ísland.

Einar H.
13.11 2009 kl.01:42

Það er eins og að á Íslandi þýði:
hægri: hagsmunir fárra hafðir að leiðarljósi
vinstri: hagsmunir sem flestra hafðir að leiðarljósi

Þetta er ekki svona alls staðar annars staðar.
Mér sýnist að íslenskir hægriflokkar þurfi að læra af flokksbræðrum sínum á meginlandinu og á Norðurlöndum.

Magga maur
13.11 2009 kl.02:28

Er ekki Óli fokker mættur með ráð og tillögur fyrir þjóðina til betra og bættara lífs. Leggja allt niður sem tilheyrir samfélagi. Þjóðin á ekki að hlusta á útvarp, miklu skynsamlegra að góna á norðurljósin. Fólk á ekki að fara í leikhús, ódýrara að leggja leið sína á palla Alþingis þar sem leikhús þjóðarinnar fer fram. Kvikmyndahús eru trúlega frá Lúsifer, fólk á frekar að rýna í stjörnurnar og spá í veðrið. Dans er af sama sauðahúsi, gerir engum gott. Betra að rjátlast um götur og stræti og telja ljósastaura. Þessi ungi maður er svo víðsýnn og frjálslegur að leitun er að öðru eins. Datt strax í hug Gísli á Uppsölum. Væri ég formaður Flokksins þá bæði ég þennan postula að fara aftur með fokkernum til Ísafjarðar, en bara aðra leiðina.

Stefán Þór
13.11 2009 kl.03:28

Halló þessar tillögur þýða bara að fleira fólk verður atvinnulaust og það kostar pening. Getur þetta stuttbuxnalið reiknað það út á móti sparnaðinum og komið með þær tölur takk fyrir. Vá ég hélt að eitthvað myndi breytast við það að Sigurður Kári datt út af þingi en nei þá kemur bara nýr trúður í formann SUS.

Blessuð sé minning Sjálfstæðisflokksins.

veffari
13.11 2009 kl.03:39

Já, sumir eru svo vitlausir að halda að lífið sé eintómur bisniss.

Ég legg til að SUSSararnir í borðtenniskjallaranum á Háaleitisbraut 1 smelli boltanum fastar á spaðann; bæti við listann; sem er, að ókeypis eintak af biblíu þeirra “Capitalism and Freedom” verði dreift í hvert hús til að uppfræða skrílinn um ágæti einkavæðingar og þess að fela bröskurum úti í bæ það hlutverk að halda um brothættari innviði samfélagsins. Með peningagróða að leiðarljósi. Milton Friedmann er jú heilagt skurðgoð og hann ber að tilbiðja eins og kaþólikkar tilbiðja Maríu sem ól barn en var samt hrein mey. Best væri ef Saddam líkneski væri reist af Milton á Austurvelli við hliðina á Jóni Sig. Hannes Hólmstein getur svo fengið sína styttu hinum megin við hann. Þetta er auðvitað peningabruðl, en hvað gerir maður ekki fyrir málsstaðinn?

Að selja RÚV er einhver arfavitlausasta hugmynd sem óheflaðir einstaklingar geta stungið upp á.

Af hverju ekki bara saga hausinn af öllum styttum bæjarins og selja í brotajárn?

Eða setja bókasöfn á áramótabrennur?

