Þjóðfundur um íslenskt þjóðfélag, endurmat þeirra grundvallargilda sem samfélagið er reist á og skýrari framtíðarsýn, er haldinn í Laugardalshöll í dag. Til fundarins er stefnt marktæku úrtaki íslensku þjóðarinnar, allt að 1500 manns, en fundurinn stendur frá klukkan 9 til 17 í dag. Helstu niðurstöður þjóðfundar, um gildi og framtíðarsýn Íslendinga, er að vænta strax í kvöld eða á morgun.
Að sögn aðstandenda er fundurinn ekki hefðbundinn framsögu- eða umræðufundur í ætt við pólitíska fundi eða þá borgarafundi sem haldnir hafa verið á undanförnum mánuðum. Þess í stað verður þátttakendum skipt niður í hópa sem starfa saman allan fundartímann. Umræðustjórar tryggja samræmi í aðferðafræði og árangursríkar umræður.
Helstu viðfangsefni á Þjóðfundi eru ”Hvaða lífsgildi eiga að vera okkur leiðarljós í þróun samfélagsins?” og umræða um meginstoðir samfélagsins, eins og velferðar- og menntakerfi, atvinnuskapandi umhverfi, regluverk o.fl. og með hvaða hætti hægt er að endurmóta þær í samræmi við þau lífsgildi lögð hafa verið til grundvallar.
Vonast er til að afurð fundarins verði framtíðarsýn byggð á skýrum sameiginlegum grunngildum. Að auki eru skilgreindar áherslur, markmið og verkefni sem nauðsynleg eru til þess að tryggja skilvirkan farveg fyrir þær breytingar og aðgerðir sem ráðast þarf í. Fundurinn markar upphaf þess að móta nýtt líkan sem bregst við áðurnefndum kaflaskilum í þróun samfélagsins. Í kjölfar hans verður ráðist í markvissar aðgerðir sem byggjast á niðurstöðum hans. Fundurinn mun einnig kalla fram áframhaldandi umræðu sem miðar að því að þróa niðurstöðurnar áfram til heilla fyrir land og þjóð.
Vonast er til að í kjölfar Þjóðfundar verði honum fylgt eftir með því að virkja gerjunina og kraftinn sem er að finna um allt samfélagið nú þegar, að tryggja flæði milli fortíðar, nútíðar og framtíðar þannig að eðlilegt tenging sé milli þess sem var með uppgjöri við fortíðina og þess sem verður út frá nýju upphafi. Horft verði til lengri tíma án þess að gleyma því að skammtímasjónarmið eru mikilvæg til þess að fást við yfirstandandi erfiðleika. Að skapa öflugar tengingar milli meginstoða samfélagsins svo sem stofnana, fyrirtækja, hagsmunahópa, stjórnmálaafla og fagaðila, og sameina þannig krafta ólíkra aðila. Síðast en ekki síst er mikilvægt að tryggja eftirfylgni og framkvæmd ákvarðana, en þetta næst fram með því að þeir sem bera formlega ábyrgð á einstökum sviðum samfélagsins sameinist um að styðja verkefnið og tryggja nauðsynlegum aðgerðum brautargengi. Þarna er átt við aðila einsog alþingi, ríkisstjórn, hagsmunasamtök og fleiri, segir frá aðstandendum Þjóðfundar.







Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
114 ummæli
Rita ummæli14.11 2009 kl.05:03
Slóð
Það er nú dálítið hlægilegt að Guðjón Már wannabe útrásarvíkingur skuli leggja á ráðin um framtíð Íslands. Maður sem hefur rekið allt sem hann hefur komið nálægt í þrot.
Djöfull er það pirrandi hvað biðin eftir nýja Íslandi lengist, sömu skúrkarnir koma skjóta upp kollinum trekk í trekk. Annar útrásarvíkingur, samstarfsaðili Guðjóns, Björgúlfur Thor fátæklingur er að byggja gagnaver í Keflavík í samstarfi við Vilhjálm Þorsteinsson sem er að kaupa hlut í í kúlulánagróðafélaginu Auður kapital.
Er ekki hægt að halda fund sem er algerlega laus við hrappa?
14.11 2009 kl.06:22
Slóð
Vonandi kemur eitthvað gott út úr þessu sem við getum byggt á til framtíðar. Helsta hættan á fundinum er það fyrirkomulag að á fundinn voru handvaldir 300 aðilar frá sérhagsmunasamtökum, þrýstihópum í samfélaginu. Talsverð hætta er á að þessum aðilum takist að stjórna umræðunni og fá þær niðurstöður sem þessum hópum hentar og þjóðarhagur verði látin sitja á hakanum.
14.11 2009 kl.07:34
Slóð
Ég hlustaði á útvarpsviðtal sem fjallaði um hugmyndafræðina um valið á fundinum og skildi vel með þessa 300 aðila. Að vera með valda aðila sem teljast vera hluti af þeim hópi sem geta framkvæmt hugmyndir sem 1200 manna hlutinn er með. Flott samsetning verð ég að segja.
Ég hef trú á Þjóðfundi. Mun fylgjast með í dag!
Er ósammála þessari athugasemd frá kl. 05. Áhugavert hvað allir þurfa að vera einhvernmegin tengdir ljótu mönnunum eins og Bjögga Thor. :)
14.11 2009 kl.07:56
Slóð
Þú þarna sem kallar þig óspillta ísland - hvað ætlar þú að gera til að fá nýtt Ísland? Ætlarðu að sitja heima og tuða? Þú ert alveg eins og liðið í spaugstofunni sem hangir heima tuðandi og kvartandi yfir allt og öllu og vælir svo allra mest yfir því að Macdonalds sé farið.
14.11 2009 kl.08:19
Slóð
@ Hrafnhildur
Ég hóa í þig þegar allt fer til andskotans aftur, fólk á borð við þig einfaldlega skilur ekki hvað er í gangi þarna heima, eða hefur kanski einhvern dulin ávinning af því að allt komist í hendur sömu manna og áður,kanski fjárhagslegan ?
Með þessu áframhaldi mun Ísland verða að þrælakistu auðvaldsinna og ræningja sem aldrey fyrr blóðskömmini skal haldið svo ekki verði ljóst að fullu um inræktunina sem hefur átt sért stað.
Bjakk Bjakk
14.11 2009 kl.08:48
Slóð
Hvernig er hægt að vera neikvæður yfir svona frábæru framtaki?
14.11 2009 kl.09:00
Slóð
Vona að niðurstaðan verði almennilegt stefnukort íslenska lýðveldisins, þar sem grunnstoðir eru vel afmarkaðar, framtíðarsýn skýr og leiðir að markmiðum ljósar. Áhersla á skilvirkan farveg fyrir þróun er nauðsynleg og mikilvægt að leiðarljósi sé hafður sá kraftur sem býr í einstaklingnum sjálfum. Þjóð er mengi einstaklinga og einstaklingar eru uppspretta hugmynda og sköpunar. Framtíðarsýn fæst ekki nema horft sé frá skurðpunkti hins liðna og núsins, því gerjunin er í núinu og reynslan í því liðna.
14.11 2009 kl.09:31
Slóð
Af hverju eru alltaf sömu gerendurnir handvaldir sem einhverjir sérstakir fulltrúar þjóðarinnar? Þessir ca. 300, en nokkrir þeirra voru á fullu í útrásinni. Svona hægri-græn. Þá var það fjármálastarfsemi sem var málið. Nú eru það tölvuleikir. Þetta fólk eru eins og margir aðrir pólitíkusar, þau trúa á einfaldar lausnir, með einhæfu atvinnulífi. Áður fjármálastarfsemi, nú tölvubrall.
14.11 2009 kl.09:54
Slóð
já amála því a’: Það er nú dálítið hlægilegt að Guðjón Már wannabe útrásarvíkingur skuli leggja á ráðin um framtíð Íslands. Maður sem hefur rekið allt sem hann hefur komið nálægt í þrot.
14.11 2009 kl.09:54
Slóð
Nú á leika þann leik að stela fjöðrum af öðrum til að skreyta sig með. Þetta hefur verið reynt áður. Íslendingar hafa verið eins og maurar eða hamstrar að vinna og vinna til að skapa sér og sínum góð lífsskilyrði. Þeir unnu svo mikið að þeir sáu ekki hvað var að gerast. Nú er komið nóg af þessu. Við þurfum ekki miðstýrðan fund til að mata okkur hvernig við hugsum framar.
14.11 2009 kl.10:03
Slóð
Segi það nú, það er ekki hægt að vera neikvæður yfir svona framtaki.
Það er þó verið að reyna að gera eitthvað, bíðum aðeins með tuð- og tortryggnisönginn.
14.11 2009 kl.10:06
Slóð
Það er nú bara þannig að 200 manns er boðið þannig að strax þá er farið að hafa áhrif á niðurstöðuna, mikið af miðaldra konum eru fara á fundinn.
Að ríkið styrki svona fundi um 8 milljónir til að fá einhverja niðurstöðu sem hentar þessum hópi, finnst mér undarlegt. Það eru allir stjórnmálaflokkar með svona fundi t.d. landsfundur Sjálfstæðisflokksins, þar er þverskurður af landsmönnum. Þannig að þetta er ekkert nýtt heldur er einn hópur með athyglisýki.
14.11 2009 kl.10:17
Slóð
Þetta hefði getað orðið góð tilraun.
En það er almælt að Samfylkingin hafi smalað á fundinn, og því verður niðurstaðan ef til vill ekki marktæk.
14.11 2009 kl.10:22
Slóð
Verður niðurstaðan ekki í samræmi við fræg markmið Höllu Tómasdóttur frá tíma hennar í Viðskiptaráði? - hún er ein af forsvarsmönnum þessa bjánalega framtaks.
14.11 2009 kl.10:29
Slóð
Hálfvitaskapur er þetta í sumum bloggaranna.
Þessi Guðjón (sem ég veit ekkert um og þekki ekkert) er ekkert að blanda sé í niðurstöður þessa fundar. Hann er og hefur verið mikilvægur í að koma þessu þingi í framkvæmd. Lesið líka hvað Hrafnhildur segir - það er rétt.
