Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóagjaldeyrissjóðsins, segist ekki geta hitt íslenska hópinn sem óskaði eftir fundi með honum á dögunum, en segir fulltrúa sjóðsins á Íslandi ávallt vera til viðræðu. Í svari til Gunnars Sigurðssonar, sem fór fyrir hópnum, segir Strauss-Kahn m.a. að lausn Icesave-deilunnar hafi aldrei verið krafa af hálfu sjóðsins, heldur hinna Norðurlandanna sem hafi ekki viljað lána Íslendingum nema Icesave væri til lykta leitt. Þá segir hann að rætur efnahagsvanda Íslendinga liggi í mistökum´i bankakerfinu og því hvernig þáverandi stjórnvöld á Íslandi stóðu að einakvæðingu bankanna.
Norðurlöndin gerðu kröfu um Icesave lausn, ekki AGS
Strauss-Kahn segist hafa fulla samúð með stöðu Íslendinga, sem gangi nú í gegnum verstu erfiðleika sem menn muni eftir. Þá segist hann sammála því sem fram kom í bréfi hópsins að útskýra þurfi betur fyrir almenningi hvaða aðgerðir séu í gangi.
Þá fullyrðir hann að lausn Icesave deilunnar hafi aldrei verið skilyrði af hálfu AGS. Segir hann að AGS sé ekki ætlað að blanda sér í tvíhliða ágreining aðildarþjóða og hafi ekki gert svo í þessu tilfelli. Hinsvegar segir hann að töfin sem varð á endurskoðun á efnahagsaðstoð AGS hafi orðið vegna þess að hún hafi verið háð lánaframlögum frá Norðurlöndunum, sem hafi sett það sem skilyrði að Íslendingar afgreiddu Icesave deiluna fyrst.
Einkavæðing bankanna er rótin að vandanum
Þá víkur Strass-Kahn að rótinni að efnahagsvanda Íslendinga. Hann segist sammála Íslendingunum að rótin liggi í bankakerfinu, sem hafi verið alltof áhættusækið og að eftirlitsaðilar hafi brugðist. Þá hafi einkavæðing bankakerfisins mistekist, en AGS hafi hvergi komið þar nærri enda sé það ekki í verkahring AGS að skipta sér af einkavæðingu aðildarríkja. Þá fullyrðir hann að samkvæmt áætlun AGS verði slík mistök ekki látin endurtaka sig. Af þessum sökum einblíni AGS sérstaklega að því hvernig bankakerfið og eftirlitsstofnanir þess verði endurreistar, ekki megi gera sömu mistökin aftur.
Aðstoð AGS við Ísland er einstök
Dominique Strauss-Kahn segist fullviss um að samstarf AGS sé Íslandi mjög í hag. Fyrirgreiðsla sjóðsins, ásamt lánum frá öðrum þjóðum, sé einstök í samræmi við stærð íslenska hagkerfisins. Hann telur að aðstoð sjóðsins hafi fest gengi krónunnar í sessi og þar með verndað íslenska skuldara gagnvart lækkandi gengi og vaxandi verðbólgu.
Þá segir hann að aðstoð AGS hafi verið forsenda þess að ríkissjóður geti ráðið við hinn ógnarmikla fjárlagahalla sem efnahagshrunið hafi skilið eftir sig. Þá fullyrðir hann að áhrif hrunsins hafi ekki verið eins slæm á Íslandi og tilefni gáfu til, jafnvel þó mörgum Íslendingum kunni að þykja það ótrúlegt. Í sambærilegu efnahagshruni annarra landa hafi afleiðingarnar verið mun djúpstæðari.
Að lokum segir Strauss-Kahn í bréfi sínu að AGS muni halda stuðningi sínum áfram svo lengi sem íslensk stjórnvöld kjósi svo. Þá segir hann sjóðinn fullvissan um að þær aðgerðir sem gripið hafi verið til séu það besta sem Ísland geti nýtt sér til að koma sér út úr efnahagsástandinu.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
95 ummæli
Rita ummæli14.11 2009 kl.03:40
Slóð
Þá vitum við það gott fólk - það VORU FRÆNDUR OKKAR !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Öfundsjúku Danirnir, Norsararnir og helvítis Svíarnir!
14.11 2009 kl.03:45
Slóð
Einkavinavæðingin mistókst.
Það segir sig sjálft þegar braskarar úti í bæ eru fengnir til að passa fjöregg landsmanna. Þetta er nú líka svolítið suss á SUSarana.
Hitt merkilega við þetta álit mannsins er að hin norðurlöndin hafi heimtað Iceslave afgreiðslu.
14.11 2009 kl.03:46
Slóð
stór frétt
14.11 2009 kl.04:18
Slóð
Og þar góðir sjálfstæðismenn hafið þið það svart á hvítu !!!
Einkavæðing bankanna undir stjórn sjálfstæðisflokksins er fyrst og fremst ástæðan, svo náttúrlega regluleysið og eftirlitsleysið -
ALLT **** Í **** BOÐI **** SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS **** !!!!!!!!!!!!!!!!
14.11 2009 kl.05:42
Slóð
Nákvæmlega Halldór - vont að flokkshestar siðleysingjaflokksins eru ónæmir fyrir staðreyndum - verra að þeir eru 33% þjóðarinnar samkvæmt síðustu könnun - verst að það á bara að tjalda öllu til að þeir komist til valda að nýju til að halda áfram hagsmunabaráttunni fyrir hina vellauðugu!
14.11 2009 kl.06:36
Slóð
Þessi orð stjórans eru firn mikil. Áfellisdómur yfir 3 flokkum og þeirra forystu ásamt eftirlitsstofnunum. Nú þurfa þessir 3 flokkar að biðja þjóðina afsökunar og endurnýja alla sína forystu og þingmenn. Allir embættismenn sem ráðnir hafa verið á flokkspólitískum forsendum ættu einnig að segja af sér.
14.11 2009 kl.07:02
Slóð
Já og 33% þjóðarinar eru heilalausir sauðir sem finnst gott að láta nauðga sér i afturendann aftur og aftur. Dabbi og Geiri eru verstu hörmungar sem
riðið hafa yfir þessa þjóð í ÞÚSUND ÁR...
14.11 2009 kl.07:03
Slóð
Þá höfum við það beint í æð frá sjálfum framkvæmdastjóra AGS: einkavæðingin undir forystu Sjálfstæðisflokksins og framsóknarflokksins voru mistök og eftirlitsstofnanir brugðust heldur betur ! Þessir flokkar þurfa heldur betur að hreinsa til hjá sér og koma ekki nálægt annari einkavinavæðingu í bráð-já aldrei aftur.
14.11 2009 kl.07:19
Slóð
Hvað skyldi Stoltenberg segja við því?
14.11 2009 kl.07:31
Slóð
Hver þarf óvini sem á svona frábæra vini eins og Svía, Dani, Norðmenn og Finna!
Sannleikurinn er væntanlega sá að Quislingarnir í SF hafa grenjað út hjá “vinum” okkar að semja þurfi fyrst um Icesave til að styggja ekki Breta og Hollendinga í innlimunarferli Íslands í ESB.
Flokkur með 29% fylgi er búin að eyðileggja þessa þjóð með því að semja sem sakamenn um Icesave með fulltingi leiguliða í VG, það er þó von að leiguliðarnir í VG njóti ilsins í skónum sínum af frostmíginu enda harða gaddur framundan í samskiptum við þjóð ykkar.
Lilja Mósesdóttir, ekki láta svokallaða velmenntaða grasrótarmenn villa þér sýn enda er að koma æ betur i ljós hvað þessi þjóð á mikið magn af vel menntuðum vitleysingum, það sést best á því að við höfum aldrei haft jafn vel menntað fólk við stjórnvöl þessarar þjóðar, bæði hjá ríki og einkafyrirtækjum, og síðustu 10-20ár en árangurinn er eitt epic mega flopp.
Það sem gerðist var að bókvitið ruddi í burtu reynslu, hæfileikum og getu eldri kynslóða til að stjórna þessu samfélagi af visku og réttsýni.
Kveðja
Kjósandi VG
14.11 2009 kl.07:45
Slóð
hætta norðurlandasamstarfi strax
14.11 2009 kl.07:58
Slóð
Já - nú hættum við ÖLLU Norðurlandasamstarfi og engar verslunarferðir til Köpen lengur !
Annað sem mér finnst alveg rosalegt. Við erum alltaf að tala um hvað “útrásarvíkingarnir” eða betur sagt “auðrónarnir” hafi verið OG eru enn siðblindir. Þetta finnst mér líka sjálfstæðismenn vera - alveg rosaleg. Þeir GETA EKKI SKILIÐ að þeirra flokkur hafi gert NOKKUÐ rangt!
Geðlæknir sagði það alveg rétt - svo virtist sem sjálfstæðismenn væru upp til hópa siðblindir og væri það alveg grafalvarlegt mál ef slíkir hópar kæmust hér aftur til valda í samfélaginu. Samt vill fólk áfram fá meiri og fleiri sykopata og siðblindingja !!
14.11 2009 kl.08:32
Slóð
Halldór
14.11 2009 kl.07:58:
Tel að það sé ekki rétt að kenna hinum norðurlöndunum um ófarir okkar.
Þeir voru búnir að horfa upp á ruglið í útrásarræningjunum og hérna heima í forundran og senda okkur margar aðvaranir “sem voru bara öfund”, sögðu útrásarræningjarnir. ISG var ræningjunum sammála og vildi laga málið með PR, sælla minninga, þegar danir hlógu sig máttlausa á PR-fundi hennar í Kaupmannahöfn (Siggi Einars var í farangrinum).
Er sammála þér um sjálfstæðismenn. Er raunar steinhissa á þingliði þeirra þar sem hrokinn er hálfu meiri en fyrir hrun. Var þó meira en nóg fyrir af hroka.