Gunnr
13.11 2009 kl.06:23

Í raun eru þessir frasar vinstri og hægri orðnir ansi teygðir á Íslandi. Það að segja að enginn flokkur veit betur hvernig atvinnulífið á að vera rekið annar en Sjálfstæðisflokkurinn og hvernig er að reka fyrirtæki hefur orðið ansi holan hljóm eftir það sem undan er gengið nánast ironiskan. Annars er það gott að SUS menn sjá að það þarf að biðja þjóðina afsökunar og þessar tillögur þeirra sem mér finnst allt of einhliða skapa nauðsynlega umræðu. Þegar ríkið þarf að skera niður 1/3 af ríkisútgjöldunum á skömmum tíma hverju á að sleppa og hverju má sleppa og hvað á að halda í. Best er að byrja á því sem við viljum vernda en umræðan hefur sáralítið snúist um þetta, þetta er stóra málið.
Annars er það miskilningur að Íslendingar eru svo mikið meira menntaðri en aðrar þjóðir það er raunar ekki rétt við erum væntanlega með heimsmet sem vonandi aldrei verður slegið í viðskipta og hagfræði menntuðu fólki og liggjum hátt í lögfræðimenntuðu fólki væntanlega hæst myndi ég halda.
Annars höfum við lítið og ákaflega lítið af raungreinamenntuðu fólki sem hefur nýsköpun sem sitt sérsvið og raunar hafa þessir brandarabankar tekið það fólk yfir til sín.
Finnar sáu tækifærin í kreppunni stórjuku fé til rannsókna og mennta þá til stærðfræði, raungreinar og nýsköpun. Þetta skilaði seinna miklum hagnaði og velsæld, minni á Nokía veldið og fleirri hluti.
Mér finnst það leitt að sjá að SUS fólk vill nánast grafa allar rannsóknir niður í jörðina og þetta fólk fer þá til nágrannalandanna og hvað sitjum við þá eftir með?
Menning og listir er ekki bara útgjaldaliður, kvikmyndabransinn mun skila miklu í þjóðarbúið það er farið að taka erlendar auglýsingamyndir og hluta af kvikmyndum. Sorglegt að ungt fólk skuli líta svona á málið. Réttast væri að líta á niðurgreiðslur og yfirfærslur á fjármunum úr ríkissjóði og fáránlegt að gefa kvóta jafnvel í 2. sinn til útgjerðaraðalsins sem síðan selur þetta aftur. Sumir hafa veðsett sinn kvóta. Stiglitz sem margir vitna til sagði um íslenska kvótakerfið “you blew it” og það er í raun augljóst. Nú er tækifærið til að fá kvótan yfir á ríkið og síðan getur ríkið haft tekjur af að selja út kvóta og banna framsal kvóta. Þetta mun án efa mæta mótstöðu þeirra sem fyrir eru.

Aðalbjörg
13.11 2009 kl.08:53

Endilega skoðið facebook síðuna ” skerum niður hjá rúv áður en við skerum niður hjá Landsspítalannum”

Þar koma margar tölur inn úr fjárlögum næsta árs sem að við höfum ekkert að gera með, ég held að landspítalinn sé mikilvægari en þjóðleikhusið og sinfó.......hver getur ekki lifað án þeirra í kreppu, en færri lifa án spítala.

i
13.11 2009 kl.09:36

Það er skrýtið með þessa gaura að aldrei leggja þeir til að hróflað verði við neinu hjá íþróttahreyfingunni eða kirkjunni svo að dæmi séu tekin. Þeir hafa bara horn í síðu menningar og lista.

Elmar Már Oddfúsarson
13.11 2009 kl.09:47

SUS eru fífl sem hafa aldrei vitað hvað það er að vinna alvöru vinnu. Afsprengi góðærisins.

Vonandi er þetta vond mynd af drengnum. Því mér líst ekki á augnsvipinn

Burt með þetta SUS hyski og maður þarf ekki að vera afturhaldskommatittur til að sjá heimsku SUS stuttbuxnastúlkna/drengja .

En valið er í höndum kjósenda .

aaa
13.11 2009 kl.11:17

bíddu þeim er ekki allvara, ef það á að skera eitthvað niður þá er það þjóðkirkjan og RÚV, þetta er mesta peningareyðsla sem sögur fara af!

Bjarki Guðlaugsson
13.11 2009 kl.11:37

Ég ætla að vona það þessum mönnum sé ekki alvara með þessum tillögum. Ég legg frekar á mig aðeins meiri skatt en að sjá RÚV selt til einkaaðila og breytt í Stöð 2 eftirhermu.

Hvernig á svo að vera hægt að fjármagna rannsóknir sem ekki gefa beinan fjárhagslegan ágóða án þess að ríkið styrki þær? Það skal tekið fram að manneldis-, læknisfræði-, og sálfræðirannsóknir og fleira í þeim dúr myndu þá heyra sögunni til.

Ég er allur gefinn fyrir málfrelsi en þessir menn ættu að læra að halda kjafti og skammast sín en ekki vera að gjamma um það sem þeir augljóslega hafa ekkert vit á.