14.11 2009 kl.10:30
Slóð
ef niðurstöður endurspegla vlija jóns og gunnu af götunni (sem er jú meiningin) þá má reikna með að þær verði ansi mótsagnakenndar. annars vegar vill fólk öfluga samfélagsþjónustu (menntun, heilbrigðisþjónustu o.s.frv.), en hins vegar vill enginn borga fyrir það og mun verða gerð krafa um tekjuskattalækkanir. sem sagt að borða köku en ekki kaupa hana.
14.11 2009 kl.10:34
Slóð
Þjóðfundurinn er vel meintur og þess er svo sannarlega óskandi að gott hljótist af honum.
Prófessorinn tekur samt undir að betra hefði verið ef aðrir en Guðjón Már og Halla Tómasdóttir hefðu valist til að vera í forsvari fyrir fundinn.
Bæði eru umdeild og óneitanlega fremur birtingarmyndir útrásarinnar en endurreisnarinnar.
14.11 2009 kl.10:35
Slóð
NB! www.thjodthing.is
Þar er hægt að finna svar flestu varðandi Þjóðþingið.
14.11 2009 kl.10:37
Slóð
Hver borgar fyrir alla þessa framkvæmd? Eitthvað kostar þetta og efast ég um að forsprakkarnir sæki þetta í eigin vasa.
14.11 2009 kl.10:39
Slóð
Ágætt framtak, en þetta er EKKI í nafni þjóðarinnar. Ég þekki engan sem hefur veitt neitt umboð þarna.
14.11 2009 kl.10:39
Slóð
Hættið að röfla þetta og kynnið ykkur málið.
Halla er ágæt, in hún kemur ekki nálægt niðurstöðunni.
14.11 2009 kl.10:41
Slóð
Þetta verður gott partý og fullt af góðum og slæmum hugmyndum dúkka upp.
Svo verður farið að vinna úr þessu þangað til engin man eftir hvað verið var að fjalla um og enginn tekur mark á þessu. Það er reynslan úr svona gjörning hjá stórum fyrirtækjum.
Enn ég vona svo sannarlega að það endi ekki svoleiðis og út úr þessu kemur eitthvað gott sem verður stuðst við í framtíðinni.
14.11 2009 kl.11:02
Slóð
Þvílík sýndarmennska !!
Er ekki hægt að gera eitthvað annað fyrir peninganna en að greiða handvöldu liði Samfylkingarinnar laun til þess að leika sér.
Þessi tíkisstjórn gerir allt annað er að hjálpa heimilum í landinu !!
Hafið skömm fyrir !
14.11 2009 kl.11:02
Slóð
Það hefði átt að taka svona hugmynd alla leið fyrir rúmu ári síðan og stofna utanþingsstjórn. Þetta námsskeið hefur ekkert vægi. Það verður ekkert hlustað á þetta. Ríkisstjórnin hlustar ekki á neitt eða neinn nema fólk á borð við Indriða Þorláks og viðlíka “snillinga”.
14.11 2009 kl.11:27
Slóð
Mér finnst þetta framtak mjög áhugavert og verður gaman að fylgjast með hvað kemur út úr þessu því niðurstaðan er aðal atriðið. Mér heyrist á fólki að það sé krafa um réttlátara samfélag, meira gegnsæi og meira lýðræði og verður fróðlegt að sjá hvort það sé niðurstaða þjóðfundarins. Svo auðvitað verður að halda þessu starfi áfram eftir þennan merkilega dag og vinna úr þessum hugmyndum þannig að hægt verði að vinna stefnuáætlun út úr þessum vonandi frábæru hugmyndum sem þessi dagur mun gefa af sér.
14.11 2009 kl.11:33
Slóð
Frábært framtak, einstakt og sýnir það KRAFT & ORKU sem býr í þessari ungu þjóð. Framtíðin er björt, svo framarlega sem við VIRKJUM “Heilbrigða skynsemi...!” Ég er þeirrar skoðunar að 14. nóvember sé BESTI dagur ársins, það var ástæðan fyrir því að ég valdi að fæðast þann dag...lol...! Forza 14. nóv - áfram Ísland...!
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
14.11 2009 kl.11:43
Slóð
Vá hvað hlytur að vera ömurlegt að vera svona neikvæður eins og sumir hérna og sjá aldrei ljósið.
Það að menn hafi verið í útrás varðar ekki brot á lögum. Vil bara minna á að það eru til félög og einstaklingar sem gerðu fína hluti í útrásinn og eru jafnvel enn í útrás sbr, CCP, Marel og Össur.
Ef að Ísland á einhverntímann að geta byggt sig upp að þá verður fólk að sættast við fortíðina og horfa fram á veginn. Því miður eru sumir hérna að skrifa sömu athugasemdirnar og fyrir ári síðan....helvítis útrásavíkingar, helvítis stjórnmálamennirnir o.s.frv. Því miður eru fjölmiðlar landsins enn í sömu hjólförunum. Það eru ekki margir sem eru að horfa fram á við.
Dómstólar og saksóknarar munu sjá um að gera upp við þá sem hafa brotið af sér. Almenningur ætti hins vegar að beina kröftum sínum í jákvæðan farveg og fara byggja upp en ekki alltaf að brjóta niður það sem aðrir eru að reyna byggja upp.
Slíkir einstaklingar eru ekki síður mein á þjóðfélaginu eins og sekir útrásarvíkingar.
14.11 2009 kl.11:44
Slóð
Gott að sjá að Pollýanna finnst hér enn.
14.11 2009 kl.11:47
Slóð
Er þetta ekki bara einhvert gæluverkefni elítunnar/ maður bara spyr sig/ manni skilst að það eigi ekkert sérstakt að koma út úr þessu /er það það sem við þurfum ?
14.11 2009 kl.12:05
Slóð
Þetta er vel meint framtak, og gæti heppnast,
en Fjármálaráðherra, Steingrímur Joð, er þarna, og svo þessi smölun Samfylkingarinnar sem sagt er að hafi verið í gangi.
Hvernig er hægt að líta á þetta sem hlutlausan þjóðfund?
14.11 2009 kl.12:17
Slóð
Ekki vil ég vera neikvæður, og er það ekki. En svona fundur, eins ágætt framtak og þetta er, er eins og hver annar. Fólk talar um meira gagnsæi og meira lýðræði. Af hverju gengur það bara ekki í þá stjórnmálaflokka sem eru fyrir? Því það er þannig, vilji maður réttar uppl. þarf maður stundum að vinna í því að afla þeirra.
Svona fundur kemur okkur ekki úr kreppunni. Og það er mjög óraunhæft að svona fundur tali sama máli og komi með sameiginlega niðurstöðu. Því þá er þetta ekki þverskurður af þjóðinni.
Til að koma okkur úr kreppunni, þarf hver og einn að hugsa hvað hann/hún getur gert til að koma sjálfum/sjálfri sér kreppunni. Ekkert flóknara.
Spara, halda atvinnu eða finna aðra missi maður atvinnuna. Borga upp skuldir og losa sig við skuldir með t.d. sölu.
Nákvæmlega sama þarf þjóðfélagið að gera. Það fólk sem situr svona þjóðfund sem fór á undan með miklu bruðli og ofurlaunum er ekki rétta fólkið til að segja okkur til. Ég nefni engin nöfn.
14.11 2009 kl.12:20
Slóð
þetta framtak er gott svo langt sem það nær, enn þennan “þátt” get ég bara ekki gúdderað svo auðveldlega ég vil að speki 2007 hverfi fyrir fullt og allt.
Halla Tómasdóttir hefur ekkert þarna að gera ( sjá glærur Höllu hér )
http://www.vi.is/news.asp?ID=526&type=one&news_id=536
Sorrý !
14.11 2009 kl.12:23
Slóð
Aldurssamsetningin á þessum fundi er alveg fáránleg. 45-65 ára eru algjörlega ríkjandi. Það vantar alveg unga fólkið. Hvernig stendur á þessu?
14.11 2009 kl.12:30
Slóð
HG, eftir að hafa skoðað þessa glærur frá Höllu get ég ekki orða bundist.
Datt helst í hug að þetta væri grín. “Ísland best í heimi” hvað ? Nákvæmlega þessi gorgeir kom okkur í þá stöðu sem við erum í. Þetta hugarfar minnimáttarkenndarinnar sem sumir þurfa alltaf að blása út, til að við sýnumst meiri og stærri en við erum. Eða hvað finnst fólki eiginlega? Er gagnrýnin hugsun kannski ekki málið eftir allt saman?
14.11 2009 kl.12:34
Slóð
Af hverju megum við ekki bara hugsa í friði ? Af hverju þurfum við að fara á einhvern fund hjá einhverjum fégráðu wannabí somþíng liði til að segja okkur hvewrnig við eigum að hugsa og hvernig við eigm að haga okkur ?
Eru ekkki allir búnir að fá nóg af svoleiðis í bili ?
14.11 2009 kl.12:35
Slóð
Meginstoð samfélagsins er fjölskyldan - ekki ríkið eða klíkur.
Kannski komast miðstýrðu maurarnir á fundinum að því að Auður Capital sé meginstoð samfélagsins.
Þetta er fólk sem hefur lagt mikla áherslu á að mynda tengslanet og vill nú útvíkka það með blekkingum til að öðlast völd í því tómarúmi sem nú hefur myndast.
14.11 2009 kl.12:35
Slóð
Sigurður G.
kl.12:30
já ég hélt líka að þetta væri grín, enn því miður náði þessi 2007 “stemming” hámarki þarna hjá Viðskiptaráði.
14.11 2009 kl.12:38
Slóð
Hér á Íslandi þarf fólk að finna einhverja von og uppbyggingin verður erfið.
Þjóðfundurinn er gott framtak. Ég er samt með spurningu um hvort fólk úti á landi hafi örugglega verið með í þessu slembiúrtaki.
Fólk víða á landsbyggðinni hefur reynslu af kreppu eftir að kvótakerfið var sett á.
Víða atvinnuleysi og húsin urðu verðlaus. Fólk úti á landi stendur með báða fætur á jörðinni eftir þá reynslu.
Ekki skrítið að fólk vilji HEIÐARLEIKA eftir að auðmenn fengu bankana á silfurfati. Hvernig gat þetta gerst ? ?
Joly segir líka í viðtali núna að kerfið hér sé FÁRSJÚKT. Er einhver hissa.
Samt finnast ennþá einstaklingar hér á landi sem verja ófögnuðinn.