14.11 2009 kl.08:35
Slóð
Kæru Íslendingar, bræður okkar og systur á norðurlöndum vildu ekki gefa fyllibyttunni sem Íslenzka hagkerfið var annan sjúss áður en hún tæki aðeins til eftir síðasta sukk. Þau eru sannir vinir.
14.11 2009 kl.08:36
Slóð
Ég get skilið það að önnur lönd hafi ekkki áhuga á að lána nema að tryggt sé að það sé greitt til baka, enginn gefur peninga.
En miðað við aðdragandann þá er helvíti lélegt að norðulandaþjóðirnar hafi sett þetta fra ég frekar trúi því að þetta sé eitthvað spil til þess að þegja yfir innheimtunni fyrir bretana.
En þetta með að hrunið sé bein afleiðing af einkavæðungunni og spillingunni á íslandi þurfti nú engan útlending til að sjá það.
Svo mæli ég með að Sjálfstæðisflokkurinn verði bannaður og meðhöndlaður svipað og nasistaflokkurinn eftir stríð, slíkar eru hamfararinar sem þessi mafía er búin að kalla landslýð.
14.11 2009 kl.08:40
Slóð
Eigum við ekki að krefja AGS um staðfestingu norðurlandanna á að það hafi verið í lagi að afgreiða annan hluta lánsins. Sú staðfesting er örugglega ekki til og orð Dominiqe Strass-Khan einskis virði. Þetta var verk AGS og einskis annars.
14.11 2009 kl.08:45
Slóð
Halldór! Ég skil ekki alveg fólk með viðhorf eins og þú. Úthúðandi norðurlöndum fyrir að vilja ekki lána pening nema með skilyrðum, en á sama tíma að tala um að einkavinaflokkarnir hafi svikið Ísland og staðreyndin er sú að það bendir margt til þess að þessir flokkar séu einmitt það sem fólk á Íslandi vilji að taki aftur við stjón landsins! Allavega reyna stuðningsmenn einkavinaflokkana að slá ryki í augu fólks og benda eingöngu á utanaðkomandi sem orsakavald hrunsins. Hvernig er hægt að ætlast til þess að norðurlöndin taki okkur alvarlega meðan við sjálf gerum allt til þass að sýna að við séum ekki þess virði. Þótt talað sé um að þetta séu frændur okkar, þá er meðvirkni ekki það sem alkinn þarf.
14.11 2009 kl.08:47
Slóð
Það er heimska að reiðast Norðurlöndunum. Sökudólgarnir eru íslenskir. Hristið af ykkur hrokann og horfist í augu við sannleikann.
14.11 2009 kl.08:47
Slóð
Þeir sem þekkja okkur best eru hin norðurlöndin og Íslendingar eru heimsmeistarar í veruleikaflótta og reyna í allra lengstu lög að forðast að taka á óþægilegum hlutum. Grundvallaratriðið er að viðurkenna mistök og afsaka fyrir þjóðini hvernig “heilalausa helmingaskiptastjórnin” náði að eyðileggja viðskiptasiðferðið og keyra landið af hömrunum og síðan tók við ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sem klúðraði síðasta hlutanum. Þessi ríkisstjórn núna hefur heldur ekki náð að komast út úr “holunni” en væntingarnar eru í raun raunveruleikfyrrtar.
Því miður virðist ættbálkasamfélagið íslenska vera áfram í veruleikaflótta. Það er enginn sem vill lána okkur aðrir en Norðurlöndin og IMF.
Við erum dregin á eyrunum eins og óþekktarormur til að borga fyrir skemmdir sem viðkomandi hefur ollið með ábyrgðarleysi, aðgerðarleysi og eftirlitsleysi. Það hefur enginn samúð með okkur hvað varðar Icesave sem er alíslenskt klúður hvernig sem á það er litið. Það að greiða til fulls innistæður í íslenskum bönkum á Íslandi kostaði ríkissjóð stórfé og jafnvel var dælt peningum í peningamarkaðssjóða. Síðan bar íslenska ríkið ábyrð á að tryggingasjóðurinn ætti nóg fé. Já þeir hefðu bara geta látið innlenda og erlenda innistæðueigundur skipta þessum galtóma tryggingarsjóði sín á milli. Það hefði í raun leitt af sér að fólk hefði aldrei lagt peninga í íslenska banka.
14.11 2009 kl.09:21
Slóð
Hvað með bankana í allri Evrópu sem fóru á hausinn í fyrra og þeir bankar sem voru á nippinu að fara á hausinn enn var bargað af ríkinu með svo kölluðu bailot.
Voru þeir mistök einkvæðingar í Evrópu og þessir hundrað og eitthvað bankar sem hafa farið á hausinn í Ameríku ásamt hundruða hótelkeðja?
Norðurlöndin kröfðust sátt um málið icesafe áður enn þeir myndu setja fram lánin.
Enn það jafngildir kannski því að Norðurlöndin standa við bakið á Bretunum miðað við hvernig hefur verið staðið að þessu máli frá upphafi með beitingu hriðjuverkalaga á Bankana úti og svo smningarnir sem eru stórvarasamir í letrinu.
Og svo þetta mál án dómstóla og hvernig þeir beittu valdi sínu vegna stærðar þeirra gagnvart þjóð sem gat ekki varið sig og þá allra síst þegar hrunið varð bara á einum sólahring með tilkomu beitingu hriðjuverkalaga.
Þetta skal vera haft í okkar mynnum svo lengi sem við lifum.
14.11 2009 kl.09:34
Slóð
Þetta er allt okkur sjálfum, réttara sagt okkar miklu stjórnmála”leiðtogum” að kenna sem bjuggu hér til jarðveg fyrir fjármálaglæpamenn að spretta í, eins og gorkúlur.
Sá er vinur er til vamms segir og því þýðir ekkert að væla Norðurlöndin þetta og Hollendingar hitt. Icesave í Hollandi er þannig dæmi að mér finnst með ólíkindun að Hollendingar hafi ekki beitt meiri hörku, þetta var algjört “take the money and run” dæmi. Opnað í maí og lokað í september púff! nó monní sorrí.
14.11 2009 kl.09:40
Slóð
leiðrétting : ekki einu sinni sorrí
14.11 2009 kl.09:57
Slóð
” segir Strauss-Kahn m.a. að lausn Icesave-deilunnar hafi aldrei verið krafa af hálfu sjóðsins, heldur hinna Norðurlandanna sem hafi ekki viljað lána Íslendingum nema Icesave væri til lykta leitt.”
Skandinavar eru drengir góðir og VINFASTIR - halda jafnan með þeim sem betur hefur.
Með svona vini er ekki mikil þörf á óvinum.
ESB er sama súpan.
Allt þetta lið vill viðhalda meingölluðu og gjörspilltu fjármálakerfi sem leyfir pólitíkusum og fjárglæframönnum að rukka þjóðir sínar fyrir eigin mistökum.
14.11 2009 kl.10:04
Slóð
Og nú er “norræna velferðarstjórnin” að verða búin að einkavæða bankakerfið á ný. Og það til einhverra sem enginn veit hverjir eru. Erlendra vogunarsjóða og hugsanlega gömlu eigendanna...
14.11 2009 kl.10:06
Slóð
Voðalega er þetta mikið tilfinningamál hjá sumum. Fara að skæla af því að leiðinlegu og hallærislegu frændur okkar vildu ekki lána okkur peninga án allra skilyrða. Hvernig væri að sýna smá manndóm og haga sér eins og ábyrgri og sjálfstæðri þjóð sæmir?
14.11 2009 kl.10:13
Slóð
Karlinn er bara að verja sig. Hvers vegna eigum við að trúa honum?
Það var eðlilegt að Norðurlöndin vildu fá tryggingu fyrir þvi að AGS stjórnaði endurreisninni.
Það eru eins ríkisstjórnir, og hér, á Norðurlöndunum, amk í Noregi. Þeir sem stjórna þar þekkja þá sem stjórna hér núna.
Það segir alla söguna.
Eina von þjóðarinnar, með þessa vonlausu ríkisstjórn, er að AGS stjórni endurreisninni, og skipti sér af.
Og við eigum að hafna Icesave samningunum.
14.11 2009 kl.10:15
Slóð
Samfylkingin hefur verið í ríkisstjórn frá maí 2007. Skelfileg er staðan sem Samfylkingin hefur komið þjóðini í, fyrst bankahrun, síðan kreppan, núna Icesave og næst ESB aðild.
ALLT °°°° Í °°°° BOÐI °°°° SAMFYLKINGARINNAR.
14.11 2009 kl.10:17
Slóð
Steingrímur Joð og Johanna lugu að okkur.
14.11 2009 kl.10:27
Slóð
Geri orð Magnúsar hér að ofan að mínum:
“Svo mæli ég með að Sjálfstæðisflokkurinn verði bannaður og meðhöndlaður svipað og nasistaflokkurinn eftir stríð, slíkar eru hamfararinar sem þessi mafía er búin að kalla landslýð.”
14.11 2009 kl.10:29
Slóð
En hvað með Hollendinga og Breta ? Og hvers vegna beittu norðurlandaþjóðir þessum þrýstingi ? Við vitum öll að samkvæmt reglum ESB þá mega þjóðir ekki taka ábyrgð á skuldum einkabanka. AGS hafði lagt blessun sína yfir einkavæðingaferlið og þetta er tilraun AGS að hvítþvo sig ... og málið er að aldrei hefði átt að einkavæða banka á Íslandi, hagkerfið er einfaldlega of lítið ... hér er einfaldlega verið að kveikja á minnimáttarkenndinni.
14.11 2009 kl.10:33
Slóð
Svíar drógu hin norðurlöndin með sér í svaðið að verja ESB sukkið.
Og Samfylkingin gekk í lið með þeim og gaf skít í landann.
Það er enn veik von um að nokkrir VG liðar standi í lappirnar.