JD
13.11 2009 kl.11:39

Ég ákvað að lesa alla þessa skýrslu áður en ég segði orð og mæli með því að aðrir geri það saman, því þetta er einhver sú rosalegasta lesning sem ég hef séð. Mér er óglatt eftir lesturinn og finnst sorglegt að þetta sé viðhorf ungs fólks.

Bjarki Guðlaugsson
13.11 2009 kl.11:48

Capitalism Hits the Fan

Ég legg til að fólk skoði þetta vídeó og segi svo að frjálshyggja sé frábær. Ég lagði til við Egil Helgason að fá þennan mann í Silfrið. Megið endilega send honum póst og kvetja hann til að láta það verða að veruleika.

Ég hef alltaf verið frjálshyggjumaður en ég er að sjá það núna að öfgar í hvoruga áttina eru af hinu góða og núna er ég kominn eiginlega alveg inn á miðju sem ég lít á sem “skynsemi ofar öllu” stefnu. Valdið á að vera hjá fólkinu en ekki til hægri (frjálshyggja og einkavæðing) eða vinstri (skammtanir og ríkisvæðing). Ég styð ekki Framsókn því þó þeir kalli sig miðjuflokk þá ríkir þar engin skynsemi innandyra.

Hlodver Ingi
13.11 2009 kl.12:33

Hvad sparast mikid a tvi ad leggja nidur sus?

PeturEir
13.11 2009 kl.12:57

Þeir sem fylgjandi eru velferðarþjóðfélaginu: það er aldrei neinn sigur fullunninn. Í yfir 100 ár hefur framfarasinnað fólk verið að byggja upp þetta þjóðfélag, þrátt fyrir stanslausa mótspyrnu niðurrifsaflanna.

Og hér má sjá að þessi sömu niðurrifsöfl eru enn á sínum stað.

Það má aldrei sofa á verðinum.

Guðjón23
13.11 2009 kl.13:03

Þetta eru frábærar hugmyndir, enda er ríkisstjórnin ekki að skera neitt niður.

Gunnlaugur
13.11 2009 kl.13:14

Að horfa á listann yfir óþarfa ríkisstofnanir er skelfilegt.

Það er NÆG FITA að skera. Það þarf EKKI að hækka SKATTA!!!!

Arnþór Sigurðsson
13.11 2009 kl.13:29

Hvar er skuldaklukkan sem þeir settu á lækjatorg hér um árið. Væri nú ekki skynsamlegt hjá þeim að hætta að hugsa um pólitík og dusta rykið af klukkunni góðu. Það væri nú gaman að sjá hana tifa á lækjargötu á ný til heiðurs frjálshyggjunni.

Wiggum
13.11 2009 kl.13:48

Væri til í að sjá þennan geur sem fjármálaráðherra, hvað þarf maður annars að vera gamall til að geta orðið ráðherra?

Guðjón
13.11 2009 kl.14:30

Það á að líta á þetta kalt út frá hreynum fjárhagslegum viðmiðum.

Hvað hefur kostað Íslensku þjóðina mest í gegnum sögu hennar.

Svar: Sjálfsstæðisflokkurinn og stefna hans sem olli gjaldþroti Íslensku þjóðarinnar.

Ég legg því til og mun styðja að heilum hug að Sjálfsstæðisflokkurinn verði lagður niður.

Einhver ætti kannski að gera restina af listanum yfir mestu kostnaðarliði Íslendinga í sögunni. Ég efast um að litlar menningar og rannsóknarstofnanir séu á þeim lista.

Gunnr
13.11 2009 kl.14:51

Wiggum það geta allir orðið fjármálaráðherrar á Íslandi og geta væntanlega allir gert það betur en fyrverandi fjármálaráðherra og dýralæknir Árni Mathiesen. Þú þarft hvorki að kunna prósentureikning, kunna á tölvu eða standast greindarpróf. Það eina sem þú þurftir að geta sagt var já Davíð. Til þess að verða forsætisráðherra þarft þú ekki einu sinni að kunna nein erlend tungumál eða hafa samband við neina þjóðarleiðtoga. Við getum bara gert eins og í Norður Kóreu þurfum ekkart að hafa samband við neina. Enda vitum við allt best sjálf, viðurkennum aldrei neitt ekki einu sinni að hér hafi orðið hrun og verstu hagsjórnarmistök í nokkru vestrænu landi. Alla vega gott að SUS var búið að fatta það.

veffari
13.11 2009 kl.14:55

Heimska mannsins á sér engin takmörk.