14.11 2009 kl.12:42
Slóð
Niðurstaðan er komin - tilbúin.... viti menn.
1500 manns get ekki oriði sammála á einum dags fundi og ekki komist að neinni niðurstöðu um gildi og framtíðarsýn.
Hins vegar er voða gott fyrir þann sem semur niðurstöðuna væntanlega alþingi sem styrkir fundinn með 7 mil.
að segja að það hafi verið 1500 manns viðriðnir ?
Þetta er bara sýning, og skattgreiðendur greiða fyrir hana..
14.11 2009 kl.12:45
Slóð
Já HG það er brjáluð 2007 stemning yfir þessu.
Julia, þú nefnir merkilegan punkt. Nefnilega þann að úti á landsbyggðinni var kreppa meðan gífurleg þensla var á höfuðborgarsvæðinu. T.d. er ástand á mörgum stöðum á landinu betra nú en það var. Þannig má segja að þetta er höfuðborgarkreppa. Og fólk á landsbyggðinni hefur þá reynslu sem þarf.
Og það vill líka eiga sín tækifæri til atvinnu-uppbyggingar. T.d. Húsvíkingar sem vilja álver á Bakka eða Suðurnesjamenn sem vilja Helguvík. Þetta eru málin sem þarf að ræða, alveg sama þó við hér á höfuðborgarsvæðinu séum kannski ósammála sumum þessarra mála. Og að sjálfsögðu kvótakerfið. Orð eins og heiðarleiki eða gagnsæi eru góð og gild orð, en hver og einn verður að praktísera það sjálfur. Ekki einn fundur.
14.11 2009 kl.12:49
Slóð
Vonandi kemur eitthvað gott og jákvætt út úr þessum fundi, og að farið verði eftir þeim niðurstöðum sem fást.
Ég kíkti á heimasíðuna (fyrir hádegi) og furðaði mig á tvennu; það er ekki neitt hljóð á beinu útsendingunni, svo það er til lítils að fylgjast þar með og svo eru jafnmargir frá suðurhorni landssins og norður; 360 manns.
Einnig virðast um 20% hafa skrópað, því skráðir þátttakendur eru 1.222, en áttu að vera 1.500.
Svo er ég sammála Hálfdrættingur 14.11 2009 kl.12:23 ; unga fólkið sem á að erfa landið og skuldirnar um leið, eldra fólkið er tekið fram yfir, why ??
Það væri samt gott að vita hvort skífuritið á síðunni sem sýnir aldursskiptungina, eigi að sýna þá sem boðnir voru eða þá sem eru mættir, því það gæti skýrt ýmislegt.
Nú er að vísu komin tónlist á beinu útsendinguna....eflaust hádegishlé.
http://thjodfundur2009.is/
14.11 2009 kl.12:51
Slóð
Ég skil bara ekki þessa samkomu, til hvers erum við með alþingismenn?? Er þessi mauraþúfa ekki bara lista- og menntapakk sem ætlar að sjúga meira úr buddu ríkisins. Er ekki komið nóg af því rugli? Er ekki komin tími til að þetta fólk fari að vinna eins og aðrir í þessu þjóðfélagi.
14.11 2009 kl.13:38
Slóð
Ég lít á þetta fólk sem fulltrúa almennings í landinu og það verður gaman að sja það sem kemur út úr fundinum.
Mér finnst nóg komið af neikvæðni og nú er rétti tíminn til að horfa með bjartsýni til framtíðar. Ég trúi því að út úr þjóðfundinum komi leiðarvísir fyrir þjóðina til að fara eftir í uppbyggingunni.
Sendum fólkinu á þjóðfundinum góðar hugsanir og gefum neikvæðninni frí .
14.11 2009 kl.13:44
Slóð
Það er ekkert skrýtið að við skulum hafa látið útrásarvíkinga og bankamenn fara illa með okkur miðað við viðbrögðin hér að ofan.
Við skulum ekki gagnrýna, við skulum vera ofur-jákvæð og við skulum ekki efast.
Nákvæmlega sama helvítis hjarðeðlið enn og aftur, og á væntanlega eftir að steypa okkur í enn meiri vandræði í framtíðinni.
Reynið nú að nota þetta líffæri sem er í höfðinu á ykkur og komist að niðurstöðu EFTIR að hafa spurt gagnrýnna spurninga.
Stærsta spurningin sem þið getið spurt ykkur er, eru skattpeningar almennings inni í þessu dæmi?
14.11 2009 kl.13:46
Slóð
Rosalega er fólk hérna að ofan orðið sýkt af neikvæðni. Ef þið ætlið að liggja í drullunni endalaust þá munuð þið aldrei komast á fætur. Hvað ætlið þið tuðarar að gera til að byggja upp landið og þjóðina?
Einhver hér að ofan sagði: “Ágætt framtak, en þetta er EKKI í nafni þjóðarinnar. Ég þekki engan sem hefur veitt neitt umboð þarna.”
Slembiúrtak er vísindalega staðfest leið til að fá fram marktæka skoðun hópa. Hvort sem fundurinn hefur beint umboð eða ekki þá er skoðun þessa fundar marktækt líkt almennri skoðun þjóðarinnar.
Markmiðið er einmitt að litlir hópar bloggara, stjórnmálamanna, sjálfskipaðra álitsgjafa og fleira fólks stýri ekki umræðunni. Heldur hópur sem er þversnið af þjóðinni og lýsandi fyrir raunverulegar skoðanir fólksins þarna úti.
Kannanir hafa sýnt að þær skoðanir sem fram koma hér á Eyjunni eru ekki lýsandi fyrir þær skoðanir sem ríkjandi eru úti í þjóðfélaginu - stundum sem betur fer.
Ps. Hlutfall hvers stjórnmálaflokks (bæði Samfylkingarinnar og annarra) á þessum fundi mun endurspegla það fylgi sem sá flokkur fengi í kosningum í dag og á það jafnt við um alla flokka. Það mun hins vegar enginn spyrja því þetta er ekki fundur stjórnmálaflokka.
14.11 2009 kl.13:56
Slóð
Vonandi er þetta lið rétt ESB hugsandi. Annars er ekkert að marka þennan fund.
14.11 2009 kl.14:23
Slóð
Gagnrýnin hugsun er jákvæð, ekki neikvæð. Eitt það besta sem fólk getur gert er að þora að láta heyra í sér.
14.11 2009 kl.14:29
Slóð
Það væri gaman að vita hversu mikið hefur verið afskrifað vegna “snilllingsins” Guðjóns í OZ sem jafnan er litið á sem frumkvöðul frekar en fjárglæframann.
14.11 2009 kl.14:32
Slóð
Í fyrra voru mótmæli á Austurvelli, nú eru puttaskylmingar í Laugardalshöll.
Og hver segir svo að Alþingi sé ekki að standa sig.. að bjóða í svona fína hátíð... þó vonandi ekki til að forðast mótmæli.
Fólk á fundi leggur almennt áherslu á heiðarleika..Því næst kærleikur, ábyrgð, frelsi, sjálfbærni og lýðræði. Fjölskyldan, jöfnuður og traust er einnig ofarlega á blaði.
Þvílík uppgötvun !
Það er eins gott að það skipti meira máli en óðaverðbólga, launalækkanir, skattahækkanir, verðlausa krónu, gjaldþrot seðalbanka, lífeyrisjóða og síðast OR í ruslaflokk.
Nú á fólk að nærast á kærleikanum og læra að fyrirgefa,
sérstaklega fyrri og núverandi alþingismönnum , þó það sé ekki sagt beint.
14.11 2009 kl.14:47
Slóð
Ég hef mikla trú á öllu þar María Ellingsen kemur við sögu. Hún er fegursta kona Íslands fyrr og síðar og af góðu fólki komin.
14.11 2009 kl.14:50
Slóð
Ég hef skrifað tvö geðill innlegg um þjóðfundinn. Mér hefur fundist ESB skítalykt af honum. Það fólk sem tók þátt í skoðanakönnunum á vef Þjóðfundar studdi þá skoðun mína.
Samfylkingin mun hafa smalað inn á þessa síðu og það veit altaf á mjög faglega unna lygi.
Ég hef fylgst með fundinum í dag. Ég fyllist stolti yfir löndum mínum.
Þetta er of gott til að geta verið satt.
Vona að lygamerðir samfylkingarinnar skemmi þetta ekki. Það að svíkja traust fólks sem trúir á þau gildi og þann vísi að framtíðarsýn sem er komin fram er dauðasynd.
Þessi fundur getur orðið grundvöllur að framtíð okkar ef niðurstöðurnar verða ekki skemmdar af fagaðilum stjórnmálalyginnar. Skemmist þessi góði ávöxtur þá glötum við öllu trausti á sjálft okkur og hvort annað og þá er það endanlega búið.
14.11 2009 kl.15:16
Slóð
GS Góður punktur !
“að svíkja traust fólks sem trúir á þau gildi og þann vísi að framtíðarsýn sem er komin fram er dauðasynd.”
Það er þá þannig að góðtrúa fundargestir sem gefa tíma sinn í sýningunni deila sínum vonum og væntingar með mauraþúfunni.
Ekki Alþingi, sem eru aðeins styrktaraðillar og þáttakendur á launum.
Það kemur önnur sæt sýning eftir þessa, með bleik og blá spjöld.
Þar sem talað verður við landann eins og leikskólabörn...
Allt gert til að forðast byltingu , greiðsluverkfall.
14.11 2009 kl.15:55
Slóð
Það er falleg hugsun á bak við þennan þjóðfund.
En ansi er ég nú hrædd um að lítið mark verði tekið á útkomunni.
Jú ef útkoman miðar að því að lausnin sé ESB.
Ég meina þau taka ekki mark á Mats Josefsson einusinni lol.
Og Össur segir að markmið búsáhaldabyltingarinnar hafi verið að troða meirihluta þjóðarinnar nauðugum í ESB. “Fólkið vildi þetta”
En æj voða skemmtileg samkoma í skammdeginu, megi þeir njóta sín sem voru boðaðir :)
14.11 2009 kl.16:41
Slóð
Það er mjög hættulegt að túlka gagnrýni sem neikvæðni.
Eða vill fólk að þjóðfélagið sé byggt upp eins og stjórnmálaflokkur fullur af “já” fólki, höfum við góða reynslu af því ?
Skilningur á þessu virðist mjög takmarkaður og bendir til þess að okkur vantar aðferðafræði- og rökfræðikennslu á lægri skolastigum.
Án gagnrýni hrynur allt sem við reynum að byggja.
14.11 2009 kl.16:45
Slóð
Ég tek heilshugar undir það sem margir hafa sagt. Ekki hanga heima, draga fólk í dilka, tuða og nöldra. Hvaða gagn er að því? jú, blóðþrýstingur hækkar upp úr öllu valdi og menn styrkja a.hv. lækna og apótek landsins með því að bryðja töflur eða styrkja ríkið með magninnkaupum á áfengi.
hvernig væri að beina orkunni að jákvæðu framtaki hvers og eins. Lítið aðeins í eigin barm og hættið að pæla í því hvað einhver gerði af sér. Hvað getur þú gert til að þér og þínum og þá öðrum í kring geti liðið betur og átt framtíð fyrir sér?
14.11 2009 kl.17:39
Slóð
Sorry to bust your bubble.
En.....
Þetta eru bara trúðslæti. Krappetíkrapp til að búa til móður allra Powerpoint-showa.
Svo er hægt að klappa á eftir og drekka hvítt eða rautt.
14.11 2009 kl.17:46
Slóð
FUNDARMENN LÖGÐU ÓLÖGLEGA.
Stóra fréttin, þrátt fyrir allt tal um “heiðarleika”, þá lagði fjöldi fundargesta bílum sínum ólöglega eftir sínum eigin hentugleika. Sektarmiðar settir á 120 bíla (frétt RÚV). Dæmigert fyrir þorra Íslendinga að taka ekkert tillit til annara.
Annars þrátt fyrir tal um “þjóðfund” þá lít ég svo á að þetta fólk tali ekki fyrir mína hönd, og hefur ekkert umboð frá þjóðini. Þetta er bara eins og annað kaffispjall þeirra á milli yfir borðum, og “niðurstaðan” ómerkilegt snýt í vasaklút.
14.11 2009 kl.17:54
Slóð
Áfram Ísland - frábært framtak - útrýmum neikvæðni - gagnrýnið uppbyggilega og ef þið getið það ekki þá segi ég bara: fýlupokana burt með útrásarvíkingunum. Þeir eru jafn hættulegir þjóðinni.
14.11 2009 kl.17:56
Slóð
Vissulega gott framtak. En´það er EKKI nóg. Munið að ríkið, ég og Þ’U BORGA
en VIÐ fáum BARA EKKERT SEGJA. Sjálfvaldur snillingar RÁÐA N’UNA
ÖLLU.
Hver valdi þá og hverjum var boðið- EKKI mér eða þér. PAY AND SMILE -OK.
Glærur Höllu T. eru vitnisburður óraunveruleika konunnar. Hún má vera í
draumheimum- en það bara
14.11 2009 kl.18:07
Slóð
@ Píp blog
sú staðreynd að fundarmenn hafi lagt ólöglega bendir ótvíræt til þess að um Íslendinga hafi verið að ræða.
þetta fólk talaði fyrir mína hönd
14.11 2009 kl.18:07
Slóð
Einhver sagði; “We are all in the sam shit, but some of us are looking up to the stars”.
Fólk velur hvorn pólinn í hæðina það tekur, af innleggjum hér að ofan er ljóst að mörgum er farið að líða svo vel í ömurðinni að þar vilja þeir dvelja áfram. Verði ykkur að góðu.
14.11 2009 kl.18:16
Slóð
Hrikalegt að heyra hvað sumir eru einfaldir og með ómerkilegar athugasemdir hér.
Sjálfur var ég að koma af fundinum og get sagt ykkur að hann var aldeilis frábær! Þeir sem eru hér að ofan búin að hrauna yfir okkur sem fengum bréf um fundarboð ættu að skammast sín fyrir að tala svona niður til samlanda sinna. Niðurstaða fundarins var einmitt HEIÐARLEIKI, VIRÐING, JAFNRÉTTI.
Við mitt borð sátum við 9 stykki á aldrinum 21-49 ára. Við vorum að tala um sömu hlutina þarna, gömlu gildin.
Fundurinn var algerlega frábær. Gjöf frá okkur sem mættum til ykkar sem ekki fenguð boðið. Vonandi getið þið skilið það, kæru samlandar að við mættum þarna til að reyna að láta gott af okkur leiða.
Frábið mér frekara skítkast vegna þessa.
14.11 2009 kl.18:48
Slóð
@Hrafnhildur
Bjartsýnisframtak ríkistjórnar. Of Amerískt fyrir marga, væmið.
Gott að þetta hafi gefið nokkrum og þér vonar glætu ...
http://www.thjodfundur2009.is/nidurstodur/framtidarsyn-themu/
En verst að þessi niðurstaða sem fundargestir eru ekki höfundar að,
hefur ekkert með raunveruleikan að gera.
14.11 2009 kl.18:51
Slóð
Ég veit ekki betur en að þjóðfundur standi hér á Eyjunni alla daga og nætur. Það er “gjöf” okkar eyverja til ykkar hinna.
Ég vil nú ekki hrauna mikið yfir þennan fund sem minnti nú mest á landsfund Sjálfstæðisflokksins. Það er einhver H.R og sjallalykt af þessu og ég hélt að þeir væru almennt í “time out” núna.
Forsvarsmennirnir, Halla Tómasdóttir og Guðjón í OZ hafa bæði verið viðriðin Sjálfstæðisflokkinn. Þá sá ég þarna borgarstjóra Reykjavíkur, formann Sjálfstæðisflokksins, eina tvo þingmenn flokksins og fv. upplýsingafulltrúa ríkisstjórnar Geirs Haarde, núna starfsmann Landsbankans.
En við skulum bíða og sjá hvað kemur út úr þessu en við skulum ekki halda að þetta komi í staðinn fyrir uppgjör, dóma, hert eftirlit, stjórnarskrárbreytingar og stjórnlagaþing.
14.11 2009 kl.19:01
Slóð
HALLA TÓMASDÓTTIR VAR BÚINN AÐ SEGJA ÞAÐ:
7.2.2007
Hvernig verður Ísland best í heimi?
Viðskiptaráð verður 90 ára á þessu ári, en frá upphafi hefur ráðið lagt sig í framkróka um að vera í fararbroddi nýrra hugmynda um umhverfi atvinnulífsins. Á Viðskiptaþingi í dag kynnti Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, nýja stefnuskrá þar sem fjallað er um helstu skilyrði sem þurfa að vera til staðar svo Ísland verði best í heimi. Stefnuskráin er hér að neðan.
BESTA VIÐSKIPTAUMHVERFI Í HEIMI
- Langtímaátak í ímyndarmálum
Stjórnvöld og viðskiptalífið vinni að langtímauppbyggingu ímyndar Íslands. Aðgerðir verði samhæfðar og fjármunum ráðstafað markvisst í takt við skýra stefnu.
- Flatir og lágir skattar
Tekjuskattur einstaklinga og fyrirtækja og virðisaukaskattur verði samræmdir í einn lágan og flatan skatt án undanþága. Tollar, vörugjöld og sértækir skattar verði afnumdir. Skattaumhverfi verði aldrei verra en best gerist í samkeppnislöndum okkar.
- Land frumkvöðla
Stjórnvöld setji sér það markmið að Ísland verði kjörland frumkvöðla og tryggi þannig atvinnusköpun til framtíðar.
- Sjálfsprottnar reglur
Höftum og íþyngjandi reglum verði aflétt af öllum atvinnuvegum og viðskiptalífinu verði í auknum mæli gefinn kostur á að setja sér sjálft reglur.
BESTA MENNTUN Í HEIMI
- Valfrelsi og samkeppni
Einkaaðilar taki við rekstri menntastofnana, en ríkið haldi áfram að fjármagna menntun á leik-, grunn og framhaldsskólastigi. Rannsóknarfjármagni verði í auknum mæli veitt í samkeppnissjóði.
- Tungumála- og menningarlæsi
Enska verði kennd samhliða íslensku frá 5 ára aldri og námsframboð á ensku stóraukið. Önnur tungumál verði valkvæð, en enginn útskrifist úr framhaldsskóla án færni í að minnsta kosti þremur tungumálum. Kennsla í samskiptum á milli menningarheima verði stórefld á öllum skólastigum.
- Sköpun og frumkvæði
Ýtt verði undir sköpun og frumkvæði á öllum skólastigum. List-, verk- og bóknám verði samþætt og gert jafn hátt undir höfði. Frá fyrsta skólastigi verði börn frædd um sköpun og frumkvöðlastarfsemi.
- Bestu skólar hérlendis sem erlendis
Ísland laði afburðarnemendur og fræðimenn til landsins en hvetji jafnframt Íslendinga til að sækja áfram og í auknum mæli í háskólanám í bestu skólum heims, bæði vestanhafs og austan.
BESTA STJÓRNSÝSLA Í HEIMI
- Umhverfi til atvinnusköpunar
Ekki verði ráðist í beina atvinnusköpun af hálfu ríkisins, t.d. með stórframkvæmdum, heldur verði einkaaðilum látið eftir að nýta hagstæð og áhugaverð tækifæri.
- Bestu embættismenn í heimi
Opinberir starfsmenn njóti sömu réttinda og skyldna og starfsmenn í einkageira.
- Einfaldleiki og gagnsæi
Einungis þurfi að leita á einn stað (á netinu) til að þjónusta stjórnvalda verði gagnsæ og öllum skiljanleg.
- Færri ráðuneyti og stofnanir
Ráðuneytum verði fækkað í sjö með stofnun eins velferðarráðuneytis og eins atvinnuvegaráðuneytis. Stofnunum verði fækkað markvisst með því að leggja þær niður og einkaaðilum falin starfsemi þeirra, ef þörf er á áframhaldandi rekstri.
BESTA SAMFÉLAG Í HEIMI
- Jöfn tækifæri
Jöfn tækifæri verði fyrir karla og konur á öllum aldri til menntunar, atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar. Velferð og öryggi verði tryggt þeim sem ekki geta nýtt tækifærin.
- Valfrelsi og heilbrigði
Einkaaðilar taki í auknum mæli við rekstri heilbrigðisstofnana en lífeyrissjóðir og tryggingafélög við almannatryggingum. Ríkið haldi áfram að fjármagna heilbrigðisþjónustu og tryggi þjónustu til þeirra er njóta ekki tryggingarverndar.
- Alþjóðlegt samfélag með frelsi á vinnumarkaði
Tekið verði vel á móti útlendingum og engar hömlur hafðar á því að fólk komi hingað til lands til að vinna. Atvinnurekendur og starfsmenn hafi fullt frelsi til að semja sín á milli.
- Sjálfbær nýting náttúruauðlinda
Náttúruauðlindir verði í auknum mæli í einkaeigu og nýttar á skynsamlegan máta svo þeirra verði notið af framtíðarkynslóðum.
SKOÐIÐ GLÆRUR HÖLLU - TÆR SNILLD
http://www.vi.is/um-vi/frettir/nr/536/
14.11 2009 kl.19:10
Slóð
Ég var að fara yfir niðurstöður þjóðfundarins. Þar eru 9 flokkar og það sem kemur fram í hverjum flokki, ef það er ekki meira en hér sést:
http://www.thjodfundur2009.is/nidurstodur/framtidarsyn-themu/
þá má finna þessar niðurstöður í stefnuskrám allra flokka. Hverju erum við þá nær? Ég bara velti því fyrir mér án þess að vera of neikvæður.
Hvað með umdeild mál? Afhverju tók fundurinn ekki á umdeildum málum? Fiskveiðistjórnuninni og ESB? Hefði ekki einmitt verið fróðlegt að fá einhverjar niðurstöður þjóðfundar í þeim málum?
14.11 2009 kl.19:24
Slóð
Rétt Baldur,
Þetta átti að heita Bjartsýnisfundur en ekki Þjóðfundur.
Ég er viss um að margir gestir komu í von um að geta komið sínum hugmyndum á framfæri, þar sem þau voru boðuð á þjóðfund.
En það var búið að negla niður umræðuefnið,
http://www.thjodfundur2009.is/nidurstodur/framtidarsyn-themu/
Hef ekki enn séð komment frá gestum sem voru með á leiksýninguna ,,
kannski eru þeir í of miklu bjartsýniskasti eftir daginn til að fara kommentera á Eyju eða Bloggi ? Eða bara södd eftir kjetsúpuna.
14.11 2009 kl.19:29
Slóð
Eskisnár, nei þetta er alls ekki rétt hjá þér. Það var ekki búið a negla niður umræðuefnið nema að það átti að ræða gildi - hver og einn kom fram með þau gildi sem honum þóttu mikilvæg.
Ég var á þessum fundi og þykir afskaplega leiðinlegt að lesa sum kommentin hér.
14.11 2009 kl.19:31
Slóð
HALLÓ !
er umræðan hér enn á sama lága planinu og 2007 ?
Hér kemst nákvæmlega engin málefnanleg umræða í gang, því menn eru þvílíkt í skotgröfunum í skoðunum sínum - ég auðvitað meðtalin með þessari færslu - að okkur er öllum vorkun og ég legg til að menn hætti þessu rugli sem
ég er búin að vera að lesa.
Ekki furða þó ekkert gangi í endurreisn landsins miðað við þessar umræður!
Góða nótt!
14.11 2009 kl.19:45
Slóð
VALUR er í miklum ham og tekurundir væntingar Höllu T. þess efnis
að æðri menntastofnanir verði MEIRA OG MINNA REKNAR SEM E I N K A-
SKÓLAR. Þetta er því miður EKKI mögulegt hér á Íslandi.
Margir vilja þó k a l l a suma skóla EINKAskóla, en þeir eru bara alls ekki.
Valur er hér meðbeðinn um að seja okkur álöppunum HVAÐ RÍKIÐ BORGAR
MIKIÐ MEÐ H. R., sem viðskiptaráð ÆTLAR AÐ HALDA ÁFRAM MEÐ AÐ
KALLA E I N K A S K Ó L A. En það er a r g a s t a öfugmæli í
raunveruleikanum
Köllum hlutina réttu nafni- HEIÐARLEIKIN ER GÓÐUR EKKI BLEKKING.
14.11 2009 kl.19:57
Slóð
Þetta eru úrtölumenn. Alltaf á móti öllu.
Bara öfundsjúkir af því þeim var ekki boðið.
:-)
14.11 2009 kl.20:46
Slóð
Á þjóðfundi var pólitísk umræða og athugasemdir bannaðar. Við ræddum okkar hjartans mál sem einstaklinga, foreldra, þjóðfélagsþegna.
Pólitík er eitt. Hjarta þjóðarinnar er annað. Við ræddum hjartað.
ESB er ekki Ísland. AGS er ekki Ísland.
Við erum ÍSLAND.
Það var rætt í dag.
14.11 2009 kl.20:49
Slóð
Þemaumræða eftir hádegi byggðist á þeim grunngildum sem flestir völdu svo þessi fullyrðing að ekki hafi verið rétt gefið stenst ekki - nema menn trúi því að átt hafi verið við niðurstöður þátttakenda. Ég vil ekki trúa því. Hins vegar vitum við öll að það er hægt að nýta þessar niðurstöður á margan hátt bæði til góðs og ills.
Eigum við ekki að trúa því að við samþykkjum ekki hið illa lengur án þess að hreyfa mótmælum. Þjóðfundardagurinn er ekki liðin svo við skulum bar bíða og sjá.
Ég tók þátt sem lóðs/borðstjóri og er ekki í neinum stjórnmálaflokki. Ef ég hefði ráðið þá hefði ég ekki valið að bjóða þessu 300 aðilum aukalega því það dregur að mínu mati úr trúverðugleika niðurstaðna. Svo sakna ég auðvitað þess að unga fólkið hafi skilað sér of illa. Þetta er kannski spurning um að hver fjölskylda geri meira af því að eiga uppbyggilegar samræður með börnum og unglingum um mikilvægi þess að taka þátt í að móta og byggja upp samfélagið með virkri þátttöku.
Hver veit?
14.11 2009 kl.20:58
Slóð
Svo hefði ég kosið að fólk með bletti á mannorði frá fallinu og fyrir fall hefði hvergi komið að undirbúningi fyrir fundinn því auðvitað skapast viss hætta á að gammarnir vilji nýta sér upplýsingarnar sér einum til framdráttar.
Fólkið sem dregið var út og mætti var yndislegt. Því skuluð þið trúa. Fólk tók hlutverk sitt alvarlega.
Endilega kynnið ykkur niðurstöðurnar á vef þjóðfundarins næstu daga og dæmi síðan hver fyrir sig. Ef eitthvað sem þar kemur fram getur nýst til þess að við byggjum upp betra Ísland þá er vel.
14.11 2009 kl.21:14
Slóð
Hér hafa nokkrir sem sátu þjóðfundinn svarað (og sumir nokkuð sárir). Ég kom með link á niðurstöðuna og enn hefur ekki komið neitt svar.
Ég spyr aftur: Ef það er rétt sem kemur fram á síðunni:
http://www.thjodfundur2009.is/nidurstodur/framtidarsyn-themu/
í þessum níu málaflokkum, sem er niðurstaða þjóðfundarins, hverju erum við nær?
Þessar niðurstöður er að finna í stefnuskrá allra stjórnmálaflokka á Íslandi. Hverju breytir það þótt 1250 manns hafi sest niður og samþykkt sömu niðurstöður og standa í stefnuskrám allra flokka?
14.11 2009 kl.21:23
Slóð
Þetta breytir engu og átti aldrei að breyta neinu. Fólk á bara að halda að það sé að fara á fullt í uppbyggingu með að snakka saman við kontróleraðar aðstæður eina dagstund.
Ekki vera neikvæð. Hvað með það þó að nokkur hundruð manns hafi drullað yfir efnhag og orðspor þjóðarinnar. Ekki við hæfi að dvelja í fortíðinni. Látum skrílinn tyggja á nokkrum selvfölighedum og búa til data fyrir móður allra powerpoint-kynninga.
Seinna verða glærurnar kynntar með hvítu og rauðu og þá verður skríllinn að sjálfsögðu víðsfjarri yljandi sér við sjónvarpsskjáinn.
14.11 2009 kl.21:31
Slóð
Frikki H. “Á þjóðfundi var pólitísk umræða og athugasemdir bannaðar. ”
Nú hvers konar umræða var þetta þá ? Mátti sem sagt ekki ræða atvinnumál, efnahagsmál, félagsmál, jafnréttismál osfrv. Og voru athugasemdir líka bannaðar ?
Ég veit ekki, en var þetta þá bara tómt grín? Sorry, en ekki vil ég vera neikvæður, alls ekki, en að ræða bara heiðarleika, réttlæti oþh mál svona almennt séð, ja þá er miklu betri að taka sér bók í hönd eftir einhvern heimspekinginn.
Og þetta með heiðarleikann. Er þá í lagi að leggja bílum ólöglega svo t.d. gangandi vegfarendur eigi erfitt um vik?
Því þetta með að leggja bílum ólöglega er dæmigert fyrir hina íslensku frekju og eigingirni. Lagt á gangstéttum þar sem t.d. fatlaðir einstaklingar geta með illu móti komist leiðar sinnar. Allt til að spara sporin fyrir lata ófatlaða einstaklinga.
14.11 2009 kl.21:41
Slóð
Frábær fundur sá besti sem eg hef tekið þátt i.Það þarf að heiðra þetta fólk.
Visindaleg aðferðafræði við höfð.
14.11 2009 kl.21:48
Slóð
Arinbjörn Kúld
Sammála þér! Mér þykja hinir 300 handvöldu setja leiðan stimpil á þennan fund og rýra gildi hans mjög mikið, vægast sagt. Hverjir völdu þessa 300? Til hvers þurfti að hafa þá með?
Mér þykir til fyrirmyndar, að lögreglan skuli byrjuð að sekta menn fyrir að leggja bílum uppi á gangstétt. Þetta hefur tíðkast í fjölda ára, án afskipta lögreglu. Oftar en ekki eru þetta dýrir jeppar, hverra eigendur virðast hafa talið, að í krafti auraráða sé þeim allt leyfilegt. Ég velti reyndar fyrir mér, hvers vegna lögreglan valdi þennan fund til að byrja að taka á þessum hvimleiða ósið og skýlausa lögbroti (að leggja bílum uppi á gangstétt). Er lögreglunni í nöp við þá sem sækja þennan fund? Vona bara að lögreglan muni hér eftir standa sig í að sekta menn fyrir að leggja bílum uppi á gangstétt. Mætti ekki veita stöðumælavörðum vald til að klína sektarmiða á þannig staðsetta bíla? Hef séð stöðumælaverði ganga framhjá slíkum bílum og láta þá afskiptalausa.
14.11 2009 kl.21:48
Slóð
Hver valdi þessa 300? Af hverju voru þeir nauðsynlegir?
14.11 2009 kl.21:54
Slóð
Ætli Lára Hanna sé búin að fara með stækkunargler yfir alla myndir og skoða alla hausa sem sátu á þessum þjóðfundi, situr svo andvaka í nótt að hanna eitthvað mega samsæri? :-)
14.11 2009 kl.21:55
Slóð
Gestir síðustu landsleikja Íslendinga við aðrar þjóðir á Laugardalsvelli geta vitnað um það að lögreglan hefur um langa hríð sektað eigendur bíla sem lagt er ólögega. Var lögreglan á móti landsliðinu og stuðningsmönnum þess? Nei varla.
Samt ögn fyndið að heiðarleikinn skyldi vera efstur á blaði hjá fólki sem hafði nýlokið við að leggja bílnum sínum ólöglega!
14.11 2009 kl.22:03
Slóð
Ef heiðarleikinn var efstur á blaði þá þarf ekki að spyrja oft til að fá svar við þessum spurningum:
Hver valdi þessa 300?
Af hverju voru þeir nauðsynlegir?
Heiðarleg svör takk.
14.11 2009 kl.22:11
Slóð
Bannað að tala um pólítík!!!
Er ekki flestum ljóst að vandi Íslands liggur í stækri sérhagsmunagæslu útgerðaraðals, spillingu og stjórnlausri græðgi elítunnar í viðskiptum og stjórnmálum.
Nei, nei. Fáum fram gildin og sýnum að þjóðin er ekki í heild siðblindir vitleysingar.
Fjölskyldan, gagnsæi, sjálbærni, menntun, heilbrigði, jafnrétti, spliff, donk, gengja..........
14.11 2009 kl.22:25
Slóð
Þótt bannað væri að tala um pólitík finnst í niðustöðunum nokkuð sem bendir til þess, að þjóðfundurinn vilji samvinnu við Evrópu. Vonandi meina þeir ekki aðild að ESB. Annars tek ég undir með þeim sem segja þetta mjög jákvætt allt saman sem kom út úr þessu. Ég býst við að allir stjórnmálaflokkar geti tekið þessi mál á stefnuskrá sína, séu jafnvel löngu búnir að því.
En því miður var ekki um vísindalegt úrtak af þjóðinni að ræða. Valdir voru fyrst 300 úr hópi elítunnar. Búast má við, að þessir 300 hafi getað haft meiri áhrif hver við sitt borð en meðaljóninn. Slembiúrtakið var svo, 1200 manns, skilst mér. Hvernig var með texta og gildi? Var þetta eitthvað sem undirbúningnefndin hafði útbúið og fólki síðan leyft að raða í forgangsröð?
Ég veit að svona mauraþúfudæmi geta skilað miklu, sé rétt staðið að undirbúningi. T.d. hafa hagspár sérfræðinga yfirleitt ekki komist jafnnærri því, sem síðar varð niðurstaðan, eins og skoðanakönnun meðal heillrar þjóðar, sem ávallt byggir á slembiúrtaki (án þess að bæta við slembiúrtakið sem nemur 25% svarenda, allt fólk úr elítunni).
14.11 2009 kl.22:26
Slóð
þessi þjóðfundur er mengaður af þáttöku stjórnarliða, sem mættu til að passa uppá að það yrði ekki farið útaf línunni.
SJS sá til þess að samþykkt væri að ganga í ESB.
Jóhanna sá til þess að við gengjum í Varsjárbandalagið.
þetta er bæði gott og vont.
En ég sá að það var mikill lýðræðishalli á fundinum.
Höfuðborgarsvæðið var með um 135%, en landsbyggðin var með um 60% mætingu. Þetta gengur ekki.
VG var með 100% mætingu og Samfó var með 129% mætingu, en stjórnarandstaðan var með 65% mætingu.
Hvað þýðir það?
Kveðja úr sveitinni.
14.11 2009 kl.22:42
Slóð
Miðað við það sem ég hef séð og heyrt af þessum fundi finnst mér nánast móðgun að kalla hann “þjóðfund”. Þjóðfundurinn var haldinn 1851 og var djörf tilraun til sjálfstæðis frá Dönum og undanfari þess. Niðurstöður þessa fundar má finna í stefnuskrá allra stjórnmálaflokkanna og flokkast undir sjálfsagða hluti.
Það að gera í því að forðast öll átakamál sem hafa sundrað þjóðinni hlýtur að vera uppgjöf á fundi sem kallar sig “þjóðfund”.
14.11 2009 kl.23:15
Slóð
Mikið finnst mér sárt að sjá, eftir frábæran dag í höllinni, hve margir hér hafa litla trú á mannkyninu. Ég kom ekki nálægt neinu skipulagi, var bara boðið að taka þátt, þáði það og upplifði stórkostlegan fund.
Þetta var ekki flokkspólitískur fundur (að mínu mati er pólitík óaðskiljanlegur hluti lífsins) og ég sá ekki betur en að borðstjórarnir sem stýrðu umræðunni væru velmeinandi, venjulegt fólks sem hafði fengið þjálfun í að stýra þessu fundarformi á hlutlausan hátt. Ég, eins og allir aðrir, var á tveimur borðum og stóðu báðir borðstjórar sig mjög vel, voru hlutlausir og pössuðu að enginn yrði of dóminerandi. Raðað var á borð af handahófi og þessum “völdu” virtist skipt jafnt niður á borðin, alla vega sá ég aldrei nema einn á hverju borði sem ég hefði haldið að væri úr þeim hópi. Svo voru aðrir látnir vinna úr hugmyndunum en settu þær upphaflega fram (allir látnir skipta um borð) og tilviljun réði því hvaða málaflokk fólk lenti í. Að fara að búa til einhverjar samsæriskenningar um valdarán og illan ásetning er þeim sem þannig hugsa í besta falli til skammar.
14.11 2009 kl.23:29
Slóð
FINNST YKKUR GÁFULEGT , þegar fólki er talið trú um að ekki seu til peningar i heilbrigðiskerfið og annað álika ,að’ hægt var að henda 7 milljónum i þetta þjóðfundarbull ??? Styrkur fra rikisstjorn !!! eruð þið alveg steinhætt að hugsa Vitið þið ekkert hvað um var að vera , jafnvel þó þið væruð á staðnum??? Og láta allir teyma sig blinda áfram i öllu ?????
svari nu hver fyrir sig !! Það er alltaf hægt á Islandi að hafa fók að fíflum !!!
eins og á þessium Smaladegi Samf og VG !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Eg tek ofan fyrir þeim sem afboðuðu sig og vildu ekki taka þátt i að vera
undirlægjur !! hættið svo að tala um neikvæði þó fólk se ekki sammál um málefni , Kunnið fyrst skil á hugtökum !!!!!!!!!!!!!! áður en dæmt er !!
14.11 2009 kl.23:30
Slóð
Margrét, enginn hefur neft valdarán og illan ásetning nema þú. Komdu nú niður af stallinum þótt þú hafir uppveðrast eða jafnvel endurfæðst á þessum fundi.
14.11 2009 kl.23:32
Slóð
Ég spyr eins og fleiri: Af hverju þarf 300 til að stýra 1200? Af hverju ekki 1500 án stýris? Eða þarf að passa upp á skrílinn?
Eða hefur það með það að gera að verið sé að klína samsekt á skrílinn?
Tek undir með Baldri kl. 18:51, sem segir ma.:
“Ég veit ekki betur en að þjóðfundur standi hér á Eyjunni alla daga og nætur. Það er “gjöf” okkar eyverja til ykkar hinna...
...
En við skulum bíða og sjá hvað kemur út úr þessu en við skulum ekki halda að þetta komi í staðinn fyrir uppgjör, dóma, hert eftirlit, stjórnarskrárbreytingar og stjórnlagaþing.”
15.11 2009 kl.00:01
Slóð
Úr framtíðarsýn fyrir Ísland:
Stjórnsýsla
Gagnsæi og siðferði skal haft að leiðarljósi í íslenskri stjórnsýslu með virkri þátttöku íbúa, stöðugleika í efnahagsmálum og samvinnu við Evrópu
Þetta er óborganleg klausa. Hvað hefur samvinna við evrópu með íslenska stjórnsýslu að gera?!
Ég trúi að þarna hafi eitthvað verið fiktað í niðurstöðum þessa ópólitiska fundar.
Auðvitað eigum við að vera í samvinnu við þjóðir heims. Af hverju ekki Evrópu? Hvað hefur það með venjulega íslenska stjórnsýslu að gera?
Það var ESB skítalykt af þjóðfundinum, en ég veit og vona að þeir 1100 sem áttu að vera nytsamir sakleysingar í jippóinu hafa talað og það skýrt og við höfum heyrt í þeim: HEIÐARLEIKI GEGNSÆI VIRÐING ATVINNA HEILBRIGÐI MENNTUN
Þessi gildi eiga ákaflega litla samleið með ESB í framkvæmd, en lýsa íslendingnum á götunni. Hinum venjulega íslendingi. Okkur.
ESB árópurinn mun ´´i framtíðinni vitna í þjóðfundinn. Munum þá grundvallargildin og berum saman við framkvæmdina innan ESB.
15.11 2009 kl.00:13
Slóð
@S.Á.
Þó pólitískur sé var engum leyft að drottna með sínar skoðanir. Við tjáðum okkur í stuttum orðum, setningum. Drógum saman hugsanir og væntingar í fáum orðum. Engin pólitík. Ekkert rugl. Bara við. Íslendingar.
Þú getur ruglað, bullað og hraunað yfir fólk eins og þú vilt. Ég hef alltaf verið þekktur sem strigakjaftur, en eftir daginn í dag hefur það breyst. Nú veit ég að við erum öll að róa að sömu fjöru, viljum komast á land án frekari skaða.
Þú getur svo dólað í þínu feni án hjálpar áfram ef þú vilt, senjor SÁ. Við hin viljum heiðarleika, réttlæti og jafnrétti. Og einhverja niðurstöðu.
Hvað með þig?
15.11 2009 kl.00:14
Slóð
ESB var strax slegið út af borðinu í minni grúppu. Enda vorum við ekki að ræða neina pólitík
15.11 2009 kl.00:20
Slóð
Sorrí SÁ! Sigurður G átti að fá svarið... en. þú kannski lest yfir þetta og fyrirgefur mér nafnafeilinn...
Reyndar búinn að fara aðeins betur yfir kommentin hér að ofan, svo þið megið eiga þetta báðir.
15.11 2009 kl.00:21
Slóð
Sjö milljóna mynd:
http://www.youtube.com/watch?v=2mT8AzdxT48
15.11 2009 kl.00:22
Slóð
Bara jákvætt framtak, Takk Ísland hey jó jýbbí jey :-)..............................................
15.11 2009 kl.00:23
Slóð
Frikki H
Niðurtaða fundarins var skv heimasíðu þessi framtíðarsýn um íslenska stjórnsýslu:
Stjórnsýsla
Gagnsæi og siðferði skal haft að leiðarljósi í íslenskri stjórnsýslu með virkri þátttöku íbúa, stöðugleika í efnahagsmálum og samvinnu við Evrópu
Þetta er ljót varta í fallegu andliti.
Mér finnst stórkostlegt að fá gildismat ykkar sem sátuð fundinn og mig grunar að þið hafið upplifað mjög góða hluti og eigið þakkir skilð. Þess vegna þarf að vera vakandi fyrir þeim sem halda að einlægni sé heimska sem hægt sé að nota í áróðri fyrir hagsmunagæslu. Sbr innlegg mitt að ofan sem mig grunar að þú hafir verið að svara.
15.11 2009 kl.00:24
Slóð
Það er landsvitað að blaðamenn á Eyjan.is halda þessu athugasemdarkerfi uppi og halda þannig fréttunum sínum á lífi.
Mér finnst það sorglegt hvað þessi litla vefsíða eyjan.is getu eyðilegt mikið af því góða í íslensku samfélagi. Bara sorglegt.
Þjóðfundur er það besta framtak sem ég hef séð í Íslenskum þjóðmálum um langt skeið.
15.11 2009 kl.00:34
Slóð
Ég var fenginn sem borðstjóri á fundinum og var þarna að sinna skildum mínum sem þjóðfélagsþegn, enda ekki hluti af neinum hagsmunasamtökum. Mér þykir Margrét hér að ofan lýsa þessu mjög vel. Ég get trúað því að það sé erfitt að átta sig á þessum fundi utanfrá, enda var ferlið svolítið flókið til að tryggja sanngjarna útkomu. Ekki var lagt upp með nein gildi eða þemu, heldur komu þau öll frá þátttakendum. Það sem nú sést á vefnum eru þau gögn sem hraðast komust inn í gagnagrunninn, en eftir á að setja inn aragrúa af hugmyndum og tillögum fundarmanna. Við skulum því hinkra og skoða svo vel hvað þetta áhugaverða þversnið þjóðarinnar hafði um framtíð Íslands að segja. Alltaf gott að sýna gagnrýna hugsun, en því fylgir líka ábyrgð :-)
15.11 2009 kl.00:42
Slóð
GS:
Prófaðir þú að ýta á “Næsta” við framtíðarsýnina um íslenska stjórnsýslu? Þú ert að vitna í einn vinnuhóp, en fleiri skiluðu niðurstöðum um þennan málaflokk. Ef þú flettir í gegnum hópana sýnist mér ESB ekki vera aðal málið. Eða hvað finnst þér?
15.11 2009 kl.00:54
Slóð
@GS
Það er gott að þú tekur eftir og hefur skoðanir. Nákvæmlega eins og við sem þarna vorum í dag.
Nú er ég þreyttur, kominn í faðm fjölskyldunnar og ætla að halla mér.
Vona að þú getir tekið slaginn með okkur hinum, það var markmiðið í dag held ég. Að við sameinumst um að reisa Ísland og verðum íslendingar áfram sem áður.
Góða nótt, GS. Og allir Eyjarskeggjar
15.11 2009 kl.01:39
Slóð
Takk Hannes Högni og takk fyrir framtakið og góða nótt báðir Frikki og þú og til hamingju með árangurinn
15.11 2009 kl.02:59
Slóð
Ég tóki þátt í fundinum sem lóðs og langar að benda á eftirfarandi:
1) Nú er búið að birta þau gildi, 9 meginþemu og 162 dæmi um framtíðarsýn sem unnin voru í dag, ekkert af þessu var fyrirfram ákveðið á nokkurn hátt, heldur niðurstöður hugmyndavinnu þátttakenda.
2) Enn á eftir að birta fleiri hugmyndir s.s. tilteknar aðgerðir sem hægt væri að setja í framkvæmdir, stefnt er að því að þær verði birtar á næsta sólarhring.
3) Til að ná marktæku úrtaki þjóðarinnar þarf 900 manns, mættir voru 1200 manns úr slembiúrtaki, auk 300 fulltrúa ýmissa samfélagsstofnana.
4) Markmið fundarins var: “Að gera heiðarlegt uppkast að gildum og framtíðarsýn fyrir íslenskt samfélag”
Það er fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum fólks og sú tortryggni sem hér kemur fram eflaust skiljanleg miðað við það sem gengið hefur á undanfarnin misseri. Ég hvet þó alla til að kynna sér vel hvaða aðferðum var beitt til að fá sem flestar hugmyndir fram, vonandi munið þið heyra sem flestar reynslusögur þeirra sem sátu fundinn.
Lifið heil
15.11 2009 kl.05:45
Slóð
Jæja, umræðan er all illilega farin að minna á hryllilega Fésbókarsíðu, æ elskan, þú ert svo yndisleg persóna.
Og þeir sem gagnrýna eiga sko ekkert inni hjá þessum heilaþvegna sértrúarsöfnuði. Majónesdrottning hvað....
Það má fyrirfram gera ráð fyrir að þessum “útvöldu” finnist þeir vera voðalega spes, “we are the chosen one” og auðvitað mættu allir í sparifötunum í hástemmda stemminguna sem örugglega hefur verið jafn jákvæð og góð og þegar opnuð er ný verslun og boðinn 10% afsláttur af kjötfarsinu.
Einhver talaði um öfund í þeim sem ekki voru dregnir út og fengu afláttarmiða fyrir kjötfarsinu, (eða voru enn merkilegri og voru handvaldir af reverent Sun)
Það er alveg út úr kú, við hin sættum okkur bærilega við að mæta bara í opnunina hjá Sullenberger í staðinn.
Fólk getur lagt ólöglega og röflað eins og enginn sé morgundagurinn, það breytir ekki staðreyndinni að þessi gjörningur, að breyta Laugardalshöllinni í heilaþvottastöð, er framkvæmdur af verulega vafasömu fólki í vafasömum tilgangi.
Ágæta fólk, ég trúi því að þið trúið því að mæting ykkar útvöldu, handskrift ykkar á draumum á gula stickies í nærveru “the 300 Spartans” breyti öllu fyrir íslenska þjóð og veiti henni nýtt upphaf í óspilltu og heilbrigðu umhverfi.
Já, þið trúið því að starfsmenn OR mæti á mánudaginn fullir af heilögum anda, og hætti að gera það að markmiði sínu að draga sér og sínum fé, með einum eða öðrum hætti. Ég býst við að þið trúið því líka að starfsannalistinn (sem gæti líka brúkast sem framboðslisti R listans með örfáum Sjöllum) afpólitískist með sama hraða og það tekur séra Kross-Gunnar að afhomma.
Nei gott fólk, þið hefðuð breytt einhverju ef þið hefðuð mætt með kyndla og heygafla niður á Alþingi.
15.11 2009 kl.06:21
Slóð
Er það rétt hjá Jónasi, að Bjarni Benediktsson hafi verið einn af þeim handvöldu ?
15.11 2009 kl.08:44
Slóð
að telja að þeir sem gagngrýna veisluna séu öfundsjúkir...
er eins og rispuð plata frá 2007...
Þeir sem eru ekki með í klappliðinu eru það ræflar og aular ?
Bankarnir notuðu sömu bjartsýnisfundi fyrir starfsmenn sýna..
og fáir gagngrýndu.
Þeir sem gagngrýndu voru strax kýldir í gólfið , jafnvel af alþingismönnum,
engin mátti segja neitt ljótt um bankana.
Þeir sem gagngrýndu voru öfundsjúkir fýlupokar, sem voru öfundsjúkir í velgengni bankana.. öfundsjúkir að vera ekki boðið í veiluna....
og leyfði menntamaður að gagngrýna þyrfti sá á endurmentun að halda...
Það er engin að reyna að skemma fyrir þeim sem áttu ánægilegan dag..
Gagngrýnendur eru bara stórkostlega hisssa... Svo einfalt er það.
Og að fundargestir með allan sinn góða vilja ætla að skítkastast út í gagngrýnendur og kalla þá öfundsjúka ... segir mest um fundargesti..
15.11 2009 kl.09:30
Slóð
Mér finnst að sá texti sem komin er horfa aðeins of stíft á þetta útfrá einstaklingnum í stað heildarinnar og minna helst á kröfuspjöld?
(já - ég fletti í gegnum allar glærurnar)
Stutta útgáfan er
Það eru hagsmunir heildarinnar (Íslands) að einstaklingurinn (þjóðfélagsþegninn) og fjölskyldan fái að njóta sín.
Það sem vantar
Það verður að setja skýr takmörk þannig að einstaklingar og smærri þrýstihópar skapi sér ekki sérréttindi á kostnað heildarinnar.
15.11 2009 kl.10:46
Slóð
Er ekki orðið tímabært að gera e-ð fyrir fólkið sem á sér einskis valkosti, aðra en að borga og brosa.
Við getum talað og talað....
Hvað gerist svo ?
Hvert átti þessi fundur að leiða okkur ?
Hver á að fylgja þessum hlutum á eftir...
Allar þjóðþrifa breytingar gerast hjá okkur á hraða snigilsins...
15.11 2009 kl.11:53
Slóð
Sat Þjóðfundinn í gær, var í úrtakinu. Veit þess vegna núna það sem ég hélt: Svartagallsrausarar og orðsóðar þeir sem vaða uppi í athugasemdum á þessum vef eiga fátt sameiginlegt með þorra Íslendinga. Jákvæðni og einbeittur vilji til að breyta samfélagi okkar og þróa það til betri vegar var yfirgnæfandi viðhorf fundarmanna.
Það var ekki bannað að tala um pólitík frekar en annað, enda var umræðan hápólitísk. En dægurþras og bölmóður áttu sér fáa talsmenn.
15.11 2009 kl.12:29
Slóð
Voðalega er pirrandi að lesa svona yfirlætisleg komment einsog hjá honum Eiríki Valssyni hér að ofan. Hann er náttúrulega miklu meiri Íslendingur en við hin af því hann var á þessum fína skrautfundi. Af því sem ég hef séð virðast fundarmenn ekki skilað af sér neinu nema innanómum frösum sem finna má í stefnuskrám allra stjórnmálaflokka á Íslandi.
Þá bendir Baldur Mcqeen á það á síðu sinni að nefnd var starfandi á vegum forsætisráðuneytisins í fyrra og skilaði samskonar orðavaðli:
Nefndin leggur því til að kjarninn í ímynd Íslands sé kraftur, frelsi og friður og að náttúrulegur kraftur sé sérkenni Íslands enda telja Íslendingar sig almennt vera duglega, bjartsýna og áræðna og að náttúrulegur kraftur og frumkvæði einkenni atvinnulíf og menningu landsins.
(Forsætisráðuneyti, 07.04 2008)
http://www.baldurmcqueen.com/index.php/2009/Skil-ekki-%C3%BEjoofundinn.html
Hverju erum við nær?
15.11 2009 kl.14:19
Slóð
Frikki H sneiðir einhverju til mín “Þú getur ruglað, bullað og hraunað yfir fólk eins og þú vilt. Ég hef alltaf verið þekktur sem strigakjaftur, en eftir daginn í dag hefur það breyst. Nú veit ég að við erum öll að róa að sömu fjöru, viljum komast á land án frekari skaða.
Þú getur svo dólað í þínu feni án hjálpar áfram ef þú vilt, senjor SÁ. Við hin viljum heiðarleika, réttlæti og jafnrétti. Og einhverja niðurstöðu.
Hvað með þig?
”
Þú virðist ekki hafa lært mikið á þessum fundi. Amk áttu erfitt með að rökræða. Var ég að hrauna yfir þig? Kannast ekki við það. Hver vill ekki heiðarleika, réttlæti og jafnrétti? Það vilja það bara allir. Fólk á þjóðfundi er þar enginn undantekning. Að segjast vilja slíkt er ekkert nýtt.
Þess vegna að ræða ákveðinn konkret mál. Atvinnumál, efnahagsmál, ESB oþh. Um hvernig samfélagið verði byggt upp. Hvernig verði skipað í opinberar stöður, m.a. dómara og embættismenn.
Hvort menn vilji álver í Helguvík eða á Bakka, virkjanir oþh. Sem sagt atvinnumál. Hvað með krónuna og samninga við ESB?
Þetta eru málin. Hver er t.d. afstaða fundarins til einhverra þessarra mála?
15.11 2009 kl.15:12
Slóð
Þetta er ótrúleg lesning hér að ofan, og maður verður bara steinhissa og sorgmæddur að sjá hvað er mikið af fólki sem er til í að rífa niður hluti undir nafnleysi og af verulegri vanþekkingu.
Tek nokkur dæmi hér:
“Fólki smalað á fundinn af samfylkingunni?”. Á fundinn var boðað með slembiúrtaki með sömu aðferðafræðafræði og úrtök eru gerð í skoðanakannanir. Capacent-Gallup sá um þennan hluta að því er ég best veit. Ég tók persónulega þátt í að útbúa lokaútgáfu af þáttakendalistanum, sem síðan var úthlutað á lóðsa, sem síðan hringdu í alla þáttakendur af sínu borði, þannig að menn vissu fyrirfram um alla þáttekendur á hverju borði. Öll smölun var því algerlega útilokuð. Og btw, ég kaus Borgarahreyfinguna í síðustu kosningum, og Samfylkingin er ekki efst á lista yfir það sem ég kysi í dag.
Varðandi þessa 300, þá var tilgangurinn með þá að hafa það fólk með því það hefur meiri möguleika en aðrir í að gera eitthvað með niðurstöðu fundarins, og til þess að gera það, þá þurftu menn að vera á honum til að meðtaka raunverulega þýðingu hans. Það sem ég hef séð í fjölmiðlum hingað til nær varla að grípa 5% af þýðingunni sem þessi fundur hefur fyrir þáttakendurna.
Ferlið var að auki vandlega hannað til að sjá til þess að einstaklingar gætu ekki haft meira vægi í umræðunni heldur en gildi skoðana þeirra fyrir borðfélaga þeirra sagði til um. Eins þá koma þessir 300 úr öllum stjórnmálasamtökum, hagsmunasamtökum og skólunum, og þó svo að þeir hefðu meiri vigt en aðrir, þá er þetta fólk úr það ólíkum áttum að það skiptir ekki máli. Til dæmis voru bæði Bjarni Benediktsson úr sjálfsstæðisflokki og Steingrímur J úr V.G. þarna, og ég hugsa að skoðanir þeirra jafnist nú nokkurn vegin út :-)
“1500 manns get ekki oriði sammála á einum dags fundi og ekki komist að neinni niðurstöðu um gildi og framtíðarsýn”.
Það er augljóslega ekki hægt að komast að einu gildi og einni setningu sem allri fundarmenn síðan skrifa undir, enda var það ekki reynt. Það er hins vegar hægt að komast að hver eru ríkjandi gildi, og hvað er sameiginlegt í framtíðarsýn, og þetta var gert. Þetta byggist meðal annars á pælingum sem á engilsaxnesku kallast “The Wisdom of Crowds” sem segir okkur að uppsöfnuð viska fjöldans sé betri og nákvæmari heldur en bestu sérfræðinga á ákveðnum sviðum. Aðferðafræðin sem var notuð á fundinum var síðan meðal annars dregin úr aðferðum sem hafa verið þróaðar í fundarstjórnun til til að ná fram sýn og vilja þáttakenda, með þeim tilgangi að þeir sjálfir geti fylgt sameiginlegri sýn fjöldans, meðal annars í s.k. Agile hugbúnaðarþróun. Þess vegna var mikilvægt að þessir 300 væru þarna, því hvort sem okkur líkar betur eða verr, þá skipta peningar máli í að koma hlutum í framkvæmd.
Og svo ég taki síðasta innleggið hér:
“Nefndin leggur því til að kjarninn í ímynd Íslands sé kraftur, frelsi og friður og að náttúrulegur kraftur sé sérkenni Íslands enda telja Íslendingar sig almennt vera duglega, bjartsýna og áræðna og að náttúrulegur kraftur og frumkvæði einkenni atvinnulíf og menningu landsins.”
Einhver nefnd á vegum forsætisráðuneytisins hefur formlegt umboð, sem mínum augum skiptir engu máli í þessu samhengi. Enda er þetta kjaftavaðall sem enginn hlustar á (a.m.k. ekki ég). Þegar þú ert hins vegar hluti af 1500 manns sem sameiginlega segir að Heiðarleiki sé þeirra helsta gildi, þá manstu eftir því. Við erum því því nær, að marktækur hluti þjóðarinnar á eftir að muna eftir því að heiðarleiki skiptir máli, og þar á meðal stór hluti stjórnmálamanna sem voru þarna. Það skiptir t.d. því máli að menn hugsa sig tvisvar um áður en menn gera hluti eins og að kaupa rúðupláss á gömlu A4 búðinni á Smiðjuveginum og auglýsa Office1 í skeifunni, sem hefur ekkert með A4 að gera. Þó það sé ekki ólöglegt, þá er það augljóslega ekki heiðarlegt.
Ég hef grun um að þeir sem eru uppfullir vandlætingar yfir þessum fundi hér á þessari síðu séu með einhverjar allt aðrar væntingar til þessa fundar heldur en skipuleggjendur og þáttakendur. Ég get sagt fyrir mig hvað ég held að þessi fundur sé og sé ekki:
- Hann er ekki stjórnlagaþing. Ekkert bindandi eða með augljósa skammtímaþýðingu er líklegt að koma út úr fundinum, þó það sé ekki útilokað.
- Hann er ekki hannaður sem umræðuvettvangur fyrir það sem er hæst á baugi núna, svo sem Icesave eða ESB. Að sjálfsögðu voru umræður um þetta, meðal annars voru menn sammála á mínu borði um að nota lífeyrissjóðina til að borga fyrir Icesave strax til að koma í veg fyrir að vextir og vaxtavextir lendi á afkomendum okkar. Það sem var hins vegar reynt að stoppa, var flokkspólitískur áróður. Ekki var einu orði minnst á stjórnmálaskoðanir fólks við borðið, og allir voru sáttir við það.
- Útkoman eru hvaða gildi og meginþættir í samfélaginu skipta menn mestu máli. Þetta gefur þáttakendum kjörið tækifæri til að endurskoða og endurforgangsraða eigin gildum.
- Niðurstaðan er líklegust til koma til framkvæmda í formi nokkurs konar undiröldu í þjóðfélaginu, þar sem fólk fer að taka öðruvísi ákvarðanir í ljósi endurskoðaðara gilda.
- Að auki voru skrifaðar niður þúsundir hugmynda að útfærslu framtíðarsýnar fólks af fundinum. Það er erfitt að gera sér væntingar um nýtingu þeirra, en ekki ólíklegt að þær hugmyndir sem eru framkvæmanlegar og koma oft fyrir, verði framkvæmdar.
Að lokum vil ég skora á menn hér að kynna sér málin aðeins betur áður en menn halda áfram að rífa þennan frábæra fund niður, t.d. tala við einhvern sem var á fundinum eða að minnsta kosti skoða Spurt og Svarað hér:
http://www.thjodfundur2009.is/thjodfundur/spurningar-og-svor/
Ég skal ábyrgjast persónulega að allt sem þarna kemur fram er sannleikanum samkvæmt.
-Guðlaugur S. Egilsson
15.11 2009 kl.18:11
Slóð
Much ado about nothing.