14.11 2009 kl.10:36
Slóð
Þá er það komið í bjart dagsljósið.
Sjálfstæðið og Framsókn tóku þjóðina fyrst á beinið og síðan komu “vinaþjóðir” okkar næstar.
Oft hefur verið þörf, en nú er nauðsynn að kalla sendiherra okkar heim frá norðurlöndum og loka sendiráðum þar. Góður sparnaður og augljóslega ekkert með það að gera.
14.11 2009 kl.10:38
Slóð
Það sem ég skil ekki varðandi IceSave, er af hverju í ósköpunum það hefur enginn tekið sig til og pantað leigumorðingja til að ganga frá Landsbankastjórunum fyrrverandi?
Þetta eru hreinræktaðir glæpamenn sem hikuðu ekki við að ræna ævisparnaði þúsunda einstaklinga og fjölskyldna, margar hverjar sem sitja núna eftir slippar, snauðar og jafnvel dauðar.
14.11 2009 kl.10:41
Slóð
Sammála því Píp blog að Samfylkingin ber sína ábyrgð og forysta hennar en stærst er í raun sök heilalausu helmingaskiptastjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þar sem þeir með bláu (Bjöggarnir og co) fengu lán í græna bankanum og græna gengið fékk lán hjá hinum.
Í raun minnti Landsbankinn á flokksskrifstofu Sjálfstæðisflokksin með eigendurnar Bjöggana, með Sigurð Þ. Árnason sem bankastjóra, Heimdelling, Vökumann og Sjálfsæðismann, formaður bankaráðs var Kjartan Gunnarsson sem var hægri hönd Davíðs til margra ára og rak Sjálfstæðisflokkin til margra ára sem framkvæmdastjóri flokksins. Síðan var rektor Háskólans í Reykjavík Svafa Grönfeld í bankráðinu, sem má segja að sé klakstöð útrásarinnar.
Þessu var gætt með vökulum augum FME stýrt af Heimdellingnum Jónas Fr. Jónssyni og Seðlabanka Íslands leitt af Davíð Oddsyni með sjálfum hugmyndafræðingnum og sagnfræðingnum prófessor Hannesi Hólmsteini í bankaráðinu. Árni Matthissen dýralæknir og fjármálaráðherra og Geir H Haarde forsetisráðherra voru ábyrgir fyrir efnahagsstýringunni.
Ef hægt er að kenna einhverjum einum flokki um höfuðsök er það Sjálfstæðisflokkurinn en þar viðurkennir enginn neitt, nema SUS og allt er öðrum að kenna, vondum Englendingum, Hollendingum já meira að segja Norrænu ríkjunum..... Já og sumir eru búnnir að gleyma eða vilja helst gleyma og grafa þetta.
14.11 2009 kl.10:53
Slóð
Klárlega eru Íslendingar komnir í þá stöðu nú að það þarf að velja viljum við opinbert kerfi þeas. heilbrigðis, mennta- og velferðarkerfi af sömu gæðum og hin norrænu ríkin eða ekki.
Ef við viljum það þarf bæði að hækka skatta og skera fitulagið sem heilalausa helmingaskiptasjórnin og seinna aðgerðarleysisríkisstjórnin komu á. Það að halda að bara sé hægt að skera niður og ætlast til sömu velferðarþjónustu og fólk hefur vanist.
Ef fólk vill stórlega minnka þjónustu hins opinbera með lélegra heilbrigðiskerfi sem byggist meira á eigingreiðslum og sértækum tryggingum.
Það eru þrir stórir liðir í fjárlagafrumvarpinu það er félagsmálakerfið, menntakerfið og heilbrigðiskerfið, klárlega má spara þar og þarf að spara þar en pólitíska spurningin verður sú vill fólk fá minni þjónustu og meira segja með sömu framlögum mun þjónustan minnka. Fólk verður eldra og það verður þá veikara auk þess eru margar gríðarlega dýrar krabbameins meðferðir og meðferð við sykursýki, MS, liðagigt, psoriasis orðin miklu mun betri og miklu dýrari en áður. Á að setja þak á þetta þannig að við hættum að meðhöndla með þessum lyfjum. Sjúklingar með MS fá ekki Tysabri(R) (natalizumab) sem fólk í nágrannalöndum okkar fær. Þeir sem segja að það sé hægt að spara um 200 miljarða án þess að skerða þjónustuna eins og Sjálfstæðisflokkurinn heldur fram af hverju voru þeir þá ekki búnnir að þessu fyrir löngu, hvers konar fífl eru þetta?
14.11 2009 kl.11:12
Slóð
Gunnr ... Alltof lág skattleysismörk ásamt aukasköttum og þjónustugjöldum gerir það að verkum að hinn venjulegi Íslenski launþegi greiðir mikið meir en nóg og hærri skatta samanborið við norðurlönd ... skýrsla OECD sannar þetta, en Sjálfstæðismenn sátu á þessari skýrslu og héldu henni leyndri fyrir almenningi í þar síðustu kosningum ... skera þarf niður í rekstri alþingis,
14.11 2009 kl.11:18
Slóð
Ég er ekkert að verja skatta. Minni á að á hinum Norðurlöndunum eru engin skattleysismörk þar er persónuafsláttur.
Annars held ég að það sé í raun sorglega rétt að ef við viljum reyna að halda uppi velferðarkerfi í líkingu við hin norrænu ríkin er það í raun ógerlegt án þess að hækka skatta. Það þarf einning að skera niður í opinbera kerfinu það er í raun óumflýjanlegt.
Við verðum að ná fullu jafnvægi á ríkisreksturinn og þá fyrst má búast við að krónan fer að styrkjast sem gerir það að verkum að skuldabyrði af erlendum lánum lækkar.
14.11 2009 kl.11:18
Slóð
Haldið þið virkilega að vellauðugur Íslendingar ætli að hanga hér á þessu volæðisskeri sem hafði þó það eina að bera að hér var gott að vera út af öflugum hagvexti ??
Allir með viti sem eiga pening munu koma sér héðan burt enda verður lítið hér við að vera á næstunni.
1) Aukin glæpatíðni með versnandi ástandi
2) Háir skattar og höft styrkja skipulagða glæpastarfssemi (t.d. áfengi og gjaldeyrismál)
3) Illa staddar fjölskyldur skila af sér verra uppeldi vegna vandamála heima fyrir sem aftur mun skapa plágu glæpamanna í framtíðinni
4) Háir skattar sem ekkert skilja eftir í pyngju fólks
5) Svört framtíðasrsýn mun hamla uppbyggingu
6) Vinstri stjórn sem hamlar stóriðju sem þó er það eina samkvæmt AGS sem getur bjargað okkur
7) Góðar líkur á greiðslufalli íslendinga og þar með enn frekara falli krónunnar og þar með greiðslufalli OR og Landsvirkjunar etc etc
Gleymið að nýsköpunarfyrirtæki geti bjargað okkur ... Marel/Össur/CCP voru öll um 10 ár í uppbyggingu og það er ekki tími til að veðja á slíkt.
Það er ljóst að þeir sem eiga pening munu koma sér héðan og þeir sem eru með viti gera það líka ........
14.11 2009 kl.11:45
Slóð
Fyndið... hér sér maður sama fólkið og drullaði yfir okkur fyrir að senda Dominique Strauss-Kahn bréf.. velta sér upp úr svarinu.
Kannski tímabært að viðurkenna að það eru engar spurningar of ómerkilegar til að spyrja þeirra... og allir eiga jafnan rétt á að spyrja þeirra?
14.11 2009 kl.11:50
Slóð
Já aumingja Íslendingar, fóru á brjálað fyllerí í útlöndum og stungu svo af frá reikningnum. Svo er fólk svo ósvífið að vilja láta okkur borga...
uss uss, það sem ég segi, útlendingar. Lokum landinu og skellum í lás. Sjálfsþurftarbúskapur er það sem bívur..
14.11 2009 kl.12:04
Slóð
Þetta er soldið merkilegt í ljósi þess að Simmivává var svo gott sem búinn að tryggja okkur risalán frá Noregi.
Jóka sendi tölvupóst og rústaði billjónadílnum fyrir Simma.
Voffvoff.
14.11 2009 kl.12:20
Slóð
Til hvers norðurlandasamstarf ? þetta eru aumingjar upp til hópa þessir norðurlandabúar. Við eigum að slíta á allt samstarf við þetta pakk.
14.11 2009 kl.12:31
Slóð
Saddam,
Nærtækari líking væri að SÁÁ/Vogur krefðist þess að fólk væri búið að ganga frá öllum barskuldum áður en meðferði gæti hafist.
14.11 2009 kl.13:28
Slóð
Auðvitað er Dominique Strauss-Kahn, að kenna Norðurlöndunumum
töfina á úttekt AGS. En hver kennir ekki öðrum um. Samfó er sannfærð um að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafi öllu ráðið. Hver sá nú um söluna
á Alþýðubankanum, sem síðar varð Glitnir?. Hver fór að selja byggingarlóðir
og setti fjármálakerfið í ofur- vísitölubólu með því?. Það var R-listinn.
Þá byrjaði ballið.
Norðurlöndin hafa aldrei verið neitt vinsamleg við okkur þessa blöndu af
Írum, Skotum og Norðmönnum, sem haf kúrt hér við misjafnar aðstæður
útí Norðurhafi. Enda ber þeim svo sem engin skylda til þess.
14.11 2009 kl.13:42
Slóð
ég trúi honum ekki það sem hann seigir. þetta er gamall maður sem á ekki etfir að vera lengi á stólnum sínum.
14.11 2009 kl.13:50
Slóð
Arnar kjaftæði, hann stefnir á franska forsetann 2012 og það leynt og ljóst. Ef þú heldur að DSK sé á leið á elliheimili það er ekki svo.
14.11 2009 kl.13:56
Slóð
KE hinir réttu aumingjar eru við Íslendingar sjálfir. Við erum í áraraðir búin að láta ljúga að okkur. Við höldum að við vitum allt best, hlustum ekki á aðra viðurkennum ekki mistök. Höldum að ábyrgð er eitthvað sem þarf ekki að taka tillit til og skiljum eftir skítinn á dyramottunni og stofugólfinu hjá öðrum. Icesave skítinn verðum við látin hreinsa upp á okkar kostnað að halda eitthvað annað er veruleikafyrring. Þetta er EB, seðlabanki Evrópu og norrænu seðlabankarnir búnir að ákveða fyrir löngu.
1/3 kjósenda er meira segja tilbúin að kjósa yfir sig þá sömu sem komu okkur í þessar ógöngur og láta drulla yfir sig aftur. Þeir eru ekkert búin að læra, ekkert búin að viðurkenna, ekkert nema hroki og gorgeir, það má alla vega segja um SUS að þeir viðurkenndu þetta.
Annars eru það norðurlönd sem kosta mestan hluta aðstoðar við okkur þótt við eigum það raunar ekki skilið að mínu viti.
14.11 2009 kl.14:00
Slóð
@Heiða,
Ég skrifaði það bara að það væru engar líkur á að DSK kæmi og hitti einhvern hóp á Íslandi eða mætti persónulega á borgarafund á Íslandi eða í einhverja sjónvarpsþætti hér. Það væru álíka miklar (eða litlar) líkur eins og Obama kæmi hingað. Við erum bara lítið efnahagslegt graftarkýli og skiptum litlu/engu máli í hinu stóra samhengi.
Enda kom það á daginn hann ætlar ekkert að koma og ætlar ekkert á fund með einhverjum eyjarskeggjum frá Íslandi. Það er þá komið fram.
14.11 2009 kl.14:07
Slóð
frakkar vilja ekki gamlann mann í forsetastólinn.
14.11 2009 kl.14:11
Slóð
Það er alveg dæmigert hjá sumum hér að ráðast á hin Norðurlöndin fyrir að treysta okkur ekki ekki fyrr en við göngum frá skyldum okkar gagnvart englendingum og hollendingum áður þau fara að aðstoða okkur með frekari lánum.
Við íslendingar komum okkur í þessa stöðu sjálf og hinar norrænu þjóðirnar komu þar hvergi nærri nema að vara okkur við.
14.11 2009 kl.14:19
Slóð
Alltof margir Íslendar eru eginhagsmunaseggir og vælukjóar þola ekki að horfast í augu við sannleikann. Auðvitað álíta hin norðurlöndin okkur vera vitleysinga sem ekki er treystandi fyrir peningum. enda er það reynslan.
14.11 2009 kl.14:25
Slóð
Eyjólfur.kl.12:31 Norðurlöndin eiga ekki að vera okkar meðferðarstofnun, þau bera enga ábyrgð á okkar fylleríi. Við eigum að heita sjálfstæð þjóð og eigum enga kröfu á að aðrar þjóðir komi hlaupandi í hvert sinn sem við dettum í það.
Nú er kominn tími til að horfa inn á við, horfast í augu við sjálfan sig og þá staðreynd að hér varð algjört hrun af okkar eigin völdum. Við berum öll ábyrgð, en aðeins með misjöfum hætti.
1. Sumir bera ábyrgð sem aðilar sem lofuðu að stjórna landinu öllum þegnum þess til heilla, en í þess stað hygluðu sér og sínum og gáfu fáum útvöldum heimild til að ganga um rænandi og ruplandi.
2. Sumir bera ábyrgð sem eftirlitsaðilar sem brugðust, en það er einnig hægt að rekja til fyrsta hópsins sem lagði línunar í eftirliti.
3. Sumir bera ábyrgða sem aðilar sem tóku þátt í því að blekkja og ljúga og aðstoða þjófana við ránið.
4. Sumir er bara samviskulausir þjófar.
5. Við hin berum ábyrgð sem felst í því að láta blekkjast, að hafa ekki dug í okkur til að hafa skoðanir og láta þær í ljósi. Að gagnrýnilaust láta leiða okkur eins og lömb til slátrunar. Að taka þegjandi þátt í sukkinu.
Hópi 1 og 4 er ekki við bjargandi. Það eru að mínu mati bara hreinræktaðir glæpamenn og sneyddir öllu siðferði.
Það er von fyrir hóp 5, en hann verður að bjarga sér sjálfur. Hann þarf að rífa hausinn upp úr sjálfsvorkuninni og fara að takast á við staðreyndirnar og hætta að kenna öllum öðrum um. Fyrir marga, sem hafa tapað miklu, misst þakið ofan af höfði sér og standa slyppir, snauðir og niðurlægðir eftir á nærbrókunum einum fata, er það stór biti að kyngja. En það þarf bara að kyngja honum ef hann á ekki að standa í hálsinum og valda köfnun.
Þegar búið er að kyngja er hægt að taka ákvörðun um hvernig skulu bregðast við orðnum hlut. Það er hægt að berjast og koma því til leiðar að réttlætið nái fram að ganga. En standa bara á nærbuxunum og grenja og grenja held ég skili litlum árangri.
Fólk þarf að gera upp við sig hvernig þjóðfélag það vill byggja og berjast fyrir því. Það gildir einnig við um þá sem sluppu við skrekkinn að þessu sinni. Það fólk verður að koma sér upp úr bómullarveröld sinni og taka ákvaðanir til handa börnum sínum eða barnabörnum. Hvernig þjóðfélag óskar það sínum að búa í. Þjóðfélagi rættlætis og jöfnuðar eða þjóðfélagi misskiptingar þar sem fátækt og spilling þrífst.
Við getum haft áhrif, en það þarf að hafa fyrir því. Við verðum að hætta að grenja og verðum að fara að berjast, saman. Við verðum að byrja á því að hafna þeim sem eru hluti af þessu spillingarkerfi, hvort sem það eru stjórnmálamenn, einstaklingar eða eiginhagsmunahópar.
14.11 2009 kl.14:25
Slóð
@Arnar, Tja, ... vertu ekki svo viss. Ef það þarf sambönd til að berjast í gegnum og verða viðurkenndur sem forsendaframbjóðandi sósíaldemókrata, það á DSK raunhæfa möguleika til og þá verður valið milli hans að lokum og núverandi forseta Frakklans Nicolas Sarkozy. Það eru margir um það bein en þú veist kanski ekki að DSK var fjármálaráðherra í mestu vinstristjórn Frakklands og væntanlega mestu vinstri stjórn allra tíma í vestrænu landi stjórn Lionel Jospin, Hann kemur frá elítuskólanum HEC http://fr.wikipedia.org/wiki/Hautes_%C3%A9tudes_commerciales_(Paris) þar sem hann er raunar prófessor en sá skóli álitinn besti viðskiptaskóli evrópu og er 7. besti háskóli í heimi og er álitinn hakki betri en Oxford sem er 6 sinnum stærri skóli. Það eru 500 háskólar metnir og þar eru flestir norrænu háskólarnir innan við 100 bestu meðan enginn af þessum íslensku svokölluðu háskólum kemst á blað yfir 500 bestu. En við erum samt heimsmeistarar og kunnum allt best, en erum bara aular en vitum það ekki einu sinni sjálfir.
14.11 2009 kl.14:32
Slóð
skynjum mín á þessu ástandi er ekki flóknari en það að íslenskir stjórnmálamenn og konur hljóta að vera : Kjánar
14.11 2009 kl.14:36
Slóð
nú ríður á að fólk sé ekki að karpa um fegurð litanna: rauðs, guls eða blás eða græns.
heldur reki hnefann undir bringuspalir þingheims og embættimannaskerfisins og gjörsamlega heimti að óhæfa fólkið sé svælt út og nýtt og betra komi í staðinn.
það skiptir akkúrat engu hvar í flokki lélegir eru !!! bara burt með þá.
14.11 2009 kl.14:36
Slóð
Ég hélt að þetta væri það sem allir hefðu vitað, þ.e. einkavæðing bankana til vina og vandamanna í stjórnartíð Sjálfst.flokks og Frams.flokks var það sem steypti landinu í glötun. En það er nú svo með þessa áðurnefndu flokka, að þeir eru svo lúnknir við að lýsa sig saklausa af öllu, og koma sök á aðra.
14.11 2009 kl.14:49
Slóð
Alveg hjartanlega sammála um siðblindu og hroka sjálfstæðismanna. Þessu fólki er algerlega fyrrimunað að sjá að þau hafi gert nokkuð rangt!
14.11 2009 kl.15:18
Slóð
Ég skil það mjög vel að hin norðurlöndin vildu ekki lána okkur skilyrðislaust miðað við það sem hefur gengið hér á undanfarin ár
Myndi einhver lána spilasjúklingi eða dópista pening þó að hann myndi lofa að nota þá í eitthvað uppbyggilegt
14.11 2009 kl.15:50
Slóð
Frændur eru frændum verstir.
Ég skil vel að framtíðar lánveitendur vilja sjá gagngerar gagngerar umbætur á fjármálakerfinu hér áður en þeir láta til skarar skríða.
Afstaða svokallaðra vinaþjóða, sem eru faktískt orðnar að ESB fylkjum er samt sjúklega óskiljanleg, þar sem skilyrðin um að borga upp skuld sem englendingar og hollendingar ákváðu EINHLIÐA að við skulduðum sér yrði greidd að fullu,- sem íslendingar geta aldrei gert,-verðu aldrei fullnægt.
Svíar eru í svipaðri stöðu og hollendingar og bretar og eru að handrukka eystrasaltslöndun þessa stundina.
Síðan, þegar greiðslugetan er farin fyrir bí og lífskjör eru komin niður fyrir fátækramörk á allt í einu að fara að að lána okkur.
Við verðum að klóra okkur sjálf út úr þessum vandræðum með eða án hjálpar umheimsins og því mínni “hjálp” því betra.
14.11 2009 kl.15:53
Slóð
@hoffmann
Þessi staðreynd er og ætti í raun auðsæ flestum. Hef ekki mikið álit á þessari ríkisstjórn en hin fíflin sem voru ábyrgir fyrir heilalausu helmningaskiptastjórninni eru ekkert búin að viðurkenna neitt. Já spáið í því Tryggvi Þór Herbertsson í raun fjármálastjóra Werners bræðra og kúlulánaþega sem fjármálaráðherra, eða Pétur Blöndal auk Birgirs Ármannssonar sem í raun getur verið skilgreint sem afkvæmi verslunarráðs sem hefur síðustu árin þakkað sér að nánast allar tillögur um minnkuð afskipti og lög hér hafa verið frá þeim komin. Takk Verslunarráð!!!
Framsóknarflokkurinn er sér kapituli með Sigmund Kögunarson, Indefence sem í raun enginn hefur heyrt um utan Íslands. Þessa ferð þeirra til Lundteigens í haust og síðan virtual fjárlög þar sem þeir gera ráð fyrir gríðarlegu vaxtalausu láni frá Noregi.... Voru þeir eða eru þeir ennþá á lyfjum?
Síðan er hitt gengið með flugfreyjuna (tungumála)mállausu og um Baugsmiðlafréttamennina og aðra sem komust á þing undir kjólfaldi hennar.
Mosagrónir sófasósíalistar hafa náð völdum og vilja stefna landinu í aðra stegnu.
Þetta er gæfulegt en allt er betra en heilalausa helmingaskiptastjórnin sem er málsvari kúlulána og kvótakonga enda hefur þetta fólk klárlega ekkert lært og ekkert viðurkennt.
14.11 2009 kl.16:02
Slóð
GunnarS þetta Icesave dæmi er ósköp einfalt. íslenskur banki fer á hausinn og stórfúlgur eru greiddar úr ríkissjóði til að borga innistæður Íslendinga á Íslandi meðan erlendir innistæðueigendur er sagt að éta það sem úti frýs og bent á galtóman innistæðutryggingarsjóð. Meira var að þetta var vitað frá fyrstu tíð vísa til viðtala við iconið sjálft Davíð Oddsson þáverandi Seðlabankastjóra.
Íslenskur banki, undir íslenskri stjórn, undir íslensku eftirliti og hver átti að sjá til að það væri nægt fé i innistæðutryggingarsjóðnum? Áttu ekki bara að skipta þessu milli íslenskra og erlendra innistæðueigenda og segja ekki meiri peningar. Þetta var ekki gert og afleiðingarnar eru augljósar. Að þetta sé öðrum að kenna er bara spuni sem virkar á Íslandi. Við verðum aldrei látin komast upp með að hlaupast frá þessu annað er bara raunveruleikafyrra.
Vísa til færslu mína frá 10:41 í dag.
14.11 2009 kl.16:07
Slóð
Noregur er ekki í ESB en Svíþjóð, Danmörk og Finnland eru það. AGS/IMF lýtur ætíð stjón Evrópumanna en hin stofnunin, World Bank ætíð Bandarískri stjórn þetta var í raun vitað.
Bretar og Hollendingar eru klárlega svektir yfir því að sparifé þegna þeirra er rænt og auðvitað eiga stjórnvöld þar að hugsa um hag þegna sinna og það er ekki hlutverk skattborgara þeirra landa að hreinsa upp skít sem skilin er af íslenskum bankafíflum undir eftirliti amatöra í Seðlabanka og FME og dýralæknis í fjármálaráðherrastóli.
14.11 2009 kl.16:18
Slóð
Heilalausir kjósendur kusu aftur og aftur SjálfstæðisFLokkinn og Framsókn til að fara með völdin í landinu, það er heila vandamálið ! Einkavinavæðing og hömlulaus frjálshyggja á öllum sviðum er að koma í hausinn á okkur.
Sökudólgarnir eru ekki Norðmenn,Svíar,Danir og Finnar heldur eru það kjósendur á Íslandi - ÍSLENDINGAR sem kusu yfir okkur völd Davíðs með fulltingi Hallórs Ás.=Einkavinavæðing og hömlulaus frjálshyggja.
14.11 2009 kl.16:31
Slóð
Gunnr
14.11 2009 kl.16:02
Þetta er nokkurn veginn satt og rétt hjá þér og ábyrgð íslenskra banka-, stjórnmála- og embættismanna er mikil, vegna flumbrugangs, vanhæfni og vanhugsaðra aðgerða.
Hins vegar var um lífshagsmuni heillar þjóðar að ræða sem rétlætir aðgerðir sem þessar. Sjálfsagt er að gera upp í samræmi við reglugerð um innistæðutryggingarsjóð innistæðueigenda,- allt umfram það skrifast á þá sem skálduðu þessa reglugerð.
ALLIR sem stóðu að uppbyggingu- og stjórnuðu þessum óskapnaði eiga að bera ábyrgð á sínum gerðum og þar eru íslendingar smápeð á því skákborði og því fer fjarri að hér eigi íslendingar sem þjóð sök á þessu klúðri.
Hinn venjulegi Íslendingur sem var tilneyddur til að taka þátt í þessum skollaleik hvort sem honum líkaði betur eða verr er fórnarlamb en ekki gerandi og ber ekki ábyrgð á Icesave ævintýri Landsbankans hvað sem þú eða skoðanabræður þínir haldið fram.
Reyndar er verið að rukka venjulega englendinga, hollendinga o.s.frv. á sama hátt fyrir misgjörðir þeirra eigin banka,- embættis-og stjórnmálamanna og það er einfaldlega kominn tími til að stöðva þetta MATADOR spil sem stjórnmála og fjárglæframenn út um allan heim hafa spilað allt of lengi á kosnað venjulegra borgara þegar illa fer.
14.11 2009 kl.16:34
Slóð
Saddam
14.11 2009 kl.08:35
Slóð Kæru Íslendingar, bræður okkar og systur á norðurlöndum vildu ekki gefa fyllibyttunni sem Íslenzka hagkerfið var annan sjúss áður en hún tæki aðeins til eftir síðasta sukk. Þau eru sannir vinir.
Þeim hefur ekki þótt ástæða til að hleypa Oligarkaskrílnum og pólitískum varðhundum þeirra lengra.
Og almenningur sem svaf á verðinum öll árin geldur nú fyrir það.
Ekki eru fagrar lýsingarnar hjá Evu Joly.
En það verður sögulegur dagur ef þeir lenda í fangelsi á næstu fimm árum Davíð Oddson, Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson .......... og so videre.
Maður sér ekki betur en auðskríllinn sé að ná vopnum sínum að nýju.
Eftir fimm ár verður íhaldið komið í stjórn og Eva Joly heyrir sögunni til.
Íslendingar eru sjálfum sér verstir. Almenningur þar er vanur að kyssa á vöndinn og sjúga dúsuna.
14.11 2009 kl.16:51
Slóð
GunnarS ábyrgð Íslendinga var sú að hafa trúað þessu fólki fyrir landsstjórninni í kosningum, þetta var og er auðsjáanlega óhæft fólk. Annars voru 33% þeirra sem tóku afstöðu í núna í nýrri skoðanakönnun treysti Sjálfstæðisflokknum til að nauðga þjóðinni í annað sinn. Eitt ef þeir væru búnir að játa og viðurkenna mistök það er grunvallarforsenda þess að geta lært af mistökunum. Ekkert er viðurkennt og þá áætlar maður að þetta fólk er ekkert búið að læra.. Annars er ekki er úrvalið mikið. Mosagrónir sófasósialistar með prónapeysukerlingum útdaterað fólk eins og Álfheiður Ingadóttir ogfl. .... Guð blessi Ísland.
14.11 2009 kl.17:30
Slóð
Það að hafa verið auðtrúa gerir ísleska kjósendur ekki meðseka og það er pólitóskur masokismi sem hrjáir fólk sem vill endilega greiða einhverjar þúsundir milljarða, sem við skuldum ekki, i í von um það að þá verði allt gott aftur og allir geti leikið sér saman.
Þannig er þetta bara ekki.
Uppgjöf af þessu tagi gerir okkur að athlægi út um allan heim.
Nú þurfa þingmenn einu sinni að standa með þjóðinni. Ekki fara á ráðstefnur eða barnseignarrleyfi og fella þetta béskotans Icesavefrumvarp í eitt skipti fyrir öll.
Ég vona að Guðfríður Lilja hugsi til framtíðar litla króans á meðan hún er í felum frá ábyrgðinni sem henni var treyst fyrir í síðustu kosningum
14.11 2009 kl.18:35
Slóð
Vá, það er svo mikið nýtt í þessu að ég get ekki höndlað þetta. En var það ekki annar Egill Helgason, sem stóð á bak við ICESAVE kúgunina?
14.11 2009 kl.18:39
Slóð
Mikið nýtt er það ekki. Þetta er búið að liggja á borðinu bráðum í ár. Að forstjóri AGS kemur ekki á íslenskan borgara/sellufund með kínversku menningarbyltingarívafi á væntanlega að koma fáum á óvart. Hann þarf ekki að koma, hann fær ekkert upp úr því að koma og mun ekki koma álýtur vænanlega önnur mál brýnni og skyldi engan undra. Hann kemur væntanlega ekki á svona fundi á Grænhöfðaeyjum eða í Mongólíu.
14.11 2009 kl.19:15
Slóð
Hversvegna ættu norðurlöndin að hjálpa okkur, Íslensk stjórnvöld og stofnanir eru varla á setjandi og þurfa að skilja það.
14.11 2009 kl.19:22
Slóð
Er einhver íslendingur virkilega að kaupa það að STRAUSS KAHN hafi svarað þessu bréfi SJÁLFUR?
Íslendingar halda sig svo merkilega að þessi maður nenni einu sinni að skrifa þeim bréf, maðurinn er verndari ERLENDRA fjármagnseigenda og hefur engan áhuga á að eignast íslenska vini nema til þess eins að nota þá.
14.11 2009 kl.19:28
Slóð
Sammála Lárusi.
14.11 2009 kl.19:51
Slóð
Í raun liggur þetta í augum uppi, það er varla nokkur sem heldur að hann hafi sjálfur verið að skrifa þetta fyrir hóp fólks á Íslandi eða er það. Kannski han hafi lesið sjálfur yfir það en það er ekki einu sinni víst.
Annars er komið fram við Íslendinga sem skuldara og það er enginn sem kemur til með að henda á eftir okkur peningum enda höfum við ekki gott af því. Það verður okkur lærdómur að borga fyrir lélegt eftirlit og lélega hagstjórn og í raun ætti ríkissjóður að fara í persónulegt mál gegn bankastjórunum, eigendum bankanna og þeirra er sátu í bankaráði Landsbankans.
14.11 2009 kl.19:57
Slóð
Það að fara í persónulegt mál við þetta fólk í bankastjóraembættum og í bankaráðum og jafnvel fá það dæmt og greiða skaðabætur held ég að sé ákaflega mikilvægt og mun hræða fólk frá að samþykkja slíkt í framtíðinni það að eiga það á hættu að vera persónulega dreginn til ábyrgðar mun klárlega hvetja til varkárni. Ég er ekki lagamenntaður en er það ekki möguleiki að saksækja þetta fólk, ef ríkið gerir það ekki geta þá ekki skattborgar farið í mál?
14.11 2009 kl.22:45
Slóð
Ég trúi nú alveg mátulega því, sem kemur frá manni, sem rétt slapp af sakamannabekknum hjá Evu í Elf málinu. Margt af því, sem áður hefur komið frá AGS, eftir að þeir tóku Ísland í gjörgæslu, er helst í ætt við hálfsannleik og lygi.
Ef við hins vegar gefum okkur það, að Norðurlöndin hafi farið svona illa með okkur, þá vil ég koma með eftirfarandi skýringar: Svíar hafa klárlega viljað neyða okkur til að semja við Breta og Hollendinga um Icesave fyrst. Sænska bankakerfið riðar vegna gífurlegra lánveitinga til Eystrasaltsríkjanna, lána, sem nú eru í uppnámi vegna hruns af í öllum löndunum, en þó sínu verst í Lettlandi. Ef gefið væri eftir gagnvart Íslendingum í Icesave, óttuðust Svíar, að Baltar yrðu þeim tregari í taumi.
Norðmenn hafa örugglega lagst á sveif með Svíum, af því að Stoltenberg er í mun að neyða Ísland inní ESB. Þetta hefur sést áður á þreifingum um upptöku norsku krónunnar á Íslandi og stórt lán til Íslands, án skilyrða AGS. AP (systurflokkur Samfylkingarinnar) var okkur þá mótdrægastur í norsku ríkisstjórninni, nokkuð örugglega eftir pöntun frá forystu Samfylkingarinnar. SP og SV hefðu örugglega samþykkt slíka aðstoð við Ísland, ef AP hefði viljað hana. Formaður SP hafði m.a.s. frumkvæði að því, að Íslendingum yrði boðið að taka upp norsku krónuna.
Ég býst ekki við, að Danir hafi verið Íslendingum andsnúnir og þaðan af síður Finnar. En vegna eindreginnar andstöðu Svía og Norðmanna hafa þeir ekki beitt sér okkur í hag, enda Norðmenn og Svíar í dag öllu áhrifameiri ríki en hin tvö. Svíar í krafti mannfjölda og stærðar hagkerfis en Norðmenn í krafti olíuauðsins. Eða til að snúa þessu við: Ef Norðmenn og Svíar hefðu stutt slíka fyrirgreiðslu við Ísland, er ég nokkuð sannfærður um, að Danir og Finnar hefðu samþykkt hana fyrir sína parta.
15.11 2009 kl.00:08
Slóð
SÁ
Það vottar ekki fyrir sjálfsásökun og iðrun hjá landanum. Við getum ekki gert kröfu til þess aðrar þjóðir hjálpi okkur nema við gerum strangar kröfur til okkar sjálfra. Það er rétt að Svíþjóð á í gríðarmiklum fjárhagserfiðleikum það er um 10% atvinnuleysi og Noregur keyrði fra úr þeim í mars í ár og er stærsta og öflugasta hagkerfi Norðurlanda með 4,8 miljónir meðan Svíþjóð er með næstum tvöfalt fleirri íbúa 9,4 miljónir.
Annars er Noregur ekkert í vasanum á Svíþjóð, það er hægri stjórn í Svíþjóð og Danmörku meðan það er vinstri stjórn í Noregi. Þannig er að Noregur er efnahagslega miklu öflugri en Svíþjóð er með digra sjóði og geysilega mikið af ungu fólki hefur flutt og flytur frá Svíþjóð til Noregs og gríðarleg viðskipti eru yfir landamærin þannig að samskiptin eru góð. Klárlega væri ástandið miklu miklu verra í Svíþjóð ef þau hefðu ekki Noreg. Samstarf Seðlabanka landanna er afar náið og þessi lönd ásamt Danmörku þekkja okkur Íslandinga ákaflega vel og já þykjast í raun vita hvað okkur sjálfum er fyrir bestu. Þetta hefur farið ákaflega mikið í taugarnar á íslenskum ráðamönnum í gegnum árin og núna erum við fullkomlega orðin háð frændum okkur. Okkur var klárlega ekki treyst fyrir fjármunum nema í gegnum IMF. Það verður nú að segja að þessi hagstjórn á Íslandi hefur í raun verið heilalaus samkvæmt öllum mælikvörðum. Í raun hefur IMF farið að okkur með silkihönskum. Haldið uppi genginu og þanning hindrað algjört hrun krónunnar. Þetta Icesave mál urðum við að kyngja það var alveg ljóst frá upphafi. Væntanlega eru þeir allra tregustu að ná því nú.´
Staða Íslands hefur sjaldan verið veikari nú og það nánast frá Lýðveldisstofnunni 1944. Við komumst upp úr þessari holu og það verða erfiðleikar en við þurfum að sýna samstöðu. Eins held ég að enginn vilji okkur neitt illt. Það að allar Evrópskar þjóðir eru ánauðugar í Evrópubandalaginu er náttúrlega kjaftæði. Við sjáum hvað við fáum í samningum og þegar þessar samningsniðurstaða liggur fyrir greiðir fólk atkvæði um þetta og sé í raun ekkert hættulegt með það. Án EBS verðum við föst með krónuna og verðtrygginguna og allar vísitölurnar get í raun ekki séð neitt annað fyrir mér.
Annars var það ekki systurflokkur Framsóknarflokksins hinn norski Senterpartiet sem bauð okkur upp á norska krónu það var í raun einn maður Lundteigen sem er í þeim sama flokki. Hann var áður í fjármálanefnd en missti það embætti núna eftir síðustu kosningar. Senterpartiet er með um 6% fylgi. Hinn flokkurinn er systurlokkur VG, heitir SV eða sosialistisk venstreparti þar var fjármálaráðherra Kristin Halvorsen en þeir misstu fjármálaráðuneytið þar sem þeirra staða veiktist eftir síðustu kosningar þau eru rétt yfir 6% og verkamannaflokksmaður tók við því embætti.
Ég þekki neitt sérstaklega vel til Samfylkingarinnar en mér skilst að þau hafi frekar lítil samskipti við Norðurlandaþjóðirnar á hinum pólitíska vettvangi hafi í raun sýnt meiri áhuga að vingast við Labor í Bretlandi og voru hugfangnir Blairistar. Þannig að ég held að hvað Samfylkingin hér vil og vildi hafi ekki skipt svo miklu máli annars er Arbeiderpartiet ekki neinn gríðarlegur vinstriflokkur hann spannar langt frekar en Sjálfstæðisflokkurinn er gríðarlegur hægriflokkur. Annars hefur enginn slegið met Sjálfstæðisflokksins með 43% aukningu á ríkisumsvifum á 6 árum.
15.11 2009 kl.00:17
Slóð
Alle nordiske lander, tak for samvittigheden!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
15.11 2009 kl.06:07
Slóð
@S.Á.
14.11 2009 kl.22:45
Bullseye!!!
Get ekki verið meira sammála þér S.Á.!!!
15.11 2009 kl.10:15
Slóð
Þessi ótrúlea söguskoðun/spuni að AGS, Bretar, Hollendingar, ... já og Norrænu löndin eru að gera okkur allt til miska og hafi sem einhvert markmið að troða okkur í Evrópubandalagið.
Skoðum þetta betur. Það eru nokkrar upplýsingar sem fólk neitar að horfast í augu við.
Við/íslensk stjórnvöld báðu AGS/IMF að koma og hjálpa okkur.
1. Þáverandi fjármála/dýralæknir Árni Matthiessen og þávarandi seðlabankastjóri Davíð Oddsson undirrituðu viljaskjal þar sem forsenda aðstoðar væri a) að Icesave málið yrði leyst. b) vitræn/raunhæf fjárlög og hallalaus á 4-5 árum yrðu gerð. Traustið á okkur var ekki meira en það að aðstoðin var bundin við “benchmark” þeas. áfanga við fengjum lán þegar vissum áföngum í aðgerðaráætluninni yrði náð.
2. Aðstoðin. Við fengum aðstoð via Seðlabanka norrænna landa með samningi ergo þeir fengu verðlausar íslenskar krónur og við fengum norskar, danskar, sænskar og evrur frá Finnlandi. Þetta bættist við fyrsta lánið frá IMF.
Ef við hefðum ekki fengið þessi lán ættum við 0 þeas galtóman gjaldeyrisvarasjóð og krónan hún væri í klósettinu og væri við að vera sturtað niður.
3. Öll aðstoð nema þetta lán sem Færeyingar veita okkur er bundin því að við fylgjum prógrammi IMF þ.á.m lánið frá Póllandi, Norrænu löndunum sem bætist við lánið frá IMF sem mér skilst að sé að mestu fjármagnað frá Noregi sem hefur lagt gríðarlegar upphæðir til IMF til hindra fjármálahrun.
Í raun get ég ekki séð neitt óeðlilegt í þessum aðgerðum IMF sem við hefðum átt að fylgja. Lausn Icesave var í raun forsendan fyrir aðstoð. Það getum við rifist endalaust um hér en hefur það eitthvað að segja? Nei held að það sé vonlaust að reyna að eyða orku í það. Þetta er kostnaðurinn við heilalausu einkavinavæðinguna og hafa brandarabanka og síðan kostnaðurinn við pólitískar stöðuveitingar þar sem óhæft fólk með “rétt” flokksskýrteini fékk embætti í eftirlitsstofnunum.
Það eru tvær staðreyndir sem eru orðnar svo kristaltærar
1. Jafnvel hinir mestu einfeldningar hljóta að sjá að ríkið getur ekki rekið sig með lántökum, fyrir hið fyrsta mun vaxtagreiðslur verða sífellt stærri hluti útgjaldanna og þetta náttúrlega dregur úr öllu trausti og dregur krónuna niður og eykur á skuldabyrði fólks og að lokum sú einfalda staðreynd að við fáum ekki lánað fyrir þessu lengur. Það eru bara þrjár leiðir til að lækka hallann, samdráttur, skatthækkanir og bæði, það er engin fjórða leið.
2. Við þurfum að endurfjármagna lán sem falla á ríki og sveitarfélög og fyrirtæki og stofnanir á næstu mánuðum og árum. Það verður vart gjörlegt að ætla að borga upp öll lán enda má segja að við erum hársbreidd frá ruslflokki/”junk bonds” sem gerir alla slíka fjármögnun nær ómögulega og þá geysilega dýra. Að hafa lánalínur inn til norrænu landanna mun skapa ákveðinn stöðugleika sem verður geysilega mikilvægur. Klárlega þarf að nota þessi lán gríðarlega varlega og íslensk efnahagsstjórn verður nánast að ganga á eggjaskurn.
Þessi ótýmabæra stýrivaxtalækkun núna um daginn olli nær samstundis gengisfalli íslensku krónunnar, það sáu nánast allir.
Þeir geta í ró og næði reynt að tjakka niður vextina, samfara styrkingu krónunnar sem mun bæta ástandið hér gríðarlega en þetta er löng ferð.
Held í raun það skipti litlu máli hver situr í stjórn leiðin er í raun mörkuð, því miður held ég að þeir þurfi að hækka skatta ef þeir ætli að hafa velferðarkerfi (heilbrigðis/trygginga og menntakerfi) sem er í ætt við það sem fólk hefur hingað til vanist.
Síðan er hægt að rífast um ESB þegar þessi samningur liggur fyrir, hvort á að gefa kvótagreifunum kvótan aftur og hvort eigi aðkoma á kvótasölukerfi sem hefur þann kost að bitna ekkki á vísitölum og í raun get ég ekki séð annað en að sum þessara fyrirtækja sem eru skráð sem útgerðarfyrirtæki og bara selja sinn kvóta séu ónauðsynlegir milliliðir og get í raun ekki séð beinan þjóðhagslegan ávinning af þeim.
15.11 2009 kl.12:29
Slóð
S.Á.
14.11 2009 kl.22:45
Sammála þér í einu og öllu.
Forsætisráðherra Noregs vill inn í ESB og það hentar honum meðvirkni með ESB sinnum á Íslandi. Hann vill ekki fjarlægjast þessi brjáluðu markmið.
Ekki trúa alltaf þessum síðustu erlendu aðilum sem tala. Skoðið heldur verk þeirra - það er sannleikur. “Berin eru súr.” sagði refurinn.
Nei við ESB og nei við Icesave.
15.11 2009 kl.13:02
Slóð
Trúir því nokkur maður að við getum alveg sleppt að greiða Icesave skuldbindingarnar? Enginn stjórnmálaflokkur á Íslandi hefur þorað að segja það. Við gætum ákveðið að fara í mál og stærstar líkur eru á að við myndum skíttapa. Það að ákveða að borga innistæður í Landsbankanum á Íslandi til fulls en skv. Icesave borgum við hluta af þessu dæmi og vísa til nær galtóman tryggingarsjóð bankanna en gleymum ekki hver átti að sjá til að það væri til fé í honum? Það voru íslensk stjórnvöld því miður. Það voru íslensk stjórnvöld enda hefur enginn samúð með okkur vegna þess mál. Þetta er klárlega stuldur á sparnaði þegna í Bretlandi og Hollandi og hollenskir og breskir skattborgarar ætla ekki að borga þetta fyrir okkur.
Það að segja nei við Icesave þýðir í raun viðskiptastríð við Evrópu að halda eitthvað annað er raunveruleikafyrrt óskhyggja
Já hvar stöndum við þá, þá í nákvæmlega sömu sporum eins og við höfum verið og þetta mun þýða hrun krónugengis og pólitíska og efnahagslega einangrun.
15.11 2009 kl.13:27
Slóð
Ég get bara ímyndað mér í hvaða aðstöðu við værum ef “við” eða ríkisstjórnin myndi
1. senda Englendingum/Hollendingum skilaboð um að við ætlum aldrei að borga Icesave.
2. að við sendum ESB boð um að við viljum ekki sækja um. Þar myndu menn bara yppa öxlum að ég tel.
3. við gætum neitað að þiggja aðstoð IMG/AGS sem við myndum aldrei fá enda var forsendan að leysa Icesave málið.
4. við gætum sagt okkur úr Norðulandaráði sem sumir vilja og er í raun óskyljanlegt.
Ef einhver telur að okkar staða myndi batna við þetta?
Klárlega myndi krónan hrynja og í raun þyrftu þeir að setja hana á flot. Allar lánalínur myndu hætta og við yrðum bara látin verða afskiptalaus. Væntanlega yrðum við rekin úr EES sem í raun myndi leiða til að það yrðu settir tollar á ál og fisk á evrópumarkað enda værum við búin að lýsa viðskiptastríði. Ekki ólíklegt að eigur íslenskra þegna erlendis og eigur ríkissins væntanlega fyrirtæki sem ríkið á hlut í á meginlandi Evrópu yrðu frystar eða gerðar upptækar.
15.11 2009 kl.16:07
Slóð
@ Gunnr
15.11 2009 kl.00:08
Við skulum halda okkur við það sem sannara reynist: Þú talar um Lundteigen. Hann er ekki formaður SP, veit ég vel. Strax eftir hrunið stakk formaður SP, sem er kona, upp á því, að Íslendingar fengju að taka upp norska krónu. Kristin Halvorsen, sem þá var fjármálaráðherra og er formaður SV, tók vel í það, taldi þá rétt að skoða það mál á jákvæðan hátt. SJS talað þá við Kristínu þessa í kjölfarið og reyndi að liðka til varðandi það, að við gætum tekið upp norska krónu. SJS var þá í stjórnarandstöðu á Íslandi og gat ekki borið fram formlega ósk um upptöku norsku krónunnar frá Íslendingum.
Þáverandi ríkisstjórn Íslands sýndi þvi engan áhuga, að fá að taka upp norsku krónuna, enda höfðu forystumenn Samfylkingarinnar snarlega samband við Jens Stoltenberg, sem í kjölfarið hló hugmyndina út af borðinu. Það hentaði honum og Samfylkingunni betur þá og hentar sömu aðilum betur í dag, að Ísland gangi í ESB. Þeir eru orðnir langeygir Samfylkingarmennirnir eftir feitu embættunum í Brüssel og aðrir af sama sauðahúsi bíða eftir dagpeningunum vegna ferða til og frá Brüssel. Fyrirgefðu: Þú hlýtur að skilja óþolinmæði þeirra.
Hið sama á við um Jens Stoltenberg. Hann þurfti áfallahjálp 1994, þegar Norðmenn sögðu nei við aðild að ESB, enda var hann svo viss um að elítan hefði sigur í þeim kosningum, að hann átti farmiða til Brüssel, þar sem hann var búinn að fá loforð um gott embætti.
Það er reyndar athyglisvert, að Samfylkingarmenn og Vilhjálmur Egilsson sögðu fyrir nokkrum mánuðum, að um leið og við værum búin að sækja um aðild, myndi íslenska krónan byrja að styrkjast á ný. Sú spá var auðvitað engin spá, heldur hluti af lygavef. Það er ekki traustvekjandi, að talsmenn ESB aðildar skuli þurfa að beita lygum, og já lygum, sem eru afhjúpaðar sem slíkar jafnharðan. Þess háttar málflutningur dæmir sig sjálfur, enda ætlar þjóðin að hafna aðild að ESB.
15.11 2009 kl.16:07
Slóð
Gunnr
Þú ert auli og hefur hvorki sjálftæða hugsun né áræði til að takast á við það sem þarf.
Ef marka má skrif þín á þessu bloggi ertu annað hvort atvinnubloggari á vegum SF eða ESB eða bara VENJULEGUR AUMINGI
15.11 2009 kl.18:09
Slóð
Voðalega eru menn ólmir í að lítllækkla sjálfan sig í endalausu þvargi um ekki neitt..
Næstum því aðdáunarvert.
15.11 2009 kl.18:21
Slóð
Og helvítis Svíarnir, sem Samfylkingin daðrar stöðugt við í blautum ESB draum.
Hvað kosta blautir draumar Samfylkingarinnar?
Eru þeir ekki við stjórnvölinn í dag?
Tiltektin á sukki undanliðinna ára er íslenskra stjórnvalda.
Við krefjumst þess að skíturinn verði afhjúpaður.
Tiltektin á sukki undanliðinna ára er íslenskra stjórnvalda.
Þið komist ekki fram hjá því í ykkar ESB - blaðri.
15.11 2009 kl.19:48
Slóð
Almenningsálitið hér í Noregi og reynar álit stjórnmálamanna líka er að Ísland sé spillt land, þar sem gráðugir svikahrappar og stjórnmálamenn eru eitt.
Finnst ykkur eitthvað skrýtið að aðrir þjóðar vilji helst ekki lána peninga til Íslands?
En með því að lána fé til Íslands í gegnum IMF, eru þó gerðar kröfur að Ísland fylgi efnahagsáætlun IMF en haldi ekki áfram að sukka og sóa peningum í jeppa og elton-john-afmælisveislur.
Ísland er eins og illa uppalinn smákrakki.
15.11 2009 kl.19:53
Slóð
@Jón Jón Jónsson gleymdu ekki hverjir komu okkur í þessa aðstöðu það voru flokkar sem ennþá eru á þingi það voru Sjálfstæðisflokkurinn með Framsóknarflokks og að lokum Samfylkingar. 1/3 kjósenda eru tilbúnir að láta nauðga sér aftur að blóta og bölva öðrum þjóðum eins og Svíum er okkur bara til minnkunnar við gerðum þetta sjálf og sumir vilja kjósa þetta yfir sig aftur, það er í raun hámark aumingjaskaparins. Sumir eru það treggáfaðir að þeir eru ennþá ekki búnnir að fatta það og er þeim vorkunn greyjunum.
@SÁ því miður var okkur aldrei boðið að taka upp norska krónu og það er enginn pólitískur vilji fyrir því. Það hefði í raun þýtt að norska fjármálaeftirlitið og Seðlabanki bæri ábyrgð á Íslandi það var enginn vilji á því. Hver í ósköpunum vill hleypa ábyrgðarlausum brennuvörgum og óvitum inn á sinn gjaldmiðil. Sem skilja skít eins og Icesave í hagkerfi annara þjóða og ætla síðan að hlaupa frá því. Við erum almennt álitnir gráðugir vitleysingar/óvitar og jafnvel óheiðarlegir, Nígeríumenn Evrópu enda hefur Nígería meira lánstraust en Ísland skv. síðustu greiningum matsfyrirtækja. Í raun er eini gjaldmiðillin sem við eigum kost á er Evran og þá með aðild en það verður varla fyrr en eftir áratug kanski ennþá meira. Tæknilega séð gætum við tekið upp hvaða gjaldmiðil sem er en það sem enginn hefur bent á er hvernig það í ósköpunum ætti að verða fjármagnað.
@GunnarS já bentu á eitthvað sem er rangt í framburði mínum. En svona fullyrðingar lýsa þér eiginlega betur en marg annað. Svona skítkast er ekki svaravert og í raun dæmir það þig sjálfan.
VIð Íslendingar erum í virkilega slæmri stöðu og til þess að komast út úr þessari holu verðum við að meta af raunsæi hvaða leiðir okkur bjóðast. Leið fátæktar og einangrunar er klárlega ein leiðin. Þetta þarf að ræða frá ýmsum sjónarhornum.
15.11 2009 kl.21:06
Slóð
Eftir að hafa lesið innlegg annara bloggara hér, áttar maður á því hversu mikið er af sjúku fólki á Íslandi.
Það er kannski ekki skrýtið að heiðarlegt og duglegt fólk frá Íslandi streymi til Noregs, ca. 1200 manns frá áramótum, þ.e. gera 120 manns á mánuði, 3 á dag.
15.11 2009 kl.21:19
Slóð
@ Gunnr
Ég held að stór hluti þjóðarinnar, þ.e. þeir sem eiga í erfiðleikum með að standa í skilum, verði fátækir í allmörg ár. Ég verð það allavega. Ég á ekki von á einhverjum gullmolum frá ESB og vænti þess raunar ekki fyrir hönd flestra landsmanna. En vissulega eru þeir til, sem munu sjá fram á betri kjör með inngöngu í ESB. Þar á ég einkum við um þá, sem komast þar að kjötkötlunum, í embætti hjá því háæruverðuga bandalagi. Það er ábyrgðarhluti að halda því að fólki, að allt verði efnahagslega svo miklu betra fyrir Íslendinga almennt, ef við göngum þar inn. Ég get heldur ekki séð, að hagur almennings í ESB löndum almennt sé svo öfundsverður. Atvinnuleysi í ESB er nú að meðaltali 9,6%, sem er mun meira en hérlendis. Samt varð hrunið meðal ESB-ríkja hvergi verra en hér, kannski að undanskyldu Lettlandi, enda er atvinnuleysi þar líka mun meira en hér. Atvinnuleysi í Hollandi var um 2% í byrjun árs, en er nú komið yfir 5%. Holland stendur hvað best að vígi af ESB löndum varðandi atvinnuleysi. Í Noregi er 3% atvinnuleysi. Noregur er ekki í ESB.
15.11 2009 kl.21:44
Slóð
SÁ
Ég er enginn Evrópusinni, það er hins vegar skaðlaust að athuga hvað við fáum í samningi við ESB. Í raun þekkjum við Íslendingar Evrópubandalagið allt of lítið. Annars held ég að það verði enginn neyddur í Evrópubandalagið. Það er í raun eini möguleikinn að fá annan gjaldmiðil er Evran en það verður varla fyrr en eftir 10-15 ár þannig að það leysir ekki okkar bráðavanda og það minnkar klárlega atvinnuleysi hér er að krónan hrinur og bakhliðin er tekjurýrnunin sem heimilin finna illilega fyrir.
Því miður á atvinnuleysi hér eftir að aukast. Það bíður gríðarlegur niðurskurður nánast uppskurður í hinu opinbera sem í raun þýðir uppsagnir Lettar tóku skellinn strax meðan við viljum og höldum að við getum rekið okkur á lánsfé en það á því miður bara eftir að lengja og dýpka vandamálið þar sem lánin þarf að borga aftur og þessi halli á ríkissjóð grefur undan krónunni og þá erum við komin í hring. Já þetta er hrein hörmulega ömurlegt.
En auðvitað getum við gert þetta ennþá verra og endað allt eins og í grískum harmleik enda eru þær verstu og mestu skráveifurnar sem við gerum okkur sjálf.
15.11 2009 kl.22:45
Slóð
Kæra fólk sem vill kenna xD um þetta helvíti sem við lifum í...
Hugsið málið ögn betur...
Þetta orðbragð er eins og að kenna Henry Ford um að bílar mengi ...
Flokkurinn hefur ekki gert neit rangt og þið eruð of heimsk til að fatta að eina leiðin er að finna einstaklingana sem hafa brotið af sér og draga þá til saka.
það er ykkur að kenna að einstaklingar innan flokksins komast uppmeð að nota xD sem skjöld.
Hvernig væri að rækta bein í nefið á ykkur svo þið getið skotið niðurfólk í stað þess að reyna að drekkja einhverju sem er ekki til nema á pappírum
15.11 2009 kl.23:08
Slóð
@ Gunnr kl.19:53.
Þú hefur sagt það áður, að engan hafir þú kosið af flokkunum.
Ég skal fara á trúnó með þér, að ég hef aldrei kosið xD, þó þú ýjir að því.
Mig grunar að þú hafir viljað koma höggi á mig þegar ég brigslaði þér um að vera penni stjórnvalda. Þá bað ég þig afsökunar eftir að þú hafðir neitað því og farið á pólitískt trúnó. Ætli sé ekki líkara með okkur en þig grunar.
15.11 2009 kl.23:09
Slóð
En mér er kannski bara vorkunn...að líkjast þér.
16.11 2009 kl.08:51
Slóð
Gunnr
15.11 2009 kl.19:53
Fór yfir mörkin og biðst afsökunar á því.
Gunnr
15.11 2009 kl.13:27 !
Slóð Ég get bara ímyndað mér í hvaða aðstöðu við værum ef “við” eða ríkisstjórnin myndi
1. senda Englendingum/Hollendingum skilaboð um að við ætlum aldrei að borga Icesave.
Auðvitað eigum við að semja um Icesave - en á réttum forsendum
Við eigum að borga hámarkstryggingu tryggingasjóðs innistæðueigenda skv. reglugerð ESB og ekki krónu meir. Ekki þann pakka sem englendingar og hollendingar ákváðu upp á einsdæmi að troða upp á íslensku þjóðina til að bjarga sínum eigin pólitísku sitjöndum
2. að við sendum ESB boð um að við viljum ekki sækja um. Þar myndu menn bara yppa öxlum að ég tel.
Það er allt í lagi að senda umsókn til að fá úr því skorið hvað sé í boði. Tímasetningin er einfaldlega algerlega röng, bæði með tilliti til pólitískra aðstæðna og þeim gífurlega kostnaði sem þessu fylgir þegar niðurskurður á öllum velferðarsviðum blasir við þjóðinni.
3. við gætum neitað að þiggja aðstoð IMG/AGS sem við myndum aldrei fá enda var forsendan að leysa Icesave málið.
Það er umdeilanlegt hvort lántökukostnaðurinn sjálfur komi til með að sliga þjóðarúið án þess að nokkurn tímann kæmum til að nota þennan gjaldeyri nema sem björgunarvesti fyrir íslensku krónuna.
4. við gætum sagt okkur úr Norðulandaráði sem sumir vilja og er í raun óskyljanlegt.
Ef einhver telur að okkar staða myndi batna við þetta?
Krónan mun hvort sem er hrynja - við þurfum að hafa manndóm í okkur til að koma á fjármálakerfi sem virkar og vinna okkur út úr vandanum með aukinni verðmætasköpun. Ef þetta verður ekki gert, þá er alveg sama hvort við endum í ESB eður ei.
Það er hvort sem er mikil vinna framundan.