Þrálátur Orðrómur
13.11 2009 kl.15:32

Skiljanlega þurfa susarar ekki rúv...

http://www.facebook.com/photo.php?pid=507270&id=1586979597

Hermann
13.11 2009 kl.15:37

Þetta er bara flott. Ungt fólk á að vera róttækt; ungir vinstrimenn vilja láta skjóta kapítalista á meðan ungir hægrimenn vilja leggja niður ríkisstofnanir. Þetta er ósköp eðlilegt allt saman.

Sveinbjörn Halldórsson
13.11 2009 kl.16:50

@ Hermann
Brennheit kúlan með fölum stimpli ferðast gegnum fyrstu vígin, önnur vígin, þau þriðju Samferða nóttinni úr rúnuðu, olíubornu skefti og reykfylltu byssuhlaupi. Skjóta kapítalista, kommúnista, munda byssuna vandlega, halda henni fastri viö öxlina og skjóta hreinu skoti á þessa bjöguðu spegilmynd okkar sjálfra.

GBen
13.11 2009 kl.16:53

Furðuleg og fáránleg þessi gosögn SUS-ara og þeirra líka um að norrænt samstarf hafi engu skilað. Sýnir bara raunsæið hjá þeim.

Svo vilja þeir líklega borga 10-15 þúsund kall fyrir leikhúsmiðann. Þeir ættu að hafa efni á því pabbadrengirnir.

GBen
13.11 2009 kl.16:54

Á að sjálfsögðu að vera “goðsögn SUS-ara”

Doddi
13.11 2009 kl.18:16

BeGuud sagði:
“Sammála þessum tillögum sem skattborgari. Ömurlegt að vera að greiða niður afþreyingu annarra.”

Það er nú þegar búið að ganga frá því með því að skella þjóðinni í skuldir með afþreyingu sem ber einu sinni ekki menningarlega afburði með sér.

ónefndur
13.11 2009 kl.18:18

Vá hvað mér finnst að margir hérna ættu að skammast sín, hvort sem það eru vinstri eða hægri menn.

SUSarar eru að reyna, þeir eru að koma fram með tillögu, ég get ekki séð að aðrar ungliðahreyfingar séu jafn aktífar, nema VG jú um daginn þegar þau töluðu um að leyfa hústökur

Ég er ekki sjálfstæðismanneskja og finnst margt hálfgalið í þessu hjá þeim, en þau eru þó að reyna, þau sitja ekki bara heima og tala illa um aðra á internetinu.

núman
13.11 2009 kl.18:28

Einhver spurði hvort að það væru kókaínveitingar á fundum SUS.

Eftir þessum tillögum að dæma er svo alls ekki.

Miklu frekar kveikjaragas og N1 bensín.

Eiki S.
13.11 2009 kl.18:53

Þetta þarf ekkert að ræða. Þetta er afleit hugmynd óharðnaðra unglinga. Og þar með er það útrætt. Er Ísland ekki eina landið sem birtir skoðanir barna í fjölmiðlum?

Landa
14.11 2009 kl.00:50

Og þetta eru vonarstjörnurnar í Sjálfstæðisflokknum! Glæsileg framtíðarsýn. Hvaða kafla vantar í kollinn á þessu fólki? Er þetta ekki brandari?

Hættulegt fólk með mannfjandsamlega sýn á samfélagið!
Eiginlega meira hrollvekjandi en fyndið.

Bælir
19.11 2009 kl.15:03

Hversu margir yrðu eiginlega atvinnulausir ef þessar “hugmyndir” myndu verða að veruleika ?

Solla
26.11 2009 kl.01:57

Það þarf að lækka laun þeirra sem fá óþarflega mikið borgað og fækka yfirmönnum, t.d. lækka laun presta, sem fá mun hærri byrjunarlaun en nýútskrifaðir læknar og fækka yfirlögregluþjónum svo ráða megi fleiri almenna lögregluþjóna til að gæta okkar. Eflaust mætti spara nokkra milljarða með aðskilnaði ríkis og kirkju.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar